Lögberg - 07.03.1929, Blaðsíða 8
Bls. 8.
LÖGBERG FIMTUDAGINN 7. MARZ 1929.
RoblnHood
FLOUR
ޜ: sem bezt kunna aO gera
brauð, fá altaf verðaun á sýn- — ^l
ingum í Vestur-Canada og hér-
aðssýningum ef þær nota Rob-
in Hood hveiti.
Miðvikudaginn 30. jan. voru
gift í Kenora, Ont., iMiss Mary
Helen Perrin, Kenora, og Carl
Oskar Stephens, Keewatin, Ont.
Hjónavígsluna framkvæmdi Rev.
Hislop Dickson, Kenora. Brúður-
in er frönsk, en brúðguminn er
sonur Stefáns heit. Sigurðsson-
ar trésmiðs og konu hans, sem
lengi bjuggu í Winnipeg.í Fram-
tíðarheimili ungu hjónanna verð-
ur í -Keewatin, Ont.
Söngflokur Fyrstu lút. kirkju,
er að undirbúa skemtisamkomu,
sem haldin verður í samkomusal
kirkjunnar, mánudagskveldið þann
18. þessa mánaðar. Verður
skemtiskráin mjög frábrugðin frá
því sem venja er til. En því má
almenningur óhætt treysta, að
þarna verður um svo ánægjulega
kveldstund að ræða, að enginn
má án hennar vera. Nánar aug-
lýst í næstu blöðum.
Mr. og Mrs. G. L. Stephenson
komu heim á sunudaginn sunnan
frá Californíu. Hafa þau verið
þar syðra síðan nemma í desem-
bermánuði síðastl.
Dr. Rögnvaldur Pétursson og
sonur hans Mr. Þorvaldur Pét-
ursson, komu heim úr íslandsför
sinni á sunnudaginn. «
Samkoman, sem kvenfél. Fyrsta
lút. safnaðar hélt í kirkjunni á
mánudagskveldið og sem auglýst
var í síðasta blaði, hepnaðist á-
gætlega. Hún var svo vel sótt, að
heita mátti að hvert sæti væri
væri skipað í kirkjunni. Skemti-
skráin var fjölbreytt og fólkið,
sem skemti, leysti alt sín hlut-
verk prýðisvel af hendi. Sam-
skotin urðu yfir tvö hundruð dal-
ir, sem ganga til iBetel, og er það
meira en á nokkurri annari afmæl-
ishátíð stofnunarinnar, sem kven
félagið hefir haldið árlega.
Aðfaranótt síðastliðins föstu-
dags, lézt að heimili dóttur sinn-
ar og tengdasonar, Mr. og Mrs.
P. N. Johnson, 716 Victor Street,
Jónas Stephensen, fyrrum póst-
meistari á Seyðisfirði í Norður-
Múlasýslu, þvínær áttræður að
aldri, hinn mesti atorku og sæmd-
armaður. Jarðarförin fór fram
á mánudaginn. Stýrði séra Rún-
ólfur Marteinsson kveðjuathöfn-
inni á heimilinu. Síðan fór útför-
in fram frá kirkju Sambandssafn-
aðar, og fluttu þar ræður þeir
prestarnir séra Ragnar E. Kvaran
og séra Rögnvaldur Pétursson.
Gjafir til Betel í febrúar.
Mrs. Sesselja Johnson, Vancouv-
er, B.C., áheit, $5.00.
Sigurjón Johnson, Sóleyjar-
landi, Gimli P.O.........$ 5.00
Mr. og Mrs. Jón Thorsteinsson,
Wynyard, Sask............ 10.00
Erl. Erlendsson, Langruth.... 5.00
Sigurveig Swanson, Blaine,
Wash., áheit ............ 10.00
Fyrir þetta er innilega þakkað,
J. Jóhannesson, féh.
675 McDermott Ave., Wpg.
WONDERLAND.
Tvær myndir sýnir Wonderland
leikhúsið þrjá síðustu dagana af
þessari viku, “Court Martial” þar
sem Jack Holt leikur aðal hlut-
verkið, og “The Trick of Hearts”,
með Hoot Gibson í broddi fylk-
ingar. — Fyrstu þrjá dagana af
næstu viku sýnir leikhúsið einnig
tvær myndir, “Home James” og
“The Streets of Illusion”. Allar
þykja myndir þessar skemtilegar
og leikararnir ágætir.
