Lögberg - 23.09.1926, Side 1

Lögberg - 23.09.1926, Side 1
4 PRfiVlNíF takið sargentstrætis ri\u v Ji\LEi v/cn að dyrunum ÞESSA VIKU JACK LONDON’S nákvœma og trú\ e ða mynd af ”THE SEA WOLF” 0 É b t PROVINCE TAKIÐ SARGENT STRŒTIS VAGN AÐ DYRUNUM NÆSTU VIKU HAROLD BELL WRIöllT’8 þjóðkunna saga “The Mine With the Iron Door” Leikinn af PAT O'MALLEY, DOROTHY MACKAILL og fl, 39. ARGANGUR i WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 23. SEPTEMBER 1926 NUMER 38 Helztu heims-fréttir Canada. í haust er liðin hálf öld síðan hveiti, sem raöktað var í Manito- ba, var fyrst flutt út úr fylkinu. Það var 12. okt. 1876. Er nú gert ráð fyrir að minnast þessa merka atburðar í Winnipeg með ein- hvers konar hátíðahald hinn 12. október. Fyrir 1876 hafði hveiti að vísu verið ræktað í Manitoba, en að eins til heimanotkunar og það sem út var flutt þetta ár, var að eins lítið eitt og verðið var lágt, í samanburði við það, sem nú gerist. Menn fundu fljótt til þess, að sumarið var stutt til hveitiræktunar og þörf var á því að finna hveititegund, sem næði fullum þroska á skemri tíma held- ur en vanalegt var með hveiti, sem þá var þekt. Það var fyrir rann- sóknir og tilraunir Dr. Charles Saunders, að Marquis hveitið var framleitt, og hefir það aðallega verið ræktað í Vestur-Canada þangað^ til nú fyrir skðmmu, að farið er að rækta Garnet hýeiti og Reward hveiti, sem hvorttveggja þroskast á skemmri tíma en Mar- quis hveitið og reyna^t einnig að cðru leyti mjög vel. Manitoba- fylki er frægt orðið fyrir sitt “No. 1 Hard” og virðist því heldur vel til fallið að halda upp á fimtíu ára afmæli þess. * * * Innflutningur fólks til Canada hefir verið langtum meiri á þessu ári, heldur en í mörg undanfarin ár. Samkvæmt skýrslum stjórn- arinnar, nýbirtum, eru þeir, sem fluzt hafa til landsins frá 1. jan til 1. ág. 86,480, en á sama tíma- bili í fyrra 51,00, og er því mis- munurinn 68 prct. í júlímánuði komu 6,487 Canadamenn frá Ban- öaríkjunum, sem áður höfðu þang- að farið með þeim ásetningi að setjast að, en tjá sig nú alkomna til Canada. • * • Fréttir frá Port Arthur, Ont., segja, að þar sé mjög erfitt að fá nóga menn til að vinna við skóg- arhögg. Kemur það sérstaklega til af því, að bændur bjóða gott kaup við uppskeruvinnu og einnig af hinu, að í haust og vetur er búist við, að skógarhöggsvinna verði meiri heldur en verið hefir undanfarin ár. • * * Dr. August Vogt, söngfræðing- ur, dó í Toronto hinn 18. þ.m. 66 ára að aldri. Dr. Vogt var fædd- ur og uppalinn í Canada, en þýzk- ur var hann að ætterni. Á barns- aldjri hneigðist hann strax að hljómfræðinni, enda var hann á sinni tíð einn með allra helztu hljómfræðingum í Canada. Hann stofnaði hinn fræga Mendelssohn söngflokk og stjórnaði honum frá 1894 til 1917. # * * Blaðið Ottawa Journal, flutti eftirfylgjadi spádóm á kosninga- dags morguninn þann 14. þ.m.:— “Blað þetta gerir engar sérstakar kröfur til þess 'að eiga yfir nokk- urri sérstakri spádómsgáfu að ræða. Og þegar það fullyrðir, að íhaldsflokkurinn verði allmiklu liðsterkari á þingi að afstöðnum kosningunum, þá er slíkt engan veginn á því bygt, að það geri svo mikið upp á milli flokkanna, held- ur sökum þess, að nú hníga allir atburðir þá átt, að stjórnar- flokkurinn undir leiðsögn - Mr. Meighens hljóti að verða ofan samkvæmt fregnum þeim, er'víðs- vegar