Lögberg - 26.07.1917, Qupperneq 1
SPIERS-PARNELL BAKING CO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verð sem verið
getur. REYNIÐ ÞA!
TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG
30. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FFMTUDAGINN 26. JULI 1917
NÚMER 29
HERSKYLDU-FRUMVARPIÐ SAM-
ÞYKT VIÐ ÞRIÐJU UMRÆÐU
_
Herskyldulögin voru samþykt á
þriðjudaginn viö þritSju og síöustu
umræðu í neSri deild og því afgreidd
þaðan. Atkvæöi féllu svo aö segja
á sama hátt og vi'ö aöra umræöu. Sir
Wilfrid Laurier liélt langa ræöu og
kröftuga á móti frumvarpinu, en
Arthur Meighen dómsmálastjóri hélt
uppi vörnum.
Nú er eftir aö ræöa máliö og ráöa
því til lykta í efri deild, en liklegt
þykir að þaö komist þar í gegn slysa-
lítið, enda hefir Borden búið þannig
um hnútana að svo skyldi verða, því
Undrum hefir það sætt hvernig
blaöiö “Free Press” hefir hamast
gegn Sir Wilfrid Laurier aö undan-
förnu. Það hefir flestum verið óráð-
in gáta; en á þriöjudagsmorguninn
kom ráðningin. Þá birti blaðið bréf,
sem Sir Clifford Sifton haföi skrif-
aö til leiðtoga framsóknarflokksins í
efri deild þingsins, þar sem hann kem-
ur fram með beina árás á Sir Wilfrid
Laurier, en gerist talsmaður Borden-
stjórnarinnar.
Allir muna eftir því hvernig þessi
sami maður barðist gegn velferð al-
þýðunnar árið 1911, þegar hann sner-
ist gegn Sir Wilfrid Laurier og við-
skiftasamningnum; frá þeim tima á
alþýðan honum grátt lamb að launa.
Sir Clifford Sifton er margfaldur
miijónaeigandi og hefir rakað saman
stórfé siðan stríðið hófst. /
Clifford Sifton er einn hinna allra
hættulegustu manna vor á meðal.
Hann er frábær vitmaður; mikill
mælskumaður og áhrifa. Hann er
eins og margir aðrir miljónaeigendur
sléttur og framkomuprúður yfirleitt,
hann hefir flýtt sér að fylla auðu
sætin i öldungadeildinni og valið til
þess menn eins og McMeans.
Hvort lögunum verði framfylgt.
tafarlaust, þegar þau eru komin í
gegn, er óvíst. Kosningar fara ,fram
—eftir öllum líkindum—-í október-
mánuði eða jafnvel í september, og
telja sumir óliklegt að eins mikils-
varðandi mál og þetta verði sett í
framkvæmd rétt fyrir kosningarnar,
þegar það er samþykt af stjórn og
þingi, sem fólkið hefir hvorki kosið
né samþykt.
en lætur ekkert tækifæri ónotað til að
auka sinn eiginn hag, scm œfinlcga
hlýtur að vera á móti fólksins hag.
Hann lætur litið á sér bera venju-
lega, en réttir fram hulda hönd og
sterka í hvert skifti sem um eitthvert
verulegt þjóðþrifaspor er að ræða,
og reynir þá að stýra plógnum auð-
valdinu í hag.
Hann vann meira en nokkur ein-
staklingur að þvi að hindra frelsi
iandsins og verzlunarumbætur 1011,
eins og kunnugt er.
Það var hann sem þá bar bana-
spjót á móti hinum mikla og h^iðvirða
manni Laurier, og það er hann sem
nú hefir teygt höndina fram úr
skugganum í sama skyni. Hann er
sá maður sem canadisk álþýða þarf
að varast frenmr en nokkurn annan
einstakling.
Hvenær sem hann er með einhverju
máli, þá er það varasamt fyrir bænd-
ur og verkafólk; hvenær sem hann er
á móti einhverju máli, þá eru miklar
líkur til að það sé heillamál alþýð-
unnar.
Sir Clifford Sifton er persónugerfi
auövaldsins í Canada.
' Sig. Júl. Jóhanncsson.
Finnar lýsa sjálfstœði sínu.
