Alþýðublaðið - 24.06.1960, Síða 11

Alþýðublaðið - 24.06.1960, Síða 11
íþróttafréttir I STUTTU MÁLI NORÐMAÐURINN Christer Bjarne setti norskt met í 200 m. flugsundi í vikunni, synti á 2:42,3 mín. Gamla metið var 2:44,8 mín. Á MÓTINU í Prag um síð- ustu helgi, sem talað er um á öðrum stað hér á síðunni voru sett tvö landsmet, Lipsinis, Sovét. varpaði kúlu 18,49 m. (rússneskt met) og Grikkinn Papavasiliou hljóp 3000 m. hindr. á 8:45,8 mín. (grískt met) gegn RedBoys ikvöld KN ATTSP YRNULIÐIÐ Red Boys frá Luxemburg, sem hér er statt á vegum knattspyrnufél. Þróttar, leikur fyrsta leik sinn hér í kvöld á Laugardalsvell- inum gegn Islandsmeist- urum KR. Leikurinn hefst kl. 8.45. argar álykfanir á sambandsráðsfundi W\WMW>WWlWV>WV $ ÆW FUNDUR var haldinn í Sam- bandsráði ÍSÍ, 11. júní 1960, í húsakynnum ÍSÍ, Grundarstíg 2A, Reykjavík. Fundinn setti og stjórnaði: Benedikt G. Waage, forseti ÍSÍ. í upplhafi fun(í|arins minntist hann íþróttamanna og íþrótta- velunnara, er látist hafa frá síð- asta íþróttaþingi ÍSÍ, þeirra: Kol'brúnar Ólafsdóttur, Axels Grímssonar, Gunnars Salomons sonar, Guðmundar Þórðarson- ar frá Hól, Steindórs Hjaltalín, Gísla Sveinssonar frv. sendi- herra. Bað forsetl fundarmenn að minnast hinna látnu og risu fundarmenn úr sætum í virð- ingarskyni'. Á fundinum voru íluttar skýrslur framkvæmdastjórnar ÍSÍ og sérsambandanna (FRÍ, HSÍ, KSÍ, SKÍ og SSÍ), skýrsla Olympíunefndar íslands svo og Bókasjóðs ÍSÍ. Að öðru leyti voru helztu gjörðir fundarins þessar: Skipting á JÁ skatttekna ÍSÍ árið 1959 milli sérsamband'a: Sarr.þykkt var eftirfarandi tiliaga: Snmhandsráðsfundur Í'SÍ, 11. júní 1960, samþykkir að skipta % af skatttekjum ÍSÍ árið 1959 á eftirfarandi hátt á milli sér- sambandanna: Knattspyrnusamib. íslands kr. 2000.00 Frjálsdiþróttasamfo. íslands kr. 5000.00 Skíðasamb. íslands kr. 2800.00 Sundsamb."íslands kr. 2300.00 Handknattleikssamb. íslands kr. 2900.00 Golfsamb. íslands kr. 2000.00 Samtals kr. 17.000.00 Nái V3 skattteknanna ekki kr. 17.000.00, lækka Íramangreind- ir styrkir í sama hlutfalli. Stofnun sérsambanda í Glímu og Körfuknattleik. Mál þeirra var nokkuð rætt og niðurstaða fundarins var sú að fresta stofnun þessara nyju sérsambanda að sinni. Úthlutun á fé til íþrótta- greinanna, (kennslustyrkir) Samþykkt var eftirfarandi tillaga: -Sambandsfundur ÍSÍ, hald- inn 11. júní 1960, samþykki'r, að íú því, er íþróitaneind Ríkis- ins úthlutar úr íþróttasjóði 1960 til ÍSÍ (kennslustyrkir) verði skipt á milli aðila á sama hátt nú og verið hefur að und,- anförnu þ. e. 1 réttu hlutfalli' við útreiknaðan kennslukostn- að, gerðan eftir kennsluskýrsl- uxn og f járupphæð þá, er íþrótta nefnd veitir í þessu skyni. Þó skal greiðsla ekki vera innt af hendi til einstakra sér- greina nerna í samráð-i vi'ð við- komandi sérsamlband. Áhugamannaregiur ÍSÍ. Lagt var fram á fundinum áiit nefndar, sem. unnið haí'ði að því að endurskoða Áhugamanna reglur ÍSÍ, svo og önnur gögn er snartu málið. Framhald á 14. síðu. Island MEISTARAMÓT Norður- landa í handknattleik kvenna hefst í Vásterás í Svíþjóð í dag. Allar Norð- urlandaþjóðirnar nema Finnar taka þátt í mót- inu. í dag leika ísland— Svíþjóð og Noregur-Dan- mörk. ©ztu afrekin í 1500m. hlau SÁ ÁRANGUR í frjálsíþrótt- um um síðustu helgi, sem einna mest koma á óvart, var afrek Rúmenans Zoltan Vamons í 1500 m. hlaupi í Prag, en hann sigraði á 3:40,2 mín. •—• bezta tíma, sem náðst hefur á vega- lengdinni í ár. í öðru og þriðja sæti voru A-þjóðverjinn Grod- otzki og Rússinn Momotkov á 3:41,7 og 3:42,1 mín. Allir náðu þessir hlauparar sínum bezta árangri. Annars eru eftirtaldir hlauparar í fremstu sætum á afrekaskránni, það sem af er þessu sumri; Vamos, Rúmenía, 3:40,2 Roszavölgyi, Ungv. 3:41,5 Moens, Belgíu, 3:41,4. Burleson, USA, 3:41,6 Grodotzki, A-Þýzk. 3:41,7 Thomas, Ástralíu, 3:41,8 Bernard, Frakkl., 3:42,0. Elliott, Ástralíu, 3:42,3 Jazy, Frakklandi, 3:42,6 Momotkov, Sovétr., 3:42,7 Hermann, A-Þýzk., 4:42,8 Beatty, USA, 3:42,9 'Vamos hefur verið bezti millivegahlaupari Rúmeníu síðustu 2—3 árin og í stöðugri Dyrol Burleson, USA. framför. Fyrr á þessu sumri hefur hann náð: 3:44,8 og 3:43, 0, svo að þessi tími, 3:40,2 er engin tilviljun. Hver veit nema þessi ágæti, en þó lítt þekkti hlaupari, nálgist Evrópumet Jungwirths — 3:38,1 mín. í sumar. Lítill vafi er á því, að hann mun fá næga keppni í þessari grein, þvf að sjaldan hefur baráttan verið harðari í þessari skemmtilegu grein en einmitt nú. Ekki vekur afrek Grodotzkis í 1500 m. minni athygli, en hann hefur unnið bezt afrek í 10 km. til þessa og var í fremstu röð á þeirri vegalengd s. sumar. — Tíminn í 1500 m. virðist benda til þess, að Grod- otzki hafi mikinn hraða og e. t. v. hnekkir hann meti Kutz í 10 km., en það er 28:30,4 mín. Þetta eru enskar stúlkur og keppa báðar í sundi á Olympíuleikunum í Róm. — Á e°ri myndinni er Sheila Watt, 19 ára, en hún sigraði í 110 yds flugsundi í Iandskeppni Rússa og Breta fyrir nokkru og myndin er einniitt tekin í þeirri keppni. Á neðri myndinni er Christne Cosden, en hún keppir bæði í bringu- sundi og flugsundi. Hún er einnig 19 ára. Alþýðublaðið — 24. júní 1960

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.