Lögberg - 19.04.1906, Blaðsíða 4
4
LOGBERG FIMTUDAGINN 19. APRÍL 1906
S'ógberg
er gefitS öt hvem flmtudag af The
Logberg Prlnting & Publishing Co.(
(löggilt), aB Cor. William Ave og
Nena St., Wlnnipeg, Man. — Kostar
$2.00 um áriti (á íslandi 6 kr.)
Borgist fyrirfram. EinstÖk nr. 5 cts.
Published every Thursday by The
Lögberg Prlnting and Publishing Co.
(Incorporated), at Cor.William Ave.
& Nena St., Winnipeg, Man. — Sub-
scription price $2.00 per year, pay-
able in advance. Single copies 5 cts.
S. BJÖRNSSON, Editor.
M. PAXXLSON, Bns. Manager.
Auglýslngar. — Smáauglýsingar í
eitt skifti 25 cent fyrlr 1 þml.. A
stærri auglýsingum um lengri tlma,
afsláttur eftir samningi.
BústaCaskifti kaupenda vertSur at5
tilkynna skriflega og geta um fyr-
verandi bústaö jafnframt.
Utanáskrift til afgreiöslust. bia)5s-
ins er:
Th6 LÖGBERG PRTG. & PCBL. Co.
P. O. Box. 136, Winnipeg, Man.
Telephone 221.
Utanáskrift til ritstjörans er:
Editor Xxjgberg,
P. O. Box 136. Winnipeg, Man.
Samkvæmt landslögum er uppsögn
kaupanda á blaði ögild nema hann
sé skuldlaus þegar hann seglr upp.—
Ef kaupandi, sem er I skuld viti
blatSíö, flytur vistferlum án þess að
tilkynna heimillsskiftin, þá er þaö
fyrir dömstölunum álitin sýnileg
sönnun fyrir prettvtslegum tilgangi.
Sumarkomu hugrenningar.
í dag stöndum vér á tímamarks-
mótum kuldans og hitans, skugg-
ans og ljóssins.
Að baki oss er veturinn með
frostin og snjóinn, skortinn og
kvíðann. Fram undan oss er sum-
arið með yl og b'ómdaggir, gnægt-
ir og nýjar vonir.
Vér vitum, að þetta hlýtur svo
að vera, það er regla, sem í aðal-
eðli sínu aldrei hefir brugðist, og
mun aldrei bregðast meðan heim-
urinn er til. — Er þá ekki ástæða
fyrir oss að lyfta upp höfði og
brosa fagnandi mót blessaðri sól-
unni, sem enn einu sinni, björt og
dvrðleg býður öllum börnum
mannanna gleðilegt sumar? Jú,
sannarlega! Enginn, nema sá,sem
ber á sér andleg dauðamörk, eða
er andlegur steingjörvingurí raun
og veru, getur komist hjá þvi að
verða snortinn af viðkvæmni og
innileik, þegar hinn glóandi sendi-
boði hinnar blíðu árshelftar, sól
fyrsta sumardagsins, færir honum
morgunkossinn,signandi láð og lög,
um leið og náttúr^n og öll börnin
hennar hrista af sér vetrarhöfgann
oí* vakna til nýs lífs.
Þessi lifsvakning nær og til
mannanna, sérstaklega að því er
verklegu framkvæmdirnar snertir.
Hér í þessu starfseminnar landi,
er vinna úti við sótt allan veturinn
að meira eða minna leyti, af ýms-
um verkfiokkum manna, en
margar starfsgreinar hafa þó ver-
ið lagðar á hylluna köldustu mán-
uði vetrarins, og þær hefjast nú
um þessar mundir með nýju fjöri,
þegar hlýju dagarnir koma undir
blíðskini hinnar allífgandi sumar-
sólar.
Með sumarkomunni hefjast ný
og fjölbreyttari störf fyrir alla at-
vinnurekendur í bæjunum. í
sveitunum kallar jarðræktin og
önnur vorverk bændalýðinn til
starfa, og mörgu hefir — þegar
liér er komið á tíma — sá bóndinn
að sinna, sem gat tt'kið sér lífið létt
og rólega um vetrarmánuðina, þar
sem ekki lá annað fyrir, en sjá um
það, sem búið var að afla.
