Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.12.1909, Síða 6

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 24.12.1909, Síða 6
230 Þjóðviljinn. konan Halldóra Inqihjorq Siqmundsdóttir. Hún var fædd á Kvennhóli á Skarðatrönd 30. april 1807 og ólat upp hjá foreldrara sínum Sis;raundi Grímsayni nú bónda á Skarfátöðum og Steinunni Jónadóttur fyrri konu hana. Arið 1891 giptist hún Þor- gilai Friðriksayni hreppsnefndaroddvita i Knararhöfn og eignaðiat með honum 14 börn, er lifa öll nema 2. — Halldóra aál. var góð kona og greind. Hennar er sárt saknað frá fátæku heimili og mörgum ungum börnum. Á REYK.JAVÍK 24. <les. X90». Sudda-veður, og dimrnviðri að undanförnu, síðustu daga frost og kuldi. Jörð orðin marauð hér syðra, svo bsendum sparast heyin þenna tímann. Aukafunl hélt búnaðarfélag Islands í Iðnað- armannahúsinu i gær, og voru þar rædd’]ýms búnaðarmálefni. „Sterling11 kom írá útlöndum 11. þ. m. — Meðai farþegja voru: bankastjóri Björn Sigurðs- son, dönsku bankastjórarnir tveir, sem væntan- legir voru, Davíð Östlund, sem bafði brugðið sér til Ameriku, Prederiksen, kaupmaður í Man- dal, Prederiksen, bakari í Reykjavík, ungfrú Lund isystir Lund’s lyfsala), Popp, kaupmaður á Sauðárkrók, Tbor kaupm. Jensen o. fl.j ý 4. þ. m. andaðist bér í kaupstaðnum verzl- unarstjóri Ármann Bjarnason, bróðir dr. Björns frá Viðfirði. — Ekkja bans er Katrín Sigfús- dóttir. Jarðarför hans fór fram bér í kaupstaðnum )4. þ. m. Samkvæmt áætlunum um miililandaferðirnar næstk. ár, keraur fyrsta skipið frá „sameinaða ! gufuskip'afél iginu“ hingað 16. janúar, en frá j Thore-félaginu 27. janúar. Fardagar skipanna frá Kaupmannaböfn eru 9. janúar, og 16. janúar. „Sterling“ fír béðan til Breiðafjarðar 15. þ. m. No.'ckuð af síld, og af upsa, hefir nýlega afl- azt í fyrirdráttar-vörpur i Hafnarfirði. „Vesta“, sem komið hafði Erá útlöndum 12. þ. m., lagði af stað béðan til Isafjarðar 16. þ. m. — Meðal farþegja voru: Ingvar blikksmiður Vig- fússon á ísafirði, Pétur kauprnaður Oddsson í Bolungarvík, og iÞórður bóndi Jónsson á Lauga- bóli í Norður-ísafjarðarsýslu, er dvalið hafði hér f kaupstaðnum um hrið, til að leita sér lækninga og kvað hafa fengið góðan bata. ý 16. þ. m. andaðist bér í kaupstaðnum Pétuf Pétursson, fyrrum bæjargjaldkeri. Hann var kvæntur Onnu Vigfúsdóttur, sem nú lifir hann. — En foreldrar bennar voru: Vig- fús heitinn Thorarnesen, sýslumaður Stranda- manna, og kona hans Ragnheiður, systir Páls sagnfræðings Melsted, og er hún enn á lífi, og orðin há-öldruð. Börn þeirra hjóna eru: 1. Dr. Helgi Péturss í Reykjavík, 2. Sigurður, sem dvelur í Ameríku, 8. Asta; gipt Jaden, fríherra i Austurríki, og 4. Kristín, ógipt, hji móður sinni. Pétur hoitinn var ættaður úr Skagafirði, var áður við verzlunarstörf, og síðan nokkur ár lögregluþjónn í Reykjavík, áður hann varð bæjargjaldkori. Hann var myndarmaður í sjón mesti snyrtimaður og drengur góður. Til verðlauna við kapphlaup, sem skautafél- agið hér í kaupstaðnum lætur fram fara i næstk janúarmánuði, hefir Braun, eigandi verzlunar- innar „Hamborg11, gefið félaginu silfurbikar, sera k\tað vera hálf alin á hæð. XXIII., B7.--5S Bæjarfulltrúakosning fór fram í Hafnarfjarð- arkaupstað 8. þ. m.; kosinn einn maðar í bæjar- stjórnina, í stað Jóns samábvrgðarstjóra Gunn- arssonar, og hlaut kosningu alþm. Ágúst Flyg- enring, með 129 atkv. AUs var um þrjá lista að velja, og greiddn 199 kjóseudur atkvæði; en um 480 kjósendur alls á kjörskrá. Af atkvæðaseðlunum urðu’19 ógildir, að því er „Fjallk.