Lögberg - 28.10.1915, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 28. OKTÓBER 1915.
Te-borðs hjal No. 3
yldi nokkur skynsöm húsmóöir nú á dögum vilja kaupa
hveiti í bréfpokum? eöa lausar sódakökur? eöa smjör eins
og það kemur úr strokknum?
Haldiö áfram með sömu hugmyndina, sem varðar mat-
vörur þangaö til komið er að þeim hlut, sem mest hætta
er búin af lofti og ryki—það er Te.
1 mörg ár hefir
BLUE MBBON
verið mælikvarði góðs tes vegna ágætis síns.. Vér höfum
ásett oss að halda því og fulkofna enn meir ef mögulegt er
þennan mælikvarða. Þess vegna hafa eigendur Blue Rib-
bon tes tekið upp beztu umbúðir, sem þekkjast. Fáðu þér
pakka. Þegar þú gerir það, kaupirðu
Spurðu matvörusalann þinn.
Or bænum
G. Thomas gerir svo vel við
klukkur og gullstáss að enginn
gerir betur og enginn ódýrar.
Þið munið hvar hann er. Hann
er í Bardals byggingunni.
John Gillis kom norðan frá Is-
lendingafljóti fyrir helgina. Hann
lét vel yfir líðan fólks, en fremur
kvað hann lítið tækifæri til sölu á
hljóðfærum í ár.
Ef eitthvað gengur að úrinu
þínu þá er þér langbezt að senda
það til hans G. Thomas. Hann er
i Bardals byggingunni og þú mátt
trúa því aö úrin kasta ellibelgn-
um í höndunum á honum.
Guðsþjónustur á sunnudaginn 31.
Okt. 1915: í Wynyard kl. 11 f.h. og
sunnudagsskóli á eftir; i Kandahar
kl. 2 e.h. Allir velkomnir. H.S.
Vinnukona getur fengið vist á á-
gætu heimili fyrir hátt kaup. Stöð-
ug vinna. Ritstjóri þekkir staðinn
og getur eindregið mælt með honum.
Komið og spyrjist fyrir.
“Dorkas-félagið,” sem er félag
ungu stúlknanna í Fyrsta lút. söfn.,
halda “Holloween Social" á föstu-
dagskveldið kemur í sunnudagsskóla-
sal kirkjunnar. Verður þar ýmis-
legt til skemtunar. Norðursafnaðar-
stúlkurnar hafa orð á sér fyrir það,
að standa þannig fyrir samkomum
og heimsóknum, að vel fari úr hendi,
og mun svo v'erða í þetta skifti. Að-
gangur er ókeypis og allir meira en
velkomnir.
Ásmundur Jóhannsson kom heim
aftur norðan frá íslendingafljóti á
þiðjudaginn. Stóhríð hafði verið
þar nyrðra á mánudaginn og kom
það sér illa, því menn voru þar að
þreskja og eiga þriggja vikna þresk-
ingu eftir. Almenn v'ellíðan fólks
norður frá og enginn kvíði fyrir
vetrinum. Viðtökur hinar beztu og
íslenzkustu. Mr. Jóhannsson var í
þeim erindum að kaupa við til elds-
neytis. Hann þarf á miklu að ha!da,
þvt hann á nokkur stórhýsi í bænum.
Gjöf til Betel frá kvenfélagi Gimli
safnaðar, tuttugu og fimm dalir. Hér
kvittað fyrir með þakklæti. — Jónas
Jóhannesson.
Farist hefir fyrir að geta þess, að
þau Runólfur Hinriksson og Lilian
Claribel Magnússon voru gefin sam-
an í hjónaband af séra N. S. Thor-
lákssyni þ. 8. Sept., að heimili Mr.
og Mrs. Hardy Tallman hjá Kanda-
har, Sask. Brúðurin er fósturdóttir
Páls Magnússonar kaupmanns í Sel-
kirk, en systir Mrs. Tallman og
þeirra systra þar, Helgu konu Eiríks
Helgasonar og Valgerðar konu Jó-
hanns Stefánssonar. Brúðguminn er
sonur Hinriks Jónssonar í Selkirk
og er “motor”-maður á rafmagns-
brautinni milli Winnipeg og Selkirk.
