Lögberg - 19.04.1906, Síða 3
LÖGBERG, FIMTUÐAGINN 19, APRÍL 1906
Um heitu löndin.
Framh. frá 2. bls.
—Yfir höfuð að tala finst mér
Jiessi hiti, sem vér daglega áttum
viö að búa í Rauðahafinu, ind-
verska hafinu, á Ceylon og í Singa-
pore, vera sérlega notalegur. —
Hann var þetta daglega um há-
degisbilið milli 3° °& 4° g’r- á. C.
ÞaS er þægilegur hiti meðan mað-
«r hefir enga líkamlega áreynslu
og er búinn eins og vér vorum, í
hvít léreftsföt og þar innan undir
í þunna ullarskyrtu, en á höfðinu
baröastóran, hvítan sólhatt úr
korki. En maSur fann óþægindi
af hitanum, ef átti að hlaupa upp
brekku, eöa beita kröftum sínurn á
cinhvern hátt. Það sýnir sig líka,
að hvítir menn þola ekki erviði í
J>essum hita, enda sjást þeir sjald-
an hreyfa hönd við neinu þar
eystra. öll vinna er framin þar
af hinum innfæddu, sem eru aldir
upp við og orðnir vantr við hit-
ann. Maður skyldi halda að þeim
væri hætt við sólstúngu alveg eins
og hvítum mönnum í þessum
xnikla hita, en það er sjúkdómur,
sem varla eru dæmi til meðal
Jteirra, og þó ganga þeir allajafna
berhöfðaðir og sumir láta jafnvel
raka af sér alt hár og eru ber-
sköllóttir. — Hvítir menn lifa eins
og kóngar innanum innfædda fólk-
ið, og drotna yfir þvi ineð gulli
sínu. r— ^ví flestir eru þeir ríkir.
Eg átti tal við marga Norður-
álfubúa, sem höfðu tekið sér ból-
festu á Indlandi, Ceylon og Mal-
akkaskaga, og allir luku upp sama
munni um það, að gott væri þar
að vera og nóg fé þar að græða
fyrir framtakssama menn. Að inn-
jflutningurinn til þessara landa er
ckki miklu meiri en hann er, ligg-
ttr sumpart i því, að vegalengdin
cr svo mikil en svo máske einkan-
lega í því, að menn óttast
Joftslagið, því margir þola það
ckki, fá ýmsa sjúkdóma og
deyja. Mikill hluti þeirra manna,
sem þannig týnast og sagt
jtola það ekki, fá ýmsa sjúkdóma
og deyja. Mikill hluti þeirra
manna sem þannig týnast og sagt
er að ekki hafi þolað loftslagið
hafa mist heilsu sína af óhófi í mat
og drykk. — Svo er mál með
vexti, að maturinn er mjög ódýr
og innlendir menn hafa lært að
búa til allskonar krasir, sem kitla
svo góm Evrópumanna að flestir
eta yfir sig. Til dæmis að taka gat
maður á veitingahúsinu í Ceylon,
Singapore og í Honkong fengið
20—30 rétti af fyrirtaks mat fyrir
cinar tvær krónur — maður gat
etið eins mikið og' maður vildi og
valið milli allra þessara rétta fyrir
J>etta litla verð. Ennfremur fæst
vín og öl mjög ódýrt, því engir
lollar eru á vörum þar eystra.
Hitinn hefir vanalega í för með
sér mikinn þorsta, svo að freist-
ingin er mikil fyrir þá sem þykir
gott í staupinu. En ekkert er ó-
hollara í hitanum en áfengið; af
jþví stafar mikill hluti þeirrar lifr-
ar og magasjúkdóma, sem koma
svo mörgum ungum Evrópumönn-
um í gröfina, er sagt er uni.að ekki
hafi þolað hitann. Auðvitað eru
ýmsir sjúkdómar í heitu löndunum
.sem ekki verður varist, þó menn
gæti hófs í mat og drykk. Pestin,
kólera, gula, flekkusótt,blóðkreppu
sótt og malaria vofa alt af yfit
höfðum manna og eru vondir við-
fangsgripir; en með framförum
fræðanna, einkum tim heilsufræð-
innar, hefir tekist að stémma stigu
fyrir útbreiðslu og hættusemi allra
Þessara sótta. Englendingar hafa
gengið vel fram í því, enda hefir
það komið vel í ljós, að að hvar
sem þeir hafa komið á sínu heil-
brigðis fyrirkomulagi í borgum
þar eystra, eins og hvervetna í
heitu löndunum, þar ber heilsufar
langt af þvi, sem er í öðrum stöð-
um, sem tilheyra öðrum þjóðupi.