Mr. Jón J. Bildfell, formaður
skólaráðs Jóns Bjarnasonar skóla,
er, eins og menn hafa frétt, ný-
kominn úr för til íslands. Marg-
an mun fýsa að heyra frásögn um
það ferðalag. öllum slíkum gefst
það tækifæri á laugardagskvöld-
ið í þessari viku. Þá ætlar Mr.
Bildfell að flytja í skólanum, er-
indi um þessa ferð. Samkoman
hefst kl. 8. Allir velkomnir. Tak-
ið verður með þakklætj á móti því.
sem menn vilja góðfúslega láta
af mörkum skólanum til stuðn-
ings.
Aðfaranótt laugardagsins, i
vikunni sem leið, kviknaði í mat-
sölubúð þeirra Steindórs Jakobs-
sonar og O. Olafssonar á stræta-
mótunum Sargent Ave. og Victor
Str. Brunnu vörur, sem í búð-
inni voru að mestu eða eyði-
lögðust af vatni og reyk og eins
áhöld og annar útbúnaður verzl-
unarinnar. Mun skaðinn all-til-
finnanlegur, sem þeir félagar
urðu fyrir, því eldsábyrgð mun
hafa verið heldur lítil. Eldurinn
var slöktur áður en hann næði að
eyðileggja bygginguna, en þó
brann búðin töluvert að innan og
gluggar brotnuðu.
Tilkynning1—Þeim íslendingum í
Keewatin, sem ekki tilheyra lestr-
arfélaginu, Tilraunin, er hér með
vinsamlega af öllum, sem tilheyra
þeim félagsskap, boðið að fá frítt
til lesturs allar þær bækur, sem
félaginu tilheyra, með þeim skil-
yrðum, sem félagsmenn sjálfir
verða að hlíta. —1 1 umboði lestr-
arfélagsins Tilraunin.
Keewatin, Ont., 1. marz 1929.
B. Sveinsson.
Mr. Jón J. Bildfell kom heim
úr íslandsför sinni á miðvikudags-
kveldið í vikunni sem leið. Hann
lætur vel af ferðinni og segir að
hún hafi verið hin ánægjuleg-
asta.
Gestir hafa margir verið í borg-
inni að undánförnu. Sjálfsagt eru
þeir fleiri en hér eru taldir, en
vér höfum orðið varir við þessa:
G. J. Oleson og A. E. Johnson,
Glenboro; Gísli Johnson, The
Narrows; Kr. Bessason, Þórður
Bjarnason, Kristján Pálsson, séra
Jónas A. Sigurðsson, Selkirk; Þor-
steinn Guðmunsson, Leslie; Árni
G. Eggertsson, Wynyard; Jón
Thordarson, Langruth; J. S. Gill-
ies, og Mr. og Mrs. Th. Gíslason,
Brown; Mr. og Mrs. Kristján
Johnson, Wynyard.
Mr. J. V. Austmann, skotmað-
urin frægi, er nýkominn frá New
York. Fór hann þangað til að
vera við jarðarför systur sinnar,
Mrs. Fokker, sem andaðist þar
íyrir skömmu, eins og áður hefir
verið getið um hér í blaðinu.
Skáldakvöld
hefir deildin Frón á miðvikudags-
kvöldið 13. marz í neðri sal Good-
templara hússins. Flytur þar er-
indi Dr. Rögnvaldur Pétursson um
skáldið St. G. Stephansson. Einn-
ig verður Tímariti Þjóðræknisfé-
lagsins útbýtt til meðlima á fund-
inum. Sigfús Halldórs frá Höfn-
um les kvæði eftir skáldið.
Byrjar kl. 8.15.
Séra Björn B. Jónsson, D.D., var
á mánudaginn í þessari viku skor-
inn upp við sjóndepru á öðru
auganu. Hepnaðist uppskurður-
inn vel, og líður Dr. Jónsson eins
vel og frekast er hægt að vonast
eftir. Dr. Jón Stefánsson gerði
uppskurðinn og var hann gerður
á Almenna spítalanum, en á
þriðjudaginn fór Dr. Jónsson
heim til sín, því ekki var álitið
nauðsynlegt, að hann væri lengur
á sjúkrahúsinu. Meðan Dr. Jóns-
son er veikur, gegnir séra Rún-
ólfur Marteinsson prestsverkum í
Fyrsta lút. söfnuði og prédikar
hann í kirkjunni bæði að morgni
og að kveldi næsta sunnudag.