Nú byrjar nýr starfstimi fyrir
hann, það þarf að gera meira en
gæta fengins fjár, það þarf að
auka við stofninn, sein fyrir er, ef
vel á að fara, og sumarið er tíminn
til þess.
'Það er sagt um íbúa Vestur-
heims, að þeim sé dollarinn alt.
En hvar er meiru komið í frarné
kvæmd en einmitt í Vesturheimi?
Nú eru allir að líkindum. á $ama
máli um það, að ekkert verði gert
af verklegum fyrirtækjum án pen-
inganna, og er því ekki nema eðli-
legt, að mönnum, sem búa í mesta
starfslandi heimsins, verði öðrum
fremur ljóst, að attðurinn er afl
þeirra hluta hluta, sem gjöra skal,
og óhjákvæmilegt sé að ná í hann
til þess að geta bætt nýjum hlekk í
framkvæmdakeðjuna, þó í smáum
stýl verði hjá ýmsum, alt eftir þvi
hvernig högum hvers og eins er
háttað.
Veturinn, sem kveður oss i þetta
sinn, hefir, að fróðra manna máJi,
liðið fremur mjúkfættur yfir þetta
land, og óhætt mun að fullyrða, að
afkomá manna hér, íslendinga sem
annarra, hafi verið með betra móti
um liðið ár, og hefir stutt að því
bæði góðærið i fyrra, vaxandi sam-
göngubætur, og þar af leiðandi
fjörugra viðskiftalíf innan lands
og utan, ásamt ýmsu fleira.
Vér höfum sterka trú á þessu
Iandi, og væntum þess og óskum,
að komandi sumar færi löridum
vorum og öðrum íbúum þess, nýj-
ar gnægtir, nýjar vonir og nýtt
kapp til framtakssemi og sjálfstæð
is, og eftir því sem árin liða grund-
valli þetta farsæla framtíð þeirra,
og leggi lán og blessun í hvert
spor, sem þeir stiga hér.
------o------
Heimboö alþingismanna ís-
lands til Danmerkur.
Þess var minst fyrir skemstu í
Lögb, að íslenzku alþingismönnun-
tim hefði verið boðið til Khafnar
á þessu sumri, pg nákvæmar
hafa nú íslandsblöðin síðustu skýrt
frá þvi.
Kvað hinn nýi konungur Friðrik
á.ttundi, í nafni ríkisstjórnar og
ríkisþings Danaveldis, hafa sent
nefnd tilmæli til íslands, og er svo
til ætlast, að alþingismennirnir
verði jafnt gestir konungs og rik-
isþingsins.
Vikutíma er ráðgert að þing-
mennirnir dvelji i Kaupmanna-
höfn og grendinni, en ferðin og
dvölin utan lands kostnaðarlaus
fyrir þá, eins og tíðkast þar, sem
um heimboð þessu lík er að ræða.
Heimboð i líka átt og þetta, eru
farin að tíðkast í síðari tíð milli
ýmsra stærri þjóða Evrópu, og eru
nánast ytri vináttuteikn milli þjóð-
anna, og að nokkru leyti gerð til
frekari viðkynningar þeirra.hverr-
ar á annari.
Þar sem mikill umbrota andi og
óánægja er hjá nokkrum hluta ís-
lcnzku þjóðarinnar, bæði út af nú-
verandi stjórnarfari þar í landi,
sem og með framkvæmdir og gerð-
ir dönsku stjórnarinnar í íslands
garð að ýmsu leyti verður
ekki betur séð,en að þetta hafi ver-
ið mjög hyggilegt ráð af Dana-
konungi, til þess að draga úr óá-
nægjunni, spekja íslendinga undir
stjórn sinni 'og stöðva ef unt væri
alla frekari stjómbreytingar nýj-
ungagirni þeirra.
Tæpast er hægt að búast við því,
að Danir öðlist mikla þekkingu af
íslandi og högum, háttum og þörf-
um manna þar, af utanför þessari.
Til þess að það verði mega bæði
þingmennirnir verja ágætavel þess
um vikutíma, sem ætlast er til að
þeir standi þar við, og Danir aftur
að hinu leytinu hafa opnari eyru
fyrir nauðsynjamálum íslendinga,
en sjáanlegt hefir verið að þeir
hafi haft hingað til.