berast að. Það gæti hugs- ast, að íhaldsflokkurinn fengi ekki ákveðinn meirilíluta, en mannflestur hlýtur hann þó að verað.” Sannast hér hið forn- kveðna, að svo mæla börn sem vilja. kinin komu til lands með þær fréttir, að faðir þeirra og menn- irnir, sem með honum voru, væru í nauðum staddir. Varð því hug- rekki og þrek systkinanna til þess að bjarga lífi þessara manna. Bretland. Konungur og drotning héldu ný- lega dansveizlu í Balmoral kast- alanum og voru gestirnir í það sinn engir lávarðar eða auðmenn, heldur vinnufólk konungs og drotningar, og skemtu þau sér með verkafólkinu og tóku þátt í dansleiknum með því. Eitthvjið af bændafólki þar úr nágrenninu var einnig boðið. • • • Kolverkfallið á Englandi Stend- ur enn yfir, en þó lítur út fyrir, að verkfallsmenn séu nú viljugri en áður að ganga að samningum, jafnvel þótt þeir fái ekki alt sem þeir krefjast. Einnig mun stjórn- :n gera það sem hún getur til að koma á samkomulagi. En nú eru| það námaeigendurnir, sem sýnast[ vera helst í véginum fyrir því, að samkomulag geti náðst. • * *. Sjö brezkir sjómenn hafa nýlega verið teknir af lífi í Kína af kín- verzkum hermönnum. Una Bret- ar því illa, eins og við er að búast, en hins vegar mun þeim erfitt við ao eiga, því þegar erlendar þjóð- ir hafa eitthvað saman við stjórn- ina í Kína að sælda, þá er erfitt að komast að $ví, hver stjórnar, og Bretar viðurkenna ekki stjórn Kínaveldis. Þó mun vera fjarri skapi þeirra, að láta þetta mál niður falla. Voða fellibylur fer yfir Fiorida, deyðir og limlestir fólk í ýmsum bœjum. Eignatjón stórkostlega mikið. Afskaplegt ofviðri gekk yfir Floridaskagann um helgina sem leið og olli ákaflegu tjóni. Ofviðri þetta varaði í nokkra daga, en varð mest á laugardaginn hinn 18. þ.m. Veðrið hefir valdið miklu manntjóni og stórsköðum í ýmsum bæjum þar syðra, en sér- staklega hefir borgin Miami verið hart leikin. Sagt er að um þús- und manns hafi farist í ofviðri þessu, eða nálega það, og fjöldi manna særst og meiðst á ýmsan hátt. 50,000 eru heimilislausir og eignatjónið er ákaflega stórkost- legt. Vindurinn var svo mikill, að hann nam 130 mílum -á klukku- stund. Afskapa regn fylgdi þessu ofviðri og sjórinn gekk víða langt upp á land og gerði ákaflegan skaða. Borgin Miami er mjög ung borg, en síðustu árin hefir ó- grynni fjár verið varið þar til bygginga og annara umbóta. Hef- ir fólkið streymt þangað þúsund- um saman, sérstaklega efnað fólk til að njóta þar veðurblíðunnar. Þar risu byggjpgSrlóðir svo í verði á skömmum tíma, að engin dæmi eru til annars eins og voru þær um tíma seldar fyrir hærra verð, en nokkurs staðar annars- staðar í Ameríku. — Fáeinir ís- lendingar eru í Miami og þar í grendinni, og hefir ekki frézt að þeir hafi orðið fyrir slysum. Ann- ars eru fréttir af öllu þessu ó- liósar enn. Hvaðanœfa. Lögreglunni í Montreal hefir verið tilkynt, að einhvern tíma frá 18. júlí til 10. ágúst, hafi þremur dýrum málverkum verið stolið í Madrid á Spáni, sem samtals séu $150,000 virði. Eitt af þessum landi. Hefir hann verið þar við fornmenja rannsóknir og fundið mjög fornar rústir, 30 mílur norð- ur frá Jerúsalem. Álítur prófess- orinn, að þar hafi hann fundið altari Abrahams og einnig gröf Jakobs. hafa tekjur af því að veita þeim viðtöku, sem geta borgað fyrir sig, 0g ekki þurfa að fara með