Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.07.1910, Qupperneq 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.07.1910, Qupperneq 1
Yerð árgangsins (minnst, 60 arkir) 3 kr. 30 aur. erlendi8 4 kr. 50 aur.*og í Ameríku doll.: 1.50. Borqist ýyrir júnímánað- arlok. ÞJÓÐVILJINN. — ~|= Tuttugasti og fjórði árgangur =1 . =— i= RJTJSTJÓRI SKÚLI THORODDSEN. Uppsögn skrifleq ógild nema komið sé til útgef- anda fyrir 30. dag júní- mánaðar, og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 34.-35. R.EYKJAVÍK 29. JÚLÍ. 19 10. §íj órnarskrárskraf. Eptir A. J. Johnson. —o— Þegar eg ritaði grein mína um stjórn- arskrárbreytingar, þá gleymdi eg að minn- ast á eitt atriði í viðbót við þau er eg tilfærði. Það er um réttindi íslendinga er dvelja í öðrum löndum, atan þau er liggja undir Danakonung. (Þau eru nú ekk< mörg sem kunnugt er, og því síð- ur fýsileg til vistarveru, t. d. Grænlandi.) I Samkvæmt stjórnarskránni eins og hún er nú þarf ÍbI. er dvalið hefir erlendis — utan Danmerkur, og Grænlands! — að dvelja á Islandi í 5 ár, ef hann vill leita þangað aptur. áður en hann fær rétt- indi til að taka þátt í almennum málum, kosnÍDgarétt og kjörgengi, og eins fyrir þvi, þó að hann hafi aldrei telddþegnrétt- indi í öðru riki, að eins dvalið þar yfir skemmri eða lengri tima1. Þetta er óþolandi ákvæði sem nauð- sýnlegt er að breyta. 011 sanngirni og réttlæti mælir með þvi. Tökum dæmi. Setjum svo að ísl fari til Ameríku, Noregs, Þýzkalands, eða hvert sem er, ad eins í þeim tilgangi, að læra eitthvað, er Islandi rnæOi að gagni koma; og koma svo heim aptur eptir skemmri eða lengri tíura. Fyrir þetta — þenna lofsverða tilgang, sem hver góður Isl. ætti að virða mikils2 3 — tapa þeir réttindum sínum, eru réttlausir, í 5 ár eins og útlendingar, — landsins eigin synir og dætur. En Danir, allt önnur þjóð, geta öðlast þessi réttindi eptir 1 ár Þetta ákvæði gæti beinlínis fælt isl. fólk, er dvelur í öðrum rikjum, frá því að flytja til landsins, því það er í fysta máta eðlilegt, að það vildi taka þátt í málum ættjarðar sinnar, strax og það er orðið búsett þar. Ákvæði þyrfti einmitt að taka upp í stjórnarskrána, er mælti svo fyrír, að ísl. fólk er hvergi hefði tek- ið þegnréttindi í öðrum ríkjum, hefði full- komin réttindi, eptir eins árs dvöl í land- inu. Og sanngjarnt væri, að það er þegn- rétt hefði tekið annarsstaðar, þyrfti ekki nema 2—3 ár búsetu, áður en það fengi full réttindi. Sá greinarmunur væri gerður á ísl. og útlendingum. Eins og alþingi l) Eg hefi leitað mér upplýsingar um þetta atriði hjá lögfræðingi á ísl.. og kveður hann þetta róttan skilning samkv. gildandi stjórnar- ekrá. v Dæmi til þessa mun nú þegar hafa átt sér stað, og mætti benda á nokkra menn, sem komn- ir eru til ísl. og mér er persónuiega kunnugt um, að sama vakir fyrir eigi allfáum er til Ameríku hafa farið á síðari árum. er nú skipað, er því vel treystandi til yfirvegunar, og að færa það í rétt horf. * * * Það er mér ánægjuefni að sjá að ritstj. „Þjóðvú er að mestu samþykkur fyrri grein minni, þó það eina er okkur grein- ir verulega á um, er það hvort heppi- legt sé nú strax, að sporna við því, að embættismenn eigi kjörgengi til alþingis eða ekki. Það er ekki nema eðlilegt, að um þetta séu nokkuð skiptar skoðanir, í það minnsta meðan málið er að skýrast. Þetta mun vera í annað sídh sem þessu er hreyft fyrir alvöru opinberlega. En fast verð eg að halda við mina fyrri skoðun að því er þetta atriði snertir. Hvað við vikur menDtunarástandi á Islandi, — og til þess þekki eg dálítið á Suðurlandi, þá þykir mér sérlega ólíklegt, að það sé lakara nú, en menntunarástand Banda- manna var þegar þeir urðu lýðveldi 1776. En ákvæðið um að banna embættismönn- um þingsetu hefir alla tíð staðið í stjórn- skrá þeirra síðan bún var samin 1787. Það er meira að segja talsvert vafamál, hvort alþýða yfirleitt í Bandaríkjunum er menntaðri en alþýða Islands, eða fylgist betur með