Lögberg - 16.02.1928, Side 1
41. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN.,
FIMTUDAGINN 16. FEBRÚAR 1928
NÚMER
7
Helztu heims-fréttir
Canada.
í vikunni sem leið, kom St.
Lawrence skipaskurðurinn til um-
ræðu í öldungadeild sambands-
þingsins. Flutti Senator W. L.
McDougald frá Montreal magn-
aða ræðu, þar sem hann skoraði
á þing og stjórn, að hefjast nú
þegar handa og hrinda málinu í
framkvæmd. Senator George P.
Graham, fyrverandi járnbrautar-
mála ráðgjafi, tjáði sig málinu
hlyntan, en lagði jafnframt á það
mikla áherzlu, að nauðsynlegt
væri að viðhafa alla varkárni, þar
sem um jafn umfangsmikið fyrir-
tæki væri að ræða.
að undanteknum $71. í fjárhags-
áæltun þessari eru $7,000, sem
ætlaðir eru til flóðvarna á Gimli,
og $10,000 ætlaðir til bryggju að
Hnausa.
Hin nýju vínsölulög Manitoba-
fylkis gengu i gildi í gær, og nú
geta menn keypt alt það vín, sem
þeir vilja í fimm vínsölubúðum í
Winnipeg og tekið sjálfir með
sér það sem þeir kaupa, ef þeir
vilja, þ. e. hið svo nefnda “Cash
and Carry” fyrirkomulag. En
ekki er búist við að bjórstofurn-
ar verði opnaðar fyr en einhvern
tíma í næsta mánuði.
* * *
Fylkisþingið í Alberta kom
saman í vikunpi sem leið. 1 há-
sætisræðunni var þess minst, að
stjórnin hefði selt Canadian Paci-
fic járnbrautarfélaginu, Lacombe
og Northwestern • járnbrautina.
Getið var þess og, að vænlega
horfðist nú á um það, að fylkið
fengi innan skamms í sínar hend-
ur náttúruauðlegð sína. Erin-
fremur hét stjórnin auknu fé til
vegabóta, sem og til heilbrigðis-
niálanna.
* * *
Utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, Hon. Frank B. Kellogg, kom
til Gttawa í vikunni sem leið og
var þar í þrjá daga, eins og vik-
ið var að í síðasta blaði. Honum
var þar afar vel fagnað af stjórn-
inni, sem hélt honum veizlu mikla.
Fluttu þar ræður, forsætisráð-
herra og leiðtogi íhaldsflokksins
og sömuleiðis þing-leiðtogar
beggja flokka í öldungaráðinu.
Mr. King benti meðal annars á,
hve gott samkomulag hefði um
langan aldur átt sér stað milli
Canada og Bandaríkjanna, sem
aðrar þjóðir mættu vel taka sér
til fyrirmyndar. Mr. Kellogg
sagði í ræðu, sem hann flutti við
þetta tækifæri, að ekkert væri
fjær skapi Bandaríkjaþjóðarinn-
ar, en að ásælast lönd annara
þjóða, eða að jafna ágréinings-
múl sín með vopnaburði. Sérstak-
lega lagði hann mikla áherzlu á,
Lve vel þessum tveimur þjóðum,
ÍBandaríkjunum og Canada, hefði
farist að jafna ávalt sínar sakir
friðsamlega og sanngjarnlega og
sagði hann, að alt benti til þess,
að svo mundi ávalt verða.
* * *
H. MaciLeod, sem um eitt
skeið var ráðsmaður Canadian
Northern járnbrautarinnar í Vest-
Ur-iCanada og átti þá heima í Win-
nipeg, andaðist í Toronto í vik-
unni sem leið, sjötugur að aldri.
Hann var síðustu árin varafor-
seti C. N. járnbrautakerfisins.
