Lögberg - 22.02.1906, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 22, FEBRÚAR 1906
Heimboðsk vöö Hels?a magra.
Hver ættjaröar-glaöning á heim-
lx>ðs-rétt hér
Hjá hollvættum söngsins að miðs-
vetrar-blóti
Hvort kristninni hneigð eða
heiðninni er,
í hávegum íslenzkrar gestrisnu
njóti—
Og þjóðtungan okkar með ljóð-
anna lið!
Sem leikur í fossum og kliðandi
flýtur,
Sem hjúfrar eins klökt eins og
vorblær í viö,
C)g veltist sem stormur, er jöktil-
inn brýtur.
\rið unnum þér betur en bera' á
þig hól,
I>ér blindhríða-landið og isjaka-
strauma!
En þegar um vornætur sezt ekki
sól
Er sjálfrátt að trúa’ ekki á gull-
aldar-drauma?
Við þekkjum, þó aðsjálnin arlcaði
heim,
Að ábata-vonin sér fánýta móa—
En slapp ekki’ á hreiðrinu* í hög-
unum þeim
I>ér haftið af tungunni, suðræna
lóa ?
Þær þjóðir, sem stóðust ei eld
vorn né ís,
Við ætlumst ei til, að oss jafningja
kalli—
Þó sigrendum einum sé orðstír-
inn vís,
Var ágætismeira að langverjast
falli:
Að standa’ af sér hríðina’ er ísinn
gekk að,
Að afstýra druknun á tæpustú
lending;
En skroppinn úr slarkinu, slyngast
var það
Að slá sér upp veizlu og kveða þar
hending!
Ef sagt er upp nafnið þitt, sveitin
vor kær,
Og sungin að miðvetri íslenzku
minnin,
Á þreklegum manni og þýðlyndri
mær
Elvort þrútna ei vöðvar og roðnar
ei kinnin?
Við lítum þann nærri því með-
aumkvan með
•—Sem mist hafi’ af tilviljan flest
okkar gæSi—
Sem hefir ei ísland og Eyjafjörð
• séð,
Né erft okkar sögur og numið vor
kvæði.
Stcphan G. Stcphanson.
Minni íslands.
í anda vér lítum hvar land rís
úr sjá
með ljóskrýnda háfjalla tinda,
um snarbrattar fjallshlíðar berg-
lindin blá
sig bréiðir og iðgræna rinda,
iim grundir hún líður með laðandi
nið
og liljur og rósir þar minnist hún
við. /
í gljúfrunum heyra má fossanna
fall
og fjörugt er sungið og lengi,
þá hrikaleg báran þar hrynur um
stall
er hraustlega knúið á strengi.
Og yndi' er að hlusta' á hinn
seyðandi söng
í svellandi bárum um vorkvöídin
löng.
í fjöllum og dölum og fossum
og sjá
svo fjölmargt er grafiö og dulið
sem, ættjörð vor kæra, þér auðnu
má ljá
þó enn sé það niðjúnum hulið.
Þó brautin sé lögð gegn um bar-
áttu’ og stríð
þá birtir af fegnrri degi'um síð.
Og falist það getur í fljóti og dal,
sem fremra er menjunum hauga,
enn skvgnst inn í háreistan hamr-
anna sal
ei hefir neitt rannsóknar-auga.
Og þjóðsagna álíheima-auðlegðin
fríð
má auganu birtast á komandi tíð.
Svo lengi sem geislinn frá glóandi
sól
á gláskygðum fjallstindi brennur,
svo lengi sem grös skrýða lautir
og hól
og lækur um liliðina rennur,
svo lengi sem hafbáran hrynur við
sand
þér hamingju biðjum vér, feðr-
anna land.
H. S. B.
Vestur-Islendingar.
Lúin hönd að heiman fór—
Hælinn særði þröngur skór—
Sveigt af þungum byrðum bak
Bevgði skilnaös þrautatak.
