Lögberg - 20.01.1921, Blaðsíða 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN, 20. JANÚAR 1921
Bl$. 4
Gefið út hvern Fimtudag af The Col-
umbia Press, Ltd.,Cor. William Ave. &
Sherbrook Str., Winnipeg, Man.
Xalsixnart N-íi327*oá N-6328
Jón J. Bíldfell, Editor
Otanáakrift til blaðftins:
THE COtUMBIA PRESS, Ltd., Bo* 3U2, Winnipeg. M»n-
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, M«"-
The '•Lögberg” is printed and published by The |
Columbia Press, Limtted, in the Columbia Block.
853 to 857 Sherbrooke Street, Winnipeg, Manitoba.
lil!iimi|l>PIIII!lllllia'li'lll!llllilllii;illMIIIIIIHIIHii:!llllll!'Wt
Islandica.
Eins og vér -gátum um með í'áeinum línum
í síðasta blaði, þá höfum vér meðtekið XIII.
árg. íslandica frá prófessor Halldóri Hermanns-
syni, Oornell, Ithaca, New York, hið árlega rit
sem hann semur og gefið er út í sam'bandi við
ísland eða íslenzkar bókmentir af Fiske deild
þess háskóla.
Það er ekki meining vor að fara að rita
dóm um þetta sérsta'ka hefti af Islandiea, en
við athugun innihalds þess, sem er saga og skýr-
ingar á Eddum þeirra Snorra Sturlusonar og
Sæmundar hins fróða Sigfússonar, þessum
einkennilegu og afarmerkilegu ritum íslendinga,
á mál ýmsra méntaþjóða heimsins, kemur fram
í huga vorum, eins og í skuggsjá afstaða vor
Vestur-lslendinga — við það fegursta og not-
hæfasta, sem þessi litla þjóð á af mannviti og
reynslu og sem niðjar þeirra hafa tekið í arf
ár fram af ári, og einn mannsaldurinn eftir
annan, til þess að ávaxta, sér og öllum þeim,
sem áhrif þeirra ná til.
Vér íslendingar höfum löngum heyrt því
haldið fram og það af mönnum sem vissu hvað
þeir voru að segja og höfðu enga tilhneigingu
til að draga menn á tálar, heldur einmitt hið
gagnstæða, að vér ættum óuppausanlegan and-
legan auð í Eddunum. — Auð sem að vísu verð-
ur ekki talinn í dollurum og oentum, né í krón-
um og aurum, heldur mannviti, og manna
revnslu í svo ríkum mæli, að hvergi á Norður-
liindum sé heilbrigðara vit né traustari revnslu
að finna.
Bin þetta hvorttveggja er aðal skilyrði fyrir
þróttmiklu og nothæfu lífi manna á öllum tím-
um, og í öllum löndum.
Reynsla liðins tíma, er uppistaðan í lífi
mannanna sem á eftir konia, en mannvitið er
fy rifvafið.
Fólk, sem lætur berast með straumnum og
stjórnast af hálfmeltum hugsunum nútímans,
cr eins og seglfestulaust skip í ólgnsjó, eða rek-
ald út á reginhafi.
“Varðar mezt til allra orða,
Undirstaðan rétt, sé fundin.”
segir s'káldið. Undirstöðu undir sitt eigið líf
leggur enginn rnaður, hún er bvgð fyrir mann.
Vort er að byggja ofan á, og auka við, það
er lífsverk vort mannanna, og hvernig að oss
tekst það — hvort það verk verður lítið eða
mikið, fag-urt eða ljótt, gott eða ilt, er undir því
komið, hve vel vér þefckjum grundvöllinn sem
vér verðum að byggja á og sannar þarfir sam-
tíðar vorrar.
Vér höfum oftar en einu sinni heyrt menn
bér vestra, og það skýra menn sem hér hafa
fengið talsvert mikla mentun, spyrja að því:
livað það eiginlega væri sem vér íslendingar
ættum, er aðrar þjóðir sem til þessa lands hefðu
komið ættu ekki, sem væri þess virði að leggja
mikið í sölurnar fyrir, til þess að halda við.
Segjum að við íslendingar ættum ekkert
sem aðrar þjóðir ekki eiga, því þær eiga svo og
svo mikið af lífsreynslu, og allar eiga þær meira
og m-inna af mannviti.
