Lögberg - 05.10.1916, Page 8

Lögberg - 05.10.1916, Page 8
8 LoiiBERG, FIMTUDAGINN 5. OKTÓBER 1916. Ur bænum Jón Bjömssan frá Baldur var á ferö hér í bænum í vikunni sem leið og dvaldi nokkra daga hjá son- um sínum. Hann er nú hálfníræð- ur, en furðanlega ern eftir aldri. Trausti Vigfússon bóndi frá Bif- röst var hér á ferð nýlega ásamt dóttur sinni. Hann fór norður aft- ur á föstudaginn var. Sigtryggur Briem og Ingibjörg Ingimundsson voru gefin saman i hjónaband 27. september aö heimili foreldra brúöarinnar, Mr. og Mrs. G. Ingimundsson í Fort Rouge, af séra N. Stgr. Thorlakssyni. Ungu hjónin lögðu af stað daginn eftir norður til Islendingafljóts og verð- ur þar framtíðar heimili þeirra. Brúðguminn er sonur Jóhanns bónda Briem við íslendingafljót. Kristján kaupm. Johnson frá Baldur kom til bæjarins i vikunni sem leið og dvaldi hér nokkra daga. Með honum kom dóttir hans sér til lækninga. Kristján sat hér bún- aðarþing, sem hann hafði verið kosinn fulltrúi á. Mrs. Margrét Johnson frá Stony Hill var á ferð í bænum á fimtu- daginn að finna kunningjafólk sitt hér. Mrs. Friðný Sigurborg Stefenson frá Selkirk var hér á ferð fyrir helgina. Menn eru mintir á hina ágætu samkomu, sem kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar hefir undirbúið og haldin verður i kirkjunni á mánudagskveldið. Sjaldan eiga menn kost á að njóta jafn mikilla andlegra og Iíkamlegra góðgerða á einu kveldi. Bjami Loftson sunnan frá Morden var hér á ferð í bænum á þríðjudaginn og fór þangað út aft- ur á miðvikudaginn. Hann hefir dvalið í Morden í sumar við smíð- ar. Páll Jónsson frá Siglunesi var hár á ferð núna í vikunni. Kom hann vestan frá Argyle, þar sem hann hefir verið í haust við upp- skeru. Hann fór heim á þriðju- daginn. Nýlega er látinn Ólafur bóndi Kristjánsson í Morden fBrowne) bygðinni. Hann átti lengi heima í Norður Dakota. Geirfinnur Pétursson frá Narrows kom hingað til bæjarins á mánudaginn í verzlunarerindum og fór heim aftur næsta dag. Skeyti kom frá Árna Eggerts- syni á þóðjudaginn frá New York og sagði hann að Gullfoss hefði lagt af stað 2. október (á mánudaginn). Sömuleiðis kvað hann Goðafoss leggja af stað frá íslandi 8. okt. og frá New York aftur 2. nóv. Fólkið var alt stöðvað á leiðinni og því harðlega bönnuð för um Banda- ríkin nema því aðeins að það hefði læknisvottorð um heilbrigði. Tafði þetta ferðina um heilan dag. Séra F. J. Bergman fór suður til Morden á þriðjudaginn til þess að jarða Olaf sál. Kristjánsson. Hann skrapp suður til Norður Dakota um leið. Séra Rúnólfur Marteinsson pré- dikar í Skjaldborg á sunnudags kveldið kl. 7. Sigurður Einarsson tinsmiður frá Helbre kom til bœjarins á þriðjudaginn og dvelur hér um tíma. Hann hefir fengið hér at- •vinnu við iðn sína. Agæt samkoma verður haldin í Sðcjaldborg á þakklætishátíðar dag- inn. Þar verður margt skemtilegt að heyra, þar á meðal verður Goð- mundur Kamban á skemtiskránni og hefir hann aldrei komið hér fram án þess að menn þyrptust að til þess að hevra hann; mun svo verða enn. Lesið skemtiskrána. það er nóg til þess að þið hugsið ykkur ekki lengi um að koma. “Fjölnir” allur