Fyrir íslendinga gæti þifigmmna
för þessi aftur á móti haft nokkra
þ . ðingu, ef áhrif þau af erlendri
framfarastarfsemi, sem hvervetna
mætir íslenzku auga, er fyrsta
sinni kemur út fyrir pollinn, bær-
ust aftur heim til íslands í hugum
þeirra—því að margir af þeim
munu aldrei áður hafa fariö brott
af íslandi—og væru gróöursett
aftur í brjósti alþýðunnar á Fróni,
og enginn vafi er á því ,að þetta
verður allra skemtilegast gaman-
ferð fyrir þingmennina.og óskandi
að þeir notuðu hana svo í hag
lands síns, sem þeir mættu fram-
ast.
-------o------
Bindindiá Englandi og í
Ameríku.
Eitt af hinum gleðilegustu teikn-
um hinna síðari tíma er óneitan-
lega það, hversu mjög augu þjóð-
anna hafa opnast fyrir böli því og
andstreymi, andlegu og- líkamlegu,
sem ofdrvkkjan leiðir yfir land og
lýð, og þar af leiðandi minkað við
sig vínnautnina.
f allflestum þeim löndum, sem
lengst eru komin álengdar á braut
menningarinnar, hefir ofdrykkjan
drjúgum farið minkandi á síðast-
liðnum mannsaldri. Lítum vér t.
d. á England og Ameríku, sjást
þess ljós merki, á áfengisskýrslun-
um, og til frekari skýringar viljum
vér benda á hvað eitthvert merk-
asta tímarit Bandarikjanna, „The
Independent“, lætur í ljósi um mál
þetta. Þar segir svo:
„Enda þótt vér Amerikumenn
höfum verið eftirbátar Englend-
inga í ýmsum greinum, svo sem
hvað afnám þrælahalds og framför
í póstmálum snertir, þá stöndum
vér þeim fullkomlega jafnfætis
þegar um afnám ofdrykkjunnar
er að ræða, og vér höfum stígið
hraðari skrefum í hófsemdaráttina
í seinni tið, en þeir.
Vínnautnin hjá oss var svo yf-
irgnæfandi fyrir rúmum hundrað
árum síðan, að sá þótti ekki maður
með mönnum, sem ekki fékk sér í
staupinu. Að orðtæki er það haft
t. d- í Lichfield, að allir heiðvirðir
borgarar þar hafi drukkið vín á
hverju kveldi, og var slíkt enginn
blettur talinn á þeim.
Jafnt drukku um það skeið hér
í landi útlendingar og Englending-
ar, að heita mátti. Prestarnir voru
engu betri en aðrir. Þannig er
það í frásögur fært, að í bænum
Wrentham í Mass., hafi,fyrir tæpri
öld síðan, prestur einn um hádeg-
isbilið komið út til tjaldverka-
manna, er unnu skamt frá húsi
hans, klæddur prestshempu, með
litla tinfötu fulla af rommi, og smá
bolla til að skenkja verkamönnun-
um drykkinn, og á eftir honum
fylgdi annar maður með vatns-
fötu og stærra drykkjarker t il að
svala þeim, sem áfengið hitaði um
of fvrir brjósti.
Engum datt í hug á þeim tíma
og undir þeirri siðvenju, sem þá
var, að finnast þetta óviðfeldið á
nokkurn hátt, því að prestarnir
drukku sjálfir, bæði heima hjá sér
og annars staðar, og annað eins og
þetta var blátt áfram skoöað sem
sérstakur vottur um góðgjörða-
semi æskilegs sálusorgara. Lík
þessu mátti mörg dæmi finna í
Ameríku, alt þangað til barátta
Dr. Lyman Beechers hófst gegn
áfengisnautninni, sem síðar ruddi
braut og greiddi fyrir hinni miklu
washingtonsku bindindishreifingu.
Á Englandi hefir blómgun bind-
indisins stígið fram reglubundn-
ari en smærri skrefum, og nú er
svo langtkomið, að , noncomform-
istar, sem taldir eru að vera fullur
helm :ur ibúa Englands, halda
fast fram afneitun alls áfengis, og
liberalar hafa heitið því, að bæta
þannig löggjöfina, að takmörkuð
verði að miklum mun tala vínsölu-
húsa í landinu.
