Lögberg - 14.03.1918, Page 4

Lögberg - 14.03.1918, Page 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 14. MARZ 1918 Í Ofurefli hefir ritstjóra “Heimskringlu” orðið grein vor, sem birtist í “Lögbergi” 28. f. m., með fyrirsögn- inni “Meinsemdir”, og sem hann tekur til umræðu í síðasta blaði sínu, og reynir á allan hátt til þess að snúa út úr og afbaka, en sú aðferð hefir aldrei verið álitin drengileg í neinum viðskiftum, og hefir ávalt þótt bera meiri vott um strákskap, samfara ráðþrotum, heldur en um manndóm. f þessari umræddu grein vorri mintustum vér á líkamlegar og andlegar meinsemdir og þykir rit- stjóranum það næsta kynlegt — getur sízt skilið í því hvaða menn það geti verið, sem ekki kunni að gjöra greinarmun á því, sem er fagurt og ljótt. heilbrigt og óheilbrigt, satt eða ósatt, og kemst að þeirri niðurstöðu, að ef það séu nú annars nokkrir menn í mannfélaginu, sem þessi lýsing vor geti átt við, þá hljóti það að vera læknar! Einmitt mennirnir, sem verja öllu lífi sínu til þess að lækna slíka sjúkdóma, og berjast á móti þeim. — En getur ekki með neinu móti komið auga á neinn af þeim andlega sjúku aulabárðum, sem daglega eru að nudda sér upp við menn og málefni, sjálfum sér til vanvirðu og öllum öðrum til bölvunar. Nei, ritstjóri góður, vér áttum ekki við lækna með áminstum ummælum í grein vorri. Vér átt- um við þá menn, sem leggja það í vana sinn að afbaka hugsanir og orð manna og færa á verri veg. Vér áttum við menn, sem sjálfir eru svo óvandir í hugsunum, að þeim stendur á sama hvort að þeir segja satt eða ósatt. Vér áttum við menn, sem láta kúska sig til þess, að bera ósannindi á menn og málefni, þegar yfirdrotnum þeirra býður svo við að horfa. Ritstjóra “Heimskringlu” finst, að það hafi verið undarleg rökfræði af oss að minnast ekki á eina litla málsgrein, sem hann segir að standi í grein sinni í “Heimskringlu”, og sem svo hljóðar: “Á öðrum eins tímum og nú, var lífsspursmál að fylkisstjómin reyndi af ítrustu kröftum að draga úr öllum óþarfa kostnaði”. En ástæðan var sú, að þessar línur — tvær og hálf lína — var það eina sem vit var í og þó gátu þessar línur ekki verið ósjúkar — vitleysan varð jafnvel að þrengja sér inn í þær. pví fylkisstjórain á ekki einasta að sneiða hjá öllum óþarfa kostnaði nú á tímum, heldur og æfinlega. Og það er einmitt það, sem vér höldum fram að hún hafi gjört, þrátt fyrir alt moldviðrið, sem mótstöðumenn og mótstöðublöð hennar hafa haldið fram og þar á mt>ðal “Heims- kringla”. Alt þeirra skraf, skrif og saur í sam- bandi við eyðslusemi Norris stjómarinnar eru einskisvirði, þar til þau sýna fram á það með rök- um í hverju að eyðslusemi stjórnarinnar liggur, og hvað sé hægt að spara, án þess að misbjóða vel- ferðarmálum fylkisbúa. Vill “Heimskringla” láta fella úr gildi vín- bannslögin og með því spara yfir $200,000 á ári ? Vill hún láta færa skólatillögin niður í það, sem þau áður voru, og þannig spara hundruð þús- unda? Vill hún láta fella burt styrk til ekkna, og munaðarlausra baraa þeirra? Vill hún láta fella úr gildi slysaábyrgð verka- manna? Alt eru þetta aukin útgjöld, sem þessi stjóm hefir orðið að mæta, og nema mörg hundr- uð þúsund dollurum á ári. Vill “Heimskringla” gjöra svo vel og segja hvað það er, sem hægt er að spara? Vill hún einu sinni á æfinni reyna til þess að vera ærleg og koma fram með