Þau tiðindi gerðust i vikunni sem
leið að Finnar lýstu því yfir aö þeir
segðu sig með öllu úr sambandi við
Rússa og mynduðu sjálfstjórn. Rúss-
ar hafa í heitingum við þá, en Finnar
glotta í kamp og kveða Rússa hafa
fult í fangi heima fyrir.
Slys
vildi til á járnbrautarstöð C.P.R. fé-
lagsins í Winnipeg á mánudaginn-
Varð vagn starfsmanna á brautinni
fyrir eimreið og biðu þrír menn bana,
en einn stórslasáðist. Álitið er að
slysið hafi orðið vegna klaufaskapar
þeirra sem i bifreiðinni voru og á að
rannsaka málið.
Illa farið.
“Það er illa farið að stjórnmála-
menn, sem kferðir hafa verið um al-
varlegan fjárdrátt skuli leggja það i
vana sinn að verða svo veikir að ekki
megi rannsaka mál þeirra. Það er
illa farið að Canadiskir fjárglæfra-
menn, sem sannir verða að sök og
dæmdir eru til hegningar fyrir glæpi
skuli vefða sv'o veikir að þeir geti
ekki verið í fangelsi og það er illa
farið að til skuli vera dómstólar og
stjórn, sem líða slika veiki.”
/"Free Press 19. júlí).
Hættulega veikur.
Skeyti frá Lundúnaborg segir þá
frétt í gær að Gray jarl, fyrverandi
landstjóri i Canada, sé hættulega
veikur; hafði hann verið skorinn upp
og er vanséð að hann lifi.
Leynda höndin
Minni Vatnabygðar.
á fjórðungsaldar afmæli hennar, 27. júní 1917.
Flutt af Sig. Júl. Jóhannessyni.
(Framh.).
Já, það var fóstbærðralagið, einingarandinn
og samvinnan sem bezt og mest einkendi líf og
starf þeirra manna og kvenna er hér lögðu fyrst-
ir leiðir sínar og þjóðflokki vorum. Og þótt eg
væri ekki einn þeirra er hingað kom fyrst og
geti því ekki eftir eigin sjón og reynslu lýst
í dag er reikningsskapar dagur; í dag á unga
kynslóðin að gæta þess við hverju hún tekur; hvað
það er sem henni er fengið í hendur og hversu
mikil ábyrgð því fylgir. Hingað komu feður
þeirra ungu og mæður svo að segja með tvær
hendur tómar, en þannig hefir pundið verið ávaxt-
að sem vér nú sjáum. Við þessu takið þér nú
ungu menn og ungu konur þessarar bygðar; en
minnist þess með hvílíkri sjálfsafneitun og hví-
líkri atorku því var safnað og það framleitt, þegar
þér takið við hinum sléttu og blómlegu ökrum, þá
leiðið fram í huga yðar mynd af landinu eins og
það var fyrir 25 árum; sjáið í huga yðar þá sem
fyrstu árunum, þá var á landnáms- — ~ óralctaðri^
arum bygðannnar, sem eg þekti bezt folkið 11 1 6 ’
þessari bygð. Eg minnist þess ávalt hversu op-
jsjáið í huga yðar frumbyggjann hann föður yðar,
. , . þar sem hann vinnur frá morgni til kvelds við
inn var faðmur þeirra sem fynr voru þegar ein-;það að ðja á burtu erfiðleikunum úr framtíðar
hverjir nyir bættust i hopinn; eg minmst þess } sonR sinna dætra -áið . anda hana móður
ava t hversu mikiö það var sem folk var viljugt ðar inni f litk og lá frumbýlingskofanuni) >ar
að leggja asig til þess að þeim yrði sem bezt gem hún vakir fir ður f reifum hennar’eina
tekið er i hopmn bættust; þær eru otaldar næt- hugsun er gú að framfíð ðar m i yerða það sem
umar sem heimilisfolkið vakti og gekk ur rumijhún nú er orgin
til þess að láta þar hyílast þreytta ferðamenn, Já> huggið um a]t þetta j da _ einmitt nú þ
sem voru að bætast i hopinn; og eg rnmnist þessar þau eru að gan tn hvíldar þér að takaKvið)
avalt með hversu goðu geði og af hve fusum viljal , ., , . . _ „ .
