Lögberg - 20.07.1916, Blaðsíða 8
8
LuuBERG, FIMTUDAGINN 20. JÚLI 1916
Ur bænum
Sigurjón Christopherson og Gerda
dóttir hans hafa veriS hér í bænum
í nokkra daga að undanfömu.
LáSst hefir aS geta þess, aS 2.
maí síSastliðinn varð Hr. J. Ander-
son á Toronto stræti hér í bæ fyrir
þeirri sorg að missa úr barnaveiki
son sinn 6 ára, Emil Björgvin aS
nafni, mjög efnilegt barn. Herra
Anderson misti konu sína fyrir liS-
ugum tveimur árum, og hefir móS-
ir hans síðan annast heimili hans
og börn.
Jónas Sturlaugsson frá Elfros
kom til bæjarins á fimtudaginn
með vagnhlass af nautgripum fyr-
ir bændafélagiS í Elfros. Jónas
sagði engin tíðindi, en líðan góða.
Ökrum fleygir fram síðan hitarnir
komu; mátulegur raki í jörðu og
alt í blóma. Þó segir hann aS upp-
skera geti tæplega orðið í meðallagi
sökum þess aS fyrst hafi korninu
fariS of seint fram vegna bleyt-
anna, en nú of fljótt sökum hitanna.
Jónas fór vestur aftur á föstudag-
inn. Hann var að leita sér lækn-
inga um leið hjá Dr. Brandsyni.
Bjarni Marteinsson og Tryggvi
Ingjaldsson komu til bæjarins fyrra
miSvikudag í þeim erindum aS fá
stjórnina til þess aS endurreisa
fyrirmyndarbúið í Árborg á landi
.GuSmundar BorgfjörSs.
Árni Þórarinsson frá Austur
Selkirk var hér á ferS á föstudag-
inn. ÞaS sagði hann tíSinda aS
kapp mikið og jafnvel óeyrðir væru
þar nyrSra milli Rússa og ÞjóS-
verja útúr stríSinu; hefSi jafnvel
komist svo langt í þeim sökum aS
kærur hefSu verið sendar til Winni-
peg og rannsókn farið fram.
Grasspretta ágæt þar sem annars-
staSar.
Afar miklir hitar hafa veriS í
Winnipeg aS undanförnu.
Bama máttleysiS sem getiS var
um í blaSinu er komiS hingað.
Veiktust tvö börn af því í vikunni
sem leiS. Dr. Douglas heilbrigSis-
stjóri kvað þó ekki mikla hættu að
veikin útbreiðist hér til muna.
J. J. Vopni kom vestan frá
Argyle á föstudaginn, þar sem
hann hefði verið i nokkra daga.
MeS honum var Thomas Johnson
hermaður.
Jón Björnsson frá Kristnesi kom
norðan frá Narrowsbygðum á
fimtudaginn; hefir hann dvalið þar
um tveggja mánaða tíma, lengst um
hjá Guðmundi ísberg. Jón fór
vestur aftur á fimtudagskveldiS.
Jakob Johnson frá Grayburne i
Saskatchewan kom hingað til bæj-
arins fyrra fimtudag austan frá
Kenora í Ontario. HafSi veriS þar
um tveggja vikna tíma. Hann er
verkstjóri i Grayburne hjá Grand
Trimk járnbrautarfélaginu. Jakob
'er eíni fslendingurinn í Grayburne
og kvaðst hann finna mLHö til þess
hversu mjög skorti á ánægju,
hversu vel sem gengi að öðru leyti.
þegar maöur væri einangraSur frá
Löndum sínum. Hann fór vestur
aftur á sunnudaginn.
Húsfrú S. Brandson frá Oak
View var hér á ferS í vikunni sem
leiS ásamt fjórum börnum sínum.
Hún dvaldi hér i nokkra daga hjá
kunningjum og vandamönnum.
Eins og sést á auglýsingu í blað-
inu hefir nú veriö beSið um boð
boð í verkiö á þinghúsbyggingunni.
Ólafur Eggertsson frá Mortlach
í Saskatchewan, sem hér hefir dval-
iS um tveggja vikna tíma fór vestur
á föstudaginn. Hann ætlaði fyrst
til Churchbridge að heimsækja
bróður sinn GuSgeir, sem þar er.
Með honum fóru þangað GuSvald-
ur bróðir hans og húsfrú Jósef
Johnson systir þeirra.
Jón Gíslason kaupmaður frá
Brown var hér á feröinni í vikunni
sem leiS í verzlunar erindum. Hann
sagði velliðan fólks þar ytra, gras-
vöxt góðan og útlit yfir höfuð hið
bezta.