Hin ungu hjón búa í hinum síðar-
nefnda bæ.
Eins og mönnum er kunnugt, verð-
ur landi v'or Árni Eggertsson í kjört
í framkvæmdarráð bæjarins í haust.
Er vonandi að íslendingar geri alt,
sem í þeirra valdi stendur til þess að
tryggja kosningu hans. Um það er
meira vert en flest annað, að vel sé
með fé bæjarins og haganlega farið,
og er það öllum ljóst, hversu mikill
hagfræðingur Ámi er. Að líkindum
hefir aldrei neinn setið hér í bæjar-
stjóm. sem meira fé hefir sparað
bænum en hann, þótt tíminn væri
stuttur. Það ætti ekki að þurfa að
minna landann á að gera sitt ítrasta
til þess að honum sé kosningin vxs,
Hann opnar skrifstofu (committee
room) á mánudaginn að 696 Sargent
Ave. við hornið á Victor St.r. Þang-
að geta þeir komið til skrafs og
ráðagerða, sem eitthvað vildu til
mála leggja.
Sigurður Sigurbjörnsson frá Leslie
var á ferð í bænum á laugardaginn í
verzlunarerindum. Hann fór aftur
heimleiðis á mánudaginn; var hann
að kaupa land í grend við sig.
íslenzk vinnukona getur fengið
stöðuga vist hjá íslenzku fólki á á-
gætis heimili í bæ. Ritstjóri vísar á.
Amljótur Olson frá Gimli kom til
bæjarins á föstudaginn og fór heim
samdægurs.
Eg hefi nú nægar byrgðir af
“granite” legsteinunum “góðu”
stöðugt við hendina handa öllum,
sem þurfa. Svo nú ætla eg að biðja
þá, sem hafa verið að biðja mig um
legsteina, og þá, sem ætla að fá sér
legsteina í sumar, að finn mig sem
fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist að
gera eins v'el og aðrir, ef ekki betur.
Yðar einlægur,
A. S. Bardal.
Or bænum og grendinni............
Séra Carl Olson kom vestan trá
Argyle á þriðjudaginn. Var hann
þar á áttunda afmæli Immanuels-
safnaðar. Tvær guðsþjónustur
voru fluttar, önnur á ensku og
hin á íslenzku og flutti séra Olson
báðar ræðurnar. Enn fremur var
haldin bamaguðsþjónusta og töl-
uðu þeir þar báðir séra Friðrik og
séra Carl. Séra Friðrik, prestur
safnaðarins, stýrði báðum guðs-
þjónustunum.
Á mánudagskveldið var haldinn
samsöngur og fluttar ræður.
Söngurinn var ágætur. Séra Frið-
rik Hallgrímsson flutti þar ræðu á
íslenzku og séra McCloud aðra á
ensku. Séra Olson hélt tvær ræð-
ur, aðra á ensku, hina á íslenzku.
Snjór sagði séra Olson væri
svo mikill að talsverðir skaflar
væru og ófærð. Uppskera ágæt;
allir glaðir og ánægoir. Pottx
honum einstaklega skemtilegt að
heimsækja séra Friðrik og konu
hans.
G. Davíðsson frá Islendingafljóti
var á ferð á mánudaginn. Hann v'ar
að kaupa sér til fiskiútgerðar og
býst við að leggja af stað út á vatn
bráðlega. Hann sagði engar fréttir
aðrar en þær, að V. Sigurgeirsson í
Mikley hefði nýldga keypt fólks-
flutningabát af Sveini Þorvaldssyni,
og hefir Vilhjálmur því tvo báta til
fólksflutninga.
G. Thomas hefir nokkur 17
steina úr, sem hann selur með
hálfvirði. Hann er í Bardalsbygg-
ingunni.
