Lögberg - 03.06.1915, Page 1
ÓKKYl'Is: ÓKKYPIS!—Hervjum, sem kemur
me'S þessa auglýsingu, gefum vér litmynd af kon-
ungi vorum og drotningu meSan þær endast. MeC
hverju 25c. virSi sem keypt er, eSa meira, gefum
vér canadiska sögubðk. Ef keypt er fyrir $1.00 eSa
meira, getiS þér valiS úr þremur myndum, sem eru
50c. tii 75c. virSi. Ef þér kaupiS fyrir $2.00 eSa
meira, fáiS þér 10% afslátt. — þetta boS stendur
aS eins eina viku. KomlS sem fyrst, meSan nóg er
úr aS velja. NotiS ySur kjörkaupin á sjaldgæfum
bðkum, 4 0 til 90% afsláttur. Gestir velkomnir. —
Allir velkomnir aS skoSa. “Ye Olde Book Sliop”, 253
Notre Dame Ave. gegnt Grace Church. Ph. G. 3118.
ef a*
\ Két með
stjórnareftirliti.
Búnaðar stjórnardeild Canada lætur stimpla két af öllutn
skepnum, sem slátrað e* í þeim stofnunum, sem hún hefir
eftirlit meö: „Canada approved.“ Vor aðferð er að selja
aðeins két af heilbrigðum skepnum. Gætiö að stimplinum
FORT GARRY MARKET CO., Limited
330-336 Garry St. Phone M. 9200
28. ARGANGUR
WLNNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 3. JÚNÍ 1915
NÚMER 23
Fréttir af styrjöldinni.
Tjón á skipum. Orrahríð í Galiziu. Þýzkir
hörfa undan á Frakklandi.
Undir lokin.
Kvatt liefir Vilhjálmur keisari
til vopna það af landvarnarliöi í
landi sínu, sem ekki er þegar til
bardaga fari'ö. Þegar þaö er kom-
ið á vígvöll, er ekki**i fleiri hús að
venda, þá eru flesttr vopnfærir
menn til stríðs komnir, og veröur
ekki fleirum fram skákað. Fyrir
æö'i löngu voru fimtugir menn i
hinum fornu dönsku löndum,
kallaðir til vopna og komnii" langt
suður á Þ.ýzkaland, til varðgæzlu
í staðinn fyrir lítið eitt yngri
memi, er þá voru færðir áleið'is til
orustu stöðva. í byrjun júnímán-
aðar verða flestir þýzkir þegnar,
sem vopni kunna að valda, í
stríðið komnir, og ter þá von
bráðar að draga að lokunumi.
Pangar Rússa.
Þann i. apríl voru Rússar bún-
ir að taka til fanga 616,112
manns, samkvæmt skýrslum
stjómarinnar þar, bæði austur-
ríska og þýzka og tyrkneska.
Þessir hafa allir færðir verið til
Rússlands og settir þar i fanga-
garða. Af þeim eru 10,734 fyrir-
liðar. Auk þess hefir stórmörg-
um föngum úr Galiciu verið slept
úr varðhaldi og gefið heimfarar
leyfi.
Lögeggjan.
Friðrik lieitir sá 'sem stýrir her
Austurríkis gagnvart ítölum og
er erkihertogi, af ætt Austurrikis
keisara. Hann hefir dreift út
meðal liðs síns svofeldri lögeggjan:
“Konungur vor og keisari hefir
nýlega með orÖum sínum lýst iliu
innræti vors nýja fjandmanns, er
geldur góðvild og trúmensku
vora með sviktun. Það er ekki
nýr fjandmaður sem gengur í
móti oss með djarflegu uppliti,
heldur leggur hann oss hnífi í
bakið. Flermenn, látum oss refsa
honum með stáli og eldi, álíka og
forfeður vorir hafa áður gert
mörgum vigvöllum.’’
Tyrkjum hlaðiíí.
Af mannfalli í liði Tyrkja er
áður sagt, en kænlega hafa þeir
búið um vigstöðvar sínar á Galli-
poli skaga, svo aö skeinuhætt
verður liði Breta að sækja þá.
Þó hafa þeir unnið allmargar
skotgrafir Tyrkjanna síðustu
dagana. Flinir síðarnefndu mistu
við það tækifæri um 2000 manns
en Bretar aðeins 300. Af ‘her-
skipa athöfnum er það »helzt sagt,
að þau leita að athvarfi þýzkra
kafbáta, sem mijög er sein’legt í
eyjasundum kröppum og vog-
skornum strandlengjum.
