Lögberg - 25.08.1910, Page 2
2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 25. ÁGÚST 1910.
1
Öhegndir glæpir í Banda-
ríkjunum.
Eftir
GEORGE C. HOLT.
hératSsdómara í New Yorfc.
Það er algild meginregla i ver-
aldarsögunni, aö mesta hættam í
lýöveldislöndum sé tilhneiging
fólksins til aö hópa sig saman. og
hefja ofbeldissöm uppjx)t og óróa.
Lýöveldii vort er nú aldar gamalt
og fjóröungi aldar betur. OÞeir
sem stofnuöu þaö voru frábærlega
hygnir stjórnmálamenn. Stjómar-
skipun sú, sem þeir sömdu, hefir
meö réttu veriö lofuö og talin eitt
hiö mesta meistaraverk mannlegra
vitsmuna, sem til er. Lýöveldi
þetta var lítiö, til þess aö gera),
þegar það var stofnaö, en undir
þessari stjómarskipun hefir þaö
vaxiö svo aö það er orðið aö stóru
ríki. Með réttu má um þaö segja,
að þaö hafi orðið vagga margs-
konar menningar og lista, en samt
sem áöur hefir þar ekki hepnast
aö halda við stöðugum og einstak-
legum innanlandsfriði. Bæði til-
hneigingin til skrilsuppþota og ó-
lægndir glæpir hér i landi eru eitt-
hvert mesta þjóöarböl Bandaríkja
manna. Eg ætla að mtnnast hér
stuttlega á hvaö þetta böl er orðið
víðtækt, og hvaða ráð mér sýnast
heppilegust til að ráöa bót á því.
Nú á dögum er oröinn almenn-
ur mjög hér i landi lestur dag-
blaöanna, sem samin eru eftir þess
um tíðaranda. Slíkt átti sér ekki
stað hér fyrrum í nokkru þjóðfé-
lagi, og enn er ekki fullsannað
hvort þessi dagblaðalestur hefir
góð eða ill áhrif á almennniig.
En einn augsýnilegur árangur hef
ir þó af honum orðið. Dagblaða-
lesturinn dregur athygli almenn-
ings þvínær einvörðungu að því
sem gerist á yfidstandandi tíma
eða degi, en dregur athygli hans
frá því sem gerðist i gær eða hinn
daginn. Afleiöingin af þessu verð
ur sú, að flestir stórglæpir, sem
vekja mikla eftirtekt um leið cg
þeir 'komast upp og verið er að
lýsa þeim i blöðumi, gleymst
algerlega rétt eftir að blöðin hætta
aö ræöa þá. Af því að athygli al-
mennings er svo sterklega beint
að hinum daglegu viðburðum,
missa menn algerlega sjónar á
glæpámergðinni, sem framin er nú
a tímum menningarinnar.
Það er ómögulegt að nú í ná-
kvæmar skýrslur um óhegnda
glæpi i þessu landi, en lauslega á-
Ætlun má gera, er sýni hversu víð-
tækt þetta böl er.
Blaöið. Chicago Tribune hefir
um nokkur undanfarin ár birt
skýrslur um dómleysis- aftökur
flynchings) þær, sem framdar
hafa veriö i þessu landi ár hvert.
1 æöi mörg ár var tala þeirra, er
þannig voru af lífi teknit. frá 200
til 300 hvert ár. Síöastliöin fimm
ár hefir dómleysisaftökum stöð-
ugt fækkað. Áriö semi leið voru
þær sagðar 67. Það mun ekki
vera of mikið í lagt þó aö dóm-
levsisaftökur í síðastliðin fjörutíu
ár séu taldar til jafnaöar 150 á ári.
Eftir þeim reikningi heföu þá ver
ið framdar hér í landi 6,000 dónv
leysisaftökur síðastliðin 40 ár.
