Lögberg - 07.10.1915, Page 6

Lögberg - 07.10.1915, Page 6
6 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. OKTÓBER 1915 Fyrirlestur, fluttur við setninsu bæmlanámsskeiðs á Hólum í Hjaltadal, 22. Marz 1915, af S. Sisurðssyni, skólastjóra. Skömmu fyrir síSastliðin alda- mót byrjuðu menn erlendis að halda þessi svonefndu búnaðar- eSa bændanámsskeiö. — Á náms- skeiöum þessum dvöldu menn viku eða hálfsmánaðar tima. Þar voru fluttir fyrirlestrar og rætt um ýms búnaðarmálefni. Þetta þótti gef- ast vel og veröa til leiöbeininga og hvatninga, enda eru nú þess konar námsskeiö mjög tíð erlendis. Hið fyrsta búnaðarnámskeið hér á landi var haldið hér á Holum 14.—30. marz 1903. Síðan hafa námsskeið verið haldin hér öðru hvoru; alls eru þau orðin 14 að tölu. Hafa sótt þau samtals tæp 300 manna. — Hreyfing þessi vakti eftirtekt. Búnaðarfélag Is- lands fór að láta halda námsskeið á Þjórsártúni og viðar. Við hina búnaðarskólana var og farið að halda námsskeið. Búnaðarsamband og Ræktunarfélag Norðurlands hafa og komið búnaðarnámsskeið- um á fót, og sýslufélögin hafa stutt þessa viðleitni. — Námsskeið þessi eru því ekki orðin nein ný- lunda. Þau hafa verið haldin í flestum sýslum landsins og hafa unnið sér allmikla hylli. Tilgangur búnaðamámsskeið- anna er í fyrsta lagi sá, að auka viðkynningu manna. Þau gefa mönnum tækifæri til að ræða sam- an um eitt eða annað og bera sam- an reynslu sína. Þetta hefir mesta þýðingu, séu þátttakendur af nokkuð víðlendu svæði. Þá víkk- ar sjóndeildarhringinn og fróð- leiksmolamir verða fleiri- — í öðru lagi eiga menn að fræð- ast af fyrirlestrum þeim, sem haldnir eru. í þá er safnað ým- islegum fróðleik, er mönnum má alment að gagni verða. Vitanlega verður hér eigi að ræða um itar- lega kenslu, heldur um einfaldar bendingar, til að hvetja menn og örva til athygli og framtakssemi í starfi sínu. 1 þriðja lagi eiga námsskeið þessi að vera mönnum til hress- ingar. — Bændurnir eru önnum kafnir allan ársins hring. Margir * þeirra era mjög afskektir og hafa eigi tækifæri til að kynnast mikið. Stuttur hvildartími frá daglegu störfunum er þeim nauðsynlegur, og til þess eru námsskeiðin hent. ug- Búnaðamámskeiðin eru einn liður í þeirri framfaraviðleitni, sem hefir gert vart vio srg, emicum eftir 1S80, á ýmsum sviðum, t. d. með stofnun búnaðarskólanna /Ólafsdalsskóla o. fl. um i88öj og bændaskólanna (1905), auknu fjárframlagi til þeirra, bættum húsakynnum, kenslukröftum og kensluáhöldum. Búnaðarfélags- skapurinn er orðinn víðtækari en áður. Flest búnaðarfélög sveit- anna, sem nú eru nálega alstaöar, era stofnuð á þessum tíma. Bún- aðarfélag Islands var stofnað 1899. Verksvið þess er að efla búnaðar- framfarir hvervetna a lanumu. Það býður bændunum aðstoð ráðu- nauta sinna, það sendir þeim bún- aðarritgerðir, lætur gera tilraunir með jarðrækt, styrkir búpenings- sýningar, kynbótastofnanir o. ti- Búnaðarsamböndin vinna meira og minna í sömu stefnu. Þau eru öll stofnuð síðan um aldamótin síð- ustu: Ræktunarfélag Norðurlands og Búnaðarsamband Austurlands 1903, Búnaðarsamband Vestur- lands 1907 og Búnaðarsamband Suðurlands 1908. öll hafa félög þessi meiri og minni styrk af op- inberu fé. Það verður því eigi með sanni sagt, að ekki sé tals- vert gert af hálfu hins opinbera tíl að efla búnaðarframfarimar. En hver er nú árangurinn af búnaðamámsskeiðunum ? Hann verður eigi sýndur með tölum. Líklegt er, að hann sé