Lögberg - 20.07.1916, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTbCAGINN 20. JÚLÍ 1916
7
í
Varnish Stain
Húseiganda uppáhald,
þoraar fljótt
Neistar.
I. Hvað er pólitík?
Margir hafa fengist vi5 að svara
þessari*Spumingtt, og á margvísleg-
an hátt hefir henni verið svarað,
jafnvel af löngum og flóknum
fræðakerfum. Það er þó langt síð-
an henni var svarað með fáum og
ljósum orðum. Það gerði Aristo-
teles. Hann segir: “Hið sanna
hlutverk þess, sem vér köllum póli-
tík, er að finna og ákveða hin réttu
takmörk milli náttúrlegs réttar ein-
staklingsins og náttúrlegs réttar
þjóðfélagsins.’' — Mundi nú ekki
þetta vera hin langréttasta skýring
sem nokkur hefir gefið á hugtakinu
pólitík?
En hvernig gæta löggjafar vorir
°g þjóðmálamenn þessarar einföldu
og eðlilegu grundvallarreglu ?
Þeir gæta hennar þannig að þeir
af handahófi og eftir augnabliks
geðþótta veita einstökum mönnum
og stéttum laga-sérrétt til margs
þess, sem eftir eðli sínu er náttúru-
réttur þjóðfélagsins, þ. e. allra
manna jafnt, svo sem t. d. að lifa
á landinu og afurðum þess, njóta
verðmætis þess. Og á hinn bóginn
veita þeir þjóðfélaginu einnig af
handahófi lagarétt til þess, að hrifsa
af einstaklingunum margskonar
náttúrurétt þeirra, jafn helgan þeim
sem réltinn til lífsins, ljóssins og
pndrúmsloftsins, eins og t. d. ávöxt
erfiðis þeirra, vitsmuna og þekk-
ingar. Einstaklingunum veita
þeir svo aftur, einnig af handahófi
og út í bláinn, ýmisleg lagaréttindi,
sem þeim, eftir hlutarins eðli, al-
drei getur komið að liði, eða orðið
þeirra virkilegur réttur, einmitt af
því að búið var með óeðlilegri sér-
réttindalöggjöf, að tryggja öðrum
réttinn, gefa þeim vald til að úti-
loka aðra frá honum, svo sem t. d.
afnotaréttur landsins, allskonar
Jramleiðsluréttur sem fjárstofn
þarf til, ýmislegur eignaréttur, og
jafnvel atkvæðis- og kosningaréttur.
Á þessum ramskakka grundvelli
eða öllu heldur grundvallarleysi, er
svo öll skattalöggjöfin bygð, alt hið
fjárhagslega líf þjóðfélagsins og
einstáklinganna. Með skattalög-
gjöfunum hrifsar þjóðfélagið af
einstaklingunum ýmist náttúrurétt
þeirra, náttúrlegan eignarrétt þeirra
til vinnu sinnar og verka, eða það
heimtar til baka aftur með álögum,
hin tilbúnu laga-sérréttindi, sem
það hafði veitt öðrum einstakling-
um. En hinn eina eðlilega og rétt
láta skattagrundvöll lætur þjóðfé-
lagið ónotaðan, nefnilega aðganginn
að hinum náttúrlegu auðsuppsprett-
um landsins sem þjóðin byggir, og
verðmæti það, sem landið fær við
það að þjóðin byggir það, og f jölg-
ar á því. Þ'ennan eina eðlilega
og réttláta skattagrundvöll afhendir
þjóðfélagið fáeinum einstaklingum
til skattaálögu handa sér eftir geð
jþótta.
Af þessu grundvallarregluleysi
og handahófi í öllu hinu fjárhags-
lega lífi þjóðfélaganna og einstak-
linganna, flýtur alt hið fjárhags
lega böl sem þjáir þjóðimar, all-
ur skortur og alt óhóf, öll óverð-
skulduð örbirgð og óverðskulduð
auðsöfn einstaklinga, alt hið póli-
tíska og stjórnarfarslega ólag og
árekstur.
Hér er umræðuefni, þarfara og
vænna til þjóðþrifa en hið pólitíska
flokkarifrildi og deilur um völdin
Um þessi málefni viljum vér ræða
við hvem þann mann, sem af ein-
lægni lætur sig varða velfaman
þjóðfélagsins, engu síður en sína
eigin; sem krefjast vill félagslegs
réttlætis.
B. 1.
II. Ættjarðarást.
Ungur bóndi, einn af frömuðum
ungmennafélagsskaparins og for-
maður í ungmennafélagi sveitar
sinnar, nýlega búinn að taka við
föðurleifð sinni til ábúðar, hélt á
einum fundi félags síns mjög skáld-
lega og hjartnæma ræðu um ætt-
jarðarást, og sérstaklega um þá
skyldu, sem hvíldi á hverju manns-
bami í landinu, að rækta það og
prýða, opna auðsuppsprettur þess,
og gera það að sælubústað fyrir
miljónir manna. Talaði hann há-
fleygum orðum um gróðrarmagn-
ið, sem svæfi í hverri þúfu lands-
ins, og biði þess aðeins að mannvit-
ið og mannshöndin leysti það úr á-
lögum. Loksins dró hann upp fyr-
ir hugskotsaugum áheyrendanna
framtíðarmynd af landinu með al-
ræktaða dali og strendur, með óslit-
ið samtýni og býli við býli, en skógi
vaxnar hliðar o.s.frv. Ræðan þótti
með afbrigðum góð og fögur og
var launuð með dynjandi lófa-
klappi.
