Lögberg - 26.07.1917, Page 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 26. JúLí 1917
1'oqbciQ
Gefið út hvern Fimtudag af The C»l-
umbia Pres*, Ltd.,(Cor. William Ave. &
Sherbrook Str., Winnipeg, Mzm.
•TALSIMI: CARRY 2156
SIG. JUL. JÓHANNESSON, Editor
]. J. VOPNI, Business Mananer
Ijtanáskrift til blaðsins:
THE 00LUMBI/\ PRtSI, Ltd., Box 3172. Winnipog,
Utanáskrift ritstjórans:
ÍDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, l«|an.
VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um árið.
Islendingadagurinn.
Svo er nefndur þjóðminningardagur Vestur-
íslendinga, sem árlega hefir verið haldinn í
Winnipeg og víðar í meira en fjórðung aldar.
pessi dagur er nokkurskonar áfangastaður,
þar sem fslendingar staðnæmast og gera upp
reikninga sína að því er minning eða tap snertir
í þjóðernis málum.
pað er margt sem með því mælir að hátíðin
verði óvenjulega áhrifamikil og vekjandi einmitt
^ ✓ s
i ar.
pjóðemisbarátta vor hér vestra hefir ef til
vill aldrei átt meiri sigri að fagna eða yfir bjart-
ara tímabil að líta en einmitt nú.
í fljótu bragði virðist sumum máske sem
þetta sé staðlaus fullyrðing gerð út í bláinn; en
nánari athugun færir sönnur á málið $vo að ekki
er hægt að rengja né hrekja.
Einmitt nú eru þær tengitaugar stærstar,
flestar og stencastar, sem vér höfum nokkru sinni
átt milli vor og ættjarðar vorrar; einmitt nú er
verið að byggja hina margumræddu og langþráðu
“brú” yfir hafið
Eimskipafélagið; hinn sameiginlegi augasteinn
beggja þjóðbrotanna er óefað byrjun að alveg
nýju og ævarandi samvinnutímabili vor á meðal.
Útlitið með þjóðemisviðhaldið var blátt áfram
að verða ískyggilegt. Vesturflutningar vom svo
að segja og eru um garð gengnir. Til þess að þeir
lifni við aftur verður að koma einhver óvænt og
ófyrirsjáanleg ógæfa yfir ættjörðu vora; en þess
óskum vér að alhug að það koma aldrei fyrir. —
óhætt er því að ganga út frá því sem gefnu að
vesturflutningar séu liðnir undir lok fyrir fult og
alt svo nokkra nemi.
Nú er það vitanlegt að einmitt þeir hafa haldið
við þjóðeminu og málinu fremur en nokkuð ann-
að; með hverjum innflytjendaflokki hefir risið
hér ný alda í hafi þjóðemisvemdarinnar; menn og
konur hafa bæzt í hópinn sem töluðu íslenzku og
ekkert annað en íslenzku; menn og konur sem
töldu ísland sitt land og lifðu þar öllu sínu veru-
lega lífi, þótt þeir hefðu flutt hingað líkamlegum
búferlum. petta hafði aftur áhrif út frá sér á
vini þeirra, kunningja og vandamenn, og þjóðar-
brotið yfir höfuð að tala.
Hver innflytjendaflokkur varð til þess að
blása að kolunum og glæða ástina til íslands.
pegar nú þessi stoð þjóðemis viðhaldsins var
horfin, þá leit illa út með framtíðarviðhald. En
þá kemur Eimskipafélagið, eins og óvæntur líknar
engill og þjóðemisfrelsari. Ekki einungis verður
það fyrirtæki til þess að Vestur- og Austur-fslend-
ingar vinni saman í því fyrirtæki beinlínis, sem
þó er óneitanlega mikils virði—heldur verða óbeinu
afleiðingarnar þúsundfaldar.
Verzlunarviðskifti, samgöngur og tíðar ferðir
milli vor og bræðra vorra austan hafs hefjast og
haldast við með auknum áhrifum ár frá ári.
Vestur- og Austur-íslendingar verða svo að segja
daglegir gestir hverir hjá öðrum áður en langt
líður bæði til þess að heimsækja vini og frændur
á víxl og eins í verzlunarerindum.
petta atriði út af fyrir sig er framtíðartrygg-
ing fyrir viðhaldi tungu vorrar og þjóðemis um
langan tíma.
pað er einmitt síðastliðið ár sem fært hefir
oss sanninn um þetta og því sérstök ástæða til
að minnast þess á íslendingadaginn í sumar, sem
stórviðburðar og gleðiefni.
