Lögberg


Lögberg - 02.10.1913, Qupperneq 1

Lögberg - 02.10.1913, Qupperneq 1
Pegar nota þarf LUMBER Þá REYNIÐ THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD. WINNIPEG, MAN. Furu Hurdir, Furu Finish Vér höfum birgðirnar THE EMPIRE SASH & DOOR CO.. LTD. WINNIPEG, MAN. 26. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 2. OKTÖBER 1913 NÚMER 40 Samband gegn Grikkj- um. Þiess var, getiö í síöasta blaSi ab Búlgarar og Tyrkir væru ásáttir orönir. Nú er haft eftir sendi- herra nokkrum í Miklagaröi, aö mjög líklegt sé, aö bandalag og samningar séu á komnir þeirra á meðal, að ráðast á Grikki, svo framarlega, sem hinir síöarnefndu verði ekki við kröfum þeirra. Blað Tyrkja stjórnar flytur ávæning af þessu, en Savoff, hinn trægi hers- höfðingi Búlgara og sendimaður þeirra til Miklagarðs, vildi hvorki segja af né á um hvort satt væri. Hver veit nema bráðlega logi upp aftur á Balkanskaga. Albania og Servia eru farnar á stað og má vel vera að fleiri komi á eftir. Balk- anþjóðirnar eru svo harðar og her- skáar, þar hjá grimmar og ótrvgg- ar, að vel má vera, að orrahríð þeirra hefjist á ný áður langt um líður. Varð ánœgður með greifa. — Auðugur klæðasali í Nevv York átti dóttur unga og fríða. Henni kyntist ungur piltur, ljóm- andi fallegur, lokkaprúður, dökk- eygur og vel vaxinn. Stúlkan feldi strax hug til hans og hann til hennar, en með þvi að pilturinn var katólskur en klæðasalinn Júða ættar, þá aftók hinn síðarnefndi að samþykkja ráðahaginn. En unga parið lét það ekki á sig festa, held- ur giftust þau einn góðan veður- dag og fóru að búa. Eftir viku- tíma kom Júðinn til dóttur sinnar, var þá blíður og sagði henni að amma hennar vildi finna hana, og keyrði hana í bifreið heim til sín, en þegar þar kom, lokaði hann hana inni og vildi með engu móti sleppa henni. “Þú ert ekki ennþá 19 ára rýjan mín’’, sagöi hann, “og ekki undan föðuraganum enn. Bíddu þangað til þú verður mynd- ug!” Þegar ungi fcóndinn kom heim til sín um kveldið af skrif- stofu sinni, fullur elsku og til- hlökkunar, þá greip hann í tómt; heimilið var snautt og konulaust. Hann fór hamslaus að leita, áttaði sig þó fljótt á því, hvar hún væri niður komin, stökk til dómara og kærði tengdaföður sinn um konu- rán. Varð þar mikil deila. Loks- ins varð ungi bóndinn að segja frá ætt sinni og uppruna, en það var eitt, sem tengdafaðir hans hafði á móti honum, að hann hafði lítil sem engin deili sagt af sér. Kom þá upp úr kafinu, að hann var ítalskur greifi, er fór til New York í erindagerðum fyrir félag nokk- urt, fyrir afarmikið gjald. Skifti nú um hljóð í strokknum. J;úðinn tók í hönd dóttur sinnar og leiddi hana til ektamannsins, tók þau síðan fagnandi í faðm sinn. Lauk svo því æfintýri með gleöi og góð- um fagnaði. Tókst ekki að hengja sig. — Su'ður i Philadelphia var kona nokkur staðin að hnupli í búð, var sett í hald og beið dóms. Móðir hennar kom til hennar til viðtals og skömmu eftir að hún var farin tók konan af sér beltið og snéri að halsi sér; fangavörð- ur heyrði korra í henni og fór inn í klefa hennar og tók beltið af henni. Ekki mjög löngu seinna heyrðist í henni á ný og er að var gáð, hafði hún snúið treyju sinni um hálsinn og fest henni með ein- hverju móti; var konan helblá í framan og meðvitundarlaus er hún var skorin niður. Hún vildi ekk- ert segja um hagi sína, en lögregl- an komst að því, a'ð hún hafði ver- ið gift