þessi fóm var flutt. Eg er til dæmis ekki einn ^etta er heitstrenginga dagur. Forfeður vonr
til frásagna um þá óviðjafnanlegu gestrisni, sem
átti sér stað hjá Tómasi Pálssyni og konu hans;
hver er sá sem ekki minnist þess að þar stóðu
altaf opnar dyr öllum sem að garði bar? Og
svona var andinn í bygðinni; hinn sterkari veitti
hinum veikari lið; samvinnan var á hæsta stigi,
sem hún hefir nokkm sinni verið vor á meðal;
það var eins og sterkasti þátturinn í vellíðan
frumbygg.janna væri sá að rétta þeim liðshönd,
er á þurftu að halda.
En nú er landnáminu lokið; nú em þeir er
hingað fluttu famir að skrifa síðustu línumar
í bókina sína; sumir hafa skrifað síðasta staf-
inn og bókin er lokuð. Eins og íslendingar til
forna sögðu sögu bæði hinna framliðnu og hinna
lifandi, eins verða sagðar sögur þessara manna
—sögð saga þessarar bygðar þegar fram líða
stundir og þar verður margs að minnast.
f dag sjáið þér bygðina eins og hún lítur út;
í dag minnist þér hvemig hún var fyrir 25 áram;
í dag ef nokkurs konar úttektardagur, eins og
það var nefnt heima; í dag er eins og landnáms-
mennimir, gamla fólkið afhendi bygðina ungu
kynslóðinni til stjómar og umráða Fyrir 25 ár-
um vora hér engin merki starfandi mannshanda;
nú sýnir bygðin sig bezt sjálf; í dag birtist hún
í sparifötunum, og ekki þyrfti hún að birtast með
kinnroða, þótt hún væri lifandi vera, sem fram
gæti komið við hlið sinna eldri systra.
Hugir vorir hvarfla í dag til þeirra er hér áttu
fyrstu sporin; hér lögðu fyrstir plóg í jörðu; hér
bygðu fyrstir Kybýli og hér ruddu fyrstir vegi.
Suma þeirra sjáum vér í dag og höfum þá á
meðal vor; í hendur þeirra tökum vér hlýtt og
þétt með því handtaki er meira segir og fleira en
hátttöluð orð geta gert. Sumir hvíla í heilögum
friði, eftir vel unnið starf; einnig til þeirra
hvarflar hugur vor og vér leggjum ósýnilega
sveiga á bústaði þeirra með djúpu þakklæti. Nú
er eins og þeir hvísli svo hátt að heyra megi og
flytji hér bænir um það að börn þeirra megi á-
vaxta vel það pund er þeim hafði verið í hendur
fengið, og bezti minnisvarðinn sem þeim yrði
höfðu þann sið við hátíðleg tækifæri að stíga á
stokk og strengja heit. Voru þær heitstrengingar
oftast þannig að eitthvert þrekvirki átti að vinna
fyrir ákveðinn tíma, og sá þótti að minni maður,
sem ekki efndi slíkt heit. ,
f dag eigið þér hinir yngri Vatnabygðarbúar
að strengja heit; þér eigið að lofa því hátíðlega
með sjálfum yður á þessari stund að bygðin sem
yður er nú fengin í hendur skuli um næsta aldar-
fjórðung blómgast og fríkka ekki minna tiltölu-
lega en hún hefir gert þann aldarfjórðung sem nú
er útrunninn og foreldrar yðar réðu.
Ef þér vinnið þau heit og efnið þau með fom-
íslenzkum efndum, þá verður blómlegt yfir þessa
bygð að líta á næsta aldarfjórðungs afmæli hér
á “Bræðraborg”.
Og þér hinir hamingjusömu landnemar, sem
enn þá standið að störfum og horfið yfir langan
dag og launaríkan, þér hafið náð takmarkinu; til
yðar talar einnig andi þessara tímamóta þótt á
annan hátt sé.
pess var minst í upphafi þessara orða að Har-
aldur konungur hefði strengt þess heit að greiða
hvorki hár sitt né skegg eða láta skera það fyr en
hann hefði lagt undir sig allan Noreg og unnið
ást þeirrar konu er hann unni. pví er stundum
haldið fram og eg verð að telja það rétt, hvort sem
betur líkar eða ver, að bændur séu sumir með því
marki brendir að sökkva sér um of niður í dagleg
störf þegar þeir séu komnir í efni Fátæktin og
áhyggjurnar á landnámsárunum heimtuðu allan
tímann við veraldleg störf; þeir höfðu strengt
þess heit eins og Haraldur konungur, að vinna
landið og þeir höfðu svo að segja ekki tíma til að
skera hár sitt og skegg á meðan. En þegar tak-
markinu var náð, þegar Haraldur hafði unnið land-
ið og konuna, þá tók hann sig til og greiddi hár
sitt. petta eiga bændurnir að taka sér til íhug-
unar — það er að-segja hinir eldri bændur, sem
komnir eru yfir erfiðleikana; þeir sem búnir eru
að vinna landið og búnir að ná ástum hamingjunn-
ar og sjálfstæðisins.