Þá sannar það ekki að sá sálargróður, sem
þeir eiga, sé oss íslendingum ábyggilegri held-
ur en sálargróður vorrar eigin þjóðar. — Sann-
ar ekki að blíðvindi Italíu sé oss hollara, en sval-
\ indi Islands. Sannar efcki, að menning hinna
sólríku suðurlanda sé oss hollari né haldbetri
en sú sem þroskast hefir við frost og funa,
“Norður við heimskaut í svalköldum sævi” og
sem vér eruin partur af og er partur af oss.
Eins og vér höfurn áður sagt er ókleyft
fyrir oss Vestur-fslendinga að sigla lífssjó vorn
án þess að hafa kjölfestu.
Vér erum ekki með því sem nú er sagt, að
reyna að leggja ósanngjörn eða lamandi höft
á þroska ungu kynslóðarinnar, sem er að renna
inn í þetta þjóðfélag, sem hér er að myndast.
Vér viljum ekki leggja einn einast stein í
framfaragötu, nokkurs manns, né heldur nokk-
urrar konu. En það sker oss í hjartað að sjá
rnenn og konur vor á meðal vera að henda út
þeirri einu kjölfestu sem þau hafa, og verða svo
að gierbrotum í haug þessa mannfélags, í stað-
inn fyrir að halda sér sem fastast við það sem
það á bezt, í sér sjálfu, og reyna að verða að
perlum.
Oss er engin launung á, þeirri bjargföstu
trú vorri, að það verði Vestur-llendingum ó-
segjanlegt tap ef þeir hætta að leggja rækt við
lífsreynslu og mannvit feðra sinna — ef þeir
slitna, eða verða slitnir af sinni rót, áður en
þeir hafa náð haldgóðri festu í nýjum jarðveg.
Vér töluðum hér að framan um menn sem
efuðust um, hvort vér íslendingar ættum nokkuð
það í hinum menningarlega arfi vomm, er væri
þess vert, að nokkuð verulegt væri á sig lagt til
þess að þroska í lífi voru, og í lífi þjóðar þeirr-
ar, sem hér er í myndun.
Oss cr nær að lialda að þcir menn er svo
tala hafi aldrei fundið kjarna þann og menning-
arafl, sem lífsreynsla íslendinga felur í sér,
c-ða lífsspeki þá er rit þeirra geyma til eftir-
breytni og leiðbeiningar.
Er það ekki nokkuð undarlegt að nálega
allir glöggsæustu mentamenn þjóðanna sem
lífsreynslu og hugsanalífi þjóðar vorrar kynn-
ast, þykjast finna þar óuppausanlega gullnámu,
ef efcki víAú um neitt að ræða?
1 formálanum fyrir þessu hefti Islandica,
tekur höfundurinn prófessor Halldór Her-
mannsson það fram, að nálega allar bókmentir
sem heimurinn á um norsku goðafræðina, séu
bygðar á Eddunuin.
Vér höfðum öfurlitla hugmynd um í hvaða
metum mentamenn heimsins höfðu þessi rit Is-
iendinga, en satt að segja vissum vér ekki að
búið værí að þýða þau að meiru og minna leyti
á nálega öll mál mentaþjóða heimsins, fyr en
vér lásum þetta hefti af Islandiea, er sýnir að
Danir, Frakkar, Þjóðverjar, Spánverjar, Eng-
lendingar, Ameríkumenn og Svíar hafa allir
fengið þær til sín, á sitt mál, heilar eða parta
úr þeim—hafa allar ausið úr þeim nægtabrunni
íslenzks mannvits sér til þroskunar og lífsgeng-
is, — en vér Vestur-islendingar erum að basla
\ ið að gleyma og týna.----
--------o--------
Nýjar bœkur.
1 ------------T
sig guði með því að gleðjast. Hinn með því að
sökkva sér niður í alvöru. Annar tilbiður guð
i verkum hans. Hinn tilbiður hann í sambandi
við verk, sem mennirnir hafa bygt honum til
dýrðar.” Prófessorinn lýkur máli sínu þann-
ig í sögulokin: ‘ ‘ Þið getið því verið rólegir
þess vegna, að það hefir hvorugur yfckar verið
á villigötum, hvorugur ykkar dýrkað falsguði.