Tala þeirra sem fást viö slíkar
aftökur eru mjög mismunandi eftir
því hvernig á stendur; stundum
fást viö þetta fáir menn, svo sem
tiu til fimtán, stundum menn svo
hundruðum eða jafnvel þúsundum
skiftir. Lauslega áætlaö mun ó-
liætt að telja svo til, að 50 marms
séu að jafnaði riönir við hverja
dómleysisaftöku. Eftir því hafa
hér um bil 300,000 manns tekið
þátt á lífláti manna án dóms og
laga i Bandarrkjunum siðustu 40
árin. Ef tveir þriðjungar eru
dregnir frá þeirri töhr fyrir þeim
sem látist hafa síðan eöa tekið
þátt í fleiri en einni dómleysisaft.,
þá veröa eftir íoofloo dómleysisr
aftakenda, sem enn eru hér á lífi.
Sérhver maður, sem sjálfviljug-
ur tekur þátt í dómleysisaft., er
sekur um morö. Enginn maður
hefir nokkum tíma verið sakfeldur
morðingi þó að hann hafi verið
viðriöinn dómleysisaftöku. iÞað
er því óhætt að áætla þaö svona
lauslega, aö sem næst 100,000 ó-
hegndir morðingjar þessarar sér-
stöku tegundar hafist við nú sem
stendur í þessu Iandi, flestir í Suðr
urríkjunum.
1 skýrslum verkamála stjómar-
deildarinnar eru talin verkföll og
vinnustöðvanir ('lockouts). Það
sést á síðustu skýrslum sem ná frá
1881—1905, eða 25 um ár, að á
því tímabili hafa orðið 36,757 Verk
föl log 1,564 vinnustöðvanir, alls
38,321 verkamanna róstur ,eða að
jafnaði 1,500 á ári. Eftir þyí hafa
orðið um 60,000 verkföll síðastlið-
in 40 ár.
Sum þessi verkföll hafa staiöið.
stutt yfir og ekkert ofbeldi átt sér
stað í sambandi við þau. Ekki mun
þaö oftalið að segja, aö sjötta
hverju þessu verkfalli hafi verið
samfara ofbeldisverk, er hættu-
legar benjar gerðust af, limlesting
ar og morð.
Sérhver maður, sem tekur vera-
Iegan þátt í likamlegri áráis, sem
framin er í verkfalls uppþoti, og
leiðir til glæpaverks eða morðs,
morðs, er sekur um glæp þann, sem
framinn er. Tala þeirra manna,
er taka þátt í slíkuan verkfalla ó-
eirðum, er mjög mismunandi eins
og þeirra sem riðnir eru við dóm-
leysisaftökur, en það mun alveg ó-
hætt að telja þá 50 að jafnaði í
hverri skæru. Þá mundu 500,000
manna hafa orðið sekir um glæpa-
verk eða morö í verkfalls óeirðum
hér í landi síöastliðin 40 ár. Ef
vér drögum tvo þriðjunga frá
fyrir þeim sem andaöir era og
ikki ber að telja annara hluta
vegna, þá verða nú á lífi 165,000
menn sekir um þessa glæpi. Þess
eru mjög fá dæmi, að nokkur háfi
verið dæmdur sekur um morö, sem
framin hafa verið i verkfalls óeirði-
um hér í landi, og ekki eru þeir
heldur teljandi, sem lögum hefir
verið komið yfir fyrir önnur glæpa
verk sem framin hafa verið i verk-
falladeilunum. Það er víst óþarfi
að telja þá yfir 15,000 sem sa'kfeld
ir hafa verið fyrir þær saldr. Laus-
lega áætlað munu því aö minsta
kosti 150,000 óhegndir moröingjar
og glæpamenn þessarar sérstöku
tegundar, sem engum refsingum
hefir verið komið fram við, og nú
sem stendur eiga ból í þessu landi,
flestir i Norðurríkjunum.
Um nokkur undanfarin ár hefir
brytt á einkennilegum félagsskap í
stórum svæðum í Kentucky, og
sunnan verðum Indiana og Ohio
ríkjum. Slíkir félagsmenn kalla
sig “náttriddara”. Þeir fara um
riðandi í stórum hópum, oftast nær
aö nóttu til, spilla eignum manna,
hafa i frammi líkamlegt ofbeldi og
myrða menn oftlega. Þessir menn
eru ekki ræningjar, eftir því sem
venjulega er kallað; flestallir eru
þeir úr þeim flokki manna, sem
venjulega mundu taldir heiðarlegir
borgarar með óflekkuðu mannorði.