Einn af áheyrendum var nýkvænt-
ur vinnumaður, sem langaði mjög
til að fara að búa í sveit sinni, en
gat ekkert jarðnæði fengið, og allra
síst við sitt hæfi. Hann hafði þvi
nauðugur ráðið að fara til Ameríku
eða flytja i kauptún og gerast dag-
Iaunamaður.
Nú stóð svo á, að á föðurleifð
formannsins, sem ræðuna hélt, var
eyðibýli, sem forfeður hans fyrir
nálægt 50 árum höfðu lagt í eyði
og undir heimajörðina. Vinnumann-
inum fanst nú að með ræðunni
væri sér bent á nýjan veg til sjálf-
stæðrar stöðu í sveitinni sinni, svo
að hann þyrfti ekki að flýja hana,
en gæti jafnframt unnið henni og
landinu öllu gagn. Hann fór því
til formanns'ins og bað hann um
eyðibýlið til þess að byggja það upp
og rækta. En hver fær lýst undr-
un hans, þegar þessi háfleygi hug-
sjónamaður og ættjarðarvinur neit-
aði honum harðlega um að fá eyði-
býlið, og færði til sem ástæðu, að
með því að hafa eyðibýlið undir,
gæti hann framfleytt fleiri fénaði á
jörðinni, án þess að leggja í nokk-
urn kostnað eða erfiðismuni til þess'
að rækta og bæta jörðina. Með
öðrum orðum, honum þótti léttara
fyrir sig, að reka útpíningsbúskap á
stóru landi, en að leggja nokkuð á
sig til þess að rækta og prýða land-
ið.
Hvemig er nú samræmið milli
orða og gerða þessa manns? Er
þetta hin rétta ættjarðarást? Og
er ekki sama samræmið milli orða
og verka flestra þjóðmálaskúma
vorra, jafnvel sjálfs þingsins okkar?
III. Að stækka eða smækka?
WMðSOR
DAIRY
SALT
Yiss með að
Vinna Verðlaun
IINDSOR
'SMJÖR
Búiö til í CATT
Canada
THt CANADI^I SALT CO., Ltd.
Bjartsýnir menn, sem altaf halda
að heimurinn fari batnandi, segja,
að vér íslendingar séum að stækka
að vexti, en svartsýnir menn segja,
að heimurinn fari versnandi, og við
séum óðum að smækka. Hvorir-
tveggja þykjast sjá muninn, svo
fari breytingin hratt. Nú er byrj-
að.að mæla fólkið. Sú aðferð á að
leiða sannleikann í ljós —. En eg
er hræddur um, að við, sem nú lif-
um, verðum þá komnir undir græna
torfu. Eg hefi því reynt — til
bráðabirgða — að gera mér grein
fyrir því, hvort líklegra er, og nið-
urstöðuna set eg hér.
Mér þykir líklegt, að íslendingar
■— og flestar aðrar þjóðir — séu að
smækka að vexti — mjög hsegt —.
En eg skoða það sem framför. —
Eg álít að heimurinn fari batnandi,
þótt hægt fari.
Náttúran er hagsýn. — Ef eg
væri “náttúran”, mundi eg láta
mannkynið smækka vexti. — Eg
mundi gera það af hagsýni.
Þvi smærri sem skepnan er, þvi
hægra veitir henni að vinna hlut-
fallslega jafn mikið, að öðru jöfnu.
Hver vill hlaupa í kapp við
rjúpuna þannig að bera fætuma
jafn ótt? Ekki maðurinn — en
maurinn.
Eg er viss um, að náttúran hefir
engin ráð til þess að gera vöðva
ljónsins s*vo sterka, að það geti
stokkið jafn margar hæðir sínar og
flóin, og þótt það tækist, gæti flóin
stokkið mörg stökk meðan ljónið
stykki eitt.
Með öllu sinu hugviti getur mað-
urinn ekki bygt hlutfallslega eins
stórar byggingar og maurinn —
vegna þess að maðurinn er sjálfur
stærri vexti.
Því smærri sem skepnan er, þvi
hægara veitir henni að afla scr
fæðu, ef jafn mikið er fyrir hendi
— eða munni — og það er ekki
einungis vegna þess, að allar hreyf-
ingar eru hlutfallslega auðveldari,
(heldur einnig .vegna þess að upp-
skeran er hlutfallslega meiri.
“Svo berjast bý s'em ernir.” En
hvernig færi, ef ernirnir ættu að
lifa af hunangi, og sjúga það úr
blómum ?
