Lögberg - 08.11.1906, Qupperneq 1
Ný eldavél.
í haust erum við aö selja nýja stál elda-
vél meö 6 eldholum, á $30.00. Viö hóf
um selt mikiö af þeim og þær reynasl
vel. Komiö og skoöiö þær.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
S38 Main Str. Telephone 339
Yeiðitíminn.
Ætlaröu á veiöar í haust? Ef svo er
þarftu byssu'og skotfæri. Hvorutveggja
fæs* hér fyrir lágt verö. D. B. byssur $10
og þar yfir.^Hlaöin skothylki $1.90 hundr.
Anderson & Thomas,
Hardware & Sporting Goods.
538 Main St. Telephone 339.
19 AR.
Winnipeg, Man., Fimtudaginn, 8. Nóvember
1906.
NR. 45
Fréttir af Bandaríkja
kosningunum.
Hearst fallinn í New York rik-
inu. Republicaninn Charles E.
Hughes valinn rikisstjóri þar, me'ö
því nær fimtiu þúsund atkvæöuni
fram yfir Hearst. — Hver flokk-
urinn veröur liöfleiri í samb/þing.
er enn óvist. Sem stendur hafa af
republicana flokki veriö valdir
hundraö og áttatíu þingmenn en
hundrað og fjörutíu af demokröt-
um. Fregnirnar ókomnar um sex-
tíu og sex kjördæmin.
Greinilegri fréttir viövikjandi
kosningunum veröa aö biöa næsta
blaös.
-----o------
Fréttir.
Símskeyti frá Kaupmannahöfn
skýrir frá Því aö tveimur svensk-
um verkfræðingum hafi fyrir
skemstu hepnast að búa til stein-
olíu úr tjöru með nijög óbrotinni
efnafræðislegri aöferö. Mælt er áð
olíukonungurirun ameríski, John
Rockefeller, hafi stefnt þessum
tveimur mönnum til móts við sig í
Parísarborg. til að semja viö sig
um kaupmála á uppgötvuninni.
Standard olíufélagið í Ohio var
nýlega dæmt í fimm þúsund doll.
sekt fyrir lagbrot viðvíkjandi
starfsemi sinni. Er taliö líklegt, aö
ef fallið heföu á félajið öll sakar-
ákvæöin, sem borin voru á þaö,
mundi sektin hafa orðið eigi
minni en sex miljónir dollara.
í Persíu er nú komin á þing-
bundin einveldisstjórn, með að
„Shahinn“ hefir fyrir skemstu veitt
þjóöinni rétt til aö kjósa sér full-
trúa, er mæti fyrir hennar hönd á
iandsþingi. Fyrsta persneska þjóö-
þingið var sett fyrir litlu síöan af
,.Shahinum“, er flutti þar hásæt-
isræöu eins og lög gera ráð fyrir.
Gat hann þess þar, að um átta ára
bil hefði hann stöðugt verið aö
hugsa um aö veita þjóð sinni áö-
urnefnd réttindi og slaka á ein-
veldisböndunum, þó það heföi ekki
komist í framkvæmd fyr en nú.
[Þjóðþingið kemur saman í höfuð-
borg Persíu, Teheran, og er þjóð-
in sögö mjög fegin stjórnarbreyt-
ingunni, sem þykir mjög nýstár-
leg þar austur frá, því Asíuþjóð-
irnar yfirleitt eiga ekki slíku frelsi
að fagna.