Herskipum sökt.
Tvö herskip mistu Bretar við
Dardanella sund fyrir helgina,
voru bæði sprengd í loft af þýzk-
um kafbát eða kafbátum. Triumph
hét annað, hitt Majestic, bæðí stór
en hvorugt nýtt. Skipsmenn um
800 á hvoru og björguðust flestir
Beitiskip og tundurbátar voru á
sveimi í kringum herskip þessi, en
ekki tókst þeim að finna tundur-
sendil þennan, þó mjög væri hans
kappsamlega leitað. Svo
viku áður en þetta skeði, hafði hin
brezka stjórn boðið 10 þúsund
dala verðlaun þeim sem kynni að
segja til hvað orðið hefði af
þýzkum neðansjávarbát, er slopp
ið1 hefði þá dagana inn í Miðjarð
ar haf. Hann sagði til sín sjálf-
ur með þessu hraparlega móti, við
botn þess hafs, áður vika væri
liðin.
hinum brezka flota, með 300
manns og vopnabirgðum. Það lá
nálægt þeim stað, er herskipið
Bulwark var sprengt i loftið ' og
er mörgum getum leitt um, hvem- j
ig þeim hafi grandað verið. J
Sumir halda því fram, að með 1
svikum hafi svo verio um búið,‘J
að' þessi skip urðu sprengd upp
með þráðlausum rafmagns gneista.
Herferöir í lofti.
Loftdreka sendu þýzkir yfir
Suðurvirki hjá Lundúna borg, er
drápu tvær konur og særðu börn
með sprengikúlum, svo og ollu
eignatjóni. Skotið var á þann,
sem í færi komst og eltur var
hann af loftförum, komst þó und-
an og 1 hvarf. Seinna fréttist, að
hann hefði hrapað og dottið í
sjóinn nálægt Helgoland, en úm
iá þrjátíu manns, sem voru inn-
anborðs, hefir ekki frézt, hvort
lífi héldu eða ekki. Um sama
leyti reyndu þýzkir að gera Paris-
arbúum mein með loftskipum.
Frakkar sendu um tuttugu loft-
för austur á þýzkaland, óralangan
veg, er sendu sprengikúlur á borg
eina, þarsem vigvélar voru fyrir.
Sumt af hinum frönsku loftför-
um varð að leita úr lofti og komu
niður á þýzkri lóð. Bretar sendu
síðar loftfara til staðar nokkurs í
Belgiu, þarsem þýzkir áttu
sprengiefni, og sundruðu því með
tundurkúlum.
AuÖmenn leggja fc til 'hernaöar.
Tveir auðugir menn í Montreal
hafa boðið fram sín hundrað þús-
Skaöi á skipum.
Þýzkir hafa tekið aftur upp
herför sina með neðansjávar bát
Einar Arnórsson
tekur völd á Islandi.
Útnefndur var Einar Arnórsson til ráðherra yfir ís-
landi, þann 7. Maí, með símskeyti frá konungi. Hann
var einn af þeim þremur þingmönnum sem utan fóru á
konungsfund til umráða, að undirlagi hans, og mun hafa
verið útvalinn til stöðunnar af meirihluta sjálfstæðis-
flokksins. Hinn nýi ráðherra er aðeins 35 ára gamall og
hefir setið aðeins á einu þingi, en lét þá mest til sín taka
til þingstarfa af öllum. Hann er þingmaður fyrir Árnes-
sýslu, upprunninn þaðan, fæddur á Minna-Mosfelli í
Grímsnesi, af óríku en tápmiklu bændafólki. Hann fékk
embætti sem kennari við lagaskólann íslehzka, þegar
hann var stofnaðurog hefir gegnt því síðan. Mörg rit
liggja eftir hann, flest um íslenzka löggjöf.
Stjórn Bandaríkja gengur út frá
því sem vísu, að Lusitania hafi
mátt skoða sem venjulegt, vopnlaust
kaupfar. Keisarastjórnin leyfir sér
í því sambandi að benda á, að Lusit-
ania v'ar eitt hið bezta og hraðasta
kaupfar Breta, bygt með styrk af
landsfé til aðstoðar flotanum og til-
greint sem slíkt i “flotaskrá” hinnar
brezku sjómálastjórnar.