Sumir halda, að “saurus”-armr,
sem lengi bjuggu á jörðinni fyr á
öldum, hafi dáið út af ofvexti:
Loftslagið hafi kólnað, jurtagróð-
urinn smækkað, og þeir hvergi get-
að fengið nóg að eta, af því þeir
voru svo stórir. Vildir þú ekki, fá-
tæklingur, að kartöflurnar í garði
þínum væru svo stórar, að ein ent-
ist þér til matar í viku? Ekki
þyrftir þú annað en verða sjálfur
svo smár vexti og “Þumall” Selmu
Lagerlöv eða “Þumalína” Ander-
sens.
Því smærri, sem hver einstak-
lingur er, þvi fleiri hafa rúm við
borð náttúrunnar. Og ef vitið fer
ekki eftir stærðinni — það er máske
ekki fullsannað — verði rúm fyrir
því meira vit á jörðinni sem ein-
staklingarnir verða smærri. Sé nú
vitið einmitt það, sem náttúran
stríðir mest við að framleiða — til.
þess liggja mörg rök, að svo muni
vera — má það undarlegt heita,
ef maðurinn á ekki fyrir höndum
að smækka vexti.
Einhver er nú vís til að segja, að
ekki verði vitið ætið meira, þótt
margir leggi saman. Satt að vísu,
en kemur af því, að menn kunna
ekki enn þá að beita hugsunaraflinu
skipulega.
En hvers vegna er maðurinn svo
stór, sem hann er?
Vegna þess, að einstaklingurinn
hefir verið sérstæð heild, og orðið
að berjast fyrir lífi sínu við hina
einstaklingana. Á meðan svo var
ástatt, gat náttúran ekki komið þvi
við, að smækka vöxt mannsins.
Hver smár einstaklingur varð undir
í baráttunni fyrir tilverunni, því að
þegar þeir eigast við — og auðvit-
að ekki síður þegar einn berst við
átta — kemur stærðin að góðu liði,
samfara kröftunum.
Því meir, sem félagsmyndun
mannkynsins þokar áfram, því
minna gildi hefir stærð og afl ein-
staklingsins. Það gildi er nú stór-
um farið að minka. Má geta þess
til að náttúran hafi fljótt orðið þess
áskynja, og af búhygni sinni tekið
að spara við mennina vöxtinn. Ef
til vill mætti í því sambandi benda
á austurlandaþjóðir, þar sem fé-
lagsmyndun er mörg þúsund ára
gömul og menn smáir vexti. Þegar
mannkynið er alt orðið ein félags-
heild, er einstaklingurinn í raun og
veru horfinn sem slikur, og engin
ástæða til að halda í líkamsstærðina
lengur. .
Hve smár verður þá maðurinn?
Ef nokkur takmörk eru til, þá
eru þau fjarri. Það er nautn að
senda hugann á vængjum ímynd-
unaraflsins um óravegu ófarinna
alda, sjá manninn smækka stig af
stigi og haga lifnaðarháttunum og
sannleiksleitinni eftir því. Þar
opnast þúsund og einn heimur
þúsund og einnar nætur. Leikvöll-
ur handa mannlegu ímvndunarafli
í þúsund og eitt ár.
Það er haft eftir Edison eða ein-
hverjum vitrum manni, að flugvél-
ar framtíðarinnar verði bornar af
mörg þúsund vængjum, litlum og
léttum eins og fiðrildavængjum.
Á léttum hugsanavængjum
margra smárra heila verður mann-
vitinu lyft “um þúshundruð ár upp
mót sólu”.
Sigurgeir Friðriksson.
annarar tollskyldrar vöru eins og
kaupmaðurinn.
Gróðabrallsmaðurinn stritast við
að sitja við símann, eftir breyting-
um á markaðsverðinu. Sé það
hækkandi, kaupir hann aftur síld-
arfarm, sem hann var nýlega búinn
að selja með hagnaði, og selur hann
í annað sinn, enn hærra verði.
Þannig kaupir hann og selur oft
sömu tunnurnar, og græðir mörg
þúsund krónur í hvert sinn. — Ef
svo fer, að hann sinnir eigi eftir-
spurninni,, en bíður eftir hærri til-
boðum, og liggur svo með ósildan
farm, þegar síldarskot koma og
góðafli. Þá kastar hann talsíma-
tólinu kolsvartur og bölvandi út af
aflanum — hamingjuhnossi al-
mennings. Því gróðabrall hans
hefir þá mishepnast.
Þrátt fyrir þetta finst almúga-
mönnum sjálfsagt að lúta gróða-
brallsmanninum, og dýrka hann,
sem “guð vors lands”.
—“Réttur”.
Draumlið.
IV. Þarfur þjóðfélagsborgari!
Allir erum við starfsmeún í vin-
garði þjóðarinnar, en nokkuð sinn
á hvern hátt og misjafnlega þarfir.