frá byrjun er til söðu í ágætu bandi. H. S. Bardal visar á. Eiríkur bóndi Bjarnason frá t>ing- vallanýlendu var á ferð í bænum ný- lega; hann kom á fimtudaginn og dvelur um tima hjá Sigfúsi Jóels- syni og konu hans fdóttur sinnij. Eirikur er fróður og hefir víða far- ið; kann því frá mörgu að segja. Hann sagðist hafa gaman af því að lesa stríðsfréttirnar, einkum vegna J>ess, að hann hefir einmitt verið á þeim svæðum sem orusturnar eiga sér stað; hann var lengi í förum nleðfram ströndum Frakklands, Þýzkalands, Rússlands, Danmerkur og víðar; hefir verið í Hollandi, Belgíu, Sviþjóð og víðar. Mr. J. K. Jónasson kaupmaður frá Dog Creek, kom til bæjarins á mánu- daginn. Með honum voru þær syst- ir konu hans og Ólöf Isberg ljós- móðir. Þær fóru aftur á þriðjudag- inn til Lundar og dvelja þar til föstudags hjá foreldrum sínum, en Jónas fer þá heim og mætir þeim þar. Hann er hér í verzlunarerind- uni. Jón kaupm. V,'ium frá Foam Lake kom til bæjarins í vikunni sem leið í verzlunarerindum. Hann var hér við jarðarför Kristins sál. Stefáns- sonar. Ilann sagði stöðugar vætur og óþurka þar vestra og þreskingu því mjög seinfara. Björn Þorbergsson kaupfélags- stjóri frá Þingvallanýlendu, kom ti! bæjarins á mánudaginn og dvaldi hér nokkra daga. Hann kom ásamt Eiríki Bjarnasyni með gripi til sölu er bændur sendu í félagi. Búast þeir við að fá fyrir þá hærra verð á þann hátt. Magnús Markússon er nýfluttur og er áritun hans nú Komoca Apts. Suite 1, á St. Paul Ave. Otto Kristjánsson frá ísafirði og Sigríður Marta Borgfjörð frá Ár- borg voru gefin saman í hjónaband í vikunni sem leið í Cypress River hjá þeim hjónum Conrad Norman og konu hans. Séra Friðrik Hall- grímsson gifti. Ungu hjónin lögðu áf stað héð'an frá Winnipeg til Winnipegosis á mánudaginn; verð- ur hann við fiskiveiðar norður á vatninu í vetur. Gott uppbúið herbergi til leigu fyrir einn eða tvo karlmenn. Tal- simi í húsinu. Ritstjóri visar á. Goðmundur Kamban hafði fram- sögn í Skjaldborg á mánudaginn til ágóða fyrir gamalmennaheimilið Betel á Gimli. Kirkjan var svo að segja troðfull. Goðmundi tókst snlldarlega að vanda. Hann sagði fram flest af því semi hann hafði áður flutt og ýmislegt fleira ágætt og skemtilegt; þar á meðal stutta sögu eftir sjálfan sig. Goðmundur hefir þegar ferðast um ýmsar bygð- ir Islendinga hér nyrðra og er nú setn stendur vestur i Argylebygð. Magnús Einarsson ('MiðhúsaJ fór norður til Mikleyjar á mánudaginn til v’etrarveru. Hann dvaldi þar í fyrra vetur og féll svo vel, að hann vill hvergi annarsstaðar vera á nieðan kuldinn er. Kristján Johnson frá Baldur hef- ir verið hér um tíma á þingi með þeim fulltrúum er setja fastar á- kvarðanir urn flokkun á hveiti. Hann hefir verið í þeirri nefnd svo árum skiftir og kemur hún saman á hverju hausti. Faðir Kristjáns var með honum. Miinneota Mjascot getur þess, að fjöldi fólks hafi heimsótt þau S. S. Hofteig ("yngraj og konu hans. Þau voru að flytja til Canada og ætla að setjast þar að. Við þessa heimsókn töluðu margir, þar á meðal Gunnar Björnsson, Jón Run- ólfsson, María Árnason, Björn Gísla- son, Dr. Th. Thordarson o. fl. Sama