Fyrir rannsóknarnefnd.
Samsæri. Montague játar „glappaskot‘*
Þar hafa enn komið nokkur
kurl til grafar, sem söguleg eru og
Það er enn™frerntir kunnugt keis-j nálega ótráleg, ef ekki væm svar-
arastjórninni af áreiðanlegum skýrsl- J in og framborin i rétti. Eitt er
um útsendara hennar og hlutlausra j það, að meðan þingmenn i reikn-
farþega, að um all-langan tíma hafa ingslaga nefnd spurðu eftir hvað
nálega öll stór kaupför verið útbúin J gengi meg jeitina aö galt; tilsjón.
með stórbyssum og skotfærum og j . , . . ,
... .. x - , , armanm með steypu þinghuss
oðrum vopnum og monnuð serstak j •r r
lega með fólki, er hefir lært að beita j stöplánna, er skyndilega hvarf úr
þeim. Lusitania hafði sömuleiðis, þjónustu stjórnarinnar, þegar til
samkvæmt upplýsingum, sem hér j rannsókna kom, þá var svar
hafa fengist, fallbyssur meðferðis, i nefndar formannsins Taylors
settar á stokka og faldar undir þilj- j lö aís verig væri ag reyna ag
11 m
ná honum hingað til yfirheyrslu.
lið úr landi sinu. í Galiziu held-
ur áfram hinum sama látlausa
hildarleik sem fyr, þýzkir sækja á
með miklum ákafa og óvígum her
og svo óspart leggja þeir lið í
sölumar, að sjálfum Hindenburg
ofbýður, að sögn. Um vopna við-
skifti eru óglöggar fréttir þessa
dagana. Rússar hafa dregið lið
sitt úr vestari skörðum Karpata-
fjalla og haf a sótt fastlega á
hinn vinstra arni Þjóðverja hers,
þann er norður veit til Póllands.
í þeim- stórorustum hafa beizt
brögðum þeir Mackenzen og
Irmanow, fnegur kappi úr Port
Arthur. Það er háttur þýzkra,
er þeir verða frá að hverfa þar-
sem þeir hafa lagt sig fram allra
fastast til áhlaupa, aði láta eftir
lið á þeim vígvelli, sem nægir til
fyrirstöðu, en færa meginliðið á
annan stað, skáka því þar fram erl”
sizt varir og gera þar sem snarp-
asta hríð. Þeir sækja nu að ná til
Svarið frá stjórn Þýzka-
lands.
undin hvor, til að kaupa véla- > vígisins Perm)rzl og afkróa það frá
byssur handa herliði voru; liver
slík kostar $2500 og þykir þetta
rífeg viðbót við vopnabúnað her-
liðs vors.
Loftskip yfir Lundúna horg.
Á mánudags kveld komu skyndi-
lega fram loftskip yfir Lundúna
borg, Zeppélins drekar þýzkir, er
létu niutíu kúlum rigna yfir ýmsa
hluta borgarinnar, en af kúlum
þeim kviknaði i, þarsem þær komu
við. Tundurefni var í sumum og
fórust af þeim völdum nokkrar
konur og börn og einn karlmaður.
Viða kviknaði i, en hvergi til mik-:
illa muna. Borgarbúar urðu reið-
ir rnjög er þeir skynjuðu hvað á
seyði var og vildu gera aðsúg að
þýzkum þegnum í borginni, en
varðir voru þeir af lögregluliði og
eignir þeirra, Þó segja fréttir,
að ógurlegt eignaspell hafi orðið í
aðsúg þeim og mörgum þýzkum
hafi verið misþyrmt.
A Frakklandi.
Lemberg og öðrum stöðum i valdi
Rússa, en ekki hafa þeir komið
því fram enn og er það sumra
grunur, að Rússinn muni standa
fyrir þeim enn um stund þartil
hann hefir dregið að sér lið og
vopn til sóknar.
Svo er sagt að) Rússum bagi
mjög; að' þá skortir skotfæri.
Verksmiðjur þeirra anna engan-
veginn að smíða skotvopn handa
því ógrynni liðs sem á vígvelli er,
og því hafa þeir orðið að sækja
þau til Japan og Bandarikja, yfir
Kyrrahafið og þvera Asíu, en svo
mikils þurfa þeir við, að skot-
vopnaskortur hefir orði'ð þeim að
miklu óliði.