Af áfengisskýrslum eftir Daw-
son Burns, birtum í Times, sést
það, að undanfarin sex ár hefir
vínnautnin stöðugt farið minkandi
á Bretlandi, enda þótt íbúatalan
hafi aukist eigi all-lítið á þessum
tíma. Árð 1899 voru útgjöld þar
í landi til áfengisdrykkja metin á
$929,636,135. Síðan hefir þessi
útgjaldaliður farið Iækkandi á ári
hverju, minst um fimm miljónir
dollara og alt upp í tuttugu og
fimm, svo að samlögð lækkun á á-
fengisskránni nemur í nefnd sex ár
108,796,430 doll. Sést þá, þegar
litið er til þess að fólkinu hefir
fjölgað um'6^2 per cent, að áfeng-
isútgjöldin hafa minkað um nær-
felt 12 per cent. á þessum tima.
Athugi menn orsakir þær, sem
liggja til þess að vínnautnin hefir
farið minkandi, verður það skjótt
auðsætt, að flestar eru þær þar
hinar sömu og hér í Ameríku. —
Bæði trúarlegar og siðferðislegar
hvatningar hafa stutt mjög að því
að bægja þessu böli brott frá þjóð-
inni, svo og hinn vaxandi skilning-
ur hennar sjálfrar á skaðsemi á-
fengisins fyrir heilsufar manna yf-
irleitt. Fyr meir var það viðkvæði
búið að fá viðtæka hefð, bæði i því
landi og annars staðar, að enginn
væri hraustari en þeir,sem drvkkju
í hófi. En nú eru læknarnir komn-
ir á aðra skoðun. Nú banna allir
aflraunameistarar t. d. lærlingum
sínum að smakka áfengi eða æs-
andi drykki, og járnbrautafélög
heimta bindindi af þeim, sem yfir-
menn eru á brautarlestunum, og
bera ábyrgð á lífi fjölda manna.
Alment er það álit og orðið nú á
Englandi. að enginn, sem á annað
borð er vínneytndi geti öðlast
heppilegan árangur af starfi sínu,
enda nái aldrei fullum t aldri. —
Þannig hafa Bretar smátt og smátt
þokast í áttina til að verða bind-
indissöm þjóð, og bæði Englend-
íngar, Skotar og írlendingar eiga
þetta nafn með rentu. Á Skotlandi
er whiskey mest drukkið, en ölið
á Englandi, en hjá báðum þjóðun-
um sýna áfengisskýrslurnar, eins
og áður hefir verið minst á, mikla
og lofsverða minkun í áfengis-
nautninni.
I Ameríku hafa lögin urti vín-
sölubannið gert sérlega mikið
gagn, og alt af vex það svæði, sem
vínsölubannið nær yfir í landinu,
og ánægjulegt er að sjá það, að
allar kirkjudeildirnar, sem eru þó
býsna margar talsins, taka höndum
saman til stuðnings þessu máli.
-------o-------
Vesúvíus aðgjósa.
Eins og vitanlegt er Iiggur hið
forna eldfjall Vesúvíus skamt frá
hinum nafnkunna merkisbæ Nea-
pel. Umhverfis þá borg og fjallið
er mjög frjósamt land, ó’g er þar
fjöldi smærri og stærri bæja, og í-
búatala í þeim frá tíu til hundrað
þúsundir manna.
Næstliðinn vetur hefir margt til
þess bent, að Vesúvíus, þessi eyði-
leggingar eldgnúpur ítalíu, væri í
undirbúningi með að gera nýtt
spell á landi og lífi manna um-
hverfis sig.
Svo langt sem sagan nær aftur í
timann, hefir eldfj^Ilið verið sí-
gjósandi öðruhvoru, en næstliðin
þrjátíu ár hefir ekkert stórtjón orð
ið af eldblástri hans, og var lands-
ýður þar í^grendinni farinn að
vona, að ekkert frekara mundi
verða úr umbrotum þeim, sem smá
bar á í honum meiri hluta næstlið-
ins vetrar.
Síðasta stórgosið næst hér á
ttndan skeði 1872, og á þeim rúm-
um brjátíu árum, sem liðin eru frá
því, hafði bygðin færst upp eftir
fjallinu og nærri fast upp undir
eldgíginn, á toppinum á því. Við
rætur þess, og upp eftir hlíðunum
neðan verðum, teygðust blómlegir
aldingarðar.þar sem ræktaðir voru
suðrænir ávextir og vínviður.