Markmið þeirra er að halda baðm-
ull og tóbaki í háu verði á þann
hátt að koma í veg fyrir að mjög
mikið sé ræktað af j>essum vanv
ingi. Til þess að hafa sitt fram
spilla þeir bæði baðmullar og tq-
baksbirgðum, þegar meir hefir
verið yrkt en náttridduranum þyk-
ir hæfilegt, og meiða eða lífláta þá
sem ræktað hafa .
Að því er eg veit bezt hefir að
svo komnu enginn náttriddari ver-
ið sakfeldur um nokkurn glæp.
Ríkisstjórinn í Illinois sagöi í
fyrra í boðskap sinum til þingsins,
að i suðurhluta Indianaríkis væri
flokkdrættir með svo miklium atv
arkista blæ, af völdum náttriddara,
að mesti geigur væri í allri alþýðu,
en að ríkisstjórnin væri ráðalaus
að bæta úr þessu böli, nema sérstök
lög væru samin, sem heimiluðu
henni það. Af því aö faæði baðrrv
ull og tóbak er nú í geypiverði hef-
ir þetta áriö orðið nokkitrt hlé á
ofbeldisverkum náttriddara. Það
virðist samt ekki ósennilegt, að
þessum brögöum verði beitt til að
halda viö háu vöruverði hér eftir
í sumum hlutum þessa lands, þegar
aðrar jarðarafurðir era aö lækfca
í veröi.
Fjölmörg manndráp hafa verið
framin hér í landi um nokkur síð-
astliðin ár, sem hingað til hafa að
mestxi eða öllu leyti veriö framin
af ítölskum glæpamönnum, en
fyrir orðið þjóðbræður þeirra heið
virðir. Þessir glæpamenn eru jafn-
aðarlegast kallaðir Svarthandar-
morðingjar. Þeir byrja á því að
skrifa þeim, sem þeir ætla að ráð-
ast á, og heimta fé af þeim, og
undit þau bréf eru skrifaðir með-
limir Svarthandarfélagsins. Ef féð
er ekki greitt, þá er sá eða sá drep-
inn, sem féð er af krafisf, eða
heimili þeirra sprengt í loft upp
eða starfsstofur. Oft hefir það og
komið fyrir að menn hafa verið
drepnir við að komast fyrir um
þessa morðingjá, eða af því aö
þeir hafa orðið einhvers áskynja,
sem morðingjamir héldu aö gæti
leitt til að koma sér undir refsing
laganna . Nokkrir menn hafa ver-
ið dæmdir sekir fyrir að þröngva
öðrum þannig til fjár; en ekki veit
eg til þess að nokkur maður hafi
verjð dæmdúr sekur hér í landi um
morö í þessu sambandi. Allir It-
alir, sem hér eiga heima, era fullir
uggs og kviða yfir þessum ósköp-
um, því að bófamir eru alt áf að
verða áleitnari og djarfari, og öll
eyktamörk benda til þess, að ekki
Jiði á löngu áður sömu aöferðinni
verði beitt af glæpamönnum af
vora, Ikjýni, og fytrir verði allra
þjóða menn hérlendir eigi siður en
útlendir.
Á síðustu árum hefir komið upp
ein'kennileg tegund óhegndra glæpa
vegna hins purkunarlausa faifreiða-
aksturs. Mörg hundruð manna hafa
verið drepnir og mörg þúsund
meiddir á þann hátt. Engar refs-
íngar hafa komið fyrir þetta, nema
lítilfjörlegar fjársektir, eða stöku
sinnum stutt fangelsisvist. Venju-
lega hafa ekki verið lagðar hærri
sektir en 5 til 10 dollarar á eigend-
ur bifreiðanna, en bifreiðarnar
kosta sumar um 5,000 dollara og
hjólgjörð á þær 75 dollara. Lowell
sagði í “Bigelow Papers” að “’Nine
pence a day for killin’ folks comes
kind o’ low fer murder”; sektirnar
sem bifreiðaeigendur i Bandaríkj-
unum' eru látnir greiða fyrir þess
kyns “sport” eru álíka lítilfjörleg-
ar.