•* * #
Macdonald yfirdómari í Mani-
toba, hefir nokkrar undanfarnar
vikur Iegið sjúkur á Mayo spítal-
anum í Rochester, Minn. Var
hann skorinn þar upp tvisvar
sinnum. Síðustu fréttir af hon-
um segja, að hann sé nú á góðum
batavegi og líkur séu til að hann
geti komið heim eftir svo sem
tvær eða þrjár vikur.
Stórkostlegt sl
föstudaginn í vik
Hollinger gullná:
við Timmings,
kviknaði í Uppgö
ist náman af reyh
inennirnir, sem \
sína þar niðri, ko:
köfnuðu niðri í
ustu fréttir segja
yflr tnátíu meni
* •
Áætlun um útg
ir fjárhagsárið 19
ustu viku lögð
tingið. Útgjöldin
niiljónum hærri h
hagsárinu, sem
endar 31. marz. A
in á næsta fjá
$373,796,856. Ti
brautarinnar eru
000, en á síðasta \
fyrirtæki ætlaðir
hofir sú upphæð
Bandaríkin.
Kaupskipafloti Bandaríkjanna
er ekki í eins góðu lagi eins og
vænta mætti hjá þjóð, sem er eins
langt komin í verzlun og iðnaði
eins og Bandaríkin eru. Skipa-
flotinn hefir kostað þrjár biljón-
ir dollara, en er nú svo úr sér
genginn, að hann er orðinn til-
tölulega lítils virði í samanburði
við það, seip hann hefir kostað.
ÞettíV þyíkir sumum Bandaríkja-
mönnum ekki mega lengur svo til
ganga og segja, að Bandaríkja-
fáninn hverfi bráðlega af skipum,
sem*m sjóinn sigli, ef ekki sé að
gert. Vill Senator Jones, sem þó
hefir aldrei verið því hlyntur, að
stjórnin taki að sér nokkurn at-
vinnurekstur, nú að stjórnin
hefjist handa og kaupi kaup-
skipaflotann af einstökum mönn-
um og félögum, sem skip eigi,
komi honum í lag og ræki sigling-
ar upp á kostnað þjóðfélagsins.
Segir hann, að erfitt muni verða
að koma þessu í lag, og láta fyr-
irtækið bera sig, meðal annars
vegna þess, að það séS of dýrt að
byggja skip í Bandaríkjunum, en
þetta verði nú þjóðin samt að
gera.
» * *
Fyrir utan stríðslánin gömlu,
hafa Bandaríkjamenn lánað sum-
um Norðurálfuþjóðunum afar-
mikið fé nú síðustu árin, sérstak-
lega Þýzkalandi, Póllandi og Ju-
go-Slavia, sem Bandaríkjamenn
hafa þegar lánað fjörutíu miljón-
ir dala, og stendur nú til að þeir
láni þeirri þjóð enn $250,000,000.
Þykir sumum Norðurálfuþjóðun-
um þetta all-ískyggilegt, því grun-
urinn er alt af sá sami meðal
þjóðanna, að hin þjóðin noti þá
peninga, sem hún á, eða fær að
láni, hinni þjóðinni til einhvers
óhagnaðar, sérstaklega til her-
mála. f öðrú lagi óttast margir,
það vald sem Bandaríkin eru að
ná í Nlorðurálfunni, þar sem
margar þjóðirnar þar skulda
þeim meira fé, heldur en þær eiga
vel hægt með að standa straum
af.
/ * * *
William Edwdrd Hickman hef-
ir verið fundinn sekur um að
hafa myrt Marian Parker 0g
sömújeiðis hetfir kviðdómurinn
komist að þeirri niðurstöðu, að
maðurinn sé 0g hafi verið með
ráði, og sé því hér um hreint og
beint morð að ræða, sem unnið
hafi verið af yfirlögðu ráði. í
kviðdóminum voru átta karlmenn
og fjórar konur og komst þetta
fólk alt að einni niðurstöðu í
þessi efni.
* * * \
Hon. Herbert Hoover, verzlun-
armála ráðherra, hefir látið vini
sína vita, að hann sé viljugur til
að vera í kjöri sem forsetaefni á
Republican flokksþinginu í Ohio.