aðeins í þrjár vikur; hún var vel búin, ung og fríð og bar á sér gullskart til eitt þúsund dala. Má af slíku sjá, að m’argur freist- ast, án þess þörfin knýi hann. — Þá daufustu af sinum mörgu daufu ræðum hélt ráðgjafi Borden fyrir skömmu í Halifax. Hann mintist þar ekki einu orði á loforð sín fyrir kosningarnar 19x1, held- ur var aðalefni ræðu hans, að segja frá, að greiðari póstgöngur milli Canada og Vestindia mundi kom- ast á í þessum mánuði. Hverjum skyldi ekki standa á sama? Fari hann vel. Sá af ráðgjöfum Bordens, sem einna lakast hefir gefizt, er verka- rnála ráðgjafinn T. W. Crothers. Að vísu var það vandaverk, að setjast í sæti Hon. Mackenzie King’s sem því embætti gegndi næst á undan, með mikilli snild. Eigi að síður er það almannaróm- ur að Mr. Crothers hafi tekist að stjórna embætti sinu eins klaufa- lega og frekast var unt. Einkan- lega er það landfrægt, hversu stak- lega óeðlilega honurn hefir farizt í deilum verkamanna við auðfélög- in. Seinasta dæmið gerðist vestúr á strönd. Þegar deilan hófst þar milli námumanna og námueiganda, sem voru Mackenzie og Mann, þá hirti hann ekki um eða jafnvel neitaði að gera sitt til að miðla málum, og þegar alt fór í bál og brand, svo að eignum og lífi var ekki óhætt, þá setur hann félaga sinn i lögmanns störfum til að sjá hvernig gengur — fyrir há laun úr landssjóði jvitanlega, en fer sjálfur heirn til Englands að skemta sér. Á fulltrúa fundi verkamanna þessa lánds, kom fram svo megn óánægja með þenn- an ráðgjafa, að stjórnin varð smeyk og er nú farin að útvega sér annan mann í staðinn. Mr. Croth- ers kvað eiga aö verða dómari. Hvort senr sú staða lætur honum vel eða ekki, þá er það áreiðanlegt, að í þá stöðu sem hann nú gegnir er hann alls ekki hæfur. Skólafréttir. Hvernig lizt íslenzkum almenn- irgi hér vestra á skólahugmyndina ? Eftir því hefi eg verið að komast. Tvo opinbera málfundi á virkum dögum hefi eg\haft með mönnum um skólann, fyrri fundinn í Sel- kirk (25. Sept.J, hinn, siðari á Gimli daginn eftir. Á báðum stöðum voru umræður, nokkrir nienn tóku til máls og létu vel yf- ir skólahugmyndinni, sérstaklega yfir þeirri deildinni, sem vill veita almenna fræðslu. Sú deild hefir fengið mest hrós eftir því sem eg veit. Menn sem eg hefi hitt) á ýmsum stöðum hafa minst á þá deild og talið hana mjög góða. En þá er fyrir almenning að nota hana. • Fyrstu nemendur á skóla Vestur-íslendinga. hverjir, hvað rnargir vilja vera í þeim hóp? Um að gera aö hópurinn sé stór. Hlut- taka almennings í þessu máli er alls ekki æskileg nema hver ein- asta islenzk bygð í nærliggjandi ríkjum sendi að minsta kosti einn nemanda. Þeir, sem kenna við þennan skóla verða ekki ánægðir með það eingöngu að draga kaup sitt úr skólasjóði. Þeír verða ekki ánægðir nema þeir fái stóran hóp af nemendum. Sumir ritstjórar blaöanna hafa mælt sérstaklega með fyrirtæki þessu. Enginn hefir tekið til máls opinberlega á móti því. Sumir eru víst tæplega farnir að trúa því að skólinn sé fyrir alvöru að komast á fót. En með drottins hjálp byrjar skólinn á tilteknum tima. Mjög áríðandi er að allir nemend- ur verði komnir fyrsta kensludag- inn. Það er mánudaginn 3. Nóv. En tekið verður á móti þeim sem innritast i skólann laugardaginn 1. Nóv. Ef allir eru komnir í tíma og vel er haldið áfram í sex mán- uði, mega nemendur vera vissir um góðan árangur af vetrarnám- inu. Winnipeg, 30 September, 