leynd. En orðstír sjúkrahúss þessa er orðinn svo góður, að fjöldi giftra kvenna af öllum stigum sækir mjög um inngöngu, og því virðist ÍHernum nú svo, sem vel kynni að mega láta stofnunina bera sig, ef nægilegt fé fæst í sprettinum til þess, að stækka hana svo sem nú er um talað. í stjórnarnefnd sjúkrahúss þessa hafa nú gengið hernum til aðstoð- ar, fjöldi af merkismönnum borg- arinnar, eins og frá er sagt á öðr- um stað í þessu blaði. Ýmsir þeirra eru svo settir, að þeir hafa hóp af mönnum sér við hönd til þess á einn eða annan hátt að hrinda málinu áleiðis. Þannig er ástatt fyrir W. G. Muir,yfirmanni New York lífsábyrgðarfélagsins hér í borginni, og sömuleiðis fyr- ir þeim, sem í Kiwanis klúbbnum eru. Af því að fslendingar hafa báðar þær leiðir lent inn í þessa hreyfingu, er það ekki sama, hverjar undirtektirnar verða af þeirra hálfu. Það er þegar orðið nokkurt kappsmál um það, hversu vel hver hópur um sig beri al- menningsheill fyrir brjósti, og þessi grein er til þess skrifuð, að íslendingar geti tekið Vara á sér í tíma og haldið sinn hóp. Þeir þurfa ekki annað en koma sínum tillögum í höndur ísl. ritstj. eða til undiritaðra, sem sjá um að kvitt- að verði fyrir, og peningunum komið svo á framfæri, að greini- lega sjáist, hvaðan þeir koma. S. W. Melsted, meðlimur Kiwanis Club. J. P. Sólmundsson, c-o New York Life Ins. Co., 704 Lindsay Bldg., Winnipeg. daginn í vikunni sem leið, frá fs- | landi. Mr. Magnússon lagði á Istað 27. apríl í vor og kom til ís- | lands 26. maí Dvaldi hann þar jtil 15. ágúst, að hann'Yór til Nor- egs, Svíþjóðar og Danmerkur, og svo vestur um haf. Mr. Magn- ússon ferðaðist aðallega um Vest- firði, því þaðan er hanii ættaður, en var um tíma í Reykjavík og kom einnig til ýmsra fleiri bæja. Lætur hann vel yfir ferðinni, sem gekk vel og var að öllu leyti á- nægjuleg. Tiðarfar sagði hann gott, meðan hann var á íslándi, sérstaklega í júnímánuði. Verð á fiski sagði Mr. Magnússon að hefði fallið svo mikið, að það væri nú-lægra heldur en það var fyrir stríðið, en kostnaður allur við út- gerðina miklu meiri. Taldi hann því fiskiútgerðina langt frá því að vera arðberandi nú sem stæði. Mr. Magnússon sagði, að þegar hann fór frá íslandi, hefðu mörg útgerðarfélög átt mjög mikið af óseldum fiski, sem þau hefðu ekki fengið viðunanlegt boð í. Frá Elfros. íslenzka kvenfélagið í Elfros hefir stofnað til samkomu í Elfros 8. okt.; þar les skáldkonan, frú Jakobína Johnson kvæði sín. Einnig syngur barnakór nokkur lög; og Miss Olive Peterson syng Or bœnum. Gjafalisti Jóns Bir"nasonar skóla verour birtur í næata blaði. Vegna veikinda getur Dr. Tweed ekki verið í Árborg eða á Gimli í nokkrar næstu vikur. málverkum er “Ecce Homo” eftir' U.rs l0,*F.Íítlr Professor K. Hall, ‘við þyðmgar fru Johnson. — Titian, virt á $110,006; annað “The Bust of a Woman” eftir Van Dyke, virt á $5,000, og hið þriðja er merkilegt listaverk eftir Velas- quez, sem er virt á $35,000. Dr. Stressman utanríkisráðherra Þjóðverja og M. Briand, utanrík- os ráðherra Frakka, sem nú eru báðir á þingi Alþjóðabandalagsins í Geneva, hafa þar átt langar sam- ræður um utanríkismál þeirra þjóðfélaga, sem þeir eru fullírúar fyrir, og gera menn sér miklar vonir um, að nú muni draga til sátta og samlyndis milli ^pssara tveggja þjóða, sem svo lengi hafa verið óvinir og það