Húsfrú Björg\-in ísberg frá
Baldur var hér á ferð i bænum á
mánudaginn. Hún fór norður til
Selkirk aS heimsækja Pál Magnús-
son kaupmann; hann er gamall hús-
bóndi hennar.
Dr. B. J. Brandson fór suður tiJ
Dakota í lækniserindum bæSi í vik-
unn? sem leið og þessari viku.
Jón Helgason frá Argyli var hTi
í bænum á fimtudaginn var. Kom
hann vestan frá Grunnavatnsbygö;
hafði verið þar í kynnisferð hjá
Stefáni Daníelssvni og fleirum.
Hann fór heim aftur á föstudaginn.
Húsfrú Sigrún Hogan frá Leslie;
systir Dr. O. Björnsonar kom til
bæjarins á mánudaginn. Hún fór
suður til NorSur Dakota á þriðju-
daginn og dvelur þar um tveggja
vikna tíma hjá vinum og vanda-
“ ÍSLENDINGAR VIUUM VÉR ALLIR VERA
Hinn tuttugasti og sjöundi
ISLENDI
GA
DAGUR
MIDVIKUDAGINN 2. ABUST1916
Verður haldinn í
j^ÝNI NG ARGARDI
*ar-
WINNI PEG-BORGAR
Forseti hátíðarinnar: Dr. B. J. Brandson.
TIL ATHUGVNAR: 1 SKEMTISKRÁ:
Allur undirbúningur er nú fullgerður, eftir i
beztu vitund nefndarinnar. Að eins eitt er nauð- 1. Minni fslands:
synlegt til að gera daginn þetta ár þann bezta Ræða-^-Guðm. Kamban.
íslendingadag, sem nokkurn tíma hefir haldinn Kvæði—Séra Jónas A. Sigurðsson.
verið hér í Winnipeg — það, að sem flestir íslend- 2. Minni Bretaveldis :
ingar sæki daginn. Sjálfsagt sækja hann allir Ræða Dr. B. J. Brandson.
íslendingar, sem eiga heima í Winnipeg, og er von Kvæði—Séra H. Leo.
á, að sem flestir úr íslenzku bygðunum komi einn- ig og taki þátt í skemtuninni. 3. Minni Vestur-íslendinga :
Klukkan 8.30 að morgni leggja af stað frá Ræða Séra F. Hallgrímsson.
horninu á Portage og Arlington, og frá hominu á Kvæði—p. p. porsteinsson.
Portage og Sherbrooke strætisvagnar, er flytja 4. Minni Manitoba :
alla sem vilja ókeypis. pessir vagnar fara norður Ræða—Miss Steina Stefánson.
eftir Arlington St. og Sherbrooke St.. Sem flestir Kvæði—Mrs. M. J. Benedictson.
ættu að nota þetta tækifæri fyrir frítt far út í garðinn. Barnasýning.
Klukkan 9 byrja hlaupin fyrir böm frá 6 til 16 íslenzk glíma.
ára, og þar eftir hlaup fyrir fullorðið fólk, menn Knattleikur (Baseball) 223. herdeildarinnar
og konur, gift og ógift, ungt og gamalt. peir, og heimamanna.
sem voru ánægðir með verðlaunin í fyrra, verða enn þá ánægðari í ár, því nefndinni hefir hepnast Knattleikur fyrir stúlkur.
ágætlega að fá góða og þarflega muni, en ekkert HIjóðfærasláttur; æfðir flokkar.
glingur. Aflraun á kaðli—hermenn og heimamenn.
Máltíðir verða veittar allan daginn af “Jón Sigurðson” I.O.D.E. kvenfélaginu, og er það nægi- Allskonar íþróttir.
leg trygging fyrir því, að góður matur fæst þar Dans.
keyptur með sanngjömu verði. En þeir, sem vilja Klukkan eitt byrja íþróttir fyrir ísl. leikfimis-
hafa mat með sér, geta fengið heitt vatn ókeypis. menn undir umsjón Manitoba deildarinnar í Fim-
Frá klukkan 3 til 5 verða fluttar ræður og leikafélagi Cánada. —
kvæði og sungnir ættjarðarsöngvar, og spiluð ís- Klukkan 8 byrjar dansinn; Th. Johnston leik-
lenzk lög. ur á hljóðfæri. Verðlaun verða gefin þeim sem
Col. H. N. Ruttan O.C.M.D, aðalherstöðvastjóri bezt dansa.