1913. R. Marteinsson, 493 Lipton St. Oargadýr leggjast á búfé. — í einu fylki í Austúrriki eru há fjöll og stórir skógar fyrir of- an mannabygð. f því fjalllendi hafa bygðarmenn smala á sumrum. Nú er þar kotninn vogestur í garð, Ijón með tveim ungum, hýenur margar og úlfar, og leggjast þessi villidýr á búsmalann. Þáu hafa drepið yfir 200 nautgripi og 400 kindur og þegar lögreglumaður fór á þær slóðir til rannsóknar, þá réðust þau á hann og drápu. Villi- dýr þessi höfðu sloppið úr dýra- garði í borg nokkurri í Austurríki. Hvaðanæía. — Kona dó á Englandi nýlega, sem hafði fyrir atvinnu að skrifa í blöð. f erfðaskrá sinni mælti hún svo fyrir, að bóndi hennar skyldi fá einn dollar eftir sig, “en ástæðuna veit hann sjálfur. Hann hefir orðið mér til harma og ógæfu og einskis annars.” Hún arfleiddi vinafólk sitt að öllum eigunum, og lagði svo fyrir, að föður sínum skyldi gefa 50 dala gullhring til minja. — Svo er sagt, að Dr. Sun Yat Sen sé nú staddur í British Colum- bia og fari huldu höfði, með því að Kinverjar hér í landi hafa betri hug til forsetans Yuan Shi Kai’s heldur en hans. Missögn mun það vera, að fé sé lagt til höfuðs hon- um af Kína stjórn. — Hansa bankanum í Hamburg á Þýzkalandi var lokað um nokkra daga nýverið. Tveir af stjórnend- um bankans höfðu misfarið með fé hans, og mun sú upphæð nema 775 þúsund dölum, er bankinn tap- aði við óráðvendni þeirra. — f Neapel á ítalíu er geymt storknað blóð þess dýrlings, sem kallast hinn heilagi Jannarius. Dagur hans er helgur haldinn á hverju ári með mikilli viðhöfn, með því að hann er verndar dýrð- lingur borgarinnar og gefur merki eða spásögn, sem borgarbúum er mikið áhugamál. Það er í því falið, af ef blóð dýrðlingsins — sem er rautt duft í gulli lögðu glerskrini verður að legi og byrjar að vella' og sjóða, þá tákn ar það, að engin stórslys henda borgina og sérstaklega verður hún þá laus við skakkafall af völdum eldfjallsins Vesuviusar. Ártíð dýrlings þessa var í fyrra mánuði, og sá þá fjöldi rnanns “jarteikn” þessa verða í einni kirkju borgar- innar. Söfnuðurinn klappaði lof í lofa og kallaði hástöfum af gleði, en kirkjuklukkum var hringt um alla borgina. Kraftaverkanna öld er svo sem ekki fyrir bí meðal þcirra katólsku. — Stórhöfðingjar á Bretlandi eru farnir að selja sínar viðu lendur; hertoginn af Cranton hef- ir auglýst allar landeignir sínar til sölu, nema það sem hann á í Nor- folk og hertoginn af Newcastle hefir selt jarðir fyrir meir en h'álfa miljón dala. — Canadian Manufacturers Association, eða félag verksmiðju- eigenda i Canada, hélt fund nýlega í Halifax. Þeir eru aðalmennirn- ir í þvi, að halda tollum á iðnaðar varningi eins háum og mögulegt er, og þeir lögðu einna drýgstan skerf til kosninga sigurs conserva- tive við kosningarnar síðustu. Það er því engin furða þó að Mr. Borden þyrfti að koma á fund þeirra og gratúlera þeim og sjálf- um sér. — Suður í Mississippi ríki urðu tveir menn ósáttir út af viðskift- um; annar var viðarsali, hinn læknir og þingmaður i öldunga- deild ríkisþings. Þeirra deilu lauk svo, að viðarsalinn greip öxi og hjó til þingmannsins, en þing- maðurinn tók skambyssu og skaut á hinn. Stóð öxin í heila læknisins þegar að var komið, en viðarsalinn var skotinn gegnum hjartað og lágu þeir dauðir hvor við annars hliö. — Fundur stóð í Wiuuipeg und- anfarna viku með því fólki, sem starfar að og stendur fyrir alls- konar