Lögberg - 02.09.1920, Side 2
lí.s. 2
LÖGBERG FIMTU ADGuW N
2. SEPTEMBER 1920.
Rœða
flutt að Árborg, Man., 2. ág. 1920.
af Dr. S. E. Björnsson.
Minni lslands.
Heiðraði forseti!
Kæru tilheyrendur!
Einhvers staðar stendur ritað,
að hver sá, er tungu hefir, hann
tali. Mun átt við það, að hver
.tnaður eigi að temja sér um fram
alt heilbrigðar skoðanir. Og að
sjálfsagt sé fyrir hvern mann að
læra að láta í ljós skoðanir sínar
hvar sem vera skal. Ræðuhöld
eru ómótmælanlega fögur list. En
því miður verða þó fáir af fjöld-
anum snjallir ræðumenn, jafnvel
þó æfing sé r.ægileg. Margir líta
svo á, að betra sé að sýna vilja í
verki, en að vera sífelt þiggjandi
orðsins. Óragir leggja þeir þvi
út á djúpið og drepa við árum. En
hversu oft berst ekki báturinn afl-
vana undan straumi? Ræðarinn
er slakur og árarnar vinna á víxl.
pá verður árekstur og skipbrot.
Hann, sem hugðist geta yfirunnið
straumkast náttúrulögmálsins með
harðri hönd, hverfur oss sjónum,
og eftir hann sjást örfáar hrukk-
ur á yfirborðinu. Ekki má skilja
orð mín svo, að mér standi stuggur
af viðleitninni. pó varhugavert
sýnist í fyrsta áliti bg hverjum
einum sjálfsagt að kanna vaðið og
jafnvel reyna til þrautar; því sem
betur fer siglir margur farsæl-
Jega fullum seglum til hins fyrir-
heitna lands, og verða nöfn þeirra
letruð um aldur og æfi á skygðan
skjöld sögunnar. pá er betra far-
ið en heima setið.
Pað er gott að koma á íslenzk
mannamót. Mörg slík mót eigum
vér í endurminningu liðinna ára
heima á ættjörðinni. Vér heyrum
um fram alt “ástkæra, ylhýra]
málið, allri rödd fegra.” Bergmál!
a.-skuáranna teigist fram úr instu!
fylgsnum vorrar eigin sálar. Vér:
lítum andlitin sömu og fyr. Oss
finst jafnvel að veðrið og öll nátt-]
úran sé að minna á íslenzkan vor-
dag með brosandi ii.uiieik æsk-
unnar. Frelsis söngvar fóstur-
jarðarinnar hljóma til vor með
andblæ árroðans yfir loft og lög.
Ómar söngva þeirra, er bergmál-
uðu sál skáldsins, hljóma enn frá
fjöru til fjalls. Slík eru íslenzk
mannamót öllum þeim, er fluzt
hafa heiman af ættjörðinni á
fullorðinsaldri. íslenzk tunga í
sögu og söng er arfurinn dýrmæt-
asti allra þeirra, er vilja kannast
yið sitt eigið þjóðerni. Ljóð skáld-
^anría eru svaladrykkur þyrstum
sálum, er endurnæra og lífga
þann metnað, er Mfsskilyrði er
.hverri þjóð. Eins og vorið blíða
vekur alt líf á jörðinni, þannig
vaknar þjóðarsálin við rödd hróp-
andans til nýs lífs og nýrrar full-
komnunar. Skáldin hafa kent
þjóðinni að elska landið sitt, ætt-
^jarðarkvæðin hafa borið blessun-
arrikan ávöxt í þjóðlífinu. íslend-
ingar geta nú sungið með skáld-
inu Steingrími Thorsteinssyni
heilum huga og hvar í heimi sem
er:
“Svo traust við ísland mig
tengja bönd,
ei trúrri binda son við móður.
Og þó að færi eg um fegurst
lönd
og fagnað yrði mér sem bróður,
mér yrði ,gleðin að eins veitt
til hálfs.
Á ættjörð minni nýt eg fyrst
mín sjálfs.
par elska eg flest.
par uni eg bezt.
við land og fólk og feðra
tungu.”
Munu ekki líkar hugsanir þessum
hreyfast í dag með oss, er hingað
höfum flutt? Er ekki einhver
rödd hið innra hjá oss, er býður
oss að taka undir með skáldinu og
segja: “Á ættjörð minni nýt eg
fyrst mín sjálfs. par elska eg
flest. par uni eg bezt, við land
og fólk og feðratungu.”