Á þessu ári er það að Bandaríkja þjóðin hefir
valið íslenzkan mann heiman af ættjörðu vorri til
þess að gera minnismerki um frumbyggingu þess-
arar álfu og setja það upp sem eilífa og ódauð-
lega sönnun þess að sá hafi verið fslendingur er
hér bjó fyrstur allra hvítra manna.
petta atriði er meira virði en í fljótu bragði er
hægt að gera sér grein fyrir. petta atriði hækkar
og upphefir íslenzku þjóðina; auglýsir nafn vort
og festir nafn vort á tungu annara þjóða
Jafnvel þetta atriði út af fyrir sig væri nóg
til þess að haldin skyldi almenn íslenzk þjóðhátíð
hér í álfu alstaðar þar sem íslendingar finnast.
Einmitt nú stendur yfir sá tími, sem einn
landa vorra er að vinna sér þá frægð sem skipar
honum sess með allra nafnkendustu mönnum ver-
aldarinnar um aldur og æfi.
"í hinni vísindalegu sköpun veraldar heimsins
verður Vilhjálmur Stefánsson ávalt framarlega
talinn, og það að hann breytti ekki sínu há-íslenzka
nafni tryggir oss það að honum verður aldrei frá
oss stolið. pessi maður er einn af oss — oss
Vestur-íslendingum og verður aldrei frá oss tek-
inn. Hann er sterkur þáttur í þeirri virðingu sem
þjóð vor hlýtur að eignast hér ef vér látum ekki
draga oss það úr höndum, sem vort er með réttu.
petta atriði er þess virði að varpa dýrðarblæ
á þjóðhátið vora í ár; jafnvel þótt ekkert væri
annað.
Nú era fimmtíu ár liðin síðan þetta ríki, sem
vér eram partur af myndaðist með ákveðinni
stjórnarskrá. í myndun þess, vexti og viðgangi
höfum vér tekið ef til vill fullkomlega eins mikinn
þátt og nokkur önnur þjóð.
Svo vill til að einmitt um fimmtíu ár eru liðin
síðan vesturflutningar frá ættjörðu vorri hófust,
þótt fáir kæmu fyrstu árin. Vér megum sannar-
lega fagna þeim atburði. Vér ættum sannarlega
ekki síður en aðrar þjóðir að halda þetta tækifæri
hátíðlegt. Hér höfum vér kosið heimkynni vort
og hér höfum vér búið börnum vorum framtíð.
pað á því vel við að vér minnumst sérstaklega
þessa árs sem íslendingar hér í álfu og rifjum upp
fyrir oss alt það, sem á dagana hefir drifið.
íslendir.gadagui-inn er nokkurs konar þjóð-
vakningarstund, þar sem vér áum á hverju ári og
skörum að eldi þeim sem oss er ant um að hlýju
veiti sameiginlega hér og heima.
Beztu skörungarnir við það tækifæri era tung-
ur ræðumannanna; enda hafa þeir oft seilst svo
djúft að logað hefir og áheyrendum orðið heitt um
hjartarætur.
í ár hefir verið mjög til vandað í þessu efni;
ræðufólkið er alt þannig valið að mikils má af því
vænta og hafa menn verið fengnir úr fjarlægum
héruðum, sem kunnir eru að því að fljúga hátt og
kafa djúpt.
Eitt dr það sem hjörtu íslendinga hér era
tengd viðkvæmum taugum í ár; það eru hermenn-
imir. Tæplega er til heimili sem ekki eigi manni
á bak að sjá; tæplega heimili þar sem ekki hafi
bróðir kvatt systkini, sonur foreldra, eiginmaður
konu sína, faðir böm sín eða vinur vini og farið
í stríðið-
pessara manna verður sérstaklega minst á fs-
lendingadaginn, og jafnvel þótt ekki væri til neins
annars mundu flestir koma til að heyra það sem
flutt verður í þeirri ræðu.
íslendingadagurinn hefir afarmikla þýðingu á-
valt; hann aflar nýrra krafta, nýs áhuga, nýrra
hugsjóna, nýrra heitstrenginga; hann er eldsókn-
ardagur vor hér í landi ;til þess að halda við þeim
hita sem oss er ant um að lifi milli þjóðbrotanna
austan hafs og vestan. pað er því áríðandi að
þessi dagur sé vel sóttur.