Bændur eiga þá að kasta parti af áhyggjum
sínum og lífga og auðga anda sinn við bækur og
reistur væri sá að sú kynslóð sem nú tekur viðlestur og landsmál út á við. Hinna heilbrigðu
legði eins vel fram krafta sína og sú gerði er nú áhrifa frá sannmentuðum bændum er hin mesta
er að ganga til hvíldar. ‘þörf í landi voru og þjóðlífi. (Frh.)
Gleymið ekki að gleðja
hermennina.
Kvenhjálparnefnd 223. herdeildar-
innar langar mjög til aS senda hagan-
legar jólagjafir til allra þeirra 507
manna, sem mynda þá deild, sem nú
er á bardagasvæðinu í Evrópu.
Deild þessi var mynduð aö tilhlut-
un og fyrir áhrif íslendinga og ann-
ara þjóöhollra manna frá Noröur-
löndum.
Kvenfélagsnefndin, meö aöstoö al-
mennings, liefir tekiö að sér að hlynna
eftir megni að þessum mönnum, Þeir
eru nú þúsundir mílna frá heimilum
sínum og ástvinum og það er þeim
sómi, huggun og uppörvun að fá hug-
næmar sendingar úr heimahögum.
Svo er til stofnað, aö hver maður
fái kassa með vel v'öldu innihaldi, sem
þeim geti orðið afhentir á jólum. En
til þess svo geti orðið þurfa kassarnir
að sendast héöan ekki síðar en í lok
október næstkomandi.
Brezka hermáladeildin meðhöndlar
nú og sendir til manna sinna á öHum
bardagasvæðunum, full 900,000 bögla
og 10 miljónir bréfa á hverjum mán-
•uöi. Starf þetta er svo umfangsmik-
iö. að ætla verður nægan tírrjra til þess
aö koma böglunum til hermannanna,
eftir að þeir eru sendir héðan.
Áætlaður kostnaður allra böggl-
anna, ásamt með póstgjaldi héðan ti!
Frakklands, er $1,500.
Kvenhjálparnefndin mælist því vin-
samlega til þess við alla íslendinga i
Vestur-Canada og sérstaklega til vina
og skyldmenna þeirra sem eru í 223.
herdeildinni, að sýna nú sér og þeim
þá góðvild að skjóta saman þeirri
fjárupphæð, sem nægi til þess að
standast nauðsynlegan kostnað við
þessar jólagjafir.
Sendið gjafir vðar til herra T. E.
Thorsteinsson, Manager Northern
Crown Bank. Cor. William Ave. and
Sherbrooke St., Winnipeg.
íslendingar í 223. herdeildinni eiga
fjölda vina og velunnenda í Vestur
Canada. Kvenhjálparnefndin biður
nú alla þá að leggja nú alt lið sitt.
til þess að samskotin verði svo ríf-
leg, að þau nægi til þess að mæta
þessari þörf.
Kv'enhjálparneftidin hreyfir enn
fremur því og vonar, aö konurnar í
Vestur Canada sýni hermönnum 223.
herdeildarinnar þá velvild, að prjóna
sokka handa þeini, nefndin þarf enn
þá að fá gefins 500 pör af sokkum til
þess að fullnægja þörf hermanna
þessarar deildar.
Vanrækið ekki hina fjarlægu her-
menn yðar; þeim er það ánægja og
uppörfun að fá sendingar að heiman.
Það eykur þeim styrk og móð til þess
að vinna skylduverk sín i þessum
heimsins mesta hernaði fyrir lieiður
ríkisins og frelsi alheimsins.
Gjafir og sendingar verða viður-
kendar í hinum ýmsu skandinavisku
blöðum.
Frá Islandi.
