Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.03.1904, Síða 3
XVIII, 11,-12.
I-1 U Vl> V iÍjJXXX.
43
mjög mikinn skaða, og drukknaði fjöldi
manna. —
í Kap nýlendunni eru þingkosning-
ar nýlega um garð gengnar, og fóru þær
svo, að A fríkana11 -flokkurinn varð í
minni kluta, og forsætisráðherrann, Gordon
Spriqq, náði eigi kosningu. — Enski
flokkurinn ræður því B atkv. meiri hluta
á þingi, og er dr. Jameson nú orðinn
forsætisráðherra, sami maðurinn, er fyrir
nokkrum árum brauzt inn í Transvaal
með flokk vopnaðra manna, en slapp þá
óhegndur, af því að Cecil Rodes sálugi,
og Chamberlain ráðherra, voru við það
níðingsverk riðnir.
Ljótar sögur berast enn um þrælslega
meðferð svertingja í Congo-ríkinu, og
um það, hvernig þeir séu féflettir á allar
lundir af embættismönnum, og öðrum, er
þar ráða. — Leopold, Belga-konungur, sem
er yfirmaður ríkis þessa, hefir þvi sent
erindsreka þangað til rannsókna, hvort
sem það bætir nú nokkuð úr skák, þar
sem auðmenn í Belgíu eiga hlut að máli
annars vegar.
Ekki hafa Þjóðverjar enn getað friðað
lönd sín í Afríku, með því að Herreroa-
þjóðflokkurinn er mæta vel vopnum bú-
inn, og beita hinni mestu grimmd við
alla Þjóðverja, stinga út augu, og lim-
lesta menn á ýmsa vegu, eða brenna lif-
andi, er þeir ná einhverjum Þjóðverjan-
um á sitt vald. — Sátu uppreisnarinenn
enn um borgina Windhook, er síðast frétt-
ist; en þar hefir nýiendustjórnin aðsetur
sitt. —
Kína. Kínverjar hafa lýst því yfir,
að þeir láti ófrið Kússa og Japana hlut-
lausan, og Bandamenn hafa skorað á stór-
veldin, að hlutast til um, að rétti Kín-
verja i þessu efni sé að engu leyti mis-
boðið.
í Tsínanfu-héraðinu hafa vatnsflóð ný
skeð valdið afar-miklum skaða, brotið
skörð í flóðgarðana, og sópað burt heil-
um þorpum, svo að mörg hundruð manna
hafa farizt.
I Szetschwaní-héraðinu vaða upp-
reisnarmenn um landið, og hefir Kína-
stjórn orðið að senda herlið gegn þeim,
en orðið þó enn lítið ágegnt.
Hitt mun stjórninni i Kína á hinn bóg-
inn eigi jafn ógeðfellt, að uppreisnarflokk-
ar fara um Mandsjúríið fram og aptur,
og hafa eyðilagt járnbraut Hússa þar, á
70 míina, svæði, inilli borganna Yladi-
vostok og Charbin, og reyna að hindra
her- og vista-aðflutninga Rússa á ýmsa
vegu. — Bússar hafa heimtað, að Kína-
stjórn taki í taumana, og hindraði þetta
athæfi, en stjórnin þykist ekkert geta
við það ráðið, enda hafa Rússar hegðað
sér að öllu leyti sem húsbændur í Mand-
sjúriinu i nokkur ár, þó að Kínverjar'
hafi yfirráðin að nafninu til.
I héraðinu Foutohau í Kina réðu upp-
reisnarmenn nýlega á piíðurgeymsluhús,
drápu foringja Kínverja, er þarvarfyrir,
og stálu 20 þús. pundum af priðri.
Svo .er að sjá, sem nokkur áhugi só
nú farinn að vakna í Kina í þá átt, að
læra af Evrópu-þjóðum, og hafa þeir í
því skyni nýlega sent 40 stúdenta til
norðurálfonnar.
Eldfjallið Merapí á eyjunni Java i Ind-
landshafi, sem er eign Hollendinga, hefir
ný skeð valdið afar-miklu eignatjóni þar
i grenndinni, og nokkrir menn hafa bið-
ið bana.
Ófriðurinn. Þá mun þykja hlýða, að
fara nokkurum orðum um ófrið Riissa og
Japana, til viðbótar fregnum þeim, er
„Þjóðv.u hefir þegar flutt.
Mjög hefir þegar brytt á þvi, að út-
búnaður Hússa sé eigi svo góður, sem
ráð var gjört fyrir. — I Port Arthur
taldi herstjórnin t. d. vera fyrir liggjandi
fleiri ára vistaforða, en svo kemur það
upp úr kafinu, að þar eru að eins vistir
til fárra mánaða, sakir megnustu svika
af hálfu ýmsra yfirmanna, er stungið
hafa. fénu í eigin vasa, en selt ríkinu
sand, i stað méis, o. s. frv. — Líkt hefir
og uppvist orðið í Vladívostok, og gerir
þetta eigi iítið óhagræði, sem nærri má
geta.
Herflutningar Hússa á landi hafa og
gengið mjög ógreiðlega, ekki að eins
vegna skemmda þeirra, er gjörðar bafa
verið á járnbrautinni í Mandsjúríinu,
heldur og sakir þess, að leiðin þangað
austur liggur yfir Baikal-vatnið, sem er
600 ferh. mílna stórt fjallavatn í sunnan-
verðri Síberíu, — Að sumrinu er flutn-
ingur, og farþegar, flutt yfir vatnið á
gufuskipum, er tengja saman járnbraut-
irnar, er liggja að báðum endum vatns-
ins; en að vetrinum verður að fara yfir
vatnið á ísum, og þar sem frosthörkur
hafa verið þar miklar, hefir fjölda her-
manna stórkalið á vatninu, og einn dag-
inn holfrusu 600, en 150 fórust í vök,
að þvi er stjórn 'Rússa hefir sjálf skýrt
frá, svo að fráleitt er það orðum aukið.