í 10. herhéraði, hefir þegar leyft öllum íslenzkum Hljóðfæraflokkur spilar íslenzk lög.
hermönnum að vera á hátíðinni. peir verða þar Enginn fær að fara út úr garðinum og koma
því svo hundmðum skiftir, og ættu sem flestir að inn í hann aftur ókeypis án þess að hafa sérstakt
nota tækifærið og sjá þá, ef til vill, í síðasta skifti leyfi.
áður en þeir fara austur. f forstöðunefnd dagsins eru :
Breyting á fyrirkomulagi íþrótta. Dr. B. J. Brandson, forseti.
Áður hefir verið svo til hagað að félög og J. J. Vopni, varaforseti.
klúbbar einungis hafa tekið þátt í þeim; en sökum J. J. Swanson, skrifari.
þess hversu margir eru fjarstaddir frá félögum, A. P. Johannsson, féhirðir.
er öllum einstaklingum boðið að taka þátt í hvaða P. Bardal Jr.. H. Methusalems.. Sig.
íþróttum sem er. Verðlaun eru bæði mörg og Björnson. . Th. Borgfjord. . Dr. S. J.
glæsileg, og er enn tími til að senda S. D. B. Jóhannesson. M. Skaptason. Alex
Stephansyni nöfn þeirra sem þátt vilja taka í Johnson.. H. J. Pálmason.. A. S. Bar-
íþróttum, sé það gert nú þegar. dal.. S.D.B. Stephanson
mönnum. Sigrún kvaS góða líðan
þar Vestra og útlit ágætt að öðru
leyti en því aö akrar eru í seinna
lagi og því hætt viS frosti i haust
ef ekki viörar því betur.
Filippus Johnson og kona hans
frá Grunnavatnsbygð komu vestan
frá Vatnabygðum á sunnudaginn.
HafSi Fílippus verið þar í heimsókn
hjá bróður sínum Stefáni bónda að
Mozart.
Húsfrú Sigriður Ólafsson, kona
Jóns Ólafssonar kaupmanns að
Lislie kom til bæjarins á laugardag-
inn ásamt tveimur dætrum sínum,
Lilju og GuSbjörgu. Hún dvelur
hér hjá móður sinni um mánaöar-
tíma.
Sveinn Björnsson kaupmaður
frá Gimli kom til bæjarins á mánu-
daginn í verzlunarerindum og fór
heim samdægurs.
Uungfrú Louisa Ottenson frá
River Park fór í vikunnj sem leið
til Minneapolis til þess aö full-
komna sig í orgelspili og jafnframt
til þess að heimsækja Hjört Lárus-
son hljómfræðing, frænda sinn.
Húsfrú W. Magnússon, kona W.
Magnússonar prentara Lögbergs
fór vestur til Churchbridge á
sunnudaginn ásamt tveimur börn-
um sínum og dvelur þar um tíma.
Bjarnþór Lífmann frá Gimli var
hér á ferS í vikunni; í erindum fyr-
ir íslendingadaginn.
Jóhannes Sveinsson og kona hans
frá St. Pierre, ásamt syni þeirra
Jóhannesi, voru á ferð í bænum á
þriöjudaginn. JÓhannes lét vel af
útiti þar ytra, bæði meö gras og ak-
uryrkju.
NOTIÐ ROYAL CROWN SÁPU; hún er bezt. Safnið Royal
Crown miSum og nöfnum. Eignist fallega nytsama muni kostnaðar-
laust.
Ef þú ert ekki þegar byrjaður aS safna miSum, þá byrjaðu
tafarlaust. Þú verður forviða á því hversu fljótt þú getur safnað
nógu miklu til þess að afla ágæts hlutar. Einhvers sem mikils er
virði.
Royal Crown munir eru úr bezta efni. Þeir eru valdir með
mikilli varfærni. Þeir eru margs konar; eitthvaS sem vel kemur sér
fyrir alla. NÁIÐ 1 NÝJA VERDLISTANN OKKAR. ÞaS
kostar ekkert nema aSeins að biðja um hann. Ef þú sendir bréf
eða póstspjald, þá færðu hann með næsta pósti og borgaö undir hann.
Allir munir sem eru auglýstir eða sýndir fyrir fyrsta maí 191S
eru nú teknir af listanum.
Þegar þú velur einhvern hlut, þá vertu viss um að velja eftir
nýja listanum. Áritan:
THE ROYAL CROWN SOAPS
Límited
PREMIUM DEPARTMENT - WINNIPEG, MAN.