líknar og umbóta verkum meðal þeirra sem fátækir eru og varla geta séð sjálfum sér far- borða, og sérstaklega barnanna. Af því fólki lét einna mest til sín taka á fundinum, Miss Anna Neufeld,, sú er mest stendur fyrir slikum hlutum í Toronto borg. Hún mælti á þá leið, sem frægt er orðið, og öll blöð hafa skýrt frá: “ ‘Social Service’ er ekki hentugt starf fyrir meyjar í sárum eða ekkjur í sorg, er snúa sér að því í því skyni að gleyma hörmum sín- um. Prestar kunna Mtið sem ekk- ert til þeirra hluta. Þeir halda að þeir séu færir i þann sjó, en að setja þá í þann starfa er álíka og að setja þá yfir spítala af því að þeir séu vænir menn. f kirkjun- um er alla tíð verið að tala um hvað gera beri í því skyni, en úr framkvæmdunum verður lítiö sem ekkert. Kirkjurnar eru lokaðar alla vikuna, sunnudaganna á milli og mygla að innan, í stað þess að þar ætti að fara fram lifleg og öflug starfsemi, söfnuðunum og borgarfélaginu til þrifa og heilla, andlegra og líkamlegra, á hverjum virkum degi vikunnar.” Ekki hef- ir boriö á því að stúlku þessari, sem er, viðurkend fyrir kapp, dugn- að og stjórnsemi i starfi sinu, hafi verið svarað. — Gufuskip danskt var á hraðri ferð fyrir austan Newfoundland; sáu skipverjar þá hvar hvalur kom vaðandi með gevsihraöa beint móti skipinu. Hann bar svo brátt að, að ekki var tóm til að víkja við skipinu, rak hvalurinn sig á það svo fast, að stórt gat brotnaði á kinnunginn. Hvalurinn mun hafa drepist, því að hann sökk strax, en sjórinn litaðist blóði á stóru svæði. Skipið náöi höfn við illan leik og er í viðgerð. — W. H. Taft, fyrrum forseti Bandaríkja, nú próíessor í lögum við Yale háskóla, hefir lagt svo mikið af, að hann er nú 80—áttatíu - pundum léttari, heldur en þeg- ar hann lagði niður völd. Ekki er þó hægt að segja að hann sé mag- ur eða grannvaxinn, þrátt fyrir þetta. Hann er ennþá 240 pund á þyngd og ber þá fitu vel, með því að hann er manna mestur vexti. í sumar var hann lengi í Canada, og hafðist við úti á víðá vangi við leiki og sjávarböð. Við það fékk hann matarlyst ærið stóra, að sögn, en lét sig hafa það að svala henni ekki, og með því móti tókst honum að léttast um átta fjórðunga. — Ræningjar stöðvuðu hraðlest þá sem rennur milli New York og New Orleans, einhvers staðar í Alabama riki, kúgfðu lestarstjóra til að taka tvo vagna frá, sem böggulsendingar voru í og flytja þá tvær mílur á brott frá lestinni. Þeir stálu þar 100 þúsund dölurm í peningum og létu svo eimreiðina renna mannlausa, hvert sem hún vildi. — Aðfaranótt föstudagsins brunnu átta börn inni i Quebec borg. Faðir þeirra komst út ó- skemdur, móðir þeirra svaf með þeim upp á lofti, komst út að glugga með elzta drenginn 15 ára og kastaði honum ofan. Þrír menn stóðu niðri á götunni og vildu grípa hann á lofti, en samt skaddaðist hann svo mikið á höfði, að honum er ekki ætlað líf. Þégar eldliðiö kom, voru öll börnin brunnin til bana og móðir þeirra víða brend, er þó ætlað lif. staddar eru, svo og hafa eftirlit með sjúkum, meðan þeim er að batna, eftir að þeir eru komnir út af spítalanum. Arið sem leið fóru þar til settar hjúkrunarkonur meir en þúsund slikar eftirlitsferðir, mikið af hlýjum fatnaði var út- vegað þurfandi og margt annað gert fyrir þá. Almenm spitalinn var ,þá fyrsti hér i landí til að byrja á þessu. Þessi nýja viðbót við spítalann er að allra dómi frábærlega vel gerö, skrautlaus að utan að