stjórnmálum þjóðar sinnar, þrátt fyrir þeirra ágætu meDntunartæki. Stórborgir Bandríkjanna eiga áreiðaDlega afarstóra hópa aflítt menntuðu allra þjóða fólki, sem þó eru borgarar og hafaltosn- ingarrétt. Bandamenn fylgjaþessu ákvæði (um embættismennina) mjög stranglega. Alveg nýlega, t. d. útnefndi Taft forseti hr.Charles E. Hughes, núverandi rikisstjóra í New-York ríkinu, til að vera dómara í hæðstarétti Bandaríkjanna. Hughes er einn allra fremsti og atkvæða mesti stjórn- maður „B,epublikanaa (samveldismanna) Kosningar eiga að fara frarn í ríkinu í haust, en hann má engan þátt taka í þeim, af því að hann hefir verið útnefnd- ur til þessa embættis1, og þó tekur hann ekki við þvi fyrr en eptir að kosningar eru afstaðnar. Hvað það snertir að menn skorti sjálf- stœði — enda þó það sé rétt athugað, að virkilegt sjálfstæði, byggist oft á efnalegu sjálfstæði — þá fæ eg ekki séð, að það hafi við mikil rök að styðjast. Reynzlan hefir ótvírætt sýnt, að það hefir verið embættismannaflokkurinn, einmitt hann — með nokkrum, þó þvi miður fáum undantekningum — er hefir viljað, já lagt a'.lt kapp á, að varpa þjóðarsjálfstœðinu fyrir borð. Þessi flokkur ætti þó að vera efnalega sjálfstæðari; en leikmenn eða alþýðuroenn, svo mikið bera þeir úr býtum fram yfir l) Og efri málstoían (senatiði hefir samþykkt útnefninguna, eða embættisveitinguna. þá, fyrst all-há laun borguð mánaðarlega í peningum (stundum fyrir fram) og sið- an nokkrar þús. i eptirlaun; en það er einnig ómótmælaDleg reynzla, að þrátt yrir þetta, þá hafa embættigmennirnir opt og tíðum verið efnalega ósjálfstæðir beinlínis farið „á höfuðið“, sem kallað er í daglegu tali. Eg geri ráð fyrír, að ekki mundi kom- ast á þing aðrir leikmenn, en þeir er væru sæmilega, efnalega sjálfstæðir — reynslan styrkir þetta líka — en efnalega ósjálf- stæðir embættismenn, gætu hæglega á þing komist, með því, að um marga þeirra er þannig farið, að erfitt, jafn vel ómögu- legt, er að segja um hvernig þeir standa efnalega, af því þeir hafa svo mikið fe undir höndum sem þeir eiga ekki. Og Það er óbifanlega skoðun mín og sannfæring, að vilji þjóðin draga nv em- bættiskostnaði, t. d, með því að fækka óþörfum embættum og afnema eptirlaun þá takist það aldrei með embættismanna þingi. Yið höfum einnig reynslu í þessu efni, og nú allra síðast, frá síðasta þingi er rætt var, og greidd atkvæði um breyt- ingu á eptfrlaunum ráðherrans, — lækka þau niður í 20C0 kr., og veita þau að eins fyrir jafn mörg ár og maðuinn hefði verið í embætti' Þar standa embœttis- mennirnir landsjöðslaitnuðu, sem einn maður í mbti; Hannes fyrv. ráðherra, Jón bæjar- fógeti, Jóhannes sýslumaður, með þá Jón 01., Jón frá Múla, Pétur Gauta, síra Egg- ert og síra Björn í halanum. 128 í fyrri grein minni minntist eg litið eitt á, bve varhugavert væri, að leyfa dómurum, og skólastjórum að standa framarlega í pólitísku baráttunDÍ, vegna skyldu þeirra. Það er ekki langt síðan, (2—3 ár) að allþungar sakir voru bornar á yfirdóm- inn. Hönum borið á brýn, að hafa látið stjórnmálaskoðanir og vináttu ráða fyrir réttu máli.4 Við þessum ásökunum hefir yfirdóm- urinn þagað, og gegnir það furðu. Ed hvort sem ástæða hefur verið til að væna yfirdómÍDn um, þetta, eða ekki, (um það ') Sjá alþ.tíðindl 1909. Umr. f neðri deild bls. 1499—1607. -) Eini landsjóðslaunaði maðurinn i efri deild er frv. er fylgjandi, að því er séð verður á Þing- tlð. er I.árus H. Bjarnason, þó með þvf skil- yrði að þessi breyting, yrði ekki fyr, en „fráog með“ siðustu ráðherraskiptum, nefnil. að H. Hafstein væri undanskilinn. L. H. B. kveðst upphafl. hafa verið á móti því og ráðh. hefði eptirlaun, og er það virðingarvert. 3) Jeg'bygg að dr. J. Þ. og B. J. frá Vogi verði lengi minnst i ]úngsögu Ish fyrir það, að þeir eru ýyrstu þingm. er rækilega hreyfa því á þingi, aðj*ptirlaun verði afnumin. 4) Jón Ólafsson í blaðin Reykjavik.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.