Lögberg - 02.09.1920, Page 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. SEPTEMBER 1920.
Bfe. 5
Komið til $4 King Street
og skoðið
Electric Washing Machine
Það borgar sig að leita upplýsinga
City Light & Power
54 King Street
þegar hafa orðið við þessum til-
mælum vorum . En, enn þá vant-
ar margar fleiri, nokkrir sem hafa
sent skýrslur hafa ekki sent
mynd með, eins og við höfum á-
valt ibeðið um. petta tefur fyrir,
og drátturinn er að verða tilfinn-
anleg langur. Okkur langar til
að ibókin verði vönduð, og viljum
við því ibiðja alla er þetta lesa að
styðja að því, að okkur verði send.
ar þessar skýringar tafarlaust.
í fjarveru Mrs. Búason ritara
nefndarinnar, tekur Mrs. Skafta-
son, að 378 Maryland Str. Wpg.,
á móti myndum og æfiágripum til
1. okt. þessa árs. pá fara prent-
ararnir að taka við af okkur. Not-
ið tækifærið áður en það verður
of seint, og sendið myndirnar og
æfiágripin nú þegar.
Nefndin.
Nýlátin er hér í bænum frú
Andrea Andrésdóttir, kona Hann-
esar Jónssonar kaupmanns.
Fyrirætlanir “Dansk-islansk
lægsselskab”.
an-
Til bænda er selja rjóma!
Vér getum nú boðið allra hæzta verð út í hönd fyrir rjóma
og greiðum allan kostnað, er af flutningnum leiðir. Vér leggj-
um oss í framkróka með að gera viðskiftavini vora ánægða;
eigum líka í vissum skilningi hægra með það, þar sem vér fá-
umst einungis við smjörgerð, og þrjátíu ára reynsla vor í þeirri
grein ætti að gefa bændum hvöt til þess að senda rjóma sinn
beint til
THE MANITOBA CREAMERY COMPANY, LIMITED
846 Sherbrooke Street
WINNIPEG
A. McKay, framkvæmdarstjóri
MANITOBA
Meðmæli Bank of Toronto
=!=
og líttu sem örninn mót sólu,
sjá heiðríkt er austrið og húm-
skýjum svift;
þau hurfu fyrir morgunsins
gjólu.”
Bjartsýni og áhugi vinanna hef.
ir áhrif á aðra og vinahópurinn
fer sí-stækkandi. Fleiri hjörtu
verða snortin og meiri fúsleiki til
að vinna málefninu gagn kemur í
Jjós.
En mikilsvert er það, að allur
stuðningur, sem menn veita mál-
efninu er veittur af fúsum og
iglöSum huga.
“Komu þá allir, sem gáfu af
fúsum huga oig með ljúfu geði, og
færðu drotni gjafir til að gjöra af
samfundatjaldið”. “ísraelsmenn
færðu drotni þessar gjafir sjálf-
viljuglega.”
pannig er sagt frá þeim anda,
sem knúði fram gjafir ísraels-
manna til tjaldbúðarinnar, þegar
þeir reistu hana á eyðimerkurför-
inni. petta er svo fagurt dæmi,
að það er öllum til fyrirmyndar.
Gjafir af “fúsum huga”, ‘með
ljúfu geði” og “sjálfviljuglega”
eru ávalt sannar gjafir. pað voru
gjafir ísraelsmanna.
Kona vestur í Leslie, Mrs. S.
Sigurbjörnsson, finnur ótilkvödd
hvöt hjá sér til aS stofna til sam-
komu til arðs fyrir skólann. Hún
safnar saman munum til útsölu,
leggur þar til stóran skerf frá
sjálfri sér og fær fólk til að
skemta. prátt fyrir óskaplega ó-
hagstætt veður, varð ágóði sam-
komunnar liSugir $90. Hún á
þakkir skilið fyrir alt, sem hún
jagði á sig til að koma þessu í
framkvæmd og fólkið fyrir allan
stuðning, sem þaS veitti svo sam-
koman gæti hepnast. Alt var þetta
gjört af “fúsum huga og með ljúfu
geði”, og af þeim anda á allur
styrkur til skólans að vera sprott-
inn.