í ár hefir alt verið svo vel vandað og svo margt
undirbúið breytilegt frá því sem verið hefir að
trygging er fengin fyrir því að hátíðin verði eins
fullkomin og hún hefir verið þá er bezt var.
Ihugunarefni.
Nú standa yfir einkennilegustu og ískyggi-
legustu tímar sem veraldarsagan hefir þekt.
Allar stjómarfarslegar skorður virðast vera
svo lausar að engu er treystandi. pað sem stóð
eins og bjarg í gær, er hrunið til grunna í dag;
það sem allir byggja á vonir sínar í dag, getur
verið úr sögunni á morgun.
Alvaran nær til alls og allra; stærstu þjóðir
hins mentaða heims eru milli heims og helju;
enginn veit hvað næsti dagur hefir að flytja og
allir bera áhyggju í brjósti i öllum efnum.
pað sem ægilegast er og sumar Evrópu þjóð-
imar horfast í augú við er þó hungrið—skortur-
inn. Nýtt og nýtt flutningsbann; nýjar og nýjar
breytingar og hindranir koma fram svo að segja
dagslaglega, sem flytur hina voðalegu mynd
skortsins skrefi nær einhverju landí og einhverri
þjóð.
Lengst norður í höfum er ættland vort; þar
búa bræður vorir og systur. paðan hafa hingað
til verið lítt hindraðar verzlunarferðir, sérstak-
lega til Vesturheims. ísland hefir að sjálfsögðu
verið hlutlaust land og Bandaríkin einnig að nafn-
inu til fram undir þennan tíma. par hefir þvi
verið á milli greið verzlun og óhindruð.
Nú era Bandaríkin komin í stríðið og það hef-
ir þegar komið til orða að allur útflutningur það-
an yrði heftur á vörum og vistum, nema að ein-
hverju leyti til bandamanna þeirra.
Uppskerabrestur er sjáanlegur á komvöru
bæði þar og í Canada; því fylgir það, að ekki verð-
ur aflögu nema hlutfallslega lítið og er svo ráð
fyrir gert að það sem út verði flutt og landið
geti mist, fari til þeirra, sem í stríðinu séu banda-
manna megin og fyrst um sinn eitthvað til hlut-
lausu þjóðanna líka, en síðar, ef að kreppi, verði
þeim neitað og ekkert flutt út nema til banda^
manna. ísland gæti þá orðið í voða statt; verði
verzlunin frá Bandaríkjunum bönnuð eða þar
neitað að selja vörar, er í það skjól fokið, sem
bezt hefir reynzt að undanfömu. Við pýzka-
land banna Englendingar þeim að verzla og á Ieið
til Englands er þeim hætta búin, enda ólíklegt að
þar fengjust vistir til brottflutnings ef mjög
yrði takmarkaður útflutningur frá Bandaríkj-
unum.
En hvemig er þá fsland statt ? Hver verða þá
forlög þess? Aðrar hlutlausar þjóðir geta ef til
vill forðað sér frá hungurdauða með því að fara
í stríðið, en það getur ísland ekki; fyrst og fremst
ekki vegna þess að þar er um engan herútbúnað
að ræða og sérstaklega sökum þess hver afstað-
an er.
pað er satt að ísland er ef til vill betur statt
en f-lest önnur íönd með björg og vistir; fiskurinn
er þar óþrotlegur; mjólk, kjöt og garðávextir ættu
að vera nægileg um langan aldur og því ekki mikil
hætta á sveltu í bráðina; en vandræðin yrðu samt
tilfinnanleg; þótt þjóðinni værí engin hætta búin
með það að hún mundi svelta í hel, þá gæti hún
komist í hann krappann og átt við ill kjör að búa.
pjóð sem er eldsneytislítil, ljósmatarlaus,
saltlaus og brauðlaus er illa farin, og þannig yrði
ástatt fyrir íslendingum ef algert verzlunarbann
kæmist á.
Auðvitað vona menn að slíkt þurfi ekki að
óttast, en jafnvel það ólíklegasta getur komið
fyrir nú á dögum. ,
En hvað eiga þá íslendingar að gera? Eða
hvað getum vér hér gert ef þetta skyldi koma
fyrir? pá reyndi fyrst á það hversu mikils virði
það væri fyrir bræður vora austan hafs að eiga
hér hauka í homi.