visu, en allur umbúnaður innanhúss sá fullkomnasti sem verða má, svo að hvergi finst betri hér í álfu og þó víðar sé leitað. að dómi þeirra sem kunnugir eru. Þess vegna hefir byggingin orðið dýr. Úr bæjarsjóði var lagt til hennar 400 a þúsund dalir, einstakir menn gáfu 230 þúsund dali og þar að auki sýndu nokkrir borgarar mikinn Einar Þorvaldsson Dalmann. Hann dó að heimili sínu að Selkirk Man., þann 24. Sept. síð- astliðinn, tæpra 79 ára gamall. Hann var jarðsunginn þ. 26. s. m. af séra Steingrími Þorlákssyni að viðstöddu mörgu fólki. Einar sál. var fæddur 4. Okt. árið 1834 að Laxárholti í Mýra- sýslu. Foreldrar hans voru þau hjónin Þorvaldur Hannesson og Astríður Hallbjörnsdóttir, þau áttu 13 börn, sem öll eru nú dáin. Ein- ar sál. fluttist ungur með foreldr- höfðingskap i framlögum. Til dæmis lét Eaton búa út uppskurð- arstofuna á sinn kostnað og kost- aði það um 25 þús. dali. Alt um það hafa stjórnendur spítalans orðið að taka lán til þess að stand- ast byggingarkostnaöinn og biðja nú bæinn um 275 þúsund dali í viðbót, og verður greitt atkvæði um það í dag fmiðvikudagj, af skattgreiðendum borgarinnar. Or bœnum Héðán Iögðu upp á laugardaginn, j áleiðis til San Francisco, Cal., þeir Christian Thejll og Þórður Einars- son smiður hér úr borginni. Einar Eorvaldsson Dahnann. Herra J. T. Bergmann kom úr um sínum að Krossholti í Kolbeins- fslandsferð sinni á ]iriðjudags- staðahrepp, og þar ólst hann upp. kveld. Eigi höfum vér haft tal af honum, en frétt að meö honum hafi komi'ð tíu eða ellefu isjenzkir innflytjendur. Árið 1862, þann 4. Okt., giftist hánn Guðriði Magnúsdóttur, ætt- aðri úr Reykholtsdal í Borgarfirði. Einar sál. bjó með. konu sinni -r,, TTJ TT ! ,, , i eitt ár á Ifofstöðum í Miklaholts- gærmorgun vestur til Argyle í þarfir \rePP’ J,aöan f'uttu þau hjon að skóla kirkjufélagsins. í næstu viku 1 somu svelb Eftir fimm ara hefir hann ráðgert að fara til Dakota j 4völ þar fluttu þau að Kolbeins- stöðum og biuggu þar 3 ár; fluttu síðan að Oddastöðum. Þaðan í sönui erindagerðum. Herra Albert Johnson er nýkominnj fóru þau hingað vestur árið 1883. heim aftur með dætrum sínum úr Þegar hingað kom, fluttu þau til skemtiferð vestan frá Kyrrahafi. j Nýja lsiands. þar bjuggu þau II Kom við í Victoria Portland og ár- fluttu þaSan til Selkirk, þar fleiri stoðum vestra. Fagurt og blitt á Ströndinni þetta leyti árs. eins og jafnan er um Frá íslandi. Spítalinn stækkar. Vígð var á laugardaginn hin nýja viðbót við almenna spítalann hér i borg, með ræðuhöldum af hálfu aðal stjórnenda hans, undir forsæti borgarstjóra, Mr. G. F. Galt, sem er forseti stjórnarnefnd- arinnar, sagði sögu hans frá upp- hafi vega, næsta fróðlega, frá því hann byrjaði með fáeinum sjúkra rúmum þartil nú, er spítalinn er orðinn næst stærstur í öllu Can- ada. Einkanlega var fróðlegt að heyra hann segja frá, hversu mikl- um framförum meðferð og að- hjiikrun sjúklinga hefir tekið á spítalanum. Hann hefir ekki ein- göngtn stækkað, lieldur batnað. Hver sjúklingur liggur þar rœir en helmingi skemur að meðaltali, held- ur en áður. Fjórum sinnum færri sjúklingar devja þar nú, heldur en fyrir nokkrum árum, að meðal- tali. Þetta er að þakka þvi, að spitalinn er betur út búinn, að kensla hjúkrunar meyja hefir stórum batnað og að læknislistinni hefir farið mikið fram. Nú sem stendur stunda um fjörutíu lækn- ar sjúklinga á almennu deildinni, hinir