Frétt frá Pétursborg skv-rir frá
stórkostlegu bankaráni sem þar er
nýframið. Svo stóð á að féhiröir
tollskrifstofu einnar þar í borg-
inni hóf um þrú hundruö þús-
und dollara á fjármálasknfstofu
ríkísstjórnarinnar og var á leið
með peningana til skrifstofu sinn-
ar. Ók hann i vagni og fylgdu
vagninu til tryggingar hermenn
tveir. Þegar minst varði réðust 15
byltingamenn á vagninn.Voru það
alt ungir menn, vopnáðir marg-
hleypum og sprengikúlum. Hófu
þeir atlöguna með því aö kasta
einni sprengikúlunni undir vagn-
inn. Flýði þá féhirðirinn en her-
mennirnir héldu vöm uppi gegn
ræningjunum. Vagninn sprakk all-
ur í sundur og tveir ránsmann-
anna létu lífið við þá sprengingu
en fjöldi fólks safnaðist að, baeði j
lögreglttmenn og byltingamenn og
varö þar skæð orusta. Þegarí
rimman stóð sem hæst og ræningj- j
arnir voru aö leggja á flótta, hafði j
kona ein komið hlaupandi út úr
húsi þar i grend og klófest einn
peningaböggulinn, og komist und- j
an meö hann. Telst svo til að feng-
ur hennar hafi numiö tvö hundr.
þús, doll., og búist viö aö hún hafi
verið í vitorði niéð byltingamönn-
unim’ 'imm þeirra voru hand-
tekn' en hinir sluppu undan.
Þær fréttir berast frá Evrópu,
að stórkostlegur skipskaði hafi
orðið í Englandssundi 28. Októ-
ber. Rakst þvzkt flutningaskip, er
var á leið til Miöjarðarhafs, þar
á annaö skip er mönnum er ó-
kunnugt um hvaðan var, og sökk
þýzka skipið samstundis, og fórst
þar skipshöfnin öll tuttugu og þrír
menn.
Hjálpráðisherinn í Boston opn-
aöi til afnota 1. þ. m. stórhýsi eitt
mikið, þar i borginni. í því eru
tvö hundruð áttatiu og sjö her-
bergi og er þetta talið stærsta
gistihús heimsins nú sem stendur.
Gerschunin, rússneski níhilistinn
alræmdi, hefir flúið úr fangavist-
inni i Síberíu, og komist brott
þáðann falinn í tómri vatnstunnu.
Hann hafði veriö dæmdur til lífs-
tíöar fangavinnu í námunum þar
fyrir að vera í vitoröi um morð
innanríkisráðgjafans rússneska,
Sipiaguine, og ýmislegt fleira.
Stendur mörgum stjórnarsinnum
á Rússlandi mikill stuggur af því
að hann er laus oröinn úr fanga-
vistinni, því á sinum tíma var hann
einn hinn áræðnasti og slungnasti
níhilisti er sögur fara af á síðari
tímum.
* Ofviðri mikiö er sagt aö hafi
verið við strendur Miðjarðarhafs
1. þ. m. Getið er um að miklir
skaðar hafi orðið af fþvi í hafnar-
borgum Frakklands, Toulon og
Nice. Rak þar fjölda skipa að
landi og skemdi, en sjór gekk upp
i íbúðarhús og sölubúðir er næst
stóðu ströndinni og gerði mikinn
skaða.
Bóluveiki, sem undanfarið hefir
brytt töluvert á í New Brunswick,
er sagt að sé nú óðum að breiðast
út þar. í Southamton og York
County nú taldir um hundrað bólu-
sjúkir menn, og sjötíu í Kent
Countv.
Hundrað þúsund doll. eigna-
tjón varð af eldi, sem kom upp í
verksmiðju einni í New York 2.
þ. m. og fjöldi fólks lenti þar í
hinn mesta lifsháska.
Fullnaðardómur hefir verið
kveðinn upp, 5. þ. m., yfir Paul
O. Stensland, fyrir fjárdrátt og
skjalafölsun meðan hann var
bankastjóri Milwaukee avs. bank-
ans. Er dómurinn á þá leið, að
Stensland er dæmdur í fangelsis-
vist um óákveðinn tima fyrir glæp-
sinn, en samkvæmt þarlendum
lögum getur sá dómur eigi verið
minni, en eitt ár og eigi farið
fram úr tíu.