kærur sínar formlega eða þá að öðrum kosti að afturkalla níð sitt. Allmikið veður gerir ritstjórinn út úr því, að vér hefðum sagt í grein vorri að allur málskostn- aður fylkisstjóraarinnar síðastliðið ár, hafi verið í sambandi við fjárdrátt þann er vildarmenn Rob- linstjómarinnar gjörðu sig seka í. petta hefir einhvera veginn ruglast í heila ritstjórans, því vér sögðum þetta aldrei, og ekkert líkt þessu. pað sem vér sögðum, var að málskostnaðurinn í sam- bandi við þau mál hafi numið $309,300 og að hag- ur fylkisins, það er að segja hinn beini hagur, hafi verið $1,387,500. En svo er það að segja, um má ls- kostnað þann, sem fylkisstjórnin verður að borga, að hún hefir ekkert yfir honum að segja, heldur er hún í þeim sökum háð lögum, er fyrirrennarar hennar settu, og sem ákveða að einn góður og ftild- ur afturhaldsmaður, dómarinn D. H. Wa’tker, skuli skera úr því, hvað sé sanngjöra borgun Ýyrir hin ýmsu verk málafærslu manna hér í fylkínu og til hans geta allir þeir farið, sem halda að mála- færslumenn setji of hátt verð á verk sín, jg hefir hann þá úrskurðarvald í því máli — þessi maður er sagður að vera ábyggilegur í alla stí. ði, enda þótt að hann sé stjóramálalega skoðanabróðir ritstjóra “Heimsk.” Hann hefir í hverju einasta tilfelli yfirfarið reikninga þessara málafærslu- manna og samþykt þá, og var því ekki nema um tvo kosti að velja fyrir fylkisstjórnina, að borga reikningana, eins og þeir voru frá þessum manni, eða þá að hafa enga málafærslumenn. Um prentunarkostnað stjómarinnar, og þá líka um prentverk það, sem Columbia Press gjörði fyrir Norrisstjórnina síðastliðið ár, skrifar rit- stjórinn langt mál, og virðist út á hvorugt hafa neitt að setja, sem varla var heldur að búast við, þar sem Norrisstjómin fékk sitt prentverk gjört $22,438.33 ódýrara, heldur en Roblinstjómin borg- aði fyrir minna verk 1914, þrátt fyrir það þótt verkalaun og efni hafi stigið geysi mikið í verði. Síðast í þeim kafla ritgerðar sinnar kemst ritstjór- inn svo að orði: “Mótmæli hans (ritstj. Lögb.) gegn því að Columbia félagið hafi fengið þrjátíu þúsundir dollara gefins hjá fylkinu hafa enga þýðingu, því enginn hefir haldið slíku fram. Mis- skilur hann orð vor algjörlega, ef hann dregur þá þýðingu út úr þeim, að Columbia Press hafi fengið fé þetta gefins”. Svo — ertu nú viss um það, rit- stjóri góður, að þú skiljir sjálfan þig, eða vitir hvað þú ert að segja. í fyrri grein þinni segir þú að “eigendur Lögbergs beri úr býtum nærri þrjá- tíu þúsund dollara, fyrir árið sem leið”. Vill nú ritstjórinn spegla sig í sínu eigin afkvæmi, og segja svo að vér höfum misskilið sig? Ekki finst ritstjóranum sú staðhæfing vor álitleg, að það, að einn maður er í þjónustu annars eða annara, sé engin sönnun þess að sá maður geti ekki verið eins trúverðugur til umsagnar um vinnuveitendur sína eins og aðrir. pað að prestur geti sagt satt og flutt söfnuði sínum friðarboðskap sannleikans, ef hann er í þjónustu þess safnaðar, það þykir honum sú frábærlegasta vitleysa, sem hann hafi nokkru sinni séð á prenti. Eftir hans kenningu eiga allir menn, sem vinna fyrir aðra og taka laun fyrir, að vera ómerkir menn til um- sagna í því sem nokkuð kemur vinnuveitendum þeirra við — nema Heimskringlu ritstjórinn, hon- um einum má trúa. pegar eg las þessi ósköp í síðustu Heimskringlu, þá datt mér í hug það, sem