Lögberg - 19.01.1928, Qupperneq 1
41. ARGANGUR |
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 19. JANÚAR 1928
Helztu heims-fréttir
Canada
íhaldsmenn í Saskatohewan-
fylki, hafa ákveðið að halda flokks
þing í iSaskatoon, dagana 14. og
15. marz nsestkomandi, með það
fyrir ugum, að kjósa fylkisleið-
toga fyrir flokkinn. Líklegt þyk-
ir einnig, að þar komi til mála, að
stofna nýtt íhaldsblað. Forkólf-
ar íhaldsins í Saskatchewan, telja
liklegt, að 756 kjörnir fulltrúar
muní sæti eiga á flokksmóti
þessu.
* * *
Sir Herbert Ames, sá er um eitt
skeið átti fyrir Canada ihönd, sæti
I f jármálanefnd Þjóðbandalags-
ins, hefir nýverið lýst yfir því,
að fimm þjóðir, er til bandalags-
ins teljast, hafi vanrækt greiðslu
á meðlimagjöldum sínum. Þjóðir
þessar eru: Nicaragua, Honduras,
eru, Bolivia og Kína. Þykir Sir
Herbert þetta vera, sem eðlilegt
er, alt annað en glæsilegt ásig-
komulag.
* * *
1 desembermánuði síðastliðnum
voru fluttar út frá Vancouver,
hartnær tólf miljónir mæla af
hveiti. Er það drjúgum meira en
I tilsvarandi mánuði, árið þar á
undan.
Látinn er fyrir skömmu í Tor-
onto, W. J. Robertson, víðkunnur
mentamálafrömuður, áttatíu og
fjögra ára að aldri. Voru bækur
hans lengi vel notaðar, sem kenslu-
bækur í canadiskri og brezkri
sögu, í miðskólum Ontario-fylkis.
* * *
IFyrstu þrettán dagana af þessu
ári hefir veðrið í Manitoba, og
annars staðar í Sléttufylkjunum,
verið alveg óvanalega milt. Frost-
laust flesta dagana og hitinn oft
meiri en 40 stig fyrir ofan zero.
Eitt kveldið, 11. janúar, rigndi
töluvert hér í Winnipeg. Menn,
sem hér hafa lengi verið, svo sem
Joseph Fahey og Matheson bisk-
up, segja að svona langur frost-
leysis-kafli hafi aldrei komið hér,
um þetta leyti árs, síðan veturinn
1877-78, sem var lang-mildastur
allra vetr'a síðan Manitoba bygðist
hvítum mönnum. Segir Mr. Fa-
hey, að þá hafi hann og þeir, sem
með honum voru, unnið við járn-
brautarvinnu allan veturinn, án
þess að klæða sig öðru vísi en
vani þeirra var að sumarlagi, og í
janúarmánuði hafi þeir höndlað
járnbrautarteinana með berum
höndum. Á föstudagskvöldið, hinn
13. þ.m., kólnaði og snjóaði nokk-
uð, en ;í dag, mánudag, er aftur
gott veður og milt. Einhverjum
hagfróðum mönnum telst svo til,
að þessi undanfarni góðviðriskafli
hafi sparað Winnipegbúum um
$219,000 í eldivið.
* * *
Earl Nelson, sá er myrti Mrs.
Emily Patterson, og sem haldið er
að myrt hafi yfir tuttugu konur,
var tekinn af lífí í Winnipeg,
snemma morguns hinn 13. þ.m.
Aldrei kannaðist hann við að hann
væri sekur, en lýsti y,fir því á síð-
ustu stundu, að hann væri sak-
laus. Líkið var sent til California,
samkvæmt ráðstöfun ættingja
hans þar. i
* * *
Hon. R. B. Bennett, leiðtogi í-
haldsflokksins |í Canada, var
staddur í Winipeg á fimtudaginn
og föstudaginn í .vikunni sem leið.
Var honum mjög vel tekið, eins
og við mátti búast. Unga fólkið
bauð honum í dansveizlu mikla og
eldra fólkið bauð honum i aðra
veizlu. Þar hélt Mr. Bennett eina
af sínum snjöllu ræðum. Hvatti
hann áheyrendur sína mjög til
þess, að kynna sér sem vandleg-
ast sögu þessa lands, því annars
gætu þeir ekki orðið góðir borg-
arar landsins, eða tekið skynsam-
legan þátt í málum þess. Því
meira sem menn vissu um sögu
landsins, því betri og þjóðhollari
Canadamenn yrðu þeir áreiðan-
lega. Þá gleymdi Mr. Bennett
ekki að minna á, hve afar áríð-
andi það væri Canadamðnnum, að
varðveita ogi halda fast við hið
brezka, andlega erfðafé, sem á-
valt ætti að vera vort leiðarljós.
