Alþýðublaðið - 22.06.1960, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 22.06.1960, Blaðsíða 10
Keppni yngri fiokkanna Þetta er lið Fram í 2„ fl. B, sem sigraði í Reykjavíkurmótinu. Staður: Akureyri. Áhorfendur: 1500. Veður: Sunnan kaldi, sólar- laust, þar til rétt fyrir leikslok. Hiti. 18 stig. Dómari; Ingi Eyvinds, 'Val. Línuverðir: Haraldur Baid- vinsson og Bjarni Jensson, Þrótti. Lið Akureyringa: Einar Helga son, Birgir Hermannsson, Sig- uróli Sigurðsson, Jón Stefáns- son, Jens Sumarliðason, Árni Sigurbjörnsson, Páll Jónsson, Steingrímur Björnsson, Tryggvi Georgsson, Haukur Jakobsson, Björn Olsen. Fyrir- liði: Jón Stefánsson. Lið Akurnesinga: Kjartan Sigurðsson, Bogi Sigurðsson, Helgi Hannesson, Sveinn Teits- son, Kristinn Gunnlaugsson, Hafsteinn Elíasson, Jóhannes Þórðarson, Jón Leósson, Skúli Hákonarson, Helgi Björgvins- son, Þórður Jónsson. Fyrirliði: Kristinn Gunnlaugsson. Akurnesingar unnu hlutkest- Ið og kusu að leika undan gol- unni fyrrj hálfleikinn, en það voru Akureyringar sem hófu fyrstu skipulögðu sóknartil- raunirnar og áttu þeir fyrsta skot að marki þegar á fyrstu mínútu leiksins. Lið Akurnes- inga var nú á annan veg skipað en í fyrri leikjum íslandsmóts- ins. tvo landsliðsmenn vantaði í liðið að þessu sinni, þá Helga Daníelsson og Ingvar Elísson. Jón Leósson lék nú með iiðinu í fyrsta skipti á þessu ári. Hauk ur Jakobsson lék nú einnig sinn fyrsta leik með Akureyrariið- inu eftir nokkurt hlé, hann var sem kunnugt'er búsettur sunn- anlands og iék með Keflvíking- um í fyrstu deild í fyrra. Ekki er að efa að það hefur haft nokkur áhrif á Akurnesinga að hafa nýliða fyrir aftan sig í markinu, svo mikið er víst, að beir náðu ekki þeim tökum á leiknum í upphafi, sem við var búist. í stuttu máli sagt, réðu Akureyringar meiru um gang leiksins fyrsta hálftímann og komust oft nálægt því að skora, ,;n heppnin var ekki með þeim, eða eigum við að segja; þeir voru of klaufskir til að geta notað upplögð tækifæri. Akur- “yringar eru ekki þeir einu ís- ^enzkra knattspyrnumanna, sem þannig er ástatt um, þetta °r því miður meginágalli vel- flestra íslenzkra knattspvrnu- manna um þessar mundir. Ekki verður sagt með sanni, að Ak- urnesíngar hafi ek-ki komist í T’ámunda við mark mótherja sinna bennan fyrsta hálftíma, °n Akurevringarnir voiu meira ’ s/'kn allt þar til Akurnesing- nnum tókst að gera fyrsta markið, en báðir aðilar misnot- ”ðn fram til bess góð tækifæri, Fvrofa mark leiksins kom loks 30 mínútur voru liðnar frá nnnhafsspyrnu, Jón Leósson var í skotfæri og skaut af frek- ar stuttu færi, en Einar mark- . 7 ... vörður kom í veg fyrir knött- inn, sem hrökk af honum fyrir fætur Helga Björgvinssonar, sem ekki átti í erfiðleikum með að renna knettinum í mann- laust markið. Þessi staðreynd varð þess valdandi, að heima- menn virtust með öllu missa móðinn og réðu nú Akurnes- ingar að mestu gangi leiksins, allt þar til fáar mínútur voru til leiksloka, þá var sem Akur- evringar vöknuðu af dvalanum og sóttu af miklu fjöri. Á 25. mínútu síðari hálfleiks bættu Akurnesingar öðru markinu við, Jón Leósson lék fram hægra megin og sendi knöttinn inn á miðjuna fyrir tær Helga Björgvinssonar, sem skoraði aftur. Akumesingar náðu að gera þriðia markið, áður en Ak- ureyringar komust aftur í sang, og gerðist það með