Lögberg - 02.09.1920, Qupperneq 4
Bl* 4
IiOUBKKG, riMTUDAGINN
2. SEPTEMBER 1920.
'er
erg
Gefið út hvern Fimtudag af The Col-
iimbia Press, Ltd.,(Cor. William Ave. &
Sherbrook Str., Winnipeg, Man.
TAIiSIMI: GARRY 416 og 417
Jón J. Bíldfell, Editor
(jtanáskrift til blaðsins:
THE C0LUN|BIA PRESS, Ltd., Box 3172. Wnnlpeg.
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, Man.
VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um árift.
nnBiiíiHiiinnwmiiiiiiiiiiinii!iii!iiiBnmiiiinniiiiiffl0iim;fniinHmiunmniiiiiT3
Kirkjan og verkamannamálin.
Því hefir verið haldið fram og það rétti-
lega, að kraftur kirkjunnar og kenningar henn-
ar ei'gi að sýna sig máttugar í að boða mönnum
.Tesám Krist og hann krossfestan, þeim til
sáluhjálpar, — í að fegra og verma svo hin
köldu hjörtu mannanna barna, að þau þrái að
verða aðnjótandi fegurðar þeirrar hinnar al-
fulikomnu, er oss er sýnd í kenningum og hér-
vistariífi frelsara mannanna, og finni kærleiks-
eldinn hans. sem svo elskaði mennina, að hann
dó fyrir þá, verma líf sitt.
En þótt vér trúurn þv-í staðfastlega, að
það sé aðal verkefni kirkjunnar að annast hið
andlega ástand manna, þá viljum vér ekki stað-
hæfa, að hún hafi ekki rétt til að skifta sér af
veraldlegum málum, þótt verksvið hennar hljóti
að sjálfsögðu að vera takmarkað á því svæði.
Vér verðum að skilja og viðufkenna, að
kirkjan á að skifta við fólk, sem er háð verald-
legum málum, og liKernig hún fer að ná til þess
og leiða það að fullkomnunar takmarkinu, verð-
ur að vera lagt í hennar s'kaut að miklu leyti.
Annað atriði er vert að athuga. Kirkjan er
og hefir verið stórt veldi í heiminum, og á að
vera það, en það eru fleiri stofnanir en kirkjan,
sem eru stórveldi, fleiri mál sem krefjast eyra
og athygli manna, en kristindómnrinn, og eitt
þeirra er verkamannamálið.
Það mál er eitt af þeim veraldarmálum, sem
hvað alvarlegast er, elcki einasta í einu iandi.
heldur öllum löndum.
A Spáni hefir verkamannamálið verið erf-
itt viðfangs eins og víðar, verkamenn þar sótt
svo hart fram í byltingaráttina, að til ógæfu
virtist horfa og ríkið gat engu tauti á komið,
■ sein orðið gæti,til þess að stemma stigu fyrir
peim, og þegar svo var komið, skarst. kirkjan í
rí’kinu, kaþólska kirkjan, í leikinn, og hefir á
örstuttum tíma breytt hugsunarhætti fólksins
á Spáni í verkamanna málunum. Byltinga ald-
r.n, sem í þessum málum hafði risið á Spáni,
stefndi mjög í syndiealista áttina.
Kaþóls'ka kirkjan tók sig til og myndaði fé-
iag, er hún nefndi Sindicatos Catolicas, og er
félag það í deildum, undir umsjón prestanna í
hinum ýmsu bvgðarlögum.
1 riti einu merku er skýrt frá þessum fé-
lögum og stefnu þeirra á þessa leið:
“Vinnufólk sem er þekt að því að vera á-
byggilegt og vinnugefið er tekið inn í þessi fé-
lög, og nýtur þar hagmaðar frá byrjun. Nefnd
í þessum félögum sér þeim fvrir atvinnu sem er
sæmilega borguð, og atlæti við störf sín sem
saanir- frjálsum manni. Þegar einhver félags-
manna veikist, sér félagið honum fyrir læknis-
hjálp og meðölum, og ef sá veiki er f jölskyldu
maður, þá sér félagið fjölskyldu hans fyrir líf-
eyri á meðan hann eða hún getur ekki unnið.
Ef einhverjir af félagsmönnum geta ekki
fengið atvinnu, og eru nauðuglega staddir, lán-
ar félagið þeim fé með mjög lágum vöxtum unz
fram úr rætist fyrir þeim.”
