Heimskringla - 26.05.1948, Blaðsíða 2
2. SÍElA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 26. MAÍ 1948
Á annað hundrað nýbýli
stofnuð á sex árum
Þetta Nútíma Fljóthefandi
Dry Yeast, þarf
Engrar Kælingar Með
Verkar fljótt!
Hér er um að ræða undrunarvert, nýtt ger, sem verkar eins
fljótt og ferskar gerkökur, og á sama tíma heldur fersk-
leika og fullum krafti á búrhillunni. Þér getið pantað mán-
aðarforða hjá kaupmanninum yðar, í einu.
Engum nýjum forskriftum eða «fyrirsögnum þarf að fara
eftir. Notið Fleischmann’s Róyal Fast Rising Dry Yeast
nákvæmlega eins og ferskar gerkökur. Einn pakki jafngildir
einni ferskri gerköku í öllum forskriftum.
1 pakki jafngildir 1 köku af Fresh Yeast
Á árunum 1941 — 1947 hefur
verið veitt til 129 nýbýla 919
þúsund krónum í beinan styrk og
554 þúsund krónum sem lán.
Á sama tíma hafa verið greidd-
ir styrkir til endurbygginga á
sveitabæjum, samkvæmt ákvörð-
un nýbýlastjórnar, er nema 2,3
miljónum króna til 985 íbúðar-
húsa.
Þannig fórust Jóni Pálmasyni
alþingismanni orð, er blaðið leit-
aði tíðinda hjá honum um þessi
mál, en hann er sem kunnugt er,
Þegar lögin um nýbýli og sam-
vinnubyggingar vóru sett árið
1935 var svo ákveðið að styrk til
nýbýla mætti veita allt að 3500
kr. og sömu upphæð að láni á
hvert einstakt býli.
Reyndist yfirleitt mjög erfitt
fyrir nýbýlastofnendur að kom-
ast af með svo litla aðstoð. Árið
1941 var lögunum breytt og þá,
voru sett í einn og sama laga-
formaður nýbýlastjórnar ríkis
ins.
Flest nýbýli hafa á fyrrgreindu
tímabili, verið reist í Suður-
Þingeyjarsýslu, eða 27 samtals
Hafa þau fengið 162 þús. kr. í
styrk og 107 þús kr að láni.
Endurbyggð íbúðarhús hafa
verið flest í Árnessýslu, 103 sam
tals. Hafa þau fengið 279 þús
kr. styrk.
Að öðru leyti skiptast þessi
framlög eftir héruðum, sem hér
segir:
bálk ávæði um byggingar- og
landnámssjóð, nýbýli og sam
vinnubyggðir, endurbygginga
styrki til íbúðarhúsa í sveitum
og teiknistofu landbúnaðarins
Samkvæmt þeim lögum mátti
veita 6 þús. kr. styrk og 6 þús kr
lán á hvert einstakt býli. En
þetta reyndist fljótlega of lítill
stuðningur. Fékk því Nýbýla-
stjórn heimild til þess að veita
beim nýbýlastofnendum, sem
voru settir, nokkurn aukastyrk.
Var í nokkur ár veitt til þess fé
á f járlögum. Þó var engum veitt-
ur hærri aukastyrkur en 7 þús.
kr.
Lögunum frá 1941-var svo gjör-
breytt með setningu laga um
landnám, nýbyggingar og endur
byggingar í sveitum, sem sam-
þykkt voru á Alþingi í aprílm.
1946; að fyrirlagi Nýbyggingar-
ráðs og fyrrverandi landbúnaðar-
ráðherra, Péturs Magnússonar.
Samkvæmt þeim lögum er að-
alstuðningurinn við nýbýlamynd
anirnar fólginn í því að veita lán
með 2% ársvöxtum, sem geiðast
upp á 42 árum. Hámark lánsupp-
hæðar má vera allt að 75% stofn-
kostnaðar.
Til þessa ákveða lögin að veitt-
ar skuli 2,5 milj. kr. á ári á næstu
10 árum, í fyrsta skipti árið 1946,
samtals 25 milj. kr. Af þessu fé
er Nýbýlastjórn heimilt að verja
til stofnunar nýbýlahverfa eftir
því sem hún telur fært og hyggi-
legt.