Við aukakosninguna sem fram
fór í North Bruce kjördæminu i
Ontario 30. f. m. ldaut þing-
mannsefni frjálslyndaflokksins,
John Tolmie þrjú hundruð og fim-
tíu atkvæði fram yfir gagnsækj-
anda sinn McLellan, conservatív-
ann.
Ameríska konan alkunna,Emma
Goldman í New York, var sett í
fangelsi fyrir skömmu síðan á-
samt mörgum níhilistum öðrum
þar í borginni. Var þeim gefið að
sök að þau æstu fólk til illverka,
og var þetta fólk tekið hóndum á
einum æsingafundinum, 30. f. m.
Á þeim fundi kváðu anarkistar
hafa komist svo að orði. áð drepa
ætti lögregluliðið, því það væri
enn grimmara í Bandarikjunum,
en hermennirnir á Rússlandi.
Þær fréttir bárust frá Zungeru
í Nigeríu 31. f. m., að á franska
hersveit, sextíu manns alls, hefði
ver'ið ráðist seint i Agústmán. síð-
astl. af innfæddum Afrikubúum,
tvö hundruð rnílur norðvestur af
Tcad-vatninu, í Mið-Afríku,
skamt snnnan við eyðimörkina
miklu, og hefði franska hersveit-
in verið gjöreyðilögð og enginn
úr henni komist lifs af.
Nýkomin frétt frá eynni St.
Helena, dánarstað Napóleons
mikla, segir að nú sé evjan i fyrsta
sinn hervörzlulaus, siðan hún
komst undir yfirráð Breta. 1
sparnaðarskyni hefir breska
stjórnin kallað heim setuliðið það-
an, svo eyjan er nú varnarlaus.
Er svo frá skýrt í fréttinni, að í-
búarnir, sem auðvitað eru ekki
nema örfáir, séu mjög óánægðir
yfir brottsending setuliðsins, því
að nokkru levti lifðu þeir á því,
og hafa nú mist eina markaðinn,
sem þar var, fyrir afurðir búa
sinna.
Frægan sigur vann fjárniála-
ráðgjafinn Mr. Fielding við auka-
kosningarnar, sem fram fóru 31.
Okt. síðastl., og fekk hann eitt
þúsund Og sextán atkvæði fram
yfir gagnsækjanda sinn, dr. Wel-
don. Alls greidd full fjögur þús-
und atkvæða. Ætlan manna er að
eigi færri en fimm hundruð con-
servatívar hafi veitt Mr. Fielding
atkvæði við þessar kosningar, og
má af því marka álit hans og vin-
sældir.
Símskeyti frá Neapelborg á ít-
aliu segir að eldfjallið Vesúvíus
haldi enn stöðugt áfram að gjósa.
Næstu tvo dagana áður en það
skeyti var sent hafði óvanalega
m'ikið ofviðri verið á Suður-ítaliu
og bar stormurinn með sér ösku
og eimyrju frá fjallsgnúpnum og
þeytti niður um bygðina. Jukust
gosin og um þær mundir og valt
fram nýtt hraunflóð, er kaffærði
járnbrautir utan í fjallinu, og
spilti bygð og eignum manna.
Jarðskjálftar höfðu og verið tölu-
verðir á ítalíu þessa tvo daga.
------o-------
Argyle-biíar kyeöja FriÖjón
Friöriksson.
Núna um mánaðamótin flutti
Friðjón Friðriksson s'ig með fólk
sitt til Winnipeg frá Glenboro,
eftir 20 ára dvöl þar, og hafði
hann rekið verzlun þar mestallan
þann tima. Hann vann e'ins og
kunnugt er, flestum feðrum fremur
að félagsmálum íslendinga í Ar-
gyle-bygð, og sat auk þess mörg
ár í skólanefnd Glenborobæjar.
Síðastliðin 2 ár veitti hann for-
stöðu islenzka sunnudagsskólan-
um í Glenboro. Er óhætt að segja
að ekki hafa aðrir þótt nýtari og
betri borgarar þar i bæ en hann.