Þetta eru nokkrar af skyldum félagsins til
meðlima sinna.
En á meðal s'kylda félagsmanna við félagið
eru:
“Félagsmenn meiga ekki gera verkfall.
Ef um óánægju, eða ósamlyndi er að ræða á
milli verkamanna þeirra er í félagi þessu eru
og vinnuveitenda, þá fara verkamenn með á-
greiningsmál sín til Sindicatos Catolicos, og'
þeir jafna sakirnar við vinnuveitendurnar.
I öllum tilfellum hafa vinnuveitendur ver-
ið fúsir að viðurkenna rétt félagsins í þessum
efnum, því þeir vita að fyrir því vakir ekki að
eins velferð eins flokks manna, heldur og mann-
félags heildarinnar. Framleiðendur þurfa
efcki undir þessu fvrirkomulagi að óttast að iðn-
aðar stofnanir þeirra verði eyðilagðar sökum
verkfalla, þeir þurfa heldur ekki að vera hrædd-
ir við, að þær verði sprengar í loft upp af
a>stum og heiftfullum verkamönnum, né heldur
brendar af þeim.
Þeir hafa trvggingu fyrir því að þetta get-
ur ekki komið fyrir og þeir eru fúsir að gefa
tryggingu fyrir því að breyta sómasamlega við
verkafólk sitt í staðinn.”
Bankar hafa verið stofnaðir í sambandi við
þetta nýja félag, og eru einn liðurinn í starf-
skrá félagsins, þeir eru stofnaðir með því að
seija hlutabréf í þeim bæði til félagsmanna og
annara sem kaupa vilja.
Ákveðið félagsgjald, verða allir félagsmenn
að borga, og er því gjaldi s’kift í tvent, gengur
annar parturinn til þess að standa straum af
félags kostnaðinum, en hinn parturinn er lagð-
ur inn í einn slíkann bánka. og epu sömu vextir
greiddir af þeirri innstæðu fólksins, og hlut-
höfum bankans eru borgaðir.
Um sjö hundruð þúsund hafa þegar inn-
ritast í þetta félag, og er það nærri því 3% af
allri þjóðinni.
Hvað úr þessari hreyfingu kann að verða,
er ekki gott að segja, en merkileg er hún, og
vaxtarmögulegleika hefir hún til góðs eða til
ills.
-----o-----
Heimshættan mesta.
Eftir Sisley Hudlestone.
IV.
-yj.
Hin óstjórnlega auðæfagræðgi og skemt-
ana fýkn, sem eg þegar hefi drepið á, er sönn-
un þess að efnishyggjan hefir vísað hugsjóna-
lífinu á dyr. í mörgum tilfellum er þessari
samfélagsóreiðu þannig varið, að ókleyft má
heita að koma lögum yfir hana. Á öðrum
sviðum koma hin andlegu gjaldþrota einkenni
fram í beinum lagabrotum, eða reglulegri
fyrirlitning á lögum og rétti.
Flest blöð Norðurálfunnar ræða að ein-
hverju leyti um þessi alvörumál, hvert frá sínu
sjónarmiði. Skifta þau venjulega vandræðum
þessum, eða orsök þeirra í tvo flokka, til fyrra
flokksins teljast glæpir, sem framdir eru í
augnabliks æsingu, helzt út af óreglu í ástar-
málum, eða léttúð, en í hinu tilfellinu birtist ó-
sóminn í algerðu virðingarleysi fvrir mannlegu
lífi og einstaklings eignarrétti. Sjálfsagt
mætti leiða rök að því að í báðum tilfelium séu
orsakirnar þær sömu. Það hefir komið svo
mikið los á siðferðis meðvitund fólksins, að
slíks mun eigi áður dæmi í sögu mannkynsins.
Óhætt mun mega fullyrða að þessi ófögnuður
sé bein afleiðing stríðsins.
Hin eðlilegu sambönd karls og konu hafa
truflast. Hjónaskilnuðum fer alt af fjölgandi.
Stríðið sjálft undirbjó jarðveginn í þessu til-
liti. Það var því tæpast við annari uppskeru
að búast, en raun hefir á orðið. Hjónskiln-
uðum á Englandi fjölgar svo gífurlega með
hverjum deginum sem líður, að hugsandi fólld
ofbýður með öllu. En í Paris var ástandið
þannig, að um síð.l. áramót biðu 120,000 hjóna-
skilnaðarmál dóms. Eins og sjá má af þessu,
er heimilið, hornsteinn þjóðfélagsins í stórkost-
legri hættu.
