Lögberg - 01.07.1927, Blaðsíða 6

Lögberg - 01.07.1927, Blaðsíða 6
BIs. € LÖGBERG, FIMTUDAGINN 30. JÚNÍ 1927. ljrigb£r§ Gefið út hvern Fimtudag af Tle Col- umbia Press Ltd., Cor. Sargent Ave. & Toronto Str., Winnipeg, Man. Talaknar. N-8327 N-0328 Einar P. Jónsson, Editor Utanáskrift til bláðains: THE eOLU^BI^ Pf^ESS, Ltd., Box 3l7f, Wlnnlpog, M«q. Utanáskrift ritstjórans: EDlTOR LOCBERC, Box 317f Wínnlpog, N|«n. Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram Th. “Lögb.r®” 1. prlntad and publlshed hr The Columbla Preea, Llmlted. ln the Columbia ■uildlng, CBt Sargent Ave., Wlnnlpeg, Manltoba. Afmælisbarnið laugað í sólskini. N'æstkomandi föstudag heldur fylkja sam- bandið canadiska, hátíðlegt sextíu ára afmæli sitt, laugað í sólskini og sumardraumum. Verð- ur þessa söguríka atburðar minst, með marg- víslegum mannfagnaði frá hafi til hafs, því margs er að minnast og fagnaðarefnin mörg. Það var 1. júlí 1867, að fylkin, það er að segja þau, er komið höfðu á hjá sér reglubundnu skipulagi, afréðu að sameinast í órjúfandi bræðralagsheild. Saga sambandsins, er ekki löng, — hún er ekki miklu lengri en einstaklings- æfin, en viðburðarík er hún eigi að síður, og ber á sér meiri æfintýrablæ , en viðgengst um sögu flestra annara þjóða. Hin canadiska þjóð hefir stigið þvílík risa skref á braut menning- arinnar, þann stutta tíma, sem liðinn er, frá því hún rann saman í ákveðna heild, að ein- stætt mun vera í sögu þjóðanna. Hún hefir verið brautryðjandi nýrra hugsjóna, nýrra manndómsmerkja, og hefir lyft þyngri G-rettis- tökum, en margar aðrar þjóðir, langtum mann- fleiri, gátu nokkru sinni látið vatn síga undir. Vitar frelsis og mannréttinda brenna æ því skýrar, er árin líða, og má þess því örugglega vænta, að þessi unga, djarfsækna þjóð, verði sönn forgönguþjóð á sviði andlegra og efnis- legra framfara. Þeir hinir snjöllu og framsýnu menn, er hyrningarsteininn lögðu, að1 þessu glæsilega þjóðfélagi, hvíla nú undir grasi grónum sverði, en frá gröfum þeirra leggur .bjarmann af sí- vakandi lýsigulls minningum þakklátrar þjóð- ar. Frá náttúrunnar hendi er Canada vafalaust eitt hið allra auðugasta land í heimi. Skiftast þar á námar, timburtekja, fiskiveiðar, kola- framleiðsla og vatnsorka, að ógleymdri þeirri feikna auðlegð, sem árlega er að finna í korn- yrkjunni og öðrum afurðum landbúnaðarins. Járnbrautar sambönd eru hér betri og full- komnari, en annars staðar í víðri veröld, og eiga þaij skilyrðislaust í því hvað drýgstan þátt, hve atvinnu og iðnaðarmálunum, hefir miðað greitt áfram. Samgöngutækin, í því því formi sem þau eru, hljóta að skoðast, meðal margra ann- ara, blessunarríkra afleiðinga, frá stofnun fylkjasambandsins. Það var traustið á sam- einaðri þjóð, er varð þess valdandi, að nægi- legt fé fékst til járnbrautalagninga, sem og annara stór-fyrirtækja hér í landi. Það er bjart yfir Canada í dag. “Sólbjarm- ans fang vefst um alt og alla”. Skrúðklæði sumarsins, fara afmælisbarninu vel og auka á yndisþokka þess. Canada-þjóðin verður sextíu ára ung á föstudaginn kemur. ^ . ' ‘‘Drjúpi’ hana blessun drottins á, nm daga heimsins alla.” og ísa, áþján og nauðir, í þúsund ár, og þeir komu með það órjúfanlega