Haf-nest smátt,
Hráköld átt
Horfði við
Um eyði-svið.
Engin vissa, að eins von
íslands fylgdi týnda son.
Nú er önnur öld en þá—
Ekki týndist dropi sá
íslands blóðs, sem burt um mar
Bræðra æða fluttur var.
• Sania’ er hvers
Yestan vers
C'ildarorð:
A feörastorð
\'atns og andans ísa til
Eitt sinn leggi nægan yl.
Kraft í verkið, eld í óð,
Áttu’ að leggja, Snorraþjóð!
Sannleiksþrá í sóknardug,
Sigur' í þinna vængja flug.
Landnámsbygð,
Bróðurtrygð,
Betri dag
Og rýmri hag,
Eigum vér en oss þú gafst
ísaland, á meðan svafst.
Kr. St.
Forfeðra niinni.
.E, heill sé þér Saga, er helgan
gevmir sjóð,
til heiðurs þér, fámenna, íslenzka
þjóð,
þú ólst við Braga barm og berð
hans mynd,
því bergöir þú af vizkunnar hollu
lind.
Oss ljúft sé að minnast á liðna
hetjuöld,
sem list-rúnum skráð er á vorrar
Sögu spjöld,
hún bendir oss á frægð og feðra
dáð,
er frama sér æ unnu um haf og
láð.
Að lúta valdi Lúfu, þeim leizt ei
væulegt ráð,
sem lýð hafði kúgað og ömurleg-
ast þjáð,
í æðum þeirra þrælsblóð aldrei
rann,
en þrúðgur kempumóður í hjarta
brann.
Sín öldnu feðra óðul þeir yfirgáfu
því;
þeir alt kusu fremur en gerast
konungs-þý,
og létu því á lítiö kunna dröfn
en lendingu þó náðu i frjálsri
höfn.
í Fjallkonu skauti þeir fundu grið
og ró,
þars frjálsræðis gyðjan af alhug
vib þeim hló;
þar stofnuðu þeir ríki og blómga
bygð
og beztu var hún lagasetning
trygð.
Þeir heiðin goð blétu og hörga
rammast lið,
og herskáir þóttu að aldar þeirrar
sið,
og hopuðu’ eigi þó harður væri .
stvr,
og hefluðu’ ei seglin þótt vgldist
byr. '
En drengskaþ og mannlund þeir
dýrast möttu þó,
því dygð-eðlið sanna í hjarta
þeirra bjó,
og hræsni smáðu,trygðarof og tál,
og trúlega æ héldu sín griðamál.
Að sumbli hér glaöir nú sitjum
vér í kvöld,
og samhuga prísttm þá liðnu
frægðar öld.
Sem feðurnir, vors frama rækjiun
mál,
og fúslega nú þeirra vér drekkum
skál.
Sigurðnr J. ]óhannesson.
Minni kvenna.
Heill sé þér hugljúfi svanni,
sem hverja léttir þraut,
æ rósum í sérhverjum ranni
þín reifuð skyldi braut.
Þú breytt getur hugarins hjarni
í hýran, blómskrýddan lund,
kveikt eld þann á hjartnanna arni,
sem endist lífsins stund.
Þú örfar og eflir í hjarta
það alt, sem bæta má,
op> brúnanna ljósið þitt bjarta
jafnt bliðu og hvöt til á;
og þaöan þeir logarnir líða,
sem lyfta sál á flug,
og hvetja að starfa og stríða
og stæla arm og hug.
Hve bættirðu’ og blíðkaðir liaginn
og breyttir mörgu’ í vil,
varst sólin, er signaði daginn
og sendi líf og yl’.
Því heill sé þér, hugljúfi svanni,
er hverja léttir þraut,
og rósum í sérhverjum ranni
þín reifuð skvldi braut.
H. S. B.
Þorrablót.