Sveitarbóndinn, sem ræktar jörð-
ina og framleiðir búfjárafurðir, og
sjávarbóndinn, sem dregur fiskinn
úr djúpinu, verða jafnan með
skýrustu rökum taldir fremstir í
röðinni. Þeir veita drjúgum pen-
ingastraum inn í landið, í vasa al-
þýðunnar og til opinberra þarfa, í
þessu góða verzlunarári. Starfs-
menn þjóðarinnar og verzlunar-
mennimir, sem vinna hvern dag
fyrir ákveðnu kaupi, standa þeim
hér um bil jafnfætis í þessu efni.
En hvar skyldu þeir standa í
stiganum sumir af þeim mönnum,
sem mikill hluti íslenzkrar alþýðu
ber mesta lotningu fyrir — og virð-
ist tamast að tildra til opinberra
trúnaðarstarfa, í bæjarstjórnir og
fleira þess konar — ef litið er á þá
frá þessn sjónarmiði?
Fjöldi manna hyggur að kaup-
mannastéttin og gróðabrallsmenn-
irnir, sem fylla flest kauptúnin hér
á landi, séu helztu velgjörðarmenn
alþýðunnar og leggi stærsta skerf-
inn til landssjóðs- og sveitaþarfa.
Hér skal stuttlega bent á eitt dæmi,
sem sýnir hvað þetta alt er falskt.
Einn stórlaxinn úr þessum hóp, sem
situr í bæjarstjórn eins kaupstaðar-
ins og gegnir fleiri trúnaðarstörf-
um fyrir bæinn, hefir fyrir atvinnu-
grein heildsölu á einstöku vöru-
tegundum erlendum og innlendum,
einkum sjávarafurðum og því, er
heyrir til skipaútgerðar. Hann á
sjálfur gott skip og vel búið til
fiskiveiða, en síðustu misserin hefir
það legið uppi í hrófi og eigi verið
hreyft til þess. Eigandanum ekki
fundist svara kostnaði að gera það
út, hversu mikill sem sildaraflinn
hefir orðið. Líklegt er, að þessi
maður hafi allgóðar tekjur af
verzlun sinni fyrst það er tilvinn-
andi að láta skipið standa ónotað,
,til þess að geta gefið sig allan við
henni. Og lítill er auður alþýðu-
manna af atvinnu á skipinu því. —
Hvað haldið þið að hann greiði af
tekjum sínum í landssjóð? Nú eru
þær “netto” yfir 100 þúsund á ári.
Samkvæmt núgildandi lögum, er
eigi hægt að ná því með neinum
skatti svo teljandi sé. Daglauna-
maðurinn, sem vinnur hjá honum
fyrir lágmarkskaup, greiðir hér um
bil eins mikið í landssjóð, óbein
gjöld ; hann neytir kaffis, sykurs' og
Eitt allra heimskulegasta Loka-
ráðið til þess' að blása að ófriðar-
glæðum og reyna að koma á stríði
milli Mexico og Bandaríkjanna var
sagan um herliðið hans Roosevelts.
Blaðið “New York Times” ef-
aðist um sannleik þeirra frásagna,
sem æsinga postular Roosevelts blað
anna ætluðu að drekkja landinu í.
Þáð símaði því til allra ríkja þar
sem sagt var að herdeildir væru
myndaðar. Svarið var samhljóða
alstaðar — frá Oklahoma til Norð-
ur Dakota — að hvergi væri til né
í myndun neinn Roosevelts her.
Þá fórust New York Times
þannig orð í ritstjórnargrein:
“Hinn mikli her sem safnað hef-
ir verið og æföur með áhrifum
hins almáttuga nafns Roosevelts,
hefir vaxið og náð ósegjanlegri
stærð. Herinn byrjaði með 12,000
manns, en óx á fám dögum, fyrst
upp í 20,000, og er nú orðinn 100,-
000 að minsta kosti; ef til vill 200,- 1
000, því enn berast fréttir um vöxt
hans og mikla viðgang. Herinn er nú
alveg tilbúinn, æfður, mannaður að
fullu, albúinn að vopnum og verj-
pm, vistum og gögnum; hefir alla
hesta, bifreiðar og flutningsvagna,
hnakka og aktýgi. Það er bæði
fótgönguher og riddaralið, verk-
fræðingar og alls konar vísinda-
menn. Loftskipa lið er í sambandi
við herinn og þetta er alt saman
hvar? -
Teodor Roosevelts og dáenda
hans.
Hvilík undur væru það sem mað
ur með einkenni Roosevelts gæti
gert ef hann hefði þetta mikla lið
og allan þennan útbúnað! Maður
sem er eins fljótur á sér; eins ófyr-
irleitinn, eins óhlífinn og djarfur og
Roosevelt er. Hann gæti hertekið
öll Bandaríkin sjálfur og farið með
þau eins og honum sýndist.
En sem betur fer er sannleikur-
inn sá að alt herliðið hans Roose
velts er ekkert annað en draumur
sem skapast hefir í huga æfintýra
manns með ofsa og uppreistaranda.
Ef á því væri vinkilega hætta að
prívat borgari gæti komið upp svo
sterkum her í landinu, þá væri sá
hinn sami stórhættulegur;
Hvaða borgari sem það gæti yrði
hið mesta áhyggjuefni og bölvun
En það væri heimska að vera að
bera kvíðboga fyrir eða tala alvar
lega um það sem ekki er nema
barnalegur draumur.