Þegar pestin og kóleran geysa í
bæjunum þar eystra, sneiða þessir
sjúkdómar næstum aigerlega hjá
hinum enska hluta bæjarins. Er
þetta eingöngu að þakka þrifnaði,
góðum vatnsveitum og afrensli.
Meira.
------0-------
DeyOing aOframkominna sjiíkl-
inga og vanskapninga.
Sú stefna hefir um undanfarna
síðustu áratugi látið á sér bera í
ýmsum blöðum i mentaða heimin-
um, sérstaklega meðal læknastétt-
arinnar, að rétt væri að stytta þeim
sjúklingum kvalastundir, er lengi
hafa barist við dauðann, með því
að gefa þeim svæfandi meðul og
slökkva lífið á þann hátt. Ákveðn-
ast form hefir stefnan tekið á þing-
inu í Iowa nú i siðustu tið, þar sem
Dr. Gregory hefir borið upp frum-
varp þess efnis/að lögheimila lækn
um að svifta þá sjúklinga lífi, sem
þjást svo sárlega, að þeim sjá-*
ist engin lífsvon, enn fremur, að
tortíma nýfæddum börnum, sem
vonlaust er um að verði annað en
vitfirringar eða vanskapningar.
Þetta skyldi þó því að eins leyfi-
legt, að þrír læknar að minsta
kosti, ásamt hlutaöeigandi líkskoð-'
arau væri einugir um framkvæmd-
ina og nauðsynina á þessu verki og
hluttakendur í henni. Eins og fleiri,
sem stefnu þessari eru fylgjandi,-
staðhæfir Dr. Gregory, að í raun
og sannleika viðgangist það, sem
frumvarp hans fer fram á, víða í
heiminum, og jafnvel daglega á
sjúkrahúsunum í New York, Chi-
cago og mörgum fleiri stöðum,
bæði í Ameríku og annars Staðar,
en að það sé gert án ákveðinnar
reglu og lagaheimildar, og hvoru-
tveggju vil lhann fá framgengt
með frumvarpi sínu.
Eigi verður sagt, að mál þetta
hafi fengið vænlegar undirtektir.
Flest blöð hafa tekið eindregið í
strenginn á móti því, og stéttar-
bræður Dr. Gregory mótmæla
reiðir og gramir staðhæfingum
hans um þetta efni, að þvi er
snertir sjúkrahúsin, og embættis-
starfrækslu þeirra þar, lútandi að
nefndum fullyrðingum hans.
I ritsjórnargrein í blaðinu „The
Standard-Union“ (Brooklyn 13.
Marzj segir svo:
Dr. Gregory telur tillbgu sína,
sem mikilvægt mannúðarmálefni,
sem sé tuttugu ár á undan timan-
um. Vita má hann, að það eru
meir en tuttugu aldir síðan þján-
ingalaus deyðing (á gr. evthan-
asia) var framkvæmd meðal Spart
verja, á þeim sjúklingum og líkt
stóð á fyrir, og höfundurin skýrir
frá í áminstu frv. sínu, og undrun
sætir það, ef þetta hefði í raun
réttri verið eins mikið mannúðar-
málefni og höfundurinn lætur í
ljósi, að það skyldi þá eigi hafa
náð almennri viðkenningu og kom-
ist undir lagalega heimild allar
þær aldir, sem síðan eru liðnar.
Þvert á móti ræður sú mannúðar-
tilfinning hjá öllum þjóðum hins
mentaða heims, að líf og dauði
þess manns, er hefir við þjáning-
ar að striða, af hvaða tegund sem
er, skuli algerlega falin valdi for-
sjónarinnar, og hæsta skylda lækn-
isins sé, að tálma eða draga, enda-
lykt mannlífsins eftir því^, sem
máttur hans og þekking framftst
nær til. Ef maður, sem bæði er
læknir og löggjafi lætur í ljósi, að
stéttarbræður hans hér í landi
fylgi annari meginreg’” í starfi
sínu en þeirri, sem vér höfum
nefnt hér næst á undan, er það
að eins til að kasta skugga á
læknisfræðina. Með slíkum áburði
er og réttlættur sá ótti, sem svo al-
mennur er hjá fátækari hluta þjóð-
arinnar hvað meðferð sjúklinga á
sjúkrahúsunum snertir, en einmitt
fyrir þá fátæku ættu sjúkrahúsin
þó aðallega að vera.