Sem þjóð ættum vér Bretum til-
veru vora að þakka, því þeir
hefðu lagt líf og fé í sölurnar
fyrir þetta land. Viðhald þess hér
i landi sem brezkt væri, væri enn
stefna íhaldsflokksins og mundi
ávalt verða. — Mr. Bennett hefir
ferðast um mestalla Canada, síð-
an hann var kosinn leiðtogi í-
haldsflokksins, til að kynnast
mönnum og málefnum sem víðast
í landinu. Ekki lítur út fyrir ann-
að, en að flokksmenn hans, og
aðrir, uni því vel að hann var
kosinn leiðtogi flokksins.
* * *
Mackenzie King forsætisráðherra
segir, að það sé enginn fótur fyr-
ir þeim blaðafréttum, að nú eigi
að breyta um titil landstjórans í
Canada og að hann eigi hér eftir
að vera nefndur undirkonungur
(Viceroy). Þetta eigi sér hvergi
stað í brezka ríkinu, að fulltrúar
konungsvaldsins séu nefndir und-
irkonungar, nema á Indlandi, en
þar sé alt öðru máli að gegna
heldur en í öðrum löndum hins
brezka ríkis, eins og t. d. Canada,
sem hafi algerlega sína eigin
stjórn út af fyrir sig.
* * *
Eins og getið var um í síðasta
blaði að til stæði, þá hefir það
nú verið fullráðið, að Canada
stofni sendiherra embætti á Frakk-
landi og jafnframt að Frakkar
hafi sendiherra í Canada. Stjórnin
í iCanada hefir enn ekki útnefnt
sinn mann, en talið er sjálfsagt,
að það verði annað hvort Hon.
Phillippo Ray, eða Hon. Raoul
Dandurand, sem nú er fulltrúi
Canada í Þjóðbandalaginu.
■*■ * *
Hon. Peter Veniot, póstmálaráð-
herra í Ottawa, lætur svo um
mælt, að ef hann haldi áfram sínu
embætti, þá skuli hann sjá um, að
póstur verði fluttur í loftinu, á
einum degi frá Montreal til Van-
couver., Ekki tók hann þó nánar
til, hvenær þetta mundi verða.
* * *
Stjórnin í Britsh Columbia hefir
látið mæla nákvæmlega hæð fjalls
þess, sem nefnt er Mystery Moun-
tin, og er það 150 mílur norðan
við Vancouver. Reynist hæðin að
vera! 13,260 fet. Þetta er hæsti
tindurinn í British Columbia.
Bandaríkin.
Henry Ford gerir ráð fyrir að
fljúga suður til Brazilíu, áður en
langt líður, til að skoða togleðurs
gróðrarstöð, sem félag hans á þar.
Hann segist hafa mikinn áhuga á
loftferðum, og hann sé sjálfur að
vinna að því, að 'bæta loftförin,
og telur hann enga hættu á því,
að þau útrými bílunum. Munu
þau farartæki bæði verða notuð.
Ford Hugsar til að fljúga ein-
hvern tíma ^il Evrópu, þegar loft-
fórin verða fullkomnari og reglu-
legar loftferðir komast á yfir
hafið.
* * *
Hundrað níutíu og fimm þús-
und dalir hafa John Hopkins há-
skólanum verið gefnir og er ætlast
til, að hann verji þeim til þess að
rannsaka orsakir kvefs og finna
ráð til að lækna það, eða koma
í veg fyrir það ef hægt er. Þessi
sjóður á að heita “John J. Abel
Fund for Research of the Com-
mon Cold.”
* * *
Frank B. Kellogg, utanríkisráð-
herra, sem nú >er 71 árs að aldri,
frétti nýlega frá heimaborg sinni,
St. Paul, Minn, að umtal væri
um það, að útnefna hann sem for-
setaefni við kosningarnar 1928.
Honum varð' það eitt að orði, að
það tæki engu tali.
* * *
Hinn 30. desember voru fimm
sjóliðar drepnir og tuttugu og þrír
særðir í Nicaragua, af 500 inn-
londum mönnum undir forystu
Louis Mason Gulick herforingja.