Þið hafið að eins opinberað auð lífsins, sinn með
iiverjum hætti. Og þið hafið baðir fundið til
guðs í sál vkkar í kvöld. En að finna til guðs
— Það er takmarkið.”
Sagan er stutt, on hún er ljómandi prédikun
frá upphafi til enda. Sálarlýsingarnar eru
skýrar og skarplega dregnar, og hvergi neitt
bláþráðalbjástur á hugsuninni.
Lengsta sagan í bókinni er ‘Sól og Stjarna’
og að ýmsu leyti kannske sú veigamesta, Að
minsta kosti eru í henni beztu sprettimir, sem
fcg held að höf. hafi enn náð úr skáldfáki sín-
um. Hún er brennandi, átakanleg ástarsaga.
líarm-saga í aðra röndina, eins og flestar sannar
sögur eru. Hörður, karlhetjan í sögunni, ung-
ur málari, og Asa Ivondadottir, hittast í fyrsta
skifti hjá prestinum, þegar þau ganga til spurn-
ijiga og eru fermd saman Þeim fellur hvort
íiimað undir eins \lel í geð; vinátta Ástu þrosk-
ast smátt og smátt í rótstyrka, ómótstæðilega ást.
Hörður verður snortinn af göfgi stúlkunnar og
yndisleik, en veit aldrei með vissu hvort hann
verulega elski hana eða ekki. Þó líður hon-
um alt af bezt í saimfélagi við Ástu og nýtur
þar sönnustu ánægjunnar, að því er hann frek-
ast veit.
Átj'án ára að aldri, mætir Hörður Hjördísi,
íulltíða dóttur héraðslæknisins, á dansleik.
Ása var þar líka. Iljördís var hverri konu
fegurri og tígulegri í framgöngu. Hörður ber
þær ósjálfrátt saman í huganum: “Asa bara 17
ára gömul, óþroskuð stúlka, len. hin þroskuð
kona, fædd til þess að láta dáðst að sér og til-
biðja sig.
“Eg vissi það ekki þá, að hún var líka fædd
lil þess að elska og dýrka aðra.”
Drottinvald fullþroska konunnar verð-
ur þýngra á metunum, Hjördís sigrar. — Hjóna-
band þeirra Harðar og Hjördísar verður ómæl-
anlegt hamingju haf, en Ása siglir fleyi vona
sinna til skipbrots. —
Niðurlagssetningar sögunnar eru þannig:
“Og þegar eg er kominn heim, biður hún
(Hjördís) mig að ganga um húsið, því fótatak
mitt ómi eins og heillandi söngur í sál sinni.
I>iegar eg sé ebki heima, þá sé þar hljótt og
tómt. “Mér líður aldrei vel, nema eg heyri
eða sjái til þín, “hvíslar hún stunducm í eyra
mér.
En Ása?
Hún er nú gift kona.
Eg veit að hún er skipbrotsmaður. Heim-
ili liennar er sker, sem henni skolaði upp á. —
Eii hver getur sakað öldurnar um
verk þeirra? Og hver getur hrópað hefnd yf-
jr tilfinningar mannanna? Þær bera einn í
höfn, annan á blindsker. Þær ljúka upp Para-
dís hamingjunnar fyrir þessum, loka henni fyr
ir öðrum. — Ása er gift kona,— sem engan
(lskar, af því að hjarta hennar brann í fyrsta
eldinum, sem snerti það.” —
Mér 'þykir vænt um ógróna jörð, — alt, sem
á gróandann fram undan sér, og jafnvel nafns-
ins vegna þótti mér vænt um þessar sögur
.Tóns Björnssionar, áður en eg fékk ráðrúm tii
að liesa þær. Sögurnar hafa allar ákveðinn
boðskap að flytja, einhver hugðarmál, sem alla
varðar. — Sumir rithöfundar leggja hart á sig
við að þóknast fjöldanum, reyna að unga út
einhverju, sem falli í kramið. — Jón Bjömsson
er haf inn yfir slík óyndisúrræði, hann ber djúpa
virðingu fyrir viðfangsefnum sínum, eins og
sannfa'ringarhitinn, er söguraar einkennir,
glöggvast leiðir í ljós, —
Ógróin jörð, fæst hjá Hjálmari bóksala
(iíislasyni, 506 Newton Ave., Elmwood, ’VYinni-
peg, og kostar í bandi $3,75, en óbundin $2,75.