beztu, sem í borginni finn- ast, og gera það með öllu ókeypis. Hjúkrunar stúlkur, setti kennt er á spítalanum, hafa fngið orð -já) sig viðsvegar um landið og fengið góðar stöður á ýmsum spítölum, bæði utanlands og innan., Eitt af því sem Almenni spítalinn hefir tekið upp, er það að hafa eftirlit með fjölskyldum heimilisfeðra, út- vega þeim nauðsynjar, ef bág- Revkjavík 20. Ágúst. Brezkur botnvörpungur strand- aði við Hjörsey á Mýrum seint í vikunni sem leið. Allir skipverjar komust af, með naumindum þó, og komu hingað á Ingólfi í gærmorg- un að taka sér far á Sterling þann 24. Ágúst. Skipið sökk von bráðar. Gönguför austur að Odda fóru þeir Jón Helgason prófessor og Sig. Sívertsen dócent í fyrri viku og eru nú nýkomnir aftur. Karl Kiichler hefir nýlega ritað grein um Færeyjar og ísland i þýzka timaritið “Natur” og fylgja þar myndir. Greinin heitir “Zwei1 nordische Zauberwelten” ftveir norrænir töfraheimarj. Doktorsritgerð Guðm. Finn- bogasonar kemur út á frönsku í Október í haust i Bibliothéque de philosophié contemporaine, er gefið er úr af F. Alcan i París. A. Courmont sér um útgáfuna. Reykjavik 27. Ágúst. Einhverri danskri konu, frú Palline Bagger hefir orðið mjög um það, hve vel hefir verið mælt til Islands á kvenréttindaþinginu í Budapest af frú Catt, í formála- ræðu hennar á öndverðu þingiinu. Ritar hún um það i Berling 10. Ágúst og bætir þar við æöi kulda- legum og reiðiþnmgnum orðum um ræðu, sem jungrfú Laufey Valdimarsdóttir hélt þar um ís- land. Þykir henni Laufey hafa borið Dönum þar illa söguna i af- skiftum þeirra af íslandi og lýkur grein sinni á þvi, að hún búist við að mörgum Dönum þyki fróðlegt að heyra “hvemig komið sé fyrir Danmerkur hönd af íslandi af heimsþingum”. Hvílík einfeldni, að halda að Danmörk hafi haft nokkuð með framkomu fulltrúa vorra í Buda- pest að gera! —Isafold. sem þau hafa dvalið síðan. Einar sál. og Guðriður eignuðust 6 börn, þar af eru 3 dáin; hin sem lifa eru Bjarni Dalman bæjarráðsmað- ur í Selkirk, Guðleifur Dalman, einnig búsettur i Selkirk; hann hefir um langan tima rekið verzl- un og er mörgum íslendingum vel kunnur. Guðrún systir þeirra bræðra er gift hr. Ásgeiri Bjarna- syni, sem nú býr i Selkirk. Einar sál. var maður allvel greindur, hygginn og ráðhollur í garð vina sinna. iðjumaður hinn mesti og búnaðist vel; hann var mjög greið- vikinn og alúðlsegur við alla og átti marga góða vinf og kunningja. Hann var fremur hraustbygður maður og naut jafnan góðrar heilsu þar til siðastl. vetur að hann fékk slag. Eftir það náði hann sér ekki með heilsu, en hnignaði smám saman, þar til hina síðustu stund bar að höndum. Hans er sárt saknað af ekkju hans og börnum, sem nú blessa og gevma minningu hans. Blessuð sé minning hins látna. M. M. Sökt á mararbotn. — Auðugur maður dó nýlega í Boston, lagði svo fyrir að lík sitt skyldi brenna og skyldi sökkva öskunni í mararbotn í lystisnekkju sem hann átti og honum hafði þótt mjög vænt um. Þetta fór fram. Kona hans og tveir vinir sigldu skútunni tíu mílur frá landi og höfðu mótorbát aftan í, en á borði í káetunni stóð krukkan með jarð- neskum leifum skipseigandans. Þau stigu í mótrobátinn ásamt skipstjóra, gat var höggvið á skipshliðina og sökk skútan til botns með öllu saman, rá og raiða og þöndum seglum. — I fyrra voru 9.758.400 ekrur undir hveiti í Canada, og það ár fluttust burt úr landinu 64.466.286 bushel af