Oss skilst svo sem þetta Banda-
rikjastrið Roosevelts við Mexico sé
aðallega bygt á stefnunni “Ameríka
fyrst og fremst”, sem eiginlega er
hugtak er aldrei hefir verið akýrt,
og þýðir eitt í huga Páls og annað í
liuga Péturs, jafnvel eitt í dag og
annað á morgun. Sömuleiðis á
þetta stríð að vera til að vernda líf
og eignir Bandaríkjaborgara í
Mexico.
Setjum sem svo að þessir fjár-
gróðamenn hefðu fylgt sinni eigin
kenningu “Ameríka fyrst og
fremst”, þá hefðu þeir auðvitað
ávaxtað eignir sínar í “Ameríku
fyrst og fremst” og þar af leiðandi
verið kyrrir heima.
Ameríka er þeim ekki nógu góð
til þess að eiga þar heima og ávaxta
þar fé sitt. Þeir fara því úr landi
burt og til Mexico, svo kalla þeir
á Bandaríkja drengina, sem eru hér
ánægðir og vilja vera hér kyrrir og
krefjast þess að þeir komi til Meci
co til þess að deyja. Þánnig á að
gera vistina góða í Mexico fyrir þá
sem ekki töldu sér Bandaríkin nógu
góðan verustað. Og þetta á að vera
Ameríka fyrst og fremst”.”
Þessi grein er tekin úr St. Paul
Daily News”. Herra Högnason
sendi Lögbergi greinina og kunn-
um vér honum þakkir fvrir.
í sama blaði er grein eftir Joseph
F. Cpwem þar sem hann sýnir fram
á ósanngirni og tvöfeldni Roose-
velts viðvikjandi stríðinu og hinar
ástæðulausti ofsóknir hans gegn
Wilson.
Roosevelt heldur því fram að ef
hann eða einhver annar “dugandi”
maður hefði verið forseti Banda-
ríkjanna þegar stríðið skall á, þá
hefðu Bandaríkin tafarlaust tnót-
FRA FYI.KISSTJÚRN'INNI 1 HANITOBA.
VERKAMALA-DEILDIN.
Tllkyimlng: um bott tll þess ab Ijúka vifl
þinghúsbygginjju fylkisins, sem nú
er hálfgrer®.
Næsta mánudagr. 21. Ágröst 1916, kl. 11
f.h. (eftir bæjartíma) verbur undirritabur
staddur 1 þingsalnum á Kennedy stræti 1
Winnijyegr, til þess aö taka á móti boöum
í hin ýmsu verk, sem leysa þarf af hendi
til þess aö fullkomna þinghúsbyggingarnar
nýju, sem 1 smiBum eru 1 Winnipegr.
TekiÖ veröur aÖ elns á móti betfum frá
klukkan ellefu til tólf (eftir bæjartfma) á
beirn degl ogr stab, sem ab ofan er grreint,
og byrjar verkamálaráöherrann þá og þar
að opna öll þau boö, sem hann hefir veitt
móttöku og veröur þaö gert I viöurvist
almennings. Engu boði veröur sint, nema
því, sem viötaka er veitt þann klukku-
tfraa, sem tiltekið e'r, þann dag og á þann
hátt, sem fyrir er mælt.
Sérstakar bréfverjur (envelopes* til
þess a8 láta tilboðin 1 og skrá yfir efni,
vertSa til útbýtingar. TilbotS, sem kynnu
atS vertSa lögtS fram 1 nokkrum ötSrum
brdfverjuni en þessum sérstöku, vertSa
skilin eftr án þess atS opna þau og alls
ekki tekin til grelna.
Þeir, sem tilbotSin leggja fram, vertSa
atS mæta sjálfir etSa láta elnhvern full-
vetSja umbotSsmann mæta fyrir sína hönd
til þess atS afhenda tilboö sín, og undir
engum kringumstætSum má tilbotS vera
lagt fram af neinum, sem er I stjórnar-
þjónustu.
Til byggingamanna
TilbotSum vertSur veitt móttaka 1 öll etSa
aum þeirra verka, sem gera þarf til þess
atS ljúka vitS hinar nýju stjórnarbygging-
sem nú eru hálfgertSar, eins og þær
eru sýndar á uppdráttum og skýrt er frá
efnisskrám og sundurlitSutSum áætlun-
um, sem til eru búnar undir umsjón Frank
W. Simon, F.R.I.B.A., byggingameistara,
og verkamálarátSherrann áskilur sér rétt
að taka tilboöum, sem annaö hvort eru í
alt verkiö eöa parta af þvl hverja fyrir
sig.
óskaö er eftir tilboöum eins og hér er
tiltekiö, annaö hvort 1 alt verkiö 1 heild
ainni eöa hvaö sfnu lagi, nefnilega:
A) Undlrbúnlngur. trygging, graftar-
vinnu og steinsteypu, styrkt stein-
steypa I þinghúshvelfinguna, nvúr-
verk, högginn stelnn, steinsteypu-
verk, trésmíöi gróft og ffnt, málm-
verk, halla brautir aö austan og
vestan, breyting á stálverki því, sem
nú er 1 austur og veatur gangveg-
um og viöbót.