Hefur þegar verið hafist
handa um stofnun eins byggða-
hverfis á jörðum ríkisins í Ölf-
usi.
— Hvernig verður framkvæmd
um hagað þar?
— Framræsla á landi, vegir
og ræktun 5 hektara fyrir hvert
býli verður kostuð af ríkisfé og
byggð íbúðarhús. Býlin verða
síðan leigð eða seld bændum,
sem þarna vilja setjast að, en
samkvæmt lögunum eru þeir
skyldir að mynda með sér
byggðafélag.
Með hverjum hætti hafa ný-
býlin helst verið mynduð und-
anfarin ár?
Fyrst og fremst með skipt-
ingu eldra jarða, að nokkru leyti
með endurbyggingu eyðijarða
og a. m. k. á einum stað, í Mos-
fellssveit í Lágafellslandi, með
samfelldri byggð, þ. e. stofnun
6 — 7 nýrra býla.
Er skynsamlegt að verja
miklu fé til nýbýlastofnunar
samtímis því, sem vitað er að
margar jarðir, víðsvegar í sveit-
um landsins eru að fara í eyði?
Margir þeir, sem lítinn skiln-
ing hafa á aðstöðu sveitafólks-
ins halda að þetta sé ekki heil-
brigt. En eg er á gagnstæðri
skoðun. Það er eðlileg viðburð-
anna rás að afskekktar jarðir,
sem vantar vegi, síma og önnur
samgönguþægindi og sem fyrir-
sjáanlega er mjög erfitt að útvega
þessi þægindi í náinni framtíð,
fari í eyði enda þótt þeir, sem
þar búa hafi sterkan vilja og
sýni ótrauða viðleitni til þess að
umflýja þau örlög í lengstu lög.
En jafnhliða því, sem þetta
gerist ber brýna nauðsyn til þess
að þétta byggðina þar, sem sam-
göngurnar eru bestar og skilyrð-
in heppilegust til þess að geta
notið þeirra lífsþæginda, sem nú-
tíminn krefst.
Þetta hefur margt ungt sveita-
fólk skilið fullkomlega. Þess
vegna er sótt meira á nýbýla-
stjórn um aðstoð við nýbýla-
myndanirnar en ætla mætti. —
Verður það að segjast að það er
gleðilegt tímanna tákn því ó-
neitanlega leggur það fólk á sig
mikið erfiði og tekst stóran
vanda á hendur, sem klífur bratt-
ann með því að stofna ný sveita-
beimili. Er vonandi að framhald
verði á þessu. Nýbýlastjórn hef-
ur fullan hug á að veita alla þá
aðstoð, sem hún hefur ráð á.
Hvaða reglu hafa gilt um end-
urbyggingarstyrkina ?
»
Þegar nýbýialögin voru rædd
á Alþingi árið 1935 lagði eg til
að sett yrði í lögin ákvæði um
nokkurn styrk til endurbygg-
inga á þeim jörðum, sem verst
væru settar með húsakost. Það
var fellt af þáverandi stjórnar-
flokkum, en tekið upp tveimur
árum síðar og þá lögfest í þeirri
mynd, sem eg lagði upphaflega
til. Var miðað við það að fast-
eignamat bæjarhúsa væri ekki
yfir 1500 kr. og mætti veita styrk
til enáurbyggingar allt að 1500
kr., á hvert íbúðarhús. Þessi á-
kvæði giltu þar til lögunum var
breytt árið 1941. Þá var nýbýla-
stjórn heimilað að greiða viðbót
við þann styrk, sem svaraði vísi-
töluhækkun byggingarkostnað-
ar. Hefur hámark þeirra styrkja,
sem greiddir hafa verið numið
fimm til fimm þúsund og flestir
þeirra hafa á síðari árum verið
þrjú til fjögur þúsund og fimm
bundruð krónur að upphæð. Með
lagabreytingunni frá 1946 eru
þessir endurbyggingastyrkir af-
numdir en í staðinn koma lán
með 2% ársvöxtum til langs
tíma eins og eg minntist á í sam-
bandi við nýbýlin.
Hverjir skipa Nýbýlastjórn
nú?
Auk mín, þeir Jón alþingis-
maður Sigurðsson á Reynistað,
Ásmundur Sigurðsson, alþingis-
maður, Steingrímur Steinþórs-
son, búnaðarmálastjóri og al-
þingismaður og Helgi Hannes-
son, kennari á ísafirði.
