Lögberg - 20.07.1916, Qupperneq 1
Peerless Bakeries
Heildsöluverzlua
Búa til beztu tegundir af sætabrauði. Ekkert sparað
til að hafa það sem ljúffengast. Giftingar kökur búnar
og prýddar sérstaklega vel af manni sem er meistari íþeirri
ðn. Kringlur og tvíbökur einnig til sölu. Pantanir frá
verzlunarmönnum út um landið fljótt afgreiddar.
c. HJALIVIARSON, Eigandi,
1 1 66-8 Ingfersoll 8t.
Tals. G. 4140
i.
ÞETTA PLÁSS ER
TIL SÖLU
29. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FfMTUDAGINN 20. JÚLÍ 1916
NUMER 29
ENGLENDINGAR HAFA TEKIÐ 12,000 FANGA
SÍÐAN 1. JOLI. MÓÐVERJAR Á UNDANHALDI
Rússar taka þrjár járnbrautir sem liggja inn í
Ungverjaland. Ungverjar krefjast sérstaks
friðar. Linsingen herforingi Þjóðverja verð-
ur að hörfa með lið sitt yfir ána Lipa. Rúss-
ar taka 13,000 fanga og 30 fallbyssur. Kur-
opatkin hershöfðingi Rússa og Hindenberg
mœtast.
Bandamenn hafa inxniö stöSugt
á öllum hliSum hersvæSanna siöan
í vikunni sem leið, þott hvergi,hafi
veriö eins grimmar orustur né stór-
ir vinningar og næstu viku á undan,
og ekkert gerst sem verulegum stór-
tíðindum saeti.
Rússar hafa unnið meðfram
Kirlibaba-Marma'ros jámbrautinni
og hafa nú náð á srtt vald fjórum
járnbrautum sem mikils virði eru
og liggja inn í Ungverjaland. Hef-
ir þegar komið svo mikill óhugur
í Ungverja að flokkur hefir mynd-
ast þar sem krefst sérstakra friðar
samninga við Rússa.
í Riga héraðinu hafa Rússar
herjað á óvini sína af miklu afli og
unnið talsvert á, en ekkert til neinna
úrslita.
Linsingen hershöfðingi Þjóðverja
hefir hörfað með lið sitt yf:r ána
Uipa, og er það talið mikils vert
fyrir Rússa, því með því kveða þeir
sér það í lófa lagið að ráðast á
Lemberg.
Á vestur herstöðvunum hefir
bandamönnum einnig veitt b'etur1 ekki frétt emn.
yfirleitt. Þjóðverjar hafa fært her-
línu sína allmikið til baka og þar af
leiðandi bæði tapað af þvi landi,
sem þeir höfðu tekið og sýnt það
að þeir treystast ekki til að veita
nægilega mótstöðu þar sem þeir
voru.
Engleddingar hafa hertekið 12,-
öoo manns síðan 1. júlí.
Yfir höfuð er þannig háttað að
engin stór tíðmdi hafa gerst, síð-
an blaðið kom út seinast, en sókn
hefir verið af höndum bandamanna
og nokkrir vinningar allstaðar, en
vöm og tap á hina hliðina, eftir
fréttum að dæma. Á sunnudaginn
hertóku Rússar 13.000 Austurríkis-
menn og 30 fallbyssur, en á mánu-
daginn lenti þeim saman í Dvína
héraðinu Kuropatkin hershöfðingja
Rússa og Hindenbtirg. Kuropatkin
er nafnkutmur úr Japana stríðinu,
en Hindenburg fyrir þann mikla
sigttr er hann vann á Rússum i
fyrra. Um úrslitin milli þeirra er
Stórkostlegur bruni.
Eldur kom upp nýlega i Grikk-
landi þar sem Totoi skógur heitir.
Brann skógurinn allur frá jaðri til
jaðars, og var það stærsti og feg-
ursti skógur í landinu. Margar
byggingar brunnu einnig; þar á
meðal sumarhöll Constantinusar
konungs, konungur var staddur i
skóginum á bifreið þegar bálið
barst þangað og vissi hann ekki
fyrri til en bálið var komið um-
hverfis hann. Brá hann við tafar-
laust og stökk fótgangandi út fyr-
ir eldinn og bjargaðist þannig —
skyldi bifreiðina eftir. Ejöldi fólks
fórst í eldinum og þar á meðal
ýmsir leiðandi menn.