Síðustu dagana hefir verið norðan-
átt og svalt /eður. Lögrétta 19. júní
Það er nú farið að tala um, að kol
mui v'era i Esjunni. Ilafði maður
úr Reykjavík fundið þar mola, sem
brent var í smiðjuafli og virtust vera
einhver kolategund. En órannsakað
er þetta enn.
“Mjölnir,” sem hingað kom um
miöja síðastl. viku, fskrifað 19. júní),
hafði meðferðis vélar og vinnutæki,
sem notast eiga við Stálfjallsnámuna,
og stendur Khafnarfélag, fyrir fram-
kvæmdum þar, og með skipinu kom
frá Khöfn Guðm. E. Guðmundsson
sem mest hefir að því unnið, að koma
á stað kolavinslu þarna. Um 30
manns eiga að vinna við nátnuna i
sumar, og skip hefir verið fengið til
þess að flytja kolin hingað til Rvíkur.
“Mrgdl.” hefir það eftir Hendersen,
formanni félagsins, að það ætli að
sækja til alþingis um einkaleyfi til
kolagraftar hér á landi um lengri
tírna.
14. júní giftust í Rvík John Fenger
stórkaupmaður og ungfrú Kristjana
Zoega, dóttir Geirs sál. Zoega kaup-
manns.
Abyrgðarfélögin, sem umráð liafa
yfir flakinu af "Goðafossi,” hafa nú
akveðið, að selja þaö í heilu lagi á
strandstaðnum.
Með ensku herskipi sem kom til
Rvíkur i júni, fóru til Englands Cable
konsúll. Thor Jensem framkv.stjóri
og Richard Thors, sonur hans. Fóru
þeir Th. J. og R. Th. fyrir hönd land-
stjórnarinnar til þess að tala um hugs-
anlegar breytingar á v'erzlunarsamn-
ingunum við Englendinga.
N. Kielland Thorkildsen, banka-
stjóri Centralbankans i Noregi og
bankaráðsmaður íslandsbanka, er ný-
lega dáinn.
I
Háskólarektor er nýkosinn fyrir
næsta háskólaár Agúst Bjarnason pró-
fessor.
Lagaprófi hefir nýlokið við há-
skólann í Rvík Gunnar Sigurðsson frá
Selalæk með 2. betri einkunn.
Á Hrútafelli undir Eyjafjöllum
vildi það til nýlega, að Þorsteinn Þor-
steinsson, bóndi þar og kona hans
urðu fyrir því sorglega slysi að missa
son sinn Rút, mjög efnilegan og góð-
an pilt á þrítugsaldri, á þann hátt, að
hlöðuveggur, sem hann var að rífa,
hrapaði yfir hann, og dó hann af
meiðslum eftir eitt dægur.
Að móvinslunni í Rvík er nú unnið
af kappi. Móvélanrar sem væntan-
legar voru me'ð “Willemoes” eru nú
komnar, og verður farið að nota þær
þegar í stað.
Heimspekispróf við háskólann hefir
Ingimar Jónsson tekið og fékk ágæt-
iseinkunn.
Próf í læknisfræði, fyrri hluta, hef-
ir Jón Björnsson frá Kornsá tekið
við háskólann í Khöfn.
Fjöldi manna kom saman við
Austurvöll þjóðhátíðardaginn 17.
júní. Fjöldi manna kom saman við
Austurvöll kl. 2 e. h. og gekk inn á
íþróttavöll. í fararbroddi var dá-
lítið víkingaskip á vagni, sem tveir
hvítir hestar drógu. Var skipið gert
til þess að vera ræðustóll við hátíða-
haldið. Fyrir framan varða Jóns
Sigurðssonar í kirkjugarðinum sté
Sig. Eggerz bæjarfógeti upp á skipið
og talaði til mannfjöldans og miptist
Jóns Sigurðssonar. En inn á íþrótta-
vellinum sté Guðm. Björnsson land-
læknir upp i skipið og hélt hátíðar-
ræðu og síðan Ben. Sveinsson alþm.
og bauð velkominn St. G. Stephans-
son skáld, sem þar næst sté upp i
skipið, þakkaði fyrir viðtökurnar og
lýsti þvi, hvernig sér litist á sig heima
eftir langa fjarveru. Fór hann síðan
á skipinu hringinn i kring um völlinn,
til þess að mannfjöldinn allur fengi
tækifæri til að héilsa honum. Eftir
það fóru fram leikfimissýningar,
glímur o. fl., og skemtu menti sér vel.
