Lögberg - 09.08.1906, Qupperneq 1
»10 prc. afsláttur
a f öl lumfíss kápunutnj pen
ingum út í hönd. Þeir eru úr bezta harB-
vi8, fóöraðir með sínki og galv. járni. Verð
Í7.00 og þar yfir.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
B38 Main Str. Teleptione S38.
Brúðargjafir.
Vér höfum mikið af silfruðum varingi, svo sem
ávaxta-diska og könnur, sykurker og glasrhylki,
borðhnífapör og brythníía. Þarfir munir og
fallegir.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
538 Main St. Telephone 339.
19 AR.
Winnipeg, Man., Fimtudaginn, 9. Ágúst 1906.
NR32
Fréttir.
Um þaö var getiö 1 ,,Lögbergi“,
í vikunni sem leiö, að finska setu-
liðiö í herkastalanum „Sveaborg“
heföi hafið upppreist á móti Rúss-
um. Uppreist bess* hefir alger-
lega mishepnast fyrir þeim er til
hennar stofnuðu, og kastalanum
„Sveaborg“ hefir herlið keisarans
algerlega náð í sínar hendur. öll-
um ]>eim uppreistarmönnum sem
hönd á festi var að sjálfsögðu
varpað í fangelsi og bíða þeir nú
;þar dóms sins, dauðadóms efa-
ilaust flestir, ef ekki allir, án
minsta greinarmunar. Mannfallið
í uppreist þessari í „Sveaborg"
varð hátt á fimta hundrað manns,
og er það meira en lítið þegar að
því er gætt hversu stutt hún stóð
yfir. Ekki tókst sósialistum á,
Einnlandi að koma á almennu
verkfal.li meðal járnbrautarþjóna
og annara stétta, og styrkja með
jþví uppreistarflokkinn, eins og
fyrir var ætlað. En þó þ.essi til-
raun á Finnlandi mistækist, og
væri ekki nógu vel undirbúin, er
langt frá að friðurinn í landinu
sé að neinu leyti tryggari nú en
áður. Þvert á móti eru upph,laup
og óeirðir daglegt brauð víðsveg-
ar um rússneska keisaradæmið,
eins innan landhersins og sjóliðs-
ins eins og á meðal borgaranna.
Ætla þaö margir að ástandið eins
og það nú er á Rússlandi sé ó-
hugsandi til frambúðar, og ein-
hver stórkostleg breyting sé ó-
hjákvæmileg í nálægri framtíð.
Sagt er að tuttugu hjúkrunar-
konur við Bellevue spítalann í
III., hafi veikst 4. þ. m. eftir að
hafa neitt kveldverðar í sjúkra-
húsinu þann dag. Niðursoðin
uxatunga var þar á borðum og
rotnunareitri i krás þeirri kent
um þá sýki.
Harðir jarðskjálfta kippir eru
, sagðir að hafa orðið á Martinique-
I eyjunum 4. þ. m.
Þrjátíu og fimm mílur af Hud-
son Bay brautinni, norðan við
aðallínuna, eru nú, samkvæmt yf-
irlýsing forstööumanns C. P. R.,
William MacKenzie, búnar undir
. teina.
Ógurlegt þrumuveður með af-
taks stormi af suðvestri er sagt að
hafi komið í Saskatchewan fylki,
1. þ. m., síðdegis. Skemdust hús
nueira og nxinna ai veðrinu og
hrundu sum, en önnur stærri þar
á meöal ný baptista kirkja ekki
fullgjör drógst af grunninum og
fleygðist niður skamt frá. Nokkr-
ir menn meiddust þar af elding-
um.
Simritað er frá Cartagena á
Spáni 5. þ. m. svo hljóðandi frétt:
Italska gufuskipið Sirio frá Genoa
i Suður-Ameríku, með átta hundr-
uð manns á, strandaði í nótt sem
leið við Homingas ey, sem .liggur
hér um bil hálfa þriðju milu aust-
an við Polos höfða, er liggur suð-
austan á Spáni. Þrjú hundruð
farþegarnir, sem voru innflytj-
endur til Suður-Ameríku, drukkn-
uðu. Flestir þeirra voru Italir og
Spánverjar. Þeir sem af komust
björguðust á skipsbátunum eða
voru dregnir á koðlum að landi.