PÓSTSPJÖLD með íslenzka flagg-
linu ('þrílita fánanum hefi eg gefið
út og sel fyrir 5c. hvert, 6 fyrir 25c.
enn meiri afsláttur gefinn, ef keypt
er fyrir $1.09 eða meira. Spjöldin
eru vönduð og fáninn fyrirtaksfagur.
Sendu mér pöntun fyrir nokkrum
spjöldum, það er óhætt, allir vilja
eiga þau.
Ólafur S. Thorgeirsson.
678 Sherbrooke St., Winnipeg.
Fundur verður haldinn í samkomu-
sal ísl. skólans á horni Wellington og
Beverley stræta á mánudagskveldið
kemur til þess að ræða um undir-
búning undir samkomu í sambandi
við afmæli Matth. Jochumssonar.
Óskað eftir, að sem flestir komi.
Ætlast til að samkoman verði almenn
án tillits til nokkurs flokkaágreinings
í nokkurri mynd.
Barnastúkan heldur engan fund
næsta laugardag, en í stað fundar
verður gamanleikur kl. 7 til 8.30 það
kveldið á Goodtemplara húsinu.
Allir boðnir og velkomnir að koma
og skemta sér með börnunum. Börn-
in hafi grímur með sér.
Þórarinn Guðmundur Þorkelsson
andaðist í Selkirk hospitalinu fyrra
sunnudag og var jarðsunginn 19. þ.
m. af séra Steingrimi Thorlákssyni
frá íslenzku kirkjunni. Banamein
hans var lífhimnubólga; var hann 58
ára að aldri. Ekkja hans er Malina
dóttir séra Siggeirs Pálssonar prests
að Skinnastöðum.
Séra N. Stgr. Thorláksson var í
bænum á miðvikudaginn. Hann
kvað siðbótafélagsdeildina í Selkirk
vera að bera ráð sín saman um það
hv’ort ekki væri nein ráð til að af-
nema vínsölu þar í vetur, fyrir þá
sök að hermannastöð verður þar.
—Séra Steingrimur lofaði góðfús-
lega að muna eftir Sólskini og senda
því línu einhvern tíma.
Munið eftir því, að allir böglar,
sem fara eiga til hermananna, eru
teknir burðargjalds og kostnaðar-
laust. Að eins þarf að skrifa á þá
hvern um sig til hvaða einstaklings
þeir eiga að fara og koma þeim til
St. John’s Ambulance Corps, fyrir
næstu helgi.
Til Islendinga!
Þeinij sem enn þá ekki hafa keypt rafmagns eldavél mína,
gefst enn þá kostur á að kaupa hana eða panta hjá sjálfum mér
eða umboðsmönnum mínum :MARSHALL, WELLS, SCHILL-
INGS & SON, Winnipeg. Þessar eldavélar eru viðurkendar þær
beztu á markaðinum af öllum, sem hafa reynt þær. Verðið er
eftir stærð og gerð, frá $7.00 til $75.00; borgunarskilmálar eftir
samrtingum.
Leitið frekari upplýsinga til mín.
PAULJOHNSON,
Phone Garry 2379. 761 WlUiam Ave. WINNIPEG
P.S.—Ennfremur geri eg rafmagns leiðingar, “plumbing” og
gufu-upphitun, og allar viðgerðir þar að lútandi.
PAXJIí JOIINSON.
TOMBOL.A
OG
DANS
verður Kaldin undir umsjón stúkunnar Skuld, í Good-
templara húsinu
Mánudagskvöldið 1. nóv- 1915
Forstöðunefndin hefir áformað að urdirbúa þessa tom-
bólu svo að hún verði sú lang besta sem haldin
hefur verið.
Draettiinir eru aliir nýjir og verðmaetir. Nokkur stórfélög borgar-
innar hafa stutt þar til mjög heiðarlega, t d.
