Lögberg - 19.10.1916, Síða 2

Lögberg - 19.10.1916, Síða 2
fiOGBERG, FIMTUDAGINN 19. OKTÓBER 1916. Vestan nm haf. Eftir séra Magnús Jónsson. (Frarah.) IV. Sveitabragur. — Siðir og venjur. Ensika skáldiS H. G. Wells lýsir í einni af sögum sinum vél, sem hafSi þá náttúru, a5 í henni mátti fara i nokkurskonar gandreiS fram og aftur eftir tímanum. I>úsundir ára mátti fara á skammri stund. KynslóS eftir kynsióS fæddist og lifSi og dó á svipstundu. Borgir hurfu og risu upp. Sjórinn breytti ströndinni. Fjöll muldust niSur. Jafnvel hinar “eilífu” stjörnur breyttust og stóSu á festingu him- insins í nýjum “himinrósum”. Oft datt mér slík gandreiS um tímann i hug, þegar eg hugsaSi um bygSir landa vestan hafs. Þar er þvi líkast, sem þaS hafi gert á svip- stundu, sem annars er venja aS líta á sem framþróun margra manns- aldra. Setjum svo, aS vér komum í einhverja af eldri bygSunum, t. d. bygSimar i Dakota. Alt er þar fcomiS í fast horf. LandiS ræktaS crfns langt og augaS eygir, og komiS í geypi verS. Skógartoppar standa aS eins hingaS og þangaS, og þeir eru næsta ólíkir orSnir viltum skógi. Engir feysknir drumbar eSa flækj um. JarSvegurinn milli trjánna troSinn og greiSfær. Alt ber vott um þaS, aS þessir skógar eru látnir standa viljandi, til prýSi og skjóls, qg eru undir herradæmi mannanna. 'nn Vegir liggja um landiS þvert og endilangt meS enskrar mílu milli biii, og skifta landinu öllu i fer strenda reiti, jafna á alla vegu, eins og reiti á skákborSi. Og þessir vegir eru fullir af ferSamönnum. Qg þaS eru ekki frumbýlingar, gangandi meS uxasameyki og þung- iamalega, heima-smiSaSa vagnkassa, heldur menn, þjótandi í bifreiSum og öSrum nútímans farartækjum. Járnbrautir lykkjast um landiS eins ar og sótugir, ferlegir ormar, svo nærri hver annari, aS víSa má sjá á milli. Þær eru eins og nokkurs konar æSakerfi landsins, veita nær- ingu og viShaldi út um allan líkam- ann. Talsimaflækjan, taugakerfi iíkamans, sendir sinn spottann heim á hvert heimili, og ber boSin um alt. Heimilin sjálf víSast orSin mjög rikuleg, bæSi ibúSarhúsin og útihús. Alt sýnist benda á þaS, aS hér sé gömul bygS, smáhlaSin upp af kynslóS eftir kynslóS, sem legg ur hver sinn skerf til í þessum full skapaSa líkama. Og þá kemur þaS ein og flatt upp á mann, aS flestir sömu mennirnir, sem hér komu aS óbygSu landi skuli enn búa hér. Þessir bændur, sem sjást á ferS um albygt og blóm tegt landiS, og búa viS öll þægindi uútimans, þaS eru sömu mennirnir, sem fyrir skömmum tíma yfirgáfu ísland, komu þarna aS viltu land inu, skógi vöxnu, langt frá öllum mannabygSum. ÞaS eru landnáms tnennirnir. BygSin er öll blóm legri en nokkur bygS er hér á landi og landnámsmennimir búa þar enn! Saga þeirra er saga landsins, ,Þeir geta sagt alla sögu þess frá fyrstu og fram á vorn dag eftir cigin minni! Þar sem nú þjóta járnbrautarlestir og bifreiSar, hltipu fyrir fáeinum árum alviltir Indián ar á veiSiferSum sínum. Þar sem menn nú sitja inni í stofum sínum og talast viS i sima, þar sátu úlf- arnir fyrir fáeinum árum, teygSu trýniS upp í dökkblátt næturloftiS móti bragandi norStirljósum, og góIuSu. ÞaS er kynjabreyting, stökk framan úr fomöld upp í nú timann, og sýnir ljóslega, hverju vinnandi mannshöndin fær um ]>ok aS á skömmum tima. Yfirlitum eru bvgSir I^anda næsta mismunandi, eins og gerist og gengur. Á fmmstiginu eru þær ekki glæsilegar. Menn búa þá mest i bjálkakofum, eSa “loggakofum” sem þar eru kallaSir. Bjálkarnir s\rara til torfkofa hér, a5e;ns mun urinn sá, að þar sem hér er nægt efni i hnausa og torf, þá er þaS ekki til þar, heldur er jarSvegurinn þar íaus i sér og fer allur i mold, en hinsvegar þar nóg af trjábolum cíS ast hvar. Skógunum þarf aS rySja Imrt af landinu hvort sem er, og þá eru stærstu bolirnir, eikarbolir venjulega, valdir úr. Greinar eru ■iiöggnar af þeim og börkur, og þeim svo raSaS hverjum ofan á annan og felt saman á homum. Rifur, sem verSa á mifli hornanna, eru fyltar meS leiri. Göt em rofin fyr ir dymm og