Ymsir þeirra manna, sem bjartsýnastir
oru, balda þ\n fram, að svona ástand geti ekki
varað lengi, fólkið hljóti að vakna til meðvitund-
ar um hættuna innan skamms og finna réttu
áttina aftur.
Eg efast ekki um að svo verði, en það tek-
ur langan, langan tíma. Mismunurinn á tölu
kynjanna í stríðslöndunum, er óeðlilega mikill;
menn á giftingaraldri tilfinnanlega færri en
stúlkur. Eðlishvatirnar eru ávalt samar við
sig, tölumismunur kynjanna dregur ekki úr
þeim, gerir miklu fremur það gagnstæða.
Á Englandi nemur tala kvenna á giftingar-
aldri fullri miljón umfram menn, og á Frakk-
landi, er mismunurinn þó langt um tilfinnan-
legri, þar sem tala slíkra kvenna, kemst eitt-
hvað yfir tvær miljónir. Það þarf enga sál-
arfræðislega rannsókn til að sanna það, að slík-
ur aragrúi hraustra kvenna á bezta aldri, með
enga von um neina fullnæging heilbrigðra eðlis-
hvata, hlýtur að verða óvinveittur hjónaböndum
og heimilislífi. Jafnvel þar sem tölumismun-
ur kynjanna, er sáralítill, verður alt af eitthvað
af konum útundan vegna fjölda síns, sem inn-
an vissra takmarka hafa í för með sér siðferð-
is hættu fyrir þjóðfélagið. Vinnan, ekkert
annað en vinnan, getur verndað þessi olnboga-
börn í heild sinni frá því að villast út á glap-
stigu. Stríðið, mannfallið mikla, hefir brotið
lög á þessum konum, og öll lagabrot hefna sín
í einhverri mynd.
Við rannsókn glæpa, sem sagt er að framd-
ir hafi verið í augnablik æsingu, hefir tekin
verið upp ný aðferð, — það er að segja hlutað-
eigendur, eru reyndir og dæmdir samkvæmt
hinum “óskrifuðu lögum”. Slíkum “lögum var
til skamms tíma sjaldan beitt. Ef maður dró
konu á tálar, þá hlaut hann, eða að minsta kosti
átti að hljóta refsingu, samkvæmt fyrirmælum
hegningarlaganna. En nú hefir heimilunum
verið splundrað, þeir sem valdir voru að verki
sýknaðir, samkvæmt anda þessara “óskrifuðu
laga” og tilverknaðurinn afsakaður með því,
að hann hafi framinn verið í ógáti eða augna-
bliks geðshræringu! Einkum hefir þó þessi
vegur verið farinn, þar sem um var að ræða
hermenn eða hermanna heimili, er sætt höfðu
truflun. Á Frakklandi má svo að orði kveða,
að allir glæpir séu fyrirgefnir, ef framdir eru
í augnablik geshræring, eða ef hægt er að sann-
færa dómstólana um að svo hafi verið. Virð-
ing fyrir lögunum sýnist stöðugt vera að
þverra, virðing fyrir heimilislífinu sýnist fara
þverrandi og virðing fyrir helgi mannlegs lífs
vera orðin næsta takmörkuð.
Frönsku og Þýzku dagblöðin, eru full
hryðjuverka og glæpasýningum, en þau ensku
af sönnum eða ósönnum býltingatilraunum.
Þetta er alt eðlileg afleiðing stríðsins og ó-
kjara þeirra, sem fólk átti við að búa meðan
á því stóð.
Enskur rithöfundur skýrir orsakir núver-
andi glæpa-ástands á þessa leið, og mér finst
hann hafa meir en lítið til síns máls.
1. Menn, sem höfðu tilhneigingar til glæpa
fyrir ófriðinn, en veigruðu sér við morðum,
sökum afleiðinganna, eru nú lausir við þann
ótta, treysta á fyrirgefninguna.
2. Glæpamenn þeir sem dæmdir höfðu ver-
ið, en látnir voru lausir og gengu í herþjónustu,
hafa nú aftur tekið upp sitt fyrra líferni, lítt á-
talið af réttvísinni.
3. Atvinnuleysi og dýrtíð hafa í mörgum
tilfellum hrint, áður heiðvirðum borgurum, út
á glæpabrautina.
