Lögberg - 09.11.1905, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 9. NÓVEMBER 1905,
3
Fréttir frá íslandi.
Reykjavík, 30. Sept. 1905.
Tveir drengir í Blönduhlíð í
Skagafirði druknuðu nýlega í síki
úr Héraðsvötnum. Þeir voru um
fermingu, annar frá Úlfsstöðum og
hinn frá Uppsölum. Þeir höfðu
ætlað til berja í Steinsstaðahólma
svo nefndum, og fóru ríðandi yfir
sikið. Enginn veit hvernig slysið
hefir atvikast. Likin fundust ba'ði.
—Fágætt slys vildi til nýlega norð-
ur í Fljótum, í Sigriðarstaðakoti.
Barn 8—9 ára, er heima var ('eitt?)
á bænum, hafði kveikt í fötum sín-
um einhvern veginn og lagt við
•það á stað út á engjar til foreldra
sinna. Það hafði vætt sig eitthvað
í læk á leiðinni, en ekki tekist að'
slökkva. Til ferða þess sást frá
næsta bæ og var sem dálítill gufu-
mökkur liði þar áfram. Þegar það
komst til foreldra sinna, var það!
svo brunnið orðið, að mist hafði
mál og rænu, og dó samdægurs.—
('Nl.)—
Reykjavík, 7. Okt. 1903.
Vatnsveitumál Reykjavikur ligg-
ur nú í dái Það var hætt um miðj-
an fyrra mánuð við vatnsboranirn-'
ar hér inn við Eskihlíð. Eins og
kunnugt er, fékst litið sem ekkert
vatn á síðari staðnum, sem borað
var eftir því; þar var í þess stað'
vart við málma. Eldri holan, sem
vatn fanst þó í nokkuð til muna í
fyrrawetur og því var víkkuð á
eftir, reyndist miklu vatnsminni en
við þótti mega búast, og því ekki til
neins að eiga við hana meira. —Um
8,000 kr. kváðu boranir þessar hafa
kostað bæjarsjóð. — Niðurstaðan
kemur alveg heim við það sem hin-
ir ensku verkfræðingar sögðu, sem
hér voru á ferð í fyrra sum^r til
undirbúningsrannsókna vatnsveitu-
málinu. Þeir fortóku, að til nokk-
urs væri að leita hér í jörðu vatns-
birgða handa bæn’um.
Skilnaðarsamsæti var cand. ma’g.
Bjarna Jónssyni (írá Vogi) haldið
hér fimtudag í fyrri viku, daginn áð-
ur en hann ætlaði utan til veturvist-
ar eða lengri dvalar,—af rúmum 50
manns; flestalt stúdentar. Tvö
kvæði voru honum flutt þar, annað
eftir Eárus Sigurjónsson stúdent;
en hitt eftir Jónas Guðlaugssön stud
art.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur 1905
—1906 nernur rúmum 77 þús. kr.
alls Helztu tekjurnar eru: aukaút-
svör rúmar 48 þús, kr.; lóðargjöld
9)4 þús.; tekjur af lóðasölu 4 þús.;
sótaragjalda þús. — Stærsti út-
gjaldaliður er fátækrasjóður með
nær 19 þús. kr. Þar næst cr barna-
skólinn mcð nær 13 þús. kr. og
skuldajcostnaður (vextir og afborg-
anir) hátt upp i 11 þús. Vegabæt-
ur 10 þús. Stjórn og umsjón kost-
ar rjúm 7 þús. og löggæzla nál. 5y_,
þús. Ennfremur þrifnaður og snjó-
mokstur 3 þús., götulýsing 2JÓ
þús. og vatnsból 1 þús. Til heil-
brigðisráðstafana eru ætlaðar 1,200
kr. — Af barnaskóla kostnaiðinum
fara 6,400 kr. í aukakenslu; skóla-
Stj.órinn hefir 1,500 kr. i laun og
fastur kennari einn 900 kr.
Eagarfljótsbrúin er langstærsta
brúin á íslandi, 480 álnir. Hún,
liggur á 29 tréstólpum, með 16 álna
millibili, gcrðum af 2—3 staurum,
sem reknir eru niður í botninn. Auk
þess er steinstöpull við hvern enda
brúarinnar. Þeir eru steinlímdir.
Upp frá tréstólpunum eru ísbrjótar,
er eiga að hlífa þeim við ísreki.