heit í huga, að reyn- ast hinu nýja fósturlandi trúir og hinum göf- ngustu málefnum þessarar þjóðar. Islendingar í Canada! Hátíðin, sem í*hönd fer, er haldin til minn- ingar um sextíu ára þroskaskeið canadisku þjóðarinnar, og þá, sem nú og á liðnum árum hafa vígt líf sitt í þjónustu hennar, og í tölu þeirra eru ekki allfáir af vorri þjóð. Látum oss því alla taka höndum saman, um að gjöra hátíðina sem veglegasta, þjóðinni canadisku til vegs, minningu þeirra, sem eftir göfugt dagsverk hvíla í helgri ró, til verðugs heiðurs, og ass sjálfum og meðborgurum vor- um til sæmdar. Canada. Þú, mikla fold, með fjöllin há, Er fjöllum öðrum gnæfa hærri, Og breiðast flestum fjöllum stærri, Þér tign er skrifuð enni á. Þú, mikla fold, er laugað lætur 1 lagar öldum þína fætur Við þriggja sæva samstemt lag, Nú syngjum vér þér gleði.brag. Þú, ljúfa fold, með frið og ró, Með fiskivötnin stærri og smærri, Með himin öllu hyeinni’ og tærri, Og sléttu-breiðu bjartan sjó Sem úthaf, kyst af logni’ og Ijóma, En líka þakinn dýrstum blóma— Heill þér, vor nýja fósturfold,, Með frjófa, dökka gróðrarmold. Þú, fold með æsku ’ og frelsi ’ á kinn, Svo full af heimsins dýrstu vonum, Gef þínum dætrum, þínum sonum Syo tæran hug sem himin þinn. Þinn frelsisbikar fram oss réttu, Ger frjótt vort starf sem þína sléttu, Og eflt sem heimsins undra-tröll, Þín ógnum þrungnu Klettafjöll. 1894 Einar Hjörleifsson. Kosningarnar. Þegar blað vort er að fara í pressuna, eru fréttirnar af kosningunum, sem fram fóru á þriðjudaginn í þessari viku, svo ófullkomnar, að enn verður ekki sagt með nokkurri vissu, hvernig þær í raun og veru hafa fallið. Samt er .ekki vafamál, að Brackenstjórnin hefir flesta fylgjendur á næsta þingi, en hitt, að hún hafi meiri hlnta allra þingmanna, er mjög vafa- samt, og meira að segja heldur ólíklegt. Þar á móti lítur út fyrir, að íhaldsmenn hafi unnið nokkur þingsæti, að mestu á kostnað hinna svo- nefndu, óháðu þingmanna, sem voni átta á síð- asta þingi. Hinn nýi leiðtogi frjálslynda flokks- ins, Mr. Robson, er kosinn í Winnipeg með miklu atkvæðamagni. Annars lítur út fyrir, að í Winnipeg hafi kosningarnar fallið þannig, að stjórnin hafi einn eða tvo þingmenn, liberalar tvo eða þrjá, conservatívar þrjá. verkam. þrjá. Eini íslendingurinn, sem hér var í kjöri, Mr. W. J. Lindal, er hinn þriðji í röðinni af þing- mannsefnum frjálslynda flokksins, og er því vel mögulegt, að hann nái kosningu. Mr. Norris, fyrverandi flokksforingi liberala, var kosinn í sínu kjördæmi sem ávalt áður. Það sýnist nokkurn veginn áreiðanlegt, að Skúli Sigfússon hafi verið endurkosinn í St. George. 1 Gimli kjördæminu hefir I. Ingjaldson fengið flest af No. 1 atkvæðum, en Einar Jónasson er ekki langt á eftir, og er það því engan veginn ólík- legt, að hann verði kosinn. Hvað bjórsöluna snertir, en ekki enn hægt að skýra frá með vissu hvernig atkvæði hafa fallið. Mikill meiri hluti Winnipeg.búa vilja meiri bjór og að auðveldara sé að fá hann held- ur en nú er, en það er enn óvíst, hvernig at- kvdeði í því máli hafa fallið út um sveitir. Þroskaskeið þjóðanna. ,■ Rœða eftir J. J. Bildfell, er viðvarpað var þann 17. þ. m. 1 skjóli framsýni, atorku og einlægni