Einar H. Kvaran sagði einu sinni um Gest heit. Pálsson, á stjórnmálafundi í gamla íslenzka félagshúsinu hér í bænum. Gestur, sem þá var ritstjóri Heimskringlu, og aldrei var mikill fyrir sér 1 pólitík, hafði sagt eitthvað sem hann gat ekki staðið við, og sett sjálfan sig í gapastokkinn, eins og oftar hefir komið fyrir ritstjóra Heimsk.: að “menn sem létu aðra eins vitleysu út úr sér, ættu ekki að vera á mannamótum, heldur ættu þeir að vera úti á sléttum að bíta gras”. Að endingu segir ritstjórinn að allar mein- lokur Heimskringlu séu rökfræðilegar. pví verða víst fáir til að mótmæla — að eins hefði hann mátt bæta því við, að tala þeirra væri legió! Borgaðu. Eftir Dr. Frank Crane. Alt sem þú eignast, borgar þú fyrir á einhvem hátt. Ávalt er ódýrast að borga út í hönd! pað er ávalt ánægjutilfinning því samfara að borga í pen- ingum fyrir það, sem þú kaupir. — pá veistu að kaupin eru afgerð. Og að þá hvílir heldur engin veðskuld á framtíðar hamingju þinni. Hefurðu nokkru sinni hugsað vandlega um alla þá mörgu hluti, sem þú hugðir þig hafa fengið án endurgjalds? pú hefir borgað fyrir þá alla; ef til vill með lækkandi sjálfsvirðing, höftum á per- sónufrelsi, eða þvingandi skuldbindingum —og sú aðferðin hefir orðið þér margfalt kostnaðarsam- ari, en ef þú hefðir látið hönd selja hendi. Forboðnir ávextir eru freistandi, en sá fylgir gaUi nautn þeirra, að eftirköstin verða aldrei um- flúin. Hvert einasta lóð af óeðlilegri nautn, orsakar pund af vansælu. Sjálfs-nautnir eru sætar. En mundu það, að laun þeirra eru — sjálfs-fyrirlitning. Augnabliks-víma stærilætisins, getur verið þægileg, en afleiðingin verður ósigur, sem er alt annað en þægilegur. pegar þú gerir það, sem þú veizt að er Ijótt, í þeim tilgangi að græða peninga eða öðlast hlunn- indi, þá getur þú, ef til vill, hlotið við það stundar . svölun. — En iþú hefir selt sjálfan þig, og það er manndómsrán! Slík eru kjörkaup heimskingjans. Bókhald náttúrunnar er strangt. Lánstraust þitt við hana er gott, en hún krefst af þér skilvísi. Og lögtaksmenn hennar getur þú aldrei snið- gengið! pú getur svikið náttúruna, smánað hana, log- ið að henni, beitt hana vélráðum, komið fram við hana stundarvilja þínum, því hún er eftirgefan- leg; en hún verður þess lang-minnug og eigi slepp- ir hún af þér hendinni, fyr en þú hefir endurgreitt með fullum vöxtum hvera einasta pening, er þú skuldar henni! Svipa náttúrulögmálsins sjálfs, vofir hvera einasta dag yfir höfðum þeirra manna og kvenna, er sýna henni vanskil. Dagblöðin eru full af angistar-hrópum og glötunar einkennum þess fólks. Sérhver ný kynslóð, flytur með sér herskara af heimskingjum. Og þessir heimskingjar halda að þeir geti vafið náttúrulögunum sjálfum um fingur sér. þeir halda sig vera vitrari sjálfu eilífð- arlögmálinu. peir hrifsa varainginn úr verzlunarbúð náttúrunnar — og hlaupa á brott. peir njóta herfangsins hlæjandi og hælast um kænsku sína. En allir verða þeir síðar meir, dregnir inn að búðarborði náttúrunnar — og borga — borga með tárum, í angist og örvæntingu — borga á sama hátt og heimskingjamir á undan þeim gerðu. Á öllum tímum, er rökkur fáfræðinnar á veröldinni jafn varanlegt og hin eilífa speki. Ungmenni, njóttu ! Et þú og drekk og ver glaður; láttu sál þína krjúpa við borð nautnanna, lestu blóm fegurðarinnar, safnaðu ávöxtum hlát- ursins, en