Skaðinn er metinn á 40,000,000
franka.
Er sagt að eldurinn muni hafa
kvíknað af því að ferðamaður hafi
kastað vindlingsstúfi með eldi og
hafi kviknað í þurru grasinu.
Manntjón og skemdir
Vatnavextir eru meiri í Rauðánni
i ár en dæmi séu til um langan ald-
ur. Hún hefir flóð yfir bakka viða
og stórir landflákar liggja til og frá
undir vatni. Þannig eru 20,000
ekrnr af akurlendi undir vatni í
grend við Davenport, og uppskera
þar gersamlega eyðilögð. Margir
hafa druknað í sumar í Rauðánni
og þeim sprænum sem í hana
renna.
Jóhannes S.Thorláksson
fallinn.
Nýr sjúkdómur. Úrskurður Bandaríkja-
Bœjarstjórinn leggur niður embættl
Mikið kveður orðið að nýjum
sjúkdómi, sem upp hefir komið í
sambandi við stríðið. Veit enginn
hvers' eðlis hann er né hver sé or-
SÖkin, en svo segja herlæknar að
hann muni koma frá rottum sem
séu í skotgröfunum og valköstun-
um.
Veiki þessi er ekki ósvipuð
barnaveíki; mtmnur og ikverkar
bólgna og gráhvít skóf safnast á
slímhimnuna. Veikin er orðin all-
útbreidd bæði í liði Þjóðverja og
bandamanna.
Dr. Lidney McCallin frá Chicago
sem nú er í herlæknaliði Breta,
hefir hafið rannsókn á veiki þess-
ari. Telur hann víst að hún stafi
af gerlum og er aðallega verið að
rannsaka það við efnafræðisstofn-
anir í Chicago. Veikinni hefir enn
ekkert vísindalegt nafn verið gefið,
en sín á milli kalla hermenn hana
“Skotgrafamunn”.
Fjögur börn brenna til dauðs með-
an foreldrarnir eru á dansleik
Skamt frá bænum Munson í Al-
berta vildi það til 14. þ.m. að hjón
sem heita James M. Tumbull voru
á dansleik. Þau áttu fjögur börn
og skildu þau eftir heima, en höfðu
beðið nágrannakonu sína — gamla
konu — að gæta þeirra. Hún hafði
sofnað og vaknaði við það að kvikn-
að var í húsinu; komst hún út með
naumindum en gat engu bamínu
bjargað; þau brunnu öll til dauðs.
Yngsta barnið var tveggja ára
og það elzta sjö. Enginn veit
hvernig eldurinn hefir kviknað.
Þetta slys og mörg önnur ættu
að verða foreldrum íhugunarefni
sem hafa það fyrir sið að skilja
börn sín eftir—stundum jafnvel al-
ein.
manna.
Hagl.
Um það voru skiftar skoðanir
hvort neðansjávarskipið “Deutsch-
land” væri stfíðsskip eða vöruflutn-
inga skip aðeins. Settu Bandaríkja-
menn nefnd manna til þess að skoða
skipið nákvæmlega og ákveða um
þetta atriði. Varð niðurstaðan sú
að það sé aðéins flutningaskip og
sé þvi þess vegna heimilt að fara
i friði hvert sem vera vilji.
Polk, sem nú gegnir utanríkis-
skrifara störfum lýsti því yfir að
þetta gilti aðeins um þetta skip, en
komi fleiri samskonar verði þau l1rtl
skoðuð sérstaklega.
Einkennilegur sigur.