Bandaríkjastjórnin hefir sent
þangað meira lið.
* * *
Hinn 12. þ.m. voru þau Mrs.
Ruth Snyder og Henry Judd Gray
tekin af lífi í Sing Sing fangels-
inu. Höfðu þau verið fundin sek
um að hafa myrt Albert Snyder,
mann þessarar konu, hinn 20.
marz 1927.
* * *
Fyrstu tvo daga þessarar viku
var Coolidge forseti staddur í
Havana, Cuba. Sótti hann hinn
sjötta Pan-American Congress og
flutti þeim, sem það þing sóttu,
vinakveðju Bandaríkjanna.
Bretland.
Eftir skýrslum samgöngumála-
ráðuneytisins brezka, hefir fólks-
og vöruflutningabílum á Bret-
landi, fjölgað mikið á hinu ný-
liðna ári. Við lok síðastliðins
ágústmánaðar, voru bílaleyfin
1,853,794, til móts við 1,689,722, á
sama tímabili árið á undan.
* ■*• *
Ráðist var nýlega að næturlagi
inn í búð silfursmiðs eins á New
Bond stræti í Lundúnum, og stol-
ið þaðan sjö þúsund sterlings-
punda virðí af allskonar skraut-
varningi. Bófarnir skildu eftir í
búðinni ferðatösku, geitarskinns-
hanzka og hinn og annan varning,
er þeir höfðu haft meðferðis. En
þrátt fyrir það, var lögreglan engu
nær, er síðast fréttist.
* •*• *
Skáldið og rithöfundurinn Thom-
as Hardy lézt á hemili sínu í Dor-
chester á Englandi, á miðvikudag-
inn 11. þ.m., 87 ára að aldri. Sög-
ur hans eru vel kunnar í öllum
löndum, þar sem ensk tunga er töl-
uð, og hefir jafnan þótt mikið til
þeirra koma. Var honum margs-
konar sómi sýndur meðan hann
lifði og nú hefir hann verið jarð-
aður í Westminster Abbey, eins og
mörg önnur ’ rezk stórmenni.
* * *
Tilraunir eru Bretar nú að gera
í þá átt að koma á betra samkomu-
lagi milli verkveitenda og verka-
manna. Hafa þeir, eins og kunn-
ugt er, félagsskap sín á milli hvor
um sig, og er þar oft mikið stríð
á milli, þó ekki sé vegist með
vopnum. Er hér um nokkurn veg-
inn sömu hugmynd að ræða, eins
og þ egar stofnað hefir verið til
afvopnunar funda og þinga meðal
þjóðanna eða með öðrum orðum:
minna stríð, en meiri skilning og
betra samkomulag- Heitir sá Sir
Alfred Mond, sem er frumkvöðull
þessarar hugmyndar. Eru nú full-
trúar verkamanna og verkveitanda
að halda þing í London og gera
sér margir von um, að eitthvað
gott muni af því leiða.
* * *
Prinzinn af Wales er mikill
veiðimaður, eins og kunnugt er,
og fer hann víða um lönd bænd-
anna á veiðferðum sínum, og hef-
ir sjálfsagt kynst ýmsum þeirra á
þeim ferðum. Fyrir skömmu bauð
hann í veizlu til sín átta hundruð
bændum og bænda vinnumönnum.
Setti han þar næst sér sex vinnu-
menn, sem allir höfðu unnið að
minsta kosti 50 ár hjá sömu fjölr
skyldunni, og á sama stað. Sá
þeirra, sem lengst hafði verið
vinnumaður í sama stað, heitir
James Adkins. Hann er nú kom-
inn yfir sjötugt, en gengur þó
tvær mílur á hverjum degi til að
stunda vinnu á sama býlinu, þar
sem hann byrjaði að vinna sem
léttadrengur þegar hann var tíu
ára gamall. Á þessum rúmum 60
árum, sem Adkins gamli hefir
vnnið þarna, hafa þrisvar orðið
þar húsbændaskifti, þannig, að
sonur hefir tekið við af föður.
* * *
Ung stúlka sótti fyrir skömmu
bréflega um atvinnu, og veitti
eftirgreindar upplýsingar í bréf-
inu til vinnuveitanda: “Eg er 18
ára, leik þó nokkuð á piano, hefi
yndi af sundi og dansa vel. Eg
hvorki reyki né heldur fæ mér í
staupinu, en víðvarpssamband
verð eg að hafa í svefnherbergi
mínu. Helzt vildi eg eiga frí á
sunnudögum, því eg starfa mikið
að kirkjumálum. En í því falli, að
þér vilduð leyfa unnusta mínum
að heimsækja mig tvisvar í viku
yfir vetrarmánuðina, þá mundi eg
að sjálfsögðu hætta kirkjuferðum
um tíma.”