Fjölda margir fiskimenn, sem ætl-
uðu að koma skipshöfninni til
hjálpar, týndust sömuleiðis. Nakt-
ir ,félausir og yfir höfuð alls laus-
ir eru þeir skipsbrotsmenn sagðir
flestir, er komust lifs af. Skipið
hafði steytt á skeri, og sokkið fá-
um minútum eftir að þaö rakst á.
Skipstjóranum er að nokkru leyti
kent um slvsið og er sagt að hann
hafi fyrirfarið sér.
. Verzlunarerindsreki Canada í
Japan hefir ný.Iega sent mjög
fróðlega: skýrslu um hveiti út-
flutning þangað, héðan úr landi.
Ber sú skýrsla með sér, að næst-
liðið ár hafi verið flutt frá Van-
couver alls kornvara fyrir sjötíu
og sex þúsund dollara. Af þeirri
upphæð nániu viðskiftin við Japan
sextíu og tveim þúsrmdum.
Auðmannafé.lag eitt í Duluth er
i i þann veginn að láta smíða eitt
j hið stærsta flutningsskip til að
, nota á vötnunum. En/i fremur á
að gera skip það svo úr garði, að
það geti ekki sokkið. Skipið á að
vera sex hundruð og fimtiu feta
langt, og búrðarmagnið milli
fimtán og seytján þúsund tonn.
. Þrýstiloft verður notað til að
halda skipinu jafnan ofan sjáfar.
Kostnaðaráætlan talin sex hundr-
uð þúsund dollara.
Látinn er Edmund Rousse einn
af meðlimum vísindafélagsins
franska. Hann var maður frábær-
lega vel að sér og þjóðkunnur, og
fjörgamall, því nær tíræður.
Steinprcntarar (lithographersj
í New York gerðu verkfall í fyrri
viku. Sagt er að um sextiu þús-
und mans hafi tekið þátt í því.
Heimta þeir fjörutiu og átta
stunda vinnu á viku i stað fimtíu
og þriggja. Vinnuveitendur, halda
því fram, að þeim berist svo mik-
ið verk i hendur að eigi sé auðið
að koma því í verk, sé vinnutim-
inn styttur, þar eð lærlinga talan
er takmörkuð fyrir hvern vinnu-
veitanda sem hefir „union menn“
í þjónustu sinni.
Skrá hefir nýlega veriö gefin
út af sjóliðsdeild Bandaríkjanna
vfir -al.lar helztu stöðvar þeirra
landa er loftskeyti nota um víða
veröld. Tala loftskeytastöðvanna
er þar sögð þessi: I Danmörku 4,
Þýzkalandi 13, Frakklandi 6,
Bretlandseyjum 43, Hollandi 7,
Spáni 4, ítalíu 18, löndum Rússa
i Evrópu 8, Svíþjóð 3, Tyrklandi
6, Argentina 5, Braziliu 5, Can-
ada 5, Bandaríkjunum 88, af þeim
15 á Alaska 8 eyjunum þeim, er
Bandaríkin eiga, Kina 5, Japan 2,
Austur-Indlandi 5. Enn fremur
greinir skýrsla þessi frá nöfnum
og tölu allra þeirra skipa er loft-
skevtaáhöld hafa meðferðis.
Ný fundin er kolanáma skamt
frá Battleford í Sask. Segja sér-
fróðir menn, er séð hafa sýnis-
horn þaðan, að þau munu vera af
góðri tegund.
Smá uppþot varð í herliðinu í
Halifax, Nova Scotia næstliðinn
fimtudag, út af líti.lfjörlegri mis-
klið. Endaði uppþotið með því að
sextán hermenn voru teknir
höndum og settir í varðfiald.
Hæsta verð, sem menn vita af,
þegar um kaup á listaverkum er
að ræða, gaf auðmaður nokkur í
London fyrir málverkasafn ann-
ars manns, núna fyrir skemstu.
Verðið var hálf þriðja rniljón;
dollara. Því fáhcyrðara er þetta,
þar sem sagt er að í safni þessu
liafi engin forntíðar listaverk ver-
ið, heldur nýtízku listaverk ein,
flest eítir hollenzka snillinga.