gleymdu aldrei verðinu, varaðu þig á hinni svíksamlegu lánsverzlun — og borgaðu út í hönd! Vinnuveitendur og vinnu- þiggjendur, Niðuurl. Gjörbreyting fjármálanna. Hinum gífurlega kostnaði, sem stríðið hefir • för með sér, hefir verið mætt á þann hátt, þrátt fyrir mótmæli verkamannaflokksins, að einum þriðja parti hefir verið mætt með auknum skött- um, en tveir þriðju partar hafa verið teknir til láns með háum vöxtum, og verður því byrði, sem legst með sínum afarþunga á þjóðina. paS er í sambandi við þá lántöku—við þá byrði—sem til skara verður að skríða í fjármálum ríkisins. Fjölda margir hafa notað sér þessa neyðar- tíma þjóðarinnar, til þess að auðga sjálfa sig, og tíundi partur þjóðarinnar brezku, sem á og ræður yfir níu tíundu pörtum af öllum auði ríkisins, er langt frá. því að vera fátækur. Heldur mun það verða reyndin, þegar öllu er á botninn hvolft, að tekjur þessa tíunda parts þjóðarinnar hafa á öll- um sviðum verzlunarinnar aukist fyrir stríðið. Slíkt ástand í fjármálum þjóðarinnar krefst breytingar. Hvemig eigum vér að borga þjóð- skuld, sem vel getur farið upp í £7,000,000,000 ($3,950,000,000) og líka á sama tíma leggja fram £1,000,000,000 ($4,850,000,000), sem að líkindum verða nauðsynlegar til hinna árlegu þarfa vorra. Og það er út af aðferðinni við að mæta þessum útgjöldum, sem pólitísku flokkana á Bretlandi greinir mest á. Verkamannaflokkurinn krefst þess að sú skatta-aðferð ein verði viðtekin, sem fullnægi þörfum stjóraarinnar, án þess að draga úr, eða hnekkja lífsskilyrðum einnar einustu fjölskyldu eða nokkurs manns, um fram það, sem sæmilegt má kallast og án þess að draga úr framleiðslu eða réttlátri framþróun nokkurs þarflegs fyrirtækis og sérstakt tillit sé tekið til gjaldþols hvers eins, svo að byrðarnar leggist sem allra jafnast á alla gjaldendur — á hvern og einn í fullu samræmi við eigur hans. Vér mótmælum veradartollum, í hversu að- gengilegri mynd, sem þeir kunna að vera fram borair, því þeir eru æfinlega aukin byrði fjöldan- um, til hagsmuna einstökum mönnum. Vér mót- mælum eindregið öllu því skattafyrirkomulagi, sem er valdandi hækkun á matvöru og öðrum lífs- nauðsynjum. Til þess að mæta hinum árlegu útgjöldum vill verkamannaflokkurinn að beinn skattur verði lagður á allar inntektir manna, sem umfram eru lífsnauðsynjar, og til þess að borga af eða minka þjóðskuldina viljum vér að skattur sé lagður á eignir auðmanna, lífs og liðinna. Skattur til árlegra útgjalda, og skattur til afborgunar á þjóðskuldinni verða tafarlaust að takast til athugunar á hinum eina sanna grund- velli og í sínum réttu hlutföllum, svo að hægt verði að jafna niður aðal upphæðinni þannig, að hver og einn beri sinn sanngjama hluta af byrð- inni. Undir þessu fyrirkomulagi yrðu ekki ein- staklingamir skattskyldir, heldur fjölskyldurnar. og á þann hátt er hægt að gjöra greinarmun á þvi, hvort margir eða fáir eru í fjölskyldunni, í sam- bandi við upphæð útsvarsins. pessi aðferð mundi líka breyta hinu ósanngjaraa eignaskattsfyrir- komulagi, sem nú er, og létta hinni þungu og ó- sanngjömu byrði, sem nú hvílir á hinum smærri verzlunar-, handverks- og embættismönnum, með því að hækka lágmark á inntektum manna, sem nú er undanþekið slíkum skatti, en leggja á í staðinn 1 penny á hvert pund sterling af skatt- gildum inntektum þeirra manna, sem minstar haía umfram