nokkur. — Á það má benda, að ýmsar hug- myndir, sem á þeim hafa vaknað, hafa síðar komið til framkvæmda og haft þýðingu fyrir einstakling- ana og þójðfélagsheildina. í þessu efni má benda á það, að hugmynd- in um stofnun Ræktunarfélags Norðurlands var vakin á fyrsta búnaðarnámskeiðinu á Hólum og kom fyrst til umræðu á sama mán- aðardegi og er í dag. Stofnun búnaðarsambandanna fylgdi svo á eftir stofnun Ræktunarfélagsins. Öll þessi félög hafa mikið unnið að búnaðarframförum. Þau hafa látið gera tilraunir, útvegað verk- færi, fræ og útsæði, komið á fót verklegri kenslu, gefið út leiðbein- andi búnaðarritgerðir, sent ráðu- nauta sína út um svemmar o. fl. Margir einstaklingar, sem dval- ið hafa á búnaðarnámsskeiðum, hafa tjáð mér, að þar hafi vaknað hjá sér hugmynd um þetta eða hitt, eða þeir hafi fengið hvöt til ýmsra starfa, sem þeir siðar hafa S ó Jj S K I N. 2 MAMMA. Eftir Jane Taylor. Hver bauð mér sv'angri brjóstið sitt, við barm sinn hvíldi höfuð mitt og kossum þrísti’ á kinnar blítt? Hún mamma. Hver söng við mig og sat mér hjá, er svefnlaus ég í vöggu lá; með þíðu vaggi þerði brá? Hún mamma. Hver átti sælu’ og sorgaspár, er svefninn huldi mínar brár, og horfði’ á mig með heilög tár ? Hún mamma. Og hvenær sem að sjúk eg lá, hver signdi mig, og grátin þá bað guð að dauðin gengi hjá? Hún mamma. Hv'er klæddi mína brúðu bezt? Hver benti mér og kendi mest? Hver sagði mér og sýndi flest? Hún mamma. Og ef eg meiddist eða datt, hver aumkaðist og brosti glatt? með sögu og kossi sárið batt? Hún mamma. Hver kendi bezt, er bam var eg, að bæn til guðs er nauðsynleg? Hver benti’ á gæfu’ og vizku veg? Hún mamma. Þó önnum hlaðist hundraðfalt, í hjarta mínu geymd þú skalt, því þú varst mér í öllu alt, 6, mamma. Og líf og gæfu gefi mér sá guð, sem skilur, veit og sér, að lifi’ eg, skal eg launa þér, ó, mamma. Ef hár þitt gránar, þróttur þver, en þrek og kraftar auðnast mér, eg styrk og v'ernd skal veita þér, ó, mamma. Og er þér færist feigð á brá, eg fyrri stunda minnist þá og tárast þinni hvílu hjá, ó, mamma. Sig Júl. Jóhannesson. Spékoppar og bros. Einu sinni fyrir löngu, löngu síð- an, var lítið barn að leika sér úti á flöt. Það varð svo þreytt, að þaö sofnaði. Þetta barn var sérstaklega fallegt; alveg eins og englurrj, var lýst. Það vildi svo til, að engill var riðri á jörðinni og sá barnið þar sem það svaf. Hann varð alvgg hissa á því, hve fallegt það var og hélt að það gæti varla verið jarð- nesk veraT Hann laut niður að því og snerti það þannig, að hann setti góminn á þumlafingrinum neðarlega á aðra kinnina rétt hjá munnvikinu og góminn á visifingri á hina kinn- ina í sama stað. Og hann sá og fann að þetta v'ar sofandi barn. En þegar hann kom upp í himininn aft- ur( sagði hann frá því hversu þetta barn væri dæmalaust fallegt. Annar engill, sem var nokkuð forvitinn, fór næsta morgun niður á jörðina til þess að sjá það. Hann kom að hús- inu þar sem barnið átti heima. Það var bara svolítill torfkofi. Hann fór upp í gluggatóftina og horfði inn um gluggann og sá hvar barnið lá sofandi í frúminu. Hann brosti svo fast og með svo miklum krafti, að geislarnir af brosi hans þrengd- ust inn um gluggann og inn í húsið. Þegar brosgeislar engilsins snertu andlitið á sofandi barninu, þá var komið í framkvæmd. Gagnið af námsskeiðunum er að sjálfsögðu mikið komið undir kenslukröftunum, og þvi einnig, hvernig þátttakendur nota sér þá fróðleiksmola, sem