í New York skeði einkennileg
saga 14. þ.m. Kona nokkur, sem
Carso heitir, kom út úr húsi, sem
hún átti heima í og sá að grimmur
hundur hafði ráðist á litla stúlku
er hún átti, sem hét Gertrude og
var tveggja ára gömul. Hundur-
inn hafði læst í hana tönnunum og
hristi hana af mestu grimd. Kon-
an reyndi alt mögulegt til þess að
lata hundinn sleppa stúlkunni, en
það kom fyrir ekki. Hún gerði sér
þá hægt um hönd og réðst á hund-
inn þannig að hún beit utan um
nasirnar á honum svo hann ætlaði
bœði að missa andann og kvaldist
af sársauka. Varð honum þannig
við þetta að hann slepti barninu osf
flýði. 8
Litla stúlkan var mikið meidd, en
talið er víst að hún verði jafngóð.
Er þetta talið hugrekki með af-
brigðum. Það sýnir ekki einungis
það hvemig móðurástin gefur þrek
til þess að leggja út í hvaða hættu
sem er, heldur einnig kom þar
fram svo skynsamlegt ráð, að fæst-
um mundi hafa komið til hugar.
Waugh bæjarstjóri í Wmnípeg
hefir verið skipaður formaður
vatnsléiðslunefndarinnar með $5000
launum. Hann leggur því niður
embætfi sitt sem bæjarstjóri. Kosn-
ingar ættu áð sjálfsögðu að fara
fram, en það á ekki að verða.
Bæjarstjörnin vinnur hvert gjör-
ræðið á fætur öðru og gengur fram
hjá rétti fólksins. Hún ákvað trma-
færsluna eða klukkufærsluna, þvert
ofan I vdja fjölda fólks — líklega
meiri hlutans — án þess að leita á-
lits þess, og nú ætlar borgarstjóri
að fara úr þeirri kápu sem kjós-
endur sniðu honum og engum öðr-
og láta hana þegjandi og
hljóðalaust á herðar öðrum manní,
sem engin trygging er fyrir að bæj-
armenn séu alment ánægðir með.
Cockbum heitir sá er við á að taka.
Auðvitað hefir Waugh þegar
tekið við hinu embættinu og er þar-
afleiðandi ekki nema að nafninu
þjónandi bæjarstjóri, en hann ætlar
að halda því embætti að nafninu til
þangað til 1. október; þá á Cock-
born að taka við.
Að sjálfsögðu átti Waugh að
segja af sér tafarlaust þegar hann
tók hitt embættið og nýjar kosning-
ar að fara fram.
Sú sorgarfregn kom í síðustu
viku að fallið hefði á vígvellinum
2. júlí, Jóhannes S. Thorlaksson
frá Churchbridge, Sask. — Hann
var 28 ára gamall, fæddur á ís-
landi, en fluttist sama ár og hann
fæddist, 1888, hingað til lands með
foreldrum sinum, Stefáni Thorlaks-
syni og Jóhönnu Magnúsdóttur,
ættuðum úr Vestmannaeyjum, og
settust þau að í smábæ nálægt New
York, en dvöl þeirra þar var ekki
nema hálft þriðja ár; fluttust þau
hingað vestur og settust að i
Lögbergs-nýl'endu og þar misti Jó-
hannes föður sinn, en móðir hans
giftist nokkrum árum siðar og býr
hún með manni sínum G. Bryn-
jólfssyni á land i Þingvalla-ný-
lendu, s‘em Jóhanes heitinn hafði
keypt.
Hann stundaði nám á Manitoba
Agricúltural College veturna 1913
til 1915, en vann á landi sínu þess
á milli. Hann var duglegur og
verklaginn maður, og eftirtektar-
samur mjög og fljótur til lærdóms.
Hann innritaðist í 44. herdeild-
ina hér í Winnipeg snemma í mai
1915, ásamt tveimur bróðurson-
um sínum, Stefán og Edward, sem
nú eru á Frakklandi, og var hann
sendur til Englands í sama mánuði,
ásamt fleirum úr þeirri deild, en í
skotgrafirnar var hann kominn í
ágúst síðastliðinn; svo hann hafði
verið þar tæpt ár. — I síðustu bréf-
um frá honum bjóst hann við að fá
sig lausan um tíma, og ætlaði þá að
nota tímann til að ganga á “Divis-
ional School” fyrir hærri stöðu i
hernum, en það átti ekki að verða.