lífsnauðsynjar og upp í 16—19 shillings á hvert pund af inntektum þeirra mil- jónamæringa, sem mestar hafa árstekjur. pessi aðferð mundi gjöra marga menn og mikið af höf- uðstól skattgilt, sem nú njóta borgaralegra rétt- inda, án þess að taka sanngjaman þátt í skatta- byrði, né bera sinn part af útgjöldum þjóðarinnar. J?að sem nú er upp talið, nægir þó ekki. J?að er óumflýjanleg skylda vor, að létta af þjóðinni að minsta kosti parti af þeirri þungu byrði, sem á hana hefir lagst í sambandi við þetta stríð — og það án tafar. Fé þetta, sem hefði átt að fást saman með því að skattsetja þjóðararðinn, en sem var tekið til láns að mestu leyti, vill verkamanna- flokkurinn endurgreiða, með því að leggja sér- stakan skatt á eignir og eigindóm manna, og á þann hátt að borga, ef ekki alla þjóðskuldina, þá að minsta kosti part af henni, og skal fyrirkomu- lag þess skatts vera hið sama, og skattsins til al- mennra þarfa, sem um er talað hér að framan. Fjórði liður stefnuskrár verkamanna flokks- ins ákveður að framleiðsluarður og arður af starf- rækslu járnbrautanna og annara þjóðeigna, skuli varið til þjóðþrifa, en aldrei framar til þess að auðga einstaklinga. Svo það er til þessarar upp- sprettu og skatta-fyrirkomulags, sem bent er á hér að framan, sem verkamannaflokkurinn á Bretlandi vill að þjóðin leiti f jármagns til alls sem gjöra þarf, en só ekki lengur komin upp á náð auðkýfingsins. pau halda því fram að þjóðin sjálf eigi að annast sín mestu velferðarmál, en eiga þau ekki undir náð þess, sem marga á dollara — annast sína veiku og lasburða bræður, konum- ar sem að því eru komnar að verða mæður, en eiga annaðhvort ilt eða þá ekkert hæli; mennina, sem kringumstæðumar hafa gjört að alnbogaböra- um og hafa farið á mis við alt það, sem gjörir lífið þess virði að það sé lifað; börain, sem enga eiga móður, og þau sem af ræktarleysi hefir verið kastað frá sér út í hringiðu tímans, til þess þar að týna vonum sínum og framtíðar tækifærum. Hann vill frelsa vísindi, fagrar listir og sjálfstæða rannsókn undan valdboði peningamangaranna, þar sem þeim hafi aldrei verið tilhlýðileg virðing sýnd, en þau segir verkamannaflokkurinn að séu frum- tónn allrar framþróunar — að hvorki mannfélags- heildin né heldur einstaklingar hennar geti lifað á einu saman brauði — sé ekki til orðið einvörðungu til þess að safna auði. pað sem þá sérstaklega aðskilur verkamanna- flokkinn á Bretlandi frá hinum pólitísku flokkun- um er, að þjóðararðurinn gangi til sameiginlegrar uppbyggingar þjóðarheildinni, í staðinn fyrir að efla auð einstaklingsins og rétt hans til þess að ná meira valdi srfir auð og framleiðslu landsins, eins og hinir eldri pólitísku flokkar óneitanlega gjöra. Að síðustu er því lýst yfir, að verkamanna- flokkurinn sé hlyntur frjálsu stjóraarfyrrikomu- lagi innan ríkis og utan, að hver þjóðflokkur og hvert ríki eigi rétt á að ráða sínum eigin málum, og mynda sínar eigin framtíðar hugsjónir og þroska þær. THÉ DÖMÍNIÖN BANK SIR EDMUND B. OSLER, W. D. MATTHEWS, President. • Vice-President. i Hagsýni hjálpar til að vinna stríðið. / j Byrjið sparisjóðs reikning og bætið við hann reglulega Notre I)ame Branch—W. >1. IIAMILTON, Manager. Sclkirk Branch—F. J. MANNING, Manager. NORTHERN CROWN BANK HöfuS.tóll löggiltur $6,000,000 HöfuS.tólI greiddur $ 1.431,200 VarasjóSu........ $ 920,202 President ------ Capt. WM. ROBINSON Vlee-President - - JOHN STOVEIj Sir D. C CAMEKON, K.C.M.G. W. R. BAWI.F E. F. HUTCHINGS, A. McTAVISH CAMPBELXi, GEO. FISHER Allskonar bankastörf afgreldd. Vér byrjum relknlnga vlS einstakilnga eBa félög og sanngjarnlr skilmálar velttir. Avlsanlr seldar U1 hvaBa staöar sem er & fslandl. Sérstakur gaumur geflnn sparirJóBainnlögum, sem byrja mé meB 1 dollar. Rentur lagBar vlB é hverjum 6 ménuBum. T* E. TH0RSTEINS80N, RáS.maSur Co WiIIiam Ave. og Sherbrooke St., - Winnipeg, Man. iV<rr#Wé\iT78\i.?éÁifó Til vina Jóns Bjarasonar skóla. Síðan skóla var sagt upp síðastliðið vor, thafa skólanum borist margar gjafir. Eðlilega er upphæðin sem komið hefir frá Nýja fslandi, stærri en frá nokk- urri annari bygð, enda var þar lengur unnið að fjársöfnun og rækilegar farið um hús úr húsi, en nokkurstaðar annarsstaðar. En úr ýmsum áttum hafa gjaf- imar komið, sumum verið safnað en sumt komið án þess um væri beðið. Af litlum efnum hafa sumir gefið skólanum stór gjafir Fyrir drenglyndi og höfðings- skap allra þessara vina þakkar skólinn. En þó margir hafi styrkt skól- ann, eru þeir þó fleiri, sem ekki hafa rétt honum neina hjálpar- hönd. Og þó þyrfti engin Vest- ur-íslendingur að finna til þess að skólinn væri nein byrði, ef allir legðu honum dálítið til á hverju ári. Mikið undur væri þetta auðunnið, ef allir vildu það sem skólinn viH. Einn hinn furðulegasti mis- skilningur viðvíkjandi skólanum er sá, að hann sé eins og einhver “rikisbubbi”, sem ekki þurfi neinnar hjálpar við. Mér er þó næst að halda, að sá skilningur sé til og jafnvel nokkuð rótgró- inn. Eg var á ferð fyrir skemstu og hitti kunningja minn, sem sagði mér frá fasteign, sem fé- lag eitt hafði nýlega gefið mikils- virtri stofnun. Mér varð að orði: “Eg vildi að einhver gæfi skól- anum fasteign”. Eg hafði ekki fyr slept orðinu, en mér var svarað: “Skólanu/m ? Heldurðu að nokkrum detti í hug að hann þurfi á peningum að halda, með alla þá ríkismenn, sem að honum standa og öll þau böm ríkra for- eldra, sem hann sækja?” Já, þarna kom það. Eg hefði þó varla búist við því að svona hug- mynd væri til. Skólinn á ekki einn þumlung af fasteign, nema ef telja skal veðsett lönd, sem liggja alger- lega arðlaus og vafasamt er að nokkum tíma hafist eitt cent upp úr. Hann á ekkert þak jrfir höfði sér. Frá nemendunum getur hann ekki fengið meira en um einn fjórða af útgjöldum sínum árlega. Minningarsjóður- inn hefir að þessu gefið mjög litlar tekjur. Og hinir svo köll- uðu ríku menn meðal vor sýnast ekki að hafa verið ríkari en aðrir síðan styrjöldin hófst. 1 Hvaðan ætti þá skólanum að koma þessar feikna tekjur? J?ær geta ekki komið nema frá vestur-íslenzkum almenningi. J?egar þér Vestur-fslendingar skiljið það að skólinn vill varð- veita hjá æskulýðnum það, sem þeir eiga helgast og bezt I eigu sinni, veit eg að það stendur ekki á gjöfum til Jóns Bjamasonar skóla. Nú vil eg fyrir hvern mun að skólinn safni engum skuldum á þessu ári, að starfsárið endi hjá honum eins og hverjum góðum búmanni með tekjuafgangi. Gjafir, stórar eða smáar verða því vel þegnar frá hverjum sem er. 1 Nokkuð margir í Nýja íslandi lofuðu mér styrk, síðastliðið sum- ar,í viðbót við þá, sem búnir eru að leggja fram fé. Að þessu hefir það ekkert gjört til, þó þeir hafi ekki borgað, enda sagði eg þeim að gjafir þeirra kæmu