Bi'úarkjálkarnir eru úr járni, lagðir
oían á tréstólpana að endilöngu, en
)>vertré í milli á kjálkunum með
á’lnad millibili og gólf lagt þar. ofan
á, úr plönkum. Handrið 1)4 alin;
það er nokknð lítið. Brúin er 4’
álna breið. Tvær mannhæðir eru frá
brúnni mður að vatni í • fljótinu
eins og það gerist minst, en 18 þml.
í mestu vatnavöxtum, sem dæmi eru
til sögð. Svo telst til, að brúin
qjuni bera 6,144 vætta þunga (To
fjórð.) í einu, ef jafnt væri raðað á
hana alla. Ef staurarnir ná þá
niðuir úr leirnum alls staðar. Kostað
hefir brú þessi að sögn um 120 þús.
kr. Hún átti að kosta upphaflega
að ein|s 45 þús. Hún hefir verið 4
ár í smíðuni.
Hvamm í dölum hefir ráðgjafinn
voitt 16. f. m. prestaskólakand.
Ásgeíri Ásgeirssyni frá þ. á. far-
dögum að telja.
Jökulsárbrúin í Öxarfirði er hengi-
brú úr járni, eins og brýrnar á Ölf-
usá og I’jórsá. Hún er nær 109
álna löng milli bakka, en 165 alls,
með sporðum ofan á jafnsléttu,27)4
al. hvorum. (Ölfusárbrúin er 120
álnirj. Fjórar mannhæðir eru niður
að vatni þegar minst er í ánni.
Steinstöplar eru fjórir undir henni,
tveir við hvorn enda, 11 álna háir,
og akkerisstöplar að auki, annar 11
álna, en hinn (austan megin) 8 áln.
—alt auk ij4 álnar, s.em þeir eru
grafnir í jörðu. — Kostað hefir brú-
in alls eitthvað 54—55 þús. kr. Á-
ætlun var 30 þús. Meira en helm-
ingur kostnaðarins hefir farið í
stöplana. Sigurður Thoroddsen hef-
ir staðið fyrir þeirri brúarsmíð frá
upphþfi.
Reykjavík, 11. Okt. 1905.
Guðmundur Hannesson héraðs-
læknir á Akureyri kvaö vera að
hugsa um að sækja burt þaðan, til
Vestmannaeyja. En Akureyrarmenn
og aðrir Eyfirðingar vilja með
engu móti missa hann, sem ekki er
furða, með því að hann er einn með
allra nýtustu læknum landsins, ' og
skora þeir á hann að vera kyrran,
mörgum hundruðum saman.
Sláturverð hér í bænum: kjöt af
veturgömlu 22 a., af sauðum 23—24
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%
Mörg hundruÖ
^ manns . . .
%
%
%
%
%
%
^ fá skjólgóðan
^ yetrarvarning
%
%
%
%
%
% ffÓ
%lra
%
%
%
%
%
%
hafa sparað peninga með því að
verzla við C. B. JULIUS, síðan ^
hin stórkostlega afsláttarsala
byrjaði. Munið eftir, að allan
Nóvembermánuð, verður hægtað
%
%
%
%
%
%
%
%
meö þessu sama niðursetta verði
sem fólk varð aðnjótandi síðast- ^
liðinn mánuð. ^Búið yður því
undir vetrarkuldann með hlýan %
búning %
%
%
%
%
%
% G. B. JULIUS, - Gimli, Man.
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
Eldavélar
úr tómu stáli á
$35.
Gætið að! Ekki ódýr eldavél, heldur eldavél sem við á-
byrgjumst að sé úr tómu stáli. Við fengum þær með mjög
niðursettu verði og ætlum að selja yður þær fyrir það. Orð-
tak okkar er: Lítill ágóði, fljót sala. Xomið og finnið okkur.
F RASE R&LE NiVOX,
Phone 4067.
157 Nena St.
Cior. Elffin Ave.
The Winnipeg Laundry Co.
Limited.
Vörurnar fást lánaðar, og með
vægum borgunarskilmálum.
a. pd., gærur 30—35 a., mör 25, inn-
an úr sauðum 1.25—1.50. — Norð-
anlands, á Húsavík, var kjötverð í
lok f. mán. 16—22 a., gærur 42—45
a pd. og mör 20 a.—Fyrir fé á
fæti hafa kaupmenn í Reykjavík
gefið í haust í réttum 12—18 kr. fyr-
ir íullorðna sauði eftir gæðum, og
7—10 a. fyrir veturgamalt fé.