blað getur þess, að dáið hafi 25. Sept. Guðrún Severson, ekkja Jens Seversonar, 68 ára göm- ul. Hún átti 5 böm á lífi. Þorsteinn Bergmann kom norðan frá Mikley á mánudaginn að leita sér lækninga hjá Dr. Björnssyni — Hann sagði engar fréttir þaðan að norðan, en góða líðan yfirleitt. Hann fór norður aftur á þriðjudag- inn. Páll Guðmundsson, sem heima hefir átt i Hollyvvood byggingunni, er nú fluttur í Suite 10 í Bella Vista að 597 Ellice Ave. Sérstök þakkargerðar-guðs- þjónusta verður í Fyrstu lút- ersku kirkju næsta sunnudags- kvöld. Einar J. Skafel frá Mözart er nýkominn til bæjarins. Hann stund- ar nám við háskólann í vetur. Þau Pétur Fjeldsted og kona hans frá Gimli eru flutt hingað til bæjar- ins. Pétur er ágætur málari og hef- ir fengið hér vinnu. Þau eiga heima í Ivanhoe byggingunni á Wellington götu. Guðrún Stefánsson, ekkja Kristins sál. Stefánssonar, biður Lögberg að flytja þeim öllum sitt hjartans þakklæti, sem að einhverju leyti sýndu vináttu- og virðingarmerki við lát og jarðarför manns hennar, og fyrir alla þá hluttekningu er hún hafi orðið aðnjótandi af fólki fjær og nær. Ef einhver hefir til sölu sögnna "Elenóra” eftir Gunnstein Eyjólfs- son, er hann beðinn að láta ritstjóra Lögbergs vita um það. Ólafur S. Thorgeirsson fékk bréf heiinan frá íslandi, þar sem sú frétt er sögð, að Kristján Erlendsson, sonur Erlendar Erlendssonar á Ein- hamri, sé nýlátinn. Bréfið er skrif- að 7. Sept. Erlendur sál. var bræðr- ungur við þá Magnús og Wilhelm Paulson. Var hann um nokkurn tima hér vestra bæði í Winnipeg og víðar, og vann fyrir C.P.R.. Hann var mesti myndar og gáfumaður. 1 bréfi til föður síns segist Leon- ard Magnússon Ieggja af stað til Frakklands þann 21. Sept., eftir 5 mánaða dvöl á Englandi. Mrs. M. J. Borgfjörð frá Hólum í Saskatchewan hefir dvalið hér í bænum í vikutíma, og skrapp norður að Gimli til að heimsækja systur sína þar, Mrs. Chiswell. Hún fór vestur aftur í gær og með henni Mál- fríður Borgfjörð tenglamóðir henn- ar, sem dvalið hefir hér alllengi hjá Ingibjörgu Dalmann dóttur sinni. Sagt er að 223. herdeildin eigi að sendast til Englands eftir 20. þ.m. Koma þær fréttir mörgum á óvart, þar sem ákveðið hafði verið að deildin yrði hér vetrarlangt. Er þetta undarlegt fyrir þá sök, að aðrar deildir, sem fyr voru stofnaðar, eru kyrrar og verða. Þessi deild hefir enn ekki nema 700 manns af 1100, sem hún þarf, og fari hún nú verð- ur henni að sjálfsögðu allri sundrað. Manitobastjórnin og Alþýðumáladeildin Greinarkafli eftir starfsmann alþýðumáladeildarinnar. Hanstbarátta gegn illgresi. Sá bóndi sem hefir illgresi í | akri sínum ætti að reyna að, plægja sem allra mest að haustinu. Eitt allra áhrifamesta ráðið til |>ess að eyðileggja villihafra og svo að segja allar tegundir illgresis er það að plægja grunt eða skera fdiskaj að haustinu alt það land, sem á að sá í seint næsta ár eða hvíla. Eðlilegi tími ársins fyrir illgresi að frjófgast er í Maímánuði, og ef illgresi er að haustinu grafið í 1—2 þumlunga djúpri mold1, en ekki grafið of djúpt, þá getur það skot- ið frjóöngum um sama leyti næsta vor og hveitið byrjar að vaxa. Á