E. P. J.
---------o--------
í ANNARA SPOR.
eftir
Edgar A. Guest.
Eg nam af öðrum aðferð þá, >
hve örðugleika sigra má.
Því aðrir báru á undan mér
það ok, er nú eg sjálfur ber.
í mínum sporum margur grét,—
frá marki þó ei vék um fet.
Nú kallar á mig innri þörf
að inna’ af hendi isömu störf.
Jón Björnsson: ógróin jörð, 242 bls. 8 bl.
brot. Útgefandi Þorsteinn Gíslason. Reykja-
vík. 1920.
Sögur þessar eru sjö talsins og beita: Þór-
ólfur, Leikföngin, Forboðnir ávextir, Hún kem-
ur seinna, Guðsdýrkun, Sól og Stjarna og Sökn-
uður. —
Ef einhver slæi fram þeirri staðhæfing að
Jslendingar væru að eins Ijóðlistarþjóð, þá færi
sá hvergi nærri með rétt mál. Þótt þjóðin sé
ljóðelsk og tungan í sjálfu sér ljóð, þá er ís-
lenzkau samt svo auðug og margbreytileg að
Iivaða form skáldsfcapar sem er, lætur henni
álíka vel. Jafn sólgnir í sögur og íslendingar
hafa á öllum öldum verið, gat tæpast hjá því
farið, að spámenn færu smátt og smátt að rísa
upp með þjóðinni, er hneigðust að skáldsagna-
gerð. Þeir eru líka hreint ekki orðnir svo fá-
ir, skáldsagnahöfundamir, sem auðgað hafa
bókmentir þjóðar vorrar síðustu áratugina. Má
þar til nefna, auk þeirra frömuðanna, Jóns
’l’horoildsen, Gests Pálssonar og Einars Hjör-
leifssonar Kvaran, þá séra Jónas Jónasson,
Guðmund Magnússon (Jón Trausta), Þorgils
Gjallanda, Sigurð Heiðdal, Halldór frá Laxa-
nesi, Bened. Þ. Gröndal, Axel Thorsteinsson og
síðast en ekki sízt Jón Björnsison, höfund að
sögum þeim, er hér um ræðir.
Persónulega er mér ókunnugt með öllu um
höfundinn, að öðru leyti en því, að hann er
Svarfdælingur að ætt, líklegast rétt um þrítugt
og stundar blaðamensku í Reykjavík. Fyrir
nokkruin árum las eg eftir hann eitthvað af
laglegum kvæðum; eitt neglulega skáldlegt og
vel ort, en það nefndist “Heljaydalsheiði” og
birtist að mig minnir í blaðinu fsafold.
Jón Björnsson hefir ritað mikið í blöð, síð-
an er hann kom til Reykjavíkur, einkum þó um
bókmentir og hefi eg lesið ritdóma hans með ó-
segjanlegri ánægju. Sem ritdómari, er hann
óvenju laus við öfgar, nærgætinn og viðkvæm-
ur, þegar um nýgræðing er að ræða, en segir
þó til syndanna með fullri einurð. —
Það er örðugra að draga fram sýnishorn
úr sögu en ljóðabók, enda alla jafna eðlilegast,
að iesandinn sæti fyrstu áhrifunum beint
frá skáldinu sjálfu, án nokkurs milligöngu-
manns. Tilgangur minn með línum þessum
er því að eins sá, að vekja athygli þjóðarbrots-
ins vestra á ungum skáldsagnahöfundi, er Jón
Björnsson nefnist og ritað hefir sögur þær, sem
hann kallar ‘ ‘ Ógróin jörð ’ ’. Mér finst sögurn-
ar, þótt þær sé fyrsta bók höfundarins, bera
með sér svo augljós merki þroskaðs skálds að
bókvinir ættu að taka þeim með fögnuði, og
stuðla að útbreiðslu þeirra, sem mest.
Sögur þessar eru allar vel ritaðar og
skemtilegar aflestrar, þótt fram úr sikari að
rninni hyggju “Guðsdýrknn” og “Sól og
Stjarna.” Vonast eg til að enginn taki illa upp,
cða missi nokkurs í við lestur bókarinnar á eftir,
þótt og minnist lítillega á innihald þessara
tveggja sagna og dragi fram nokkrar tilvitn-
anir.