liggur þroskaskeið þjóðanna. Þegar vér lítum yfir hið stutta, en þrótt- mikla æfiskeið hinnar canadisku þjóðar, þá þurfum vér ekki að spyrja eins og skáldið ís- lenzka, þcgar það í anda leit yfir afkomu þjóð- ar sinnar: ‘‘Hvað er þá orðið okkar starf í sex hundruð sumur?” Starfið, sem fólkið í Canada hefir afkast- að, er öllum sýnilegt og það er svo mikið og ósíngjarnt, að eg get aftur tekið mér orð sama skáldsins í munn, og sagt: ‘‘Gat ei nema Guð og eldur gjört svo dýrðlegt furðuverk.” Guð máttarins og eldur viljans.” Það er ljúft að virða fyrir sér þros’kasögn hinnar ungu, og tápmiklu canadisku þjóðar. En það er naumast hægt, við tækifæri sem það, er í hönd fer, né heldur nokkurt annað þjóð- ræknislegt tækifæri, án þess, að í huga manns og hjarta vakni viðkvæm þökk og einlæg virð- ing til mannanna og kvennanna, sem lögðu grundvöllinn að myndun þessarar þjóðar og hafa helgað þroska hennar líf sitt og krafta fram á þenna dag. í því virðulega verki hefir hið íslenzka fólk, sem vestur yfir haf flutti og afkomendur þess, tekið sinn litla þátt. Hvernig sú þátt- taka hefir hepnast, er ekki mitt að dæma um, en það vildi ég benda á, að íslendingar komu ekki hingað að eins til að vinna fyrir sínu dag- legu brauði, heldur líka til þess, að undirgang- ast borgaralegar skyldur að fullu, og taka sinn þátt í framsókn og þroska þjóðarinnar. Þeir komu með þeim óbifanlega ásetningi, að reyn- ast trúir því bezta er þeir áttu í þjóðararfi sínum, því það var eina innstæðan, sem þeir fluttu með sér til að miðla þessu þjóðfélagi af, menning, tegld og tempruð við eld Þjóðhátíðin. Nefnd sú, sem haft hefir með hondum und- irbúninginn að hátíðahöldum þeim hinum miklu og margbrotnu, er hefjast næstkomandi föstudag, þann 1. júlí, í tilefni af sextíu ára af- mæli hins canadiska fylkjasambands, hefir nú að mestu leyti lokið starfi, og komið reglu- bundnu skipulagi á skemtis’krá og annan út- búnað. Skal hér nú skýrt frá megin-inntaki skemtiskrárinnar, um leið og skorað er á Is- lendinga að fjölmenna svo á hátíðarhaldið í Assiniboine skemtigarði, að samboðið sé virð- ingu þjóðernis vors. Hátíðin hefst á föstudagsmorguninn, kl. 9, með stuttri guðsþjónustu og boðskap frá konungi, við þinghús Manitoba-fylkis. Læt- ur þar og til sín heyra mikill og vold- ugur söngflokkur. Klukkan 10 hefst skrúð- förin, frá gatnamótum Broadway og Main, alla leið norður til Burrows Ave: Þaðan verður svo snúið til baka suður eftir Main St., vestur Portage Ave., suður Sherbrooke stræti og aust- ur Broadway. Endar síðan skrúðgangan á sömu stöðvum og hún hófst. Skýrir hin ís- lenzka hátíðarnefnd nokkru frekar frá tilhög- un skrúðfararinnar, á öðrum stað hér í blaðinu, ásamt ýmsu fleira, er þátttöku þjóðflokks vors í hátíðarhaldinu viðkemur. Klukkan tvö eftir hádegi, þenna sama dag, hefjast hátíðahöldin í Assiniboine skemti- garðinum. Verður þar sérhverjum þjóðflokki úthlutaður reitur iít af fyrir sig, undir fána þjóðar sinnar. Á íslenzka svæðinu, flytja stutt- ar ræður, þeir prestamir, Dr. B. B. Jónsson og séra Ragnar E. Kvaran, en söngflokkur hr. Halldórs Thorolfssonar, The Icelandic Chöral Society, skemtir þar með söng. Fara þar og fram þjóðlegar íþróttir. Verða