Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 05.08.1910, Page 1
Verð árgangsins (minnst,
60 arhir) 3 kr. 50 aur.
erlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameriku doll.: 1.50.
Borqist fyrir júmmónað-
arlok.
M 36.-37.
ÞJOÐYILJINN.
- - [= 'Tu TTTJGASTI OG FJORÐI ÁRGANÖUB =|. =-
,= R.lTfS.TJORI SKÚLI THORODDSEN.
Uppíögn skrifleq ðgild
ntrna komið sé til útgef-
anda fyrir 30. dag jimí-
mánaðar, og kaupandi
samhliða uppsögninni
borgi skuld sína fyrir
bla'ðið.
Reyxjavíx B. Agóst.
19 10.
Útlönd.
—o—
Frá útlöndum hafa Dýskeð borizt þeesi
tiðindi:
Danmörk. Nýja ráðaneytið ráðgerir,
að því er hermt er í dönsku blöðunum,
að taka 80 milljón króna bráðabirgðalán
ón króna fast rikislán.
Nýlega hefir Krábbe, er var hermála-
ráðherra í ^ö/de-ráðaneytinu, sagt af sér
þingmennsku, sakir ósamþykkis við fJokk
einn, er mislíkaði það, að Krabbe, sem
kominn er hátt á áttræðisaldur, hafði þegið
kammerherrarafnbót, er haDn sleppti ráð-
herra-embættinu, en Zahle-ráðaneytið hafði
svo sem drepið hetir verið á í blaði voru
verið andvígt einkennísbúningi ráðherra,
nafnbótum, og því um líku.
Húsbrunar miklir urðu í Skovlunde á
Sjálandi í jnnímánuði, og er skaðinn met-
inn um 250 þús. króna. — Manntjón varð
þó eigi.
9. júní þ. á. var líkneski Christjans
konungs IX. afhjúpað í borginui Slagele,
og var Friðrik konungur VIII. þar við
staddur. — — —
Noregur. 19. júlí þ. á. mættu full-
trúar Norðmanna, Svía og Eússa, á fundi í
Kristíaníu, til þess að ræða um yfirráðin
yfir Spitzbergen; en eigi hefir enn neitt
spurzt um það, hver niðurstaðan verður.
f Dámn er nýskeð Sunde, forstjóri
járnbrautanna í Noregi, 59 ára að aldri.
— Sundr' var fjármálaráðherra í ráðaneyt-
inu Steen, og síðar í jB/e/m-ráðaneytinu.
Svíþjóð. Þess hefir nýlega veriðgetið
i blaði voru, að rússneski skáldsagnahöf-
undurinn Leo lolstoi væri væntanlegur á
friðarfundinn, sem haldinn verður í Stokk-
hólmi í öndverðum ágúst þ. á., en nú
hefir heyrzt, að hann sé hættur við það,
treystíst eigi, vegna ellihrumleika, sem
og vegna ritstarfa sem hann hefir á hendi.
Frakkland. Nýlega var í París afhjúp-
að líkneski, sem Waldeck-Rousseau hefir
verið reist í Tuillerí-hallargarðinum. —
Þar var Fallíeres forseti frakkneska lýð-
veldisins viðstaddur, en Bríand, forsætis-
ráðherra, hélt aðal-ræðuna.
Waldeck-Rousseau var einn af merk-
ari stjórnmálamÖDnum Frakba á öldinni,
sem leið. Hann var fæddur í Rennes
1846, og var forsætisráðherra frá 1899—
1902, og gekkst þá, meðal annars, fyrir
því, að Dreyfus fékk réttingu máls sín?.
— Hann andaðist árið 1904.
Nýlega vildi það slys til, að barón-
<*ssa de la Boche, foringi kvennfélagsins
wStellalí, er fæst við flugæfingar, féll í
L'ugvél sinni niðaD úr 50 metra hæð, og
meiddist svo afskaplega, að henni var eigi
lifsvon talin, er síðast fréttist. — — —
Spánn. Bankastjóri í Monovar, i fylk-
inu Alieante, GaHíanto að nafni, hélt ný-
lega ýmsum vinum sínum veizlu, og sprakk
þá spreDgivél, er einhver hafði látið með
leynd í kjallarann, og kastaðist borðið í
háa lopt, er þeir sátu að borðum, og tætt-
ust tveir gestanna í smá-agnir, en baDka-
stjórinn og hinir gestirnir, lemstruðust
mjög hræðilega.
í Guadix í Gfranada urðu nokkur hús
nýskeð fyrir tjóni af jarðskiálftum, en
manDtjón varð þó eigi. — — —
ítaJÍa. Akafir jarðskjálftar í grennd
við Neapel í júni, og komu víða sprung-
ur í jörðu, og hús sukku, eða gjöreyddust,
þar á rneðal nokkur stórhýsi i Colitrí,
Benevento o. fl.
Nokkrir menn biðu bana.
Victor konungur Emanuel gaf þegsr
50 þúe. líra, til að bæta úr tjóninu, og
stjórnin jaÍD mikla upphæð. — — —
Balkanskaginn. Enn er gnmnt á því
góða milli Grikkja og Tyrkja, og sló ný
skeð í bardaga milli griskra og tyrkneskra
hermanna á landamærunum, og féllu tveir
af Grikkjum.