Aldrei hafa ofbeldisfullir glæpir
verið jafntíðir hér í landi eins og
á síðastliðnum árum, þar sem þétt
býlið er mest. Lítum t. a. m. á íbúa
New York og þar í grendinni. Þar
hafa verið framin morð, meiðing-
ar, veittir áverkar með vopnum,
sprengingar gerðar, þjófnaður, og
rán, kveikt í húsum, einkum i
marghýstum leigubyggingum, kon-
ur veriö skotnar af eiginmönnum
sirvum dra'knum ,og s.túlkur af
vonbiðlum sínum, illa innrættum,
þegar þeim hefir verið vísað frá.
I stuttu máli hverskonar ofbeldis-
glæpir, sem nöfnum tjáir að nefna
hafa verið framdir i New York-
borg og i nágrenni við hana, og
miklu tíðara en áður. Vitaskuld
hefir sumum glæpamönnunrun ver-
ið refsað. F.n langt um fleiri eru
hinir illræðismennirnir, sem aldrei
hafa verið fangelsaðir. Mörgum
þeirra, sem hafa verið teknir fastir,
hefir lögreglan aftur slept, þrátt
fyrir það, þó að skýrar sannanir
hafi komið fram um sekt þeirra og
þess kyns óhegndir glæpir era tald-
ir allra tíðastir í flestum stórborg-
unum hér í landi.
Sú spuming liggur þá að sjálf-
sögðu fyrir, hvað' gera skuli til
þess að ráða bót á slikum óskunda
og óreglu í amerísku þjóðlifi.
í fyrsta lagi ætti að lögbanna
mönnum að bera á sér þau tól, sem
þessir glæpir eru unnir meði. Hrið-
skotaskammbyssur eru mesta þarf-
leysisþing í hinum siðaða heimi.
Hvaða glæpamaður sem er .vitfirr.
ingar og illmenni geta 'haft þær i
fóram sínum. Nítján afbeldisglæp-
ir af hverjum tuttugu eru framdir
með hríðskota skammbyssum.
Notkun allra skotvopna hefir i
för með sér svo hryllilegt tjón að
engum ætti að vera Ieyft að brúka
þau, nema i ítrustu lífsnauðsvn til
sjálfsvarnar. Áður en skammbyss
an var fundin upp og farið að nota
hana alment, datt engum í faug að
nauðsynlegt væri að bera sli'kt vopn
á sér, jafn hroðalegt og Iiættulegt
og það er. Það var ekki fyr en
mönnum datt í hug aö smiöa þess-
ar litlu byssur, að mönnum tókst
að bera á sér án þess að ó breri
þessi voðalegu vopn. Engum manni
ætti að vera leyft að gapga með
slik drápsverkfæri vegna þess hve
mikil og sifeld hætta getur á þvi
veriö að þau verði brúkuð til ills.
Hvar sem menn hittast getur alt af
viljaö svo til, að þeir lendi i stælur,
og áöur en skammbyssan va.r fund-
in upp og mönnum lenti svo saman
að þeir gátu ekki stilt skap sitt, þá
var líkamleg árás hafin með þvi
að slá mótstöðumanninn hnefahögg
eða þá með barefli, og i vertsa lagi
að veita honum tilræði með hnífi
eða sverði. Jafnvel þó gripiö væri
til hnifsins eða sverðsins var samt
möguleiki til þess að sá er tilræði
var veitt kæmist undán heill á húfi
og i flestum skæram, sem þannig
urðu, kom það sjaldnast fyrir að
menn örkumluðust hryllilega eða
særðust til ólífis. En hvenær seni
gripið er til skammbyssu og henni
miðáð á mann þá er hætta altaf vis,
og þess vegna ætti notkun slíkra
mannhættuverkfæra að vera bundin
ströngu eftirliti af hálfu hins op-
inbera. Það vill oft til, að bæði
'konur og börn eru skotin óvart með
skammbyssum, sem liggja á glám-
bekk í húsum manna. Venjuleg
afturhlæð byssa er miklu öraggara
vopn, og miklu betri til varnar, ef
á annað borð er nauðsynlegt að
hafa vopn á faeimilinu í því skyni.