Herför Itala.
Fyrirstöðulaust liafa þeir vaðið
yfir landið alt að fljótinu Isonzo
og háfjöllum þeim er þar verða
og ramlega víggirtum hálsum, er
verja borgina Trent og land
umhverfis hana. Um bardaga er
ekki sagt annað, en ítalir haft
tekið vígi og stökt undan sér liði
og farið snúðugt. Svo er að sjá,
er barizt með sama 'hætti og. fyr,
-’Luln 11 ^ SSU1 na' <lnna , un<1'r| sem nú séu þeir komnir að helztu
a ... 111 0& v<:lta lvonir öðrumj fyrirstöðunni, víggirtum stöðvum
1 r 11 . 7 . ^ I þarsem erfitt er til soknar og
hata unmð nokkra V1gskurð vest-j'tórir herir til varnar. Svo er
1 °S >a' ' iclir mð brezka' sagt ag Austurríki hafi 600,000
hð af ser ahlaup þyzkra bæði m*nna ■ beim stöívtim> vel
morg og horð. Vonr landsmenn , - c
. • f • „ , , , vopnum buna. Serbar hafa buið
eru þar jatnan við haskann oe fá
.. * f.\ f , nei s ’in og ætla að ganga 1 leik-
gott orð sem fyr. Við Arras hafa •____ < , .-, ,. TT
, . .. v-v i , . mn a nv, til hðs við Itali. Um
þyzkir orðið að lata undan oc o • A „ , ,
.. , r. ■ , 1 •• , ° Kumeniu er svo sagt,, að hun mum
horfa aftur a bak, somuleiðis i ■ . , , , ,, ..„
. , . , . , .„ T veita frændum sinum 1 Itahu liö,
skogi þeim sem kendur er við La
sem Pretre, skamt frá Mihrel, en þar um lTT\
hafa Frakkar sótt á í sjö mánuði! bal k ,, , S1J.a VC' a e" 1
og er orðlagt hve horð sokmn hef-
ir verið og vörnin að sama skapi. -------4----
Fyrir vestan Ypres lögðu Frakkar
fram liði sínu svo hart, að þýzkir
fóru á hæli og er það viðurkent
jafnvel í stjórnar skýrslu þýzkra,
sem sjaldan skeður.
Frá íslandi.
Sókn Þjóðverja.
Svo hart hafa þýzkir lagt sig
fram, að stórum löndutn halda
þeir fyrir Jjeim sem þeir eiga
um og granda hverju skipi, sem höggi við, Frakka og Rússa, auk
þeir ná í umhverfis Bretlandseyj- nálega allri Belgiu, en aðeins látið
ar. Tvö voru amerisk, hét ann- nokkra sneið af Alsaee, er Frakk-
að Nebraska, er þýzkir skutu á ar liafa unnið af Jietm, en vitan-
fyrir sunnan England. Skips- 'e8’a er niikill hluti nýlendna
höfnin leitaði í báta, þegar er þe*rra tapaður þeim. I Frakk-
skotið reið, en er skipið hélzt á 'ar|di er þeim jafnan þoicað aftur
floti, gengu þeir aftur á skip og a bak, þó hægt fari, en á Rúss
var því komið ti'l hafnar, mikið landi hefir herferð þeirra, sitt á
löskuðu. Hitt ameríska skipið hét hvorum enda 'hins víða vígvallar. fúsar Sveinbjarnarsonar áður fast
Dixiana og var á ferð meðfram, orðið hinum vígmóða Rússa her eignasala, sem nú býr á Stapa
Frakklandi, undir enskum fána, j afrtr skeinuhætt. Af herför þýzkra
er neðansjávarbátur grandaði því. meðfram Evstrasalti eru ógreini-
Reykjavík, 5. Maí 1015.
Iveir Islendingar hafa í vor út-
skrifast frá garðyrkjuskólanum á
Vilvorde á Sjálandi. eru það þeir
Ragnar Asgeirsson Eyþórssonar í
Reykjavik og Sigmar Guttormston
Vigfússonar í Geitagerði. Einn ís-
1 lendingur, Einar Helgason, het'ir
áður tekið próf við þennan skóla.