Það þarf því ekki að éfa, að Mr.
Hoover verður einn af þeim, sem
í kjöri verða á þessu flokksþingi.
En sjálfur segist hann ekki geta
tekið þátt í þessum undirbúnings
kosningum, því hann verði að
verja tímanum til þess að gegna
skyldum sínum sem ráðherra. Sín
útnefning sé því algerlega í
höndum vina sinna og flokks-
manna.
* * *
rhomas A. Edison er fæddur
11. febrúar í Little Milton í Ohio
ríkinu. Nú eru bæjarbúar að
hugsa um að koma þar upp vís-
indaskóla og heiðra á þann hátt
þennan fræga son, sem þar var
fæddur og uppalinn.
* * *
Konur, sem voru að spila
“bridge” í, Dettroiti, iMich., urðu
saupsáttar út af spilunum, og
varð það svo alvarlegt, að ein
konan, Mrs. Mary Lee Bishop að
nafni, skaut konuna, sem á móti
henni var, til dauðs, vegna þess
hve illa hún spilaði. Hét sú Mrs.
Rosa Henderson, sem lífið lét
fyrir að spila illa “bridge”. Mrs.
Bishop hefir verið dæmd í lífstíð-
ar fangelsi.
* * »
Öldungádeildin hefir samþykt
yfirlýsingu, sem Robert La Fol-
lette bar fram, með 56 atkvæðum
gegn 25, þess efnis, að deildin
líti svo á, að forsetar Bandaríkj-
anna, sem þjónað hefðu tvö kjör-
tímabil, ættu að halda fast við þá
reglu, að gefa ekki kost á sér í
þriðja sinn. Mun þessari yfirlýs-
ingu vera sérstaklega stefnt að
Coolidge forseta, því margir af
flokksmönnum hans vilja að hann
gefi enn kost á sér, en sjálfur hef-
ir hann, eins og kunnugt er, lýst
yfir því, að hann verði ekki í kjöri
við næstu forsetakosningar.
Bretland.
Á Englandi er verið að byggja
loftfar, sem ætlað er til að flytja
fólk milli Englands og Bandaríkj-
anna. Er loftfarið svo stórt, að
ætlast er til að það taki 100 far-
þega og 10 tonn af póstflutningi.
Hafa þeir, sem hlut eiga að máli,
farið fram á það við stjórn
Bandaríkjanna, að hún veitti fé-
laginu nokkur hlunnindi, leyfði
því afnot af loftfarastöðvum sín-
um, og gerði við það sérstakan
samning um póstflutninga o. fl.
Og er jafnframt ætlast til, að
Bandaíkjamenn taki höndum sam-
an við Breta og byggi fleiri loft-
för af sama tagi, ef þetta gefist
vel. Hefir Bandaríkjastjórnin
tekið þessu vel og er búist við,
að loftfarið verði tilbúið eftir
svo sem þrjá mánuði. Það er
gert ráð fyrir, að loftför þessi
geti farið vestur um haf á 48
klukkustundum, en austur yfir á
38 klukkustundum.
* * *
Flrjálslync^i flokkurinn hefir
unnið eitt þingsæti við nýafstaðn-
ar aukakosningar, sem íhalds-
flokkurinn hélt áður. Losnaði
þingsætið þannig, að þingmaður-
inn var tekinn í lávarðadeildina.
Sá sem kosningu hlaut, heitir R.
P. Tomlinson, sem haut 14,689 at-
kvæði. ifhaldsmaðurinn, sem í
kjöri var, fékk 12,680, og verka-
maðurinn 6,101 atkv.
* * *
Stjórnmálamaðurinn brezki,
Herbert H. Asquith, Earl of Ax-
ford, andaðist í gærmorgun, 15.
febrúar, 75 ára að aldri, fæddur
12. september 1852. Hann varð
forsætisráðherra Bretlands 1908
og var forsætisráðherra þegar
stríðið skall á 1914, og um langt
skeið leiðtogi frjálslynda flokks-
ins. Þótti einn með merkustu
stjórnmálamönnum Breta á sinni
tíð.