Hvaðanœfa.
Böðuls-embættið í Czecho-Slóvak-
íu, var nýlega auglýst laust. Um
það leyti, er umsóknarfresturinn
var runninn út, höfðu stjórninni
borist fimtíu og níu umsóknir. Var
ein þeirra frá prófessor í guð-
fræði, — og prófessorinn — var
kona.
■*••*■•*
óðalsbóndi einn, vel við álnir,
búsettur að Szabka á Ungverja-
landi, var fundinn sekur árið 1913
um að hafa myrt dóttur sína, var
hengdur. Nú hefir það sannast,
að maðurinn var saklaus af lífi
tekinn, með því að bréf frá dóttur-
inni fanst, þar sem hún kveður
sifjalið sitt Yilt, og segist vera
rétt í þann veginn að fremja
sjálfsmorð.
Signora Rachele Mussolini, kona
alræðismannsins ítalska, sem all-
ir kannast við, að nafninu til, er
sögð kona góðhjörtuð og er sagt
að hún fhafi mikil áhrif á mann
sinn til góðs, en hann þykir ann-
ars 'heldur harður í horn að taka,
eins og kunnugt er, Þessi kona er
af fátæku fólki komin og hefir um
sína daga unnið bændavinnu,
verið smalastúlka og vinnukoa og
unnið á veitingahúsum, en er nú
kona æðsta valdhafa á ítalíu. Það
er sagt, að gamli Mussolini hafi
varað hana sterklega við að gift-
ast syni sínum, Benito. “Forð-
astu að hugsa um þennan unga
mann”, á hann að hafa sagt, “þér
væri betra að verða fyrir járn-
brautarlest. Ef þú giftist honum,
þá nýtur þú engrar ánægju og
hefir aldrei frið.”
Stefán frá Mjóadal.
Eftir E. H. Johnson.
Stefán og stríðið.
Alheims blóðbað, vopnabrak,
dauðastunur, harmakvein, og alt
geFist þetta á tuttugustu aldar,
al-jarðar leiksviðinu, þar sem
krossfánar blöktu yfir borgar-
rústum og blóðugum val.
Stefnt er til fundar í stjórnar-
ráðum, því nú stendur mikið til:
að helsvelta ehilar þjóðir til
hlýðni, Fræðimenn vinna dag og
nótt, því nú borgar sig ekkert bet-
ur en framleiðslan á bráðdrep-
andi eiturefnum.
Prestarnir, sumir, prédika um
guðs reiði yfir óvinunum; þeir,
sem ekki vilja vera með, missa,
allflestir, bæði kjólinn og kallið.
Friðsamir jafnaðarmenn, er
manna mest höfðu trúað á alþjóða
samvinnu, hervæðast- til orustu
við alþýðumenn í öðrum löndum.
Er heimurinn orðinn brjálað-
ur? Enginn hefir tíma til að
hugsa um slíkt, því nú heyrist
þytur í lofti. Fluggammar, síð-
asta undrasmíði mannvitsins,
fljúga þar til mannaveiða. Þeir
bera öflugar sprengikúlur í klón-
um. Enginn getur sagt, nema
hann sjálfur eða eiginkona hans
og ástvinir, verði fyrir þeirri eld-
rigningu.
Tímarnir eru ekki hentugir fyr-
ir rólega athugun og heimspeki-
legar hugle'iðingar.
Friðsamt kaupskip, hlutlausrar
þjóðar, flytur matvöru milli
landa. Brezkur vígdreki sendir
skot fyrir framan stefni. Hingað
og ekki lengra, segir sjóliðinn,
bæði farmur og skip er hernum-
ið í kóngsins og laganna nafni. —
Það er ekki rán, heldur sjálfsagt
öryggisráð í ófriði. Allar þjóðir
mundu haga sér nákvæmlega eins,
ef um þeirra eigin líf væri bar-
ist.