Um þetta atriði talaði nýlega við oss einn
hinna yngstu og áhugamestu Vestur-íslendinga
— herra Jón G. Hjaltalín bankagjaldkeri hér í
bænum.
petta er alvarlegt mál sem skjótra úrræða
þarf ef til kemur. Vestur-íslendingar ættu þá
að koma því til leiðar að þeir fengju sjálfir að
verzla við landa sína heima og selja þeim þær
lífsnauðsynjar er þeir yrðu að hafa og gætu ekki
fengið annarsstaðar. Vestur-lslendingar ættu að
krefjast þess af landsstjóminni hér að þeir
fengju að útvega bræðrum sínum vörar, ,«em
þeir sæktu hingað á eigin skipum. petta eiga
Vestur-íslendingar að gera ef á þarf að halda og
verða að gera.
fslendingar hafa átt svo mikinn þátt—lagt
svo mikið fram—í þessu stríði að það er óhugs-
andi að stjórn landsins neitaði þeim um þessa
sanngjömu kröfu.
Með almennri og einhuga samvinnu allra
Vestur-íslendinga er áreiðanlega hægt að koma
þessu í framkvæmd.
Auðvitað er ekki víst að til þess þurfi að taka
og allir sannir fslendingar vona að það verði ekki,
en ráðin þurfa að vera fljót og ákveðin, ef til
þess kynni að koma, og margt ólíklegra hefir
skeð í sambandi við stríðið.
Skipshafnaskifti.
Einu sinni var félag á íslandi sem átti þilskip
og gerði það út til fiskiveiða. Formaður var ráð-
inn fyrir skipið og hásetar, og formaðurinn átti
að velja menn í hvert sæti, eftir því sem hann áleit
að bezt væri og hyggilegast.
pegar skipið fór á flot í vertíðarbyrjun
var skipshöfnin látin lofa því hátíðlega að vinna
samvizkusamlega og trúlega; ráðvandlega og
gætilega ^
Og formaðurinn var látinn vinna hátíðlegasta
loforðið.
Svo hófst vertíðin. En í stað þess að muna
loforð sín eða efna þau, annaðhvort gleymdi for-
maðurinn þeim öllum eða sveikst um þau öll —
og eftir þessu höfði dönsuðu svo limimir.
Skipseigendumir voru sviknir í öllu, þar sem
svikum.varð við komið; skipinu var stýrt upp á
sker hvað eftir annað og lá við sjálft að það lið-
aðist í sundur; aflanum var ýmist fleygt á hættu-
lega staði, þar sem hann fór forgörðum, eða hon-
um var varið ráðlauslega eða beinlínis stolið.
Skipstjórinn og fylgjendur hans fóru öllu
þannig fram að helzt leit út fyrir að þeir ættu
sjálfir skipið með allri áhöfn; þeir ráðfærðu sig
aldrei við eigenduma eða útgerðarmennina, held-
ur fóru sínu fram og gengu fram hjá þeim með
fyrirlitningu og hroka.
Svo var vertíðin úti, eða sá tími, sem skips-
höfnin var ráðin fyrir. Stakk þá formaður upp
á því að hann og hásetar sínir skyldu halda skip-
inu næstu vertíð, hvað sem eigendumir segðu, án
þess að spyrja þá um.
Eigendumir komust á snoðir um þetta og
og mótmæltu slíkum ræningja aðferðum; en for-
maður gaf sig ekki að því; kvaðst hann mundu
fara sínu fram ef piltar sínir reyndust samhentir
sér í því að ræna skipinu. '
En á skipshöfninni höfðu verið nokkrír menn,
sem ekki aðhyltust ræningja aðferðir skipstjóra og
höfðu oft mótmælt þeim, þótt slíkum mótmælum
væri enginn gaumur gefinn.
Nú þegar til þess kom að ræna átti skipinu,
eða taka það til næstu vertíðar hvað sem eigend-
umir sögðu, þá risu þessir fáu andstæðingar skip-
stjóra upp á móti honum og kváðust mundu beita
öllu afli sínu á móti því gjörræði. Urðu mótmæli
þeirra til þess að ræningjaforingjanum féllst hug-
ur og hann hætti við áform sitt; spurði hann þá
útgerðarmenn skipsins hvort þeir vildu ekki leyfa
sér skipstjóm aðra vertíðina til.
Málíð var íhugað og eftir nákvæmar yfirveg-
anir komust skipseigendumir að þeirri niðurstöðu
að hagkvæmast mundi verða að hafa skipshafna-
skifti og ráða þá eina framvegis er hefðu haft hug
og drenglyndi til þess að setja sig upp á móti
skipsráninu.
pessi saga er ekki löng, og ef til vill ekki
merkileg, en hún á ótrúlega vel við stjóraarfarið
í Canada nú á tímum.