4. Hin almenna óánægja allra stétta, með á-
standið eins og það nú er, hefir verið orsök til
óteljandi hermdarverka. —
Fólk veit ef til vill ekki alment af því, en
þó er það engu að síður satt, að ógnir stríðsins
hafa dregið svo mjög úr tauga styrk kynslóðar-
innar, veikt dómgreindina og lamað lífsþrótt-
inn, að það hlýtur að taka feyki langan tíma að
koma jafnvægi á að nýju. Menn vilja helzt
láta reka á reiðanum, afskiftalitlir um sína eig-
in velferð, en afskiftalausir með öllu um hag
nágrannans.
Menn kæra sig kollótta þótt samgöngutæk-
in séu í ólagi, þótt framleiðslan þverri og pen-
ingamarkaðurinn verði bandvitlaus, — hugsa
ekki um annað en svalla í dag þótt sulturinn
vofi yfir á miorgun. En út yfir alt tekur þó
kæruleysið, sem einstaklingar og yfirvöld sýna
munaðarleysingjunum, ungum og gömlum.
Austurrísk og rússnesk börn geta soltið í hel í
þúsundatali, án þess að fjöldinn rumskist eða
hrærist til meðaumkunar. Einstaka mönnum
víðsvegar um heim, gekk þó þetta hörmunga á-
stand til þjarta og reyndu að vekja athygli al-
mennings á röddum munaðarleysingjanna, sem
orðið höfðu stríðógæfunni að bráð. En hverj-
ar urðu undirtektirnar? Stórblöðin risu óð og
uppvæg gegn annari eins óhæfu, töldu forgangs-
mennina seka xnn um “ propaganda; ” eða þeir
hefðu með öðrum orðum gerst talsmenn “óvina-
þjóðanna!”
Viðbjóðslegri fyrirslátt hefi eg aldrei áður
þekt. Menn, sem þannig skrifa, hljóta að vera
gersneyddir öllum mannúðar og réttlætis til-
finningum. Þannig héldu þeir samt áfram að
skrifa, líklegast vegna þess að þeim var ljóst,
hvað helzt féll í kramið, hvað bezt hentaði dýrs-
legasta lesendahópnum — stærsta hópnum, sem
blöðin studdust við!
Hvernig sem maður veltir fyrir sér mál-
unum, verður eigi annað séð en að stríðið, með
öllum fögrum fyrirheitum, er í samband við
það voru sett, hafi stórspilt mannkyninu í heild
sinni.
Þeir sem hæzt tala um dygðimar, sem
sprottið hafi upp úr blóðgum vailnum, eru að
eins brjóstumkennanleg flón.
Það er engu líkara en slökt hafi verið á
vitum vitsins, og Norðurálfu þjóðirnar séu að
hverfa dýpra og lengra inn í myrkraveldið, —
sortann. þar sem dýrseðlið, öfundin, kæruleysið,
ágirndin og efnishyggjan þrífast bezt. Ein-
hvera tíma birtir þó af degi á ný, en hvað nóttin
verður löng er öllum hulið. —
E. P. J.
--------o--------
Gunnar írá Hlíðarenda.
Hlíðarenda hetjan prúða,
hár og þrekinn, snar og beinn,
'gekk á milli glæstra búða,
Gunnar, klæddur tignar skrúða,
fránhýr, bjartur, frjáls og hreinn.
Ferðum ytra frá hamn tjáði,
fleins við gný á sæ og láði
frægri sigur fékk ei neinn.
Þá var bjart um velli víða,
vit og göfgi héldu ráð,
yfir svein og svannann blíða
sólin skein á hólmann fríða,
frelsið krýndi lög og láð,
f jör og hreysti. dáð og dygðir
djúpt um allar landsins bygðir
höfðu traustum tökum náð.
Gunnar frækinn merkra manna
margra þáði verðugt hrós,
hann þar meðal höfðingjanna
hugði víða leið að kanna—
þarna mætti ’ann dýrri drós.
Hann var glæstur hreystimögur,
hún var skrautleg, kæn og fögur,
strax hjá báðum brunnu Ijós.
Lengi bíða ekki eirði ’ann,
einkamálin flutti þíð.
Kosti og lesti hennar heyrði ’ann
Hrúti frá, en ástin reyrði ’ann,
Hallgerður var heitin fríð.
Nú var ekki Njáll í ráðum,
nornir Skuldar vöfðu þráðum
yfir kappans auðnu tíð.