Mér finst einmitt þetta vera
laukrétt lýsing á vorum eigin til-
finningum, þegar um ísland er að
ræða. Hve nær sem vér rennum
huganum 'heim, vaknar ætíð ein-
hver söknuður hjá oss. Söknuð-
ur yfir því, að fá ei lengur notið
alls þess, er æskan bauð oss að
njóta í faðmi föðurlandsins. Sökn-
uður yfir því, að fá ei lengur not-
ið fegurðarinnar er í æsku hreif
mest hugann heima. Eg tala til
þeirra um fram alt, sem líkt er á-
statt fyrir og mér. Eg vil minna
yður á það, sem mest heillaði huga
minn í æsku. Skáldin hafa stutt
á þann streng í ljóðum sínum. Við
lestur þeirra ljóða hefir oss hlotn-
ast endurskin frá liðnum árum
ljóss þess, er birtist oss fyr í
hinni íslenzku náttúru. Náttúru-
fegurð sú á varanlegt gildi. Hún
er ekki á hverfanda hveli vafin
hugmynda skrúði skáldanna.
Miklu fremur er hún undirrót afls
þess, er vakið hefir hið andlega líf
þjóðarinnar til meðvitundar um
sjálfstæði sína. Hún hefir drepið
úr dróma frelsisþrá þjóðarinnar,
og kent mönnum að þekkja ljósið
frá myrkrinu. Hún hefir þrengt
sér inn í hjörtu og heila fólksins
og vakið það til meðvitundar um
skyldurnar til sjálfs sán, til þjóð-
ar sinnar og til föðurlandsins.
Pannig hafa raddir vorsins hrifið
þjóðina til starfa. Miðnætursól-
in hefir vakað á verði yfir vonum
landsins öhd fram af öld. Um
hana kveður Einar Benediktsson
eitt af sínum beztu kvæðum, og er
eitt erindið svona:
“Á unnar varir eldveig dreypist,
um axlir hæða skarlat steypist.
Alt logar skyn í himins hyr
og heimsró—sem í Edens lundi.
pað er sem ihafið hvíli á sundi
og himnavagninn standi kyr.
Svo allir ljóssins sveigar sveip-
ist
í sigurs port um kveldsins dyr.”
Svo margt heillar hugann heima,
að engin orð fá því lýst. Myndin
verður þó skýr í huga manns og
þennir manni að bera djúpa lotn.
ing fyrir allri þeirri óviðjafnan-
legu fegurð í ríki náttúrunnar, er
auganu mætir á vegferðinni. Ó-
sjálfrátt fer maður þá að syngja
með skáldinu Steingrími Thorst.
þessi gullfögru vers:
“Sólin ei hverfur né sígur í kaf,
situr á norðurheims straumi.
Vakir í geislum hver vættur
er svaf
vaggar í Ijósálfa glaumi.
Sveimar með himni ið sói.
gilta haf
sem í draumi.
Miðnættið glóir við gullskýja
bönd,
Glymur af himneskum söngum,
Tveir kveða svanir við rósfagra
rönd
raddhljóðum sætum og löngum.
Hljómar um æginn, ómar við
strönd
út með dröngum.”
Vér minnumst íslands í dag.
Vér minnumst landsins “norð-
ur við iheimskaut í svalköld-
um sævi.” Talað hefjr verið um
náttúrufegurð þess einungis, og
um það dularfulla vekjandi afl,
er hún hefir fyrir þjóðina. ís-
land á líka sögu, sem vér ættum
að hugleiða einmitt á þessum
degi. Baráttan, sem þjóðin hefir
átt til varnar sjálfstæði sinni, á
ef til vill hvergi sinn líka í mann-
kynssögunni. Sagan er að sumu
leyti harmssaga undirokaðrar
þjóðar. pið þekkið öll frásögurnar
um fornaldar menningu þjóðar-
innar. pér ihafið efalaust lesið um
“feðurna frægu, og frjálsræðis-
hetjurnar góðu,” er “fluttu aust-
íin um hyldýpis haf” í “sælunnar
reit”, eins og Jónas Hallgrímsson
kvað. ísland átti í fornöld marga
góða mannkosta menn; menn, er
elskuðu frelsið og jafnvel fórnuðu
lífi og eignum fyrir það, ef þörf
þótti. ísland átti þá einnig marga
vitmenn og mentámenn. Skáld
þjóðarinnar sungu fegurst kvæðin
fyrir konunga og höfðingja erlend-
js. Slíkir menn voru ætíð í mikl-
pm metum hafðir, sem ei var að
pndra. Merkasti rithöfundur forn-
aldarinnar ó Norðurlöndum mun
hafa verið Snorri Sturluson, f.