á borð eru bornir, í fyrirlestrum, á umræðu- fundum eða í samræðum manna á milli. Að hverju stefna annars allar þessar framfaratilraunir? Um það má segja, að þar sé aðallega haft tvent fyrir augum: að þroska einstaklingana og bœta landið. Um framfarir og framþróun er mikið talað. Ah - sr og æ að verða fullkomnara og betra en það áður var, annars er afturför og eyðilegging búin öllu lifandi. — Einstaklingamir era að þroskast, en gera jafnframt meiri kröfur til lífsins. — Villimaðúrinn lætur hverjum degi nægja sína þjáningu og hugsar eigi fyrir morgundegin- um. Hann verður þess vegna að þola sult og önnur harmkvæli, þá erfiðu dagana ber að höndum- Mentamaðurinn gerir meiri Jcröf- ur til lífsins. Hann vill hafa góð föt, góð húsakynni og ýms önnur þægindi. Hann ber umhyggja fyrir morgundeginum, yrkir jörð- ina ag gerir sér dýr hennar undir- gefin, safnar sér forða af komi, heyi m. m., býr sér til híbýli o. fl., sem getur orðið honum til lífs- þæginda. Starfstími einstaklinganna er stuttur. Það sem hver og einn getur unnið er lítið. Flestir koma og fara án þess að skilja varan- leg merki eftir sig. Nokkurra er þó minst um langan aldur; þó sjaldan hinna persónulega starfa þeirra, heldur hugsjóna þeirra, sem þeir hafa unnið fyrir og fengið fjöldann til að vinna að með sér. Á þann hátt hefir hver ein- stakur þýðingu. Með því að margir vinni að sameiginlegu markmiði leggur hver og einn sinn stein í einhverskonar byggingu; og þótt steinarnir séu mismunandi stórir, hefir hver þeirra sína þýð- ingu. Og sé byggingin reist á traustum grundvelli og vel og samræmilega unnið að henni af hverri kynslóðinni á eftir annari og vandað til efnisins,. þá verður ávöxtur starfsins varanlegur. Þetta getur komið fram í ýmsum myndum á hverju heimili, í hverju sveitafélagi eða þjóðfélagi, sem myndað er af einstaklingum menn- ingar- og framfara-þjóðar. í hverjum einstaklingi er vísir til einhverra eiginleika, sem þurfa að þroskast. Menningin á að miða að því að þroska þá, svo að þau öfl, sem í manninum búa, komi að sem fylstum notum. Vekji hún eigi hæfileikana til lífs og starfs, er hún eigi sönn og hrindir fremur aftur en fram. Ávöxturinn af starfi einstak- linganna í hverju þjóðfélagi verð- ur sýnilegur af störfum þeim, sem framkvæmd hafa verið. Ræktun landanna, byggingar, listir, bók- mentir o. fl- geta því verið eins- konar mælikvarði fyrir þvi, á hve háu menningarstigi þjóðin er. Ástandið í þessum efnum er eins- konar spegilmynd þjóðfélags- starfanna á liðnum öldum. Sé. landið vel ræktað, bæimir vel hýstir, forn mannvirki varðveitt og listir og bókmentir á háu stigi, ber þetta alt vott um menningu og starfsama ættjarðarást. Sé aftur á móti landið lítt yrkt, byggingar lélegar, listir litlar og bókmentir fátæklegar, ber það vott um litla rækt við landið eða menningu forfeðranna. Hvernig eru nú ástæöur íanas vors í þessu efni? Feður vorir hafa bygt það í rúm þúsund ár. Hver er hinn sýnilegi ávöxtur af starfi þeirra? Um það mætti margt og mikið segja. En eg ætla að eins að benda á nokkur aðnði. Á landnámsöld var landið skógi klætt á milli fjalls og fjöra — að miklu leyti. En hvernig er það nú? Skógarnir eru horfnir. Hvað veldur þvi? Þ’ví valda náttúru- öflin, svo sem eldgos og harðinli, að nokkru leyti, en þó mest óskyn- samleg meðferð á skógunum. Þeir hafa eigi verið höggnir á réttan hátt, og mikið beittir o. fl. — Eyðileggingin er oorgleg. í