gluggum. Sum þess hús em býsna stór, þar sem vel stóra bjálka var unt aS fá, en flest eru þau fremur lítil. Þessi hús eru ákaflega traust, eins og geta má nærri, all-hlý, ef vel er drepið raufamar, og svöl aS sumrinu. All lagleg geta þau einnig veriS, ef klædd eru utan og innan og máluS en um slíkt er ekki aS ræSa í ný bygð. Og einn versti ókostur þeirra er sá, að þau fyllast af veggjalús, sem lifir í sprungum viðniun. Þetta eru húsin, sem svara til torfbæjanna hér, frumhýlinga- húsin. Lifið í ný-bygSunum getur að sjálfsögSu ekki veriS glæsilegt eSa fjölskrúSugt. Hópur manna sezt aS. H'ver tekur sitt land, blett sem er 160 ekrur eSa li.u.b. 215 vallar- dagsláttur. ÞaS er ábýlisjörðin. Oft er hún alþakin skógi, sem ryðja verður burt, áSur en unt sé að rækta neitt. Fyrsta verkiS er þá aS koma upp skýli yfir höfuðiS, og þá eru reistir bjálkakofar; einn á hverju “landi”. Langt er í kaupstaS, því aS kaupstaðir fylgja jafnan jám- brautum, en járnbraut er hvergi komin nær en svo setn 50 mílur enskar (h.u.b. 12 danskar). Ekki er til neins aS rækta neitt meðan svo er erf'tt að koma hveitinu frá sér. Og peningar ekki miklir fyrir hendi, en akuryrkjuverkfæri dýr. Hestar em einnig dýrir, og því eru keyptir uxar. Seinir eru þeir í göngulagi og löng leiSin í kaupstaS- nn. En þó er ekki um annaS aS gera. EldiviSur er höggvinn. Hon- um hlaSiS á vagn, uxunum beitt fyrir og lagt af staS alla þessa óra- leiS í kaupstaðinn til þess aS ná i “sína ögnina af hverju”. Slik ferSalög eru ógurleg í vetrargrimd- tnurn, og næstum ótrúlegt, aS menn íkyldu ]x>la þaS, þar sem fátæktin bannaSi fullnógan búning. AS jálfsögSu hafa menn þá haldiS á sér hita meS því aS ganga. Verst var hve litið var í þann tiS gefiS fyrir eldiviS, helmingi minna en nú, því aS skógar vom þá nægir. Á öSru stiginu er bygSin töluvert prýðilegri. Stór rjóSur eru komin skógana, og í hverju rjóSri er ak- urblettur. Nú er jámbrautin kom- n þó nokkuS lengra áleiSis inn i óbygðina, sem áður var. Einstaka menn, sem bezt vegnar, reisa sér ný hús, ekki stór aS vísu, en lagleg íús, úr unnum viSi. Þeim smá fjölgar, því ekki þarf nema einn gikkinn í hverri veiSistöð. Hestar koma og óðum i staS uxanna og þykja hin bezta búbót. Fyrst eru >eir hafðir til ferSalaga mest, því aS þeir eru svo miklu fljótari, og svo er tekið aS nota þá einnig viS akuryrkjuna. Frumbýlingsháttur- hverfur óSum; menn hafa hveitiS, og geta nú keypt þaB sem þeir hafa helzt þörf fyrir. Og svo smá-fæSist bygSin eins og hún lítur nú út, þar sem blóm- legast er. Smærri húsin rýma fyr- ir stómm, prýSilegum og dýrum húsum. Hestar fara aS þykja gamaldags, þegar bifreiSamar bmna um vegina. Bóndabæjunum fækkar, því aS fjöldi manns flytur burtu annarsstaSar á land, og byrj- þar búskap af nýju, en efna- mennirnir kaupa jarðimar. Á þann hátt safnast stærSar-lendur á ein- sta'kar hendur. 400—600 og alt upp í 1000 ekrur eru lagðar undir BygSimar vestra, sem lengst eru komnar, eru því sérstaklega blóm- legar og lífvænlegar, en fagrar þykja mér þær ekki, vegna flatlend- isins. Útsýn alla vantar. Séíst ekk- ert nema örlítill hringur. Landar vestra hafa hægt aðstöðu aS ýmsu leyti, og ólíku saman aS jafna eSa hér heima. ErfiSleik- amir allir, aS lifa af fyrsta tímann. En það er engan veginn þeirra dygð, þó að vinnubrögS öll hafi skjótt orSið myndarleg hjá þeim. Þeir hafa tekiS við öllu tilbúnu frá eldri bygðum. LandiS rennislétt og því greiðfært yfirferðar og til vinnu. Vélarnar útbúnar og lagaS- ar fyrir jarSveginn og atvinnuveg- inn, í staS þess að hér verður alt að laga fyrst, áður nothæft verSi. Þegar ]>eir vinna alt með vélum, þá gera þeir ekkert annað en fylgja landssiS, taka það upp, sem allir aðrir nota. Vegimir eru næstum sjálflagðir. Jámbrautirnar koma sjálfkrafa, því aS stórgróðafélögin annast þa'5. Menn þurfa þar ekki að rífast árum saman um, hvort þaS eigi að gerast eða ekki. KvartaS heyrSi eg oft um þaS að alt félagslyndi væri horfiS úr bygðunum, síðan fmmbýlingshætt- inum