Á þessu sumri hafa vinir skól-
ans á ýmsum stöðum komiS til mín
með $5 eða $10 eða $25 eða $50 sem
gjafir til m'álefnisins. peir hafa
gjört þaS algjörlega af eigin
hvöt, án þess um væri beðið, og
þegar eg hefi þakkað, hafa sumir
sagt, að þetta væri ekki annað en
sjálfsögS skylda. Sannarlega er
þá af “fúsum huga og með ljúfu
geði” gefið.
Svo bæti eg því við, að allir
þeir, sem verSa vel við, þegar þeir
eru beðnir um styrk, gjöra það
engu að síður af “fúsum huga og
með ljúfu geSi.”
pakkir séu öllum drenglyndum
vinum og stuSningsmönnum.
R. Marteinsson.
paðan útskrifaðist hún með heiðri
og gekk svo þar í miSskóla, fékk
fyrstu ágætis einkunn (1A) við
prófið úr hverjum bekk, og þegar
hún útskrifaðist þaðan, vann hún
$60 verSlaun fyrir latínu og
stærðfræði og þar að auki verð-
launapening landstjórans fyrir á
gætasta framkomu í skólanum.
Næsta ár hóf hún nám viS
Manito'ba háskóla (College deild.
ina). paðan útskrifaðist hún síð-
astliðiS vor eftir hið vanalega
fjögra ára nám, og hefir menta
ferillinn þar verið engu minni sig-
urför en miðskólanámið. tJr
hverjum einasta beldc hefir hún
útskrifast meS 1A einkunn og þar
að auki verðlaunum. Fyrsta árið
fékk hún $60 fyrir latínu og
stærðfræSi, annað árið $40 fyrir
stærðfræði (og ávann sama heið-
ur fyrir þýzku.nám), þriSja árið
$100 fyrir stærðfræði og nú síðast,
er hún útskrifast, gull-medalíu
fyrir stærðfræSi. (Úr þeim beJck
eru aldrei veitt peninga-verð-
laun).
Nú skyldi einhverjum detta í
hug, að hún að eins væri náms-
mær, sem ekki gjörSi annað en
sitja yfir bókum nótt og nýtan
dag. En það er þvert á móti sann-
Jeikanum. Hún er mjög félags-
lynd og tók mikinn þátt í sam-
kvæmislífi háskólans meðan hún
var þar. Hún hefir þegar fengið
allmikla æfingu sem kennari og
hefir henni hepnast það mjög vel.
Jlún er stefnuföst, tápmikil og
stjórnsöm. Hún er hinum beztu
kennar hæfileikum búin.
Hún er nú ráðin til að kenna
stærðfræSina í Jóns Bjarnasonar
skóla.
Skólastjóri verður sá saini og
verið hefir. Og Miss Halldórs-
son, sem öllum er að góðu kunn
fyrir starf hennar í Jóns Bjarna-
sonar skóla síðastliðinn vetur,
verður þar tungumála kennari eins
og í fyrra.
R. Marteinsson.
Mannfagnaður.
Um náttmálabil síðastliðins
sunnudags (29. ágúst), streymdi
úr öllum áttum mikill fjöldi bif-
reiða hlaðnar farþegum, er stað-
næmdust við íbúðarhús séra Páls
Sigurðssonar að Gardar N. Da-
kota. Prestur hafði að heiman
verið um daginn og síst átt gesta
von. Fekk það honum því meir
en lítillar undrunar, er hamn kom
heim um kvöldið að húsi sínu
þéttskipuðu af gestum.
Einhvern veginn höfðu sóknar-
börn séra Páls komist að því að
þenna dag var afmæli hans, og
þau því ráðið með sér í kyrþey að
gera honum óvænta heimsókn.
Eftir að fólk hafði komið sér
fyrir í sætum, stóð upp forseti
Gardar safnaðar, Mr. Benoný
Stefánsson og bað sér hljóðs.
Kvað hann tilgang heimsóknarinn-
ar vera þann að færa séra Páli
innilegustu árnaðaróskir sóknar-
barna hans á afmœlisdaginn, og
njóta með honum sameiginlegrar
ánægjustundar. Sagðist forseta
vel, og í lok ræðu sinnar, afhenti
þann heiðursgestinum bánkaá-
vísun, sem afmælisgjöf frá söfn
uðinum. — Séra Páll þakkaði
heimsóknina og gjöfina með fag-
urri og viðkvæmri ræðu. Kvaðst
hann verða mumdu langminnugur
vináttunnar og hlýhugans, er
heimsóknin bæri vott um.