Hörmulegt slys vildi til á ísafirði
nýlega, 21. f. mán.: unglingspiltur,
verzlunarþjónn við Tangs-verzlun,
19 vetra, var skotinn til bana af
öðrum pilti óviljandi. Þeir höíðu
verið að handíara byssu, sem þeir
vissu ekki að var hlaðin, og miðaði
annar byssunni á hinn í gáska. Reið
þá skot úr henni og í höfuð þeim,
er fyrir varð, en hann beið bana af
þegar í stað. Hann hét Benóní
Magnússon, frá Króki, og höfðu
foreldrar hans, fátæk húshjón, mist
annan son sinn, Gísla í sjóinn í
fyrra vetur.
DYERS, CLEANERS & SCOURER3.
261 Nena st.
“Ef þér þurfið að láta lita eða hreinsa
‘ötin yðar eða láta gera við þau svo þau
verði eins og ný af nálinni ,þá kallið upp
Tel. 9öft
og biðjið um að láta sækja fatnaðinD. t>að
er sama hvað fíngert efnið er.
ÖMITED ELEGTRIC
OONÍPAHY, ’
349 McDermot ave.
TELEPHONE 3346-
Byggiugamenn! Komið og fáið
hjá okkur áætlanir um alt sem að
raflýsingu lýtur. Það er ekki
vfst að við séum ódýrastir allra,
en engir aðrir leysa verkið betur
af hendi.
New York.Furnishing House
AUs konar vörur, sem til hús-
búnaðar heyra.
Olíudúkur, linoleum, gólfdúk-
ar, gólfmottur, jluggatjöld, og
myndir, klukkur, lampar, borð,
dúkar, rúmstæði, dýnur, rúmteppi,
koddar, dinner sets, toilet sets,
þvottavindur og fleira.
JOSEPH HEIM.
eigandi.
Tel. 2590. 247 Port agx 8«
MUSIK.
Við höfum til söki alls konar hljóðfæri
og söngbækur. Piano. Orgel. Einka agent-
ar fyrir Wheeler & Wilson saumavélar.
Edisons hljóðritar, Accordeons og harmo-
nikur af ýmsum tegundum. Nýjustu söng-
lög og söngbækur ætíð á reiðnm höndum.
Biðjið um skrá yfir ioc. sönglögin okkar.
Doktorsnafnbót við Khafnarha-
skóla í heimspeki hefir mag. art.
Björn Bjarnarson (frá Viðvík)
hlotið nýlega, fyrir bók, er nefnist
Nordboernes legemlige Uddannelse
í Oldtiden (líkamsmenning Norður-
landabúa í fornöld), er hann varði
27. f. mán.
Gufuskipið Echo hafði farið frá
Húsavík 23. f. mán. með fjárfarm
til Belgíu beina leið, 1,600 sauði.
Farmurinn seldur fyrirfram. Gufu-
skip Friðþjófur, sem er í förum
fyrir pöntunarfélögin, hafði farið
frá Húsavík sköiíimu síðar með
annan farm enn stærri,2,ooo sauði,
líklega einnig til Belgíu, þótt þess
sé ekki getið í Norðurl., sem þetta
er tekið úr. Meiri hluti fjárins hafði
verið úV Norður - Þingeyjarsýslu.
I>að hafði reynst óvenju vænt og
þungt, eftir ekki betra sumar. Með-
alþyngd sauða, sem fóru með Echo,
123y2 pd, og þó talsvert af því vet-
urgamalt. Margir 3 vetra sauðir
15 fjórðungar; einn af Hólsfjöllum
rúml. 18y2 fjórðungur.— Isafold.
--------------------o--------
Oað eru fleiri. sem þjáðst af Catarrh í þessum
hlut? landsins en af öllum öðrum sjúkdómum sam-
anlögðkun, og menn héldu til skamsltíma. að sjúk-
dómur þessi væri ólæknandi. Læknar héldu því
fram í mörg ár. að það væri staðsýki og viðhöfðu
staðsýkislyf, og þegar það dugði ekki, sögðu Iþeir
sýkina ólæknanni. Vísindin hafa nú sannað að
Catarrh er víðtækur sjúkdómur og útheimtir því
meðhöndlun er taki þaðtil greina. ..Ilalls Catarrb
Cur," búið til af F. J. Dheney & C©., Toledo Ohio
er hið eina meðal sem nú ertil. er læknar með þv.
að hafa áhrif á allan lfkamann. Það tekið inn í 10
dropa til teskeiðar skömtum.það hefir bein áhrif á
blÓðið, slímhimnurnar og alla líkamsbygginguna,
Hundrað dollarar boðnir fyrir hvert tilfelli sem
ekki hepnast. Skrifið eftir upplýsingum til
F. J. Cheney & Co.. Toledo, O.
Til sölu í lyfjabúðum fyrir 75C.