Rose Leikhúsið.
Kvikmyndin “No Other Woman”,
sem Rose leikhúsið sýnir fyrn’
part næstu viku, þykir með af-
brigðum góð. Þar leikur Dolores
Del Rio aðal hlutverkið og þar
leika einnig Ben Bard og Don Al-
varado og ýmsir fleiri ágætir
leikarar. -----------
Walker Leikhúsið.
Það næsta, sem Walker leik-
húsið hefir að bjóða, er “The
Beggar’s Opera” og “The Polly”
og verður það seinni part þessar-
ar viku, “The Beggar’s Opera” á
fimtudags og föstudags kveldið,
og eins seinni partinn á laugar-
daginn, en “The Polly” á laugar-
dagskveldið, aðeins einu sinni.
Leikir þessir eru gamlir og víð-
frægir og ávalt þykir jafn-mikið
til þeirra koma, og sjálfsagt situr
fólkið í Winnipeg sig ekki úr færi
að sækja leikhúsið þessa dagana.
Þakkarávarp.
Okkar innilegasta hjartans þakk-
æti, viljum við hér með færa öll-
um vorum mörgu vinum, bæði í
Selkirkbæ, sem og annars staðar,
er auðsýndu okkur samúðarríka
hluttekningu í okkar djúpu sorg,
við hina sviplegu burtköllun okk-
ar elskaða ástvinar, Marínós R.
Magnússonar. Hluttekningin, sem
og sveigarnir fögru á kistu hins
framliðna, mun oss seint úr
minni líða.
Biðjum við algóðan guð, að
launa öllum þessum trygðavinum
okkar, er þeim mest á liggur, sam-
úðarríka góðvild og innilega
hluttekning.
Selkirk, 8. jan. 1929.
Mrs. Marínó R. Magnúson.
Mr. og Mrs. G. F. Jóhannson.
—Ofangreint þakkarávarp, glat-
aðist því miður í prentsmiðjunni,
og varð þarhfleiðandi eigi birt á
réttum tíma.—Ritstj.
Áðalfundur
íslendingadagsnefndarfundur verður haldinn þriðju-
dagskvöld 12. marz 1929, kl. 8, í efri sal Goodtempl-
arahússin3. Vanalefc fundarmál rædd, ársskýrslur
lagðar fyrir fundinn, og kosningar nýrra embættis-
manna. Rætt verður um það, hvort flytja skuli ís-
lendingadaginn 2. ágúst, til Gimli, svo og um það,
að kjósa nefnd til fleiri ára, og að fá daginn lög-
giltan. Æskilegt væri, að íslendingar í Winnipeg
vildu gera -svo vel og f jölmenna á þennan fund, svo
málefni fslendingadagsins verði sæmilega afgreidd
og nefnd skipuð góðum mönnum.
Þeir íþróttamenn, sem ekki hafa fengið medalíur
sínar fyrir 1928, sendi nöfn sín og heimilisfang til
ritara nefndarinnar, S Björnsson, 679 Beverley St.
J. J. Samson, forseti.
S. Björnsop, ritari.
ROSE
Fimtud. Fijptud. Laugard.
Þessa viku
Mikil tvígild sýning
GLENA TRYON
í leiknum
“How to Handle Women”
með hljóði
Einnig sýndir leikirnir
“SPANGLES” og
‘TERRIBLE PEOPLE No 2’
Leikið e. h. á laugardag sér-
staklega fyrir börnin, og eru
það talandi leikir.
Fallegasta leikhúsið í vest-
urhluta borgarinnar.
Sargent and Arlington
Mánud. Þriðjud. Miðvikud.
næstu viku.
Önnur tvígild sýning
DOLORES DEL RIO
í leiknum
“Nd Other Woman”
og WILL ROGERS i
“THE TEXAS STEER”
Slíkir leikir eru sem skriður
hláturs og gamans
A Drama og Primitive Pas-
sions, er lýsing þess á
ensku máli. Missið það ekki
J>ann 21. febr. síðastliðinn, lézt
að heimili sínu við Langruth,
Man., bændaöldungurinn Jóhann
Jóhannsson, 72 ára að aldri. Var
hann jarðsunginn af séra Jóhanni
Bjarnasyni. Hins framliðna verð-
ur nánar minst síðar.