Yfirboðarar yfir sérhverju
sjúkrahúsi í Bandaríkjunum, sem
og annarstaðar um heim, munu
skjótlega andmæla og hrekja að-
dróttun þá, sem Dr. Gregory gerir,
þar sem hann telur þjáningarlausa
deyðing tíðkaða á aðframkomnum
sjúklingum spítalanna, og enginn
efi er á því, að sjúkrahús þar sem
slíkt kæmi fyrir, án þess þó aö oft
bæri til, mundi fordæmt með öllu,
og ekki leyfast að halda áfram
starfi sínu, ef opinbert yrði.
Hvað það snertir að tortíma
vansköpuðum ungbörnum, nýfædd
um, sannar sagan að þær forn-
þjóðir, sem höfðu þá reglu, fóru
mjög villa vegar, þó að eins sé
litið til þroska mannkynsins — og
einskis annars — sérstaklega and-
lega þroskans — og hæfilegleik-
anna. Það vill sem sé eigi ósjald-
an til, að mesta mannvitið og
skörpustu gáfurnar taka sér bú-
stað í auðvirðilegustu líkams-um-
gjörðinni; mjög torráðin gáta hlýt-
ur það, að öllum jafnaði, að vera
fyrir lækna, að greina andlegu van
skapningana úr hópi þeirra hvít-
voðunga, sem fæðast með gallaðri
líkamsmynd.
Hjá fornþjóðum þeim.er fylgdu
þeirri reglu, að^granda vansköpuð-
um börnum nýfæddum, mundi
Byron hafa verið Hflátinn strax
eftir fæðinguna, af því hann hafði
staurfót og Constable de Bourbon
af því að hann var fæddur með
mikinn herðakistil. í fullu sam-
ræmi við kenningu Dr. Gregory
hefði verið aö svifta þá Homer,
og Milton lífi, er báðir voru blindii*
mestan hluta æfi sinnar. Eigi
mundu þeir Cæsar og Napoleon
mikli hafa notið langra lífdaga ef
stefna þessi hefði þá verið komin
í gildi, því báðir voru mjög þjáðir
af niðurfallssýki.
Að telja upp öll þau , mikil-
menni, sem alla æfi hafa þjáðst af
einhverjum ólæknandi líkamsmein-
semdum eða likamslýti haft, mundi
verða alt of langt mál í stuttri
blaðagrein, enda öldungis ónauð-
synlegt. Frv. Dr. Gregory verður
aldrei leitt í lög, og hið eina illa,
sem það kemur til leiðar, er að
vekja misjafnan grun og ranglát-
an á hinni merkustu og allra nauð-
synlegustu starfsgrein, sem til er í
heiminum, nfl. læknisfræðinni, og
glæða óhuga almennings á sjúkra-
húsunum, sem þó eru þær stofnan-
ir, sem allra sízt er hægt að kom-
ast af án. — Lit. Digest.
Verndiö börnin.
Það er ómögulegt að segja hve
nær á meðali getur verið þörf á
heimilum þar sem börn eru. Því
gerir hver fyrirhyggjusöm móðir
sér að reglu að hafa ætíð eina
öskju af Baby’s Own Tablets vjð
hendina. Þessar tablets lækna fljótt
meltingarleysi, magaverk, magasúr
og vindþembu, niðurgang og tann-
tökukvilla. Þær lækna kvef, barna-
veiki varna þær, eyða ormum og
veita barninu væran og náttúrlegan
svefn. Mæðurnar hafa vitnisburð
meðalafræðings stjórnarinnar fyr-
ir sér í því að þessar tablets hafi
engin svæfandi né eitruð efni inni
að halda. Mrs. J. C. Gildart,
Prosser Brook, N.B., segir: „Ba-
by’s Oivn Tablets verka eins og
töframeðal á börnin og eg gei ekki
verið án þess að hafa þær á heimil-
inu.“ Þér getið fengið Baby’s
Own Tablets hjá >!lum lyfsölum, ‘
Múrbönd. Viöpr. Þak-
spónn. Gluggar, Huröir og all-
nr innanhúss efniviöur.