Arnautar í Albaníu hafa nýskeð farið
all-miklar ófarir fyrir herliði Tyikja og
nýlega féll aðal-foringi þeirra, Kabosch að
nafni, og þrír aðrir af foringjura þeirra
voru skotnir, en fjórir haodteknir.
Þrátt fyrir þetta, hefur Tyrkjum þó
enn eigi tekizt að bæla niður uppreisnina.
Nú er 8vo komið, að þing KriteyÍDga
hefir leyft múhamedönskum þingm.önnum
þingsetu, þótt eigi vinni þeir Grikkja
konungi trúnaðareiða, enda hótuðu stór-
veldin, að láta hermenn taka tollgæzlu-
hús þeirra að öðrum kosti, og sá Venezelos,
formaður stjórnarinnar, og flokksbræður
hans, sér þá eigi annan kost vænni, en
að slaka til. — — —
Rússland Líkneski Péturs mikla, Rússa
keisara (f. 1672, d. 1725), var nýlega af-
hjúpað í Pétursborg, og var þar þó fyrir
riddara likDeski hans, er Katrín II. lét
reisa árið 1782, er hundrað ár voru liðin,
síðan er hann kom til ríkis á Rússlandi.
I borginni Kiew varð nýlega uppvíst
um leyDÍfélag, er gerði sér það að atvinnu,
að falsa arfleiðsluskrár.
Gutschkoiv, forseti rússnesku „dumunn-
ar1* (þingsins), háði nýskeð einvígi við
Uivárow greifa, og var dæmdur í tveggja
mánaða fangelsi.
3. júli siðastl. kviknaði í sumarleik-
húsi keisarans, og brann það til kaldra
kola, sem og nokkur hús önnur.
Rússar og Japanar hafa nýskeð gert
þaDn samning, að annast í samemingu
um það, að ríki i Austur-Asíu haldist ó-
breytt, sem og um það, að sjá um að
tryggt sé, að senda vörur með járnbraut-
inni í Mandsjúríinu, og að vera einir um
hituna, að því er járnbrautarflutninga í
Mandsjúríinu snertir. — — —
Þýzkaland. 13. júlí þ. á. lagði lopt-
farið „Erbslohu af stað frá Leichlingen,
sem er millí borganna Köln og Elberfeld,
og voru fimm menn í því, sem allir biðu
bana, með því að eittbvað bilaði, svo að
það féll með þá til jarðar.
f 10. júlí þ. á. andaðist stjörnufræð-
ingurinn Johann Gottfried Gálie, 98 ára
að aldri, fæddur 1812. — Var um langt
áraskeið (1851 —1897) háskólakennari í
stjörnufræði, og forstöðumaður stjörnu-
rannsóknarstöðvanna i Breslau.
Þrjár halastjörnur varð hann fyrstur
manna var við, og reykjstjörnuna Neptun
uppgötvaði hann árið 1846, og studdist
í því efni við útreikninga frokkneska
8tjörnufræðingsins Leverrier, er komizt
hafði að þeirri niðurstöðu, að stjarna hlyti
að vera til, sem ylli óreglu, að því er
braut plánetunnar Uranus snertir.
Samkvæmt manntalinu, er síðast fór
frarn í Berlín, höfuðborg Þýzkalands, þá
er ibúatalan þar orðin 3,600,000, er undir-
eða útborgirnar eru meðtaldar.
10. júlí síða8tl. fannst í Berlín lík
kvennmanns er hafði verið mjög hrylli-
lega limlest, og vissu menn eigi, er síð-
ast fréttist, hver að glæpnum var valdur.
Bandaríkin. Afskaplegir hitar í New-
York, og í öðrum borgum i Austur-ríkj-
um Bandaríkjanna, og urðu eigi all-fáir
sturlaðir af hitanum, en sumir biðu bana,,
eða fyrirfóru sér sjálfir í sturlun.
Nú er mælt, að dóttir milljóna-eig-
andans Pierpont Morgan’s eigí að giptast
Jayme de Bourbon, ættmenni Spánarkon-
ungs.
Um 80 þús. manna, er starfa að sæl-
gætisbrauðagjörð i New-York hættu ný
skeð vinnu, og kröfðust hærri launa, og
styttri vionutíma, og er mælt, að Stoaken
auðmaður hafi látið konu sina, er áður var
vinnustúlka, gefa þeim 125 þús krÓDa. —
Að öðru leyti hefir enn eigi heyrzt hversu
verkfallinu reiðir af.
Nú er mælt, að Panama-skurðurinn
verði fuligjör á yfirstandandi ári, og tek-
inn til afnota 1. janúar 1911, og flýtir
það afar-mikið fyrir sjóferðum milii At-
lantshafsirs og Kyrrahafsins, er skipin
þurfa eigi lengur að fara alla leið suður
fyrir Suður-Ameríku.
Málfærslumaður nokkur, sem á heima
í sömu borginni, sem Carnegie auðmaður
er fæddur í, varð Dýskeð í afleitum pen-
ingakröggum, svo að við gjaldþroti lá,
og hljóp Carnegie þá svo vel uudir bagga
með honum, að hann g»f honum 600 þús.
króna.