Canada Bread Co., brauð ...............................$5.00
Western Packing Co., 2 svínslæri...................... 4.00
Ogilvie Milling Co., hveitisekk, (98 pd.).............. 3.25
Codville & Co., Jelly Powders og fl....................10. X)
Ideal Cleanser, vörur................................. 4.00
Hazelwood Co., Biscuits............................... 3.00
Western Canada Flour, 2 hveitisekki (98 pd. hver)...... 6.50
Paulin Chambers, vörur.................................. 3.00
Dyson Coffee Mills, vörur..........................• ... 3,00
og margt annað þessu líkt.
Ætlast er til að dansínn byrji kl. 9.30 og hljóðfæraslætt nnm *týiii Ficí. Ih
Johnston.
Inngangur og einn dráttur 25c. Byrjaríkl. 7.30
Jón Friðfinnnson tónskáld kom heim
aftur frá Lundar fyrra þriðjud. eftir
ir mánaðar burtuveru. Var hann þar
við söngkenslu og lét vel af ferðinni.
Skuldar tombólan á mánudags-
kveldið mun opna augun á fólkinu;
sjá auglýsinguna.
Silfurbrúðkaup héldu þau
hjónin Jón S. Johnson og Guðný
kona hans á Baldur, Man., 21. þ.
m. Flestöll hjúskaparár sín hafa
þau dvalið í Argylebygð, og síð-
ustu árin allmörg á Baldur. Hefir
Jón stundað þar skósmíði. Um
kveldið heimsóttu þau allmargir
vinir þeirra og þágu þau góðar
gjafir, bæði af bömum sínum og
gestum.
Þið vitið það að G. ,Thomas
gerir við klukkur og úr betur og
ódýrar en nokkur annar. Vinnu-
stofan hans er í Bardals bygging-
unni.
Magntis Markússon fór út í
Narrows bygðir á þriðjudaginn og
kemur aftur á laugardaginn.
Samkoman fyrir veiku konuna
sem haldin var í Goodtemplara-
húsinu á mánudaginn, var allvel
sótt. Séra Friðrik Bergmann hélt
þar ræðu um stríðið, og lagði út
af orðunum eða enska málshættin-
um “Might is right” fmátturinn
er réttur”. Hann lýsti því vel og
réttilega hversu skaðleg sú kenn-
ing væri, en hversu hætt öllum
væri við því að fara eftir þeirri
kenningu. Hversu mátturinn og
valdið og aflið væru notuð til þess
að koma máltxm sínum fram í hví-
vetna, hvort sem þau væru rétt eða
röng. Benti hann á það t. d.
hversu hætt manni væri við því
sem fátækur hefði verið og auðg-
ast af einhverjum ástæðum að
beita auðvaldi sínu í þá átt, sem
honum virtist ósæmilegt áður en
hann auðgaðist.
Selkirk, Man., 26. Okt. 1915.
Kæri vin, dr. Jóhannesson!
Bið þig að gera svo vel að setja í
blaðið það sem fylgir með.
Hefi ekki hitt þig síðan þú tókst
við blaðinu og því ekki haft tæki-
færi til þess að óska þér til ham-
ingju. Hefði að vísu getað verið bú-
inn að því skriflega, eins og eg geri
nú. Já, mér þótti vænt um, að þú
tókst við. Og eg óska þér Iíka til
blessunar með barnablaðið, sem
byrjað er að koma út í Lögbergi og
þú mátt eiga hugmyndina að. Mint-
ist einu sinni á það, þegar eg átti við
barnablað, hve misvitrir við hefðum
verið, að hugsa að eins um blöð fyr-
ir fullorðna, en látið börnin eiga sig,
þar sem þó augljóst væri, að ef börn
vor lærðu ekki að lesa ísl. blöð, þá
ræki að því, að engir yrðu til þess
að Iesa þau. Er viss um, að barna-
blaðið aflar Lögb. vinsælda.
Vinsamlegast.
N. Stgr. Thorl.
DOMINION.