Halls Family Pills eru beztar.
Gearhart’s prjónavélar
hinar nýju, eru
þær einu, sem
prjóna alt, hvort
heldur er lykkju-
snúið, tvíbandað
algengt prjón
Við erum útsölu-
menn fyrir þær
og óskum eftit' að
þér snúið yður
til okkar því við
getura sparað yður algerlega flutningsgjald
frá útsöluhúsunum, Komið eða skrifið til
okkar eftir upplýsingum.
G. A. Vivatson, Svold, N. D.
Barnaveiki.
Áreiðanlegt meðal, sem ætíð ætti
að hafa við hendina, svo hægt sé
ttndir eins að grípa til þess, er
Chamberlain’s Cough Remedy, Það
eyðir sjúkdómnum, sé það gefið
inn undir eins og vart verður
■vijð hæsi ,í barninu, eða jafnvel
eftir að hóstinn er kominn. Það er
engin hætta að gefa það börnum
því það hefir ekki í sér fólgið
nein eitureefni eða ópíum. Til sölu
hjá öllum kaupmönnum.
PRENTUN
allskonar gerö á Lögbergi,
fljótt, vel og rýmilega.
Metropolitan Music Co.
537 MAIN ST.
Phone 3851.
Borgun út í hönd eöa afborganir.
qRR- Shea.
J. C. Orr, d CO.
Plumbing & Heating.
625 WiHiam Ava,
Phone 82. Ras. 3738.
A. ANDERSON,
SKRADDARI,
459 Notre Dame Ave,
KARLMANNAFATAEFNI.—Fáein
fataefni, sem fást fyrir sanngjarnt verð.
Það borgar sig fyrir Islendinga að finna
mig áður en þeir kaupa föt eða fata-
efni.
The Winni peq Paint£> Qlass. Co. Ltd.
H Á M A R K
vörugæöanna, lágmark verösins, er
þaö sem veldur því hvaö húsaviöar
verzlunin okkar gengur vel. Ef þér
efist þá komiö og sjáiö hinar miklu
birgöir vorar af allskonar viö og fá-
iö að vita um verðiö, Ráðfæriö yö-
ur síðan viö einhvern sem vit hefir
á, Þetta er sanngjörn uppóstunga.
Er ekkisvo?
The Winnipeg Paint & Glass*Co. Ltd.
Vöruhús á horninu á St.
Joseph Street og lieTtrude
Ave. Fort Kouge.
’Phones: 2750 og 3282.
The OlafssonReal EstateCo. Room 21 Christie Block. — Lönd og bæjarlóöir til sölu. — 536^ Main st. - Phone 3985 PÁLL M. CLEMENS byggingameistari. Bakbr Block. 468 Main St. WINNIPEO
•
R. H0FFMAN, á suöaustur horninu á Ellen og Ross, hefir til sölu alls kon- ar groceries, álnavöru, leir og glervöru, blikkvörur. Molasykur 15 pd. $1.00. Raspaösykur iópd. $1.00. Ódýrustu vörur í bænum.
A.S. Bardal _ selur líkkistur og annast um útfarir. Allur útbún- aður sá bezti. Ennfrera- ur selur hann allskonar minnisvarða og legsteina Teleplione 3oG
Komiö 0g reyniö.
CANADA NORÐYESTURLANDIÐ
Reglur við landtöku.
Af öllum sectionum með jafnri tölu, sem tilheyra sambandsstjórninni, i
Manitoba og Norðvestnrlandinu, nema 8 og 26, geia fiölskylduhöfuð og karl-
menn 18 ara gamlir eda eldri, tekið sér 160 ekrur fyrir heimilisréttarland, þ&d
er að segja, sé landið ekki áður tekið, eða sett til siðu af stjórninni til við-
artekju eða ein hvers annars.
innritun.
Menn mega skr sig fyrir landinu á þeirri landskrifstofu, sem næst ligg.
u'. landinu, sem tekið er. _ Með leyfi innanrikisréðberrans, eða inntíutninga-
um boðsmamiB* i Winnipeg, eða naesta Dorainion landsamboðsmanns, geta
menn gefið öðrum umboð til þess að skrifa sig fyrir landi. Innritunargjald
ið er 810,
Heimilisréttar-skyldur.
Samkvæmt núgildandi lögum v"Aa iandnemar að uppfylla heimilisrétt-
ar skyldur sínar á einhvern af þe.m vegum, sem fram eru teknir í efttr
fylgjaudi töluliðum, nefnilega:
[lj Að bua á landíau og yrkjalþaó aí minsta kostif í sex mánuði &
hverju ári 1 þrjú ár.
