Lögberg - 06.12.1917, Blaðsíða 5

Lögberg - 06.12.1917, Blaðsíða 5
LOGBERG, FIMTUDAGINN 6. DESEMB^E 1917 KAUPMANNAHAFNAR Vér ábyrgj- umst það að vera algjörlega hreint, og það bezta tóbak í heimi. Ljúffengt og endingar gott, af því það er búið til úr safa miklu en mildu tóbakslaufi. MUNNTOBAK að sanngjörn þjóðfulltrúa stjórn hefði átt að vera, og að því búnu vonast eg til þess að enginn sanngjarn maður lái mér það, þótt eg sé einregið og óbreytanlegur á móti samsteypustjórninni Hefði Slr Robert Borden verið einlægur og viljað afnema flokkastjórn, þá hefði hann komið að máli við ríkisstjórann og sagt: .. ’‘Með því að þjóð minni ríður á því að liún fái sem stjór- endur binavitrustu og beztu menn, sem hún á um að velja, og með því að mér ehfir gersamlega mistekist stjórnin. þrátt fyrir góðan vilja og með því að þjóðin sjálf, en enginn einstaklingur getur skorið úr því, og hefir heimild til þess að skera úr því hverjir hæfastir séu, þá segi eg af mér stjórnarforustu um studarsakir að minsta kosti. Þú lýsir því yfir að þjóðin sjálf útnefni menn til þings og stjórnar, hvern í sínu héraði eða kjördæmi, án nokkurs tillits til, og án nokkurra sérstakra áhrifa frá afturhalds- eða frjáls- Jvnda flokknum. Þessir þjóðkjörnu menn komi saman á þing að afslöönnm kosningum og velji sér forsætisráðherra, annaðhvort mig, ef þeir trúa mér fyrir því, eða að öðrum kosti einhvern annan; þessir þjóðkjörnu menn velji sér einnig. alla þá ráðherra, sem þörf er á, og hagi vali þeirra þannig að allar stéttir þjóðarinnar og öll fylki landsins liafi þar fulltrúa í sanngjörnum hlutföllum. Verði eg fyrir því trausti að skipa gæti í hinni nýju stjórn, mun eg leysa verk mitt af hendi eftir mætti; verðí mér ekki trúað til þess, skal eg reiðubúinn að leggja þar hönd á plóginn sem hinir kosnu fulltrúar teldu mig færastan og kraftar mínir mættu verða að sem beztum notum. Að vinna þjóð minni og fósturjörðu minni, sem mest gagn á þessum alvarlegu tímum, það er mitt fyrsta og síðasta og alt þar á millif ’. Hefði Borden gjört þetta, þá hefði enginn sanngjarn maðui getað efast um einlægni hans, og þá liefðu margar — jafnvel allar syndir hans verið fyrirgefnar, þótt svartar séu. Gæfusöm hefði þjóðin verið hefði hiin átt slíkan mann. 1 öðru lagi gat Borden farið að á annan hátt, og verið þó með öllu einlægur. Hann gat komið til Sir Wilfrid Laurier og sagt: “Þjóðin er í voða; mér er um það ant að liún komi sem heil ust og með sem mestum heiðri út úr þeirri eldraun, sem hún er í. Eg er leiðtogi annars flokksins í þinginu og þú hins; það er skylda okkar að láta alla flokkaskiftingu falla niður; einungis á þann hátt getum við unnið þjóðinni gagn, og það verður að vera aðalatriðið, eins og nú stendur á. Eg kem því til þín, ekki sem andstæðings eða flokksforingja fyrir óvinaher, heldur sem væntanlegs samstarfsmanns. Mín tillaga er þessi, og eg vonast til að þú samþykkir hana: Eg útnefni helming af þeim, sem stjórnina skulu skipa og helming af þeim er þingsætin skulu fylla; þú skipar hinn helm- inginn. Og eigi skal þetta vera bundið við neðri deild þingsins, heldur einnig hina efri; þar skipa eg sömuleiðis helminginn og þú eins. Alla þessa menn skipum við þannig að á þá skaf bent af kjósendum og síðan um þá kosið. Þegar þannig væri farið að, má vapnta þess að allir yrðu kosnir gagnsóknarlaust, því svo væri þessi að ferð sanngjörn að enginn gæti með góðyi samvizku á móti mælt. Þegar þingið þannig skipað kæmi saman kysi það forsætis- ráðherra; mig ef því sýndist svo, þig ef það þætti hagkvæmara og einhvern annan ef hvorugur okkar væri talinn til þess vel fallinn. Báðir skyldum við vera reiðubúnir að halda í keip á þjóð- arskútunni, þar sem okkar