Leyft var af Bandarikja þing-
inu í sumar, að gera skipgenga
leið milli stórvatnanna og Ohio
árinnár. Einstakir menn standa
fyrir þessu verki, aðallega auð-
menn í Pittsburg, og búast þeir
við að eimskip geti farið um hann
að fimm árum liðnum. Er ætlasf
til að hann verði þrjátíu og fimm
núlna langur, átta feta djúpur og
fimtiu fet á breidd. Skurðurinn á
að ná frá vötnunum til Pittsburg
og aö sjálfsögðu þeim bæ til mik-
ils hagnaðar, sérstaklega.
Frá Spitsbergen segir nýkomið
hraðskeyti um Wellmainns leið-
angurinn svo: Fjörutíu menn
vinna að þvi i óða önn að loftfar
Wellmanns geti lagt af stað þaðan
sem fyrst áleiðis til heimskauts-
ins. Innan fárra vikna verður loft-
báturinn reiðubúinn til að sigla á
stað, að líkindum seint í Ágúst-
mánuði.
Liklegt er talið að slátraraauð-
félagið Armour & Co. láti reisa
stórt slátrunar og niðursuðullús i
Minneapolis. Er kostnaðurinn á-
ætlaður um fimm miljónir doll.
Samkvæmt skýrslum um elds-
voðatjónið mikla í San Francisco
í sambandi við jarðskjálftana, er
svo frá sagt að eitt hundrað sex-
tíu og fjögur eldsábyrgðarfélög
hafi orðið þar fyrir eigna tjóni.
Er sá skaði metinn sem næst eitt
Inindrað þrátiu og þrem núljónum
dollara. Af því töpuðu eldsábyrgð-
arfélög í Bandaríkjunum liðugum
stjötiu og fjórum miljónum, en
félög í öðrum ríkjum hinu.
Skógareldar geisa nú á allmiklu
svæði í Brit. Columbia og hafa
þegar valdið stórkostlegu tjóni.
Töluvert af bændabýlum sem orð-
ið hafa á vegi eldsins hafa brunn-
ið til ösku, og ein af járnbrautar-
stöðvum Can. Pac. félagsins, með
byggingum öllum, hefir eldurinn
lagt í eyði.
Brezka þinginu var slitið laug-
ardaginn hinn 4. þ. m. Þingið af-
greiddi hinn mesta fjölda af ,lög-
um og lagabreytingum. I haust,
eða semma vetrar kemur þingið
saman aftur.
All-alvarlegar þrætur eiga sér
nú um þessar mundir stað milli
Frakka og Tyrkja út af landa-
merkjum í Norður-Afríku. Er
jafvel talin nokkur hætta á að ó-
friður geti ef til vill af hlotist, þó
Tyrkjasoldán sé því reyndar van-
astur að láta undan síga þegar
til alvörunnar kemur í viðskiftum
við Norðurálfu þjóðirnar.
Síðastliðinn mánudag var hiti
ákaflegur bæði í New York og
Philadelphia. I fyrnefndum stað
varð hitinn tuttugu marms að
bana og þremur i hinum síðar-
nefnda. I Boston veiktust menn
þ'á, einnig af hita, en engum varð
hann þar að fjörtjóni.
Gjaldkeri banka nokkurs í
Pittsburg í Bandarikjunum var
handsamaður i Toronto á þriðju-
daginn var. Et honum gefið að
sök að hafa stolið eitt hundrað
tuttugu og fimm þúsund dollurum
af fé banka þess er hann var gjald
keri fyrir.
Baron Komura, sendiherra Jap-
ansmanna, sem nú er á ferðinni til
Bretlands, og fyrir skömmu síðan
var staddur t Montreal, hefir látið
aðal-konsú.l Japansmanna í Cana-
da lýsa því yfir opinberlega fyrir
sina hönd, að alt það sem fréttarit-
arar blaðanna í Canada hafi birt á
prenti og borið hann fyrir sé upp-
spuni einn. Segir baróninn að
aldrei hefði sér getað konúð til
hugar, sem persónulegum sendi-
herra Japanskeisara til Bretakon-
ungs, að fara að láta nein blöð
flytja álit sitt um ýms málefni.