Enn þá lýsir alda sól,
áa vorra höfuðból,
enn er minst á horskan höld,
höfðingsskap og dáð og völd,
freyða horn, hreystin forn
diyllir sjót við Þorrablót, v
upp úr munar ægi rís
Evjafjaröar sögudís.
Helga magra hirð í kvöld,
hjalar snjalt um tign og völd,
Eyfirðinga auð og dáð,
orku, sniid og mentaráð,
ljómar fríð landnámstíð,
leiftrar bál í hverri sál,
lúðrar drynja, dunar storð,
dýrar krásir fylla borð.
Hrausta, fríða hetjuöld,
hér er myndin þín í kvöld,
norræn göfgi, geð og mál
gulli vefur feðra skál;
upp með raust, hirðin hraust,
helgum gildið trygð og snild,
þá mun sérhvert Þorrablót
þekja’blómum forna rót.
Heyrðu, vaska vikings sjót,
vígðu sérhvert Þorrablót
dýrstu perlum fósturfróns,
fjöri, þrótt og huga ljóns,
geymdu forn, gullin korn,
göfgi máls og speki Njáls,
þá mun norræn sigursól
sveipa geislum Vínlands stól.
M. Markússon.
TyI, F’acilson,
selur
Giftingaleyfisbréf
Auditorium
Rink,
er nú búið að opna.
Skautaferð á daginn, eftir
hádegi, og á kveldin,
Fulijames £» B1olme»
Eigendur.
Arena ilink,
Á
Bannatyne Ave.,
er nú opnaður
til afnota.
JAMES BELL,
Wesiey Rink
á horninu á Ellice & Balmoral.
Skautaferð á hverjum degi eftir
hádegi og á kveldin. ,,Bandið“
spilar að kveldinu.
Ma^leLea f Renovating^W orks
VHS erum nú fluttlr aiS 96 Albert st.
ASrar dyr norSur ír& Mariaggl hót.
Föt lituC, hreinsuð, pressuC, bætt.
Tel. 482.
ALLAN LINAN.
Konungleg póstskip
milli
Liverpool og Montreal,
Glasgow og Montreal.
Fargjöld frá Reykjavík til Win-
nipeg...............$39-00-
Fargjöld frá Kaupmannahöfn
og öllum hafnarstöðum á Norður-
löndum til Winnipeg .... $47.00.
Fjögur rúm í hverjum svefn-
klefa. Allar nauðsynjar fást án
aukaborgunar.
Allar nákvæmari upplýsingar,
viðvíkjandi því hve nær skipin
leggja á stað frá Reygkjavík o. s.
frv., gefur
H. S. BARDAL,
Cor. Nena & Elgin Ave. ;
Winnipeg.
Ágætt barnameðal.
Góða bragðið að Chamberlain's
Cough Remedy og hin góðu áhrif
þess er orsökin til þess, aö allar
mæður, sem ungbörn eiga, hafa
álit á því. og þykir vænt um það.
Það læknar fljótt hósta og kvef og
fyrirbyggir lungnabólgu og aðra
skæða sjúkdóma. Það læknar ekki
eingöngu barnaveikina, heldur fyr-
irbyggir hana jafnframt, ef það er
gefið inn undir eins og fer að bera
á hóstanum. Til sölu hjá öllum
lyfsölum.
SÉRSTÖK SALA ÞESSA
VIKU
Nikkel pletteraðir eirkatlar No.
9 á 88c.. Pottar með eirbotnum
No. 9 á $1.58; 4 pk. smánaglar á
5 cent. Eitt dús. hatta og fata-
krókar á 5 cent. Happy thought
eldstór á $35.00. — Þetta eru að
eins fáein af hinum mörgu kjör-
kaupum, sem eru svo makalaus, að
ómögulegt er að þau geti staðiö
lengi.
WYATT s CLABK,
495 NOTRE DAME
TEX.X3FHONEI 3031’
Brúkuð töt.