staðinn fyrir skógi klæddar hlíðar, hæðir og hálsa blása nú við manni auðnir: gróðurlítil svæði eða mel- ar. Það, sem var prýði lanasms, skjól og skjöldur annars gróðurs, er nú horfið. — Það þarf að klæða landið aftur. Þá verður það byggilegra, fegurra og veðráttu- farið betra. — Þetta kostar stari margra kynslóða. En hvað vora engjarnarT Lík- ar því sem þær eru nú. Ámar flæddu yfir þær í vatnavöxtum á nokkrum stöðum. Þeir biettir sýndu viðast hvar, að þar óx þroskameiri jurtagróður heldur en annarsstaðar- Þessa bendingu náttúrunnar hafa menn horft á í þúsund ár. En hve mikið er gert að því að leiða vatnið yfir engjarnar, láta það frjóvga þær og vökva? Nokkuð er gert til þess, einkum á síðustu áratugum, en það er hverfandi lítið í saman- burði við það, sem mætti gera. Er það annars eigi athugavert, að jöklar þeir er liggja á hálend- inu, hafa frá ómunatíð mulið sund- ur bergtegundirnar og amar tlutt ógrynni jurtanærandi efna til sjáv- ar? Að eins örlítill hluti þeirra efna hefir orðið engjunum að not- um. Meginhluti engjanna er sleg- inn, heyið flutt burtu og eigi einu sinni öskunni dreift aftur yfir engjamar. Á þennan hátt tæmist jarðvegurinn smátt og smátt að næringarforða. Þá eru túnin. fyrir 1000 áram. þau séu nær því stærð. Hvemig Þau voru engin Nú má ætla, að 4 fermílur að hafa þau verið ræktuð ? — Víðast' hvar með því að dreifa áburði yfir óbrotið land. En nú er búið að slétta af þeim nálægt 1250 dagsláttur, eða tæpa 400 hektara. num fyrstur hafa sléttað tún hér á landi, svo að nokkru munaði. Það var í Búðardal vestra. Þar hafa verið sléttaðar i túni um 10—12 dagsláttur á síðari hluta | 18. aldar. fMagnús var tæddur j 1732 og dó 1803). Stjórnin gatj út lagaboð fi776) um skylduslétt-1 ur á hverju býli. — En bæði það j dæmi Magnúsar og fleiri hafði lítil áhrif. Með framkvæmdum Torfa i ólafsdal fer þúfnasléttan fyrst að verða stórstigari. Hann byrjaði skólann 1880. Þaðan hafa komið | margir nýtir starfsmenn. Og j Torfi fær mönnum í hendur ný og betri verkfæri. Hann smiðar undirristuspaða svo hundruðum skiftir, 115 plóga, 93 herfi, 77 kerrur og 280 aktýgi- Þá lét hann og fyrstur smíða hina skozkui ljái. •— Það mun líka óhætt að segja, að enginn einn maður hafi stutt eins mikið að framförum jarð- yrkjunnar og Torfi. Framfarir i túnræktinni eru nú að verða almennar. Heyaflinn hefir lika aukist að miklum mun. Um 1880 var hann 380,000 hestar á ári, en nú er hann árlega 700,000 hestar. Þá er garðyrkjan. Hana hafa fornmenn stundað mjög lítið. Gísli Magnússon (f. 1621, d. 1696J sýndi með tilraunum norðan lands og sunnan, að ýmsar garðjurtir gætu þrifist hér til mikils hagnað- ar fyrir land og lýð. Þessu var því nær enginn gaumur gelinn. — Svo kom Björn prófastur Hall- dórsson (f. 1724, d. 1794). Hann starfaði í sömu átt, gerði víðtækari tilraunir og gaf út ágæt garðyrkju- rit. Af þessu varð lítill almennur árangur. Menn daufheyrðust enn í heila öld. Þá kemur Schierbeck landlæknir (1882). — Tilrauna- stöðin í Reykjavik byrjar starf sitt 1899 og tilraunastöð Ræktunarfé- lagsins 1903. Þessir nefndu ein- nu stöku menn og félög vinna í sömu átt. Og hvar er svo árangurinn af tveggja alda starfi? Vér ræktum sem svarar 3 skeppiun af jarðepl- um og 2 sk. af rófum á mann- Norðmenn rækta 2,4 tnr. og Þjóð- verjar 7 tnr. af jarðeplum á mann og ógrynni öll af rófum og öðram garðjurtum. — Vér ræktum nær eingöngu rófur og jarðepli. Það er