Skrautgler í blý- og kop-
arrömmum (Lead & Copper
Lights).
Nú fer húsasmíöi alment
aö byrja.
Áönr en þér festiö kaup
annars staöar ættuö þér aö finna
okkur.
Vér getum gert yöur á-
nægöa bæöi hvaö gæöi og verö
snertir.
Skrifstofa og vörugeymsla
neöst á
HENRYAVE., EAST.
'PHONE 2511.
The Alex. Black
Lumber Co., Ltd.
Verzla meö allskonar
VIÐARTEGUNDIR:
Pine,
Furu,
ledar,
Spruce,
Haröviö.
Allskonar boröviöur,
shiplap, gólfborö,
loftborö, klæöning,
glugga- og dyraum-
búningar og alt sem
til húsageröar heyrir.
Pantanir afgreiddar
fljótt.
TeU 596.
Higgins*& Gladstone st.
Winnipeg.
eða sendar með pósti fyrir 25C.
öskjuna, ef skrifað er til „The Dr.
Williams’ Medicine Co., Brock-
ville, Ont.“
Gigtaruerkir lœknaðir.
Hin skjóta lækning, sem Cham-
berlain’s Pain Balm hefir veitt
þúsundum manna, er þjáðst hafa
af gigt, hefir gert þetta meðal
nafnfrægt. Það veitir bæði hvíld
og svefn. Fjöldi manna hefir
komist til fullrar heilsu, sem not-
að hefir þenna áburð. Til sölu hjá
öllum lyfsölum.
— ■—o---------
W
KENNARA vantar í Swan
Creek skólahéraði, Nr. 743, karl-
mann eða kvenmann, sem hafi 2.
eða 3. class certificate. Kenslan
byrjar 1. Júní 1906 og stendur
yfir í sex mánuði. Umsækjendur
er tiltaki hvaða kaupi er æskt eftir
snúi sér til
W. H. ECCLES,
Sec.-Treas.,
Cold Springs, Man.
The Winnipeg Paint^ Qlasa. Co. Ltd.
Góður húsaviður!
unninn og óunninn, bæöi í smá og
stórkaupum. Veröiö hjá okkur
þlýtur aö vekja athygli yöar. |
Nauösynin á aö fá bezta efni-
viöinn sem bezt undirbúinn er öll-
um augljós. Meö ánægju gefum
vér yöur kostnaöar-áætlanir.
The Winmpeg Paint & Glass Co. Ltd.
’Phones: 2750 og 3282.1
Vörnhús á hornlnn á St
h Street og Qertrnd.
ve. Fort Ronge,
fl. E. BÍRD
570 MAIN ST.
Viö höfum nú til sölu mikiö af ágælum skóm,
karla, kvenna og barna. Viö getum uppfylt all-
ar sanngjarnar kröfur.
Komiö og skoöiö karlm. skóna sem viö erum
nú aö selja meö sérstöku veröi.
Kosta aö eins...............$.............$1,15.
A. E. BIRD
I Eftirmaöur Adams & Morrison
I--------------------------------1
CAN AD A-N ORÐ VESTURL ANDIÐ
KEGLUIt VrI» LANDTÖKU.
. v, *fctl°num meB Jafnrl tölu, sem tllheyra sambandsstjðrnlnnl.
1 ,oba- Saekatchewan og Alberta, nema 8 og 26, geta fjölskylduhöfu»
.* 18 Ara eöa eldrl, teklö sér 160 ekrur fyrlr helmlUsréttarland.
þaö er að segja, sé landlö ekkl aöur teklö, eöa sett tll slöu af stjðrnlnnl
til vloartekju etSa einhvera annars.
INNRITUJí.
Menn mega skrlfa slg fyrlr landlnu & þelrrl landskrlfstofu, sem namt
Uggur landlnu, sem teklO er. MeÖ leyfl lnnanrlklsraöherrans, eöa lnnflutn-
lnga umboðsmannslns I Wlnnlpeg, eöa naesta Domlnlon landsumboösmanns.
geta menn geflö ÖÖrum umboö U1 þess aö skrlfa slg fyrlr landL Xnnrltunar-
gjaldlö er $10.00.