Embættisprófi í guðfræði luku 14.
júní Erlendur Karl Þórðarson, með
1. einkunn 127 stig, og Steinþór Guð-
mundsson, með 1. einkunn 129 stig.
Nýlega giftust hér i bænum Hall-
grímur Tuliníus verzlunarmaður og
ungfrú Hrefna Lárusdóttir Lúðviks-
sonar. — í Khöfn eru nýgift Hans
Madslund verkfræðingur og ungfrú
Sigríður Sigurðardóttir regluboða.
“Þórður Kakali” heitir vélaskip,
sem ýmsir ísfirðingar, Karl Löwe o.
fl. hafa látið smíða í Frederiksur.c
og er nýlega komið hingað, 3l tonn að
stærð, með Tuxham-vél. Skipstjóri
er Ólafur Sigurðsson, áður stýrimað-
ur á “Goðafossi”.
Þegar “Fálkinn” var á leið hing-
að nú síðast, hitti hann 20 sjómílur
fyrir norðan Færeyjar, tvo enska
menn á timburfleka. Það var 8. júní.
Þeir höfðu verið á flekanum 6 daga.
Voru með stóru ensku gufuskipi, sem
“Hallington” hét og var skotið í kaf
af þýzkum kafbáti sunnan við Færeyj-
ar 2. júní. Skipið var að flytja skot-
færi frá Englandi til Arkankelsk og
höfðu verið 40 manns á því. Ekki
vissu þessir, tveir menn til þess, að
aðrir en þeir hefðu bjargast. Upp-
haflega komust þeir þrír á timbur-
flekann, en einn v'ar dáinn. Sunnan-
átt hafði verið stöðugt þessa 6 daga,
sem þeir voru á flekanum, og rak
hann alt af til norðurs. Annar mað-
urinn er unglingur frá Ástralíu, og
liggur hann nú hér á spítala, þjakað-
ur af volkinu, en hinn er miðaldra
meður, og er hann heilbrigður.
Bæjarfréttir.
Séra Friðrik J. Bergmann fór
norður til Nýja Islands fyrir helgina
og kom heim aftur á föstudaginn.
Jón Westdal, sem Iengi hefir legið
hér á almenna sjúkrahúsinu eftir
uppskurð er nú orðinn svo að segja
albata og fer heim innan fárra daga.
Mrs. Björn Hallson héðan úr bæn-
um hefir verið um mánaðar tíma
vestur í Vatnabygðum hjá Jóni Halls-
syni tengdabróður sínum og konu
hans; hún kom heim aftur á þriðju-
daginn var.
Glevmið ekki kaðaldrættinum á ís-
lendingadaginn; þar verða allir risar
úr bænum annars vegar og öll tröli
úr sveitum hins vegár.
“Austan úr blámóðu Fjalla" heitir
bók, sem nýprentuð er eftir Aðalstein
Kristjánsson.
Indriði Skordal frá Dafoe kom tii
bæjarins á miðvikudaginn; var hann
að leita sér. lækninga hjá Dr. Brands-
syni. Hann sagði útlit þar vestra
ekki lakara en í meðallagi.
Ritstjóri Lögbergs fór út i Argyle-
bygð ásamt konu sinni og börnum á
fösttidaginn og kom aftur á þriðju-
daginn; kom til Ninette og víðar
Fréttir frá Argyle bíða næsta blaðs.
Uppskertthorfur mjög óálitlegar.
Kona Magnúsar Oddssonar frá
Wynyard hefir verið hér í bænum í
tveKgja vikna tíma; Dr. Brandson
skar hana upp og er hún nú alhress.
Magnús maður hennar kom á þriðju-
daginn til þess að sækja hana og fóru
þau hjón heim á þriðjudagskveldið.
Halldór J. Halldórsson kaupmaður
frá Wynyard kom til bæjarins á
þriðjudaginn í verzlunarerindum og
fór heim samdægurs.
Munið eftir að hafa börnin sent
bezt útlítandi fyrir sýninguna á ís-
lendingadaginn.