.Skrautlegt farþegaskip brunar
yfir sædjúpið, alfrjálsa. Með því
er fólk á ferð. Vélaskrímsli ægi-
legt, með gunnfána Þýzkalands í
stafni, rís upp ur öldunum.. Skot-
hvinur eyðir hinni draumdjúpu
uthafsþögn. Skipið riðar, sem
helsært dýr, hallast á hliðina,
fyllist sjó — og sekkur. Móð'irin
hjúfrar barnið sér að brjósti, sem
vilji hún hlífa því fyrir hafkuld-
anum; hún andvarpar, lyftir aug-
um til himins, biður sér bjargar
— og druknar.-------Þetta er ekki
morð, því alt má gera fjo-ir föð-
urlandið í lífshættu.
En hví skyldi maður endurkalla
þessar ógna myndir? Er ekki
gustuk að lofa mönnum að
gleyma? Nei, við verðum alt að
muna, eigi hið umliðna að verða
oss tíl lærdóms og viðvörunar.
Hvenær munu vor manna mein
læknast, ef við, af tómri með-
aumkvun við eigin tilfinningar,
hlífumst stöðugt við að horfast í
augu við óþæg*ilegar staðreyndir?
Hvaða álit myndum við hafa á
þeirri læknisfræði, sem gengi á
snið við holdsveiklina, af því hún
er ógeðsleg, eða vísvitandi gleymdi
því, að tæringin sé til, af því hún
er heiminum slíkuþ harmgjafí.
Jú, en við berum enga ábyrgð á
þessu athæfi, ófriðurinn er ekki
okkar verk, og styrjöldin engin
spegilmynd af ínnræti mannkyns-
ins ‘— mundi verða afsökun all-
margra. öllum ber undantekn-
ingarlaust saman um, að styrjöld-
in hafi ekki verið sér að kenna.
Það var einhver óþokki, sem kom
því öllu á stað; undarlegt, ef satt
væri, á þessari lýðræðis öld.
Við skulum, til skilningsauka,
athuga feitletruðu fréttagreinirn-
ar frá ófriðarárunum. . . . “Þjóð-
herinn þýzki gertr innrás í Belgíu,
en landsmenn veita viðnám í virkj-
um ssínum” . . . “Innbrotsherinn
hefur stórskota áhlaup, jörðin
skelfur, virkin hrynja. Ein af
smáþjóðunum í Evrópu hefir eytt
300 milíón'ir dolurum til einskis.”
.... “Stórflotinn brezki, hinn
voldugasti sjóher veraldarinnar,
lokar öllum leiðum um Norður-
sjó'inn” ....
Hver bygði þessi skip, þessar
voða byssur, þessi ramgjörðu vígi
—og til hvers? Alþjóð allra landa
gerði það. Vísindin lögðu til hug-
viit og þekking, verkamenn vinn-
una og þegnarnir borguðu. Til
hvers? Til að verja .föðurlandið,
til þess að drepa menn, ef á þyrfti
að halda, og flesta grunaði, að að
því mundi reka fyr eða síðar.
Af hverju spratt sá ótti? Af
þekkingu á sjálfum sér og öðrum.
Reynsla liðlinna alda hafði átak-
anlega sannað, að hnefarétturinn
er æðsta úrskurðarvald í alþjóða-
málum, og nútíðin er ekki vitund
frábrugðin fortíðinni, í þessu at-
riði — eða hún að minsta kosti
var það ekki árið 1914.
Rússar sátu yfir rétti Finna
og þjáðu Pólverja, en Þjóðverjar
beittu alls konar yfirgang'i við
Dani í Slésvík, Pólverja í Pósen og
Frakka í Elsas-iLotringen. Bretar
daufheyrðust við frelsiskröfum
íra, Frakkar herjuðu á Móra o. s.
frv. Hvaða stórveldi hafði ekki
beitt smáþjóðlir ofbeldi? Hvaða
stórþjóð — og mörg smáveldi
líka — hafði ekki rænt löndum í
öðrum álfum?
Það var búið að stela Afríku
allri, að Abessyníu undanskildri,
en hún var frjáis einungis af því
hún hafði manndóm til að verja
sjálfstæði sitt í ótal mörgum og
mannkæðum orustum.
Asía er öll í hershöndum Norð-
urálfu stórveldanna, að Japan
undanteknu. Af hverju er þetta
eina ríki eftir skilið? Af því það
getur varið sig með vopnum: af
því það á orustu-dreka, vígvélar
og öflugan her. Þjóðfrelsið þrífst
að eSns í skjóli morðtólanna. Þeir
sem engin efni hafa til þess að
eignast þau sjálfir, kaupa sér með
einhverju móti vernd hjá öðrum.