meðan illgresið er örlítið er hægt að eyðileggja það með því að- eins að s'kera (diska) akurinn, eða herfa það eða plægja, og verður það þá miklu viðráðanlegra síðar, hvert sem sáð er í akurinn byggi eða hann er hvíldur það sem eftir er ársins. Ef aftur á móti ekkert er skift sér af akrinum í haust, verður mik- ið eftir af illgresi í frjóknöppum nokkra þumlunga fyrir ofan svörð ; sömuleiðis í hánni og á yfirborðinu í moldinni. Mjög oft má finna þessi sæði óútsprungin í byrjun júnímánaðar, af því þau hafa ekki getað framleitt nýjar plöntur fyr en þau voru grafin í moldinni. Af- leiðingarnar verða þær að þegar plægt er þar sem sæðin eru, þá annaðhvort liggja þau í moldinni aðgerðalaus í heilt ár eða jurtin vex upp í akrinum eða plægingunni ef hvílt er. Verkstofu Tals.: Gapry 2154 Heim. Tals.: Garry 2949 Jafnvel þar sem árstíðar illgresi er eða sílifandi illgresi, svo sem sáðþistill og Canada þistill og alt vex hvað innan um annað, þá er gmnn haustplæging til mikillar hjálpar. Árstíða illgresið hefir þegar byrjað, og ef það er snemma eyðilagt, eins og bent hefir verið á að ofan, og ef bóndinn vill síður plægja næsta ár, þá getur hann haldið áfram eftir fyrsta júní og haldið þistlinum í skefjum með því að nota gæsafóta rifvél í hvert skifti sem það sést að illgresið er farið að vaxa. M_eð því að fara hálfum þumlungi dýpra i hvert skifti sem plægt er eða rifið upp, fara vélablöðin í gegn um jarðveg- inn, og séu þau beitt þá skera þau plönturnar svo að þær missa gróðr- armagn. Það hefir verið sannað að ef akrinum er haldið í mold (svörtum) alt sumarið, er jafnvel hægt að eyði- leggja versta sáðþistil. En það er mjög áríðandi að aldrei sé verkið vanrækt. 1 þeim hlutum Manitoba, þar sem mest er illgresi, er það mjög æskilegt að minna sé ræktað af landi, og að það land sem ræktað er sé jiannig höndlað að illgresið eyðileggist sem mest og fljótast. . Ef sumir þeir akrar sem nú fram- leiða bæði hveiti og illgresi væru notaðir fyrir engi og sáð í þá grasi, til }>ess að koma i veg fyrir að ill- gresið margfaldaðist í j>eim í nokk- ur ár, þá mætti hreinsa aðra akra svo ]>ar hyrfi illgresi. G. L. Stephenson Plumber Allskonar rafmasnsáhöld, svo sem straujánia víra, allar tegundir af glösum og aflvaka (batterls). VINNUSTQFA: 676 HOME STREET WINNIPEG BRÚKIÐ RAFURMAGNS ÞVOTTAVÉL Á MÁNU- DÖGUM Sparið yður ómak það að þvo með höndum. Kaupið eina ráfurmagns- þvottavél og tengið við rafmagnsljósið í húsinu. Vér sýnum þær í búð vorri. Winnipeg Electric Railway Co. 322 Main St. - Tals. M. 2522 Mrs. J. B. Skaftason Iagði af stað í gær áleiðis til Evrópu. Fer hún eins' og fyr var frá sagt, til Kaupmannahafnar að heimsækja Dr. Valtý bróður sinn og síðar til Englands og dvejur þar hjá manni sínum, sem er gjaldmeístari 108. herd'eildarinnar. Björn Stefánsson prentari landi vor úr 44. herdeildinni var sendur frá Englandi til Frakklands ásamt nokkrum herforingjum. Hann er fyrsti íslendingur með hárri tign sem í striðið hefir farið éLeuiten- antj. 18. septeml>er féll á Frakklandi maður sem Sidney Cuzner hét. Hann var íslenzkur í aðra ættina; er móðir hans dóttir Halldórs