Auk sártsyrgjandi móður skilur
hann eftir eina systur, Steinunni,
konu J. W. Magnússonar í Winni-
peg, fyrir utan margt annað skyld-
fólk.
Verzlun Bandaríkjanna
við útlönd.
Samkvæmt nýkomnum skýrslum
í Bandaríkjunum hefir verzlunar-
magnið þar við önnur lönd verið
ótrúlegt árið sem leið. Alls hefir
sú verzlun numið $6,525,000,000
(sex biljónum, fimm hundruð, tutt-
ugu og fimm miljónum). Útflutt-
ar vörur námu $4,345,000,000
(fjórum biljónum, þrjú- hundruð
fjörutíu og fimm miljónum). Jám
og stál var flutt út fyrir $618,000,-
000, sprengiefni fyrir $493,000,-
000; baðmull fyrir $376,000,000;
hveiti og mél fyrir $428,000,000;
kjöt fyrir $270,000,000; koparvör-
ur fyrir $170,000,000; jarðolía fyr-
ir $165,000,000; málmblendingur og
vörur úr honum fyrir $126,000,000;
bifreiðar fyrir $123,000,000; með-
ul fyrir $123,000,000; unnin baðm
ull fyrir $112,000,000.
Móti stríði.
Aðalfundur félags þess í Banda-
ríkjunum sem kallar sig “Vinafélag
trúaðra manna” samþykti áskorun
í dag til allra manna, og helzt þeirra
sem telja sig kristna, þess efnið að
viðurkenna í'engu réttmæti striðs
og neita því að það geti skorið
sanngjamlega úr málum.
Félagið lýsti því einnig yfir að
það sé eindregið á móti heræfingum
eða hemaðarkenslu í skólum.
“Telegram” 13. júlí.
Búnaðarskóla rannsókn.
Galt dómari hefir verið til þess
kvaddur að rannsaka búnaðarskóla-
bvggingarnar. Lögmaður hefir
enn ekki verið útnefndur af hálfu
stjórnarinnar fyrir þá rannsókn.
Álitið er að álika óráðvendni hafi
átt sér stað í sambandi við þessar
byggingar eins og við þinghúsið, og
er ákveðið að rannsóknin verði eins
nákvæm og hægt er. Ekki er ólík-
legt, ef dómarinn gengur vel fram
að Bobert Rogers volgni undir ugg-
um áður en lokið er. þótt þar sé
um stórfisk að ræða.
Sólslag.
í Melita kom haglstormur afar-
svæsinn 14. þ. m. Akrar stór-
skemdust, gluggar brotnuðu og yfir
höfuð varð stórskaði að ýmsu leyti.
Haglið er sagt að hafi verið eins [ en allmörg börn hafa verið flutt
stórt og lítil egg.
Flokksþing Liberala.
Framsóknarmenn hófu flokksþing
sitt í Ottawa á þriðjudaginn var.
Eru þar mættir fulltrúar frá öllum
fylkjunum í Canada og verða öll
helztu mál þar til umræðu sem þjóð-
ina varðar.
Mörg börn i Winnipeg hafa
fengið snert af sólslagi að undan-
förnu. Hitarnir hafa verið stöð-
ugir og svæsnir. Engir hafa þó dá-
, en allmörg börn hafa verið flu
veik á sjúkrahúsin og Iiggja þar.
$5,000,000 brú.
15. þ. m. var vígð brú sem nýlega
var lokið við að smíða yfir Missi-
sippi ána hjá bænum Memplis.
AIls er brúin um þrjár mílur á
lengd, en yfir ána er hún 2,600 fet.
Brúin var byrjuð árið 1913 og
kostar $5,000,000.
Þjóðverjar hafa í heit-
ingum.
Svo segja fréttir á laugardaginn
að Þjóðverjar hafi lýst því yfir, að
ef þeir verði að yfirgefa Belgiu og
Frakkland, þá muni þeir skilja svo
við að þar verði alt í kalda koli.