Stjómamefnan sem hér hefir verið komst til
valda með vanheilögu sambandi — líklega má ekki
nefna það samsæri — við óvini þjóðarinnar, og
keypti völdin fyrir það að afsala verzlunarfrelsi
vesturlandsins.
Ekki hafði stjómin útendað kjörtímabil sitt
áður en hún var neýdd til þess af fólkinu að kasta
fyrir borð því aðalmáli, sem hún komst til valda á.
par var afnám hveititolls, sem flokkurinn taldi
hættulegast og Iandráðum næst um kosningamar,
en það var einmitt afnám hveititolls, sem hún
varð að veita eftir nokkum tíma.
Hver einasta ærleg og samvizkusöm stjóm
hefði auðvitað Iagt niður völd tafarlaust, þegar
hún var horfin frá aðalatriði stjómarskrár sinn-
ar, en það kom Bordenstjóminni ekki til hugar;
þá reyndi hún að sitja sem fastast, þegar hún hafði
kastað stefnunni, sem hún komst til valda á.
En svo Ieið og beið og komið var fram undir
kosningar; komið fram undir vertíðar lok. Fátt
var það gjörræða, sem þessi stjórn hafði ekki að-
hafst; fáar þær yfirsjónir, sem hún hafði ekki
drýgt
Aflanum hafði hún sóað og látið stela; eftir
ráðum skipseigendanna—þjóðarinnar—hafði henni
ekki komið til hugar að fara. Hún fór sínu fram
með þýzku einveldi og hnefarétti; hún stofnaði
fleytunni í hættu og heljarklær svo að segja dags-
daglega.
En að vertíðarlokunum hugsar hún sér að
halda áfram á sama hátt eins og hún eigi skipið
sjálf án þess að ráðgast um það við hina sönnu
eigendur skipsins og húsbændur sína, hvort þeir
vilji ráða sig áfram eða ekki.
Og fygjendur skipstjórans vora fúsir til
þessa gjörræðis.
En hér fór eins og í sögunni; drenglyndir
menn fundust innanborðs, þótt fáir væru. sem
mótmæltu óhikað og kváðust ekki mundu íylgja
stjórnanda að málum í jafn miklu gjörræði og hér
væri um að ræða.
Framlenging kjörtímans var neitað af Sir
Wilfrid Laurier og þeim djörfu drengjum, er hon-
um fylgdu. pannig var landinu og þjóðinni bjarg-
að frá þeirri hættu, sem yfir vofði; þeirri hættu
að stjómartaumar ríkisins héldu áfram að vera í
höndum þeirra óhæfu manna er þeim hafa haldið
síðastliðin sex ár.
(Framh. á 7. bls.).
SÓNHÆTTIR
(Sonnets).
VIII. Hjaðninga-víg.
pað þekkjast engin örlög grimmri þeim,
sem árdag hvern úr friðarblundi sveik
hvem höggvinn dreng í hildar-bana-leik
til heljar nýrrar, kvelds í skuggageim.
Og þó, í dag, á Hildur mestan heim
og heimtar hvera, sem veldur fífukveik
með Héðni eða Högna’, að fara’ á kreik
að höggva ver og föður mundum tveim. —
Nú skyldudrápið leitar lags við mann
og lyddunafnið prýðir friðarskaut. —
í d.'úpri þögn má horfa’ á harmleik þann:
að hugargöfgi’ er stefnt á dauðans braut,
og þjóð, sem unun öldum saman fann
í ást og friði, Kains blóðsekt hlaut.
J>. P- P
4
4-
4-
f
í
4-
t
t
4-
t
4-
t
t
t
THE DOMINION BANK i
STOFNSETTUIt 1871
Uppborgaður liöfuðstóll og varasjóður $13,000,000
AUar eignir ... 87,000,000
Beiðni bœnda um lán
i
tii búskapar og gripakaupa sérstakur gaumur gefinn.
Spyrjist fyrir.
Notre Dame Branch—W. M. HAMH/TON, Manager.
Selkirk Branch—M. a BUBGER, Mana««r.