Tvö skilnaðar samsæti voru
honum og fólk'i hans haldin. Hið
fyrra hélt þeim íslenzka fólkið í
Glenboro að kveldi dags 26 Okt.
í lestrarfélagshúsinu, sem bygt var
þar í fyrra haust, og Friðjón átti
góðan þátt í að koma upp. Var
húsið fallega prýtt, og ríkmann-
legur kveldverður á borð borinn,
og voru menn þar saman þangað
til stundu eftir miðnætt'i. — Hitt
samsætið var haldið 30. Okt. eítir
miðjan dag í Good-Templara hús-
inu og stóðu fulltrúar Fríkirkju-
og frelsissafnaðar fyrir því. Voru
þeim hjónum þar afhentir, sem
þakklætistvottur fyrir langa og
góða samvinnu og til minningar
um hina mörgu vini þeirra hér,
tveir vandað'ir stólar. — Á báðum
þessum samkomum voru margar
ræður haldnar. Var þá talað margt
hlýlegt þakkarorð i garð þeirra
hjóna fyrir hina rniklu og góðu
hluttöku þeirra í safnaðar- og fé-
lagsmálum bvgðarinnar, og hina
ljúfmannlegu framkomu þeirra og
hjálpsemi við alla þá mörgu, sem
til þeirra hafa leitað þessi tuttugu
ár.
Skemtilegra og gestrisnara
heimili var hér ekki til, en þeirra;
og rnargur hér finnur til þess, að
ráðhollari og trvggar'i vini en þau
á hann ekki. Blessunaróskir Ar-
eylebúa fvlgja þeim.
F. H.
----o----
Ur bænum.
Munið eftir consertinum i
Fyrstu lút. kirkju kl. 8,30 i kveld,
('fimtudagj.
Þritugasta og fvrsta næstliðins
mánaðar andaðist að 518 McGoe
stræti Arni Niels Kristjánsson
Johnson, þrjátíu og sex ára að
aldri. Hann var síðasta eftirlif-
andi barnið, sem foreldrar hans,
gömlu hjónin Kristján Johnson
Geiteyingur, og Elinborg kona
hans eiga nú á bak að sjá. Árn'i
sálugi lætur eftir sig konu og
fjögur börn. Hann var jarðsung-
inn 3. þ. m., af sér Rúnólfi Mar-
teinssyni.
Halldóra Guðmundsdóttir, kona
Sigurðar Anderson, málara hér í
bænum, sem undanfarið hefir ver-
ið mjög heilsulasin, var 6. þ. m.
skorin upp á. almenna sjúkrahús-
inu, af íslenzku læknunum Björns-
son og Brandsson, kl. tíu árdegis.
Sjúkdómurinn var botnlangar
bólga, og getur bláðið flutt hinum
mörgu vinum, ofannefndra hjóna,
fjær og nær, þær gleðifréttir, að
uppskurðurinn hepnaðist mjög vel,
og konunni liður eftir öllum von-
um. þegar þetta er ritað, (á
þriðjudagskveldý.
Þeim til fróðleiks, sem lífsá-
byrgð hafa í New York Life, er
vert að geta þess, að yfir sjö þús-
undir og fimm hundruð manns
sóttu um lífsábyrgð í félaginu í
síðastliðnum Októbermánúði, og í
sama mánúði greiddu yfir sjötiu
og fimm þúsundir manna iðgjöld
sín. Sýnir þetta það, að áttatíu og
tvær þúsundir manna hafa á ein-
um mánuði lýst trausti sínu á fé-
laginu. Þess má ennfremur geta,
að í þessum sama mánuði borgaði
New York Life lifandi skírteins-
höfum $1,092,202.49 og erfingj-
um 563 látinna sírkteinshafa, $1,-
574,043.19. Af þeim hópi manna
höfðu 46 trygt líf sitt innan eins
árs og nam lífsábyrgð þeirra
$149,745.98. Þessi litli útdráttur
úr skýrslum yfir starf New York
Life á einum einasta mánuði ætti
vissulega í augum allra sann-
gjarnra manna að vera meira en
lítil meðmæli með félaginu og gild
sönnun þess, að með því að
tryggja þar líf sitt velur maður
ekki af verri endanum.
x.