Hallgerður á Hlíðarenda
harðráð þótti, flá og köld,
marga drengi lét hún lenda
?ágt í mold til Heljar senda,
víðtæk urðu vígagjöld.
Ætíð Gunnar góðra vina
geymdi trygð. í sókn við hina,
hlaut um sveitir sæmd og völd.
Ýmsir högg í annars garði
áttu þá með stálin blá,
einn þar sótti, annar varði,
aflið stælti þankinn harði,
Gunnar einatt atgeir brá.
Loks var kappinn lista slvngi
lýðmæringum af á þingi
sekur dæmdur Fróni frá.
Þegar búinn síðsta sinni
svásu bóli reið hann frá.
fegurðin í Fljótshlíðinni
fyr svo aldrei stóð í minni—
aftur sneri hetjan há.
Einn af mörgum var hann veginn,
vífið honum kinnhest sleginn
mundi þegar mest á lá.
Gunnar lifir enn í æðum,
aldrei gleymist listin há.
Fjör og þrek úr fornum glæðum
finst í verki, hug og ræðum,
hvar sem íslenzk hjörtu slá.
Enn þá flýgur ör af boga,
aldir kynda vafurloga
Hlíðarenda hólraans frá.
M. Markússon.
Hveiti! Hveiti!
íslendingar sem hafa hveiti til sölu
œttu að lesa eftirfarandi auglýsing
Members Winnipeg Grain Exchange — Mem'bers Winnipeg
Produce Clearing Association.
LICENSED AND BONDED
By the Board of Grain Commissioners of Canada
ortSi-West CommissiomCoo
Limiled
Telephone A 3297
216 Grain Exchange, Winnipeg, Man.
tslenzkir Bændur !
Um leið og vér ávörpum yður, óskum vér fyrst af öllu, að
þér hafið haft arðsama uppskeruí ár. En vér vonum einnig að
þér hafið lesið og athugað auglýsingar þær og greinar, sem
birzt hafa í íslenzku blöðunum iðuglega þau síðastliðin sex
ár, er vér höfum stundað kornverzlun, og að þær hafi sann-
fært yður um, að það væri yðar eigin hagnaður að láta ís-
lenzka kornverzlunarfélagið, The North-West Commission
Co., Ltd., selja korn yðar.
pað er ekki eins og nýtt og óreynt félag væri að höndla
korn yðar, þegar þér send;ð það til vor. Eftir sex ára starf
sem kornsölumenn fyrir bændur, er það sannfæring vor, að
þekking vor geti orðið yður hagur þetta ár. Eins og það er
hagur fyrir bændur að yrkja land sitt vel, eins er það hagur
vor að selja korn það, sem oss er trúað fyrir, svo vel, að
bændur verði ánægðir. En til þess að geta það, þarf maður
sá er selur, að hafa reynslu og þekkingu á kornverzlun og
hinu breytilega markaðsverði á komvörunni.
í ár, þegar markaðurinn er opinn til hæstbjóðanda, naá
búast við mjög breytilegum og mismunandi prísum, og þegar
svoleiðis er, vill oft tfl, að menn selja þegar sízt skyldi, en
geyma þá selja ætti. peir sem vildu geyma korn sitt um
lengra eða skemmri tíma, ættu að senda til vor það sem þeir
hafa. Vér skrifum hverjum sem sendir oss korn, þegar vér
álítum að selja ætti. Einnig gefum vér daglega prísa og á-
lit vort um markaðinn þeim viðskiftavinum vorum, er þess
æskja. Vér foorgum ríflega fyrir fram borgun, ef æskt er.
Ef vigtar útkoma á vagnhlössum, sem oss eru send, ekki
stendur heima við það, sem í þau hefir verið látið, gjörum
vér það sérstaklega að skyldu vorri að sjá um, að slíkt sé lag-
fært. Einnig gæti það verið peningar í yðar vasa, að vér
skoðum sjálífir kornið í hverju vagnhlassi, sem oss er sent,
svo að rangindi við tegundaflokkun (grading) getur ekki
átt sér stað. petta er nokkuð, sem flest stærri félög ekki
gjöra, því þau hafa mörgu að sinna, láta sér nægja úrskurð
verkamanna sinna. Einnig eiga flest þeirra sin eigin korn-
geymsluhús, svo ,það er þeirra hagnaður, ef flokkunin er
gjörð bóndanum i óhag. pað er ætíð gott að vita, þegar mað-
ur sendir korn, að einhver líti eftir, ef óviljandi skyldi vera
gjörð röng flokkun, og að einhver sjái um, að slíkt sé strax
lagfært. Margir bændur hálda því fram, að það borgi sig
foetur að draga foveiti og aðrar korntegundir í næstu korn-
hlöðu, þar sem vinnulaun eru há eins og í ár. En ef þeir vissu
hvað þeir tapa af vigt við það, mundu þeir hafa aðra skoð-
un. Ef þér hafið fylt járnbrautarvagn og viljið selja inni-
hald hans áður en hann fer á stað, þá símið oss númerið á
vagninum og munum vér selja kornið strax fyrir hæsta verð.