[2] Ef faðir (eða móðir, ef faðmnn er látinn) einhverrar persónu sem hef:
rétt til að skrifa sig fyrir heimilisréttarlandi, býr á bújörd i nágrenni við land-
ið, sem þvílik persóna hefit skrifað sig fyrir sem heimilisréttar landi, þá getts?
petsónan fuilnægt fyrirmælum .aganna, að því e.- ábúð á landinu snertir áðu,
en afsalsbréf er veitt fyrir þvi, á þann hátt að hafa heimili hjá föðnr sínum
eða móður.
Ef landnemi hefir fengið afsalsbréf fyrir fyrri heimilisréttar-bújðrí
smni eða skírteini fyrir að afsrJsbréfið verði gefið út, er sé undirritað í sam-
ræmi við fyrirmæli Dominion íandiaganna, og hefir skrifað sig fyrir síðar
heimilisréttar bújðrð, þá getur hann fullnægt fyrirmælum laganna, að þvj er
snertir ábúð á landinu (síðari heimilisréttar-bújörðinni) áður en afsalsbréf sé
gefið út. á þann hátt að búa á fyrri heimilisréttar-bújörðinui, ef síðari heim
ilisréttar-jörðin er í nánd við fyrri heimilisréttar-jörðina.
(4) Ef landneminn býr að staðaldri á bújörð sem hann á jhefirkeypt, tek-
ið erfðir o. s, frv.]f nánd við heiminsrettarland það, er hann hefir skrifað sig
fyrir þá getur hann fullnægt fyrirmælum laganna, að þvi er ábúð á heimilis
réttar-jörðinni snertii-, á þann hátt að búa á téðri eignarjðrð sinni (kevntula
ndio. s. frv.) **
Beiðni um eignarbréf
ætti að vera gerð strax eftir að 8 áiin ern liðin, annaðhvort hjá næsta nm-
boðsmanni eða hjá Inspector sem sendur er til þess að skoða hvað unnið hefir
veriö á landinu. Sex mánuðum áður verður maður þó að hafa kunngert Dom-
inion landa umboðsmanninum í Ottawa það, að hann ætli sér að biðja um
eignarréttinn.
Leiðbeiningar.
Nýkomnir linnflytjendur fá á innflytjenda-skrifstofunni í Winnipeg og a
oEumDominion landaskrifstofum innan Manitoba og Norðvesturlandsins, leið-
beiningar um það hvar löud eru ótekin, og allir, sem á þessum skrifstofum
vinna veita inntíytjendum, kostnaðarlaust, leiðbeiningar og hjálp til þess að
ná í Löndsem þeim eru geðfeld; ennfremur allar upplýsingar viðvikjandi timb
ur, kola og náma lögum. Allar slíkar reglugjörðir geta þeir fengið þar gef-
ins, einnig get.p menn fengið reglugjörðina um stjórnarlönd innan járnbrautar-
heltisins í Br.tiah Columbia, með því að snúa sér bréflega til ritara innanrikis
beildarinnar í Ottawa, innflytjenda-umboðsmannsins í Winnipeg, eða til ein-
dyerra af Dommion landtumboðsmönnum í Manitoba eða Norðvesturlandinu
W. W. CORY,
tDeputy Minister of the Interior,
Dr G. F. BUSH, L D. S.
TANNLÆKNIR.
Tennur fyltar og [dregnar! út án
sársauka,
Fyrir að fylla tönn $1.00
Fyrir aðdraga út töon '50
Telephone825. 527 Main St,
MARKET HOTEL
146 Princess St.
á móti markaðnum
El.GANDI - p. O. CONNKLL.
WINNIPEG.
Beztu tegundir af vínföngum og vindl-
maðhlynninflr tréa % -y’i—^
ELDID YID GA8
Eí gasleiðsla er um götnna yðar leið
ir fólagið pipurnar að götu Ununni
ókeypis, Tengir gaspípur við eldastór
sem keyptar hafa verið að þvi án
þess að setja nokkuð fyrir verkið,
GAS RANGE
ódýrar, hreinleg&r. ætið til reiðu.
Allar tegundir, $8.00 og þar yfir,
K. "nið og skoðið þær,
The Wmnipeg Etectrie Slreet Railway C*.
Gasstó -ckeildin
215 PoEKTAGHa AVBNOB.
IVI, Paulson,
660 Ross Ave.,
selur
Giftingaleyflsbréf