Segist baróninn meira að segja
ekki hafa talað eitt einasta orð við
neinn fréttaritara i Canada hvað
þá heldur meira.
I suðurhluta Texasríkisins hefir
ílóö mikið í Coloradofljótinu vald-
ið mannsköðum og eignatjóni nú
fyrir skömmu síðan. Tuttugu og
fimm manna er sagt að druknað
hafi í flóðinu svo hundruðum
skiftir mist hús sín og eigur allar,
og er eignatjónið áætlað að minsta
kosti fimm hundruð þúsund doll-
ara virði.
Enda þótt Simplon-göngin,
sem ekki fyrir all-löngu siðan var
lokið við að grafa gegnum Alpa-
fjöllin, hafi mikið bætt úr sam-
göngunum hafa Svisslendingar og
Frakkar á orði að grafa ný göng í
gegn um fjöllin, til þess að greiða
samgöngurnar enn betur. Þau
göng verða lögð gegn um Berner-
alpana, svonefndu. Göng þessi
verða rúmar átta mílur á lengd og
er kostnaðurinn áætlaður hátt á
átjándu núljón dollara. Búist er
^ð að hægt verði að ljúka við
göngin á hálfu sjötta ári.
Fréttirfrá Islandi.
Akureyri 2. Júní 1906.
Fiskiafli er nokkur kominn fyrir
Ólafsfirði. Hafa menn fengið m:st
300 á skip af stútungi og kóðum,
en stærri fiskur enginn. Ekki er
þetta talinn ágöngufiskur af »ió-
mönnum, en hitt líklegra, að hann
hafi flögrað undan sel, því fisklaust
sé úti fyrir.
Hafnarbryggjan verður að öllum
líkindum ekki fullgerð í sumar, því
efni dður hefir ekki fengist til henn-
ar í vor fyrir það verð sem áæt’.að
var. Bryggjubyggingunni vciður
því að fresta til næsta sumars.
Leikhúsið hefir Sigtr. Jóusson
timburmeistari keypt af Gleðileika-
félaginu fyrir 6,000 kr. Er i ráði að
ritsímastöð verði þar uppi á loftinu,
þar sem bæjarþingstofan er nú enda
er hún hvergi betur sett í bænum.—
I þessu húsi ætti og póststofan að
verða með tímanum. Færi vel 4 þv>.
Veður hefir verið gott þessa sið-
ustu viku og snjó hefir leyst svo aö
öríst má heita á láglendi hér innan
til, en mikil fönn enn í útsv^itum.
Víða liggja þó fannir enn niður
undir sjó og hafa sumir orðið ad
moka hér ofan af görðum sínum úl
þess að geta farið að stinga þá upp.
—I fyrra dag brá snöggvast til
sunnan áttar. 1 gærmorgun þoka,
heiddi þegar á daginn leið og gekx
aftur til suðurs með kveldinu. — I
dag suðaustan þíða. Er vonaudi að
sumarið sé nú loksins komið.
Fellir hefir ekki orðið hér í nær-
sveiitum að því er spurst hefir. AU-
n argir hafa verið aflögu færir og
svc hafa menn víða gefið botn r-
spart til þess að bjarga skepmnn
sínum. Auðvitað er fé sumstaðar
orðið grant og lanmbadauði all-víða,
jaftivel þar sem fé er i góðu standi.
}
Akureyri 9. Júní 1906.
Dáin er hér í þessari viku frú
Helga Helgadóttir, kona Björns
Jónssonar prentara. Banameinið
hjartskjúkdómur.
—Norðurl.
Reykjav. 20. Júní 1906.
Leiðangursljóð nefnist ljóðaflokk-
ur sá, sem séra Valdemar Briem
hefir ort út af mannskaðanum mikla
í vor og eru prentuð í síðasti tbl
Nýja kirkjublaðsins, en sérpretitun
af þeitn seld til ágóða fyrir mann-
skaðasatnskotin .
Það slys varð hér í fyrra dag, sð
16 vetra piltur drukknaði, er hattr.
var að fara í sjó, niður undan 3e!i.
Pilturinn var syndur vel, en hafði
fengið sinardrátt. Hafði verið ó-
hraustur undir. Bróðir hans var með
honum yngri og þróttminni. Hann
gat enga björg veitt.