NorsK-Ameriska Linan
Nýtízku gufuskip sigla frá
New York sem segir:
"Bergensfjord”, 5. Agúst.
“Kristiansfjord” 26. Ágúst.
“Bergensfjord” 16. Sept.
“Kristianiafjord” 7. Okt.
Norðvest urlands farþegar geta ferðast
með Burlington og Baltimore og Ohio
járnhrautum. F*rbrj«í fra Is-
landi eru aeld til hvaða staða sem er
í Ðandaríkjunum og Canada. — Snúið
yður til
HOBE & CO., G.N.W.A.
123 S. 3rd Street, Minneapolia, eða
H. S. BARDAL,
892 Sherbrooke Street, Winnipeg.
Eg hefi nú nægar byrgðir af
“granite” legsteinunum “góðu”
stöðugt við hendina handa öllum,
sem þurfa. Svo nú ætla eg að biSja
þá, sem hafa veriö að biðja mig um
legsteina, og þá, sem ætla aS fá sér
legsteina í sumar, aö finna mig sem
fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist að
gera eins vel og aörir, ef ekki betur.
Yðar einlægur.
A. S. Bardal.
Elísabet Jónsdóttir,
andaðist á mánudaginn á gamal-
mennaheimilinu “Betel aö Gimli, og
var jörðuö á þriöjudaginn þar
norður frá af séra C. J. Olson. —
Elísabet var háöldruð kona, 87 ára
gömul; hún óskaði sjálf að vera
jörSuð á Gimli. Auk séra Carls J.
Olson flutti séra Björn Jónsson
einnig ræöu. — Nánar síðar.
Jóhann Gíslason frá Álftavatns-
bygð var á ferð hér í bænum um
helgina sem leiö.
H. EMERY,
hornl Notre Dame og Gertle
TAL8. GARKY 48
Ætlið þér að flytja yður? BJf
yður er ant um að húsbúnaður
yðar skem-mlst ekkl I flutnlngn-
um, þS. flnniC oss. Vér leegjum
sérstaklegu stund á. þá lCnaCar-
grein og ábyrgjumst aC þér rerO-
iC SnægC. Kol og vlCur selt
lægsta verCl.
Baggage and Kxpresa
Iþróttamenn
Ef einhverjir íþróttamenn eru,
sem vildu taka þátt i íþróttum á Is-
lendingadaginn i sumar, en hafa
ekki allareiöp sent nöfn sín, þá
gefsþþeim tækifæri til þess aS til-
kynna þaS til undirskrifaðs til 26.
júlí næstkomandi, eða skrifið
S. D. B. Stephanson,
ritara íþróttanefndarinnar.
729 Sherbrooke St., Phone G. 4110.
Goodtemplarastúkurnar í Winni-
peg hafa áformaö aS skemta sér á
mjög tilkomumikinn hátt í skemti-
garði bæjarins 4. september fVerka-
mannadaginnj.
AFAR ÓDÝR
aðgerS á fatnaSi af öllum tegund-
um fæst fljótt og vel af hendi leyst
að 739 Alverstone stræti (uppi á
Jofti).
Árni Eeggertsson hefir tíu vel
vakra íslenzka reiShesta til sölu.
Áritan hans er: 302 Trust and
Loan Building, Winnipeg, Man.
Ekkjan Björg Ögmundsdóttir.
Þess var getiö nýlega að hún
væri látin.
Hún var fædd og uppalin að
Húsavík í NorSurmúlasýslu; bjó
hún lengi meS manni sínum Magu-
úsi Sæbjörnssyni aö Hólshúsum.
Misti hún þar mann sinn og var því
ekkja er hún flutti vestur um haf
1877, meS fjögur böm i ómegð.
Fyrir þessum bömum sínum
vann hún alein og þurfti til þess
bæði þrek og sjálfsafneitun. Er
það mikið verk af einni konu fé-
lausri í framandi landi, og má nærri
geta hvílíkum erfiðleikum það hef-
ir veriS bundið.
Börnin voru þessi: Sesselja, gift
Jóhanni Gottskálkssyni hér í bæ,
Sæmundur kvæntur Rakel dóttur
Gunnlaugs Oddssonar í Selkirk,
Sigurborg gift J. J. Vopni ráðs-
manni Lögbergs og Árni er drukn-
aSi vestur á Kyrrahafsströnd fyrir
tæpum tveimur árum. Bjó hún all-
lengi hér í Winnipeg með Sæmundi
gyni sinum, en átti heima aS undan-
förnu hjá Sigurborgu dóttur sinni
og Jóni tengdasyni sinum; og hjá
þeim andaðist hún 4. júlí 1916, og
var jörðuð frá heimili sinu 6. sama
mánaöar.