sigurvegar- arnir síðar að taka þátt í sameiginlegri íþrótta- samkepni, og heyja þar úrslita haráttu. Þá fara og fram á opnu svæði, eða í nokk- urskonar almenningi, margvíslegar skemtanir, allan daginn. Að kveldi dags ganga svo flokk- ar hinna ýmsu þjóða, klæddir þjóðbúningum sínum inn í almenning þenna, undir þjóðfána hvers um sig, og skipa sér í eina fylking, undir merki Canada. Verður þar jafnframt til stað- ar, afar fjölmennur söngflokkur. S’korað er á fólk ,að hafa með sér nesti, því svo verður mikið um að vera, að tími vinst ekki til heimferðar, fyr en seint að kveldi. Er gert ráð fyrir að fólk neyti máltíðar um klukkan fimm. Það hlýtur að vera sérhverjum sönnum ís- lendingi metnaðarmál, að vel takist til um þátt- töku þjóðflokks vors í hinum söguríka afmælis- fagnaði fylkjasambandsins canadiska. En því að eins má slíkt verða, að allir leggist á eitt, og geri sitt bezta til. Allir þeir, er vetlingi geta valdið, og á ann- að borð eiga heimangengt, mega undir engum kringumstæðum Játa Jiátíðahöldin \ Afisini- boine garðinum afskiftalaus, heldur fara þang- að með fylktu liði. Hátíðarnefndin íslenzka, hefir lagt á sig afar mikið starf. Hepnar einu lann eru í því fólgin, að þátttaka vor í afmælisfagnaðinum,- megi verða þjóðemi voru til sæmdar. ÞEIR SEM ÞURFA .UMBER KAUPl HANN AF The Empire Sash& Door Co. Limited Office: 6th Floor Bank of Hamilton Chambers Yard: HENRY AVE. EAST. - - WINNIPEG, MAN. VERÐ og GŒDI ALVEG FYRIRTAK ^iMiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiMiiiMiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiii: | Samlagssölu aðferðin. = Sama reglan gildir um rjóma, sem aðrar búnaðar- = E afurðir, að því meira sem vörumagnið er, þess tiltölulega E E lœgri verður starfrækslukostnaðurinn. En vörugæðin E = hljóta að ganga fyrir öllu. Þrjú meginatriði þurfa að = = vera til staðar, ef vara vor á að fá það sæti, sem henni = | ber á brezkum markaði, sem sé vörumagn, reglubundnar E E vörusendingar og vörugæði. E Síðasta orð Með því að styðja yðar eigin SAMLAGSSTOFNUN eru E fyrgreind þrjú meginatriði trygð. E frá Þjóðhátíðarnefndinni. Manitoba Co-operative Dairies Ltd. 1-—Hún þakkar Jtiér með öllum þeim, sem með fjárframlögum og á annan hátt hafa stutt að undir búningi íslendinga til þátttöku í skrúð- förinni miklu, sem fram fer hér í borg á föstu- daginn kemur. En með því að enn vantar 500 dollars til þess hægt verði að mæta nauð- synlegum tilkostnaði, óskar hún að Islendingar haldi áfram að gefa, og má það afhendast á skrifstofum íslenzku blaðanna eða til féhirðis hennar hið fyrsta, helzt fyrir lok þessa mán- aðar. Þeir, sem ekki eiga hentugt með að skila af sér tillögum sínum til blaðanna eða féhirðis, geri svo vel að hafa þau til reiðu' þegar hr. Árna Thorlacíus, fjársöfnunarmaður vor, vitjar heimilanna. 2. —'Skemtiskrá dagsins er vel undirbúin. Búningar allir gerðir og reitur Islendinga í skemtigarðinum afmarkaður, þar sem fram fara bæði íþrótta-sýningar og söngur. Sleipn- ir, íþróttafélagið, sér um íþróttirnar og Choral Society um sönginn. — Program í garðinum .byrjar kl. 2, og ættu þá allir þátttakendur að vera þangað komnir. Byrjað verður þar með því, að umsjónarmaður dagsins býður alla vel- komna. Verður þá sungið “O, Canada”. Þá flytja þeir séra Ragnar E. Kvaran 5 mínútna ávarp á íslenzku og séra Björn B. Jónsson á ensku. Verður þá sungið ‘‘Ó guð vors lands.” —Kl. 2.30 stundvíslega byrja íþróttimar með kapphlaupum. 