Hvaðanœfa.
Seint í janúarmánuði urðu
stjórnarskifti í Noregi og tók þá
verkamannaflokkurinn við stjórn-
artaumunum, því síðustu almenn-
ar kosningar höfðu farið þannig,
að þeim flokk óx mikið fylgi á
Stórþinginu. Er þetta í fyrsta
sinn, sem verkamannastjórn hefir
komist til valda i Noregi, en hún
sat ekki lengi að völdum, því í
vikunni sem leið var, á Stórþing-
inu, borin fram vantrausts yfir-
lýsing gegn henni, og samþykt
með 86 atkvæðum gegn 63 atkv.
Lýsti stjórnarformaður, Horns-
rud, yfir því, að stjórnin mundi
þegar segja af sér. Þessi stjórn
hefir því orðið álíka langgæð,
eins og stjórn Jörundar á íslandi
forðum daga.
* * *
Hinn 21. júní 1929 hefst heims-
þing lúterskra manna, sem hald-
ið verður í Kaupmannahöfn, og
stendur það yfir í tíu daga. Þing
þetta verður stærsta kirkjulega
samkoman, sem nokkurn tíma hef-
ir verið haldin í Evrópu, og er
öllum heimill aðgangur, sem
játa lúterska, trú. Undirbúning-
ur hefir þegar verið hafinn und-
ir móttöku gesta og annað þess
konar. Einnig hefir dagskrá
þingsins verið samin að miklu
leyti og koma þessi mál til um-
hæðu: Fræði Lúters hin minni
og þýðing þeirra fyrir kristin-
dómskenslu. Trú og játning í
Ijósi Marburg og Ágsborgar játn-
ingar. Framtíðar skipulag heims-
þinganna. Hvað er hægt að gera
til eflingar andlegu sambandi
milli lúterskra manna víðsvegar
um heim? Munur kristindómsins
og veraldarhyggjunnar, samkvæmt
lúterskum skilningi. Starf að
innri endurnýjun lúterskrar
kirkju, svo að hún sé hæf til að
rækja hlutverk sitt. Lúterska
kirkjan og þjóðfélagsmeinin. Aðal
verkefni lúterska trúboðsíns með-
al heiðingja. — 1 sambandi við
þing þetta verða farnar skemti-
verðir til Lunds og ýmsra danskra
bæja.
Hvað eftir annað hafa blöðin
verið að segjai eitthvað frá ungri
konu, sem Mme Tchaikovsky heit-
ir og sem sumjr segja að sé dótt-
ir Nikulásar keisara, á Rússlandi,
sem myrtur var í stjórnarbylting-
unni. Segir sagan, að ungur her-
maður hafi frelsað líf hennar,
þegar keisarafjölskyldan var myrt
og flúið með hana til Rúmeníu,
og þar hafi þau gifst. Síðar komst
hún til Þýzkalands og var þar
lengi í spítala og nú um daginn
kom kona þessi til New York, og
er því enn haldið fram af mörg-
um, að hún sé dóttir keisarans og
kunna menn langar sögur að segja
af flótta hennar og raunum, En :
ekki virðast enn hafa komiS fram
neinar ábyggilegar sannannir fyr-
ir því, að kona þessi sé sú sem
sagt er.
* * »
Frétt frá Noregi hinn 10. þ.m.
segir, að ofviðri og skriðuhlaup
hafi þar orðið tuttugu og fimm
manns að bana. Fréttin kemuV
frá Oslo, en ekki verður af henni
séð, hvar í Nonegi þetta slys hef-
ir viljað til.