Auk þessara tveggja, sem
hafa nefndir verið, tóku einnig
til máls Halldór Reykjalín, Gama-
liel porleifsson, S. S. Laxdal, Jón
Jónsson, Guðmundur Davíðsson,
Stefán, Hallgrímsson, Hjálmar A.
Bergmann og Einar P. Jónsson.
Hinir tveir síðastnefndu voru
staddir á Gardar um þessar mund-
ir og boðið að taka þátt í samkom-
unni.
Á milli ræðanna skemtu menn
sér við íslenzka söngva. — Kvenn-
félag safnaðarins reiddi fram
rausnarlegar veitingar og hlýtur
að hafa haft viðbúnað mikinn þvi
óþrotlegar sýndust vistirnar, þótt
hátt væri þar á annað hundrað
manns, til að gera þeim skil.
Séra Páll mýtur almennra vin-
sælda í söfnuði sínum, og kom
það skýrt og ákveðið í ljós í ræð-
unum öllum jafnt. pótt til
heimsóknarinnar væri stofnað af
Gardar söfnuði, þá var þó við-
statt allmargt fólk úr hinum lút-
erska söfnuðinum þar í bygðinni,
er árna vildi afmælisbarninu
heilla. —
Samsætið var hið ánægjuleg-
asta í alla staði, og sleit því eigi
fyr en lamgt var liðið á nótt.
nu
Fyrir rúmu einu ári síðan var
stofnað í Kaumannahöfn félag eitt
með því markmiði, að hagnýta sér
yms náttúruauðæfi á Vestfjörðum.
Hafa menn haft óljósar fregnir
af starfsemi félagsins til þessa, en
hitt hafa menn vitað, að í fyrra-
sumar störfuðu menn að rann-
sóknum vestra fyrir tilstilli félags
Frumkvöðull þessa fyrirtæk
ís er Kristján Torfason kaupmað-
ur á Flateyri, en ýmsir fjármála-
menn danskir hafa slegist í félags
skap með honum og myndað hið
svonefnda “Dansk-islandsk An-
lægsselskap”, sem nú hefir starf-
að í rúmt ár.
Fyrir skömmu hélt félag þetta
aðalfund sinn í Kaupmannahöfn.
Slcýrði þá formaðurinn, Schiöler
víxlari, frá starfsemi félagsins og
fyrirætlunum, og er sú skýrsla
fróðleg mjög. Fer hér á eftir
útdráttur úr henni eftir dönsku
blaði, og hyggjum vér, að mörg.
um muni forvitni á að heyra um
fyrirtælanirnar, sem eru æði stór-
fenglegar.
Fyrst kemur lýsing af Vest-
fjörðum og þar skýrt frá, að hafn-
ir séu þar íslausar árið um í kring
vegna Golfstraumsins. í botni
Arnarfjarðar renna þrjár ár til
sjáfar og er 210 metra hár foss í
einni og 306 metra hár foss í ann-
ari, en í hinni þriðju er 700 metra
fallhæð, en elcki óslitin. Hefir fé-
lagið náð afnotarétti þessara
fossa.
Á Flateyri við önudarfjörð er
höfn góð og djúp. Á Kristján
Torfason jörðina Sólbakka og
mestan hluta kaupstaðarlóðarinn-
ar. Á skaganum milli Súganda-
fjarðar og Arnarfjarðar eru járn-
námar, og hefir félagið einnig
eignast afnotaréinn af þeim.
Pegar félagið var stofnað í
fyrra, náði Kristján Torfason einn
ig einkarétti til saltvinslu úr sjó
við ísland, sem áður hafði verið í
höndum félagsins “Islands Salt og
kemiske Fabrikker”.
Fyrirætlanir félagsins eru: —
1. járnvinsla úr áðurnefndum
námum, 2. virkjun vatnsaflsins,
og 3. notkun rafórkunnar til salt-
vinslu úr sjó. Samhliða þessu er
það markmið félagsins að ná sam-
vinnu við íslendinga um ýms önn-
ur atvinnufyrirtæki.