“ skýrir frá. — G-etur hún þess og afnframt, að kært hafi verið yfir gildi kosning- arinnar, með þvi að kjörskrá hafi eigi verið lát- in liggja frammi áður, kjósendum til athugunar. Um annað prestsembættið i Reykj ivík, sem nú er laust, eru þessir umsækendur: Síra Bjarni Hjaltested, cand. theol. Bjarni Jónsson, sem nú er forstjóri barnaskólans á ísafirði, síra Bjarni Þorsteinsson á Siglufirði, síra Böðvar Bjarnason á Rafnseyri, síra Kristinn Daníelsson á Útskál- um, og síra Þorsteinn Briem, aðstoðarprestur að Görður á Álptanesi. Óákveðið enn,hvenær kosningin fer fram. f 19. þ. m. andaðist að Svalbarði á Álpta- nesi i Gullbringusýslu ekkjan Helga Jónsdóttir, á 80. aldursári. Helga sáluga var fædd í Selvogi i Árnessýslu og uppalin þar á Nesi. — Voru foreldrar henn- ar búandi í Selvogi. Úr Selvognum fluttist Helga heitin á Álptanes í Gullbringusýslu, og giptist Eyjólfi Eyjólfssyni, bróður ísaks i Melshúsum á Álpta- nesi, sem nú er nýlega dáinn. Bjuggu þau hjónin fyrst lengi í Brekkukoti á Álptanesi, sem húshjón, en siðan i Árnakoti, unz Eyjólfur drukknaði, og eru nú mörg ár síðan. Með manni sínum varð Helgu sálugu eigi barna auðið, en áður en hún giptist, hafði hún eignast einn son, Þorstein að nafni, og eignað- ist hún hann með Eiríki, presti í Miðmörk í Rangárvallasýslu. Hjá syni sínum Þorsteini Eiríkssyni, sem nú ( ir bóndi að Svalbarði á Álptanesi, d valdi Helga 68 kona. — Þegar hÚD var dáin — já, þér vitið það, og dæmið vorkunDsamlega“. „Þér stáluð hringDum af fingrinum á henni, þorp- arinn!“ mælti Englendingurinn, og hristi hann ákaft. „Þér stáluð honum — gjörðust svo djarfur, að snerta höndina á henni — þér — þéru — „ Jeg var fatækur herra minn!“ svaraði hinn, og reyndi að slíta sig af honum. “Mér fannst það vera heimska að láta i gröfina hlut, sem kaupa mátti málsverð fyrir. En þess get eg unnið yður dýran eið, að'allt hefir reynzt mér andstætt siðan“. Leagrave varð voðalegur í framan, svo að hifsráð- andi fór að verða hræddur um líf sitt. „Flringnum fylgir eitthvert ólán —víst er um það!“ mælti búsráðandi. „Og mér hefir hefnzt illilega! Þér ættuð að vita —“ „Burt!“ mælti Leagrave, og stjakaði við honum. Leagrave stökk síðan berhöfðaður út úr herberginu og út úr húsinu. Hann æddi síðan götu úr götu. — Hér hafði Jeanne verið á gaDgi! Hefði hann reynzt henni jafn trygglyndur, sem hún honuir, hefðu þau ef til vill verið bæði á gangi þessa etundina, um sömu götumar Hann kenndi beisks hugarangurs, og kvalar, varð örðugt um andardráttinn, og gat tæpast gengið. En bann varð að hverfa aptur heim til sín. Honurn fannst lítil kvennhönd, með rubin-hring á •fingri, vísa sér leiðina. Hriognum varð og skila aptur! En hverjum? Hsdd minntist þess nú, að bann hafði heyrt getið 2 Francis Aberdeen lávarður hefði þvi verið mesti gæfu- maður, hefði eigi eitt ólánið elt hann. Hann, sem kominn var á grafarbakkann, stóð ein- mana í heiminnm, án þess að eiga nokkurn sér náskyld- an, er léti sér annt um hann. Menn vissu, að honnm féll þetta ílla, og að þáð myndi ef til vill flýta fyrir dauða hans. Menn pískruðu sín á milli um ýmislegt, sem gjörzt hafði fyrir tugum ára í Aberdeen-höllinni, en forðuðust að ympra á því, er hann var viðstaddur. G-est bar og aldrei svo að garði, að eigi væri bon- um þegar sagt allt af létta. — — Það var nú farið að vetra, og snjór komin á fjöll- in, sem eru á leiðinni frá Aberdeen-höllinni til Lundúna. Hvassviðri var til fjalla. Svona var veðrið, er.gestur nokkur barði að dyrum að áliðnum degi. Honum var hleypt inn, og boðin gisting, og beini. Hann var látinn setjast inn i laglegt, heitt herbergi niðri. G-arnla ráðskonan breiddi mjallahvitan dúk á eik- arborðið, og bar á borð hveitibrauð, og fuglaket, — leíf- ar af kvöldverðinum“. Vín var og á borð borið í gainalli leirkrukku. GesturÍDn lét ekki lengi dekstra sig á matnurn, og horfði heimilisfólkið þegjandi, en þó forvitnislega, á hann meðan hann mataðist. Hann var i blóma lífsins, og örðugt að skera úr því hvort hann var á þroska skeiði, eða orðinn fullorðinn. Honum var nýlega farið að vaxa skegg, en þekking

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.