Agæt brúkuö föt af beztu teg-
und fást ætíö hjá
Mrs. Shaw,
488 bíotre Bame avé., Winnipeg-
MUNIÐ EFTIR
Aö hjá G. P. Thordarson fáiö
þér bezt tilbúiö kaffibrauö og
kryddbrauð af öllum tegund-
um. Brúðarkökur hvergi betri
eða skrautlegri, en þó ódýrari
en annars staðar í borginni.
Telefónið eftir því sem þér
viljið fá, og eg sendi það að
vörmu spori. — Búöin er á
horninu á Young st. & Sargent
ave. Húsnúmer mitt er nú
639 Furby st. Phone3435
P. S. Herra H. S. Bardal verzl-
ar með brauð og kökur
frá mér. Herra Á Friö-
riksson á Ellice ave. verzl-
ar með kökur frá mér.
G-P. Thordarson
The Winnipeg Painte. Olass. Co. Ltd.
Góður húsaviðurl
unninn og óunninn, bæöi í smá og
stórkaupum. Veröið hjá okkur
þlýtur aö vekja athygli yöar.
Nauösynin á aö fá bezta efni-
viöinn sem bezt undirbúinn er öli-..
um augljós. Með ánægju gefum
vér yður kostnaðar-áætlanir.
The Winnipeg Paint & Glass Co. Ltd.
Vöruhús á hornlnu á 9t
Joseph Street og: GeTtrud*
Ave. Eort Rouge. .
’Phones: 2750 og 3282.
Thc Olafsson Real EstateCo.
Room 21 Christie Block.
— Lönd og bæjarlóðir til sölu. —
536^ Main st. - Phone 3985
A. S. Bardal
Selur líkkistur og annast
um útfarir. Allur útbún-
aður sá bezti. Ennfrem-
ur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina
Teleph-one 3oC
PÁLL M. CLEMENS
byggingameistari.
Bakbr Block. 468 Main St.
WINNIPEB
A. ANDERSON,
SKRADDARI,
459 Notre Dame Aye,
KARLMANNAFATAEFNI.—Fáein
fataefni, sem fást fvrir sanngjarnt verð.
! Það borgar sig fyrir Islendinga að finna
mig áður en þeir kaupa föt eða fata-
efni.
CANADA NORÐVESTURLANDIÐ
KEGLCR Vlö tiANDTÖKC.
Af öllum sectlonum með jafnrl tölu, sem tilheyra sambandsstjúrninnl,
I Manitoba, Saskatchewan og Alberta, nema 8 og 26, geta fjölskylduhöfuð
og karlraenn 18 ára eða eldri, tekið sér 160 ekrur fyrir heimilisréttarland.
það er að segja, sé landið ekki áður teklð, eða sett til síðu af stjórninnl
til viðartekju eða einhvers annars.
INNRITCN.
Menn mega skrifa sig fyrir landinu á þeirri landskrifstofu, sem næst
liggur landinu, sem tekið er. Með leyfl innanrlkisráðherrans, eða innflutn-
inga umboðsmannsins 1 Winnipeg, eða næsta Dominion landsumboðsmanna,
geta menn geflð öðrum umboð til þess að skrifa sig fyrlr landi. Innritunar-
gjaldlð er 110.00.
HEIMU.ISRÉTTATt-SKYLDCR.
Samkvæmt núgildandl lögum, verða landnemar að uppfylia heimilis*
réttar-skyldur slnar á einhvern af þeim vegum, sem fram eru teknir i eft-
irfylgjandi töluliðum, nefnilega:
1. —Að búa á landinu og yrkja það að minsta kosti I sex mánuðl &
hverju ári í þrjú ár.