NORTHERN CROWN BANK
Höfuðstóll löggiltur $6,000,000 HöfuSstólI gr.iddur $1,431,200
Varasjóðu.....$ 848,554
formaður ......... Capt. WM. ROBINSOIN
Vice-President - JAS. H. ASHDOWN
Sir D. C. CAMERON, K.C.M.G. W. R. BAWIiF
E. F. HUTCHINGS, A. McTAVISH CAMPBELL, JOHN STOVWX,
Allskonar bankastörf afgreldd. Vér byrjum reikninga við elnstakllnga
eða félög og sanngjarnir skllmálar veittir. Avisan'ir seldar til hvaða
staðar sem er á lslandi. Sérstakur gaumur geflnn sparisjóðslnnlögum,
sem byrja má meB 1 dollar. Rentur lagðar vlð á hverjum 6 mánuðum.
T' E. THORSTEINSSON, Ráðsmaður
Cor. William Ave. og Sherbrooke St., . Winnipeg, Man.
1
i':
’.L W
rgwgi r?évr7»v fav vsv r?sýir?sv fav faS: r?éV fav rriý'7(»p'éSi r?év
Manitobastjórnin og Alþýðumálade ildin
Greinarkafli eftir starfsmann alþýðumáladeildarinnar.
HNERNIG EGG EIGA AÐ GEYMAST
Allir þeir sem hænsi hafa, hafa að
líkindum nóg af- nýjum eggjum yfir
sumartlmann. En það er alt öðru máli
að gegna að hafa ætlð á reiðum hönd-
um glæný egg. I>egar veturinn hefir
gengið í garð og hænurnar þá að
méstu leyti hættar að verpa, eða að
minsta kosti hafa dregið af sér að
mun. — Ef þú lætur egg á tóman
disk og lætur svo diskinn á kaldan
stað, þá geymast eggin máske um
stundar sakir, en til eru áðrar miklu
betri aðferðir til að geyma egg.
A miðju sumri er hentugur tlmi til
þess að ganga frá eggjum, sem neyta
skal að vetrinum. Egg sem verpt eru
1 marz og aprfl má vel geyma, þó eru
egg, sem verpt eru I júnl, júll og
ágúst betri til geymslu; sérstaklega
ef þau eru látin I þar til gjörðan lög
þegar þau eru ný.
Prófessor Herner á Manitoba bún-
aðarskðlanum gefur eftirfylgjandi ráð
til þess að geyma egg.—
Egg af vissrl tegund.
I>vf eldri sem eggin eru, þvf lakari
eru þau til geymslu fyrir lengri tfma,
þess vegna er árfðandi að leggja þau
ný til geymslu, helzt meðan þau eru
glæný, þvf þau geymast þess ver sem
þau eru eldri, en aftur betur eftir því
sem þau eru nýrri, þegar þau eru bú-
in til geymslu. — Til þess að egg
geymist er nauðsynlegt áð búa svo
um þau að ekkert loft geti komist úr
þeim og einnig þarf að ganga svo frá
þeim að gerlar geti ekki komist inn f
þau. Til þess að þetta geti orðið,
verða eggin að vera vel hrein og skil-
in alls óbrotin eða sprungin. óhrein-
indi af hvaða tegund sem er utan á
eggínu olla þvf að eggið rotnar á ótrú-
Iega stuttum tfma. Eggin þurfa þvf
að vera eins hrein og mögulegt er.
Ekki ætti að þvo eggin, þvf þá nudd-
ast af þeim ffn himna, sem er utan á
þeim og ver þau skemdum.
flátin sem brúkast skulu.
Tréfata eða leyrkrukka eru beztu
flát, sem hægt er að fá til að geyma
egg f. Járnflát af hvaða tagi sem er,
þótt þau séu galvanizeruð, má ekkl
brúka, þvf þau ryðga. Leirkrukka
sem tekur hér um til tuttugu potta
eru beztu flátin til að geyma egg f.
Krukka af þeirri stærð heldur hér um
bil tvö hundruð eggjum. þegar um
meira af eggjum er áð tala, þá er ætfð
bezt aS nota flelrl flát, en ekki stærri
er hér er tekið fram. Stór ílát eru
að öðru leiti verri, bæði brotna eggin
frekar f meðförunum, sérstaklega þeg-
ar verið er að tæma flátin og svo
geymast þau yfir höfuð betur f smærrl
flátum. Einnig má taka það fram að
færi svo að eitthváð kæmi fyrir svo
eggin skemdust f einu flátinu, þá
yrði skaðinn ekki eins mikill, þegar
flátin eru ekki höfð stærri en að fram-
an er sagt; svo er þunginn minni f
lltlu fláti og engin hætta að það hafi
áhrif á þau er neðst liggja. Eining er
árfðandi að hafa flátin vel hrein þegar
eggin eru látin f þau, bezt er að þvo
þau úr sjóðandi vatni.