væri mest þörf og þjóðin sjálf eða fulltrúaþing hennar teldi okkur hæfasta”. Hefði Borden farið þannig að ráði sínu, þá hefði hann sýnt þá einlægni, sem enginn hefði getað efað; þá hefðu menn getað fyrirgefið honum allar syndirnar; þá hefði hann verið sannur sonur þjóðar sinnar; þá hefði hann unnið að sameiningu í stað sundrungar; þá hefði hann komið á stjórn í stað óstjórnar; þá hefði hann sýnt fórnfærslu í stað eigingirni. Sir Wilfrid Laurier stakk upp á því þegar í byrjun stríðs- ins. að öll flokkaskifting væri lögð niður og allir ynnu saman með einum huga. Hvernig því var tekið vitum vér öll og hvernig því var framfylgt af stjórninni ber saga landsins með sér. 1 stað þess að nota þá aðferð, sem að ofan er greind, fór Borden aðra leið; hann lætur bera upp á þinginu frumvörp alvarlegs efnis og samþykkja þau, þannig að andstæðingum stjórnarinnar var bannað málfrelsi. Að því búnu býður hann Sir Wilfrid Laurier að taka sæti í stjórninni, með því móti að hann samþykki allar gerðir stjórn- arinnar, að meðtöldum þeim er hann hafði harist sem harðast á móti. Þessu neitaði Laurier og munu fáir sanngjarnir menn geta láð honum það. Þá velur hann þann veg að fá nokkra menn ur frjálslynda flokknum til þess að taka sæti í stjórn sinni; ekki ráðguðust þessir menn um það við kjósendur sína hvert þeir skyldu taka boði Bordens, heldur taka þeir sér ráðherrastöðu í afturhalds- stjórninni án kosninga. Borden lætur blöð landsins flytja þann gleðiboðskap að liann hafi mvndað samvinnustjórn, samflokkastjórn eða þjóð- fulltrúastjórn, þar sem afturhalds menn hafi 50% og frjálslynd ir menn 50%. / Þegar farið er að athuga, eru í stjórninni 22 menn; þar af 8 frjálslvndir og 14 afturhalds menn. Menn okkar úr þessári samsteypu koma fram fyrir þjóðinia og segja henni að 8 af 22 séu 50% og að 14 af 22 séu líka 50%. Og þó er ekki þar með búið; á meðan þessi samsteypa er að fæðast; á meðan hæst er hrópað um sanngirni og samvinnu flýtir Borden sér að fylla efri deild þingsins með afturhalds menn. Þar vilja þeir einnig telja þjóðinni trú um að 0 af 100 sé 50% og 100 af 100 sé líka 50%. Þetta er sanngirni; Þannig er þjóðfulltrúastjórn, þegar þegar hún er skoðuð niður í kjöíinn. Þetta er stjórn sem okkur er sagt að velja, og má vera að henni takist að blekkja ýmsa, en tæplega trúi eg því að það verði meiri hluti kjósenda. Sig. Júl. Jóhannesson. cand. theol. Halldóri Jónssyni, hin á ensku, þar sera tveir “prestar” tóku )átt í athöfninni, cand. H. Jónsson og prestur safnaðarins. Þrátt fyrir óhagstætt veSur sótti margmenni báöar þessar guösþjón- ustur. Skrifað þann 27. nóv. 1917. Vinur. Orpheum. LSÍ- 'FAR VEL MEÐ TENNURNAR' Joseph E. Howard, hinn velþekti sönglagahöfundur og uppáhald Winni- pegbúa, flytur inn á Orpheum leik- sviöiö vikuna, sem hefst 10. desem- ber, hinn nýja söngleik sinn: “Musi- cal World Review”. Þegar hr. Ho- ward var hér síöast á ferð, söng Miss Ethel Clark með honum. I þetta sinn hefir Mr. Howard meö sér á milli 20—30 manna söngflokk. Þá kemur lika bráðum kýmileikar- inn Frank Crummit, ágætur söngvari og getur spilað á flest öll heimsins hljóðfæri. Regina Conelli og Ruby Craven, sýna líka “Moondown”, leik sem sett hefir alt á annan endan í Washington Einnig birtist Blance Merrill á leik- sv'iðinu, í skrípaleiknum “On The Scaffold”. Þ.