B) Marmaraverk og stéttalagnlng á
upphækkun.
C) Vatnsrennur og þakverk.
D) Vteggja kölkun og tiglalagning,
málmlagning og rimlalagning.
E) Gler setning.
F) Málning.
Sérstökum tilboöum er aö elns óskaö
eftir I þaö sem hér segir, og ekki veröur
undir nokkrum kringumatæöum innibundiö
aöal samningunum:—
AA) Stálverk 1 hvelfinguna.
BB) Sérstakt ffnna trésmíöi.
CC) Blýsmíöi, litun og loftleiösluverk.
DD) Rafmagnsverk og vlralagning.
Dr. Jt L HUR5T,
Mambar ot R«y»l Coll. •( 8urn»iu,
■n(„ ÚUkrlfmBur ml RojaJ C«U*|» ot
PhrMetana, L*nd»n. Mrtramncnr t
brJ6»t- tansn- og kran-ajúkdð
—SkrlfH. <•( K»na«dr Bld*.
Are. (A mðti attn'i). Tnla. M. «14.
Holmlll M 141«. Tlml til Ttttala:
kl. I—| og 7—| «.h.
Dr. B. J.BRANDSON
Office: Cor. Sherbrooke & William
TKUPHOm GARRV 3*0
OkFICB-TfMAR: 2—3
H«imili: 77B Victor St.
Tbi.kphonk garrv 381
Winnipeg, Man.
TH06. H. J0HNS0W og
HJALMAR A. BERGMAN,
fslenrkir lógfraeBÍBgar.
Skrifstora:— Room 8n McArthar
Buildinf, Portage Aveoue
p. o. Box 1656,
Telefónar: 4503 og 4304. Winnipeg
T«r
••Un n«M otar
HU baata aa«MH.
•ra netnB
ta
•herala 4 ol
leeknlrtu Ukv ttL
Ul
tt
ar 0» Ct,
Mr ku
Fhmt* Oeitr MtT <
ð OO.
M*l.
Gísli Goodman
tinsmiður
VERKSTŒBI:
Horni Toronto og Notre Dame
- o^iL
J. J. BILDFELL
rASTMOMASALI
Room 520 Unitn Bant . TSL. (MJ
Selur hú8 og ld8ír aoniut
þar aflldtandi. PeniogaUn
****** -
Dr. O. BJORN80N
Office: Cor, Sherbrooke & William
Iki.kphonu qarrt 3Sa
Office-tímar: a—3
HIIMILI:
78* Victor Strcet
Ulepuone, oarrv res
Winnipeg, Man.
J. J. Swanson & Co.
V«l. nieíWicúr. Sjí um
le-u 4 húmim. Aroaet kn .c
_ ekMdbyrgfSr o. fl.
M4 Ib 1
Dr. J. Stefánsson
*01 Boyd Buildine
COR. PORTAGE A»E. & EDMOftTOft ST.
Stundar eingöngu augna, eyrna. nef
og kverka sjúkdóma. — Er að hitta
frákl. 10-12 f. h. «g 2 —5 e. h.—
Tal.fmi: Main 3088. Heimili 105
Olivia St. Talaími: Garry 2315.
A. S. Bardal
843 SHERBROOKE ST,
lelor lfkkistur eg aanast
. nm útíarir. Allur útfeún-
kður sá bezti. Ennfrera-
nr selnr hann allskonar
minnisvarOa og legsteina
Tnla. H«imi|l Q«rry 31B1
" OfTloo „ 300 «g 373
I>eir sem ætla sér aö bjóöa, eru á
mlntir um aö gera aöstoöar verkamála-
ráöherranum aövart um þaö og biöja um
leyfi fyrir fulltrúa sinn til þess aö sjá
uppdrættina og fá efnisskrár,
Þegar slfk /beiöni kemur í hendur aö-
stoöar verkamálaráöherra, gefur hann út
sprjald, sem veitir vlrkilegum Ibjóöendum
og fulltrúum þeirra leyfl til þess aö skoöa
uppKÍrættina og þaö verk, sem þegar hef-
Ir veriö gert á byggingunum. Þessi spjöld
Alt caman í btlP'a veröa ekki látin öörum í hendur og verö
/\ir saman ao eins 1 nuga ur þess krafIst að hver 8em þau hefr
skrifi nafn sitt í bók, sem til þess er gerö,
I hvert skifti sem hann kemur I bygg-
ingarnar.
Stórt herbergi hefir veriö tilreitt í norö
austur væng nýja þinghússins, og veröa
þar allir uppdrættir og skýringar til sýnis.
Undir engum kringumstæöum fær neinn
af þeim, sem hugsa sér aö bjóöa, aö fara
burt meö neitt af þessum gögnum.