•AFETY
Öryggishnífar
skerptir
RAZO
Ef þér er ant um að fá góða
brýnslu, þá höfum viö sérstaklega
gott tækifæri að brýna fyrir þig
rakhnifa og skæri. “Gilett’s” ér-
yggisblöS eru endurbrýnd og “D«p-
iex” einnig, 30c. fyrir tylftina; ein-
föld blöS 25c. tylftina. Ef rakhníf-
ur þinn bítur ekki, þá láttu okkur
sýna þér hversu auðvelt það er aS
raka þegar vér höfum endurbrýrat
blöðin. — Einföld blöö einnig lög-
uð og bætt. — Einnig brýnum við
skæri fyrir lOc.—75c.
The Raior & Stiear Sharpening Co.
4. lofti, 614 Builder* Elxchange Grinding Dpt.
333^ Portage Are., Winnipeg
Látið húðina anda.
Með því að halda svitanolunum opnum og
lausum við óhreinindi. Þegar þær «ru
lokaðar getur húðin ekki andað og verður
því hörundsliturinn óhreinindalegur
NYAL'S FACE CREAM
hreinsar hörundsholurnar og losar þær við
olfukent cfni sem eitrar hörundið. Notið
það óspart í sumar ef þér viljið hafa falleg-
an hörundslrt
Verð 25 og 50c askjan.
WHALEYS LYFJABÚÐ
Phone Shæ-br. 268 og 1130
Horni Sargent Ave. og Agnes St.
Ef eitthvaö gengur að úrinu
þínu þá er þér langbezt a9 scnda
þaS til hans G. Thomas. Haun ci
í Bardals byggingunni og þú mátt
trúa því aS úrin kasta eúib«lgH-
um í höndunum á honum.
Málverk. [“‘í
[“Pastel” og olíumálverk] a
mönnum og landslagi
býr tilog selur með sanngjörnu verði.
Þorsteian Þ. Þorsteinsson,
732 McGee St. Tals. G. 499
TILBOÐUM um aö kenna vii
Hnausa skóla nr. 588 veröur veit
móttaka þar til 20. þ. m. Kensl;
á aö byrja 1. sept. Umsækjendu
tiltaki kaup er þeir æskja, sömu
leiSis hvaö þeir hafi lengi kent oj
einnig hvaða “certificate” þeir haf;
Skrifiö:
B. Marteinsson, Sec. Treas.
Hnausa P.O., Man.
KENNARA vantar viö Fr;
nes skóla nr. 1293, í fjóra máni
frá 1. sept n. k. og lengur ef
semur. Umsækjendur tiltaki mer
stig, æfingu viS kenslu og kaup, C
óskaö er eftir. UndirritaSur ve
tilboðum móttöku.
Framnes, Man., 29. júní 1916
Jón Jónsson.
Lundi skóli nr. 587 Riverton,
veitir tveim kennurum, sem æskja
þess, atvinnu næsta vetur frá 15.
september til 15. desember 1916,
og frá 1. janúar til 30. júní 1917
kenslutími því níu mánuöir. Uægri'
Jcenslustofan útheimtir kennara
rneS ‘‘3rd class professional cer-
tificate”. Hærri kenslustofan “2nd
class certificate”.
Listhafendur segi í tilboöum sín-
um hvaða kaup þeir vilja hafa,
mentastig og æfingu í kenslu.
-lilboðum veitir undirritaður
móttöku til 10. ágúst næstkomandi.
Icelandic River P.O., 10. júlí 1916.
Jón Sigvaldason, Sec Treas.
KENNARA vantar fyrir Geysii
skóla nr. 776, fyrir sjö mánuSi
Kenslutímabil frá 1. okt. 1916 ti
30 júní 1917. Tilboöum er tilgreinr
kaúp, æfingu og mentastig, verSui
veitt móttaka af undirrituöum tii
10. ágúst 1916.
Th. J. Pálsson, Sec. Treas
Árborg, Man.
ATYINNA.
Klæðaskerar, handsaumarar
og snyrtimenn (finishers) geta
fengið atvinnu við að sauma
kvennaföt, yfirhafnir og annan
klæðnað. Hæsta kaup, og stöð-
ug vinna. Leitið upplýsinga hjá
THE FAULTLESS LADIES’
WEAR CO., Lt.,
Cor. McDermot and Lydia Sts.