Þjóðræknisþingið
verður sett kl. 10 árdegis, þriðju-
daginn 21. þ.m., í Goodtemplara-
húsinu. \
Eins og getið hefir verið um í
síðasta blaði, bjóða íþróttamenn
til skemtunar fyrsta þingkvöldið,
kl. 8,30. Annað kvöldið verður
hið venjulega miðsvetrarmót
“Fróns”. En síðasta kvöldið,
fimtudagskvöld 23. febr. — flyt-
ur séra Jónas A. Sigurðsson er-
indi^ en á undan því og eftir fer
fram söngur og hljóðfærasláttur,
sem nánar mun getið um í næsta
blaði. Enginn inngangur verður
tekinn fyrsta og siðasta kvöldið.
R. E. Kvaran, forseti.
Úr bœnum.
Mr. og Mrs. iSigurður Sigfús-
son frá Oak View, Man., voru í
borginni vikuna sem leið og fóru
heimleiðis á laugardaginn.
Sameinuðu kvenflögin héldu
þriðja ársþing sitt á mánudaginn
og þriðjudaginn í þessari viku í
Fyrstu lútersku kirkju. Fulltrú-
ar mættu á þinginu frá flestum
eða öllum kvenfélögunum, sem
Sambandinu tilheyra. Auk þess
var þingið vel sótt af konum, sem
heima eiga í borginni, eða eru
hér staddar. Nokkur erindi voru
flutt á þinginu og mun óhætt
mega segja, að það hafi verið á-
nægjulegt og uppbyggilegt. Vér
vonum, að geta sagt greinilegar
frá þessu þingi í næsta blaði.
Stúdentafélags leikurinn.
Mánudagskveldið, þann 30. jan-
úar síðastliðinn, sýndi íslenzka
Stúdentafélagið skopleikinn “Ap-
ann”, eftir frú Heiberg, í Good-
templarahúsinu, við góða aðsókn.
Leikritið er ekki tilþrifamikið, en
vel til þess fallið, að komcf áhorf-
endum í gott skap, enda var ó-
spart hlegið um kvöldið. Leik-
endur allir gerðu hlutverkum sín-
um sæmilega, þótt bezt tækist
þeim yfirleitt, Jóni Bjarnasyni
og Þóru Sveinsson. Ingibjörg
Bjarnason lék, og sæmilega, hefir
skýran framburð og fallega söng-
rödd, en stundum fanst oss hún
leika helzti mikið. Leikur þeirra
Marino Frederickson og Sigtryggs
Sigurjónssonar, var hvergi nærri
eins góður, skorti báða tilfinnan-
lega eðlileg blæbrigði. Þó náðu
þeir sér allvel niðri með köflum.
Allir eru leikendur þessir við-
vaningar, og væri því eigi rétt-
látt að gera til þeirra mjög strang-
ar kröfur. En yfirleitt mun mega
fullyrða, að ileikurinn tækist
sæmflega, og á \,Stjúdentafélagið
þakkir skilið fyrir áhuga þann,
sem það hefir sýnt í því að halda
uppi leikjum og fundarhöldum á
íslenzku.
Landið, sem hefir aðeinseina borg
(Edwin R. Petre, í Minnea-
polis Journal.).
Ef þú ert hygginn maður, þá
ert þú nú þegar farinn að hugsa
um, hvert þú ætlir að fara í sum-
ar. Eg ætla að koma með nokk-
uð, sem er nýtt, og ef þú fylgir
mínum ráðum, þá munu frídag-
arnir verða þér ógleymanlegir.
Farðu til íslands. Hvernig
hægt er að komast þangað, geta
umboðsmenn eimskipafélaganna
sagt þér. En eg get bent á nokkr-
ar ástæður, hvers vegna þú ættir
að fara þangað. Ef þig langar
til að yfirgefa stórborgalífið um
tíma, þá á ísland bara eina borg,
og hún er svo lítil, að það þyrfti
fimm hundruð af þeim til að jafn-
I ast á við New York, hvað fólks-
fjölda snertir, Ef þú vilt kom-
ast út úr kolareyknum, þá er ekk-
ert af honum á íslandi, en þar er
nóg af hverum og heitum laug-
um, sem nota má í eldiviðar stað.