Megindrættir efnis hinnar fymefndu sögu
eru þessir: Höskuldur, kemur hljóður og al-
varlegur frá messu í Fríkirkjunni; kyrð trúar-
lotningarinnar hvílir yfir svip hans, en Gunnar
ber að af Tjörninni, með leikgleðina glamp-
andi í augunum. Hann hafði verið á skautum.
Þeir verða samferða heim til hins síðamefnda.
“Fer maður í kirkju til þess að verða sorgbit-
inn?” spyr Gunnar félaga sinn. Hösikuldur
svarar ekki beint spumingunni; en segir eftir
nokkra bið. “Annar hvor okkar hlýtur að hafa
blekt sjálfan sig í dag.” Það teygist úr samtal-
inu: “Verður þá gnði ekki þjónað nema á
einn liátt?” spurði Gunnar. “Er ekki hægt að
finna til hans, nema að ganga í kirkju? Er
ekki hægt að dýrka hann, nema með því að
hlusta á sálmasöng og stólræður?” “ Jú, sjálf-
sagt,” svaraði Höskuldur. “En mér finst
efcki hugsanlegt að sálin finni til mikillar al-
vöru, eða verði vör við mikilleika tilverannar
við það að þeysa á skautuim með hugsunarlaus-
nm bæjarlýð. En í alvörunni er sál vor næst
guði.” Svo 'bætist þriðji maðurinn í hópinn, f
Ilvanndal, prófessor við háskólann. Hann
sér undir eins að þeim félögum hefir borið eitt-
hvað á milli og hættir eigi fyr en þeir hafa sinn
á hvorn hátt skriftað fyrir honum, ef svo mætti
að orði kveða, — lýst út í æsar hugarástríðum
sínum og skoðunum á lífinu. — “Leiðirnar er
bara mísmunandi,” segir prófessorinn, “en
liggja báðar að sama markinu. Annav nálægir
Mér fanst eg gæti siglt minn sjá
og sviftibyljum komist hjá,—
að vílsins þungi, harmsins húm
í hug mér aldrei fengi rúm. —
Það sló mig svo, er sleip varð leið
og slys við næsta fótmál beið,
að enginn hefði um æfiveg
slík ósköp reynt og sjálfur eg.
Öll kvörtun þyngri kvöl mér bjó
og kveinið út í geimnum dó!
Þá mælti rödd í eyra inn:
“Slíkt ok bar sérhver granni þinn,
því aðrir grétu, er gladdist þú,
þótt grátsins fiðla hljóð sé nú. —
Menn sama vaskleiks vænta’ af þér,
er vængmyrk sorg að dyrum ber.”
En þetta löngu liðið er
og lífið síðar kendi mér:
Að tárabeiskja tómleikans,
er tannfé sérhvers dauðlegs manns.
Það sigldi enginn æfisjá,
er öllum boðum stýrði hjá.
Því vil eg sýna í sóknum enn
hið sama þrek og aðrir menn.
Einar P. Jónsson.
tKennið Börnunum Yðar að Þekkja
Gildi Peninganna.
Byrjið sparisjóðsreikning fyrir sérhvert af börnum yðar.
Heimtið af þeim að Ieggja eitthvað til síðu af vasapen-
ingunum. Það mun komast í vana fyrir þeim og um
leið kennir þeim að spara.
ÞaS er útibú af þessum banka í nágrenninu
og Sparisjóðsdeild í hverjum bonka.
THE ROYAL BANK 0F CANADA
Allareignir - - - - $598,000,0000
Að spara
Smáar upphæðir lagöar inn í banka reglulega
geta gert stærri upphæð en stór innlög, sem lögð
eru inn óreglulega. Sá sem gerir sér að vana að
leggja inn peninga, hann fær löngun til að sjá upp-
hæðina stækka. Rentur gefnar að upphæð 3% á
ári, lagt tvisvar við höfuðstólinn.
Bvrjlð nð leggja lnn í sparisjóð hjL
THE DOMINION BANK
NOTRE DAME BRANCH,
SELKIRK BRANCH,
P. B. TUCKEK, Manager
W. E. GORDON, Manager.
Samymnuhreyfingin á
Englaudi.