alt til þessa, þó svo hafi verið kallað, að þær væru sáttar síðan að Evrópustríð- inu mikla lauk og friður var sam- inn. Eftir að þeir Stressman og Briand höfðu" talast við, hafði hinn síðarnefndi þetta að segja: “Eg er fyllilega ánægður með fundinn. Við viljum koma í veg Gáfaður alþýðumaður lét sér þau orð um munn fara nýlega, að það væri ekki nema rétt eftir íslenzku konunum hér vestra, að ná í handrit Jakobínu ojfgefa þau út í álitlegri útgáfu — þau ættu skil- ið að komast í bók. Grace Hospital. og Sáluhjálparherinn. Ýms h'inna stærri félaga og klúbba hér í borg, hafa nú geng- ist undir það, að leggja Sáluhjálp- arhernum viðbótar vinnukraft til þess að hafa saman ^50,000 þús- und doll. samskot, sem honum er nauðsyn að leita til almennings með, og fá vissu sína á fáum dög- um um það, hvar hann stendur í því efni. Borgarstjórinn hefir skorað á fólk alment að bregðast yel við, og flestir eða allir prestar borgar- innar hafa tekið í sama strenginn í kirkjum sínum. Peningarnir eru ætlaðir til þess, Á þriðjudaginn var fóru þeir John McRae og Jón A. Bildfell, B.A. suður til Detroit, Mich., og búast þeir við að dvelja þar syðra fyrst um sinn. Á öðrum stað í blaðmu er ávarp frá Mr. S. W. Melsted og séra Jó- hanni Sólmundssýni, til íslend- inga í sambandi við viðbót þá og breytingu, sem Salvation Army hefir fundið óhjákvæmilegt að gera við Grace Hospital hér í borg. Hið göfuga verk, sem Sálu- hjálpar herinn er og hefir verið að vinna hér og annars staðar, hefir hlotið þá verðskulduðu við- urkenningu borgarbúa, að flestir á meðal bezt þektu manná borg- arinnap og félög innan bæjarins, hafa skorist í þetta mál og veita hernum nú fulltingi sitt til að ná saman fé því, er þarfir stofnun- arinnar krefjast. Þeir Mr. Meb- sted og Mr. Sólmundsson hafa ver- ið skipaðir, annar, Mr. Melsted, af Kiwanis klúbbnum, en séra Jó- hann af Ne w York Life félaginu, til ,þess að aðstoða við samskotin, hvor fyrir sitt félag, sem bæði eru velþekt og mikils metin. — íslend- ingar gerðu vel í að athuga þetta mál og liðsinna því eftir megni, þar það er göfugt og verðskuldar velvilja og styrk allra góðra manna og kvenna. fyrir allan ágreining milli Frakk-jað umbæta og tvöfalda að stærð lands og Þýzkalands og ef stjórnir1 sjúkrahús Sáluhjálparhersins. Það Bandaríkin. William Henderson, seytján ára gamall piltur og systir hans Ed- ith, sem er enn yngri, unnu það hreystiverk nýlega, að synda hálfa aðra mílu til lands frá bát, sem hvolfdi fram undan Ocean Park, N. J. Faðir þeirra systkina, sem var formaður, og sex menn aðrir, komust á kjöl og gátu haJdið sér þar þangað til hjálp kom, en vit- anlega var strax brugðið við.til að hjálpa mönnynum, þegar styst- þessara þjóða styðja okkur í þessu munum við halda áfram samning- um í þessa átt. Ef stjórnirnar fylgja sömu stefnu eins og við viijum fylgja, vona eg að við ná- um hinu þráða takmarki — eg vona það. Það áreiðanlega eflir frið- inn í Norðurálfunni.” Dr. Stressman hafði nokkurn veginn hið sama að segja: “Okk- ur kom algerlega saman um öll þau mál, er snerta Frakkland og Þýzkaland, og við erum ráðnir í því, að vinna með fullri trú- mensku að góðu samkomulagi milli þessara þjóða. Norðurálfan þarfnast þess, að þjóðirnar skilji hver aðra og á það sérstaklega við vorar Jojóðir. Geti stjórnirnar fallist á skoðanir