Snemma í þessum mánuði var
það auðsætt, að alvarlegt eldgos
var í nánd. Þykkur reykjarstólpi
hangdi yfir gignum,og upp úr fjall-
ir.u fór svo að gjósa eldur og aska.
Áður en langt leið fór hraunflóðið
að renna út yfir gígbarmana.
Brennisteinsgufan varð Iítt þol-
andi fyrir menn og skepnur þar t
grendinni, og stórkostlegar þrum-
ur og eldingar urðu, eins og vant
er, þegar mikil eldgos eru í vænd-
um.
Með hverjum deginum sem leið
ágerðist eldgosið, og mest kvað aö
því um miðja vikuna næstliðnu,
eins og lauslega var drepið á í
næsta tölublaði hér á undan.
Margir nýir eldgígar hafa opn-
ast á hliðum fjallsins, einkum að
sunnanverðu og'hraunflóðið vall
út urn þá, rann niður á jafnsléttu,
og eyðilagði fjölda þorpa. íbúar
dvöldu í þeim alt þangað til flóðið
rann að húsunum, því þeir væntu
eftir að það tæki annað hvort aðra
stefnu eða gosinu létti af, en svo
varð eigi, og það hlaut að flýja,
og yfirgefa bústaði sína og dýr-
mætar landeignir, sem íbúarnir,
með margra ára dugnaði og elju,
höfðu gert mjög arðvænlegar.
Yfir alt þetta Iagðist hið gjör-
eyðandi hraunflóð, og gerði marg-
ar þúsundir manna öreiga á fáum
dögum.
Meðan hraunflóðið var að eyði-
leggja bygðir og ból á suðurhlið
fjallsins, féllu feiknin öll af ösku
yfir alt héraðið umhverfis fjalls-
ræturnar. Var askan . blandin
varmri leðju og sjóðandi vatni, er
déyddi þegar allan jurtagróður,
því allur jarðvegur varð þakinn
þykkri skán af þessum ófögnuði,
svo að þegar eldgosinu er lokið
verða íbúarnir að byrja þar jarð-
rækt algerlega á nýjan stofn.
Sjöunda þessa mánaðar duldist
fólkinu þar í grendinni ekki leng-
ur að Iíf þeirra manna, er bjuggu
í fjallshlíðinni þar sem hraunflóð-
ið stefndi eftir, var t mikilli hættu
statt, og hófst þá flóttinn fyrir al-
vöru niður á sléttuna og inn til
Neapel borgarinnar. Hraunflóðið
var þá. komið alt niður til bæjarins
Boscotrecase, og flýðu þaðan um
tíu þúsundir íbúanna í mikilli skelf
ingu. Bærinn var með öllu eyði-
lagður af hraunflóðinu.
Hraunflóðið rann áfram og alt til
rústa fornbæjarins Pompeii, sem
liggur í sömu átt frá eldgígnum og
Boscotrecase, en svo lítur þó út,
að þeir ómetanlegu fjársjóðir
fornmenja, sem þar eru geymdir,
hafi sloppið hjá eyðileggingunni,
þar eð flóðið klofnaði um hæð þá,
er rústirnar mvnda, og rann fram
hjá þeim. Vissa fyrir þessu að
öllu leyti kvað þó ófengin enn.
Neðan við Pomþeii er Torre An-
nunziata, íbúatala þar um 30,000,
og flýði þaðan alt fólk, að undan-
skildum tæpum tveim þúsundum.
Aðal hraunflóðsstraumurinn var
þaö sem skall á Torre Annunziata,
en út frá honum runnu tvær minni
kvíslar; stefndi önnur til austursv
sem ógn stendur af fyrir oæinn
Ottaino, en hin til vesturs og niður
til hafs, og mundi sú granda bæn-
um Torre Greco, ef hún héldi á-
fram að renna niður til sjávar.
Báðir þessir bæir hafa um 30.000
íbúá. Þar að auki er og fjöldi
smærri bæja, sem geta orðið fyrir
flóðinu, hvað Htið sem það breytir
stefnu sinni, og eru íbúarnir hver-
vetna fullir ótta við þessar yfirvof-
andi hörmungar. .
Stjömufræðis athugunarstöð
stjórnarinnar, sem stóð ofarlega í
fjallshlíðinni, og var meðfram reist
þar til þess að gera fólki aðvart
um þegar gos væru í nánd, eyði-
lagðist af gosi þessu.