Reykjav. 23. Júní 1906.
Aflast hefi r fyrirtakst vel í vor
við ísafjarðardjúp, meira en dæmi
eru til síðan mislingavorið (1882).*
Þeir höfðu drýgt skepnufóður með
ýmiskonar fiskifangi, Isfirðirtgar.og
bjargast fyrir það þolanlega, þótt
mjög væru orðnir heytæpir. Nýlega
var farið að fást við stld við Djúp-
ið í dráttarvörpur, og þvi taldar
góðar horíur á, að sumarið verði
aflasælt. — Hlaðafli var á Aust-
fjörðum, er síðast fréttist, einkum á
Seyðisfirði.
Reykjavík, 27. Júní 1906.
Veðrátta er allhagstæö orðin og
hefir verið um tíma fyrir grasvöxt,
enda er hann sagður vonurn framar
og liklegur víða. Þó nijög tæpur á
mýrlendi; mýrar hafa skrælþornað
í hinum óvenjumiklu og langvinnu
þurkum í vor. Náttíall hefir bætt
úr á vallendi. Þar hefir því sprott-
ið furðu fljótt og vel. — Isafold.
Reykjavik, 22. Júní 1906.
Mótorbáta kaupa Vestmanneying-
ar í sumar fyrir 120 þús. kr. Tveim
mótorbátum var haldið út þaðan sið
astliðna vetrarvertíð, og annar
þeirra aflaði um 25 þúsund af væn-
um fiski.
Séra Einar Þórðarson alþingis-
maður er kominn heim til sín aftur
eftir að hafa verið á brjóstveikra-
hæli í Danmörku í vetur. Árangur
hefir að sögn orðið góður.
Jóhannes Jóhannesson sýslumað-
ur er væntanlegur heim aftur síðar
i sumar og látið vel af heilsu hans.
hans.
1
Þorsteinn Jónsson, fyrv. héraðs-
læknir í Vestmannaeyjum er alflutt-
ur hingað til Reykjavíkur. Hann
hafði verið læknir í eyjunum fast að
40 áruni og höfðingi svo mikill þar
að hann var oft nefndur í gamni
„Eyjajarlinn“.
Reykjavik, 6. Júli 1906.
Ungur drengur, eitthvað 8 ára,
Haukur, sonur Ásgeirs Eyþórssonar
kaupmanns, var 29. f. m. á ferð frá
Borgarnesi út á Mýrar í kynnisför.
Hann var bundinn í söðul. Hestur-
inn fældist, söðullinn fór um hrygg
og drengurinn rotaðist til bana, áð-
ur en unt var að hjálpa.—Fjallk.
Reykjavik, 30. Júní 1906.
Laugardaginn 16. þ. m., kl. 8—9
um kveldið, kviknaði í húsi Bjarna
Bárðarsonar i Bolungarvík. í hús-
inu bjó eigandinn uppi á loftinu, en
niðri leigðu önnur hjón. Eldurinn
kviknaði á þann hátt, að Iogi hljóp
niöur í oliuna i steinoliumaskínu
niðri í húsinu. Bjargaðist því það
fólk sem niðri var með góðri lukku.
Uppi var ekki annað fólk, en hjónin
og tvö börn þeirra. Hjónin björg-
uðu sér þegar út með annað barnið,
það eldra, en í ofboðinu sem á þau
kom, urðu þau ekki þess vör aö hitt
væri inni. Þegar þau komu út fóru
þau að svipast eftir þvi. Konan
sneri að vörmu spori inn aftur að
leita þess. En þegar maðurinn kom
að á eftir og ætlaöi inn, hafði eldur-
inn gripið svo um sig, að ófært var
inn. Þegar konan var komin inn
fann hún barnið og lét það út utn
glugga, en i þvi að hún ætlaði að
flcygja sér út á eftir því, fann hún
að gripið var i föt hennar. Var þá
liitt barnið þar komið. Hafði farið
inn á hæla henni. Hún lét það líka
út, en þegar hún ætlaði að fleygja
áér út, festi hún sig á nagla; sló þá
eldinum út um gluggann, og féll hún
þegar í ómegin. Maður hennar kom
þá að og náði henni; var hún þá öll
skaðBrend og var flutt hingað til
Isafjarðar daginn eftir og hefir leg-
ið hér síðan. Maðurinn og börnin
brunnu líka talsvert, en þó eigi
liættulega.— Allir munir, sem í hús-
inu voru, brunnu inni. Húsið var
vátrygt, en þó mjög lágt, en lausa-
fé alt óvátrygt.—Vestri.