laut. Og vist er það satt, aS aldrei hefir félagslyndi veriS meira en fyrst, og liggja til þess eSlileg rök. Þégar hópur manna sezt aS í óbygðum, og hefur baráttu sina þá hina hörðu móti alls konar örð- ugleikum, þá er ekki kyn, þótt þeir dragist hver að öSrum. Þeir verða eins og nokkurskonar eyland, eða öllu heldur, þeir likjast mest mönn- um, er sitja á sama fla'kinu úti á ólgusjó. |>ar er ekki tími til að deila, ekki rúm fyrir nábúakrit. Heimilin eru auk þess ekki vistleg. En eftir því sem velmegun vex, fara menn að verða meira hver sjálfum sér nógur. Og heimilin ern notaleg og því ekki eins oft út fyrir ]>au leitaS. « En þrátt fyrir þetta er þó fé- lagslyndi mikiS. Því aS þaS er aS- gætandi, að ytri búningurinn er fljótari að breytast en innri kjam- inn. Það er fljótara aS breyta út- Iiti bygðarinnar, ryðja burtu skóg- um, reisa hús og annað slikt, en breyta sjálfum sér. Og því leynist það heldur ekki fyrir þeim, sem taka vill eftir,að það eru frum- byg?jarnir sömu, sem áður bjuggu bjálkakofum og gengu löngti komlega við. Ameríkumönnum ÞaS er stofnaS til þeirra ranglega, kaupstaSarleiðina viS hliðina á ux- unum sinum, sem nú búa í fallegu húsunum og þjóta í bifreiðum. Miiklu greiSara aðgöngu aS hafa líkamleg fataskifti en andleg. Og þessvegna lifir gamli neistinn und- ir niðri, hve kappsamlega sem nýi tíminn hleSur ofan á hann. Og meSal annars er gamla félagslynd- ið engan veginn datitt, þó að ýmis- legt hafa stuðlað að því, aS rjúfa þaS. Samkomur og boS eru tíS. Og undur fyrir þann, sem frá gamla landinu kemur, með mót þess nokkurnveginn fast í sér, hve ákaft fólkið þar er í þesskonar. ÞaS er vafalaust af þvi, að maður hefir ekki lifað með því árin næstu á undan, árin, sem þar er minst sem gullaldar félagsskaparins. Einkennilegt er eitt við félags- líf Landa vestra. Og það er fá- breytnin í öllum siðum. Sá sem á einni samkomu hefir verið, í einu kveldboði eða viS einn miðdagsverð, hefir séS þaS alt. Þar er aldrei nein tilbreyting á ytri framferði eða háttum. “ÞaS sem hefir ver- ið, það mun verða, og það sem gerst hefir, það mun gerast,” á þar full- inarafl áhrærir, eins og ömefnin Heirra bera ljósastan vottinn, og Landar eru auðvitaS hér sem viSar 'aukrétt mynd af þjóSinn:, sem Heir hittu fvrir sér. Vil eg ekki 'vsa þessu nánar, til þess að skerða etkkri friðhelgi heimilisins. Ein siðvenia er þaS, sem lýsa rerSur. ÞaS er hin svonefnda “surpr'se-party”, eða skvndiheim- ókn, sem svo mætti nefna. Upp- •’rnnin eru þau í nýbyggjalífinu. T>á var þaS merkisviSburður, er 'inhver nágranninn reisti sér nýtt 'uis, og sjálfsagt aS nota bað sem 'tyllu til félagsskapar. Var það ’>á siður, að þegar húsið var full- ’ert, en ekki tekið til bústaðar, þá 'öfnuðust nágrannamir saman e n- '’verja kveldstund í mvrkrinu, ná- lægt húsinu. Var farið aS öllu em hljóðlegast, svo heimilisfólk ■rrSi ekln vart við, enda nóg fylgsni ’ skóginum. Þama safnaðist sam- in fjöldi manns, ef til vill svo sk'fti hundruðum manna. Var svo geng- S snúSugt heim á bæinn. öll híbýli fvltust fólki á svipstundu, og nú var tekið til aS búa búi bónda. Þó var ekkert tekið af þvi sem fyrir rar, heldur hafSi hver sina ögnina •neð sér, sum:r kaffi, aðrir sykur, briðju einhverja tegund brauðs, o. frv., aS ógleymdri “máluðu hol- mni”, meðan það var leyfilegt. ^Nú er Norður Dakota bannland.) Konur kveyktp eld og hituðu vatn i kaffi, en menn skoSuSu húsin hátt og lágt og skemtu sér eftir föngum, og húsbændur þó bezt. RæSuhöld fóru ]>ar og oft fram aS einhverju leyti. Og svo var höfS meS einhver smá-gjöf, minjagripur, klukka eSa eitthvað slíkt, því að ekki var nú mikið fyrir hendi af húsgögnum aS jafnaSi hjá nýja húseigandanum. Þessu hélt svo fram þar til liðiS var á nótt og hélt svo hver til sín heima. Þetta er siður, sem mæta vel lýs- ir nýbyggjalifinu : — félagslyndiS, ruddaskapurinn, löngunin að hitt- ast og ýms einkenni þess koma hér fram. AuSvitaS var þetta siSur, sem I^andar hittu fyrir sér, er þeir komu, og tóku þegar