Framkvæmdarstjóri hennar er
Pálmi Einarsson, en samkvæmt
lögum frá 1946 ber framkvæmd-
arstjóri nafnið landnámsstjóri.
Eg vil að lokum segja það,
segir Jón Pálmason, í sambandi
við framtíð sveitanna, að á því
er höfuð nauðsyn að byggingar
yfir fólk og búfénað verði stór-
lega bættur frá því, sem nú er.
Það er mikill munum á lífsþæg-
indum sveitafólksins varðandi
húsakost og fólksins í hinum
stærri bæjum. Er þar að finna
eina aðalorsök fólksflutninganna
úr strjálbýlinu. Hinu opinbera
ber því skylda til þess að stuðla
meir að því en verið hefur að
bæta húsakost fólksins í sveitun-
um. í því sambandi er þó ekki
hægt að komast hjá að minnast
þess, að það, sem sveita fólkið
þráir mest og tengir bjartastar
vonir við, er raforkan. Þar býður
óleyst stærsta vandamál hinnar
íslenzku strálbyggðar enda þótt
xaforkulögin frá 1946 séu mjög
merkileg lög og stórt spor í rétta
átt.
—Mbl. 9. marz
BROSIÐ SEM HVARF
Mikil alvara hefur gagntekið
Evrópumenn. Við getum talað
við Englending tímunum saman,
án þess að honum stökkvi bros,
og ef hann brosir, flýgur manni
ósjálfrátt í hug, að þetta bros
hans sé “eins og geymt frá lið-
inni tíð”. Slíkt er naumast til-
tökumál, þegar á það er litið, —
hvað enska þjóðin hefur orðið að
þola á þessari öld. Þær eru ekki
fáar fjölskyldurnar meðal vest-
urveldanna, sem hafa þá sögu að
segja, að heimilisfaðirinn féll í
heimsstyrjöldinni 1914 —18 og
sonur hans í seinustu heimsstyrj-
öld. Er nokkur furða, þótt ekkj-
ur þessara manna beri nokkurn
kvíðboga fyrir framtíð drengj-
anna, sem nú eru að komast á
legg og eru farnir að læra að axla
byssur nýfermdir? Sí og æ er
verið að berjast einhvers staðar
á hnettinum, og á háværum “frið-
arráðstefnum” sitja stjórnmála-
mennirnir og vita oft og einatt
ekki sitt rjúkandi ráð.
íslendingar, sem koma til Dan-
merkur hafa þótzt veita því at-
hygli, að brosið og léttleikinn, er
einkenndi Dani fyrir stríð, sé
nú hvort tveggja horfið. Það er
talsvert til í því. Danir eru sárir
og óknægðir. Þeir eru sífellt að
hugsa um þjáningar sínar á her-
námsárunum og allt það tjón,
sem Þjóðverjar ollu þeim þá- —
Norðmenn bíta á jaxlinn, reyna
til að gleyma liðnum hörmung-
um og hamast við að vinna að
endurreisn atvinnuvega sinna.
En Danir eiga bágt með að
gleyma því böli, sem þeir urðu að
þola. Þeim finnst, að þeir hafi
gersamlega glatað fimm dýrmæt-
um árum. Að undanförnu hafa
þeir verið að hreinsa til 1 þjóð-
félaginu og dæma föðurlands-
svikara, er unnu með Þjóðverj-
um, í sektir, réttindamissi, fang-
elsi og jafnvel til lífláts, hópum
saman. Snemma í maí s. I. vor fór
t. d. fram aftaka nokkurra
danskra spellvirkja frá hernáms-
árunum. Fyrirlitning allrar
dönsku þjóðarinnar fylgdi þeim
til aftökustaðarins.
Þeir, sem álása Dönum fyrir
heift þeirra í garð Þjóðverja og
sinna eigin 5. herdeildarmanna,
ættu að fletta myndabók einni
mikilli, sem gefin hefur verið út
í Danmörku og nefnist: “5 ára
hernámið í myndum”. Þar eru
samtals 539 myndir og flestar
þeirra af spellvirkjum, sem unn-
in voru í Danmörku á hernáms-
árunum frá 9. apríl 1940 til 5.
maí 1945. Inngangsorð ritar dr.