Ragnar kom heim með Gullfoss og
verður aðstoðarmaður hér við gróðr-
arstöðina, en Sigmar keniur bráð-
lega til Austurlandsins og verðitr við
gróðrarstöðina á Eiðumá
Húsbruni varð á Arnarstapa á
Snæfellsnesi 31. f.m. og brann, þar
stórt ibúðarhús úr timbri. eign Sig-
Eitt af hinum brezku skipum, sem
farizt hafa af óvina völdum, hét
Princess Ireme, var hjálparskip í
legar sögusagnir, en hardagar
standa þar dögum oftar, er Rúss-
ar sækja fast aðl reka hið þýzka
Laust Árnessprestakall í Stranda-
sýslu, Árnessókn. Heimatekjur:
Prestssetrið með hlunnindum 800
kr,. Eftir standa ógreiddar af bygg-
ingarláni 400 kr.
Lesendur vorir hafa fengið að sjá
ávarp forsetans i Bandaríkjum til
keisarastjórnarinnar og mun því
mörgum forvitni á að sjá svarið.
Það fylgir hér og er undirritað af
utanríkisráðherranum í Berlín:
“Uudirrituðum veitist sú virðing
áð láta sendiherranum Gerard í té
eftirfylgjandi svar við erindi dags.
15. Maí út af hnekki ameriskra
hagsmuna með kafbáta hernaði
þýzkra-
Stjórn keisarans hefir íhugað
erindi Ameríku stjórnar vandlega
og æskir þess sömuleiðis fastlega að
vinna að því einlæglega og vinsam-
lega að nema burtu allan misskiln-
ing sem kann að hafa borið á milli
út af þeim atburðum, sem hin
ameríska stjóm nefnlr.
Fvrst skal nefna gufuskipin ame-
rísku Gulflight og Cushing. Sendi-
herranum frá Ameríku hefir þegar
verið tilkyht, að hin þýzka stjórn
ætlar sér engan veginn að láta thlut-
laus skip, er ekki eru sek um fjand
samlega athöfn, sæía áhlaupum af
kafbát eða kafbátum, á ófriðarsvæð
inu. Þvert á móti hefir þýzkum
herforingjum sérstaklega verið skip
að hvað eftir annað að forðast að
granda slíkum skipum'. '
í hvert skifti, sent rannsókn hcf-
ir sýnt, að hlutlaúsu skipi, 'er ekki
hefir unnið til saka, hafi v'erið
grandað af þýzkum kafbát eða loft-
fari, hefir þýzka stjórnin lájtið í
Ijós hrygð sína yfir þeirri óheppi
legu tilviljun og, ef ástæður gáfu til
efni til, boðið skaðabætur.
Ef hlutlaus skip hafa beðið hnekki
hina síðustu mánuði af kafbáta
hernaði þýzkra, vegna þess að vilzt
hefir verið á mörkurn, þá eru það fá
ein, er fyrir slíku hafa orðið, og má
kenna hinni brezku stjórn um þau
er misbrúkað hefir fána, svo og
grunsamlegu eða saknæmu fram-
ferði skipstjóranna.
Málin út af Cushing og Gulflight
eru sömu t^gundar. Uin bæði er
verið að gera rannsókn og skal nið-
urstaðan bráðlega tilkyrtt sendiherr-
anunv Niðurstöðu rannsóknarinnar
má, ef vill leggja fyrir alþjóða
nefnd samkvæmt 3. grein Hague
sáttmálans frá 18. Okt.
Þegar hinu brezka skipi Falaba
var sökt, ætlaöi fvrirliði hins þýzka
kafbáts að gefa farþegum og skips-
höfn fult tækifæri til undankomu.
En er skipstjórinn hlýddi ekkJ skip-
unurn fyrirliðans að bíða og leggjast
kyr, og kallaði á hjálp með flugeld-
um, þá skipaði hinn þýzki fyrirliði
skipshöfn og farþegum að vera
komnir af skipinu eftir tíu mínútur.
Hann veitti þeim svo 23 mínútur til
þess, og lét tundurskotið loks ríða
þegar grunsamlegir farkostir komu
í flýti til að hjálpa skipinu Falaba.
Um mannfjón af því er hinu
brezka skipi Lusitania var sökt, er
það að segja, að hin þýzka stjórn
hefir þegar látið í ljós við hlutlausrá
landa stjórnir, er hlut áttu að máli,
að henni hafi þótt stórum leitt, að
borgarar þeim löndum tilheyrandi
skyldu rnissa þar lífið.