upp. En svo hélt ]>essi siður áfram og viðgengst enn, og samrýmist þó illa siðaðra lífi. Enda er hann nú búinn að missa mörg af^sínum frumeinkenn- um, og ekkert, sem heldur i hon- um Iifinu annað en þetta, sem minst var á hér aS framan, að sjálf- sagt þykir að halda uppteknum hætti. Giöfin, sem upphaflega var aukaatriði, er nú orðin aSalatriðiS, enda oft gefnar stórgjafir, t.d. hús- gögn i gestastofu eSa annaS þvilíkt. MeS híbýlaprýði og vandfýsni í þá átt kom einnig sú tilfinning, að ekki væri sérlega æskilegt að fá h. u. b. 300 manns vaSandi og öslandi inn um allar stofur, og jafnótt og heim- ilið verður að “kastala” manna, kæra menn sig minna um slik áhlaup. Þessháttar þektist ekki áður. Peninga-eySslan fer og að verða allmikil, ef slikar heimsóknir gerast tíðar. Loks mistu þessar skvndiheimsóknir siSasta vott af viti við þaS, aS fariS var aS hafa slíkar samkomur í samkomuhúsum bvgðanna og gjöfin þar afhent, Og við það smálognast þessi siður svo útaf, enda heyrir eingöngu til frumbýlingslifinu, og ætti meS því aS hverfa. Annar siður þessu svipaður var horfinn úr sögunni nokkru áður en sá. sem þetta ritar kom vestur. Sjálfsagt þótti, aS sá sem gekk í hjónaband, ^héldi einhverja veizlu, hefði t. d. bjórtunnu eða annað slíkt mönnum til gleðskapar, til minningar um þennan merkisat- burð. Er þettg svo sem sjálfsagt, og er ekki tiltökumál. En siðurinn (eða ósiðurinn), sem hér ræSir um, var af því sprottinn, aS ef einhver vildi ekki sinna þessari venju, þá {xótti rétt að halda því máli til streytu og sýna sökudólginum í tvo heimana. Var þaS gert á þá leiS, að seint uni kveldið, þegar búist var viS aS nýju hjónin væru til rekkju gengin, söfnuSust menn saman á heimili þeirra, gerðu há- reisti, svo að engar værðir var hægt að hafa og gerðu auk þess ýms her- virki, brutu glugga, hvolfdu vögn- um og vélum, spiltu girðingum, hleyptu út skepnum og annað slíkt. Vildu fæstir eiga slikt á hættu, og kusu því heldur aS hlýða ]>essu ó- skráSa lögmáli. Hefir vafalaust upphaflega legið til grundvallar sú skoðun, að þetta væri sprottiS af nýsku og ætti því ekki aS viðgang- ast, heldur verða hlutaðeigendum enn dýrara. Ekki sel eg dýrara en eg keypti sögtina um þaS, hvernig þessi siS- ttr IagSist niSur. En svo heyrSi eg frá sagt, aS NorSmaSur einn, sem heimsóttur var i þessu dkyni, hafi komiS út í glugga meS spenta bysstt, og sagt þorpurunum að hafa sig brott, eSa hann skyldi skjóta á hóp- inn. En þeir hafi engtt skeytt. Og þá átti hann aS hafa skotiS á hóp- inn og drepiö einn manninn. — En víst er ttm það, að siSurinn var al- gerlega horfinn, og tel eg mjög ó- liklegt að horfið hefði svo fljótt, ef ekki hefði einhver alvarleg rök til þess legið. En skiljanlegt aS menn langaði ekki til aö endurtaka þann leik, sem einu sinni hafði svo hraparlega endað. Eitt dæmi þess’, hvernig Land- ar hafa fórnað því íslenzka fyrir hið ameríska, jafnt þar, sem engin þörf geröist, er það, með hverjum hætti unga fólkiS trúlofast þar vestra. IDæmin hafa sýnt þaS, hugsa þeir víst, að hjónaböndin eru oft býsna mikið ööruvísi en þau ættu að vera. Þetta hlýtur aS koma af því, aS flanað er út i þau af blindri ást og án allrar skynsemdar. þarf ekki aS viðbregöa hvað ímynd- og því fer sem fer. Þau eru nokk- ‘ ' urskonar happadrættir. Sumir geta verið fádæma hepn r, en allur fjöld- inn hefir ekki annað en skapraun af því. Og svo vilja þeir beina sínum innuvisindum” við þetta eins og annaö. MaSur og stúlka hittast og líst ekki illa hvort á annað. En í staS þess aS “skjóta sig” hvort i öðru, þá koma þau sér saman um að kynnast nánar, undirskiliS, aS ef vel gefist viökynningin, þá skuli þau verða hjón. Þetta getur auðvitaö verið þegjandi samkomulag ein- göngu, og er skoSaS sem hálfgild- ings trúlofun. Þó er það etigum heitum bund ð, ef ekki feflur vel. ÞaS er nokkurs konar skilorðs- bundin trúlofun. Er þá kallað aS þau “fari saman”, því þaS lýsir sér helzt meS því aS þau eru saman á dansleikjum o.s.frv. Stundum er þaS