Það er mjög mikil hætta á því að
menn missi marks með skamm-
byssuskoti nema á afar skömmu
færi. Afturhlæð byssa er miklu
vissari ef skotið er með .henni á
þjóf eða ræningja á 100 til 300
feta færi. Hún dreifir skoti svo
vel á því færi að varla. er hætta á
að bófinn sleppi óiskaddur, og
han náist áður han nkomist langt
burtu, en maður þarf þó ekki að
hafa samvizku af því að hafa
skotið á manninn ,til að særa hann
hættulega, eða ráða honum bana.
í sumum ríkjum og mörgum hin-
um stærri bæjum er lögbannað
að bera á sét vopn, innan. klæða
og verða menn að útvega sér leyfi
til að fá að bera á sér skamm-
byssur. En það liggur ekki við
að þessi lög séu neitt svipað því
almenn. Þeirra er ekki gætt til-
hlýðilega, né refsað fyrir brot
gegn þeim með hæfilega háum
sektum, og því liöið um þau hirt
viðast hvar í þessu landi. Að
minni hyggju mundi það vera bein
línis rétt af stjórninni að banna
það, að nokkur skammbyssa væri
búin til eða seld hér i landi nema
í byssusmiðjum ríkisins til afnota
fyrir herliðið og lögregluna. Það
getur verið að slík lög væru ó-
framkvæmanleg; en þaðl ætti að
vera hægt að fá samþykt lög, er
mæli svo fyrir, að allir þeir, sem
faúa til eða selja eða kaupa skamm
byssur, skuli skyldir að útvega
sér leyfi til þess hjá nefnd er
kosin sé í því skyni, og beri ábyrgð
á gerðum sínum1. Eins og nú er
ástatt, getur hver sem vill og tei-
ur sér það hagkvæmt, byrjað á
skambyssugerð. Skammbyssur eru
selda,r hverjum sem um biður. I
sérhverri borg eru búöir þar sem
hver er vill getur keypt sér skamm
byssu hvenær sem honum dettur i
hug, og allVíða eru þær svo ódýr-
ar að jafnvel þeir, sem allra fátæk
astir era, geta eignast þær. Öll-
um, sem gefa sig við að selja
skambyssur, ætti að vera gert að
skyldu að útvega sér leyfi til þess.
Ennfremur ætti sá byssukaup-
maður, að sæta þungri ábyrgð, sem
leyfði sér að selja þeim manni
skammbyssu, er ekki hefði ýtveg-
að sér leyfi til kaupsins. Það er
óttalegt til þess að vita, að hvaða
villingur sem er, hvaða glæpa-
maður sem er, hvaðá bófi, rifrild-
isseggur og illmenni sem er, hvaða
glæphneigður unglingur sem er,
hvaða drykkjurútur sem er, og þó
hann sé þektur að því að misþyrma
konunni sinni, skuli geta keypt sér
slíkt voðaverkfæri á hverju götu-
horni, án nokkurrar hindrunar af
hálfu laganna eða hins opinbera.
Það er sorglegt til þess að vita
hve mörg þúsund kvenna og barna
sem búa hér i landi, lifa í stöðug-
um ótta við það, að druknir eig-
inmenn eða feðvir eða hálfvitskert-
ir bræður eða ættingjar myrði þau.