1 þeim taka þátt piltar og stúlk- ur frá 8 ára til 18 ára, og verða Þrenn verð- laun gefin hverjum flolck, frá 75c, 5Qc, 25c til $1.75, $1.50, $1.25. Vinnendur í hverjum flokk keppa einnig í úrslita kapphlaupunum kl. 5 síðdegis. — Ógiftra kvenna ‘‘Boot and Shoe Race”, þrenn verðlaun, $1.25, $1 og 50c. Og giftra kvenna ‘‘Boot and Shoe Race”, verðl. $1.25, $1 og 50c. — Verðlaunin öll borguð í vörum. — íslenzka Choral Society syngur nokkur lög síðari hluta dagsins., Óskað er að foreldrar þeirra barna , sem keppa í íþróftun- um, verði komin með þeim út í garðinn, ekki síðar en kl. 2 e. h. 3. —Kl. 7 til 8 að kveldinu sýna þær korrar sig í skemtigarðinum, sem klæddár em íslenzka faldbúningnum, 12 alls. Þær verða þar undir leiðsögn Mrs. Ovidu Swainson, sem annast hef- ir um allan útbúnað þeirra. 4. —Nefndin skorar hér með alvarlega á alla þá menn, sem lofað hafa að skipa sæti á skrúðvagni íslendinga þann 1. júlí, að mæta í salnum undir Fyrstu lút. kirkju á Viétor str. kl. 7 á fimtudagskveldið í þessari viku, svo að hægt verði að reyna á þá húningana, sem þeir verða í á skrúðvagninum á föstudaginn. Nefnd- in hefir ekki átt kost áð finna alla þá að máli í þessu sambandi sem æskilegt hefði verið, og biður því þá, sem ekki hafa verið ráðnir, en vildu skipa sæti á vagninum, og nálgast þriggja álna hæðina, áð koma í salinn á fimtudags- kveldið, svo að hægt sé þar að velja þá 73 menn sem Lögréttuna eiga að skipa á.vagninum, því ekkert sæti má vera autt þegar skrúðförin hefst á föstudagsmorguninn. 5. —Nú, þótt búningarnir verði reyndir á menn þessa í lút. kirkjusalnum, þá verða þeir að klæðast þeim í neðri Goodtemplara salnum á Sargent Ave. á föstudagsmorguninn og að vera komnir þangað kl. 7 að morgni eða eins fljótt þar eftir, eins og þeim er frekast mögulegt, því svo er ákveðið, að allir verði komnir á vagn- inn suður undir Broadway kl. 8.30 á föstudags- morguninn og losist ekki þaðan fyr en um há- degi, að skrúðförinni er lokið. 6. —Með-því að all-löng leið er frá Good- templara salnum á Sargent Ave. suður að Broadway og ótækt fyrir þá 73 menn, sem skipa sæti á skrúðvagninum að ganga þá leið alla, þá hiður nefndin hér með alla íslendinga, sem hif- reiðár eiga að sýna nefndinni og málefni því, sem hún starfar að, þá góðvild að koma með vagna sína að salnum og keyra mennina suður á skrúðgönguvagninn, ekki seinna en kl. 8 að morgni. Nefndin biður þess innilega að menn hafi þetta hugfast og sinni beiðni hennar. Sömuleiðis biþur nefndin að einhverjir ís- lendingar verði svo góðir að keyra þær 12 kon- ur, sem faldbúninginn hera, og Mrs. Swainson með þeim, vestur í garðinn kl. 1.30 e. h. Hún vonar að keyrsla þessara manna og kvenna verði gerð ókeypis til stuðnings nauðsynlegrar þátttöku Islendinga í hátíðarhaldinu. — Kon- urnar verða í neðri Goodtemplarasalnum stundvíslega kl. 1.30 e. h. 7. —Þeir sem fara út í garðinn að deginum og ætla sér að dvelja þar fram á