Félagið var stofnað með 700,000
króna höfuðstól og hefir helm-
ingur þess fjár gengið til að kaupa
áðurnefnd réttindi og eignir.
Til að rannsaka járnnámana,
fékk félagið norskan námafræð-
ing, og ti’l þess að mæla fossana
og gera áætlanir um virkjun þeirra
Hoth vatnsvirkja- -verkfrœðing.
Enn fremur kom hingað til íslands
í fyrra sumar Schou prófessor til
þess að skoða stöðvarnar. Er
hann í stjórn félagsins.
Eftir þeim rannsóknum, sem
farið hafa fram, er það upplýst að
járnmálmurinn (Ibrúnjárnsstenn)
nær í gegnum allan skagann milli
Önundarfjarðar og Súgandafjarð-
ar. Er járnlagið 25—40 centi-
metra þykt í láréttu leirlagi í þús-
und feta hæð í fjallinu. Er talið,
að þarna séu 20—30 miljón smá-
lestir af járni. Sjö sýnishorn
voru tekin af járninu og rannsök-
uð. Reyndust þau hafa inni að
halda 50—74% af járnoxyd eða
55% af hreinu járni.
Enn fremur hefir fundist
íremst í nesinu lag af postulíns-
leir, sem Holmboe verkfræðingur
hefir mikla trú á að megi nota. Er
í honum 33% af aluminumoxyd,
og má nota hann bæði í eldfastan
leir og til aluminiumvinslu.
Hafa þeir sem starfað hafa að
rannsóknunm fryir félagið hér á
landi, mælt með því, að komið
verði hér á fót reynsluverksmiðju
eigi stórri og séu þar reynd efni
þau, er fundist hafa. Auk þess
gem járnið hefir verið reynt í efna
rannsóknastofum, var 5 smálesta
sýnishorn sent til verksmiðju í
Arboga í Svíþjóð, og prófaði hún
járnertsinn í stórum stíl og reynd-
ist hann mjög vel.
Skýrslur Houth verkfræðings
sýna, að fossarnir eru sérlega hag
anlegir til virkjunar. Er hægt
að sameina þá alla í eina aflstöð
við bæinn Borg í ‘Arnarf jarðar.
botni. Er í ráði að leiða Dynj-
anda á sunnan að og Hofsá norð-
an að eftir pípum í safnþró ofan-
vert við Mjólkurárfoss, og verður
þá hægt að fá þar 310 metra fall-
hæð á öllu vatninu. Er hægt að
safna vatnsforða til renslisjöfn-
unar i Krókavatni svokölluðu og
tekur það 25 miljón rúmmetra af
vatni. En renslið í ám þessum er
mun jafnara en gerist i öðrum
löndum, og þarf því minni jöfnun
en annarstaðar.
Gert er ráð fyrir, áð vatnsaflið
verði 7.65 rúmmetrar á sekúndu
5 vatnsminstu mánuði ársins og
og 12.70 rúmmetrar í sjö vatns-
meiri mánuðina. Jafngildir það
30.800 og 51.000 hestöflum óbundn
um, eða 35.000 HA á túrbínuásana
og 33.000 rafmagnshestorkum.
Frá safnþrónni fyrir ofan foss-
inn í Mjólká verður vatnið leitt
eftir 920 metra löngum pípum,
sem eru 105 metrar í þvermál.
Úr Mjólkárfossunum er hægt
að fá 14.200 HA úr Dynjandaá
með Svíná 14.300 og úr Hofsá
6.700 hestorkur þegar hann er
kominn til önundarfjarðar.
Gert er ráð fyrir, að virkja fyrst
12.400HA, og er talið að sá kraft-
ur muni kosta 4—5 miljónir króna
kominn til önundarfíar^ar-
Eins og áður er sagt, er fyrst
og fremst haft í hyggju að nota
vatnsaflið til saltvinslu, samkv.
einkaleyfinu, sem félagið hefir,
en þar að auki á að nota kraftinn
til vinslu og bræðslu járnertsins.