Ameríkumenn eru farnir upp á
sfðkastið, að veita hinum ýmsu
samvinnufyrirtækjum á Englandi,
meiri athygli, en við Ihefir gengist
Canada, en landeignir þess á Eng-
land nema a’ð minsta kosti 40,000
ekrum.
Hinn feykilegi þroski samvinnu-
félaganna hefir orðið stjórninni í
vissum skilningu þyrnir í augum.
pau eru enn undamþegin skattá-
lögum, og hafa vitanlega meðfram
TT , , ... vegna þess,iblómgast svona snögg-
að undanförnu. Hafa ymsar til- Jega Eftir að stjórnin nú hefir
raunir 4 sömu átt þegar venð gég hye umsetning þeirra er orSin
reyndar víðsvegar um Bandankin mikil> blóðlangar ,hana í að láta
þótt fæstar þeirra synist hafa nað ^au greiða 8Qmu slcatta og önnur
tilgangi sínum enn sem komið y0rzlnnarfélög. En þeim var heit-
er. Blaðið New York Journal of ið undamþágunni í byrjun, og þess
Commerce, lætur nýlega þá skoð-^ vegna er hægra sagt en gjört að
un d ljósi, að engu líkara sé enj homast ag þeim, án þess að brjóta
samvinnutilraunir þrífist helzU á þeim lög. —
hvergi annarstaðar en í þeim lönd-
um, þar sem nauðsynin sjálf, hafi Ymsa erviðleika hefir félags-
í fyrstu hrundið þeim af stokk-j skapur þessi átt, við að stríða, eins
unum, með öðrum orðum, aðeins í °K Kefur að skilja og oft verið í
þeirra eigin föðurlandi. I vandræðum með reiðupeninga.
. i j- _ , i Meðfram vafalaust af þeirri á-
A Englandi, er samvinna a verzl-,
unarsviðinu líklegast komin á;
hærra fullkomnunarstig, en_ með
nakkurri annari þjóð á yfirstand-
andi tímum. New York Journ-
al of Commerce prentar eftirfylgj-
andi upplýsingar um þetta efni,
eftir tímaritinu Canadian Grocer:
Samvinnufélögum þessum í
verzlun, má skift í þrjár samstarf-
andi deildir — smásölubúðir,
heildsölu forðaibúr og verksmiðjur.
Fjórar miljónir samneytenda, eiga
til samans og starfræfcja tólf
hundruð smásölubúðir og leggur
hver einstaklingur í þær að
minstá kosti eitt pund
.--terling, en sú er lægsta hlutar-
upplhæð. Enginn má eiga meira
en 200 hluti í fyrirtækinu. Sam-
band smásölubúðanna >á og starf-
rækir sjö heildsölufélög, en verk-
smiðjum, hundrað að tölu er svo
aftur stjórnað af heildsölufélög-
unum.
Aðal-heildsölufélagið hefir hæki-
stöð sína í Manchester og á þar
fyrir skrifstofur og til vöru-
geymslu sex stórbyggingar.
Samvinnufélög iþessi töldu árið
1918 hér um bil fjórar miljónir
hluthafa, en veltuféð nam $388,000-
000. Seldar vörur á árinu námu
$1,250,000,000. í þjónustu sinni
höfðu félögin það sama ár 160,000
verkamenn og hlupu laun þeirra
upp á sjötíu miljónir dala. Svo
miklum viðgangi hafa samvinnu-
félög þessi tekið slðan fyrstu ó-
friðarárin, að umsetning hefir að
heita má tvöfaldast. Árið 1918
var hreinn ágóði félaganna $2,390-
000, minni en á árinu 1917 og var
ástæðan sú, hve hráefni öll höfðu
hækkað tilfinnanlega í verði og
sömuleiðis verkalaun. pess er og
vert að geta að margar lífsnauð-
synjar voru seldar við svo lágu
stæðu, að lögin ibanna hverjum
hluthafa að eiga meira en 200
sterlings pund I hlutum, eða um
1000 dali. En lögin banna sam-
vinnufélögum að afla sér fjár með
því að selja veðskuldabréf, og þá
leiðina 'hafa þau einmitt farið.