“The Misleading Lady”, alveg
nýr leikur, verður sýndur í fyrsta
skifti hér næstu viku. “The
Misleading Lady” er einkennileg-
ur og frumlegur gleðileikur, mjög
hlægilegur.
Jarðarávextir til
Vetrarins.
Kaupið nú. Verðið hækkar
óðum. Við höfum nú á járnbraut-
arstöðinni til sölu það sem hér er
talið:
Eitt vagnhlass af kálhausum, lc.
pund. hjá vagninum, íyíc. pundið
heim flutt, þegar keypt eru 200 pd
eða þar yfir. Vagnhlass af ágæt-
um Alberta kartöflum, 75c. mæl-
irinn fbush.J við vagninn, en 80c.
heimflutt, ef 5 mælar eru keyptir
minst.
Blóðrófur eru 75c. meel. Smá-
rófur (carrots) 75c. mæl.. Hvit-
rófur (turnips) 50c. mœlirinn—alt
heim flutt.
Handa þeim, sem úti á landi
búa skipum við vörum út í v'agn
til flutnings fyrir sama verð og
sendum hvert sem er.
D.G.McBean
245 Main Street
Phone Main 1678 Winnipeg
Til fólksics úti á landin .
Nú er tími til þess að selja
hænsnin ykkar; akurhæsn, gæsir
og aðra alifugla. Biðið ekki til
j hátíðanna. Komið nú þegar; þið
getið fengið betra verð einmitt
nú. ViS þurfum a5 kaupa slátr- aba fugla, sem eru sérstaklega
valdir, með haus og löppum;
sveltið þá áöur en að. þeim er slátr-
Verö er sem hér segir:
Hæns I5-I6c
Gæsir og endur. 15-I6c
Tyrkja I8-20c
Hænur og hanar. I2-I4c
Þetta verð helzt stöðugthéðan
af. —• Við erum viljugir að borga
þetta vei"ð eða selja fyrir ykkur
gegn ómakslaunum. En þegar þið
sendið, Verðið þið að taka það
fram, hvort það sé til umboðssölu
eða það sé selt okkur.
Það er nokkurs konar samsæri
útbúið af einum gestanna að snæð-
ingi. Honum lendir saman við eina
af stúlkunum við borðið og þau
veðja. Hún er trúlofuð og unn-
usti hennar með henni, en samt
veðjar hún um það að hún geti
látið annan gestanna biðja sín.
Allir hinir gestirnir nema sá sem
á að leika á og unnustinn komast
í leikinn.
1 stað þess að líta á þetta sem
gaman, líta þessir menn báðir á
það alvarlega.
Sá sem narraður var til að biðja
stúlkunnar segir henni frá því að
hann sé virkilega ástfanginn.
Hann eltir hana svo langt í burt
þangað sem hún átti heima og hún
verður einnig ástfangin í honum.
Leikurinn er regluleg hlátur-
uppspretta frá byrjun til enda, og
hlýtur að draga að sér fjölda
áhorfenda.
SAFETY
Öryggishnífar
skerptir
RAZORS
Ef þér er ant um að fá góða
brýnslu, þá höfum við sérstaklega
gott tækifæri að brýna fyrir þig
rakhnífa og skæri. “Gilett’s” ör-
yggisblöð eru endurbrýnd og “Dup-
lex” einnig, 30c. fyrir tylftina; ein-
föld blöð 25c. tylftina. Ef rakhníf-
ur þinn bítur ekki, þá láttu okkur
sýna þér hversu auðvelt það er að
raka þegar Vér höfum endurbrýnt
blöðin. —• Einföld blöð einnig lög-
uð og bætt. — Einnig brýnum við
skæri fyrir lOc.—75c.
The Razor & Shear Sharpening ,Co.
4. lofti, 614 Builders Exchangr Grinding Dpt.
33^5 Portage Are., Winnipeg
1 Bardals Block iinnið þér mig,
enn á ný reiðubúinn til að gera alt
gull og úrsmíði eins vel og ódýrt og
hægt er. Gömlu viðskiftavinir mínir
ættu ekki að gleyma þessu.