Einstöku þjóðir, svo sem: Balk-
an þjóðirnar, ítalir, Ungverjar og
Bélgíumenn, höfðu brotist undan
annara áþján með vopna-valdi.
Þjóðverjar urðu stórveldi og
græddist auður og álit með stór-
sigrum sínum yfir Austurríkis-
mönnum og Frökkum. Bretar áttu
alt sitt velgengi undir flotanum.
örfáar vígbúnar stórþjóðir ráða
öllum veraldarmálum, og stjórn-
arstefna þeirra mótast af hinni
grimmustu samkepn'i. Stjórn-
vizkan gekk að mestu út á að koma
ár sinni sem allra bezt fyrir borð
og ná í sem mest hlunnindi og sem
allra stærstar inntektir fyrir s!ig
sjálfan. '
í þessu umhverfi skapaðist eðii-
lega óttinn við nágrannana og
trúin á öflugar hervarnir.
•Að vísu voru tíl vitringar í öll-
um löndum, sem ofbauð þessi her-
skapar hugsun og sögðu, að ilt
mundi af henni hljótast, en þeir
voru gjörsamlega máttvana gagn-
vart virkilegleikanum. Næstu ná-
grannarnir voru alt af að smíða
öflugri varki og magnaðri morð-
tól, — sögðu blöðin. Gagnvart
þessu máttu þeir aldrei vera var-
búnir. Jafnvel friðsamir einstak-
lingar búast til bardaga, þegar
vopnaðir ræningjar eru á, næstu
grösum.
Vígbúnaðurinn óx, og ófriðar-
hættan magnaðist.
Það stoðaði lítið, þótt einstöku
einstaklingar lifðu áhyggjulausir
í algerlega undirstöðulausri hug-
sjóna paradís. Þeir reyndu ein-
att að telja heiminum trú um, að
öllu væri óhætt, því mannkynið
væri vaxið upp úr allri villimensku
og siðaðir menn færu ekki að berj-
ast eins og óargadýr. Þessir
menn urðu sízt til þess að afstýra
hættunhi. Ef fóll^ið hefði í raun
og veru vitað hvert stefndi, mundu
einhver öryggismeðul hafa verið
reynd í tíma. Ef þrjátíu miljón
mæður hefðu séð fram 1 framtíð-
ina og vitað hvað barna þeirra
beið á vígvöllunum, mundi frið-
arvonina ekki hafa skort áheyrn.
Ef feðurna hefði grunað að þján-
ingar og tár örmagnanna í öðrum
álfum yrðu að borgast með þeirra
eigin ættar blóði, hefðu þeir sem
einn maður staðið á verði yfir
rétti lítilmagnans. Ef alþjóð
hefði séð, að það var ómögulegt
að hafa varanlegan frið í ná-
grenninu, ef einstaklingarnir, eða
þjóðirnar, temja sér ránskap og
eru þektir að yfirtroðslu.
Það er enginn ábyggilegur
millibilsvegur til. Annað hvort
verða viðskifti manna og þjóða
að byggjast á réttlætí eða vopna-
viðskiftum.
Sú friðarstefna, sem verndað
getur heimsfriðinn, verður að eiga
djúpar rætur í sjálfu þjóðlífinu—
hún verður að eiga alment al-
þýðufylgi. Reynslan hefir líka
sýnt, að græðist einhverju mál-
efni alþýðufylgi, er því sigurinn
vís. Annars væri líka alt vort
hjal um ágæti lýðræðisins eintóm
heimska.
Andvarpaði almenningur aldrej
undan þessu fargi? Jú, oft, af
því að skattbyrðin var næstum
því óþolandi, en hver hefir nokk-
urn tíma heyrt þess getið, að
kjósendur hafi krafist þess að
Kínverjar væru látnir í friði, að
Hottintottum yrði ekkert ofbeldi
sýnt og að Márar mættu njóta
almennra mannréttinda?
Slæmt er það, sögðu margir, en
flestir voru svo önnum kafnir Við
eigin hag, að fæstir höfðu af-
gangs tíma til að hugsa um ann-
arra kjör, og sú kristilega hug-
sjón: að einstaklings kvöl sé
bræðra böl, hefir aldrei náð sér-
lega mikilli rótfestu hjá almenn-
ingi. Háfleyg faguryrði voru að
vísu á almennings vörum, um
bræðraást og jafnrétti, um sátt
og samlyndi, um alheims frlð og
alþjóða samvinnu, því menn dáð-
ust að Kristi og dýrkuðu hann —
en hétu, svona býsna alment, á
Þór, til allra harðræða.