1178. Hann orti Háttatal, um Há-
Þjáðist
dag og nótt
MELTINGAR KVILLAR LÆKN-
AST AF “FRUIT-A-TIVES”
Little Bras D’or, B. C. 1
“Eg þjáðist hræðilega af maga.
kvillum og hægðaleysi svo árum
skifti. Fékk kvalir eftir máltíð-
,ir, uppþemibu, sífeldan höfuðverk
og svaf illa á nóttum. Loks sagði
mér einn kunningi frá Fruit-a-
tives. Eftir viku var hægðatepp-
an lagfærð og bráðlega var eg laus
við kvalir, höfuðverk og alt það
eymdar.ástand sem fylgir maga-
kvillum. Eg hélt áfram með þetta
ágæta ávaxta lyf og er nú heill
heilsu, hraustur og fjörugur.”
Robert Newton.
50c. hylkið, 6 fyrir $2.50, og
reynsluskerfur 25c. Fæst ;hjá öll-
,um lyfsölum eða sent með pósti
beint frá Fruit-a-tives, Limited,
.Ottawa.
HEIMSINS BEZTA
MUNNTÓBAK
COPENHAGEN
Hefir góÖan
keim
Munntóbak sem
endist vel
Hjá öllum tóbakssölum
FOR
RMa^HOME
/ / iw* -- A
EATONS
FÁLLanbWINTER
OGUE
,
• 1 /
prtT'/-'
>.•. »x
/ V ft,
EATON’S
Nýja Verðskrá
er fullkomnari og stærri í þetta sinn en nokkru
sinni áður og fullnægir öllum heimilis og
bænda þörfum. pessi stóra bók inniheldur 600
blaðsíður fullar af EATON^S kjörkaupum, sem
stuðla mjög að því að draga úr dýrtíðinni. par
getur að líta fatnað fyrir karla, konur og börn,
enn fremur húsgögn, akuryrkjuverkfæri, vél-
ar og því um líkt, sem einungis EATON félagið
er fært um að bjóða almenningi. — pessi nýja
verðskrá fæ«t nú með pósti. Ef þér hafið ekki
þegar fengiS eina, er vissara að panta hana
strax. Sendið nafn og Iheimilisfang yðar taf-
arlaust.
iT
J n
y liii
T. EATON C<?
Js • ' ■" ,
WINNIPEG
LIMITED í
CANADA
kon konung og Skúla hertoga,
Gylfaginning og Skáldskaparmál,
sem alt finst í Snorra Eddu/Hann
ritaði einnig Heimskringlu og
Noregskonunga sögur frá upphafi
og til 1177. Bæði þessi rit eru
fræg um öll Norðurlönd. Margt
fleira ritaði hann, er ekki er tími
til að segja frá hér. petta dæmi
dugir til að sýna hversu mikill
andlegur gróður lifði með þjóð-
inni þegar á tólftu öld.
Einmitt þ^ssi maður, Snorri
Sturluson vegna þess að hann
lenti í óvináttu við Hákon Nor-
egskonung, hlaut að láta lífið
fyrir morðvopni innlends manns
er konungur hafði fengið til að
vinna illræðisverkið. pað var Giss
ur porvaldsson er varð þannig
verkfæri í höndum útlends valds,
ekki að eins til að myrða Snorra
heldur og til að selja landið í hend
ur konunginum 1262—4. pannig
hófst harmsaga íslands fyrir
verk þessa Júdasar er hlífðist
ekki við að mýrða einn bezta mann
þjóðarinnar og svíkja land sitt
fyrir vináttu útlends þjóðhöfð-
ingja.
Sjálfstæði landsins var þannig
selt Noregs konungi á hendur.
Lýðveldis tímabilið varð að út-
lendri kúgunarstjórn er þrengdi
að kostum landsins á allar lundir.
Tímabllið sem hér fer á eftir er
hörmungatími fyrir þjóðina. Ofan
á óstjórn bætist hallæri og drep#-
sóttir og þjóðin fær varla rönd við
reist. “íslands óhamingju verð-
ur alt að vopni. Eldur úr iðr-
um þess, ár úr jöklum breiðum
bygðum eyða,” kvað eitt skáldið
um það.
Árið 1387 lenti ísland undir yf-
irráð Dana og mun hagur þjóðar-
innar lítið hafa batnað við þau
skifti.
Pjóðin var eins og Svanur í sár-
um. Henni var varnað flugs því
vængirnir voru lamaðir. Fjall-
konan horfði hljóð á fjörbrot frels
isgyðjunnar, er lá vafin viðjum
erlendrar kúgunar. Skraut þekk-
ingar og manndóms var horfið.