Undirlriinlngur eggjaniia.
Egg sem geyma skal þurfa áð vera
hrein og vel skoðuð áður en þau eru
lögð f flátið er þau skulu geymast 1.
Munið eftir þvl að eitt strjúpað egg
getur gjörskemt öll hin eggin t Ilátinu.
Aðferð að reyna egg.
Reynið eggin við sólarljós en ekki
lampaljós, sem þó er all-alment.
Herbergi skal valið með glugga á
móti suðri; allir aðrir gluggar á her-
berginu skulu byrgðir vel, svo engin
birta komist inn um þá. Tak sfðan
olfudúk og negl fyrir gluggann 4 suð-
úrhliðinni og sker lftið gat á dúkinn
á stærð við hænu egg. Taka skal svo
hvert egg fyrir sig og halda þvt *upp
að birtu þeirri er kemur I gegnum
gatið og mun þá sjást svo vel t gegn
um þau að enginn vandi er að velja
úr þau sem eru ógölluð, aðeins skal
velja þau egg til geymslu sem lftiB
eru farin að síga. Oll egg hafa tömt
rúm 4 digrari endanum og það rúm
verður stærra eftir þvf sem eggin eru
eldri. En þvf minna esm þetta rúm
er. þvf betri eru eggin. Aðeins skal
taka þau egg tll geymslu sem hafa
aðeins örlftið rúm eða hol, og ber
þá mjög lítið á þvf rauða f gegn um
birtuna. Eftir þvf sem eggin eldast
eykst þetta rúm og er það óyggjandi
merki þess að eggið er að skemmast
og má alls ekki taka slfk egg til
geymslu. þegar eggin • eldast ber
meira á þvl rauða í þeim en hvftan
verður þynnri og lfkari vatni; einriig
sést þá vél ef nokkur sprunga er f
skurninni, þvf hún getur verið þar þó
hún ekki sjáist, nema við þessa ná-
kvæmu aðgæzlu.
Bezt er fyrir bóndann að láta taka
eggin á hverjum degi og safna þeim f
tlátið sem þau eiga að geymast f, þar
tll flátlð er fult orðið.
í bæjum er alt erfiðara við að eiga,
Þvf þar yrði að taka eggin, ef þau eru
keyft, og prófa þau, en þá er naumast
hægt að vera viss um að þau séu góð
til geymslu og þvf mjög varasamt að
reyna að geyma þau. pó má lengi
geyma egg, ef farið er eftir þessum
reglum og vel vandað til með tlátið og
aðferðina. — Pegar egg eru reynd þá
skal halda þeim’ upp að Ijósinu, sem
áður er sagt, digrapi endinn skal snúa
upp, halda þeim með þumalfingrl og
vísifingri og snerta að eins hliðar eggs-
ins en alls ekki endana. pannig getur
maður vel séð fyrst holið eða rúmið f
endanum á egginu, sem þá snýr upp
og einnig með þvf að hrista það ofur-
lítið þá sést vel f hvaða ástandi bæði
rauðan og hvftan er. Einnig sést vel
ef skemt af hvoru tagi á sér stað.
Lögurinn.
þegar búið er að safna nógum eggj-
um til þess að fylla flát það er þau
skulu geymast f, þá er næst að búa til
löginn sem rent er & þau. Margar að-
ferðir eru til, sem hafa verið notaðar,
aðal-skilyrðin eru þó þau að alt sé vel
hreint sem sem að þvf lýtur..
Fyrst notuðu menn mjölhýði (Bran)
hafra eða salt til að geyma egg sfn f.
En egg geymast illa f þessu og verða
bragðvond, og hið rauða vill lenda út
að skurninni og festast við það. Ef
það er notað þá þarf sérstaka varasemi
með jafnan hita og þurk I kring um
þau. En eggin verða þó aldrei jafn-
góð í þvt ’til lengdar. Sumir hafa vafið
hvert egg út af fyrir sig f pappfr og
lagt þau svo á kaldan stað, en þessi að-
ferð er ónotandi, því eggin tapa sér
og verða bragðlaus eftir lítinn tfma;
Sama má segja um þá aðferð sem "þó
a,ll oft hefir verið notuð að rjóða féiti
á egginn. Eggin tapa bragðinu og
verða ólystug.