Poul Nörlund, forstöðumaður'
danska þjóðmiftjasafnsins, en
Ernst Mentze stuttan formála.
Óllu hroðalegri, en jafnframt
yfirlætislausari bók en þessa hef
eg naumast haft handa á milli.
Fjöldi ljósmyndara hefur lagt
til efni í bókina, og hafa myndir
hennar verið valdar úr mörgum
þúsundum mynda. Framan á
bókinni er mynd af hinni al-i
kunnu standmynd af sjóhetjunni;
Niels Juul, en í baksýn sést stór-
hýsi Austur-Asíu siglingafélags-
ins í ljósum logum. Eyðilögðu
Þjóðverjar það í hefndarskyni,
og var það tjón eitt metið á 3
milljónir króna. Margar mynd-
irnar sýna skemmdir á dönskum
mannvirkjum og misþyrmingar á
fólki. Sú mynd bókarinnar, sem
orka mundi einna mest á íslend-!
inga, er af hinu misþyrmda líki
skáldprestsins Kaj Munks, er
fannst myrtur skammt frá Silki-'
borg 5. jan. 1944. Danskir föður-i
landssvikarar í þjónustu Þjóð-'
verja voru valdir að morði Kaj
Munks, sams konar menn og líf-;
látnir voru í maí s. 1., eins og áð-l
ur er getið. I
v Dönum telst til, að þeir hafi
tapað 12 milljörðum á hernámi
Þjóðverja. Því tjóni eiga þeir
örðugt með að gleyma. En þeir
hafa. líka lært mikið á árunum
1940 — 45. Meðal annars hafa
þeir komizt að raun um, hvílík
hætta sérhverri þjóð stafar af
íöðurlandssvikurum sínum, þess-
ari undarlegu manntegund, sem
ávallt virðist reiðubúin til að
fremja hvers kyns glæpi á sam-
borgurum sínum og baka þjóð
sinni í heild hvert það tjón, er
vera skal, í blindri auðsveipni
við erlenda valdhafa, einungis ef
fé eða völd eru í boði. Þessa
manntegund notuðu Þjóðverjar
í Danmörku og Noregi til að
fremja ýmis þau óhappaverk, er
þeir töldu sjálfum sér ósæmandi
að koma nálægt. Danir og Norð-
menn hafa með dýrkeyptri
reynslu öðlazt næsta nytsamlega
þekkingu á þessum vanmetakind-
um þjóðfélagsins.
—Samtíðin
FRÉTTIR FRÁ ISLANDI
Yfir eitt þús. skíðamenn
í Skíðasambandi íslands
Yfir eitt þúsund virkir skíða-
menn eru nú skráðir innan vé-
banda Skíðasambands íslands.
Eru þeir meðlimir í þeim sjö hér-
aðasamböndum, sem að SKÍ —
standa, en þau eru: Héraðssam-
band, Suður-Þingeyinga, íþrótta
bandalag Hafnarfjarðar, íþrótta-
bandalag Strandasýslu, Skíðaráð
Akureyrar, Skíðaráð ísafjarðar,
Skíðaráð Reykjavíkur og Skíða-
ráð Siglufjarðar.
Frá þessu er skýrt í skýrslu
stjórnar Skíðasambands íslands
fyrir starfsárið 1947 — 48.
Hér í Reykjavík voru skíða-
mennirnir 260, á Akureyri 250, á
Siglufirði 159, á ísafirði 138, á
Ströndum 110, í Hafnarfirði 43
og Þingeyjarsýslu 41.
Veturinn 1946—47 voru haldin
níu opinber skíðamót, sem stjórn
SKÍ barst skýrsla um. Voru sam-
tals um 500 keppendur í þeim.
Fjölmennast var skíðamót Ak-
ureyrar með 130 keppendum. 160
þáttakendur vpru í skíðamóti
Reykjavíkur og 82 í skíðamóti
íslands.