En í þessu efni getur keisara-
stjórnin ekki litið öðruvísi á en svo,
að viss merkileg atriði, viðvíkjandi
eyðingu Lusitania, hafi skotist und-
an athygli stjórnarinnar í Ameríku.
Til þess að skýlaus og glöggur
skilningur á málavöxtum náist, en
það er beggja stjórnanna tilgangur.
þá álítur keisarastjórnin nauðsynleg-
ast af öllu, að upplýsingar um þenn-
an atburð, er báðum stjórnunum
gefst kostur á, séu ýtarlegar og sam-
hljóða.
Enn fremur veitist keisarastjórn-
inni sú virðing, að leiða athygli
Bandarikja stjórnar að því, að
brezka stjórnin réði kaupförum sín-
um til þess, með leynilegu skjali, í
Febrúar 1915, að leita hlífðar undir
hlutlausra landa fánum og auðkenfi-
um, svo og að granda neðansjávar-
bátum með því að renna á þá. Stjórn
sú hefir boðið fram verðlaun til að
En nú er hið sanna uppvíst, að
menn voru sendir á eftir Salt
þessum, fyrst Eliot nokkur og sið-
an annar, Hook að nafni, báðir úr
deild opinberra verka, haföi ann-
ar 500 dali en hinn var senaur
með böggla í umslögum, er honum
sjálfum þótti líklegt, að peningar
væru í, eftir að Eliot hafði gert
boð um, að alt væri klappað og
hringjum. Um samsetning stein-
steypunnar, hversu mikið var i
hana látið af möl og sandi, og hve
mikið af steinsteypu, hafði hann
og sögur að segja.
1 annan stað var rannsakað um
bankaviðskifti Kellys, og kom það
fratn, að sama dag og Lyall gaf
sína áætlun um byggingu þing-
hússins, hafði Kelly fengið 160
þús. dala ábyrgðar ávísun með
sinum “kontract”, en daginn eftir
skilað henni og fengið aðra, fyrir
142 þús. Þykir þetta styrkja
þann grun, að hann hafi fengið að
taka aftur tilboð sitt og gera ann-
að eftir að tíma takmarkið var
liðið. Um þær ávísanir sem út-
gefnar voru til hans af stjóminni,
vita menn af fylkisreikningum, en
rannsóknin á því, hvaö Kelly-fé-
lagið gerði við þá peninga a:lla, er
svo langt komið, að í maí, júní og
júlí var hálf miljón dala tekin úr
reikningi þess í einkareikmng að-
almannsins í félaginu, og látið í
veðri vaka, að hann ætlaði að
örfa kaupför til þessa og útborgað
þau þegar. j klárt fyrir “3 M,” en “M” er eitt1 kaupa verðbréf fyrir þá upphæð
Af þessum sökum getur keisara-; þúsund að rómversku tali. Þessir j Montague var kallaður til vitn-
stjórnin ekki álitið brezk kaupför j sendiboðar gengu undir fölskum isburðar einn daginn og gengíð
varnarlaus á ófriðarsvæðinu. Þv’í, nöfnum í símskeytum er milli
geta þýzkir fyrirliðar ekki framar þeirra gengu og Horwoods bygg-
fylgt hertöku reglum, er þeir jafnan ! inga ráðunauts, sem einnig hafði
hlvddu fyr meir.
Hestur í fangelsi.
Eigandinn í klóm réttvísinnar.
j gervinafn í makki þessu. Mjög
ýtarlegar upplýsingar lengust með
erfiðismunum upp úr tveim þess
i ara manna, Hook og Eliot, en
sumt úr bókum hlutaðeigandi
símskeyta félaga. Vitnið Eliot
var svo þver og tregur til einlægra
Sektaður um $100, dæmdur til | frásagna, að dómari varaði hann
að borga málskostnað og í 301 v'ð fölskum framhurði.
daga fangelsi var bcindi nokkur í Seinna gaf hann skriflega
Indiana ekki alls fyrir löngu, íyrir skýrslu undir eiðs tilboð og bendl-
illa meðferð á skepnum. Málið a®i þá* Coldwell, fyrrum ráðgjafa margir sem fyrir komast, gátu
vakti mikla athygli og er talið 1 V1® það, að hafa haldið Salt burtu j ekki varizt hlátri og kom svo, að
einsdæmi 1 sögu landsins. ; fra þvi að koma og bera vitni fyr- hinn gamli maður mátti^bkki stilla
Fyrir rámum íimtán árum höf.ðu , 'r þingnefnd, en áður hafði liann J sig og fól sig vernd dómaranna.