á koma teiknimeistararnir Grohs. Isabelle D’Armod er líka með gleði- leik: '‘The Beauty Shop”. Enn fremur skemta þrír Japaniskir drengir. Og sýndar verða frétta- myndir frá Englancji. Dominivn. Dánarfregn. Jón Jóhannesson Nordal að Marker- ville, Alberta, dáinn — af krabbameini — 23. nóv. s. 1., 76 ára, 3 dögum áfátt. Jarðsunginn í Tindastól grafreit 25. nóv. Jón var fæddur 26. nóv. 1841 að Óslandi í Skagafirði. Foreldrar hans voru: Jóhannes Jónsson og Sigríður Steingrimsdóttir. Jón fluttist ungur norður i Höfðahverf i Þingeyjar- sýslu. Þar kvæntist hann 1880 Ólöfu Benediktsdóttur frá Borgargarði. Misti hana 29. júní 1917. Er dauða hennar getið í “Lögbergi” 19. júlí s. 1. og þar eru einnig sögð helztu æfiat- riði þeirra hjóna; er hér vinsam. vís- að til þessa. P. H. | ráð, væri failinn , Konráð sálugi Dánarfregn. Nú fyrir rúmri viku sVðan barst þeim, merkis-hjónunum, Mr. og Mrs. John Halldórsson að Sinclair, Man., sú sorgarfrétt að sonur þeirra, Kon- i stríðinu. var nærri 21 árs gamall, fæddur 21 marz 1897 að Brú í Argyle-bygð. Hann ólst upp á heimili foreidra sinna í Argyle og Sinclair, en vann við verzlunarstörf í smábænum Rock í Sask. síðast liðið ár og þar innritaðist hann í 243 her- deildina í febrúar síðastl. Flutti blaðið Lögberg (32. tölubl.) Má. mynd af honum og stutt æfiágri^ Með 243. herdeildinni fór hann svo til Englands í maí síðastliðnum, og til orustuvallarins á Frakklandi í sept- ember, og þar féll hann 11. nóv. Konráð sál. var mesti efnis maður og v’el látinn af öllum sem hann þektu. Eiga foreldrar hans, skyld- menni og vinir, efnilegum syni og góðum dreng á bak að sjá. En með stakri karlmensku og öruggri trú á handleiðslu guðs tóku foreldrar hans þessari miklu sorg. Tvær minningar guðsþjónustur voru haldnar í prespytera kirkjunni á Sinclair 25. f. m. í minningu um Konráð sál. Önnuir á íslenzku, af Alveg er það næstum ótrúlegt hvað stjórn leikhússins leggur að sér, til þess að geta skemt gestum sinum. Alla næstu viku verður sýndur leik- urinn: “Reaching for the Moon” eftir Douglas Fairbank. Aðal-leikendur eru Alexis Ceasar, Napolion Brown, New York maður, sem vinnur á hnappaverksmiðju. Er þar meistara- lega lýst þroska aflraunamannsins. Enginn vafi er á, að listelskir menn, eins og þeir ávalt eru, sem Dominion leikhúsið sækja, muni ekki setja sig úr færi vikuna sem í hönd fer. Þá má ekki gleyma “The Sea Crawler”, sem skarar fram úr öllu, sem enn hefir heyrst og sést. Dominion leik- húsið er staður fjöldans. Pantages. Á leikhúsinu næstu viiku birtist Frescott, einhver allra frægasta per- sóna i hugskeytaritun. Fornir saman við hr. Frescott, verða flestir smáir. Miss Hope Eden, aðstoðar og er hún einnig heimsfræg í hugarfirðrit- un. “The Bachelor Dinner”, kýmisöng- leikur i einurrt þætti er líka sannarlega þess verður að horfa á hann. CANAOfi? FINESr THEATRfi FimtucTag, föstudag og laugardag 6., 7. og 8. des., siðdegis á laugard. verður þar aftur leikinn “Robinson Crusoe” Hinir sömu ágætu leikarar og söngv. ALLA NÆSTU VIKU Síðdégis á miðvikudag og laugardag “The Bird of Paradise” Sætasala byrjar föstudaginn 7. des. Verð að kveldinu 25c til $1.50 Síðdegis 25c til $1.00. AREIÐANLEGUR TANNLÆKNIR Rotnar tennur eru mjög slæmar t sjfilfu sér, en hitt er enn þá verra aS eyöilegging tannanna orsakar meltingarleysi og maga- sjúkdóma og þrantir nótt og dag Lftttu Dr. Jeff- rey laga ft þér munninn og gera hann eins og hann var upp haflega. Dr. Jeffrey get- ur g e r t paSS p r a n t a laust. Verk hans er >dýrt, ftreiCan- ,egt og a8 öllu leyti ftbyrgst. peir sjúklingar sem heima eiga utan bæjar fá fljúta og tafar- lausa afgréiöslu, þeim er og boSiC atS nota starfsstofu vora til þess aC geyma töskur og mæta vinum. Horni Logan og Matn Inngangur á Logan. • Opið að kveldlnu Dr. C. C. JEFFREY, Talsími: Garry 3030 - -----------FAR VEL MEÐ TENNURNAR' 10 -[U Hafið þér bragðað MULIÐ Laffi Ef svo er þá hafið þér ekki orðið var við neina beiskju, það kemur til af því að hinar jöfnu, muldu kaffibaunir Red Rose kaffisins eru alveg lausar við hismi og ryk. J?