Reykjalíns Frá Mountain. Cuzner var prentari að iðn, sé'rlega mynd- arlegur maður. Hann var í ' 27. deildinni og hafði verið nákvæm- lega ár í skotgröfunum þegar hann féll. María Magnússon piano kennari á heima að 940 Ingersoll. Talsimi G. 1310. Þeir sem kenslu óska gefi sig fram sem fyrst. Maður í Alberta fékk 52 mæla hveitis af ekrunni að meðaltali af 1000 ekrum. Það er mesta upp- skera í heimi. Þakklætissamkoma Fyrsta lút. safnaðar verður óefað ágæt. Ræðu- mennina þekkja allir að 'því að þeir hafa eitbhvað uppbyggilegt að flytja og söngfólkið sem þar skemt- ir er trygging fyrir góðri skemtun og uppbyggilegri. Mánudagskveldið var, 2. okt., voru þau Skúli Hjörleifsson frá Winnipeg Bearh og Ósk L. Lárus- son frá Gimli gefin saman í hjóna- band af séra Birni B. Jónssyni að. heimili hans, 659 William Ave. Margt verður að bíða næsta blaðs sakir rúmleysis og eru hlutaðeig- endur beðnir afsökunar á Iþví. 30. f. m. lézt hér í bænum W. Frank Merrill. Hafði hann átt heima í Winnipeg um 30 ár og var kvæntur islenzkri konu. Eru þau hjón alþekt hér í bænum. Jarðar- förin fór fram í gær frá útfarar- stofu Bardals. Séra Björn B. Jönsson jarðsöng. STAKA. Örfum skauztu oft til mín ófyrirsynju, það eg sver; ef eg kem við kaunin þín, kenna máttu sjálfum þér. J. K. Jónsson. ÞAKKLŒTISHÁTÍÐ í FYRSTU LÚTERSKU KIRKJU undir umsjón kvenfélagsins Mánudaginn 9. Október, klukkan 7 e. h. Byrjar í kirkjunni með stuttri guðsþjónustu. Kveld- verður í sunnudagáskólasalnum með eftirfylgjandi skemtiskrá yfir borðum: 1. Piano Duet.Mrs. B. H. Olson og Miss S. Fredrickson 2. Ræða (5 mín.J ............... Dr. B. J. Brandson 3. Solo—“Bænin” éeftir beiðnij . Miss H. Friðfinnsson 4. Violin Solo ......\........ Miss Violet Johnston 5. Ræða (5 mín.J ........^.. Dr. Jón Stefánsson 6. Solo .......;......,.......i.... Mrs. S. K. Hall 7. Duet ...............t.... Mr. og Mrs. Alex Johnson 8. Ræða (5 mín.J .................. Mr. M. Paulson 9. Vocal Duet . .... Miss Herman og Miss E. Thorwaldson 10. Ræða (5. mín.J ..................... Ónfendur 11. Chorus ......................... Ungar stúlkur. Aðgangur 35c. Byrjar kl. 7 Ef eitthvað gengur að úríuu þínu þá er þér langbezt að seada það til hans G. Thomas. Haun er i Bardals byggingunni og j>ú mátt trúa því að úrin kasta eiílibelgn- um í höndunum á honum. Eg hefi nú nægar byrgðir af “granite” legsteinunum “góðu” stöðugt við hendina handa öllum, sem þurfa. Svo nú ætla eg að biðja þá, sem hafa verið að biðja mig um legsteina, og þá, sem ætla að fá sér legsteina i sumar, að finna mig sem fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist að gera eins vel og aðrir, ef ekki betur. Yðar einlægur. A. S. Bardal. Syrpa er nýlega komin út. Flytur hún margt fróðlegt og skemtilegt. Sagan “Ofsóknir” eftir Kristófer Jansson, sem Einar Páll Jónsson )>ýðir, er stórkostleg og tilkomu- mikil og prýðis vel þýdd. Syrpa fer dagbatnandi i öllum skilningi og á það sannarkga skilið að hún sé vel keypt. Framsögn Goðmundar Kamb- ans í Narrowsbygð verður á fimtudaginn 12. þ. m. en ekki 10. eins og ákveðið hafði verið. G. J. Goodmundsson fékk bréf ný- lega