tveir hestar, cr íaðir mannsins 1 aöeins dreift Horwood þar til. Hann kannaðist við, að sér hefði
fast á hann um ýms atriði bygg-
inga samningsins. Hann *hélt þvi
fastlega fram, að hann hefði reitt
sig á áreiðanleika undirmanna
sinna, og þóttist ekkert vita um
neitt. Einkanlega var grafizt eft-
ir því, hvemig á þvi stoð að hann
hefði gert sanminga um norður
væng byggingarinnar fyrir 230
þúsund dali, gegn skýlausum ráð-
um annara, er hann bar það undir,
og tiltóku nærri helmingi minni
upphæð. Svör hans voru svo, að
áheyrendur, sem jafnan eru svo
sem dæmdur var átti, fælst meðl Sá síðarnefndi lét boð ganga frá
hann er hann ók með þeim fytir spítala sem hann liggur nú á, í
vagni sínum. Maðurinn hafði Rochester, Minn., að hann mundi
neytt allra ráða er hann hafði
mátt við koma, til að stöðva 'hest-
ana, en ekki tekist það og er hann
þreyttist, hrökk hann úr úr vagn-
inum og meiddist svo mikið, að
hann dó litlu síðar.
Þegar hestarnir náðust lokaðj
koma og bera vitni, enda væri auð-
orðið á. að gera “glappaskot’, en
stóð fast á því, að af vangá og
athugaleysi liefði það verið. Svo
langt gekk þetta, að hann, sjálfur
sjáanlega tilgangurinn, að kenna riiðgjafinn sem var hátt launaður
sér um alla klækina. til að gæta hagsmuna fylkisins í
Villeroy heitir maöur, sem! þessu mikla byggingar verki, þótt-
gegndi eftirlits starfi ásamt Salt ist ekki vita um alþekt •samnings
með byggingu þinghúss stöplanna. j atriði, hvort þau væru til, því síð-
| Hann bar það að aðeins nokkrirl ur hvort þau væru haldin eða
sonur hins örenda manns hestana af stöplunum hefðu náð niður á brotin af þeim sem verkið átti að
inni í húsi og fékk hvorugur
þeirra að hreyfa sig af básnum i
fimtán ár. Skyldi það vera hegn-
klöpp, sumir aðeins niður á “hardivinna. F.kkert kvaðst hann hafa
pan”, enginn verið dýpri en 43 vitað, hvort hann var búinn að
fet, í stað 72 feta, er Montaghe j ávisa meiru úr fylkissjóði en því
ing á þá fyrir “morðið”, eins og: 'ýstl 'hátíðlega fyrir þinginu, að nam, sem búið var að framkvæma
hver þeirra væri. Hann kvað sig af verkinu. Flann virtist ekki
og Salt hafa reiknað út, að ekki hafa gert neitt annað fyrir sín háu
væru nema 16000 kubic fet af laun, en að samþykkja útborganir
steinsteypú i þeim. Þó borgaði athugalaust og að misskilja tillög-
fylkissjóður fyrir 33,000 ferfet ur, fylkissjóði i ofamikinn óhag.
j af steinsteypu í þeim. Ennfremur j “Glappaskot” það sem hann kann-
hann komst að orði. Sagt
er að ’hestarnir hafi fengið vatn
og fóðuriaf svo skornum skamti,
að furðu gegndi, hve lengi þeir
lifðu. Básamir voru auk þess ó-
sléttir og illa hirtir.
Þegar annar hesturinn dó, varð' hafðist upp úr þessu vitni, að aðist við, er málfærslumaður
einhver loksins til að kæra mann- stórum minna hefði verið notað stjómarinnar hafði lengi og kæn-
Hesturinn sem eftir lifði af íinibri til að steypa stöplana en lega sótt á hann, kostaði fvlkis-
ínn
borgað var fyrir, svo og af járn- sjóð $103.400.
var leystur úr fangelsinu og nýt-
ur nú aðhlynningar góðra manna.