sér vel á hvaða tíma vetrarins, sem væri. En nú er þörf. Allir gefendur í Nýja fslandi, mega, ef þeim þykir það þægi- legra, koma gjöfum sínum til einhvers af aðstoðarmönnum skólaráðsins, en þeir eru: Helgi Ásbjörasson, Hecla; Hálfdán Sigmundsson, Icelandic River; Bjarni Marteinsson, Hnausa; Jón Skúlason, Geysir; Tryggvi Ingjaldsson, Framnes; Marteinn Jónasson, Víðir; Bjarai Pétursson, Áraes; Jón Pétursson, Gimli; Miss Guðlaug Guttormsson, Húsavík. Vestur-íslenzkur drengskapur styrkir eitt stærsta mál. Winnipeg, 11. marz, Runólfur Marteinsson. Ólíkir bræður. Á öndverðri elleftu öld, réðu fyrir Noregi, þeir bræður Sig- urður Jórsalafari og Eysteinn, voru Jæir synir Magnúsar kon- ungs berfætta, ólafssonar hins kyrra, Noregs konungs, Haralds- sonar, Sigurðssonar hins harð- ráða. Eftir þeim aldarhætti var Sig- urður konungur frægur mjög, af för þeirri, sem hann fór til Jór- sala. En á meðan stýrði Ey- steinn konungur Noregi, með hinum mesta vísdómi og skör- ungskap. Eysteinn var einhver sá allra bezti af öllum þeim kon- ungum, sem Noregi hafa stýrt, og undir eins stórvitur og ást- sæll mjög af þegnum sínum. Sigurður konungur var mjög ólíkur bróður sínum, kaldlyndur í skapi og óþýður. Eftirfarandi •saga er nóg til að lýsa þeim bræðrum, skaplyndi þeirra og lyndiseinkunnum. J?að bar til eitt sinn, er þeir sátu í höll sinni, konungarair, og drukku, sem vandi þeirra var til, að Eysteinn konungur tók til máls og segir: “pað mun öllum sæmd þykja, að við Sigurður bróðir minn hefjum nokkuð til skemtana”. Sigurður svarar: “Vertu svo málugur, sem þú vilt, en láttu mig hafa næði til að þegja fyrir þér”. Eysteinn mælt: “Sá ölsiður hefir jafnan verið að menn taki sér jafnaðarmann og vil eg svo vera láta, og tek eg þig Sigurð- ur mér til jafnaðarmanns, færi eg það til, að við höfum jafnt tignaraafn, jafna eign og jafnt ríki. Engan mun geri eg ættar vorrar eða uppfræðslu”. Sigurður mælti: “Manstu það að eg braut þig á bak aftur og varstu þó vetri eldri.” Eysteinn svarar: “pað man eg ekki síður að eg fékk leikið það, sem var meiri mjúkleikur”. Sigurður mælti: “Manstu hversu fór um sundið, að eg mátti kæfa þig er eg vildi”. Eysteinn svarar: “Ekki svam eg skemra en þú, en kafsyndari varstu, og kunni eg á leggjum, svo engan vissi eg eins vel jcunna, en þú kunnir ekki fremur en naut”. Sigurður mælti: “Höfðing- legri og nytsamlegri sýnist mér mér sú íþrótt að kunna vel við boga, og ætla eg þú notir ekki boga minn, þótt spymtir við með fótum”. Eysteinn svarar: “Ekki skil- ur minna beinskeyti okkar, og miklu kunni eg betur á skíðum en þú og þótti það fyrrum góð íþrótt”. Sigurður svarar: “Mikill mun- ur er það, að sá sem höfðingi skal vera sé mikill á velli og sterkur og vopnfær betur en aðr- ir menn og af slíkum hlutum auðkendur í sveit manna”. Eysteinn mælti: “Ekki er það síður einkunna hlutur, að maður sé fríður sýnum og sé af þeim hlutum auðkendur í mannfjölda, því fríðleikanum sæmir hinn bezti búnaður, svo þegar við skul um tala, er eg miklu sléttorðari en þú, svo kann eg miklu betur til laga. Sigurður mælti,: “Vera kann að þú hafir numið fleiri lögpretti því þá hafði eg annað að starfa, en enginn maður frýr þér slétt- mælis, en hitt mæla margir, að þú sért eigi all fastorður og lítið sé að marka hverju þú heitir, og

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.