Vegna peningaleysisins sem nú er
sá félagið sér ekki fært að byrja
eins fljótt og það víldi á járn-
vinslu og hefir það þvi verið í
samningum við útlent félag um að
það tæki að sér að starfrækja nám
urnar fyrstu árin, gegn ákveðnu
gjaldi á hverja smálest, sem fram-
leidd væri.
Kraft þann, sem félagið kann
að hafa aflögum frá saltvinslunni
og járniðnaðinum, hugsar það sér
að nota til að vinna áburð úr loft-
inu og selja nálægum sveitum til
ljósa og annarar notkunar. Gerir
félagið ráð fyrir, að bjóða hlutað-
eigandi héröðum til kaups eitthvað
af hlutabréfum í fyrirtækinu og
yfirleitt að hafa samvinnu við
landsmenn um alt það, sem við
verður komið.
Er talið að fyrirætlanir félags-
ins séu nú svo vel undir búnar,
að hægt sé að byrja nú þegar á
framkvæmdum. Að það hefir
ekki þegar verið gert kemur af þvi,
að peningamarkaðurinn er svo
hvikull nú, að það hefir þótt of
viðurhlutamikið að ráðast í fyrir-
tækið, þangað til fjárhagsmálin
færu að komast í betra horf.
pannig hermir hið danska blað
frá skýrslu félagsins og reynir nú
á hvort lendir við orðin tóm eða
‘hvort framkvæmt verður bráðlega
eitthvað af hinum stórhuga áætl-
unum þessa félags.
Eg brúka
ætíð
TME CANADIAN SAIT CO. UMITEO
mjög ódýr eftir því sem nú ger-
ist, kostar að eins kr. 3,50.
“Mannsiðir”, hin nýja bók Jóns
Jacobson, sem áður hefir verið
getið, er nú komin út í vandaðri
og smekklegri útgáfu. Eru þar
ýmsar réglur fyrir hegðun manna
og framkomu á samkomum, opin-
berum stöðum og í heimahúsum
)g um leið vikið að ýmsum ósiðum
sem nú tíðkast. Ber þar margt
skrítið og skemtilegt á göma, enda
er bókin fjörlega rituð. Verður
hennar nánar getið síðar.
Einar Kvaran. Hann dvelur nú
í Danmörku. Kom hann um dag-
inn til Stege, og getur “Möens
Tidende” þar komu hans. Segir
þar m. a. að Einar hafi skrifað
nokikrar bækur, “einkum á ensku
og frönsku” (“væsentligst paa
Engelsk og Fransk”)!
Nýtt met í hæðarflugi setti
Frank Frederickson á sunnudag-
inn var. Flaug hann 11,800 fet
loft upp og var alls eina klukku-
stund og þrjár mínútur í ferðinni.
Fór hann fyrst upp að Esju og síð-
an til Hafnarfjarðar og var að
smástíga á leiðinni og miðaði hon-
um ágætlega upp á við þangað til
komið var í 10 þúsund feta hæð,
en þá miðaði vélinni ekki eins vel
upp og áður. Hitamæiir var eng-
inn með í ferðinni, en eftir ágisk-
un flugmannsins mun hafa verið
8 stiga frost efst uppi.
“Drengurinn” eftir Gunnar Gunn-
arsson er nýkominn út i íslenzkri
þýðingu eftir porstein Gíslason, 8 stiga frost efst uppi. Útsýni
og hafði hún áður birst í Lögréttu.1 var fremur gott, en þó hvarf
Mörgum finst þetta bezta saga Reykjavík sjónum tvisvar sinnum
G. G. og margt er líka sérkennilegt fyrir skýi. Farþegi í förinni
í henni og vel skrifað, lýsing á! var Friðþjófur Thorsteinsson.
æfiferli og sálarlífi manns, sem Hafa menn aldrei orðið “háfleyg-
heldur áfram að vera barn í viss- j ari” hér á landi, en heimsmetið er
um skilningi alla æfi. Bókin er nærri þrisvar sinnum hærra.
Nýr kennari
við Jóns Bjarnasonar skóla.
Miss. May Helga Anderson, sem
er ráðin kennari við Jóns Bjarna-
sonar skóla í stærðfræði og nátt-
úruvísindum, er að vísu kornung,
en á þó að baki sér einn hinn
glæsilegasta mentaferil, sem ís-
lendingum í þessari heimsálfu
hefir enn hlotnast. Er því ástæða
til að skýra nokkuð frá henni.