óreiknanlegt, hve mikið væri hægt að spara kornkaup hér á landi, ef vér hefðum manndáð til að rækta svo mikið af garð- ávöxtum, sem hægt væri að nota í landinu. Það er nefnt áður, að skógarnir væru horfnir. Jón Þorláksson í Skriðu sýndi (um 1800), hvernig mætti rækta þá aftur. Trén i Skriðu og viðar sanna gildi starfs- aðferðar hans. En þau urðu að standa og vaxa í nær heila öld, áður en nokkuð var gert í sömu átt. Með tilraunum Ræktunarfé- lagsins er fyrst unnið á sama grundvelli. Þá eru húsakynnin. Hafa þau batnað? Torfbæjunum er að Nútíðar eldspýtur eru afleiðingar af 60 ára reynslu í eldspýtna tilbún- ingi á heimsmarkaðinum. EDDY'S “Silent Parlor” Eldspýtur ef rétt er haldið á og þeim strokið yfir hrufótt efni, er ábyrgst að gefi stcðugt og bjart ljós. The E. B. Eddy Company, Limited, HULL, CANADA Magnús Ketilsson sýslumaður fækka. Hús úr timbri og steini S ó Li S K I N. eins og þeir kitluðu það og það brosti. Og það er sagt, að það hafi Verið fyrsta bros í þessum heimi- Og þegar barnið brosti, sáust lautir fyrir utan munnvikin beggja megin neðarlega á kinnunum á því. Þessar lautir voru förin eftir fingurna á hinum englinum, þegar hann snerti það daginn áður. Svona er sagt, að spékopparnir og brosið séu til orðin upphaflega. Þið hafið tekið eftir því, hvað sumt fólk er fallegt, sem hefir spékoppa, þeg- ar það brosir. Margföldun mað 9. 987,654,300 9,876,543 977,777,757 Galdurinn er a.ð eins að bæta aftan við upphaflegu töluna einu 0 fyrir hverja 9. Að bæta við tveimur 0 er sama sem að margfalda með hundrað eða auka töluna hundrað sinnum, og sé hún svo dregin frá einu sinni, þá er hún aukin níutíu og niu sinnum. Ef margfalda á með þremur 9 (999), þá þarf að bæta við þremur 0, o.s.frv. Það er auðvelt að margfalda með sumum tölum, en erfitt með öðrum. Þið haldið kannske, að erfiðast sé að margfalda með 9, af því það er hæsta talan, en það er ekki. Setjum nú svo, að við ætlum að margfalda 34,875,695 með 9f þá er hægast að bæta aftan við það 0 og draga sv'o frá útkomunni mpphaflegu töluna: 348,756,950 34,875,695 313,881,255 Þegar við bætum núlli aftan við tölu, þá margföldum við eiginlega töluna með 10. Talan 9 er einum minni en talan 10, eins og við vitum. Þess vegna er það að margfalda með 10 og draga svo töluna sjálfa frá einu sinni sama sem að marg- falda með 9. Þessi aðferð er miklu fljótlegri ef t.d. á að margfalda með 99 eða 999 eða hvaða tölu sem er með eintómum 9- Setjum svo, að við eigum að margfalda 9,876,543 með 99; það verður srona: Islendingar fundu Ameríku. Gamalt handrit hefir fundist, sem skýrir frá því, að íslendingar hafi fyrst fundið Grænland 877, en Eirík- ur rauði hafi stofnað þar nýlendu 986. Þessi nýlenda var þar yfir 400 ár og sjást rústir þar enn þá af byggingunum. Islendingar á Græn- landi heyrðu frá þvi sagt af sjó- mönnum, að stórt land v’æri þaðan langt í vestur. Árið 1000 (sama árið sem kristni var lögtekin á íslandi) sigldi Leifur sonur Eiríks rauða til þess að leita að þessu landi. Með honum voru 35 manns. Sjóferðin var ekki löng, eins og sjá má ef litið er á landabréfið. Fyrst kom Leifur að eyju, líklega Nýfundnalandi, og kallaði hann það Helluland. Þaðan sigldi hann til Nýja Skotlands og nefndi hann það skógland, og loksins kom hann á land einhversstaðar við strönd Mas- sachusetts ríkis; það kallaði hann Vínland af því þar var fult af vín- berjum. Hann var þar heilan vetur, fermdi skip sitt með