Og hversu margir eru ekki þeir
menn, er eiga í erjum við, aöra,
eins og ekki er tiltökumál í stóru
pjóðfélagi ’og öldungis vítalaust,
sem ganga þó srhræddir um líf sitt
og geta við því búist að vera skotn
ir til bana sitjandi viö skrifborð
eða á gangi úti á götu? Ekki
líður svo nokkur dagur að blöðin
segi ekki frá hryllilegum sögum
af því hversu menn hafa verið
skotnir til bana með skammbyss-
um. Þ'ær sögur eru af mönnum,
sem skotnir hafa verið út af smá-
vægilegu missætti; þær eru af
konum, sem eiginmenn hafa skot-
ið í afbrýöisæði; þær era af utig-
ura stúlkum, sem skotnar hafa ver
ið af ungum illræðismönnum, sem
þær hafa vísað á bug; þær eru af
börnum, sem vora að leika sér éti
á götunni, en vitskertir menn
skutu til bana rétt að gamni ínu,
þær era af lögregluþjóinum, sem
vora skotnir til dauðs við að koma
í veg fyrir þjófnað eða1 önnur
glæpaverk; þær era af heiðarleg-
um ítölum, sem Svarthandarmenn
hafa skotið til bana af því að þeir
vildu ekki verða við fjárútlátum.
I stuttu máli, sá flokkur þjóðfé-
lagsins, sem er heiðarlegur og sið-
ferðisgóður, gengur í stöðugum
ugg og óróa vegna þess, hvernig
sá hluti þjóðféUagsins, sem verst
ÍHE DOMINION BANK
á hornÍDu á|Notre Dame ogNena St.
Greiddur höfuðstóll $4,000,000
Varasjóöir $5,400,000
Sérstakur gaumur gefinn
SPARISJOÐSDEILDINNI
Vextir af innlögum ’borgaöir tvisvar á ári.
H. A. BRIGHT, ráðsni.
J, H, CARSON,
ManufacMtrer of
ARTIFICIAL LIMBS, ORTHO-
PEDIC AFPLIANCES, Trusses.
Phone 3425
54 Kina St. WINNIPEg
A. S. BABIIAL,
selui
Granite
Legsteina
alls konar stærðir.
Þeir sem ætla sér að kaipa
LEGSTEINA geta því fengið þð
með mjög rýmilegu verði og ættu
að senda pantanir jei.. fyio. til
A. S. BARDAL
121 Nena St.,
314 McDermot Ave. — Phone 4584
á milli Princess
& Adelaide Sts.
3~ke City Xiquor Xore
IHeildsala á
VINUM, VTNANDA, KRYDDVINUM,;
VINDLUM og TuBAKI.
Pöntunum til heimabrúkunar sérstakur
gaumur gefinn.
Graham <fb Co.
BJÓRINN
sem alt af er heilnæmur og
óviðjafnanlega bragð-góður.
Drewry’s
Red wod
Lager
Gerður úr malti og humlum,
að gömlurn og góðum sið.
ReyniÖ hann.
E. L. DREWRY
Manufacturer, Winnipeg.
——1 II li li
PELESIEfí & SON.
721 Furby St.
Þegar yöur vantar góBan og heiinæman
dryk':, þá fáið hann hjá oss.
Lagrina Bjór Port«r og ailartegundi r
svaladrykkja. Öllum pontunum nákvæm-
ur gaumur gefinn.
er siöaíur ,og glæpamennimir
brúka skammbysuna. Það er ekk-
ert vit í þvi að ’heiðvirðir og vel
siðaðir borgarar og mikill meiri
hluti þjóðarinnar, sikuli líða það,
að þetta hryllilega þjóðarmein
haldist lengur við.
Sömu tálmanir ætti að leggja við
notkun annara mannhættulegra
verkfæra og efna, sérstakleg3
sprengiefna, dýnamits og nitro-
glycerine. Nú sem stendur getur
'hver er vill keypt það, nær sem
vera skal. Þ.etta efni er nauðsyn-
legt við byggingar og ýmiskonar
verkleg fyrirtæki, en það mundi
verða vandalaust fyrir sérhvern
heiðvirðan verkstjóra eða bygg-
ingameistara að öðlast leyfi af
hálfu hins opinbera til að, fá dyna-
mít keypt til slíkra hluta, þó að
sala þess væri annars lögbönnum.