vorar og stefn- vr, þá hörfir nú vænlega við um gleggri skilning og meira bræðra- lag milli þessara tveggja þjóða, heldur en átt hefir sér stað um lnagan aldur.” •u * * * Þýzkur prófessor frá Berlín há- skóla, Ernest Sellin, heldur að hann hafi fundið leifar af fyrstu bygð ísraelsmanna í Gyðinga- er nefnt Grace Hospital, og er að eins fyrir sæpgurkonur. Fyrst og fremst ganga þær fyrir, a,ð fá þar' samastað svo mánuðum skift- ir, bæði fyrir og eftir barnsburð, sem félausar eru, ógiftar, engan eiga að, nema guð og herinn, og oftast ríður mest á því, að kjör sín séu gjörð að órjúfandi leynd- armáli. Þessa Ieyndarmálsnauð- syn varð stjórn Manitobafylkis fyrst til að viðurkenna, og hefir veitt þessu sjúkrahúsi undan- þágur frá lög.um sínum um fæð- ingarskýrslur, til þess að þar geti verið sem óhultust . griðastöð, hvernig sem högum er háttað. Síð- an hafa stjórnirnar í Sasatche- wan og og Alberta báðar breytt eftir þessu fordæmi. Er með þessu komis,t íyveg fyrir þá at- burði, sem á liðnum öldum hafa oft og löngum endað í gálganum. Þessu Hknarverki hefir Sálu- hjálparherinn einsamall sint um langan aldur, fyrir allar kirkjur og guðsþakkastofnanir landsins, án þess að kvaka til þeirra um nokkra hjálp fyr en að þessu sinni. Að eins með því móti, að eitthvert rúm sé afgangs, þegar búið er að fullnægia þörfum allra þeirra, sem í nauðum eru stadd- ar, getur það komið til mála, að Elín HálfdánarsOn, 48 ára göm- ul, andaðist að heimili sínu, Bjarkarvöllum við íslendingafljót, þ. 7. sept. Lætur eftir sig eigin- mann, Valdimar Hálfdánarson, og fjögur börn, tvær stúlkur og tvo drengi, á aldrinum níu til sextán. Nöfn barnanna, éftir aldri: Sol- veig Elín, Páll Jón, Margrét Ingi- björg og Hálfdán Sveinn. Syst- kini Elínar sál. eru tvö á lífi, Guð- rún kona Jóhanns Briem og Jón bó%di Pálsson, er býr í grend við Riverton. — Elín var ágætiskona og vinsæl. Jarðarförin fór fram þ. 9. sept. Kirkja Bræðrasafnað- ar heldur meira en full við það tækifæri. Bæði heimaprestur, séra Jóhann Bjarnason, og séra Sig- urður ólafsson, voru þar við- staddir og fluttu ræður. Almenn og mikil hluttekning í bygð og söfnuði í tilefni af fráfalli hinnar góðu konu. — Burtköllunin mjög snöggleg, hin látna ekki verulega veik nema nokkrar klukkustund- ir. Var í kirkju við messu tveim dögum áður og þá að virtist bæri- lega frísk. — Ekkjumaðurinn, börn og aðrir áátvinir, biðja Lögberg að fljdja vinum og bygðarfólki al- úðarþakkir fyrir blómskrúðið fagra og mikla, er kistan var al- þakin með. Svo og fyrir alla hlut- tekninguna, sem þeim hefir verið sýnd, er þau kunna vel að meta, mitt í hinni miklu s@rg er heim- sótt hefir heimili þeirra. Jóns Bjarnasonar skóli var sett- ur á mánudagsmorguninn í þessari viku. Formaður skólaráðsins, séra Björn B. Jónsson, D.D., setti skól- ann með guðsþjónustu. Fyrst var sunginn sálmurinn; “Lærdómstími æfin er.” Þá las Dr. Jónsson bibl- íukafla (um vínviðinn og greinarn- ar) og flutti bæn. Talaði hann svo nokkur orð til kennara og nem- enda skólans. Einnig töluðu Miss Salóme Halldórsson og Mr. A. S. Bardal. Miss Salóme Halldórsson veitir nú skólanum forstöðu, ' en meðkennarar hennar eru: Miss Geir, Miss Bleakley og Mr. Jón O. Bildfell. Dr. B. B. Jónsson hefir umsjón með kristindóms kenslu í skólanum. — Skólasetningin var á- nægjuleg og fór mjög