svip- uðum hætti og annað markið, að því undanskildu að nú var Jóhannes Þórðarson í sporum Helga, og átti hsnn auðvelt um vik, hann renndi knettinum í ooið markið með öruggri inn- anfótarspyrnu. Nú var komið að Akureyringum, þeir áttu fjörkippinn eftir, sókn- arlota þeirra næstum látlaus, stóð síðustu 5 mínúturnar, og var nú annað slagið allt unp í ioft fvrir framan mark Akur- nesinga. Er um 3 mín. voru til loíVcJoka skaut Steingrímur hörkuskoti innan á stöng, en vildi ekki í markið, rann eftir marklínu og varnar- leikmaður Akurnesinga rótaði honum burtu, en ekki nógu langt, Haukur Jakobsson kom á hann fæti og skoraði með hörkuskoti. Enn hélt sóknin á- fram, en dómarinn flautaði leikslok áður en Akureyring- um tækist að skora aftur. Leikurinn í heild var skemmtilegur, vel leikinn á köflum, og mikið um æsandi augnablik. Akurnesingarnir Þórður Jónsson og Kristinn Gunnlaugsson áttu ágætan leik og Jón Leósson var vel virkur og driffjöður framlínunnar. I liði Akureyrar var Einar Helga son í markinu bezti maður, þá átti^Haukur Jakobsson og mjög góðán leik á köflum, hann sýndi mesta skothörkuna í þess um leik og yrði liðinu að mun nýtari maður, væri hann stað- set+”” þar í liðinu, sem skot- hæfjleikar hans notuðust betur. Lmkurjnn var hinn prúðasti af beg.cía hálfu, fyrri hálfleik- ur r í daufara lagi en hinn síðari rr mun fiörugri. Dóm- arirm Trgí Eyvinds, og hans menn áttu rólegan dag og yrði ’ i )n soarðatíningur, ef reynf væri að finna að þeirra stö’*fvm', en leikur hófst og í loivv' •. áftu áhorfendur þess ve-‘ - v, hlýða á dynjandi horna blár+’ ; plötum) — og virt- '9+ r- X' að. Akureyringar lyndi b°Þ’ við suma menn en Revk- VÍkir r-;r, — E-pB. ÞAÐ virðist augljóst, að ár- angur í frjálsíþróttum verður stórkostlegur á þessu olympíu- ári, því að stöðugt berast frétt- ir um frábær afrek utan úr heimi. — Glenn Davis sigraði í 400 m. grindahlaupi um helg- ina á 49,9 sek., en næstir voru Howard og Styron á 50,1 sek. — Danielsen kastaði spjóti 79,50 m. í Hamar á sunnudag- inn. — Ira Davis hefur sett bandarískt met í þrístökki meS 16 m. réttum. FINNINN Per-Olof Johans- son stökk fyrir nokkru 4,44 m. á stöng. — Pote hefur sett belg- ískt met x 100 m. hlaupi, bann fékk mettímann 10,5 sek. í Briissel. BEZTI hástökkviari Gahna hefur stokkið 2,057 m. .. ................... HÉR eru heztu afrekin í spjótkasti það sem a£ er þessu sumri: Bill Alley, USA, 83,4.7 Macquet, Frakkl., 80,57 Vallman, Sovét., 79,93 C. Lievore, Ítalíu, 79,60 Danielsen, Noregi, 79,60 Stenlund, USA, 79,36 Kulscar, Ungv., 79,30 Kuznetsow, Sovét., 79,14 Sikorsky, Póll., 78,44 Shordone, USA, 78,29 BELGÍUMAÐURINN Ró- ger Moens, heimsmethafi £ 800 m hlaupi, kom til Reykjavíkur í gærkvöldi og keppir á frjálsíþrótta- móti KR, er hefst á Mela- vellinum í kvöld kl. 8.30. Keppt verður í átta greinum í kvöld, þ. e. 200 og 800 m hlaupum, 400 m grindahlaupi, 4X100 m boðhlaupi, hástökki, þrí- stökki, kringlufcasti og sleggjukasti. í aðalgrein kvöldsins 800 m hlaupinu eru keppndur 5, Mons, Sva\rar, Guðmundur Þor- steinsson og tveir efnileg- ir KR-ingar. í öðrum greinum eru flestir okkar beztu frjálsíþróttamenn meðal keppenda. Mótinu lýkur annað kvöld á sama tíma og þá keppir Moens í 1500 m hliaupi. 10 22. júní 1960 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.