timbri og sigldi aftur til Grænlands; þar sagði hann eru a|S koma í staðinn, og heil þorp og bæjir byggjast á þann hátt. •— En svo þurfa kolin að fylgja með. Menningin er eigi nógu mikil til þess að breyta vatnsaflinu í raf- magn, í ljós og hita. Nú liggur nærri að menn króknl, et kol vanta. Sú umkvörtun heyrist ekki í gömlu torfbæjunum. Á landnámstíð ráku landsmenn sjálfir verzlunina. Þeir fluttui vörur frá landi og að. Eimskipa- félagið er nú að byrja með sin skip- Aðeins að það sé eigi of vel séð fyrir þægindum farþega og lestarúmið rýrt með því um of. Fiskiveiðar voru áður stundað- ar á opnum bátum. Utvegurinn var þá óviss. Seinna koma segl- skipin, vélabátarnir og gufuskipin með botnvörpumar. Aflinn vex þá líka að miklum mun. Utflutt- ar sjávarafurðir hafa aukist mjög mikið. En þrátt fyrir þennan mikla afla er þó vart hægt að fá harðan fisk. Biskuparnir á 18. öld fluttu árlega 250 vættir af harðfiski heim að Hólum, Nú má það gott heita, ef næst í 1—2 vætt- ir af hertum steinbít af Vestfjörð- um. Verzlunin var lítil fyr á tímum. Þá var mest hugsað um það, að heimilin væru sem mest sjálf- bjarga. Nú eru tímarnir aðrir; alt er keypt og alt er selt. Þá er og orðin mikil breyting á starfsháttum. Áður vora menn meira staðbundnir. jarðirnar voru setnar af sömu ættum mann fram af manni. Vinnufólkið var þá margt og störfin mörg til að vinna, svo að heimilin væra sem mest sjálfbjarga. Menn voru sendir á grasafjöll, til útróðra, eða til að sækja söl o. fl. Þetta leiddi til þess, að rnenn urðu duglegir og þrautseigir, fastir við heimilin og sveitina sina. Nú er öldin önnur. — Að koma eitthvað út í heiminn er nú talið lífsskilyrði fyrir yngra fólkið, “því heimskt er heimaalið barn.” Menn flytja úr einum stað í annan- Fjöldi fólks fer úr sveitunum í kaupstaðina. Verulegum heimil- um fækkar. Vinnufólkið er orðið fátt, en lausafólk margt. Það vinnur fyrir hærra kaupi, en “á þá frítt” nokkum hluta úr árinu;, sumt af því lifir þá aðgerðarlaust, en sumt lærir eitthváð, t. d. að dansa. — Við þetta verður los á þjóðlífinu. Margir eiga ekkert lieimili, sem þeir vilja starfa fyrir — enga sveit kæra. En hvort ætt- jarðarástin er komin á hærra stig, læt eg ósagt. En hvernig er mentunin? — Menn vita meira en áður, eru víð- sýnni. Áður var það aðallega sögufróðleikurinn, sem menn sótt- ust eftir. Nú virðist sú þrá vera að hverfa. •— Eg var nýlega stadd- ur í Reykjavík. Heyrði eg þá sagt að Jón sagnfr. Jónsson væri að halda sögufyrirlestra í háskól- anum. Þangað máttu allir koma. Eg fór þangað; bjóst eg við iullu húsi og þrengslum. Nei, ekki var það. — Þangað komu um 20 manns. Sagt var mér, að svo væri oftar. — Þetta er sogupjöðin gamla. — En á “Bíó” var húsfyllir á hverju kveldi- 1 skólunum læra menn margt. En vafasamt er, hvort vakmngin er eins mikil og lærdómurinn. — En þjóðin þarf um frami alt að læra að skilja hlutverk sitt. Hvað eigum vér frá eldri tím- um, er sýnir starf liðinna kynslóða, listfengi þeirra eða smekkvísi í byggingum eða öðru? Allmikið þesskonar hefir verið til. En hvernig er það varðveitt? Þjóð- menjasafnið hefir bjargað tals- verðu af því. En til skamms tima hafa menn ekki látið sig miklu skifta fornmenjarnar eða minn- ingar feðranna. Einn hefir rifið það niður sem annar hefir bygt. Flestir eiga hér óskift mál. Svo hefir blindnin verið mikil. — Átakanlegt dæmi er hér á Hólum. Kirkjan ein af elztu dómkirkjum á