vel fram, en jhún gæti verið tilkomumeiri, ef | fólkið í Winnipeg sækti hana betur og sýndi með því velvild sína til skólans. í þetta sinn voru að eins örfáir viðstaddir, auk kennara og nemenda, þrátt fyrir það, að öllum vinum skólans er boðið að vera við skólasetninguna. Á fimtudagskveldið 9. þ.m. var fjölmenn samkoma haldin í sam- komusal Fyrstu lút. kirkju. Var tilefnið það, að nú eru flestir komnir heim til borgarinnar, sem burtu hafa verið í sumar, og nú hefir söfnuðurinn aftur tekið til starfa með fullu fjöri eftir há- sumar mánuðina, júlí og ágúst, en þá tvo mánuði er sunnudags- skóla ekki haldið uppi, og að eins messað einu sinni á hverjum sunnudegi. Samkoman hepnaðist mjög vel og virtist fólkið skemta sér ágætlega við söng og hljóð- færaslátt og veitingar, sem kven- félagið framreiddi. Það er að verða að hefð í söfnuðinum að halda slíka samkomu árlega í byrjun september mánðar og mun það verða vinsælt og því vel tekið. eins yfirlætislaus og framast get- ur, — engin yfirvarps virðingar- tákn gerðu þar vart við sig, held- ur hvíldi yfir athöfninni allri, hreinn og óblandinn alvöruþungi hljóðlátrar sorgar. Kveðjan var í beinu samræmi við líf hins látna öldungs,—spekingsins með barns- hjartað. Sama daginn og Dr. Eliot var lagður til hvíldarinnar hinstu, fór fram í New York jarðarför, er mjög var með öðrum hætti. Mað- ur sá, er þar skyldi jarðsyngjast, var kvikmyndaleikari einn ítalskr- ar ættar, Rudolphe Valentino. Tugir þúsunda þyrptust að útfar- arstofunni til þess að skoða líkið. Rosknar konur og ungar stúlkur, með máluð andlit og rauðsmyrsl- aðar varir, ruddust áfram sem óðar væru, — vildu helzt allar verða fyrstar, til að yfirvega í síð- asta sinn fölva ásjónu síns látna uppáhaldsgoðs. Hálftryldir karl- menn klufu fylkingar og ruddu sér veg að kistunni með slíkum of- stopa, að lögreglan fékk lengi vel eigi rönd við reist. Þegar svo að lokum friður komst á, kom það í ljós, að á annað hundrað manns lá sært í valnum, er fljdja varð á sjúkrahús. Hr. Elínmundur ólafsson, kaupm. hér í bænum, hefir keypt af ís- landsbanka Keflavíkureignina, er Duus-verzlun átti áður, síðan Matth. Þórðarson frá Móum og svo Copelandsfélagið, fyrir 300 þús. kr. íslenzka stjórnin hefir nýlega viðurkent bolsjevikastjórnina á Rússlandi löglega stjórn, segja blaðafregnir. Er langt síðan Danmörk og önnur lönd gerðu þetta. Gistihús er verið að reisa í Fornahvammi í Norðurárdal, fyr- ir tilstyrk landssjóðs. Bændaöldungurinn Stefán Jó- hannesson, fyrrum póstur, andað- ist að heimili sínu, Skriðu í Breið- dal, 25. maí 1926.—Lögr. Síðast liðið laugardagskv. hafði Jón tónskáld Friðfinnsson hljóm- leika samkomu með nemendum sinum að Hnausa, Man. Var jskemtunin ágætlega sótt, ekki sízt þegar tekið er tillit til þess, hve vegir í bygðinni voru torfær- ir. Barnasöngflokkur söng á sam- komunni, er tókst mæta vel, og skemti áheyrendum hið bezta. Var samræmið gott og hljómfall sömu- leiðis. Nokkrir nemendur Jóns léku á piano, og gerðu hlutverk- um sínum góð skil. Tveir synir söngstjórans, þeir Fred. og Wolf- gang, léku á fiðlu og slaghörpu, fólki til hinnar mestu ánægju. Á Mr, Friðfinnsson þakkir skyldar fyrir vandvirkni þá og alúð, er hann hefir sýnt nemendum sínum, j eins og samkoman bar ljósastan vott um. Mr. Gísli kaupmaður; Sigmundsson stýrði samkomunni og