Og það ætti ekki að vera leyfilegt
að selja það til neins annars. Það
ætti að vera krafist af hverjum
þeim er biður um þetta hættulega
efni til kaups, að hann, skýri íiá
til hvers hann ætli að nota það, og
eins að hann útvegi sér leyfi til að
fá að kaupa það, og þunga refs-
('Framh. á 3. bls.J
| inos. n ejotissosl
) íslenzkui lögfræBingur ♦
X og málafærslumaður. £
® Skrifstofa:—Room 33 Canada Life ®
Z Block, S-A. horni Portage og Main. X
í Áritun: P. O. Box 1056.
Talsími 423. Winnipeg.
Dr. B. J.BRANDSON
Office: 620 McDermott Ave.
Teiephone 8».
Office-Tímar: 3—4 og 7 — 8 e. h.
Heimili: 620 McDermot Ave.
Teeephone 4000.
Winnipeg, Man.
B00000€<(000«0<!<;*«í«ic CCCC<
Dr. O. BJORNSON
Office: 620 McDermott Ave.
TELEEHONEi 89.
Office-tímar: 1:30—3 og 7—8 e. h.
Heimili: 620 McDermot Ave.
TTeIíEPhoivei 4300.
« Winnipeg, Man. •>
1 Dr. W. J. MacTAVISH I
Office 724J A'argent Ave.
Telephone Yherbr. 940.
I 10-12 f. m.
Office tfmar
3-5 e. m.
( 7-9 e. m.
— Heimili 467 Toronto Street _
WINNIPEG
£9 * 9&9Sfös,9&9&9S/9&9A
*. Dr. I. M. CLEGHORN, M. D.
J? íwknir og yfirsetumaOur.
•) Hefir sjálfur umsjón á öilum
% meöulum. g
•) ELIZAIIETH STKEET, %
BALDUR — — MANITOBA. |j
P. S. íslenzkur túlkur við hend-
(• ina hvenær sem þörf gerist. $
9S9S. 9S9S9SS.9S9S.9S.9S, 9S9S0»(i
0
JÉk. JÉIi Jlk. AUc.jÉk.IÉÉ »«>. m Bk gfc íÉh
| Dr. Raymond Brown, í
* Sérfræðingur í augna-eyra-nef- og p
i| háls-sjúkdómum. k
326 Somerset Bldg. fr
li Talsími 7262 jk
^ Cor. Donald & Portage Ave. fc
Heima kl. io—i og 3—6. *
GfíAY &JOHNSON
Gera við og fóðra Stóla og Sofa
Sauma og leggja gólfdúka
Shirtwaist Boxes og legubekkir.
589 Portage Ave., Tals. Main 5738
A. S. Bardal
I 2 I NENA STREET,
selur líkkistur og annast
jm útfarir. Allur útbún-
a8ur sá bezti. Ennfrem- '
ur selur hann allskonar
minnisvaröa og legsteina
Teleplioxie 3o6
J. G. SNŒDAL
TANNLŒKNIR.
ENDERTON BUILDNG,
Portage Ave., Cor. Hargrave St.
Suite 313. Tals. main 5302.
SUM
VEGGJA-ALMANÖK
eru mjög faileg. En falleirri eru þau (
UMGJÖRÐ
Vér höfum ódýrustu og beztu myndaramma
í bænum.
Winnipeg Picture Frame Factor;
Vér sækjum og skilum myndunum.
_PhopeNlain228^_- 117 Nena Stree
AUGLYSING.
Ef þér þurfiO aO senda peninga til ía
lands, Bandarfkjanna eOa til einhverra
staOa innan Canada þá notiö Dominion Ex-
press Company's Money Orders, útlendter
ávísanir eöa póstsendingar.
LÁG IÐGJÖLD.
AOal skrifsofa
212>214 Bannatvne Ave.
Bulman Block
Skrifstofur vfösvegar nn borgina, og
öllum borgum og þorpum víösvegar uro
landiO meöfram Can. Pac. Járnbrautinni.