hveiti. Það ár var minna flutt út af skepnu afurðum, keti, skinnum o. s. fr. heldur en,að und- anfömu, fyrir liðlega 50 miljónir dala, mest til Bretlands og Banda ríkja. Til íslands. fEftir 15 ára burtuveruj Þeir segja þú sért svo lítil, að sé þér ei nokkur vörn, og helzt ætti að flytja frá þér í fjarlægðir öll þín börn; en segi þeir hvað þeim sýnist og syngi þér eyðispár, mér nægir þín sjón og saga um síðustu fimtán ár. Þeir segja þú hafir sofið ■og svikist un? flest þín störf, en Vesturheimsgyðjan vakað í vörnum og sóknum djörf; en beri þeir sögur saman, * og sanngirni kalli til, og dragi svo, ef þeir dirfast, úr dæminu sér í vil. Þeir segja þú börn þín sveltir og sitjir á röngum stað, og lifir ei hálfu lífi —því ljúga þeir, guð veit það; þú veittir þeim afl og orku í æsku við brjóstin þín, þeir kasta’ að þér klaka’ í staðinn —þeir kunna’ ekki’ að skammast sín. Eg veit að hún Vesturálfa fer vel með sín tökubörn, þótt bein þeirra margra mali hann Mammon í aura-kvörn. Já, segi þeir hvað þeim sýnist, eg syng þér mitt barnaljóð, því móðir er manni kærust, þó mörgum sé fóstra góð. Þá hár mitt er orðið héla og hugurinn sól og ský, sem grætur og gleðst af öllu og gerist ég barn á ný, hve ljúft væri þá að lifa og leika við gullin sín, og þegar mig syfjar síðast að sofna—við brjóstin þín. Sig. Júl. Jóhannesson. Til Dóru. fVið heimkomu frá íslandi.J Eg sá fram i dalinn þinn, Dóra, mig dreymdi um barnsárin þin; mér fanst eins og Brekkan þín brosti og benti mér upp til sín. Hún hafði’ aldrei yrt á tnig áður þó ætti’ eg við hlið hennar braut; nú talaði’ hún við mig sem vinur— eg vissi þar hvers eg naut. Þar birtist mér svipurinn sami og sá, er eg fölskvalausl ann; mér hitnaði sál og hjarta, eg huga minn klökkna fann. Hún sagði mér söguna þína; hún sýndi mér hvernig þú lást í fanginu á fóstru þinni svo falin, að vart þú sást. Hún sagði'mér söguna þína; hún sýndi mér einmana barn, ])á hugur er fús til ferða, en fóturinn veltugjarn. Hún sagði mér söguna þína, , hún sýndi niér hvernig þú lékst að sandi og sauðaleggjum —í sveitinni’ ei annað fékkst. Húr. sýndi mér sorgina þína —því sorg eiga líka börn— sem bældi sig bak við þúfu svo bogin og felugjörn. Hún mynd þína brent hafði’ á brjóst sér með bros þín og æskutár, við árstíða grát o.g gleði, og geymt hana’ í þrjátíu ár. A vorin er veðri.i h'ýna, hún vekur upp blómin sín fiá bænum í allar áttir sem ímynd um sporin þín. Hún hlátpr þinn tók í hreiminn í hjalandi gilið sitt, hver sólgeisli’ á sillum hennar er saklausa brosið þitt. Hún bað ntig þess liljótt, en hug- fast, er hvarf hún mér, Brekkan þfn, að flytja þér kæra kveðju og kyssa þig, Dóra mín. Sig JÚI. Jóhannesson. — í Birmlngham hefir staðið fundur brezkra vísindamanna und- anfarna daga, og þarf ekki frá því að skýra, að Sir Oliver Lodge óð þar elginn, þó vitanlega með miklu minna fasi, heldur en i spíritista blöðum. Eitt sem kom fram á þessum fundi var ræða manns, sem stundar mannfræði. Hann sagði á þá leið, að ef maður gengi í kirkju eða á annan samkomustað, þarsem konur og karlar sitja sam- an, þá tæki hann strax eftir því, hversu kvenfólkið yfirleitt sé frítt, en karlmennirnir yfirleitt ljótir. Ástæðuna sagði hann vera þá, að karlfólkið hefði frá upphafi sóst eftir fríðum konum, en kvenfólkið hirt minna um, hyort makar þeirra væru laglegir ewekki.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.