Kveðast þeir munu flytja heim
til Þýzkalands alla vinnufæra menn
frakkneska og belgiska; þeir hafa
þegar flutt burt svo margt fólk
þaðan, bæði unga menn og úngar
konur til uppskeruvinnu í Þýzka-
landi að alvarlegt er talið. Samt er
því haldið fram af bandamönnum
að þessar hótanir Þjóðverja hafi
enga verulega þýðingu. Kveðast
þeir þegar hafa borið saman ráð
sín og komist að niðurstöðu um
það hvernig þeír skuli byggja upp
aftur löndin þegar stríðinu sé lokið,
bæði að því er húsabyggingar,
vegalagningti, játnb’rautargerð og
liðveizlu við þjóðina snertir.
Særðir Islendingar.
Carl Anderson frá Selkirk, bróð
ir Ólafs Andersonar háskólakenn-
ara hér í bænum, særðist 3. júní í
orustunni miklu við Ypres'. Átta
piltar frá Selkirk voru þar saman
og kom ein sprengikúla í þá er
særði sex, deyddi einn og einn
fanst ekki. Carl var eini Islend
ingurinn og særðist hann allmikið í
báðar mjaðmirnar; var lengi
hospítali en er nú á batavegi.
Alex Johnson, frá Selkirk, sonur
Jóns Jónssonar trésmiðs þar, særð-
ist rétt um mánaðarmótin júní og
júlí. Var hann skotinn í mjöðm-
ina öðrumegin og liggur í sárum.
Jón Ölafsson látinn.
Sú frétt barst hingað vestur á föstudaginn með símskeyti,
að Jón ólafsson alþingismaður, rithöfundur og skáld hefði andast
11. júlí.
Hans verður ítarlega getið í næsta blaði.
Til fslands 1882.
Drottinn, þökk sé þér
þú að fylgdir mér
aftur hingað heim; eg hér vil þreyja.
Nýtt hvað í mér er
ísland, helga eg þér,
fyrir þig er ljúft að lifa, og—deyja.
Jón ólafsson.
Úr kveðju til íslands 1878.
Eg kveð þig, ísland. Verði þér alt að veg
og veiti guð þér stóra framtíð enn
og marga sonu, er elska þig sem eg,
en eru meiri skapstillinga menn.
Jón ólafsson.
Til Kvöldstjörnunnar.
Stjarna blíð sem blás um geim
brautu hvatar þinni,
frá mér kveðju flyt þú heim
fósturjörðu minni.
Gott átt þú að geta séð
,■ gamla landið hvíta.
Ó, að mætti eg þér með
ættjörð mína líta.
Jón ólafsson 1872.
Úr “Leiðindum”.
Ef sex feta grænan blett get eg,
Garðarsey, fengið hjá þér,
nógu víð þá fyrst verður
veröldin handa mér.
því leiðast mér dagar, mig langar
til landsins míns heim á ný,
því hvergi í heiminum finn eg
hvíld nema gröfinni í.
Jón ólafsson 1894.
Sér H. Leo talar um æfi Páls
postula, þýðingu hans og starf, á
hverju mánudagskveldi kl. 8 í þrjár
vikur í Skjaldborgarkirkju. Allir
velkomnir; sérlega fróðlegt og
skemtilegt.
Stórkostleg stofnun.
Félag eitt hér í fylkinu sem D.
B. McDonell er einn aÖalmaSurinn
i, ætlar að setja á stofn pappírs-
verzlun og sögunarmylnur hjá
Grand Rapids (Stóru fossum).
Aðalskrifstofur félagsins eiga a5
verða í Winnipeg og á félagíð ab
taka til starfa nú þegar; er til þess
ætlast að sögunarmylnan verði
komin á laggirnar eftir fáar vikur,
en pappírsmylnan næsta vor. Sex
hundruð manns er áætlað að burfi
í vinnu við stofnunina og verða þar
búnar til hundrað smálestir pappírs
á hverjum degi. Grand Ropids er
250 mílur N.-vestur frá Winnipæg.
Marteinn Jónasson kaupmaður
frá Vidi var hér á ferð um helgina.
Var hann í sendinefndum hingað
ásamt fleirum, bæði til þess að
reyna að fá talsima framlengdan
þar nyrðra og fara þess á leit við
fylkisstjórnina að hún héldi áfram
fyrirmyndarbúi því, sem verið hef-
ir að Árborg. Nefndimar voru
tvær, en voru í félagi þegar hingað
kom.