fórst honum starfi sá einkar myndarlega úr hendi. AlþjóSa bandalagið. Sjöunda þing Alþjóða banda-| lagsins er nú háð í Geneva, ogi samkvæmt fréttum þaðan að dæma j virðist nú alt ganga þar miklu I friðsamlegar heldur en á síðasta þingi bandalagsins. Hin merk- ustu tíðindi, sem þaðan eru að segja, eru þau, að nú hafa Þjóð- verjar gengið í Alþjóða banda- lagið og skipa þeir þar eitt af hin- um föstu sætum. Hin sætin skipa Breetar, Frakkar, ítalir og Jap- ar. Einu af hinum föstu sætum í ráðinu, er haldið auðu og er það ætlað Bandaríkjaþjóðinni, ef hún síðar vill taka þátt í þessum al- heims friðarsamtökum, en sem hún hefir enn ekki, fallist á að gera. Sir George E. Foster mæt- ir á þessu þingi fyrir Canada. Sagði hann þar, að miljónir manna í Bandaríkjunum væru Alþjóða- bandalaginu og því göfuga og mikla verki, sem það væri að vinna, mjög vinveittir. Sagðist hann mega fullyrða, að þótt Bandaríkin hefðu enn ekki gengið í bandalagið þá nyti það þó ómet- anlegs stuðnings úr þeirri átt. Það er iitið svo á, að með inn- göngu Þjóðverja í Alþjóðabanda- Iagið, sé stórt spor stigið í friðar- áttina, því nú vinni þær stórþjóð- ir sameiginlega að alheims friði, sem fyrir nokkrum árum bárust á banaspjótum. Mr. Jón Magnússon frá Gimli, Man, kom til borgarinnar á föstu- Tvær ólíkar jarðarfarir. Fyrir tiltölulega skömmum tíma, var lagður til hinstu hvíldar Dr. Charles W. Elliot, sá er í heilan mannsaldur hafði gegnt forseta- embætti við Harvard háskólann, maður, sem eigi að eins Banda- ríkjaþjóðin að verðugu dáði, held- ur og miljónir manna og kvenna út um allan hinn mentaða heim. Ja',Sarför þessa mikla manns, var Frá Islandi. Reykjavík, 17. ág. 1926. Elín Stephensen, landshöfðingja- frú varð, sjötug 13. þ.m., og var henni þá haldið samsæti á Hótel ísland. Fiskirannsóknir hafa verið fram- kvæmdar hér undanfarið af skip- inu Dana. Hefir Bjarni Sæ- mundsson m. a. tekið þátt í þeim rannsóknum. Annar af rannsókn- armönnum, meistari Thaaning, hefir nýlega skýrt frá ýmsu, sem rannsóknirnar snertir. M. a. hef- ir hann vikið að því, sem oft er talað um hér, að fiskur þverri á íslenzku miðunum vegna aukins og ófyrirleitins veiðoskapar. Tel- ur hann að ekki sé mikil hætta á slíku, því að viðkoma þorsksins sé afarmikil, en áraskifti séu að því hversu vel veiðist, og komi þar margt til greina, einkum breyti- leg lífsskilyrði, en tilgangur haf- rannsóknanna sé m. a. sá, að reyna að segja fyrir um það, hvenær og hvar sé von á góðum aflaárum og leiðbeina um það, hvernig fiskigöngurnar yrðu haganlegast notaðar. Sjómerki á að reisa innan skamms á þessum stöðum í Skafta- fellssýálu: Á Kálfafellsmelum, þar sem er sæluhús fyrir skipbrots- menn, og verður merkið lóðrétt, rauð stöng með kringlóttri, rauðri plötu, sem á verður hvít rönd upp og ofan. Annað verður um 8 km. sunnan við Eldvatnsós, ferstrend, rauð járngrind með ferstrendri, rauðri topp-plötu og lóðréttum, hvítum röndum á. Hið þriðja verður um 4 km. fyrir austan Kúðós, ferstrend járngrind, rauð, með þríhjrrndri topp-plötu, sem fest er þannig, að eitt hornið verð- ur niður, og verður platan rauð, með láréttum, hvítum röndum. Þá verður og reist varða á hæsta kletti Alvíðruhamra. Á Hjörleifs- höfða, Höttu og í Pétursey hafa þríhyrninga mælivörður verið endurreistar. ' Norskt flutningaskip, “Nord- polen”, sökk 