G. Thomas.
Séra Carl Olson frá Gimli kom til
bæjarins í vikunni.
Þess hefir láðst að geta að
herra Leo Johnson, sonur W. G.
Johnson, útskrifaðist af alþýðu-
skólanum í vor með heiðri. Hann
er 14 ára að aldri og gengur nú
á miðskóla hér í bænum.
Eg hefi byrjað á kveld-satuna-
skóla. Umsækjendur snúi sér til
Miss Steinson.
2 Union Bank,
Cor. Sargent & Sherbrook.
OVERSEAS
LINIMENT
hefir beztu meðmæli við eftirfarandi sjúkdómum:
Sfnagigt Taugaf igt
Lendagigt Kverkabólgu
Vöðvagigt Fótaverk
Höfuðverk Ágætt fyrir al'a í-
Hálsbólþu þróttamenn sem
Tognun geta meitt sig eða
Mari tognað.
Vitnisburðir berast daglega frálækn-
uðu fólki í Toronto, Ontario, þar sem
áburðurinn er búinn til.
Vér látum hann í flöskur í Winnipeg
fyrir fólk í Vestur Canada.
Með því að vér vitum að áburðurinn
befir oft og mörgum sinnum stöðvað
brautir samstundis getum vér óhikað
mælt með honum til lesenda þessa
blaðs.
Með þeim skilyrðum að ef þér eruð
ekki ánægðir eftir að þér hafið reynt
áburðin þá getið t>ér skilað glasinu aft-
ur og fengið peninga yðar til baka taf-
arlaust.
Verð $ 1.00 flaskan
6 flöskur fyrir $5.00. Ðorgist fyrir ram.
Sent hvert sem vera vill.
OVERSEAS LINIMENT
WESTERN AGENCY
P. O. Box 56, Winnipcs;, Can.
Geiið svo vel að nefna Lögberg þegar
þér sendið pantanir.
PANTAGES.
Hver sem ekki er kunnugur
íþróttafélögum yröi alveg forviöi
ef hann vissi hversu fáir eru þar,
sem fimir mega teljast. Aöeins
fáeinir sýna verulega list. En
einn þeirra beztu kemur hingaö og
leikur á Pantages næstu viku, og
sýnir það sem allir hljóta að dáöst
aö á þessu velþekta leikhúsi.
Sjálfir kalla þeir sig heimsins
mestu loftleikara og eru fjórir aö
tölu.
Sannleikurinn er sá að fáir munu
geta neitað því að þeir beri sjálf-
um sér réttan vitnisburð. Þeir
taka öllum fram sem héjr hafa
þekst.
Næsta vika verður óviðjafnanleg
skemtivika. Ágætir hljómleikar
æfðra stúlkna. Það sem þær leika
heitir “Ástarleikur”. Sjálfar eru
l>ær frábærlega fagrar og fram-
koma þeirra í öllu aðlaðandi.
Enow Wilson verður þar einn-
ig og sýnir ágætan gleðileik ásamt
félögum sinum. Mr. Wilson
hefir leikið aðalhlutverkin í eins
vandasömum leikjum og “The
Burgmaster”, “Land of Nod”,
“Anna Held Company”, “Flirting
Princess”, “Broadway Honey
Moon” o. s. frv.
Harry La Foy byrjar sýninguna
með sinni venjulegu smld og
Jarvis og Harrison leika samtal,
er nefnist “Flirtology”.
ORPHEUM
Það verður þrent sem aðallega
dregui að sér athygli manna á
Orpheum næst viku. Hvert fyrir
sig ágætt. “Mysteria” er eitt af
því og er alveg nýr lekur hér.
“Mysteria” er nafnið sem leiknum
var gefið vegna þess, hversu mikl-
ar missýningar eru þar. Þessar
Norsk-Ameríska
línan
Ný (arþegaskip með tveimur skrúfum
“KRIS1IANAFJORD” og
“BERGENSFJORD”
í förum milli NewYork og Bergen í Nor-
egi. Frá Bergen eru tíðar ferðir
til Islands.