Goodtemplara stúkurnar Hekla og
Skuld hafa ákveðið að halda skemti-
samkomu i Kildonan skemtigarðinum
mánudaginn 6. ágúst. Stúkurnar
halda æfinlega slíka skemtisamkomu
einu sinni á ári. í þetta skifti hefir
verið sérstaklega vel til samkomunn-
ar vandað; fara þar fram ágætar
ræður; flutt verða nýort kvæði,
sungnir alíslenzkir söngvar og fleiri.
íslendingadagurinn verður haldinn
í sýningargarðinum 2. ágúst. Aldrei
hefir verið betur til þeirrar hátíðar
vandað en nú.
/
Gunnar Tómasson frá Mikley var
á ferð í bænum í verzlunarerindum á
fimtudaginn; kona hans var með hon-
um og fóru þau heim samdægurs.
Búist er við miklum áhuga fyrir
kaðaldrættinum á Islendingadaginn.
Allir berserkir bæjarins hafa þegar
gefið sig fram og margir utan bæjar.
Sigurður Sigurðsson frá Mary Hill
var á ferð í bænum á fimtudaginn á-
samt konu sinni; Þau komu norðan
frá Selkirk; höfðu farið þangað til
þess að heimsækja vinafólk sitt og
fóru heim á föstudaginn.
Nýlega hefir Jón Friðfinnsson
samið fallegt lag við kvæði Stephans
G. Stephanssonar, sem birtist í Lög-
bergi fyrir skömmu og nefnist;
“Austurvegur”.
Lundar Traiding Co. biður þess
getið að þeir hafi nú byrgðir af
bindara-tvinna til sölu með mjög
sanngjörnu verði.
Séra Rtinólfur Marteinsson kom
norðan frá Nýia íslandi á fimtudag-
inn. Hann flutti fyrirlestur að
Hnausum sunnudaginn 15. júlí og að
Árborg sunnudaginn 22. júlí. Þenna
sama fyrirlestur endurtekur hann t
Riverton Þriðjudaginn 31. júlí kl. 8
e. h. og að Geysi sunnudaginn 5. ágúst
kl. 2 e. h. Efni fyrirlestursins er:
“íslenzk æska”. Er þetta efni þannig
vaxið að allir ættu að heyra, þvi
sannarlega er það fátt sem alla snert-
ir nánar eða þýðingarnteira er fyrir
oss.
Jóns Sigurðssonar félagið jtakkar
fyrir eftirfylgjandi gjafir.
Frá. kvenfélaginu “Frækorn”, af-
hent af Mrs. I. Sigurðsson, Lundar,
Man. $12. Mrs. Snjólaug Johnson.
Kandahar, Sask. $30, fþar af til
heimkominna herntanna $20 og í að-
alsjóð $10. Mrs. 01. Freeman, Paci-
fic Ave., Winnipeg tvenna sokka og
$2. “Dorcas”-félagið, Glenboro, af-
hent af Miss Goodman, $46.75. Nokkr-
ir ugnir menn í Glenboro (ágóði af
samkomu) $28.25. Ágóði af skemti-
semkomu sem Riverton skólinn hélt,
afhent af Miss Bertha Johnson, $30.
Kvenfélag Ágústínusar safnaðar i
Kandahar, afhent af gjaldkera þess
Mrs. Jórunni Halldórson $25. Kven-
félagið “Bjarmi” að Árnesi $15.
Mrs. C. O. L. Chiswell, Gimli $5.
Nýjar félagskonur eru : — Mrs. J.
Gottskálksson, Winnipeg, og Miss
Arora E. Swanson, Winnipeg.
Mr. Björn Thorbergsson, Church-
bridge, Sask. kont til bæjarins á
mánudagsmorguninn. Hann kom með
veika dóttur sína, sem hann var að
fara með til Dr. Brandsons. — Fátt
sagði hann frétta, alt heldur hægfara
hvað uppskeru snerti og að vöntun
væri orðin á regni þar urn slóðir.
S. S. Anderson frá Kandahar kont
til bæjarins í vikunni sem leið ásamt
konu sinni og börnum; höfðu þau
farið til Argyle á fornar stöðvar að
heimsaíkja garnla vini og 'kunningja.