Reykjavik, 4. Júlí 1906.
Frá Noregi komu þrír menn á vél-
arbáti til Vestmaiinaeyja 22. f. m.,
voru 10 daga frá Noregi til Seyðis-
fjarðar, en 12 daga frá Seyðisfirði
til eyjanna. Bátinn á Magnús
Þórðarson í Sjólyst í eyjunum.
Fræðimaðurinn Brynjólfur Jóns-
son á Minna-Núpi var í ferð með hr.
Poestion yfir Mosfellsheiði. Hann
datt af baki og meiddist töluvert; ó-
vist var hvort hann hefði viðbeins-
brotnað, en jafnan eru „stirð gam-
alla manna föll“.
Læknirinn á Eyrarbakka, Ásgeir
Blöndal, hefir fengið' lungnatæringu
(í byrjun enn). Hann hefir nú sótt
uin utanfararleyfi til þess að leita
sér Iækningar á brjóstveikrahæli, og
fengið fyrir sig á meðan Guðmund
Tómasson, er tók fyrra hluta burt-
fararprófs í læknaskólanum i vor.
—Lögrétta.
Reykjavík, 30. Júní 1906.
Þetta ár verður sannnefnt slysa-
árið mikla. Með Beskytteren, sem
kont að kveldi 28. þ. m. að austan,
fréttist, að á Seyðisfirði hefði það
slys orðið á Vesta, að tveir menn
slösuðust, er þeir voru að láta mó-
torbát síga fyrir borð: stýrimaður
og timburmaður skipsins. Stýri-
maður misti hendina, og timburmað-
ur stórmeiddist.
Reykjavík, 7. Júli 1906.
Hr. J. C. Poestion var haldið sam-
sæti í heiðurs skyni föstud. 29. Júní
f. m. í Iðnaðarmannahúsinu. Voru
þar fullir 6 tugir manna. Fyrir
minni heiðursgestsins mælti rektor
Stgr. Thorsteinsson á þýzku; en
sungið var kvæði á islenzku eftir
Ben. Gröndal. Poestion svaraði
skálinni og mælti fyrir minni ís-
lands. Magister Ágúst Bjarnason
flutti heiðursgestinum þökk • og
kveðju innar ungu kynslóðar á ís-
landi. Dr. Helgi Pétursson mælti
fyrir minni íslcnzkrar tungu. Báðir
mæltu þeir á þýzka tungu Ágúst og
Helgi, og báðir óviðbúnir, en töluðu
mæta-vel.
Síðan skemtu menn sér með söng
og samræðum. Að síðustu fylgdu
menn heiöursgestinum heini aö bú-
stað hans.
Ur bænum.
Síðan strætisvagnar fóru að
ganga hér um á sunnudögum, hcf-
ir aðsókn gesta að almenna sjúkra
húsinu orðið margfalt meiri en áð-
ur. Svo rnikill hefir fóllésstraum-
urinn orðið þangað af ættingjum
og vinum sjúklinganna, að spítala-
nefndin hefir orðið aö setja sér-
stakar ráðstafanir til að draga svo
úr aðsókninni, að hún yrði veikri
hcilsu sjúklinganna eigi að meini.
—Ákveðið hefir því verið, að Jeyfa
eigi öðrum aðgang að spítalanum
á sunnudögum, en þeim er að-
göngumiða hefðu fengið undan-
farna viku. Enn fremur að tak-
marka að útbýta aðgöngumiðum
nokkuð í samanburði við þá tölu,
sem gestir hafa fengið síðustu
sunnudaga hér á undan, þannig að
aðrir fái cigi inngöngu þar, en
nánustu ættingjar sjúklinganna,
og í þriðja lagi, að engum sé leyft
sunnudaga að koma inn í sjúkra-
húsið, að eins til að skoða það.