og kallað aS “hann sé á eftir henni” og “hún fari með honum”. Hvcnær þetta samkomulag breytist i reglulega trúlofun, veit enginn nema þau tvö og sá sem alt veit. F.n opinberun trúlofunar fer aldrei fram. ÞaS he'dur áfram oð vera opir.bert leyndarmál fram til þess er hjónavígsla fer fram. Hringar eru engir notaðir, nema hvaS al- gengt er að maðurinn gefur konu efninu demantshring. En það er einkamálefni og hefir ekki þá “op- inberunar” merkingu, sem trúlof- unarhringar hafa hér. Giftingar- hr'ng (einbaug) setur brúSurin græðifingur znnstri handar á gift- ingardegi, en karlmenn hafa enga giftingarhringa. Ekki ber á því aS þessi vinnuvís- inda-hjónabönd gefist hótinu betur en gamla aðferSin. ÞaS sýnist vera svo, aö hjónabandiS veröa að vera nokkurskonar hættuspil, sem getur gert manninn bæði rikan og fátækan, eftir því sem hjóliS velt- ur. Gleraugun hennar Freyju, sem skáldið kveSur tun, eru mönnum á sköpuð, og verSur ekki undan þeim komist. Vér horfunt gegnum þau á þann ógnar meyja-sand, en með berum augum ekki fyr en eftir hjónaband. Og verða Amerikumenn að sætta sig við þaS eins og aðrir. JarSarfarir fara einnig fram upp á amerisku. Líkin eru klædd venjuleg föt, karlmenn t. d. með flibba um hálsinn. Kisturnar eru ávalt opnaðar, heima og í kirkjunni og ganga þá allir í röS og líta á lík ið, og tekur það oft langan tíma Stundum er kistan höfð opin með an talaö er. Venjúlega er jarðaS þar dagrnn eftir eða á þriðja degi frá andláti Frá Amenkumönnum hafa Land ar drukkið inn i sig taumlausa fýkn i “sport”, knattleiki ýmisikonar, einkum knattleik þann, sem base ball nefnist. Ekki verður því neit að, að likamsæfingar og knattleikir eru hollir fyrir unga menn. En öllu má ofbjóða. Lætin í mönnum i þessa leiki geta alveg nálgast vit firringu. Bæði hamast menn þessu hverja stund, sem tími vinst til, og ofbjóða sér á þvi, þegar strangasta vinna er unnin allar stundir aðrar. Og svo er það alla tíS hálfergjandi, þegar slikt fer aS verða hiö eina sáluhjálplega í hug- um manna. öll blöð vestra hafa heilar síður eingöngu fyrir “sport’ og fjöldi manna les ekkert annaS blaðinu en það, og flestir fletta þv upp allra fyrst, þegar þeir fá blaöiö í hendur. Þegar einhverjir stórir knattleikir standa yfir, bíSa menn úti um landið meS öndina í hálsin- um eftir því aS heyra úrslitin, og kappamir eru i meiri metum og meS öllu meira virSi en ágætustu visindamenn og spekingar þjóðar innar. Fátt eitt hefir nú verið sagt af háttum Landa vestra, en þó getur það ef til vill gefið ofurlitla hug- mynd um andann í lifinu vestra Og sést }>á glögt, hverstt mjög Landar hafa afklæðst sínum fyrri háttum og einkennum, og tekiS upp erlenda siSu. AuSvitaS er þeim þaS frjálst, og ekki nema sjálfsagt að þeir fylgi í því sinni löngun. En ekiki hefði illa fariö á þvi, að þeir hefðu varSveitt það af sínum fyrri háttum, sem í engu stóð þeim fyrir þrifum i nýja landinu. Og ætti mönnum nú aS verða þaS ljóst, að þaS er ekki nema fum og bimbul- famb, þegar talaS er um “þjóSar- brotin islenzku, vestan hafs og austan”. ÞVi það er ekki til nema ein íslenzk þjóð, og hún á heima á fslandi. ______ ÓFramh.). Œfisaga Benjamínt Franklins RituS uj honum sjálfum. Sig. Júl. Jóhannesson þýddi. (Framh.) Um kveldrð hafði eg fengiö tals- verða hitasótt og lagðist til hvíldar. En meS því eg haföi lesið það ein- hversstaðar aS gott væri i hitasótt að drekka mikiS af köldu vatni, drakk eg þaS altaf öðru hvoru alla nóttina og hafSi það þau áhrif að eg var furðu hress um morguninn, fór á ferju yfir fjörðinn pg lagði síðan af stað fótgangandi. En vegalengdin til Burlington vcru 50 mílur, en þar var mér sagt að eg gæti fengið far á skipi alla leið til Philadelphia. Hellirigning var allan daginn og var eg allur holdvotur. Þegar kom fram á hádegi var eg orSinn dauS- þreyttur. Eg fékk méV þvi hvíld í fátæklegu greiðasöluhúsi og dvaldi þar náttlangt. ÓskaSi eg þess nú if heilum hug aö eg hefð aldrei rariS aS heiman. Fólkinu hefir vist ekki litist sem