kveldið verða | 846 Sherbrooke St. - ; Winoipej,Manitoba | niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiMiMiiiiiiiiiiiR að hafa með sér máltíð, því ekki verður matur fáanlegur í skemtigarðinum fyrir þær mörgu þúsundir manns, sem þar verða saman komnar á föstudaginn kemur. Nefndin. Hagalagðar. “Það er dauflega dapurt að ferð- ast um þessar nýbygðir ykkar landi minn! og sjá mörg, bændabýli, hús og margs konar mannvirki í eyði . og órækt. Það er eins og ræningja- flokkur hafi farið um og látið greipar sópa;,” sagði ferðamaður “Propp” er hér hafði viðdvöl ný- lega við kunningja sinn G. Hvað kemur til, eg hefi hvergi þar sem eg hefi farið séð jafn óhugguleg afturfarareinkenni í nýbygðu landi. Manitoba hefir þó verið og er álit- ið næsta ríkt land víðast hvar, ef ekki til kornyrkju þá til gripa og sauðfjárræktar, — það væri fróð- legt að fá að vita af hverju fólkið hefir yfirgefið lönd og eignir; ekki hefir það alt dáið og skilið þannig við. G: “Ó-nei, vinur minn, ekki er því um að kenna, fólk er hér yfirleitt óánægt, og umbreytingagjarnt, og munu vera margar ástæður fyrir að svo er; það er ekki furða þó þér bregði við, sem ert umgirtur kaffleti hveitilandanna í þínu bygð- arlagi! Þessi bygð okkar er ung og að mörgu leyti á bernsku skeiði. Fyrir bæði innri og ytri ástæður hafa bændur fáir hér, náð tökum á kornyrkju sem teljandi er. Suma þeirra hefir brostið yerklega þekk- ingu í þeim efnum, og flest alla fjármagn það sem hér þarf að hafa til jarðyrkju' ‘á byrjunar skeiði, edna hafa flestir gefist upp við það og árangurinn orðið bara erfiði og vonbrigði. Því eins og þú veist geta búlönd verið mjög misjöfn að gæðum, jafn vel á sömu “section” þarf máské 6—8 hestöfl til að hreyfa plóginn og 2—3 á öðr- um blettinum, og samt eru löndin virt jafnt til útgjalda. Hér á þetta sér víða stað, þetta er bara eitt dæmi af fjölda mörgum um ónær- gætni í garð bændastéttarinnar. All- margir hafa komist að þeirri nið- urstöðu að þéir hefðu verið hetur af að hafa ekki óskað eftir að fá eignarrétt á landi hér, því skattar eru Iagðir svo háir á þessi lítt ræktanlegu, og óræktarlönd, að það er líkast því að menn séu árlega að borga kaupverð Iands sins, og er það eitt af því sem hefir gefið mönnum ástæðu til að fara burtu, og svo eftir því sem fleiri bændur hverfa úr félaginu þyngjast útgjöld þeir sem eftir eru, og fá máské þar fyrir aðkenningu af sama burt- farar kvillanum. Ekki ber á því, að þing og stjóm- arvöld gefi þessu neinar gætur, í þá stefnu að stöðva útstreymið. Bænd- ur eru látnir sæta ívilnunar kjörum auðfélaga og verksmiðju konung- anna; með því að kaupa hátolluð— öll verðfæri, sem framleiðslu at- vinna útheimtir. Fátækir geta feng- ið þau að vísu með niðurborgun á tíma, og við ber og ósjaldan að þau eru tekin aftur, eður annað af bú- stofninum, ef ekki er staðið í skil- um, engin lánsstofnun aðgengileg fyrir þá er til, svq sem vera ætti vaxtalétt, eða með engum prósent- um með því tilliti að greiða vegi framleiðslunnar. Af því sem hér er greint, hefir þú fengið, býst eg við, nokkra hugmynd um óheilbrigði bygðarinnar, er þó ekki alt talið, sem miklu máli skiftir. P. :Það er hálf þvingandi að hlusta á þennan