^—-ác-. _____
HEIMIIJSRÉTTAR-SKYI.DUR.
Samkvæmt núglldandl lögum, veröa landnemar aö uppfylla helmlli*.
réttar-skyldur slnar A elnhvern af þelm vegum, sem fram eru teknir 1 eft—
irfyigjandt töluliöum, nefnilega:
—AU búa A landlnu og yrkja þaö aö minsta kosU I sex mlnuðl A
hverju Ari I þrjú Ar.
*•—Ef faöir (eöa möOIr, ef faölrlnn er íatinn) elnhverrar peraðnu, sem
heflr rétt U1 aö skrifa slg fyrir helmllisréttarlandl, býr á bfljörö 1 núgrennl
viö landiö, sem þvillk persöna heflr skrifaö sig fyrir sem helmlllsréttar-
landi, þa getur persönan fullnægt fyrlrmælum laganna, aö þvl er Aböð &
landlnu snertlr Aöur en afsalsbréf er veltt fyrir þvl, A þann hAtt aö hafa
helmlH hjá fööur slnum eöa möður.
8'—Kf landneml heflr fengiö afsalsbréf fyrir fyrri helmllisréttar-böjörtJ
sinni eöa sklrteinl fyrir aö afsalsbréflö veröi geflö Út, er sé undirritaö f
samræml viö fyrirmæli Dominion laganna, og heflr skrifaö sig fyrlr stöarf
heimllisréttar-bújörö, þA getur hann fullnægt fyrirmælum laganna, aö þvf
er snertir Abúö A landlnu (slöari heimilisréttar-bújöröinni) AÖur en afsala-
bréf sé gefiö öt, A þann hAtt að böa A fyrrl heimilisréttar-Jörðtnnl, ef slöari
heimillsréttar-jöröin er 1 nAnd viö fyrri heimlllsréttar-Jöröina.
4.—Ef landnemlnn býr aö staöaldri A bújörö, sem hann heflr keypt,
teklö 1 erföir o. s. fry.) I nánd viö helmillsréttarland þaö, er hann heflr
skrifaö slg fyrir, þA getur hann fullnægt fyrlrmælum laganna, að þvt ec
ábúö A helmllisréttar-jörölnnl snertir, A þann hátt aö búa A téörl eignar-
Jörö sinnl (keyptu landi o. s. frv.). ..
BEIBNI UM EIGNARBRÆP.
ætti aö vera gerö strax eftir að þrjú Arin eru liöln. annaö hvort hJA næsta
umboösmannl eöa hjá Insi»ector, sem sendur er U1 þess aö skoöa hvaö 4
landlnu heflr verið unnlö. Sex mánuöum Aöur veröur maöur þö aö hafa
kunngert Domlnion lands umboösmanninum 1 Otttawa þaö, aö hann ætll
sér aö biöja um eignarréttinn.
IíEIDBEININGAR.
Nýkomnir innflytjendur fá á innflytjenda-skrifstofunni f Winnipeg, og á
öllum Domlnion landskrlfstofum innan Manltoba, Saskatchewan og Alberta,
lelöbeinlngar um þaö hvar lönd eru ötekin, og allir, sem A þessum skrif-
stofum vinna veita innflytjendum, kostnaðarlaust, leiöbeinlngar og hjálp tU
þess aö ná 1 iönd sem þeim eru geöfeld; enn fremur allar upplýsingar viö-
vlkjandl timbur, kola og náma lögum. AUar sllkar reglugerölr geta þeir
fengið þar geflns; elnnlg geta ir enn fenglö reglugeröina um stjörnarlönd
innan JArnbrautarbeltlslns 1 Brltlsh Columbia, meö þvl aö snúa sér bréflega
tll ritara innanrlkisdelldarinnar 1 Ottawa, InnflytJenda-umboÖsmannsins I
Winnipeg, eöa til einhverra af Ðominion lands umboösmönnunum I Mani-
toba, Saskatchewan og Alberta.
Þ W. W. CORY,
Deputy Minister of the Interior.
L M. CLEMENS
byg^gingameistarl.
Bakbr Block, 468 Main St. allskonar gerö á Lögbergi,
WINNIPEÖ Phone 4887 fljótt> vel og rýmilega.
PRENTUN