bezt á mig, því eftir þeim spum- ingum að dæma sem eg varS fyrir efir það haldiS aS eg væri stroku- naSur. Hefir því sjálfsagt virzt g líta þannig út sem eg væri log- andi hræddur viS aS lögreglan væri hælunum á mér. Samt herti eg upp hugann, hélt áfram næsta dag og fékk mér aftur gistingu að kveldi á greiSasöluhúsi; var sá staöur 8—10 milur frá Bur- lington og hét sá Browne er gisti- húsinu stýrði. Hann hóf samræður viS mig á meðan eg var að snæSa, og þegar lann komst að því að eg hafði lesiö dálítið varð hann sérlega vingjam- legur og félagslyndur. ViS héldum siðan kunn ngsskap alla æfi. Eg held aö hann hafi verið einhvers konar feröalæknir, því ekki var sá smábær til á Englandi eöa þaS smá- ríki í Evrópu, sem hann gæti ekki lýst nákvæmlega í öllum atriSum. Hann var talsvert lærður og hug- vitssamur, en eindreginn vantrúar- maöur, og byrjaði hann á því ljóta verki nokkrum árum síðar að snúa bibliunni i ljóS á ósæmdegan hátt, eins o<* Cotton haföi farið meS Virgil. Gerði hann á þennan hátt misk- unnarlaust háS aS ýmsum atriöum í biblíunni, og hefði ef til vill haft ill áhrif á óstjálfstætt fólk ef ljóS- ;n hefðu veriö prentuS; en það varS aldrei. Eg gisti hjá honum náttlangt og komst næsta dag til Burlington; en þegar þangaS kom, frétti eg þaS mér til mikillar armæðu, aS skipin sem þangað fóru reglulega væri al- veg nýfarin þegar eg kom, og var ekki búist við neinni ferð fyr en næsta þriöjudag — en nú var laug- ardagur. Eg fór því til gamallar konu, sem eg hafSi keypt hjá engiferbraut í nesti á skipinu og bað þana ráSa. Konan bauð mér aS dvelja hjá sér þangað til ferð félli, og með því að eg var orðinn þreyttur af gang- inum tók ee því boði þakksamlega. Konan komst að því að eg var prentari og vildi hún fá mig til aS setjast aS þar í bænum og stunda ]>á iön; haföi hún aaðvitað enga hugmynd um hversu mikið fé þyrfti til þess aS byrja prentsmiöju. Hún yar sérlega gestrisin; bar hún mér máltíS af því bezta er hún átti til; var það uxahöfuS vel mat- reitt; en ekkert vildi hún þiggja að launum nema pott af öli. Þóttist eg nú hafa himinn höndum tekið og taldi mér borgið til þriöjudags. Um kveldið var eg á gangi á ár- bakkanum; fór þá bátur ]>ar fram- hjá, og komst eg að þvi að hann var á leiS til Philadelphu með nokkra farþega. Eg fékk far meS þeim, og meS þvi að veöur var lyngt urSum við að róa alla leið. Þegar komið var fram um miSnætti var mönnum fariö að leiSast; sagði þá einn far- |>egaima aS við hlytum aS vera komnir framhjá borginni; féllust fleiri á þaA og afsögðu aS halda róðrinum áfram. Hinir vissu ekki hvar við vorum og héldum við því upp aS landi og lentum í lækjar- mynni, skamt frá gamalli girSingu. Tókum við rimlana úr girðingunni og kveiktum eld til hlýinda, því þaS var köld októbernótt. Þarna héld- um við kyrru fyrir til dags. 'Þegar birti var einn maður í hópnum sem þekti staSinn; hét þar Cooperslækur sem viö höf ðum lent; var örskamt þaSan til Philadelphia, HEIMSINS BEZTA MUNNTÓBAK Kaupmannahafnar Hefir góðan keim Munntóbak sem endist vel Hjá ölluin tóbakssöham og sáum viS borgina jafnskjótt og við rerum út úr lækjarmynninu. ViS komum til bæjarins klukkan 8 til 9 á sunnudagsmorguninn og lentum viS Kaupstrætis bryggjuna. Eg hefi lýst svona nákvæmlega þessari ferS minni og veriö fjölorS- ur um fyrstu komu mína í borgina í þvi skyni að lesarinn gæti borið það saman við hitt er siðar dreif á daga mina þar, og séð hversu ólikt það var. Eg var i vinnufötunum mínum og átti von á sparifötunum á eftir. Eg var óhreinn eftir ferðina; allir vasar fullir af skyrtum og sokkum; eg þekti engan lifandi mann og vissi ekki hvar eg átti aS leita fyrir mér meS húsnæöi. Eg var dauðupp- gefinn af göngu, róSri og hvíldar- leysi. Eg var dauðsvangur og átti enga peninga nema einn hollenzk- an dal og hér um bil einn skilding í kopar. Koparpeningana borgaði eg fyrir fariS; ætluSu skipverjar i fyrstu ekki aS taka viS þeim og sögðu að eg hefði borgaö farið með róðrinum; en eg hélt aS