Fardagar frá New York:
“Bergensfjord” 16. okt.
“KrÍ8tianafjord’’ 6. nóv.
“Bergensfjord” 27. nóv.
“Kristianafjord” Il.des.
Skipin fara 250 mílur norður af ófrið-
ar svæðinu og fara frá New York til
Bergen á minna en 9 dögum.
Um fargjöld, lýsingar með myndum,
og s.f.v. ber að leita til.
HOBE & CO„ G.N.W.A.
123 S. 3rd Street, Minneapolis, eða
H. S. BARDAL,
892 Sherbrooke Street, Winnipeg.
C. H. DIXON,
Lögfrœðingur, Notary Public
Lánar peninga, Rentar hús,
Innheimtir skuldir
265 Portage Ave.
Tals. M 1734 Winnipeg
Fíolín smiðir.
ÍF. E. Hanel snill-
ingur sem fíólín-
smiður.
Býr til bæði fíolín og
Cellos eftir pöutun.
Gerir við gömul hljóð-
far ri svo vel aÖ þau verði
finsrgný. Vinnur fyrir frægustu
listamenn og hefir meðmæli þeirra.
302 Birks Blrtgr., Winnípeg
Tals. M. 1848
Næsta sunnudagskveld, 31.
október eftir hádegi byrjar starf-
semi aftur í Alþýðusalnum í St.
John’s háskólanum á hominu á
Church stræti og Salt stræti.
Þetta er sjötti vetur stofnunarinn-
ar. Fara þar fram ræður og fyr-
irlestrar, auk skemtana.
Næsta vetur hafa verið fengnir
beztu ræðumenn bæjarins, til þess
að tala um áhugamál bæjarbúa,
svo sem félagsmál, fjármál, at-
vinnumál og mentamál. Háskóla-
kennararnir hafa lofað að halda
ræður og skýra þær með mynd-
um.
Prófessor W. F. Osborne frá
Manitoba háskólanum verður fyrsti
ræðumaðurinn. Næsta sunnudag
eftir hádegið kl. þrjú flytur hann
fyrirlestur um “Frægð og fall
Napoleons”.
Þetta verður einn hinna allra
beztu fyrirlestra sem nokkru sinní
hefir verið fluttur í bænum og ættu
allir að nota sér það tækifæri.
Að lokinni ræðu verður mönnum
Ieyft að bera fram spumingar, eins
og vant er, og þeim verður svarað.
Eins og í fyrra verður hljóð-
færasláttur og söngur í Alþýðu-
salnum á hverjum sunnudegi kl.
8.30 til 9.30 að kveldinu. Munið
eftir að staðurinn er í St. John’s
listaskólanum.
Næsta sunnudagskveld * sjá
enskumælandi menn xxm hljóðfæra
sláttinn, en sum sunnudagskveld
og síðdegi verður þar annara
þjóða fólk.
Gleymið því ekki að koma næsta
sunnudag, bæði eftir hádegið og
að kveldinu og koma með vini
yðar og kunningja.
Aðgangurinn er ókeypis að öll-
um samkomunum í Alþýðusalnum.
missýningar eru þó vegna óná-
kvæmrar eftirtektar, en ekki af
ásetnings blekkingum.
Nonette með fiolin sitt er ann-
að aðdráttaraflið. Hún var frá-
bærlega vinsæl þegar hún var í
Winnipeg síðast.
Nonette lærði hjá gömlum
frönskum kennara í Brooklyn, síð-
ar lærði hún hjá hinum fræga
belgiska fiolinleikara Ýsaye.
Swan Wood hefir altaf verið
talin meðal allra fremstu dansara,
og Miss Florence Burne og Miss
Jessie Roggo fyrirtaks dansarar.