Ef þig langar til að komast um
tíma burt frá hinum svo kölluðu
lífsþægindum eða síðari tíma
unlbótum, þá hefir ísland beðið
þín í meir en þúsund ár. Ef þig
langar til að komast fyrir sann-
leikann í þeim tröllasögum, sem
þú í æsku heyrðir um Island, þá
sjáðu til, hvort þú finnur þar
nokkra Eskimóa, ísbirni eða þjóð,
sem lifir eingöngu á selakjöti. —
Eftir þriggja daga siglingu frá
Leith á Skotlandi, kemur þú til
lands, þar sem sumarveðrið er
sérstaklega þægilegt og ekki of
heitt. Það er land bjartra nátta,
hvera og eldfjalla, sem ekkert
tjón vinna þér, land víkinganna
fornu, land söngva og sagna. Þú
getur hugsað og talað um ferðina,
það sem eftir er æfinnar.
Brúðkaupskveldið.
Leikfélag Sambandssafnaðár lék
þennan gamanleik á þriðjudags-
kveldið í samkomusal Sambands-
kirkju. Leikurinn var svo vel
sóttur, að ekki komst fleira fólk
fyrir í salnum. Fólkið virtist
skemtavsér vel þó hér eins og
vanalega, væri nokkuð erfitt að
gera sér grein fyrir hvort íslenzk-
um samkomugektum líkar betur
eða ver. Þeir láta það ekki eins
ótvírætt í ljós eins og aðrir menn.
Leikurinn er fyrst og fremst gam-
anleikur 0g hann er þannig leik-
inn, að það er vel hægt að hafa
gaman af honum. Mr. P. S. Páls-
son gerir brúðgumann t. d. “yfir-
máta” hlægilega persónu. Miss
Guðbjörg Sigurðsson lék gamla
konu, eins og hún hefir oft gert
áður, og hún gerði það nú eins^og
fyr, prýðis vel. Yfirleitt leysa
lqikendurnir hlutv^rk ,sín sæmi-
lega af hendi. f kveld, fimtudag,
verður leikurinn endurteikinn.
Frá Hveitisamlaginu.
Fyrir nokkru flutti Dr. Robert
Magill, ritari (Winnipeg Grain Ex-
change, ræðu í Toronto Empire
Club, er framkvæmdarstjórn
hveitisamlagsins hefir ýmislegt
að athuga við.
Hefir framkvæmdarstjóri Cent-
ral Selling Agency, Mr. E. B. Ram-
say, nýlega birt eftir farandi at-
hugasemdir við ræðu Dr. Magills:
“Þær fregnir hafa borist oss til
eyrna, frá umboðsmanni vorum í
Lundúnum, að forseti Winnipeg
Grain Exchange, hafi látið sér
þau orð um munn fara, að upp-
skeran í Canada síðastliðið ár hafi
verið svo rýr, að ensk félög hafi
svo sem ekkert korri getað fengið
héðan til mölunar.
“Dr. Magill hefði átt að vera
það kunnugt, að uppskera ársins
1927 varð meiri en í meðallagi, og
að hið góða verð, sem bændur yf-
irleitt fengu fyrir kornvörur sin-
ar, var mikið til starfsemi heviti-
samlagsins að þakka.
“Því verður að visu eigi á móti
mælt, að hveititegundirnar urðu
með lakara móti. En samt kom
þó allmikið af góðu hveiti á mark-
aðinn, er seldist við hæsta verði.
“Mr. Mclvor, einn af fram-
kvæmdarstjórum samlagsins, hef-
ir nýlega lýst yfir því, að eftir-
spurnin eftir canadisku hveiti,
sé jafnt 0g þétt að fara í vöxt, og
nægar birgðir séu fyrir hendi. Og
þess lætur hann jafnframt getið,
að ,No. 3 Northern, canadiskt
hveiti, hafi nýverið selst við hærra
verði, en beztu hveititegundir frá
Argentínu.