Sækið samkomu ungu stúlkn-
anna í samkomusal Fyrstu lút.
kirkjunnar á þriðjudagskveldið
kemur.
J. A. Blöndal var síðustu viku á
ferð um bvgðir fslendinga vestan
við Manitoba-vatn, í erindum fyr-
ir Lögberg. Hann segir liðan
landa vorra þar góða. Til skamms
tíma hafa þeir að eins stundað
griparækt,, en eru nú margir byrj-
aðir á akuryrkju og hefir hún gef-
ist vel. Mjög mikill skortur er þar
á vatni bæði fyrir menn og skepn-
ur. Nokkrir brunnar hafa verið
boraðir, en þeir hafa reynst frem-
ur illa. Ef nógu djúpt er borað
fæst vfðast nægilegt vatn en .viða
er þáð svo salt að naumast er not-
andi nema fyrir skepnur.
Járnbrautin sem Can. North.
járnbrautaíélagið er að leggja
norður með vatninu frá Delta-
brautinni, legst mjög nálægt bygð-
um íslendinga á Big Point og Big
Grass.
Hr. Böðvar Jónsson á Wild
Oak, P. O., hefir tekið að sér
fyrir fylkisstjórnina að grafa milu
langan vatnsvéitingaskurð nálægt
landi sinu. Er verkið vel á veg
komið nú þegar.
Munið eftir consertinum í
Fvrstu lút kirkju kl. 8,30 í kveld,
ffimtudagj.
Um næstu mánaðamót heldur
kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar sinn
venjulega haust basar í sunnudags-
skólasal kirkjunnar. Safnaðarkon-
ur, giftar- og ógiftar, sem vilja
rétta kvenfélaginu hjálparhönd,
geta það með því að gefa smá-
muni á basarinn. Verða allar slík-
ar gjafir þakklátlega meðteknar.
Mánaðarritið, barnablaðið „Unga
ísland“, hefir nýlega verið sent
Lögbergi, alt frá síðustu áramót-
um. Útgefandi þess og ritstjóri er
nú Einar Gunnarsson cand. phil. í
Reykjavík, sonarsonur Einars Ás-
mundssonar frá Nesi í Höfða-
hverfi.
I blaði þessu er margt, sem
skemtun er að lesa, og mikill fróð-
leikur í fyrir börnin og ungling-
ana, svo og smákvæði öðruhvoru
ýmislegs efnis. Eitt þeirra smá-
kvæða úr Júníblaðinu, eftir Lárus
Sigurjónsson prestaskóla kandí-
dat, ættaðan úr Borgarfirði eystra,
birtum vér hér á öðrum stað í Lög-
bergi, sem dálítið sýnishorn af
ljóðum Lárusar, er Unga ísland
hefir flutt, en hann var ritstjóri
þess til síðustu áramóta, og hefir
Þó ritað ýmislegt í það síðan. Er
Lárus skáld gott. jafn ungur mað-
ur, rúmlega þrítugur.
Unga ísland flytur myndir til
skýringar ýmsu, er það ræðir.
Námfúsir Íslendingar hér vestra
ættu sem flestir að eignast ritið.
AU STURLAND.*
('Brot.ý
Frjálsa, gamla fósturbygð með
fjörð og dali,
himinbláum vafin víði,
verði þér alt til gagns og prýði.
Glóey um þig grænum vefji gróð-
urlinda,
loftgnæfandi láti um tinda
ljósálfana gullhlað binda.
Lifðu heil við unnaranda, elsku
móðir,
hressi og styrki ’hann þig og þína;
þiggðu hjartans kveðju mina!
Núna minnast Norðri og Suðri
norðr í höfum,
sól og nótt und sama trafi 1
sofa rótt á opnu hafi.