Þær koma fram í dansflokki sem
8 stúlkur eru í. [
Campbell systumar sýna suður-
rikja stofu sina í leiknum “Heima”
Þær eru aðdáanlegir Ieikarar og
vekja altaf skellihlátur áhorfend-
anna, sem endist leikinn út. (
“General” Edwin Lavine, sem
er kominn heim úr stríðinu, er
maður sem hefir verið hermaður
alla sína æfi og er það enn. Þeg-
ar hann kemur einhversstaðar við
í sambandi við það, þá er hann í
essinu sísu.
Lew Hawkins hefir komið til
Winnipeg áður, og var sérstaklega
vinsæll. Hann er svo fær í sinni
list að fáir eru taldir lremn.
Flugleikararnir sýna íþrótt sýna
sem er svo undra verð í köflum að
mönnum þykir jafnvel nóg um.
ITALS. G. 2252
Royal Oak Hotel
GHAS. GUSTAFSON, Eigandi
Eina norrœna hótelið í bænum.
Gisting og máltíðir $1.50 á dag
Sérstakar máltíðir 35c.
Sérstakir skiln álar fyrir stöðuga gesti
281-283 Market St., Winnipeg
Eruö þér reiðubúnir
aö deyja?
ef ekki, þá finnið
E. H. Williams
Insurance Agent
#06 tiindsay Block
Phone Maín 2075
Umhoðsmaöur fyrir: The Mut-
ual Gifp of Canada; The Ðominion
of Canada Guar. Accident Co.; og
og einnig fyrir eldsábyrgöarfélög,
Plate Glass, BifreiSar, Burglary
og Bonds.
Hiti í flöskum.
Hiti er þægilegur til þess að
lækna ýmsa lasleika, svo sem: tann-
pínu, taugagigt, krampa eða þraut-
ir sem djúpt liggja og hvaða tegund
sem er. Hiti linar allar þess konar
þrautir.
Vér höfum fengið nýjar birgðir af
pokum eða flöskum til þesskonar
nota (Hot Water BottlesJ. Þeir eru
mjög þægilegir fyrir þá, sem fót-
kaldir eru.
Vér höfum einnig til sölu allskon-
ar aðrar vörur úr leðurlíki.
Vér seljurn stólpípur og sprautur,
fll áhöld í sjúkrastofu o. fl.
FRANKWHALEY
llreemptioit Dmggxst
Phone Sho>-br. 258 og 1130
Horni Sargent og Agnes St.
Matreiðslu - stór
úr járni og stáli
Nýjar—á öllu veröl.
$1.00 við móttöku og $1.00 á vlku
Saumavélar, brúkaöar og nýjar;
mjög auðveldir borgunarskilmálar.
Aliar viögerðir mjög fljótt og vel af
hendi leystar. pér getið notað bif-
reið vora. Phone Garry 821.
J. E. BRYANS,
531 Sargent Ave., Wlnnipeg.
H. EMERY,
horni Notre líanxe og Gcrtie Sts.
TALS. GARRY 48
Ætlið þér að fiytja yður? Ef
yður er ant um að húsbúnaður
yðar skemmist ekki 1 flutningn-
um, þá finnið oss. Vér leggjum
sérstaklega stund á þá iðnaðar-
grein og ábyrgjumst að þér verð-
ið ánægð. Kol og viður selt
lægsta verði.
Baggage and Express
Lœrið símritun
Lærið simritun; járnbrautar og
verzlunarmönnum kent. Verk-
leg kensla. Engar námsdeildir.
Einstaklings kensla. Skrifið eft-
ir boðsriti. Dept. “G”, Western
Pchools, Teleerraphy and Rail-
roading, 607 Builclers’ Excliange,
Winnipeg. Nýir umsjónarmenn.
Eldiviður
Allslconar e'diviSuródýr, góö afgreiðsla
Fæat i «tór- og amáaölu. Sératök kjör
fyrir stórhýri,
Cor. Williaim & Tecumseh
Hringið
upp
Garry
4572