sunnan frá Minneapolis með þeirri frétt að Sigurjón Ólafsson trésmiður, sem hér var í bænum nokkur ár, hafi slasast þar syðra um síðustu mánaðamót. Varð hann fyr- ir flutningsv'agni og meiddist mikið; meira. Sigurjón liggur á spitala í Minneapolis. -------♦«» Skúli þingmaður Sigfússon kom til bæjarins á þriðjudaginn bæði í verzlunarerindum og stjórnmálaer- indum. Hann fór heim aftur í gær. Þann 29. Sept. síðastl. urðu þau Mr. og Mrs. Goodman, 783 McDer- mot AVe., fyrir þeirri þungu sorg, að missa mjög skýran ög efnilegan yngsta son sinn, Herbert Jón, nálega 10 ára; dó hann úr barnaveiki eða hjartað bilaði. Var hann jarðaður kl. fjögur á sunnudaginn prívat, því likið mátti ekki koma í húsið, en húskveðju hélt séra B. B. Jónsson og var stór vinahópur viðstaddur. Undirrskrifuð biðja Lögberg að færa öllum sem gáfu blóm eða á annan hátt sýndu syrgjendunum hlitttekmingu, sitt innilegasta hjart- ans þakklæti. Mr. og Mrs. J. Goodman og systktni. Vöflujárn, Kleinujárn, Ullarkambar. ÞAKKLÆTISHÁTlÐ ----------1--------- Skjaldborg, Mánudaginn 9. Oktob. P R ó G R A M. 1. Samsöngur....................... 2. Ávarp forseta................... 3. Recitation.......Miss Lára Johnson 4. Fiólín spil......Mr. Gunnl. Oddson 5. Ræða............Mr. Olafur Andersoii 6. Piano spil.......Próf. Jónas Pálsson 7. Upplestur........Miss Ásta Austman 8. Einsöngur.........Mrs. P. S. Dalman 9. óákveðið.........Próf. R. Marteinson 10. Fjórraddaður söngur.......'.... 11. óákveðið . . ...Mr. Goðm. Kamban. Kaffiveitingar. Byrjar kl. 8 e. h. Inngangur 25c. Vöflnjám, eins og myndin sýnir, kosta $1.50 auk flutnings- gjalds. Klelnujám úr látúni meS svörtu skafti, sem er þægilegt I hendi. Kosta 25c. lllarkanil>ar. peir kosta $1.25. Pústgjald innan Manitoba Hc, Sask. 16c., Alberta 20c. Ntúlkaniliar. Kosta $1.50. Flutn- ingsgjald sama og hinna. J. G. Thorgeirsson. 662 Ross Ave. Winnipeg Phone G. 4138 ROYAL CROWN SÁPA er hreinust og bezt Verðmætir hlutir gefnir í skiftum fyrir COUPONS og UMBÚÐIR Byrjið strax að safna þeim. Yður mun blöskra hversu fljótt þeir koma. Þér skuldið sjálfum yður það að brúka þá aápu sem hefir reynst yður best að undanförnu. Sendið eftir verðlaunalista. Hann kostar ekkert. Verðlaunalistinn söm gefinn var út fyrir Maí 1916 er fallinn úr gildi. Skrifið til THE R0YAL CR0WN S0APS Limited PREMIUM DEPARTMENT ■ WINNIPEG, M AN. UNDRAVERÐ Fyrirmyndar HRAÐRITUN —i— WINNIPEG BUSINESS COLLEGE THE HOU8TON-IATOM SCHOOL Þetta er gamli skólinn með nýja laginu, sem helzta fólk þessa lands hefir sótt í síðastliðin 34 ár. Núverandi skólastjóri Geo. S. Houston hefir margra ára reynzlu við verzlunarskóla og er einn ]>eirra sem gæfusamíega hafa komist áfram í Vesturlandinu. Hann tekur þátt í mörg- um stórkostlegum fyrirtækjum, og er því fær um að út- vega nemendum sínum góðar stöður að afloknu námi. Mr, Houston er eigandi og stjórnandi hins undraverða Paragon hraðritunarkerfis sem hefírverið notað í Regina skólanum „The Federal" og nú lætur hann Winnipeg- Business College njóta þess kerfis sem hægt er að læra á fáum dögum. Haust-tímabilið er nú byrjað. George S. Houston, Skóla.tjóri