Efnisskrár hafa veriö samdar yfir hin
ýmsu verk, og þeir, sem hugsa sér aö
bjóöa, geta fengiö eintök af þeim meö
þvf skilyröi, sem hér segir:—
Fyrir öll gögn viövfkjandi öllu verkinu
og efnlsskrár, þar sem hver liöur er tal-
inn fyrir sig, sem efni er beöiö um fyrir
alt I senn eöa hvaö sér, $50.00.
Fyrir öll gögn viövfkjandi öllu verkinu
og efnisskrár yfir hverja sérstaka iön, sem
efni er beöiö um aö eins út af fyrir sig,
$10.00.
Umsókn um þetta veröur aö vera skrif-
uÖ og stýluö til aöstoöar verkamálaráö-
herrans og veröur henni aö fylgja viöur-
kend bankaávfsun til Manitoba fylkis eins
og aö ofan er skýrt. Veröur þá bygginga
meistaranum faliö aö afhenda þaö sem
um er beöiö.
Þeir sem htagsa sér aÖ bjóöa I verkiö,
eru látnir vita aö þeim er þaö óþarft aö
láta gera nokkrar mælingar; þær eru all-
ar ábyrgstar. Og þaö er af þessum á-
stæöum, aö ekkert af gögnum né upp-
dráttum má takast 1 burtu.
Þeir sem sjá um efnismagniö veröa ttl
viötals og viljugir aö skýra fyrir hverjum
sem hefir 1 hygju aö bjóöa, hvaö sem er
f uppdráttum, áætlunum og skýrslum um
efniö, ef bjóöendur kynnu aö vera I efa.
Enn fremur er væntanlegum bjóöendum
ráölagt aö lesa vel aöal skilyröin, þar sem
þau mynda árföandi hluta af hvaöa samn
ingi sem talaö er um aö gera Ef ekki
eru uppfylt, öll skilyröin, sem til eru tekin
um tilboöiö, þá er þaö talin góö og gild á-
stæöa til aö sinna ekki boöinu.
Þeir sem bjóöa til samans f fleira en
eitt af þvf sem þannig má bjóöa I, veröa
undir ölum kringumstæöum aö vera á-
reiöanlegir byggingamenn f Canada og
hafa. veriö þaö aö minsta kosti I þrjú ár
og veröa þeir aö framvísa fullnægjandi
sönnunum fyrir þvf, aö þeir séu þvf vaxn-
ir aö halda verkinu áfram þangaö til þaö
er fullkomnaö.
Sérstök boö veröa líka aö eins tekin glld
frá áreiöanlegum canadiskum bygginga-
mönnum, sem aö minsta kosti hafa veriö
þrjú ár viö þaö verk fyrir sjálfa sig
Canada, hver I sinni iön.
Engin tilboö, hvorki f margt saman né
eitthvaö ednstakt, veröa undr nokkrum
kringumstæöum tekin til greina, nema því
aö ens aö þeim fylgi viöurkend banka-
ávfsun á banka, sem stofnskrá hefir f
Canada, borganleg til Manitoba, og nemi
aö minsta kosti fimm hundruöustu (5%)
af allri upphæöinni , sem verkiö nemur
og I er boöiö.
Slfk upp'hæö rennur inn til stjórnarinn
ar ef sá, er þaö sendi. fær verkiö en hætt-
ir svo viö þaö eöa vill ekki taka þaö meö
þeim skilyröum, sem hér eru sett.
Avísun þess er verkiö fær, hefir stjórnln
í höndum sem tryggingu fyrir því, aö
verkiö sé vel af hendi leyst og Öll skllyröi
samnjngsins uppfylt, og er skilaö aftur ti!
eigandans þegar verkinu er lokiö, eins og
til er tekiö I 19. liö samningsins.
Ávísanir hinna veröa sendar þeim, þeg
ar samningur hefir veriö geröur viö’ þann
er verkiö hlaut.
Stjórnin bindur sig ekki til aö taka
lægsta boö eöa neitt þeirra.
S. C. OXTON,
AÖstoÖar Verkamálaráöherra.
THOS H. JOHNSON,
Verkamála ráöherra
FLUTTIR til
151 Bannatyne Ave
Horni Rörie Str.
( stærri og betri verkstofur
Tals. Main 3480
KanalyEleotricCo
Motor Rcpair Specialist
mæli hans úr tímaritinu “Out-
look” í ágúst 1914.
Þar segir svo: “Það liggur í
augum uppi að það væri aðeins
.heimska fyrir oss að hlaupa inn í
ófriðinn sjálfir, þar sem það væri
>ýðingarlaust; og mjög liklegt er að
vér hefðum ekkert getað gert til
>ess að verða Belgiu að liði. Vér
berum heldur ekki hina minstu
ábyrgð á því sem fyrir það land
hefir komið”.
Þetta segir Roosevelt sjálfur
Outlook” eftir að stríðið hefir
staðið yfir í tvo mánuði; eftir or-
ustuna við Viege, Louvain, Namur
og Marne. Þetta telur Cowern
nægilega sönnun þess að engin lík-
ndi séu til þess að Roosevelt hefði
hreyft nokkrum mótmælum hefði
hann verið forseti, heldur sé herför
hans gegn Wilson aðeins í því skyni
gerð að stækka sinn eigin pólitiska
mann og slá ryki í augu fólks svo
andstæðingar hans sjáist ekki í réttu
fjósi.