Svona var nú leiksviðið, þegar
tjaldið fellur fyrir fyrsta þætti—
og hinn mikli hörmulegi leikur
byrjar með einu byssuskoti.
Hálf brjálaður stjórnleysingi af
serbneskum ættum, drepur aust-
urríska þíkiserfiingjann. Austur-
ríki, með samþykki bandamanna
sinna, Þjóðverja, segir Serbum
stríð á hendur. Rússar hervæð-
ast, til hjálpar frændum sínum,
Serbum, af ættrækni, að því er
þeir sjálfir segja, máske öllu
fremur til þess að auka áhrif sín
á Balkanskaga og til þess að aftra
því, að hin þýzku miðveldi nái að
auka lendur sínar lengra austur.
Þjóðverjar veita Austurríkismönn-
um að málum; Frakkar fara til
vígs með vinum sínum Rússum.
Þjóðverjar ráðast inn í Belgíu,
til að komast sem fyrst til París-
ar — að hjartarótum hins franska
lýðveldis. Bretum stendur ótti af
návist Þjóðverja við Norðursjó-
inn og grípa til vopna. — Fleiri og
fle'iri þjóðir dragast inn í ðfrið-
inn, ýmist sjálviljugar í hags-
munaskyni, eða tilneyddar af stór-
veldunum. He'imurinn stendur í
báli, æðiveður hamslausrar heims-
styrjaldar er skollið yfir.
Hvað átti nú einstaklingurinn
að gera? Gat hann setið hjá, þeg-
ar héimurinn barðist, eða hlaut
hann að dragast inn í þennan
djöfladans?
Orustur og manndráp eru mönn-
um viðbjóður, og ekkert undar-
legt þótt flestum yrði nauðugt
að láta hafa sig til slíks. Eg geri
jafnvel ráð fyrir, að orð St. G.
eigi við þá marga: “Á v*ið þá, sem
fóru og féllu, Föðurland mitt kært
mér er.” En þessir menn þurftu
eðlilega að hafa einhverja hug-
mynd um, að föðurlandinu yrði að
minsta kosti eins vel borgið með
því, að þeir “þyrðu að sitja hjá”.
Annars . var ættjarðarást þeirra
afsökun einungis, en engin dygð.
— Mér finst einm'itt þetta mið-
depill allra rökréttra hugleiðinga
um þetta mál. — (
Gátu nú til dæmis > hermenn
einnar stríðsþjóðar lagt niður
vopn'in, í von um að óvinurinn
gerði hið sama? Gat maður sann-
gjarnlega búist við, að menn bæru
það traust til þeirra útlendinga,
sem þeim hafði bókstaflega verið
kent að óttast, þeirra nágranna,
sem þeir árum saman höfðu verið
að búa sig undir að berjast við;
gátu þeir hre'inskilnislega játað
það, fyrir eigin samvizku, að þeir
mundu sjálfir gera það, ef þeir
væru í sporum óvina sinna?. —
Mundu Þjóðverjar, til dæmis að
taka, hafa dregið her sinn til baka,
ef Frakkar alment hefðu lagt nið-
ur vopnin orustulaust? — Auð-
vitað hefðu þe'ir ekki drepið vopn-
lausa menn, en ætli þeim hefði
ekki þótt vissara, að setja her-
menn i veginn og hervörð um
land'ið? Ætli þeim hefði ekki ver-
ið nokkuð erfitt að trúa því, að
þessi alþjóðar afvopnun kæmi af
góðum og göfugum hvötum ? —
Hvers vegna í ósköpunum hefðu
NÚMER 3
þeir (Frakkar) til dæmis, verið
að vígbúa sig í öll þessi ár, ef
þeir meintu ekkert með því? Hvað
áttu þeir að gera með byssur og
bryndreka, ef þeir ætluðu alls
ekki að nota þessi hergögn í ó-
friði? Þeir mundu, að eg held,
hafa sent setulið í allar helztu
borgir til vonar og vara.
Sagan hafði áreiðanlega endur-
tekið sig, ,þar sem annars staðar.
Magnlaus og yfirunnin þjóð hefði
verið fótum troðin af útlendu her-
valdi., Að eins uppreisnir og
blóðugar styrjaldir í framtíðinni,
mundu hafa leyst landið úr her-
fjötrum.