Hefir beildsölufélagið selt á tveim
síðustu árurn veðskuldábréf, er
nema 36,450,000 dölum.
Annar prándur í götu samvinnu-
félaganna hefir verið sá, að fá
hluthafa til að skilja, hve bráð-
nauðsynlegt er að láta etfir í
höndum framkvæmdarstjórnar-
innar nægilegan hluta ársarðsins
til starfrækslu fyrirtæikjanna í
framtíðinni. Venjulegast, þegar
þriggja mánaða gróðahlutdeildin
féll í gjalddaga, kpmu hluthafar.
verkamennirnir eða konur þeirra
og vildu fá hana alía, já, líklegast
einungis til að eyða henni og hafa
“góðann tíma.” í þeim tilgangi
að uppræta svona fásinnu hefir
stjórn samvinnufélaganna stofn-
að annan félagsskap, (cooperative
Union) er hefir það eitt verkefni
með hóndum að uppfræða hluthafa
og skyldulið þeirra. Hefir sam-
band þetta stofnað til kenslu, sem
fram fer í ðllum smásölubúðum, og
fengið auk tekna upp í barnaskól-
um kenslu í frumatriðum samvinuu
vísindanna. En núna fyrir fáum
vikum hafa samvinnufélögin
bresku veitt mikla fúlgu fjár til
stofnunar íháskóla, sem kenna skal
eingöngu samvinnu vísindi.
1
Frá Islandi.
Dáin er 5. des. á Flögu í Skaft-
ártungu frú Guðríður Pálsdóttir,
ekkja sér Sveins Eiríkssonar í Ás-
verði, að þær gerðu tæpast betur um, 75 ára gömul, móðir Páls
(n borga starfrækslu kostnaðinn. Mentaskólakennara, Gísla sýslu-
Heildsöludeild ein, þessa sam-
vinnufélagsskapar, sem gerði,
437,400,000 dala umsetningu á ár-
manns í Vík og þeirra sytkina.
Kappglíma fór hér fram íðastl.
usnnud. í Iðnaðarmannahúsinu,
inu 1919, á nú og starfrækir 100 milli félaganna “Ármanns” úr
framleiðslu stofnanir sem eru til Rvík og “Harðar” af Akranesi.
samans 126,360,000 dala virði. Sjö menn glímdu úr hvoru félag-
Stofnanir þessar framleiða, mat- inu. Hörður hafði 25 vinninga en
vöru, vefnaðarvöru, tilbúinn fatn- Ármann 21. En glimumönnunum
að, skófatnað, húsgögn, eldhús.s. voru gefnar einkunnir eftir hverja
.... .* . , glimu, og samkvæmt þeim utreik-
ahold og yfir hofuð að tala flestar Ármann 220 ^
þær nauðsynjar, sem nuhminn Hörður 208> og dómnefndin dæmdi
krefst
Árlega
kaupir heildsölufélag
Ármanni vinninginn. Húsfyllir
var af áhorfendum og fylgdu þeir
þetta Iönd, verksmiðjur og hafnar- glímunni með mestu athygli. Allir
virki'fyrir þrjár til fimm miljón- glímumennirnir féll u nema einn:
ír dala. The Cooperative Whole-: Hallgrímur Jónsson Sveinssonar
sale Society starfrækir sinn eigin.prests á Akranesi, og stóð enginn,
banka og nam viðskiftavelta hans' sem vtS hann glímdi, neitt að ráði
árið 1919 freklega 500,000,000 í honum.
sterlings pundum eða nálægt! Guðmundur Sigurjonsson sem
. . , ..., .. , , I var alkunnur glímumaður hér fyr-
tveimur biljonum og fimm hundr-i -r nokkrum árum> meðan glímurn.
uð miljonum dala. J ar gtúðu meg metum blóma, er nú
Félagið á einniig sextán terækt- hennari Ármannsfélagsins, og hef-
unarsvæði( er taka yfir 16,000 ir mil{inn áhuga á að glæða liíf í
ekrur lands, bæði í Indía og á Cey- glímunum að nýju, því ekki verð-
lon. Hveitilönd mikil á félagið/ ur því neitað, að þeim hefir farið
sömuleiðis; yfir 10,000 ekrur í. aftur hér slðari árin — Guðmund-
I