ér fáið bragið af bezta, óblandaða kaffi aðeins. Red Rose kaffi er svo gott í sinni röð að það þarf ekki að setja egg í það til að hreinsa það J?að er eins einfalt að búa það til og Red Rose te og kemur tært úr kaffi könnunni með þeimeinstaka ilm, sem leggur um alt herbergið og fyllir yður hjartanlegri löngun að drekka það. — pað er 673 Red Rose Coffee c- j* Hof.’UU LODSKINN EMjú^óskar eftir fljótri afgreiðdu og haesta verði fyrir ull og lotekir n.skrifið Frank Massin, Brandon, Man. Skrifið eftir verði og áritanaspjöJduir. ■4LIKIH Pálína Johannesson, Mervier, Sask. .50 Soffía Jóhannesson,Mervier, Sask.................. .50 Thorir Málmquist, Keewatin...................... 1.00 Pótur Pétursson, Langruth, Man......................25 Halla Margrét Pétursson, Langruth, Man..............25 Ben. Theod. Pétursson, Langruth, Man...............25 Jónas Pétursson, Langruth, Man.....................25 Frá Hallson, N. Dakota: J. D. Jónasson...................................$1.00 Ingibjörg Jónasson............................... 1.00 Magnús Jónasson.................................. 1.00 Sigriður Jónasson ................................ 50 Ingvi Jónasson......................................50 Andrés F. Eastman......... 25 Jónatan Th. Eastman.................................25 Jóhanna A. Eastman................................. 25 FriBrik B. Eastman..................................25 Bmily Eastman.......................................10 Mr. S. Paulson................................... 1.00 Mrs. S. Paulson................................. .50 Paulina Johnson ................................. .25 Lára Johnson.................................... .25 Sigurður J. Jphnson............................... .25 Frá Geysir, Man.: J. Gutt. Guttormsson............................$ .10 Lilja M. Guttormsson .. ......................... .10 Stefán V. Guttormsson............................. )10 Baldur F. Guttormsson............................. 10 LiIIian Ruby Jonasson.......... .. ............. _10 Frá fjölskyldu A. Frimannssonar, Quill Lake, Sask. A. Frímannsson...................................$1.00 Mrs. P. Frímannsson.............................. 1.00 Halldóra Frimannsson.............................. 50 Walter Frimannsson..................................25 Jón Kjartansson.....................................25 Afhent af hr. Jóhanni Ólafssyni, Leslie, Sask. Jósef Ólafsson.................................. $ .50 Þóranna Normann.....................................50 Kristlaug Olga Benson, Árborg, Man. ................25 GuSrún Laufey Benson.Árborg, Man....................25 Frá börnum Jósefs Johnson, Lower-Fort Garru .. 5.00 Guölaug Helgason, Cypres........................ $1.00 Kristjana Helgason, Cypres...................... 1.00 Als........................$ 49.90 ÁSur auglýst................ 771.95 Nú als......................$821.85 STAKA. Blessuð sólin elskar alt, alt með kossi vekur; haginn grænn og hjartað kalt hennar ástum tekur. H. H. SUMARVISUR. Roðar tinda sumarsól, sindrar gúll á vogi. Hjúpar jökla hvítan stól helgur sagna-logi. Mér finst sem alt mér opni veg og yfir hafið kæmist ég í einu ára-togi. Hljómar loft af svanasöng, syngur við í fjöllum. Blandast fossa brimsog löng blómahvísli á völlum. Af lífi titrar lilja hver, og lækir glaðir steypa sér af brattra hlíða hjöllum. Allar svæfir sorgirnar sumardísin fögur. Sól um brekku-brúnirnar bindur geislakögur. 