— Má og geta nærri, að hermennirnir,
er sumir koma úr hitanum á sunnan-
verðu Riissiandi, þoli illa helkuldaá fjöll
um uppi, þar sem útbúnaðurinn er léleg-
ur. — Rússastjórn hefir þvi síðast tekið
það ráð, að leggja járnbraut eptir ísnum
á vatninu, til að flýta fyrir flutningin-
um.
Vara-konungur Rússa þar eystra,
Alexejeff greifi, er æðstu stjórnina hefir á
hendi, hefir nýlega flutt aðsetur sitt frá
Port Arthur til borgarinnar Charbin, sem
er langt upp í iandi í Mandsjúríinu, með
því að hann mun þykjast þar öruggari,
enda hefir fólk flúið hópum saman úr
Port Arthur, sakir hinna sífelldu árása
Japansmanna, svo að fullyrt er, að eigi
só þar eptir, nema tæpur þriðjungur í-
búanna, er áður var. — Það er og setl-
un rnargra, að Japanar hafi loynt sprengi-
tólum. í jörðu í borginni hér og hvar,
svo að eigi þurfi annað, en að örfáir
Japanar komist inn í borgina, til þess
að sprengja hús, og önnur mannvirki,
hrönnum saman í lopt upp.
Rússar liafa nú ný skeð sent Kuropat-
ldn, hermálaráðherra sinn, til ófriðar-
stöðvanna, til þess að hafa þar herstjórn
á hendi á landi, undir yfirumsjón Al-
exejeff's; en aðal-foringjar Rússa á sjónum
eru þeir Jessen og Molas.
Báðar þjóðirnar, Rússar og Japanar,
hafa birt ávörp til annara ríkja, þar sem
hvorir um sig þykjast réttlæta friðarrofin,
og ber öllum saman um, að i skjölum
þessum sé „krítað liðugt14, ekki sízt hjá
stjórn Rfissa, sem vitanlega ber aðal-á-
byrgðina, sakir margvíslegs yfirgangs og
samningsrofa.
Til þess að fá sem áreiðanlegastar
og greinilegastar fregnir af ófriðinum,
hefir enska blaðið „Timesu leigt gufu-
skipið ,,Taimunu, sem er á vakki um
Petchili-flóann, með fregnrita blaðsins,
og sendi hann „Timesu nýlega frétta-
þráðarskeyti, er kostaði um 10 þús.
króna.
Að því er gang stríðsins snertir. bera
allar fregnir, er ná til 7. marz, þess aug-
Ijós merki, að Japanar hafa algjörlega
yfirráðin á sjónum. Hvað eptir annað
hafa herskip þeirra ráðið á herskip Rússa
við Port Arthur, og optast orðið nokkuð
ágengt; aðfaranóttina 14. febr. tókst 2
japönskum tundurbátum, í náttmyrkri og
blindbyl, að eyða 3 herskipum Rússa á
höfninni i Port Arthur, og nýja atlögu
gerðu þeir aptur 16.—17. febr.
Aðfaranóttina 24. febr. sendu Japan-
ar 8 tundurbáta til Port Arthur, og höfðu
þeir með sér 4 flutningaskip, er þeir ætl-
uðu sér að sökkva í hafnarmynninu, sem
er örmjótt, til þess að teppa þar alla um-
ferð; en Rússum tókst að sökkva flutn-
ingaskipunum, áður en Japanar fengu
komið þeim á réttan stað, svn að inn-
siglingin tepptist ekki, og töldu Rússar
það mikinn sigur.
Einn daginn tóku Japanar 4 rúss-
neska tundurbáta skammt fyrir utan Port
Arthur, ginntu þá með rússneskum bend-
ingamerkjum. er þeir höfðu á einhvern
hátt náð i.
26. febr. gerðu Japanar siðustu árás-
ina á Port Arthur, er vér höfum enn
fregnir af, og höfðu Japanar þá 15 her-
skip, en Rússar héldu 3 tundurbátum út
i úr höfninni til móts við þá, en urðu að
hörfa aptur, enda var þá. einn tundur-
bátanna orðinn stórskemmdur, en annar
kvað hafa sokkið.
I borginni Vladivostok í Síberíu,
nokkru fyrir norðan Koreu, hafa Rússar
herskipalægi. og voru herskip þeirra fros-
in þar inni, en tókst þó loks að komast
ut tir ísnum, og varð þeirra vart, í grennd
við borgina Hakodate, sem er sunnarlega
á eyjunni Jesso; en sú eyja er nyrzta
byggða stóreyjan í riki Japana; hófu
Rússar skothrið á borgina, en urðu brátt
frá að hverfa, sakir hríðarbyls. — Mælt
er, að flotadeild þessi hafi þó sökkt einu
japönsku kaupfari, og fórust þar 2 menn,
en Rússar björguðu hinum sjálfir.
6. marz komu Japanar á 5 hersliip-
um, og 2 tundurbátum, og hófu skothríð
a. borgina Vladivostok, en unnu þó lít-
inn skaða, og er ætlun manna, að skot-