Þau báðu Lögberg að flytja bygðar-
búum kæra kveðju og þakklæti fvrir
v'iötökurnar og vináttumerkin. Þau
hjón fóru til Dr. Jóns Stefánssonar
með stúlku til þess að fá skorna eitla
úr hálsi hennar og tókst það ágætlega
vel. Vegna húsrúmsleysis á sjúkra-
húsinu fengu þau að vera með hana
hjá þeitn Kröyers hjónum og eru þau
þeim sérlega þakklát fyrir alla þeirra
hjálp og alúð. Sömuleiðis mintust
þau nteð þakklæti Árna Stefánssonar,
sem veitti þeim aðstoð og vináttu-
merki. Anderson hefir ttm mörg ár
verið útsölu- og innheimtumaður
Lögbergs í Dafoe og Kandahar bygð-
um og reynst einkar ötull starfsmað-
ur ]tess. Þau hjón fórtt heim aftur
á föstudaginn.
J. J. Vopni bæjarráðsmaður t
Winnijteg er að berjast fyrir þvi að
talsimagjöld verði lækkuð. Fór hann
á fund stjórnarinnar núna i vikunni,
sem fortnaður nefndar, er til þess var
kosin.
Lesendur Lögbergs eru beðnir af-
sökunar á þvi að blaðið er ekki eins
fjölbreytt og vant er; ritstjórinn hefir
verið fjarverandi.
Hörður Thorsteinsson
fallinn.
Hann var sonur þeirra hjóna,
Tómasar og Guðrúnar Thorsteins-
son, 336 Rita stræti, St. James,
næstur þeim elzta af þeint bræðrum
fjórum, er í Canada herinn gengu.
Hörður tilheyrði 90. herdeildinni
f“Little black devils”) og fór til Eng-
lands í maí 1916, og þaðan bráðlega
til Frakklands, og var í skotgröfum
þar til í september sama ár, að hann
særðist og var fluttur til Englands.
Eftir tveggja ntánaða dvöl þar var
hann alhcill aftur og fór þá á ný til
Frakklands. Þar hafðist hann v'ið úr
því og fylgdist með viðbur'ðunum;
hann komst heill í gegn um slaginn
við “Vimy Ridge” 9. apríl, og var þá
hress í anda í bréfi til foreldra sinna,
og bjóst v'ið að fá dálitla hvíld áður
langt liði. í næsta skifti, er hann fór
i skotgrafir, 28. apríl, féll hann.
Hörður var 25 ára gamall, fæddur
í Kolkuás i Skagafirði á íslandi, en
flu.ttist til þessa lands 11 ára gamall
með foreldrttm sintim og systkinum
og dvaldi ætíð með þeim.
Hann var ástríkur og skyldurækinn
sonur og augasteinn og uppáhald syst-
kina sinna.
....«
Særður á vígvelli
Iiermann Jónsson,
Hermann Jónsson er sonur lóns
Hjálntarssonar frá Brekku i Mjóa-
firði og bróðursonur H. Hermanns
starfsmanns Lögbergs. Hann særðist
3. júní aftan í höfuðiö, varð blindur
og misti heyrn á vinstra eyra. Var
hann meðvitundarlaus í 6 daga, en
fór þá að rakna við og smáhressast;
er hann að fá sjónina aftur og sér
nú svo vel að hann getur skrifað og
lesið lítið eitt, en heyrnina hefir hann
ekki fengið aftur. Hann var fyrst
10 daga á sjúkrahúsi á Frakklandi og
var síðan fluttur til Lundúnaborgar;
þar var.hann þegar hann skrifaði sið-
ast 28. júní, á góðum batavegi, en
ekkert farinn að fara á fætur.
BITAR
Fullerton fyrverandi leiðtogi sant-
særismannanna í Manitoba hefir ver-
ið gerður að dómara. — Vel ætti að
vera borgið rétti manna í höndum
hans.
McMeans, einn af Roblins hetjun-
um frægu hefir verið skipaður í öld-
ungaráðið. — Hver silkihúfan upp af
annari.
Hví er ekki Gilboult gerður að dóm-
ara? Hann vann sama verkið og
Fullerton. — Máske Borden sé að
mynda nýtt embætti fvrir hann.
Roblin kvað vera austur í Ottawa
á fundi með Rogers vin sinn. Þvi
hefir verið fleygt að ltann muni bráð-
lega verða settur í öldungaráðið.
. Heimsk. flytur síðast svo svívirði-
lega grein á móti þjóðræði og með
prússnesku einveldi að hún verður að
takast til bæna í næsta Lögbergi.