VÉR KENNUM GREGG Hraðritun SUCCESS VÉR KENNUM PITMAN Hraðritun BUSINESS C0LLEGE Limited H0RNI P0RTAGE OG EDM0NT0N ST. WINNIPEG, - MANIT0BA ÚTIBUS-SKOLAR FRÁ HAFI TIL HAFS TÆKIFÆRI pað er mikil eftirsókn eftir nemendum, sem út- skrifast af skóla vorum. — Hundruð bókhaldara, hraðritara, skrifara og búðarmanna er þörf fyr- ir. Búið yður undir þau störf. Verið tilbúin að nota tækifærin, er þau berja á dyr hjá yður. Látið nám koma yður á hillu hagnaðar. Ef þér gerið það, munu ekki að eins þér, heldur foreldr- ar og vinir njóta góðs af. — The Success College getur leitt yður á þann veg. Skrifist í skólann nú þegar. YFIRBURÐIR Beztu meðmæli eru með- mæli fjöldans. Hinn ár- legi nemendafjöldi í Suc- cess skóla fer langt fram yfir alla aðra verzl- unarskóla í Winnipeg til samans. Kensla vor er bygð á háum hugmynd- um og nýjustu aðferð- um. ódýrir prívatskólar eru dýrastir að lokum. Hjá oss eru námsgreinar kendar af hæfustu kenn- urum og skólastofur og áhöld eru hin beztu. — Lærið á Success skólan- um. Sá skóli hefir lifað nafn sitt. Success verð- ur fremst í flokki. F. G. Garbutt, Pres. D. F. Ferguson, Prin. SUCCESS-NEMANDI HELDCR IIAMARKI I VJEIiRITlTN INNRITIST HVENÆR SEM ER Skrifið eftir bæklingi SUCCESS BUSINESS COLLEGE Limited SAFETY Öryggishnífar skerptir RAZO Ef þér er ant um aí fá góöa brýnslu, þá höfum við sérstaklega gott tækifæri aö brýna fyrir þig rakhnífa og skæri. “Gilett’s” ör- yggisblöB eru endurbrýnd og “Dup- lex” einnig, 30c. fyrir tylftina; ein- föld blöC 25c. tylftina. Ef rakhníf- ur þinn bítur ekki, þá láttu okkur sýna þér hversu auövelt þaC er aC raka þegar vér höfum endurbrýnt blöíin. — Einföld blöí einnig lög- uS og bætt. — Einnig brýnum viB skæri fyrir lOc.—75c. Tht Razor & Shear Sharpening Co. 4. lofti, 614 Builder* Ejcchange Grinding Dpt. 333i Portage Atí., Winnipeg Málverk. Handmálaðar 1 i t my nd i.r “Pastel” og olíumálverk] af mönnum og landslagi býr tilog selur með sanngjörnu verði. Þorsteiin Þ. Þorsteinsson, 732 McGee St. Tals. G. 4997 Hárkambar, greiður Vér höfum mjög fullkomið upp- Jag of hárkömbum og greiðum úr allskonar efni og af öllum stærðum. SmágerSir kambar og greiöur, vasa- greiöur, barnakamba, rakaragrtúöur, kvengreiöur o.s.frv. Komiö til vor ]>egar þér þurfiö kamba eöa greiö- ur. Vér getum áeiðanlega gert vö- ur ánægö meö voru mikla úrvali og sanngjarna veröi. whaleyslYfjabúð Phone Sherbr. 258 og 1130 Horni Sargent Ave. og Agnes St. Klæðskerar og saumakonur alls konar geta fengið vinnu viö kvenn- föt, yfirhafnir og kjóla. Gott kaup og stööug atvinna. Komið og spyrj- ist fyrir hjá The Faultless Ladies IVear Co. Ltd., Cor. McDermot & Lydia St. Norsk-Ameriska Linan Nýtízku gufuskip sigla frá New York sem segir: “Krlstlaníafjord” 7. Okt. “Bprgensfjord” 28. okt. NorðvesíurUnds farþegar geta ferðast með Ðurlington og Baltimore og Ohio járnbrautum. Farbrje'f tra l»- landi eru seld til hvaða staða sem er I Bandarfkjunum og Canada. — Snúið yður til HOBE & CO., G.N.W.A. 123 S. 3rd Street, Minneapolis, eða H. S. BARDAL, 892 Skerbrooke Street, Winnipeg.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.