“Hvað helzt sem að Dr. Magill
hefir þegar sagt, eða kann að
segja, um canadiskar hveitiafurð-
ir, eða markaðsskilyrði, þá verður
því samt eigi neitað, að allir þeir,
er keypt hafa hveiti af samlaginu,
eru hæst ánægðir með vöruna.”
í sambandi við þá staðhæfingu
Dr. Magills, að hveitisamlagið rói
að því öllum árum, að fá óhæfi-
lega hátt verð fyrir hveitið, þá
mótmælir Mr. Ramsay því að svo
sé, en bætir því jafnframt við, að
samlagið muni í framtíðinni, eins
og hingað til, gera alt sem í valdi
þess stendur, til þess að canadisk-
ir bændur fái eins sanngjarnt verð
fyrir korntegundir sínar, og frek-
ast hugsanlegt er.
Erá California.
Úr bréfi til ritstj. Lögbergs.
Long Beach, Cal., 2. feb. 28.
Góði vinur:—
Þökk fyrir hlýlegt bréf frá 26.
f.m. Bróðir minn sendir þér $100,
sem eg lofaði að gefa, til féhirðis
Þjóðræknisfélagsins, undir áins
eftir að hann meðtekur bréf frá
mér.
‘^Hvað er að frétta úr kaup-
staðnum?” Það var næsta algeng
spurning í uppsveitum feðra-
lands, þegar langferðamann bar
að garði. Nei, nei, minn glað-
lyndi góðkunningi, ekki þarftu að
óttast, að eg þreyti þig með kaup-
sýslu kaupstaðarfréttum. Eg þekki
þig nægilega vel til þess að forð-
ast að bjóða þér nokkuð því-
líkt.-----
Tíðarfar er blítt og bjart hér
í Suður-Californíu. En það eru
hér tveir ókostir, sem flestir Norð-
urlandamenn munu fljótlega verða
varir við. Of miklir þurkar og
vatn er hér víðast hálf slæmt.
Halldór Halldórsson frá Winni-
peg, er nú fyrir skömmu byrjað-
ur á 40 íbúða stórhýsi i Los Ang-
eles á góðum stað.
Við t Metúsalem Thorarinsson
gerðum okkar fyrstu tilraun til
þess að fljúga til himnaríkis nú
fyrir tveimur dögum. Hvorugur
okkar hafði enn eignast vængi,
þess vegna urðum við að taka skip
og flugmann og fjaðrir að láni.
Okkur var það báðum ljóst, áður
en við yfirgáfum okkar jarðneska
bústað, að við vorum ekki vel
undir ferðina búnir, eða hinn
dýrðlega áfangastað í uppsveit-
um, þess vegna báðunv’við okkar
djarfa flugforingja, að snúa til
baka, eftir fremur kuldalegar við-
tökur þar uppi. — Við komumst
slysalaust til baka við jarðneskan
orðstír — ogj himneskar endur-
minningar. — 1—
Til Hollywood ferðuðumst við
Thorarinsson. jí ftjeim 'suðræna
sælustað er margt að sjá skraut-
legt. T. d. leiftrandi stjörnur
sjást þar með berum augum (án
þess að hafa sjónauka), um há-
bjartan dag í glaða sólskini —
(frægir leikarar eru stundum
nefndir “stars” á ensku máli). í
Hollywood er eitt allra skraut-
legasta leikhús þessarar álfu. Mun
það hafa verið bygt at tilhlutan
“stjarnanna” og “stjörnuspek-
inganna” í þeirri himnesku borg.
Charlie Chaplin kom þar fram á
leiksviðið í sínum heimsfrægu
tötrum, og sjálfkjörnu niðurlæg-
ingu — “Charlie leads a dog’s life
amongst high-spots of society,”—
nærri því í öllum leikritum, þar
sem hann kemur fram. Heimska
og fáfræði, stolt og hégómagirni,
hljóta oft eftirminnileg olnboga-
skot hjá Charlie Chaplin, hann
hefir hlotið maklega viðurkenn-
ingu.