VlGA HROTTINN.
Hans mun gjörður hugur — þá
Hræi í svörðinn éljar —
Niflheims-vörður, norðaná
Nætur-görðum Heljar.
Stephan G. Stephansson.
Guðmundur Kamban hefir sam-
komu (framsögn og myndasýningu)
í Winnipeg á fimtudaginn (27. þ.
m.). Nánar í næsta blaði.
Skólapróf voru auglýst í fyrra-
dag, um það birtist greinileg
skýrsla í næsta blaði. — Um eina
stúlku verður þó að geta hér. Hún
heitir May Helga Anderson, dótt-
urdóttir Olafs Nordals í Selkirk
og systir Ólafs Andersonar háskóla-
kennara. Hún tók tvö skólapróf;
hlaut hún $60 verðlaun í öðru og
ágætiseinkunn með lofi í hinu. —
Meira næst.
Bæjarfréttir.
Þorlákur Guðnason og kona
hans frá Baldur komu til bæjarins
um helgina. Þorvaldur sagði útlit
þar gott nú orðið, eftir því sem við
hefði mátt búast. Samt sagði hann
að í allra bezta lagi gæti uppskera
orðið í meðallagi.
Guðm. Kamban.
Meðlimir skólaráðt Jón Bjarna-
son shóla eru beðnir að muna eftir
fundi skólaráðsins á skrifstofu dr.
Brandsonar þ. 27. þ. m. kl. e. m.
N. Stgr. Thorláksson,
form. skólaráðsins.
íslenzkar hjúkrunarkonur.
Þessar hjúkrunarkonur hafa út-
skrifast alveg nýlega í Winnipeg.
Christine Thorvaldson, systir
Efemiu Thorvaldson, með 1 B eink.
Stella Sigurðson, einnig með 1 B
einkunn, (eí til vill fleiri).
Landfarsóttin í N. York
2,000 börn hafa þegar veikst af
máttleysisveikinni í New York og
400 dáið. Rockerfeller vísindafé-
lagið hefir þegar veitt $50,000 til
þess að vinna á móti útbreiðslu veik-
innar og hefir Mitchell borgarstjóri
í Néw York það fé til útbýtingar.
Þótt veikin hafi farið til St.
Louis, Chicago, St. Paul og Minne-
apolis', Detroit og fleiri borga, þá
hefir hún hvergi orðið skæð enn
sem komið er nema í New York.
Nokkrar konur og stúlkur komu
saman að heimili ungfrú Guðrúnar
Johnson að 88 Isabell stræti
á þriðjudagskveldið 18. júlí. Guð-
rún er að búa sig til ferðar vestur
að hafi; á hún margar vinkonur
hér, sem vildu kveðja hana áður en
hún færi. Gestirnir færðu henni
vandaða regnhlif að gjöf og fóru
fram ýmsar skemtanir, svo sem
söngur og hljóðfærasláttur. Húsfrú
Ottenson flutti tölu, Carolina Dal-
man las upp frumort kvæði, Efemia
Thorvaldson söng einsöng og Sig-
ríður Priðriksson lék á hljóðfæri.
— Jódís Sigurðsson hafði aðallega
gengist fyrir þessari heimsókn. -
Guðrún þakkaði fyrir gjöfina og
þá ánægju er þetta kveld hefbi veitt
sér.
Hann kom hingað frá New Ýork
á þriðjudaginn, og dvelur hér fram
yfir þjóðminningardag.
Guðmundur er eini íslendingur-
inn, sem lært hefir þá fögru og
áhrifamiklu list að “segja fram",
eins og þeir kalla það heima. Hélt
íann þess konar samkomur
Reykjavík í mörg kveld í röð og
var altaf húsfyllir; seldi hann þó
þar aðgang miklu hærra verði en
dæmi voru til.
Guðmundur hefir hlotið lof mik-
ið fyrir skáldskap sinn; einkum þó
leikritið “Haddapadda”, enda er
það að verðleikum. Allmargir ís
lendingar hafa lesið það og gezt
flestum vel að. Leikurinn er sér-
lega áhrifamikill og verður hans
itarlega minst í næsta blaði.