1 lofti þýtur ljúfur blær, á laufsins hörpustreng ’ann slær, og segir fagrar sögur. —öræfaljóð. Viðurkenning. Hér með viðurkenni eg með kæru þakklæti að hafa tekið á móti ofurlítilli peningasendingu með fáeinum hlýlegum orðum og ósk um gleðileg jól. Með þessu nafni neðan undir; “fslenzk stúlka í Vancouver, B. C.” J7egar hún les þetta þekkir hún sjálfa sig og sér að sending hennar hefir komið til skila. Og getur lifað glöð og róleg við þá jóla- hugsun, að hver góð hugsun er hulinn vængur, sem flytur manninn mót hæðanna heimkynnum. Og að það hvílir einhver hulin blessun yfir sér- hverju góðu orði, sem vér tölum, og veglyndislegu verki, sem við vinnum, og yfir öllu, sem hefir upptök sín frá kærleikanum. Eg set þessa viðurkenningu í blaðið Sólskin, því sendingin var eitthvað í sambandi við það. Svo óska eg öllum Sólskinsbömum, ungum og gömlum til hamingju og gleði um jólin, og að þau megi jafnan minnast þess að “gleðinv hún er “hamingja”, en hamingjan er nægjusemi með hlutskifti sitt í lífinu. Gimli, 24. nóvember 1917. J. Briem. María Elízabet. NiðurUg María Elizabet stóð sem þrumulostin, svo færði hún sig nokkur skref burt, þar staðnæmdist hún og hugsaði sig um. Nú kom þjónninn, sem átti að láta hana út, en gestimir bentu honum að fara út aftur og láta Maríu litlu vera. Ungi maðurinn huldi andlitið í höndum sér, en hinir störðu á Maríu litlu, þar sem hún stóð á miðju gólfinu. Hún velti fimm centa peningnum milli fingra sinna, svo færði hún hendumar upp að munninum eins og hún ætlaði að borða pening- inn, hendumar vom rauðar og bólgnar af kulda og nú streymu tárin úr augunum ofan á þær. Ylm- urinn af krásunum framan úr borðstofunni var nú sterkari en áður og María litla Elizabet horfði þangað tárvotum augum. En alt í einu var eins og María litla hefði tekið fasta ákvörðun, hún sneri sér við og gekk aftur inn til qnga mannsins, og lagði skjálfandi hendina á vanga hans. Gestimir höfðu lagt frá sér pípur sínar og vindla. Steinhljóð var í salnum. Jafnvel þjón- amir stóðu í sömu sporum og hreifðu sig ekki, svo það sem María litla Elizabet sagði heyrðist glögt, þó hún hefði ekki talað hátt. “Mér þykir fyrir því að þú skulir vera svona svangur, fyrst þú hefir ekki borðað neitt í þrjá daga þá hlýtur þú að vera svangur, en eg hefi hér fimm cent, eg á þau sjálf, mór vom gefin þau. Eg vildi að þú vildir taka við þeim af mér. Eg er ekki búin að svelta nema einn dag; þú getur fengið eitthvað að borða fyrir þau og eg fæ, ef til vill eitthvað einhversstaðar. Gerðu það fyrir mig taktu við þeim. Gerðu það fyrir mig”. Og Maria litla Elizabet stóð hreifingurlaus og rétti fram peningana. Hún skyldi ekkert í J>eim ys sem varð í saln- um og hún sá heldur ekki hvað allir urðu ókyrrir í sætum sínum. Sumir hermennirnir hóstuðu aðrir fóru að þurka gleraugun sín í ákafa. Hún skyldi ekki heldur vegna hvers ungi mað- urinn, jjaeð fallega hrokkna hárið, spratt svo snögglega upp og horfði á hana svo sem eitt augnablik, og fríða unglega andlitið, sem þó var afmyndað af drykkjuskap, stokkroðnaði út undir eyru. Ekki skyldi hún heldur vegna hvers hann þreif fimm centa pening og kastaði honum á borðið, en tók hana sjálfa í fang sér, grúfði and- litið niður að kjól garminum hennar og grét eins og bam. Hún skyldi ekkeit í þvi, það var eins og engum þætti neitt undarlegt að sjá svona stóran mann gráta. Nú kom maðurinn sem hafði gefið henni peninginn og svo hvcr af öðrum og þyrptust utan um þau, og allir töluðu vingjamlega. Ungi- maðurinn stóð á fætur og sagði: “J7essi litla stúlka hefir opnað augu mín og kent mér að fyrirverða mig bæði fyrir siálfum mér og ykkur, ef guð vill hjálpa mér, skal eg láta þetta mér að kenningu verða”. Svo settist hann niður, setti Maríu Elizabet á kné sér og spurði hana að heiti. “Eg heiti María Elizabet, herra”. “María Elizabet”, hafði hann eftir. “pegar £g var eins lítill og þú ert núna, þá las eg í biblí-

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.