Vanþekking og vesaldómur höfðu
| flutt búferlum inn í landið. poka
og myrkur lagðist i land og ó>hug-
ur féll á þjóðina. Engin vorsól
vermdi lengur hið kulnaða fræ
hinnar fornu hetjulundar.
Aldir liðu með frelsisvonir þjóðar-
innar visnaðar á vetrargaddi
harðstjórnarinnar, hjálparvana
með öllu. Eins og steingjörfing
stúrin og döpur á fótstalli fornr
ar menningar starandi gegnum
auðn og myrkur inn á framtíðar-
landið; inn í frelsis heimkynni
nýrrar menningar og þroska.
En öll él byrta um síðir. Dag-
renning nýs og betra tímabils
hefst í sögu íslands. Fram í
dagsljósið fara að koma menn
er tala hughreystingar orðum til
þjóðarinnar. pessir menn
senda út boðskap sinn í ljóðum og
ritum.landshornanna milli: Nýj
ar hugsjónir frelsis og framfara
tóku að festa rætur í þjóðlífinu.
Fram á sjónarsviðið koma menn
eins og Hallgrímur Pétursson, ein
hver mesti kennimaður þjóðarinn-
ar. Hann orti sterka og bjart-
asta trú á Krist inn í þjóðina. pá
hefst endurreisn hinnar kristnu
kirkju í nýrri og fegurri mynd.
Jónas Hallgrímsson skáldið góða
orti sín fegurstu kvæði um móður-
málið og ættjörðina. Hann reynd
ist beztur talsmaður þeirra hug-
sjóna er Jón Sigurðsson barðist
fyrir í þarfir íslands. Ljóðin
hans voru lesin og lærð og sung-
in af allri þjóðinni er var þyrst
í nýjar hugsjónir og nýjan fróð-
leik. Jónas Hallgrímsson sá
gleggra flestum öðrum ,að:
“tign bvr í tindum
en traust í björgum
fegurð í fjalldölum
en í fossum afl.”
Hann sá fegurð í fífilbrekkum,
smáragrundum og berjalautum
ekki síður en jarðskjálftum og
eldgosum þá er:
“Titraði jökull, æstust eldar,
öskraði djúpt í rótum lands”.
fslands verður ekki svo minst
að Jón Sigurðsson stjórnmála-
maðurinn frægi sé ekki fyrstur og
fremstur talinn í sögu landsins.
Hann var maðurinn sem fyrstur,
ásamt Fjölnismönnum byrjaði að
kynna sér afstöðu íslands gagn-
vart Danmörk. Við rannsóknir
sínar komst hann að þeirri niður-
stöðu að samband þessara landa
stæði á þeim grundvelli sem nefnd
ur var “Gamli sáttmáli”. í þeim
lögum eins og kunnugt er var tek-
ið fram að það skyldi vera einn
konungur, en erfðalög konungs-
ættar, og vist árlegt gjald til
konungs frá fslandi. Að öðru
leyti áttu að vera innlend lög og
landinu átti að stjórna af jarli
skipuðum af konungi.
Jón Sigurðsson hélt því fram
að fyrst ísland var í öndverðu
sambandsland Noregs, háð
Gamla sáttmála, að sömu lög ættu
að gilda um samband íslands við
Danmörk því engin önnur sam-
bandslög hefðu verið búin til fyr
en hin svo kölluðu Stöðulög 1871
og stjórnarskráin 1874.
pað voru einmitt þessi nýju
sambandslög sem gerðu fslend-
ingum erfiðara fyrir með að setja
fram réttarkröfur sínar. pví
þegar Danir sáu að íslendingar,
með Jón Sigurðsson í broddi fylk-
ingar fóru að færa sig upp á
skaftið með að heimta rétt lands-
manna, þá gáfu þeir út þessi
“Stöðulög” og. þrengdu þeim upp
á þjóðina án samþykkis af hálfu
íslands; og við það varð að sitja;
því við ofurefli var að eiga. pað
sýnir bezt við hvað þjóðin hafði
að stríða í viðureign sinrp við
Dani á þeim árum.
Starf Jóns Sigurðssonar í þarf-
ir íslands var mikið og fagurt
eins og viðurkent hefir verið af
öllum þorra þjóðarinnar. Hann
barðist góðri baráttu fyrir öllum
þeim réttarbótum sem unt var að
fá landi og lýð til heilla. Hvern-
ig hann gjörði það verður skráð
um aldir ókomnar í sögu lands-
ins. Hann fékk alþingi reist við
og stofnsett á ný í Reykjavík.
pegar Danir vildu innlima ís-
land í dánska ríkiun 1848, og láta
íslendinga l'úta sömu lögum og
stjórn og Dani, hvað Jón nei við.