Með kærri kveðju til Lögberg-
inga. Þinn einlægur,
Aðalsteinn Kristjánsson.
Fregnir frá Ottawa.
eftir L. P. Bancroft.
þingmann Selkirk kjördæmis.
Síðastliðin vika, hefir gengið að
heita má öll, í umræður um stjórn-
arboðskapinn, eða hásætisræðuna.
Mr. Ilsley frá Nova Scotia, nýr
þingmaður, flutti eina þá snjöll-
ustu ræðu, sem haldin hefir verið
á þingi hin síðari ár. Ræður for-
sætisráðgjafans, Rt. Hon. Mac-
kenzie Kings, og Mr. Bennetts, for-
ingja íhaldsmanna, voru með af-
brigðum snjallar og rökfastar.
Breyting sú á þingsköpum, sem
gerð var í fyrra, og bindur ræðu-
tíma hvers einstaks þingmanns
við fjörutíu mínútur, hefir leitt
til þess, að þingmenn fylgja fast-
ar umræðuefninu og blanda síður
inn í það' óviðkomandi málum.
Þegar eftir setningu þings, tóku
Liberal-Progressive þingmennirn-
ir frá Manitoba, að berjast fyrir
lækkun verndartolla. 1 sama
streng tóku, og allir liberal þing-
mennirnir frá Sléttufylkjunum.
Sá er línur þessar ritar, flutti
ræðu þann 31. janúar síðastliðinn,
og skaut því að stjórninni, að ýms-
ar þær upplýsingar, er tollmála-
nefndinni þegar hefði borist,
meira en réttlættu lækkun vernd-
artolla á ýmsum sviðum. Benti
hann einnig á það, að ákvæðin í
“Inspection and Sale” lögunum,
hvað bindaratvinna áhrærði, væru
bændum óhagstæð, og þyrftu því
breytingar við. Mun mega ganga
út frá því sem gefnu, að breyting
á téðum lögum nái fram að ganga
á yfirstandandi þingi.
Etftirgreindir Lib.-Progressive
þingmenn, hafa þegar tekið til
máls um hásætisræðuna: Beau-
bien, Bancroft, Glen, Steedsman,
Brown, MHne og Lovie.
Búist er við, að umræðunum um
stjórnarboðskapinn, verði lokið
seinni part næstu viku.
RAGNAR H. RAGNAR.
Hr. Ragnar H. Ragnar, píanó-
kennari, sem mörgum er að góðu
kunnur frá dvöl hans hér í borg,
stundar píanókenslu í bænum
Medicine Hat, Alta, yfirstandandi
vetur, við ágætan orðstír, eftir
fregnum, sem oss hafa borist af
rionum að1 jvestan., iHefir hann
efnt til nokkurra hljómleika í
vetur, og hlotið að launum aðdá-
un áheyrenda, fyrir leikni sína
og skilningsglöggvi á hlutverkum
þeim, er hann hefir haft með
höndum.
Nýlega hefir oss borist í hend-
ur úrklippa úr blaði einu, sem
gefið er út í Medicine Hat, með
eftirfarandi ummælum um hr.
Ragnar:
“Það er ekki langt síðan að
Ragnar kom til Medicine Hat, en
á þeim stutta tíma hefir það sann-
ast, að hann er einn af allra full-
komnustu píanóleikurum bæjar-
ins. Meðferð hans á “Romance”,
eftir Sibelius, var stórhrífapdi,
og er hið sama að segja um “May
Night” eftir Palmgren. Hámarki
sínu mun þó hrifningin hafa náð,
er þessi efnilegi píanóleikari
spilaði “Hungarian” eftir Mc-
Dowell. Varð fögnuður áheyr-
enda þá svo mikill, að píanistinn
varð knúður til að spila auka-
númer, þar á meðal Chopins
‘Nocturne” í F dúr.”
T