framburð þinn. Eg held að það hljóti að vera einhver vanheil- indi í mönnunum sjálfum, sem valda þessu ástandi. Mér sýnist landið víða fremur byggilegt og broshýrt, bjóða sig fram til nyt- semdar og hagnýtingar, ef það væri starfrækt af einbeittum á- huga. Eg hefi ekki óvíða farið fram hjá háum hæðum af haug- taði gripa, sem ekki sjást hjá okkur, og óskað í huga að einn væri horfinn í nálægð við akur- inn minn. Það er það sem okkur er peningagildi til að bæta akra og engjalönd. Eg skil ekki 1 því, að engjalönd hér hefðu ekki verið móttækileg fyrir það, þar sem ekki voru kornyrkjublettir. Mér sýnast þessir háu haugar bera vott um fyrirhyggjuleysi manna í búsýslu, og ef að þeim hefir verið jafn áfátt í mörgum grein- um í bústjórn sinni, þá er ekki furða þótt máttarstoðin meirnaði að neðan. Mér er enn ekki full- ljóst, í hverju löndin og land- stjórnin er orsök i vanlíðan hænd- anna. Stjórnin hefir sýnt þeim dálitla hluttekningu, eftir óskum þeirra; hún hefir lánað mörgum bústjóra kynbótaskepnur af mörg- um tegundum, til umbóta kyn- jtofni kúa, sauðfjár 0. f 1.; hún hefir látið kaupa handa fátækum “umsækjendum” kýr iog lánað með vissu áikvæði verð þeirra. Þetta er nú það sem eg man eftir, en getur verið fleira. G.: Já, vinur minn! Það er auðheyrt, að þú ert ekki nógu kunnugur á þessum svæðum. — Þú hefir rétt fyrir þér að sumu leyti. Þetta er gott og blessað, þar sem það hefir náð tilgangi sínum. En eg get sagt þér og sýnt, hversu það hefir mishepn* ast. En eg bið þig taka vel eftir, 0g misskilja mig ekki. í fyrsta lagi, hvað löndin á- hrærir, læt eg nægja það sem eg hefi áður á þau minst; en hvað snertir kostakjör kynbótadýranna hefir með nautin ekki neitt veru- lega náð væntanlegum tilgangi, vegna þeirrar ástæðu: að eftir að byrjað var á því, hrapaði verð á nautgripum svo að ekki var tækilegt að ala upp gelda eður neina gripi til að selja, því þeir náðu ekki að borga framleiðslu- kostnað; varð því að lóga flestum kálfum hið allra fyrsta, utan kvigukálfa undan 2—3 beztu kúnum. Á því getur þú séð, hvað þetta náði mikilli framför í kyn-_ bótum nautgripa. Um kýrkaupin handa mönnum, sem þú minnist á, er svipuð saga að segja. Til þeirra útréttinga og innkaupa fal stjórnin sérstök- um mönnum alla umönnun, og var það af sumum þeirra skað- lega illa af hendi leyst, fyrir ó- vandvirkni með kúaval í innkaup- unum, í stað þess að ekki hefði átt að líta við nema úrvals kúa- kyni. Líklega mikið fyrir þessa skuld lentu margir í vanskilum með að borga þessar kýr á um- sömdum tíma, og við þenna bú- hnykk stjórnarinnar í bændanna garð, mun ríkið hafa tapað stórfé, fáum mönnum til gagns og fjölda til óheilla, þegar á alt var litið. Fjárstofn bænda er það helzta, sem hefir náð umbótum fyrir það, að þeiri hafa margir keypt “skrá- settan” (registered) hrút, einn af þessu kyni og annar af hinu, en markaður fyrir sauðfé hefir ver- ‘ið mjög hvikull og óábyggilegur. Hjúin gera garðinn frægan. Eins og eg hefi áður minst á, er þessi bygð ekki gömul, hefir myndast á rúmum 30 árum, og stofnuð að mestu leyti af fátæk- um og félausum innflytjendum, sem lifðu að eg hygg flestir /

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.