Hann hélt því fast fram að ís-
lendingar ætti forn landréttindi
sem ekki væri unt að taka frá þeim
Hann krafðist þess þá að íslend-
ingar fengju innlenda stjórn og
innlenda löggjöf. Gekk hann
svo hart fram í baráttunni að
þjóðin eins og vaknaði af svefni
við rödd hrópandans og fylgdi
honum fúslega að málum. Leiddi
þetta til þess að Danir létu undan
í ibráð og stofnuðu til þjóðfundar
á íslandi 1851.
Á þessum þjóðfundi er byrjun á
frelsisbaráttu íslendinga og nýju
iJmabili í sögu þjóðarinnar, héldu
Danir enn fast fram hinni sömu
innlimunarstefnu og fyr. pá var
það sem Jón Sigurðsson stóð upp
úr sæti sínu og sagði “Eg mótmæil
í nafni konungs og þjóðar þessari
aðferð og áskil þinginu rétt til að
klaga til konungs vors yfir lög-
leysu þeirri sem hér er höfð í
frammi.” Risu þá fundarmenn
flestallir upp og mæltu sem einum
rómi. “Vér mótmælum allir.”
pað eru þessi orð og sú einlæga
hetjulund sem stóð þar á bak við,
sem hafa grafist óafmáanlegu
letri inn í ísilenzkt þjóðlíf og gefið
þjóðinn fegurst eftirdæmi. pví er
minning Jóns Sigurðssonar í
heiðri höfð, að hann kendi þjóð-
inni “Aldíei að víkja”, og að hver
maður ætti að berjast sem dreng-
ur og sannur íslendingur fyrir
ísland.
Baráttan um f járhagsskilnað
íslands og Danmerkur hélt svo á-
fram um 20 ár unz ríkisþing Dana
gaf út Stöðulögin og síðan stjórn-
arskrána eins og áður er getið.
Stjórnarskráin um sérmál ís-
lands var árangurinn af allri
stjórnfrelislbaráttu íslendinga
síðan 1848. Með henni kom lög-
gjafarvaldið og þar með fjárveit-
ingarvaldið að mestu leyti í hend-
ur þjóðarinnar sjálfrar. Átti al-
þingi að hafa það á hendi ásamt
konungi. Framkvæmdarvald í
ýmsum greinum var tekið af ráða-
neytinu danska og lagt í hendur
landshöfðingja. Mikið vantaði
þó til þess að slík réttarbót væri
fullnægjandi. Aðal yfirstjórn
allra sérmála/ landsins var enn
sem fyr í höndum dómsmála ráð-
gjafa, sem var einn af dönsku
ráðgjöfunum. Varð það til þess
að hnekkja ýmsum málum sem al-
þingi vildi koma til leiðar. Sem
dæmi má benda á það að undirlagi
ráðgjafans neitaði konungur 23.
sinnum að staðfesta lög er al-
þingi hafði samþykt. Vakti þetta
meðal annars sterka óánægju
meðal íslendinga. Varð það þó
til þess að þeir fóru að heimta
meiri réttindi. Baráttan fyrir
því aó fá innlendan ráðgjafa var
því hafin, og endaði hun með því
! Framh. á 7. bls.
Leggið peninga yðar
inn á
PROVINCE OF MANITOBA
SAVINGS OFFICE
Með því að skifta við Sparisjóð Fylkisstjórnarinnar
fáið þér 4% í vöxtu—einum þriðja meira en vana-
legt er.
Öll Innlög Ábyrgst af Stiórninni
pagnarskyldu stranglega gætt—enginn annar fær
að vita um viðskifti yðar.
Má Taka Ot Peninga Nær Sem Er
Stjórnin stofnaði þessa Sparisjóði yður til hjálpar.
í þessum stofnunum er Dollarinn ávalt Hundrað
(100) Centa virði.
Leitið upplýsinga hjá fyrstu Sparisjóðs-
deildinni, sem stofnuð var að
872 Main Street, Winnipeg
(Milli Dufferin og Selkirk Sts.)
Opin skrifstofa: frá 10 f.h. til 6 e. h., en
á laugardögum til kl. 9 e. h.
Aðrar skrifstofur að
335 Garry Street
274 Main Street
F.f þér eigið heima utan bæjar, þá skrifið eftir
bæklingnum: “Banking by Mail’”
Utanáskrift:
PROVINCE OF MANITOBA SAVINGS OFFICE
335 Garry St., Winnipeg