Sumir halda þvf fram að egg megi
geyma ef þeim er dýpt 1 sjóðandi vatn.
En það er ekkí rétt þvl þau egg sem
þannig er farið með geymast alls ekki
lengur en þö að það væri ekki gjört.
Egg sem geymd eru f fslíúsi geymast
vanalegast ver en þau sem geymd eru
f lög. pau egg sem geymd eru í legi,
sem tilbúinn er eins og hér á eftir er
tekið fram geymast bezt og lengst,
halda sínu upprunalega eðli — tapa
sér minst að öllu leyti — og yfir höfuð
er það margreynt sú áreiðanlegasta
aðferð.
Kalkvatn.
Lögur þessi skal búinn til úr hreinu
vatni og um fram alt verður kalkið
sem notað er að vera hreint, hvftt
kalk. Nota skal tvö pund af kalki f
átta potta af vatni. þegar kalkið hef-
ir jafnað sig og samblandast vatninu
skal bæta við vatni svo það verði
tuttugu pottar (5 gallon) og þá er
fenginn nógur lögur til að geyma 30
til 4 0 tylftir af eggjum. pegar kalkið
hefir jafnað sig vel skal hræra vel f,
þar til lögur þessi er allur jafn og
kaikið hefir samlagað sig vatninu sem
bezt. þegar þetta hefir verið gert
nokkrum sinnum, skal renna á eggln
aðeins því af leginum sem er hreint,
en fleygja þvf sem kalkgrugg er f, þvf
það er ónýtt.
Bezt er að láta dálftið af legi þess-
um f flátið (svo að nema sex þuml.),
áður en eggin eru Iátin ofan f það,
þvf þá er minnf hætta á að eggin
brotni þegar þau eru látin f það. Egg-
in munu fljðta dálftið eða lyftast f
leginum, en það er að eins f bráð og
sakar ekki. Lögurinn ætti að fljóta
yfir eggin svo sem tvo þumlunga,
Ilátin ættu svo að vera lárétt og fyll-
ast á barma. pegar þetta er búið þá
skal bræða fjórar únsur (einn fjórða
úr pundi) af ‘'paraffln” og hella þvf
ofan yfir. pað gerir lofthelda húð
ofan 4 og ver allri útgufun.
Egg geymd í vatnsglösuin.
pað er iriáske auðveldara að geyma
egg 1 glerkrukku með vatni 1, en efn-
ið kostar meira; það er auðveldara
að útbúa það heldur en kalklöginn.
Tilraunir sem gerðar hafa verið á
búnaðarskóla Manitoba fylkis hafa
sýnt að kalkvatnið reyndist mun bet-
ur. Egg voru látin I hvorttveggja og
valin jafnti en þegar þau voru tekin
upp aftur eftir sama geymslutíma, þá
reyndust þau eggin að öllu leyti betri,
sem í kalkvatninu voru geymd. Vatn-
ið sem hér er átt við má kaupa l
lyfjabúðum fyrir 15 cent pundið.
petta er þykkur ljósleituf lögur, sem
þynnist við yl — tilsögn um að búa
til Þennan lög er vanalega prentuð
4 ílát það, sem hann er seldur .. —-
Taka skal soðið vatn og láta f það
sem svarar einn tfunda hluta af legi
þeim er áður var getið, haf vatnið
nýmjólkurvolgt þegar hann er látinn
sarnan við það, þó verður að kæla
þenna lög vel, áður en eggin eru látin
ofan f hann og loka svo flátinu á sama
hátt með “paraffin”, elns og þegar
kalk er notað. í þessum legi er hætt
við að þau egg, sem næst eru botnin-
um, verði ekkl elns góð og þau. sem
ofar eru. þessi lögur verður að e’ins
notaður einu sinni. þegar eggin eru
svo tekin úr og notuð, skal stinga
tftuprjóni f gegn um digrari endann
á þeim áður en þau eru soðin, þá
brotna þau ekki f suðunni.
Ef eggin skemmast þegar þessi að-
ferð hefir verið höfð, þá er það ein-
hverju af því um að kenna, sem hér
4 eftir er upp talið.
1. Eggin verið skemd þegar þau
voru látln t Ilátið.
2. óvandlega genglð frá þeim.
3. Lögurinn ekki vel tll búlnn.
4. flátið verlð f of mlklum hita.
Með þvf að vanda si£ vel og fara
nákvæmlega eftir þvf, sem hér er fram
tekið, má geyma egg ðskemd f átta til
tfu mánuði.