Norðurlöndum, hefir átt prýði- lega vandaðan búning, sem varð- veittist í henni fram í lbk 18. ald- ar — og að mestu fram um 1880. Nú er búið að rýja hana að mestu skrauti hennar. — Hverjiii hafa gert það? Biskup landsins gekk þar í broddi fylkingar með kápuna hans Jóns Arasonar. . Eigendur kirkjunnar, sýslunefndirnar hér norðanlands, fylgdu svo dæmi hans Þær létu mölva og brjóta margt af hinum innra og ytra Dtuiingi; vlö það fengu eldabuskurnar færi á að fullkomna eyðileggmgiuia. Nokkru var þó bjargað á Þjóð- menjasafnið. — Auðunarstofan, sem stóð hér í 5 aldir, var rifin á síðastliðinni öld. — Þetta er að- eins eitt dæmi þess, hve hirðulaus- ir menn hafa verið með að vernda minningu og störf feðranna. Ef menning og álit á að aukast og eflast hjá einhverju þjóðfélagi, riður á að vernda það, semi gert hefir verið til að efla gagn og heiður þess. Alt sem minnir á liðinn tíma, og vel hetir verið gert, á að vera mönnum heilagt. — Það á að vekja hvöt til meiri framsókn- ar, hvöt til að vinna eitthvað, sem líka sé þeSs vert að gevmast i stað þess að hverfa í djúp gleymskunn- ar. — Hólar eiga margar söguleg- ar endurminningar, en fá minnis- merki þess, sem gerst hefir- Mundi það hafa mikla þýðingu í menn- ingarlegu tilliti að endUrreisa sumt af því foma og fallna. Margt mætti enn tina til um fornt og nýtt. En tíminn leyfir það eigi. Tilgangurinn er aðeins sá, að minna á nokkur atriði. Vér vitum öll vel hvernig landið okkar er og hve ábótavant oss er í mörgu. En hvað ber framtíðin í skauti sínu? Á þessari þjóð að auðnast það að eflast og mannast, svo hún geti hagnýtt sér gæði landsins — ræktað það, notað fiskimiðin, breytt vatnskrafti i ijós, hita og vinnuafl, bygt snotur húsa- kynni, vegi og brýr — yfír höfuð að gera það, sem þarf, til að efla framleiðsluna og velliðan manna? Vist getur þetta orðið. En vér þurfum fyrst að hafa hugsjónir — hugsjónir, sem vér viljum allir leggja fram krafta vora til að vinna fyrir. Hlutverkin era mörg. Sé hvert þeirra trúlega unnið, getur það orðið einn stemn i byggingunni — stór eða lítill eft- ir ástæðum, en getur þó gert sitt gagn. Hér er verkeim tynr alia. Leiðtogamir eiga að marka leið- irnar, verkamennirnir að byggja veginn vel, og það á að halda bygg- ingunni áfrám, en eigi að rífa það niður, sem búið er að byggja. — Störfin era jafn þýðingarmikil, hvort sem þau eru unnin af háum eða lágurn. Það er talað um, að ráðherrann hafi eytt óþarflega miklu í símapeninga. En hvað er um það að tala fyrir þjóðarheild- ina í samanburði við það, að t. d. mjaltakonurnar, fjármennirnir eða þá húsmæðurnar vinna störf sín eigi sómasamlega. Þau störf eru margfalt þýðingarmein tynr þjóðfélagið en ráðherrastörfin. — í víngarði þjóðfélagsins er verk- efni fyrir alla — jafnt unga sem gamla, konur sem karla, fátæka sem ríka. Allir þurfa að vinna sameiginlega að framkvæmd ein- hverrar hugsjónar, að hverju mark miði, sem eflir hagsæld þjóðfélags- ins. Samfundir fleiri eða færri manna eiga að glæða ættjarðarást- ina, vekja hugsjónir, knýja fram nýja krafta og leysa bundin öfl úr læðingi. Hver einstaklingur hefir matt í sér til að vinna eitthvert gagn, skilji hann að eins hlutverk sitt. Að þessu markmiði eiga náms- skeiðin áð vinna- — Isafold. DODD’S KIDNEY PILLS, Lækna gigt, nýrnaveiki, bakverk og alla aðra nýrna «júkd4mt. The Dodds Medicine Co., Lt.d, Toronto, - Canada

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.