Sendið oss svo “Shipping Bill” af því og munum vér borga
úl á það ef beiðst er eftir og afganginn, þegar vigtar út-
koman fæst.
íslendingar! Vér mælumst til, að þér sendið oss sem
mest af korni yðar í ár. Vér erum þeir einu landar, sem
reka þá atvinnu að selja korn fyrir bændur gegn umboðssölu-
launum. Vér höfum ábyrgð og stjórnarleyfi og gjörum oss
far um að gjöra viðskiftamenn vora ánægða.
Vér þökkum svo þeim, sem að undanförnu hafa skift við
oss, og vonum að þeir, sem enn ekki hafa haft viðskifti við
oss, gefi oss tækifæri til að selja korn þeirra í ár. Vér á-
byrgjumst áreiðanleg viðskifti og gjörum vort ítrasta til að
gjöra bændur ánægða.
Hannes J. Lindal.
Pétur Anderson.
Auður er bygður á sparsemi
Ef þú þarft að vinna Kart fyrir peningum þín-
um, þá láttu paningana vinna Kart fyrir þig.
Sparisjóður vor borgar 3 prct. árlega og er vöxt-
unum bætt við höfuðstólinn tvUvar á ári.
THE DOMINION BANK
NOTRE DAME BRANCH,
SELKIRK BRANCH,
W. H. HAMILTON, Maaagcr.
W. E. GORDON, Manager.
Af sjálfshvöt.
Fremur er það erfitt, að hugsa
sér þann Vestur-íslending, sem
tæki beiðni um að styrkja Jóns
(Bjarnasonar skóla með önuglyndi
pg ókuneisi. Sumum finst, af
einverjum ástæðum, að þeir geti
ekki styrkt hann, en prúðmenni
geta menn verið engu að síður.
Samt má ekki foúást við, að allir
menn séu fyrirmyndir meðal vor
fremur en annara; en vonandi eru
þeir Vestur.íslendingar, sem ill-
yrðum hreyta í garð skólans, svo
fáir, að þeir megi teljast algjör-
lega hverfandi stærð. pví hvað
er Jóns Bjarnasonar skóli annað
en tilraun vestur-ísl. kristni til að
vernda og folessa æskulýð vorn á
hinni nýju þjóðlífsforaut hér
vestra? Getur nokkur heilvita
maður látið sér blandast hug
um, að þetta er eitt hið mesta
ræktarmerki við íslenzkan feðra-
arf, sem VesturJslendingar hafa
nokkurn tíma sýnt? Getur ekki
hver hugsandi maður séð, að ekk-
ert annað, sem Vestur-íslendingar
hafa gjört, sýnir eins glöggan
skilning á framtíð kirkju vorrar
og þjóðar í þessu landi, eins og
einmitt skólafyrirtækið? í raun
og veru er það tæpast hugsanlegt,
að nokkur Vestur-Í&lendingur sé
önugur eða illyrtur í garð svo göf-
ugs málefnis.
Enda fjölga vinirnir óðum.
Ávísanir á
Evrópu.
Vér getum verið yður hálp-
legir með að senda pen.
inga með pósti eða síma til
eftirfylgandi staða:
Bretlandseyja
Frakklands
ítalíu
Belgíu
Serbíu
Grikklands
Danmerkur
Svíaríkis
Noregs
Roumania
eða Svisslands.
THE RDYAL BANK
OF CANADA
Höfst. og varsj. $35,000,000
Allar eignir $558.000,000
Og til allra hinna mörgu vina
skólans vildi eg segja, með orðum-h
skáldsins Steingríms Torsteins-
sonar:
"Og enninu snjóvgu til ljóe-
hæða lyft