2. —Ef faðir (eða móSir, ef faSirinn er látinn) einhverrar persónu, sem
heflr rétt til aS skrifa sig fyrir heimilisréttariandi, býr á bújörS 1 nágrenni
vlð landið, sem þvillk persóna heflr skrifað sig fyrir sem helmillsréttar-
landi, þ& getur persónan fullnægt fyrirmælum laganna, að þvl er ábúð á
landinu snertir áSur en afsalsbréf er veitt fyrir þvl, á þann hátt aS hafa
helmili hjá föSur sinum eSa móSur.
3. —Ef landnemþ hefir fengiS afsalsbréf fyrir fyrri heimillsréttar-bújörS
sinni eSa skirteini fyrir aS afsalsbréfiS verði geflS út, er sé undirritaS I
samræmi viS fyrirmæli Dominion laganna, og heflr skrifaS sig fyrir siSarl
heimillsréttar-bújörS, þá getur hann fullnægt fyrirmælum laganna, aS þvl
er snertir ábúS á landinu (slSari heimiIIsréttar-bújörSinini) áSur en afsals-
bréf sé geflS út, á þann hátt aS búa á fyrri heimilisréttar-jörSinni, ef síSart
heimillsréttar-JörSin er í nánd viS fyrri heimilisréttar-jörBina.
4. —Ef landneminn býr aS staSaldri á bújörS, sem hann heflr keypt,
tekiS i erfSir o. s. frv.) I nánd viS heimilisréttarland þaS, er hann heflr
skrifaS sig fyrir, þá getur hann fullnægt fyrirmælum laganna, aS þvl er
ábúS & heimilisréttar-jðrSinni snertir, á þann hátt aS búa á téSri eignar-
jörS sinni (keyptu landi o. s. frv,).
BEIÐNT CM EIGNARBRÉF.
ætti aS vera gerS strax eftir aS þrjú árln eru liSin. annaS hvort hjá næsta
umboSsmanni eSa hjá Inspector, sem sendur er til þess aS skoSa hvaS &
landinu heflr veriS unniS. Sex mánuSum áSur verSur maSur þó aS hafa
kunngert Dominion lands umboSsmanninum í Otttawa þaS, aS hann ætli
sér aS biSja um eignarréttinn.
T.EIDBEININGAR.
rtf~
Nýkomnir innflytjendur fá á innflytjenda-skrifstofunni I Winnipeg, og&
öllum Dominion landskrlfstofum innan Manitoba, Saskatchewan og Alberta,
leiSbeiningar um það hvar lönd eru ótekin, og allir, sem á þessum skrif-
stofum vinna veita innflytjendum, kostnaðarlaust, leiðbeiningar og hjálp til
þess aS ná i lönd sem þeim eru geSfeld; enn fremur allar uppiýsingar viS-
vikjandi timbur, kola og náma lögum. Allar slikar regiugerSir geta þeir
fenglS þar geflns; einnig geta n- ann fengiS reglugerSina um stjðrnarlðnd
innan járnbrautarbelttsins 1 British Columbia, meS þvl aS snúa sér bréflega
til ritara innanrikisdeildarlnnar 1 Ottawa, innflytjenda-umboSsmannsins i
Winnipeg, eSa til einhverra af Ðomlnion lands umboSsmönnunum í Manl-
toba, Saskatchewan og Alberta.
þ W. W. CORT,
Deputy Minister of the Interior.
MARKET HOTEL
146 Prlncess Street.
á móti markaSnum.
Éigandi - - P. O. Connell.
WINNEPEG.
Allar tegundir af vinföngum og
vindlum. ViSkynning góð og húsið
erdurbætt.
PRENTUN
allskonar gerö á Lögbergi,
fljótt, vel og rýmilega.
Sé þér kalt
þá er þaö þessi furnace þinn
sem þarf aðgeröar. Kostar
ekkert aö láta okkur skoöa
hann og gefa yður góö ráö.
Öll vinna ágætlega af hendi
leyst.
J. R. MAY & CO.
91 Nena st„ Winnipeg