Þangað til snemma i næstliðinni
viku bárust engar fregnir af því,
hversu margir menn létu lífið í
þessum sorgaratburði. Þá fyrst
fréttist um fjölda manns, sem far-
ist liefði í San Guiseppe héraðinu.
Svo er sagt, að þar hafi alls látist
um fimm hundruð manna, af þeim
full tvö hundruð.sem voru í kirkju
einni við guðsþjónustugerð. —
Brotnaði þar inn þakið og féll of-
an á fólkið, og að ei'ns fimtiu lík
var búið að grafa upp úr þeim
rústum þegar síðast fréttist. — í
Sorrentine fórust og um fjörutíu
manns, með líkum ha^tti. Allt að
þessu hefir verið mjög erfitt að
veita hinum bágstöddu íbúum hér-
aðs þessa næga hjálp, með því að
öskulagið er svo þykt, að öll járn-
brautarumferð er þar ómöguleg, og
keyrsla með hestum sömuleiðis hin
torveldasta, og hefir því eigi held-
ur getað fengist fullnægjandi og
ákveðin vissa um tölu þeirra, sem
mist hafa lífið þar, en vafalaust
skifta þeir hundruðum, eins og
þegar hefir verið minst á.
í Ottaino eru fimm kirkjur og
tíu hús hrunin undir öskuþ,ungan-
um, sem hlaðist hefir ofan á þau,
og fjögra fet þykt kvað öskulagið
vera þar hvarvetna í grend.
Haf og hauður þar umhverfis
gekk i bylgjum af ólgunni og um-
brotunum neðanjarðar. Jarð-
skjálftakippirnir kváðu vera hinir
voðalegustu svo að alt leikur á
reiðiskjálfi, þegar á þeim stendur,
og svo er öldugangurinn og haf-
rótið mikið í sambandi við umbrot
þessi í eldfjallinu, að menn búast
þá og þegar við að sjór flæði upp í
Neapel, og kváðu menn þegar hafa
yfirgefið húsin í þeim strætum, er
næst Iiggja ströndinni, en skip öll,
sem voru þar á höfninni, hafa eigi
þorað að haldast þar við, en lagt á
haf út. Fjöldi gesta er um þessar
mundir árs í Néapel, og flýðu þeir
allir til gistihúsanna í bænum, sem
fjærst liggja sænuin.
í siðasta Lögbergi var getið um
hið mikla manntjón, sem varð þar
í borginni fyrra þriðjudag, þegar
þrsk sölutorgs eins hrundi ofan á
fjölda manna, og um tvö hundruð
urðu fyrir meiri og minni áverk-
um. Lýsingarnar á þeim atburði
eru einhverjar hinar hryllilegustu,
sem hugsast geta. Mörg líkin voru
svo afmynduð og sundurtætt, að
þau voru með öllu óþekkjanleg.
Útlitið í Neapel er hiö ískyggi-
legasta. Suðaustan vindur hefir
blásið þar undanfarið, og ber
þangað öskuna frá eldfjallinu og
sligar auðvitað fleiri byggingar og
grandar lífi manna þar ef þessu fer
fram. Myrkur og móða hvílir yfir
borginni og öllu landinu umhverf-
is, svo að öll umferð bæði á sjó og
landi er litt möguleg.
Konungshjónin ítölsku hafa
dvalið í Neapel þessa siðustu daga
og kváðu þau hafa ferðast um
á milli bæjanna, kring um fjallið,
áður en aðal eyðileggingin varð
þar. Konungshjónin eru hin vin-
sælustu af allri alþýðu og var tekið
á móti þeim með miklum fögnuði,
er þau heimsóttu fólkið í hinni yfir
vofandi neyð, enda kváðu þau
einskis hafa Iátið ófreistað til að
fá þeim, sem bágast áttu, rétta
hjálparhönd, eftir því sem kring-
umstæðurnar frekast leyfðu.
-------o----—
Sendibréf
til Árna próf. Jónssonar á Skútu-
stöðum við Mývatn, frá Bene-
dikt Magnússyni frá
Skjöldólfsstöðum.
Heiðraði vin!
Það var nú svóna, prófastur
minn, eins og þér munið, að eg
lofaði yður að senda yður svolítinn
miöa, cg stg a yður hverni^ mér