Námsfólk Tcstur við haf.
Winnipeg, 12. Júlí, 1916.
J. G. SNÆDAL,
TANNLŒKNIR
614 Someraet Block
Cor. Portage Ave. eg Donald Street
Tals. main 53W.
Steam-No-More
GLERAUGNA - HREINSARI
er samsetningur sem hver maður er gler-
augu brúkar ætti ekki að vera án. Ef ein-
staka sinnum sett & gleraugun, heldur þa>
þeim hreinum Og ver ryki að setjast 4 þau
Breyting loftslags f rá kulda til hita, setur
ekki móðu á þau. Þór getið ekki ímyndað
yður hvaða ágaetis efni þetta er til að halda
gleiaugum hreinum. Vér ábyrgjumst það,
annars faest peningunum skilað aftur.
VERD 25 ct».
WINNIPEG INTR0DUCE C0.,
P.Q. Box 58, - WinnipeK, Mzn
mælt aðförum Þjóðverja i Belgiu,
og ef þeim mótmælum hefði ekki
verið sint, þá hefðu Bandaríkin
sagt Þfjóðverjum stríð á hendur
umsvifalaust.
Til þess að sanna að Roosevelt
leikur tveim skjöldum í þessu máli,
til þess að sanna að hann sjálfur—
Roosevelt—var á móti því upphaf-
lega að Bandaríkin skiftu sér af
stríðinu, kemur Cowern með um-
Á síðari árum hefir nokkuð
margt af íslenzku námsfólki stund-
að nám við kennaraskólann í Bell-
ngham í Washington ríki.
Siðastliðinn vetur voru 4 stúlk-
ur og einn piltur ísl. þar við nám.
Tvær af stúlkunum tóku þaðan
burtfararpróf með mjög góðum
vitnisburði, nú í vor.
Þær voru Maria Hjaltalín frá
Bellingham, Wash. og Svanfríður
Sigurborg Hallsson frá Seattle.
Miss Hjaltalin er dóttir þeirra
Hjaltalíns hjóna, er áður bjuggu á
Mountain, N.D. en eru nú búsett
í Bellingham.
Miss Hallson erættuð frá Seattle,
er hún dóttir þeirra Ásgríms Halls-
sonar og Sigríðar konu hans.
Er Ásgrímur Skagfirðingur að
ætt, en Sigríður móðir hennar er
ættuð frá Veðrar-á í Önundarfirði
Þessar stúlkur hafa báðar lagt
mjög að sér við námið, eru báðar
heldur fátækar en hafa sýnt óbil-
andi kjark og þrek í því að keppa
að takmankinu sem þær höfðu sett
sér.
Hinar stúlkumar sem stunduðu
þar nám eru þær María Friðriks-
son frá Seattle, uppeldisdóttir
þeirra Mr. og Mrs. Friðbjörns
Friðrikssonar frá Seattle. og
Margrít Johnson frá Point
Roberts, dóttir Jóns Johnson fyr
Verið ekki hugsjúk.
Menn Itapa ekki heílsunni af
of mikilli vinnu heldur af hug-
sýki og óreglulegum lifnaði.
Þeir eru hugsjúkir yfir því að
geta ekki gert meira en þeirferu
færir um og fyrir það líða þeir.
Þeir tapa bæði svefni og mat-
arlyst og þjást svo af andleg-
um slappleika og þreytu. Við
alla slíka menn mælum vér með
American Elixir of Bitter Wine
Þetta ágæta meðal hjálpar til
-’ess að byggja upp það tem
niður hefir brotnað því það
heldur hægðum í góðu lagi,
eykur matarlystina, bætir melt-
inguna og styrkir líkamann. I
hægðaleysi og þeim lasleika
sem af því leiðir svo sem melt-
iogarleysi, óþægindi eftir mál-
tíðir, vindverk, óeðlilegum hör-
undslit, höfuðverk taugaslapp-
leika o.s.frv., er sterklega mælt
meðþví. Verð $1.30. Fæst
lyfjabúðum. Jos. Triner
Mttnufacturing Chemist 1333-
1339 S. Ashland Ave., Chicago
111.
I gigt, tttugaþrautum og liða-
stirðleika ætti að nudda Trin-
ers Liniment vel inn í þar sem
þrautirnar eru eða tennvæta í
því dulu leggja h*na við þarv
sem verkurinn er og binda með
þurru vafi. Fæst í lyfjabúðum
kostar 70c. sent með pósti.
bónda þar, og Guðrúnar konu hans.
Þá var og B. Samuelson frá Pt.
Roberts þar við nám, er hann ung-
ur, og mjög efnilegur námsmáður.
Miss Hattie Goodmanson frá Pt.
Roberts hefir og stundað nám við
þennan skóla, en var þar ekki við
nám síðastliðinn vetur.
Sig. Ólafsson.