En máttur kærleikans, kraftur
kristindómsins, gat hann ekki
sigrað afl vonzkunnar og heið-
inglegt harðýðgi mannanna? Ér
það ekki versta trúar afneitun, að
efast um slíkt? — Jú, álveg rétt.
En hvar 1 löndum var þvílíkur
kærleiksmáttur til? Hvar í heim-
inum hefðu menn tamið sér þá
siðferðisreglu Krists, að sigra
ofstopann með kærleikanum ein-
ungis? Að reyna ekki að sigra
ilt með illu, heldur með góðu?
Að leggja heldur ekki á flótta
undan óbilgirni, heldur bjóða
hægri kinnina, þegar hin er sleg-
in? Hafa einstaklingarnir jafn-
að sín misklíði á þennan hátt?
Hafa nokkrar stofnanir hagað sér
eftir þessari hákristilegu lífs-
reglu? Ekki kirkjan, því þá
hefðu trúarbragða deilurnar ekki
verið eins hatramlegar. Ekki
skólarnir, því þeir leituðust við
að innræta æskunni virðingu fyr-
ir hermannlegum hetjudáðum.
Ekki jafnaðarmennirnir, því þeir
trúðu býsna alment á sigur fyrir
stéttastríð. Ekki fjármálamenn-
irnir, því þeir háðu hvíldarlausa
samkepnisorustu sín á milli.
Var það ekki ofurlítið barna-
legt, að búast við einhverju und-
ursamlegu kærleiks kraftaverki,
þegar menn voru einmitt veiktrú-
aðir á endurlausnar- afl hans?
Var það ekki eðlilegt, að menn
gripu einmitt til þeirra vopna, sem
þeim hafði verið kent að treysta,
þegar út í ófriðinn var komið?
Var það ekki eðlilegt, að menn
berðust með sama hætti og með
sömu tilfinningum fyrir föður-
landið, eins og þjóðhetjurnar
höfðu gert —t þjóðhetjurnar, sem
skáldin höfðu lofað í söng og
sögnum, að við allir höfum lært
að virða með næstum því til-
be'iðslufullri' aðdáun?
Er það ekki nokkuð fljótfærn-
islega kjánalegt, að búa sig út í
stríð á friðarárum og ætlast svo
til, að friðarhugsjónin nái sér
einna bezt niðri, þegar herlúðr-
arn'ir gjalla?
Sumir hafa sagt, að alþjóða-
styrjöld mætti afstýra með al-
þjóða uppreisn. 1 hvaða landi
hefði sú uppreisn átt að byrja?
Mundi nokkur heilvita maður hafa
í alvöru gengist fyrir henni með-
an óvígur f jandmannaher ógnaði
föðurlandinu? Jafnvel flestir jafn-
aðarmenn í öllum löndum gengu í
lið með andstæðingum sínum ætt-
landinu til bjargar,, því þeir vissu
að afleitust af allri harðstjórn er
útlend harðstjórn.
Það var að eins einn vegur fyr-
ir almenning, til að stöðva stríð-
ið: það var allsherjar verkfall í
öllum ófriðarlöndum, en til þess
skorti öll nauðsynleg samtök.
He’imsstyrjöldin, sem aðrir ver-
aldar viðburðir, átti sínar vissu og
skiljanlegu orsakir. Þær orsakir
voru fyrst og fremst óttinn, sem
spilti öllu samkomulagi og bræðra
þeli milli þjóðanna, og sá ótti
spratt engan veginn af hugarór-
um, heldur beinleiðis af þekking-
unni á innræti mannkynsins, og
sógulegum sannreyndum. Fyrsta
sporið hlaut því að vera gagngerð
breyting á öllu lífsmiði manna og
þjóða. Varanlegur heimsfriður
getur að eins grundvallast á vax-
andi samvinnu, sem útrýmir
vægðarlausri samkepni, réttlæti,
sem ábyrgist líf og sjálfstæði
allra, aukinni þekkingu og vax-
andi samúð, sem eyðir allri tor-
trygni.
Án algjörðrar alheims siðbótar,
eru stríð ekki að éins eðlileg, held-
ur beinlínis óumflýjanleg. Aðal-
gallinn er, að við “fljótum sofandi
að feigðar ósi” og búumst við
einhvers konar kraftaverki, sem
forðað getí okkur frá öllum af-
leiðingum.
Úr því stríðið kom, hlutu hraust-
ir menn að berjast og góðir menn
að gráta yfir þessu mikla alheims-
(Niðurl. á 5. bls.)