Guðmundur er nýkvæntur
danskri stúlku, þau giftust 1. júní.
Hún er leikstúlka og lék Kristrúnu
í Haddapöddu, þegar hún var leik-
in á konunglega leikhúsinu í Kaup-
mannahöfn.
Þess má vænta að marga fýsi aö
heyra Kamban hér vestra.
O. S. Thorgeirsson prentari fór
vestur til Lundar fyrir helgina og
kom heim aftur á mánudaginn.
Hann var á skemtisamkomu þeirra
Lundarmanna og lét vel af í alla
staði.
Fréttr frá félaginu “Jón Sig
urðsson” bárust blaðinu, en verða
xö bíða næsta blaðs sökum rúmleys-
is. •' |
Prestafélag kirkjufélagsins held-
ur ársfund sinn í kirkju Selkirk-
safnaðar 28. og 29. þ.m. 1 sam-
bandi við fundinn verða trúmála-
fundir í kirkjunni bæði kveldin.
Hið fyrra verður rætt um kirkju-
sókn, hið síðara um heiðingjatrú-
boð. Báðir þeir fundir eru opnir
fyrir alla og þeir boðnir velkomnir.
Sunnudagurinn verður sérstakur
hátíðisdagur. Verður þá við guðs-
þjónustu í kirkjunni, sem byrjar
kl. 2.30 e.h., trúboðanum, séra O.
O. Thorláksson, fengið með hátíð-
legri athöfn trúboðsembættið i
bendur og hann sendur af stað til
trúboðsstarfsins með bænum og
blessunaróskum kirkjunnar. Dr.
L. G. Abrahamson frá Rock Island,
III., formaður heiðingjatrúboðs-
ráðs Gen. Councils, framkvæmir þá
athöfn, ásamt með formanni vorum,
séra K. K. Ólafssyni.
N. Stgr. Thorláksson,
forseti prestafélgsins.
BITAR
Kellybræður voru nýlega kallaðir
fyrir Prendergast dómara til þess
að bera vitni og leggja fram skjöl.
Þeir neituöu að hlýða. Lögmaður
stjómarinnar kvað vera hægt að
neyða þá til þess. Dómarinn játti
því en sagðist vonast til að stjórnin
neytti ekki þess réttar. — Dómar-
inn lýsti því yfir í sínu heilaga sæti
að hann vonaðist eítir að tveimur
mönnum sé liðið að þverskallast
gegn lögtun landsins, boðum stjórn-
arinnar og réttarfarsins. — Þeir
telji þetta heiðarlegt sem vilja.
Mörgum hefir orðið ilt af einum
bitanum í Lögbergi síðast. Það er
líka eðlilegt, þegar margir gleypa
sama bitann.
Kelly var kærður um marga
glæpi og fundinn sekur í einu hljóði
af tólf manna kviðdómi, en samt
fellir dómarinn ekki úrskurð. —
Æþli hann hefði veigrað sér við því
ef einhver fátækur borgari hefði átt
í hlut?
Gjaldþrot.
Samkvæmt nýútkomnum skýrsl-
um frá Dun fjárhags upplýsinga-
félaginu hafa 1031 verzlanir orðið
gjaldþrota frá 1. janúar til síðasta
júní 1916 í Canada. í fyrra urðu
gjaldþrota 1450 félög á sama tíma.
Skuldir þessara verzlana í ár
námu $15,868,941, en í fyrra $23,-
421,615.
Kona sem Sis Fraser kallast var
tekin föst fyrir ólifnað í vikunni
sem leið. Hjá henni voru þá 10
mikilsvirtir menn í opinberri stöðu
frá Winnipeg. Hvers vegna er
nöfnum þeirra haldið leyndum?
Hvers vegna er þeim ekki hegnt?
öruggasta ráðið til þess að stöðva
þennan ófögnuð er það að birta
nöfn slíkra óþrifa gemlinga og
hegna þeim. — Því þeir voru að
brjóta lög.