Hún er fædd og uppalin í Sel-
kirk-bæ í þessu fylki og er 20 ára
að aldri. Hún er dóttir Sigurðar
heitins Andersons, sem dáinn er
fyrir allmörgum árum, ættaður úr
Fljótsdalshéraði á Islandi, og
konu hans Bjargar, dóttur ólafs
og Margrétar Nordals í Selkirk.
Miss Anderson ólst upp í Sel-
kirk og gekk þar í Barnaskóla.
SKOFATNADAR-TIDINDI
600 P0R AF
KVENSK0M
Frá Islandi.
Um Minningarrit íslenzkra
hermanna vestan hafs.
Hvernig gengur með út-komu
þessa rits? Munu margir spyrja
og er það ósk okkar að greiða úr
þeirri spurningu eftir beztu föng-
um, með eftirfylgjandi línum:
Fyrir nærfelt tveim árum siðan
tók Jón Sigurðssonar félagið það
að sér að sjá um útgáfu þess og
var það af þeim ástæðum.
1. að við áttum betri skýrslur
yfir nöfn ísl. hermannanna, en
nokkurt annað félag ( frá því er
við vorum að senda jóla kassana).
2. af því að við höfðum svo
miklum vinsældum að fagna að
við vissum að okkur mundi verða
vel til að fá okkar ritfærustu
menn til að skrifa ritgjörðir fyrir
þetta fyrirhugaða rit.
Og í þriðja lagi fanst félaginu,
það vera helg skylda þess að gera
alt til þess að koma þessari bóka-
útgáfu í framkvæmd — alt sem
hjálpaði til þess að geyma minn-
ingu drengjanna okkar, sem
bezt, var okkur skylt og Ijúft að
vinna.
Alt gekk okkur að óskum nema
með að fá skýrslur (æfiágrip her-
mannanna). práfaldlega höfum
við beðið um þær skýrslur í blöð-
unum, og margir af vinum okkar
út.um landsbygðirnar, hafa gert
sér mikla fyrirhöfn að útvega þær.
Fyrir það er félagið þeim innilega
þakklátt, og ölluim þeim sem nú
Á Suðurlandi (hafa tún brugð-
ist mjög víéa og orðið miklu lak-
ari en á horfðist í vor. Nýting á
töðunni mun aftur á móti hafa
orðið góð hjá öllum þeim, sem
snemma byrjuðu að slá, því þeir
munu hafa hirt undan um síðustu
helgi.
porskafli er nú orðinn allgóður
á Norðurlandi, einkum Eyjafirði.
Fá bátar í róðri frá 3—5000 pund
og sækja aflann stutt. Síld er enn
engin gengin inn á fjörðinn.
1 klukkustund og 40 mínútur
var Jónatan porsteinsson austan
frá ölfusárbrú og hingað til
Reykjavíkur kvöldið sem hús hans
brann. Vita menn ekki til, að sú
leið hafi verið farin á svo stuttum
tírna.
Söng sunnan frá Englandi
heyrðu loftskeytamennirnir á Mel-
stöðinni nýlega. Mikil gerast
verkin mannanna!
Lík Pálma Pálssonar yfirkenn-
ara kom hingað með Gullfossi í
síðustu ferð. Fór jarðarförin
fram í dag að viðstöddu fjölmenni.
Kuldatíð var svo mikil á Norð-
urlandi síðari hluta síðustu viku,
að í Laxárdal í Skagafirði snjóaði
alt ofan að bæ einn daginn. Gras-
spretta kvað þó vera allgóð, en ó-
þurkasamt um nokkurt skeið fyr-
irfarandi.
PUMPS
0XF0RD
Vanaverð $8 til $ 1 5 útsöluverð
$4.95
Þar ámeðal Colonial Ties, brúnir og svartir Pumps.ogOxford
Colonial Pumps. Búnir til hjá Blatchford & Smarden
Vér erum að hætta.
Alt verður að seljast
KILGOUR’S
AÐEINS
KVENSKÓR
289 Portage Ave.
Tals. A3993