F.f liann gæti! talað hefði hann | herskyldunni, kannist við, að hún merki á norðurhveli himins og
sogu að segja; en þess þarf ekki muni komast á. ef ]>ort kretji. stjörnurnar blika eölilega en
n?e. j. , un C1 næ®' e^a ^rti Hin frjálslyndu blöð leggjast skýjadrög og þokuslæður sjást út
skrifuð 1 augum hans, hreyfing- mbti nýhreytni þessari og óttast við sjóndeildarhringinn
um og ollu Utliti. að þar af spretti hinn sami hern- '__________________. Jí______
aðar litigur og ágengnis andi. sem
í Prásslandi kom upp. Flokka- — Mount Lassen heitir fjalls-
drattur virðist nokkuð þrátna í tindur í norðurhluta Califomiu.
Brú brotnar.
Eimreið nneð fjórum vögnum
fór eftir hinni nýju Hudsons flóa
jámbraut og út á brú eina afar-
langa, yfir Armstrong vatn, sú var
nýbygð og nýlega reynd með 300,-
000 punda þunga. Stálteinar voru
á vögnunum og vél til að leggja
þá. Stólparnir undir brúnni lögð-
ust útaf. þegar þessi þungi kom á
hana og féll öll lestin í vatnið
Vélarstjóri komst lífs af með því
móti, að hann stökk af vélinni, er
hún steyptist. Brúin var 900 feta
löng og ónýttist helmingurinn af
henni.
svipinn, einkum leggur Dr. Clif- Hefir eldsumbrota orðið þar vart
ford, gamall methodista skömng- síðustu vikurnar, vægir jarð-
ur í kennimanna stétt, sig íast sjkálftar og reykur staðið upp af
fram, að berjast á móti herskyld- fjallinu. En í vikunni sem leið
unni, svo og þeim sem ollu því, byrjaði eldgos fyrir alvöru. \’all
að breyting varð á stjormnni, en hraunleðjan niður hlíðamar i
um það er kent aðallega North- þremur aðal-kvíslum. Runnu þær
cliffe lávhrði, sem er eigandi að tnestu leyti yfir eldri hraun
sem ekki vortt grasi gróin og þvi
óbygð. íbúarnir í svo nefndum
Hat Creek dal urðu verst uti.
Hafa þeir, að því er sagt er. flutt
sig úr dalnum, en enginn hefir
farizt. Óljósar sögur ganga einn-
ig ttm eldsumbrot norður i Alaska.
Times og margra annara blaða..
Frá sýningunni.
Herskylda á Bretlandi.
Aðal umræðu efni á Bretlandi
er nú það, hvort taka skttli upp
herskyldu, sem í öðrum stórveld-
um Norðttrálfunnar. Sum| blöð
lialda þvi fast fram, því að með
þvi móti, að hver sé sjálfráður
hvort hanLi gengur í strið eða
ekki. þá verði þeir sérhlífnu eftir
en hinir göfugustu g beptu gefi
sig fram og missist með því móti
þier menn sem göfugan mann hafi
að geyma. Svo' er að sjá, að afn-
• vel þau blöð sem hart gango móti
Meðal margra sjaldgæfra gripa
sem sýndir eru á Patiama sýning- j
unni er geysimikill bnöttur hérj _ Þegar jarBgöng eru grafin
u,m bil 50 fet 1 þvermal, er fjögur undir strætum t New Yirki eru
janibrautafelög lmfa látið búa til.lgaspipurnar' lagöar ofan jar%r
A kulunm ær uppMeypt landslags- me6an á greftinum stendur, því
mynd af Norður-Ameríku og ef eru látnar venT kyrrar
jambraut ltggur a tmlh San Fran- ndSan jarí5ar ^ búast vis ag ^
cisco og St. Louis, en á þvi svæði
eiga félögin flestar brautir.. Geng-
ttr lítil jámbrautarlest fyrir raf- j gasjnu
magni eftir brautinni milli hinna
skaddist, en þá er andinn vis.
. inlcum er hætt við að kvikni í
nefndu borga og er þrjár mínútur
á leiðinni. Þegar lestin fer fram
hjá helztu borgum á leiðinni, em
nöfn þeirra sýnd meö rafljósum.
Kúlan er höl að innan en alstimd-
ur himininn hvelfist yfir kúluna.
Gefur þar að líta helztu stjörnu-
— Tiu þúsund dollara virði af
jámbrautarböndum og tíu íbúöar-
hús bninnu í skógareldi i Passinu
fyrir skemstu. Eldurinn hefir
Iagt undir sig fimm mílna breitt
svæði og fór hröðum skrefum yf-
ir landið er síðast fréttist.