Samkvæmt skíðahandabókinni,
sem gefin var út 1946, og skýrslu
stjórnar SKÍ eru nú 40 skíða-
menn í A-flokki í skíðagöngu, 41
í A-flokki í skíðastökki, 67 í A-
flokki í svigi og bruni karla og
51 í A-floki í svigi og bruni
kvenna. —Mbl. 10. apríl
Wedding Invitatlons
and announcements
Hjúskapar-boðsbréf
og tilkynningar,
eins vönduð og vel úr garði
gerð eins og nokkurstaðar er
hægt að fá, getur fólk fengið
prentuð hjá Viking Press Ltd.
Það borgar sig að líta þar inn og
sjá hvað er á boðstólum.
BORGIÐ HEIMSKRINGLIT—
því gleymd er goldin skuld
WORLD TRADE
WEEK
MAY 30th to JUNE 5th
World Trade Week^s being observed throughout
Canada from MAY 30 to JUNE 5 in an effort to bring to
the attention of the people of Canada, the importance of
Canada’s World Trade.
The high standard of living we as Canadians now
enjoy, is directly responsible to World Trade, and, if this
can be clearly understood by us all, World Trade Week
will be considered successful in every way.
THIS SPACE CONTRIBUTED BY
SHEA’S
WINNIPEG BREWERY LTD.
Veitt lán og styrkir úr nýbýlasjóði árin 1941 —1947
Sýslur og Kaupstaðir Talabýla Lánv. Styrkv.
Gullbringusýsla 1 5,000,00 1,500,00
Kjórsársýsla 2 11,000,00 22,179,90
Borgarfjarðarsýsla 6 36,000,00 54,665,00
Mýrasýsla 2 8,000,00
Snæf.- og Hnappadalssýsla.. 5 29,500,00 29,948,20
Dalasýsla 0 000,000,00 000,000,00
Barðastrandarsýsla 1 6,000,00 7,182,50
Vestur-ísafjarðarsýsla .. ‘ 1 6,000,00 4,500,00
Norður-ísafjarðarsýsla 2 500,00 3,035,92
Strandasýsla 6 30,000,00 50,946,50
Vestur-Húnavatnssýsla .... 4 21,000,00 29,000,00
Austur-Húnavatnssýsla .... 1 6,000,00 13,8^7,50
Skagafjarðarsýsla . . 11 43,700,00 102,642,25
Eyjafjarðarsýsla 8 38,500,00 58,809,60
Suður-Þingeyjarsýsla . . 27 107,700,00 162,785,06
Norður-Þingeyjarsýsla 3 16,000,00 27,157,50
Norður-Múlasýsla 5 10,000,00 31,872,00
Suður-Múlasýsla 9 27,000,00 47,109,40
Austur-Skaftafellssýsla .... . . * 2 14,500,00 30,383,05
Vestur-Skaftafellsýsla 3 15,500,00 20,400,00
Rangárvallasýsla . . 12 56,000,00 89,548,80
Árnessýsla .. 17 74,000,00 119,956,20
Akureyri 1 2,340,30
Vestmannaeyjar 1 2,000,00
129 553,900,00 919,893,78
Endurbyggingarstyrkur greiddur á árunum 1941—1947
Sýslur Tala býla Krónur
Gullbringusýsla 19 52,100,00
Kjósársýsla 7 18,900,00
Borgarfjarðarsýsla 19 42,500,00
Mýrasýsla .... 35 60,400,00
Hnappadalssýsla 13 34,400,00
Snæfellsnessýsla 59 139,400,00
Dalasýsla 51 107,600,00
Barðatsrandarsýsla 28 70,300,00
Vestur-ísaf jarðarsýsla .... 23 49,400,00
Nroður-ísaf jarðarsýsla .... 20 32,400,00
Strandasýsla .... 38 93,170,00
Vestur-Húnavatnssýsla . .. .... 32 55,200,00
Austur-Húnavatnssýsla ... 32 79,400,00
Skagafjarðarsýsla 80 201,150,00
Eyjafjarðarsýsla 61 151,400,00
Suður-Þingeyjarsýsla .... .... 76 165,600,00
Norður-Þingeyjarsýsla ... 26 52,675,00
Norður-Múlasýsla' 53 120,500,00
Suður-Múlasýsla 59 127,800,00
Austur-Skaftafellssýsla .. 30 50,900,00
Vestur-Skaftafellssýsla ... .. . . 36 81,900,00
Rangárvallasýsla 85 240,800,00
Árnessýsla .... 103 278,989,75
985 2,306,284,75
1