þeim borg- un og tóku þeir hana um síSir. ÞaS kemur stundum fyrir að maSur er örari á fé þegar lítiS er milli hand- anna, en þegar allsnægtir eru, og er það ef til vill af ótta fyrir því að þaö komist upp að maður sé fé- lítill. Eg gekk um götur borgarinnar til og frá þangaö til eg mætti pilti á sölutorginu, sem var meS brauö undir hendinni. Eg hafði oft látið mér nægja brauð til máltiðar og spurSi drenginn hvar hann hefði keypt brauSið. Hann sýndi mér brauSgerSarbúðina þar sem hann hafði fengið það, og fór eg rakleitt þangaS. ÞaS var i Annari götu. Eg bað þar um brauökökur, og bjóst við að fá samskonar kökur °g eg hafði íengiS í Boston. En eg komst aS því að Bostonkökurn- ar voru ekki búnar til i Phila- delphia. Þá bað eg um þriggja centa brauö, og var mér sagt aS þesskonar brauð þektust þar ekki. MeS því nú aö eg hafði ekki mikla þekkingtt á peningagildi og því minna vit á gæöum brauða bað eg manninn í búðinni aS láta mig hafa þriggja penlnga viröi af ein- hverju brauöi. Fékk hann mér þá þrjár heljar miklar kökur. Ég var hissa á því hversu mikið þetta var, en tók þó við því. Eg haföi ekkert rúm fyrir kökumar í vasa mínum, því þeir voru fullir af skyrtum og sokkum, fór eg út á götu meS sína kökuna undir hvorri hendi og byrjaöi aS borða þá þriðju. Hélt eg þannig áfram eftir Kaupstræti þangað til eg kom að fjórðu götu; fór eg þá í fyrsta skifti framhjá húsi Reads, er síðar varS tengdafaöir minn. StóS dóttir hans ('sem síðar varð kona mínj þá í dyrunum og sagði hún mér svo frá síöar að eg hefði í hennar aug- um veriö óútmálanlegá hlægilegur; dettur mér ekki í hug aS rengja aS svo hafi verið. Svo sneri eg við og fór niSur eftir Chestnut stræti og parti af Walnut stræti og hélt stöS- ugt áfram aS boröa kökuna mína. Hafði eg einhvemveginn farið þannig í óreglulegan hring að eg vissi ekki fyrri til en eg var kom- inn aftur að kauptorgs bryggjunnl, rétt hjá bátnum sem eg hafði komið á. Fór eg jít í bátinn og fékk mér drjúgan svaladrykk úr ánni. Þeg- ar eg haföi lokiS við eina kökuna var eg mettur og gaf hinar tvær fátæklegri konu og barni sem meS henni var. HafSi hún komiö í sama bátnum og eg, og beiS eftir því aS fá far lengra. Nú var eg hressari en áöur og gekk upp götu til þess aS litast um. Var nú á götunni urmull af vel- klæddu fólki og fór það alt í sömu átt. Eg fylgdist með straumnum og vissi ekki fyr en eg var kominn inn í kvekara samkunduna hjá kauptorginu. Eg settist þar meS hinu fólkinu. Sat eg þar stundar- korn án þess að heyra eitt einasta orð talaö. Eg var bæði þreyttur og syfjaður og leið ekki á löngu þangaS til eg var steinsofnaöur. Svaf eg þar vært og rólega þangað til fundinum eða samkomunni var lokiS og kom þá til min einn hinna viöstöddu og vakti mig nærgætnis- lega. Þetta var því fyrsta húsiS sem eg kom í eða svaf í í Phila- delphia. Eg fór út og gekk aftur ofan aS ánni; mætti mörgum og athugaSi fólkiS sem bezt; einn þeirra sem eg mætti var ungur kvekari, mér geöj- aðist vel aS svip hans og látbragöi, ávarpaöi hann og bað hann aS segja mér hvar ókunnir menn í bænum gætu gist. þeta var rétt hjá nafnspjaldi á húsi sem heitir “Sjómennirnir þrír”. “Hérna er gististaður” svaraSi hann, “hér geta ókunnugir menn fengiS aS vera; en það er ekki staöur sem hægt sé að mæla meS; ef þú vilt koma með mér, þá skal eg sýna þér annan stað betri. Hánn fór meS mig til “Crooked Billet” ó Vatns- stræti. Þar fékk eg mér miðdags- verð, og meöan eg sat þar og neytti matar, var eg spurður ýmsum spurningum einkennilegum. Var svo að heyra sem útlit mitt og framkoma kæmi öllum til þess að trúa því að eg væri stroku- drengur. ('Framh.). hún jöfn í báðum löndunum, en á síöustu þremur áratugum hefir uppskerumagn Þýzkalands svo aS segja tvöfaldast, en á Frakklandi hefir hún aukist aS eins um 10%. Þessi mikla uppskera á Þýzkalandi er aS nokkru leyti að þakka hinni miklu búnaðarfélaga samvinnu og áhrifum skólanna ásamt vísinda- legri þekkingu í búnaði, en mest er þaS aS þakka aukinni þekkingu