29. f.m. á Breiða- firði, fram undan Brjánslæk, rakst þar á blindsker. Ménn björguð- ust í land með farangur sinn, en af farminum bjargaðist ekkert. Skipið var með sement og fleiri vörur, en flutti einnig símastaura, sem áttu að fara til ýmsra staða á Breiðafirði. Síldveiðaskipið Varanegr strand- aði 1. þ.m. við Skagatá. Hafði komið svo mikill leki að skipinu úti á rúmsjó, að skipverjar héldu að það mundi sökkva, og hleyptu því upp þar sem syst var til lands. Peter Hognestad Björgvjnjar- biskup er nýkominn í kynnisför hingað, og er hann fyrsti biskup, sem hingað hefir komið frá öðr- um norænum þjóðum, síðan um siðaskifti. Hann verður hér hálfs- mánaðartíma og ferðast austur um sveitir. Biskup og starfsemi hans er lesendum Lögr. annars áður kunn af ferðaminningum hr. Gunnar Árnason, sem á sínum tíma komu hér í blaðinu, og að miklú leyti sögðu frá biskups- dæmi hans.—Lögr. Sjötugsafmæli átti Halldór fyrv. prentsmiðjueigandi Þórðarson 7. júlí. Fékk hann þá margar heim- sóknir og mörg heillaóskaskeyti. Nokkrir vinir hans og kunningjar sendu honum dálitla minningar- gjöf og færðu honum hana Rík- harð Torfason bankaritari, Hall- grímur Benediktsson storkaup- maður og Gunnlaugur Einarsson læknir, og afhenti R. T. hana með nokkrum þakkarorðum til H. Þ. og óskum um hamingjusama elli- daga. Hefir H. Þ. jafnan verið vinsæll maður og vel metinn, enda að allra dómi drengur diinn bezti. Enn er hann ungur í anda og ber aldurinn vel. Fyrir 10 ár- um flutti óðinn æfiágrip H. Þ. og myndir af þeim hjónum. Hér í bænum hefir verið mikið um það talað undanfarið, að miklir gallar væru á byggingu neðstu hæðarinnar eða kjallarans á Landsspítalanum, sem nú er ver- ið að reisa. Hafði steypan ekki harðnað eðlilega á venjulegum tíma í veggjunum, og var ýmsum getum að því leitt, hvað valda mundi. Samkvæmt því, sem bæj- arverkfræðingurinn, sem rannsak- aði málið, hefir látið uppi, er miklu meira úr þessu gert manna á milli en rétt er. Segir hann, að ónýtir blettir séu að vísu í kjall- arasteypunni, og verði að brjóta þá úr og steypa í þá aftur, og muni það kosta um 5000 kr. og megi gera það án þess að raska þurfi að öðru leyti því, sem steypt hefir verið. En það er kjallari og loft yfir og fyrsta hæðin. Steypu- skemdin er talin stafa af sýrum í sandinum, sem notaður var í veggina, en það var holta- eða mýrasandur, en 1 loftin er notað- ur fjörusandur, og eru þau sögð gallalaus.—Lögr. Séra Eggert Pálsson, prófastur og alþingismaður á Breiðabolsstað í Fljótshlíð andaðist^ í Kaup- mannahöfn hinn 6. ágúst. Þegar konungur var á íslandi í sumar, hreyfði Tíminn því, að við- emandi væri að reisa konungs- höll á íslandi, þar sem konungur og drotning gætu-verið þegar þau kæmu í þann hluta ríkis sins. út af þessu hefir sú fregn flogið út um meginland Evrópu, að _ís- lendingar hafi í huga að reisa konungshöll. Blöð á Þýzkaland. og Frakklandi flytja þessa fregn, og hafa hana eftir dönskum blöð- um eða frá Kaupmannahöfn. Morg dönsk blöð hafa flutt fregn þessa og þykir mikið til hennar koma og ekki sízt fyrir það, að þessu mah hafi verið hreyft í Tímanum, blaði þeirra Tryggva Þórhallsson- ar og Jónasar frá Hriflu, en þeir hafa hingað til ekki^ þótt nemir sérlegir konungsvinir eða Dana. Hitt vita Danir væntanlega ekki.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.