Vorið klæðir haga og hæðir hlýj-
um fötum,
lífið græðir lundinn kalinn,
ljósið flæðir yfir dalinn.
Lóur syngja úti’ á engjum eggin
kringum,
undir taka ásar, fellin
álftakvak og spóavellin.
Sóley fífli situr hjá á sama beði,
grundin fangi grösin nærir,
gróðurangan lofti færir. i
Lárus Sigurjónsson.
—Unga Island.
-------o-------
Fréttirfrá Islandi.
Af Vestfjörðum er nýkominn
hingað úr 10 vikna feiðalagi Guð-
jón Guðmundsson ráðanautur. —
Hann fór fyrst Strandasýslu nær
af enda og á„ þá úr Ófeigsfirði yf-
ir á Langadalsströnd.inn fyrir ísa-
fjörð og norður með Djúp’i að vest
an, um alla firðina þar út á Skutuls-
fjörð, þaðan Breiðadalsheiði og
um þvera vestfirðina og út á
Rauðasand, þá suður Barðastrand-
arsýslu endilanga og um Dali.
Áðalaerindið var a’ð undirbúa
búnaðarfélagssaroband fyrir vest-
urkjálkann allan, frá Gilsfirði og
Bitru, allra búnaðarfélaga, sem
þar eru, og að koma upp nýjum
íélögum þar, sem þau eru engin.
Það gekk vel, og á að halda stofn-
unarfund að vori á ísafirði. —
band þetta á að vera með sama
sniði og Austfjarða búnaðaisam-
bandið. Norðurland hefir þess í-
gildi þar sem er Ræktunarfélagið.
Tiðarfar segir hr. G. G. hafi
verið gott í sumar um Vestfiröi, alt
fram undir réttir, að Iagðist i rosa
og rigningar, eins og hér syðra.
Heyskapur í meðallagi. Nýting á-
gæt. Tómar heiðríkjur allan Ág,-
mánuð. Það nær þó ekki til end-
anna beggja á Strandasýslu:
par gengu hafísþokur með vætu-
sudda.
Verkafólksekl* tílfiimaiileg um
heyannir þar vestra sem annars-
stáðar, nema fremur sé, með því
að nú er nýr landvinnuspillir þar
sem eru vélarbátarnir, er ganga til
fiskjar livað helzt um slátfinn og
fólki þykir fýsilegra að sitja í en
að standa við heyskapar stritvinnu,
En mjög reyndist það misráðið í
sumar, því bátarnir öfluðu nauða-
lítið.
KartöflugadSar brugðust mjög í
sumar þar alsstaðar, nema á sjálfri
Barðaströndinni. Eins var um
Dali og Borgarfjörð. ÞVí valda
kuldarnir, ekki sizt hretið mikla
um miðjan Júlimánuð.
Efnahag bænda segir hr .G. G
allgóðan eða sæmilegan yfirleitt í
þessum landsfjórðungi. Þar er og
víðast stundaður sjór með land-
búnaðinum, beinlinis eða óbein-
línis: vinnumenn gerðir út i ver,
þar sem langt er til.
Skepnuhöld höfðu verið góð í
vor þar víðast hvar; lambadauði
enginn. — Sauðfé vænt á hold;
rýrara á ull og mör.
Vélarbát allvænan hafa Kjósar-
sýslubúar haft hér í milliferðum í
sumar. þa* e’r hlutafélag, sem á
hann og heldur honum úti. Bátur-
inn heitir „Búi’. Þeir eru í félags-
stjórn, Jón Jónatansson bústjóri í
Brautarholti, Eggert á Meðalfelli
og Halldór á Álafossi. Báturinn
hefir haft svo mikið að gera i sum-
ar, að nú er verið að hugsa um að
auka hlutaféð og fá sér stærri bát.
Almennur fundur um það í Braut-
arholti 13. þ. m. — Isdfold.
*) Sjá aths. á öðrum stað i bl.