í því að nota tilbúinn áburS. Eins og skýrslan sýnir er uppskerumagn- iS af ekrunni í Canada langtum minna en á Þýzkalandi, en ef bænd- urnir í Canada notuðu tilbúinn áburS í eins stórum stíl og hann er notaður á Þýzkalandi mimdi uppskerumagniö aukast stórkost- lega án þess að einni einustu ekru væri bætt við af ræktuöu landi eða vinnukraftur aukinn. W. J. D. Frá Islandi. Tilbúinn ’áburður- Ottawa stjómin lætur nefnd manna gefa út mánaðarrit sem heit- ir “Conservation” fVemdunJ. Er þar bent á hvernig vernda megi og nota auSæfi landsins og þjóSarinn- ar og auka þau. í þessu blaði birtist skýrsla síð- ast um áburð og áhrif hans i ýms- um löndum, og er greinin einkar fróðleg. Hún hljóðar þannig: TILBÚINN ÁBURÐUR. Mikil uppskera er afleiðing hans á Þýzkalandi. Hin viðtæka notkun tilbúins á- burSar á Þýzkalandi hefir orskað hina hlutfallslega miklu uppskeru þar í landi, og orðiö til þess að framleiöa ógar vistir þar á stríöstimum. Eftirfarandi skýrsla sýnir meðal uppskeru ýmsra teg- unda í ýmsum löndum Evrópu. Mælar af hveiti “Vísir” segir frá því að íslenzku sikipin fáf fría höfn í New York; annars er þaS venja að skip verði aS greiöa allháan hafnartoll. Þetta er fyrir þá sök, eftir þvi sem blaSiS segir, aS allar vörumar eru fluttar meö sama jámbrautarfélaginu og það félag borgar hafnartollinn. “Visir hefir birt eftir Lögbergi kafla úr þjóöminningarræðu GoS- mundar Kambans. íbúöarhús brann á Ketilvöllum x. september. Húsið var vátrygt í vátryggingarsjóSi sveitarinnar. Páll Eyjólfsson bóndi á Sjávar- hólum á Kjalarnesi varS bráð- kvaddur 26. ágúst. “Vísir” segir aS hlutabéf Islands- banda séu 120% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn, og er það afar- hátt verS. Sigurjón SumarliSason póstur milli Akureyrar og Staöar hefir sagt af sér þeim starfa, en við því hefir tekiS Kristján Jóhannesson á JódisarstöSum í Eyjafirði, sem áð- ur var austanpóstur. BotnvörpuskipiS Ingólfur Arn- arson hafði siglt á grunn nálægt Oddeyrartanga 2. september, en þegar það losnaði aftur færöist nótabáturinn i kaf og druknaði einn maöurinn. Hann hét Jón GuS- mundsson frá Vestmannaeyjum. Valdimar Steffensen læknir á Akureyri hefir fengið lausn frá em- bætti eftir eigin tilmælum. 25• ágúst lézt Siguröur Gislason sonur Gisla sál. Helgasonar verzl- unarmanns i Reykjavík, á Vífil- staðahælinu. Landskosningarnar hafa farið þannig aS af sex sem kosnir voru eru 4 heimastjórnarmenn og tveir “þversum” menn, eða úr öðrum fyl'kingararmi sjálfsrtæðismanna. SeglskipiS “Venus”, sem var á leiö til Eyrarbakka frá Kaupmanna- höfn strandaði í Færeyjum 21. eða 22. þ. m., þá á leið til Leirvíkur. HafSi skipið verið komiS upp undir MeSalland, en hitt þar enskt her- skip, sem skipaði því aS fara til brezkrar hafnar. MeSal annars flutnings sem skipið hafði með- ferSis var ýmislegt til smjörbúanna eystra, og er búist viS, aS tvö bú geti ekki starfaö í sumar vegna tunnuleysis. I.and 4r Hveiti Rúgur bo >> M Hafrar Kartöflur pýzkaland 1 1913 35 30 41 61 235 Kússland . 1 1912 10 14 16 24 121 Austurríki. | 1912 22 23 30 36 149 Ungverjal. 1913 19 18 26 29 125 Frakkland | 1912 20 16 27 36 143 Canada. . 1 1913 21 19 30 39 166 Bandartkin | 1914 17 17 26 30 109 Argentina . | 1913 14 30 .... Þégar borin er saman uppskera í Þýzkalandi og Frakklandi sýna skýrs'lurnar að fyrir 30 árum var Bærinn Þverá í Vesturhópi brann til kaldra kola 10. september og varð svo aS segja engu af hús- munum bjargaö, en alt fólk komst af. Haustið er komið, gætið heilsunnar. Mikill mismunur kulda og hita og raki er nú orsök margra veikinda. Sért þú einn þeirra sem líða af gigt, þá minstu þess að bezta meðalið er Trin- ers Liniment. Ber það á þer sem verkurinn er og nudda vel inn í. Það má ekki takast inn Verð 70c. Ef þú hefir kvef, hósta, hálssæri eða kverkabólgu þá læknast fljótt af Triners hóstameðali. Verð sama. Jos, Triner Manufacturing Druggist 1333-39 S. Ashland Ave., Chi- cago, 111.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.