Dr. Tweed verður í Árborg, mið-
vikudaginn og föstudaginn 13. og
14. marz.
Messuboð 10. marz—Mozart kl.
2 siðd., Elfros kl. 7.30 síðdegis (á
ensku). C. J. O.
Dánarfregn.
23. febr. andaðist á heimili sínu
nokkrar mílur suðvestur af Les-
lie, Sask., heiðurskonan Kristín
Þorsteinsdóttir, eiginkona Sig-
mars Sigurðssonar — bæði valin-
kunn hjón. Hún hafði verið rúm-
föst 1 þrjú ár og tvo mánuði, oft
mjög þungt haldin þennan langa
tíma. Hana syrgja áminstur eig-
inmaður, ein dóttir, Magnea, gift
Baldri ólafsyni,, barnabörn, aðr-
ir ættingjar og fjöldi af vinum.
Mjög fjölmenn jarðarför fór
fram á þriðjudaginn 06. febr.
Séra Carl J. Olson jarðsöng. —
Ástvinirnir þakka hjartanlega fyr-
ir hugheila hluttekningu, sem hef-
ir verið látin í ljós á ýmsan hátt.
Sérstaklega þakka þeir fyrir blóm
þau, er voru lögð á kistuna, sem
voru bæði mörg og einkar falleg.
Auðsjáanlega hafði sú látna ver-
ið mjög vinsæl í hvívetna og það
að verðugu. C. J. O.
Hœnu ungar, sem verða beztu
varphænur í Canada; ábyrgst að
ungarnir komi allir lifandi. Skýrsla
um kyn unganna látin fylgja þeim.
Ýmsar tegundir, svo sem Leghorns,
Barred Rocks, Reds, Anconas, Min-
orcas, Wyandottes, Orpingtons 12
mánaða tilsögn kostnaðarlaust. Út-
ungunarvélar og áhöld til að ala
upp ungana. ókeypis verðlisti.
Alex. Taylor’s Hatchery, 362 Furby
St., Winnipeg, Man.
Œfiminning
(Framh. frá bls. 5)
fagra og uppbyggilega sið enn
viðhaldið á heimilinu.
Hann var jarðsettur fám dög-
um eftir að dauðann bar að. Við-
staddur var fjöldi bygðarmanna.
Sá, er línur þessar ritar, jós lík
hans moldum.
“Margs er að minnast,
Margs er hér að þakka;
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
Margs er að sakna;
Guð þerri trega-tárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir alt og alt.
Gekkst þú með guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta
skalt.” H. J. L.
FRA ISLANDI.
Inflúenza beriðist út hér í bæn-
um. Mislingar víða um land.
Ágætis tíð um land alt. — Upp-
•gripa afli á Vestfjörðum.
Sandgerði, 5. febr..
Bátar fóru á sjó 1 gærkvöldi kl.
um 10—11 og eru flestir komnir.
— Afli er góður. Á laugardaginn
fengust 400—650 litrar af lifur
á bát eða upp í 16—17 skpd. —
—Mgbl.
PRINCESS FLOWER SHOP
Laus blóm—Blóm í pottum
Blómskraut fyrir öll tækifæri
Sérstakl. fyrir jarðarfarir.
412 Portage at Kenned. 87 876
BJÖRG FREDERICKSON
Teacher of Piano
Ste 8, Acadia Apts. Victor St.
Telephone: 30 154
Kvikmyndin heimsfrœga
King of Kings
verður sýnd í lútersku kirkjunni í Riverton, dagana 12. og
13. þ. m., kl. 9 að kveldinu. — Áðgangur 50c fyrir fullorðna
og 25c fyrir börn. — Látið ekki svona uppbyggilegan og á-
nægjuríkan atburð fram hjá ýður fara, heldur fjölmennið
bæði kvöldin.
.PBtssuai
F'ishermen’s Supplies Limited
Um'boðsmenn fyrir—
Tanglefin Fiskinet, tilbúin af National Net and Twine Co.
Brownie kaðla og tvinna.
Vér höfum í Winnipeg birðir af
Tanglefin Fiskinetjum, með lögákveðinni möskvastærð.
Maitre kaðla og tvinna.
Kork og blý.
Togleður fatnað.
Komið og sjáið oss, þegar þér komið til Winnipeg, eða skrif-
is oss og vér skulum snda yður verðlista og sýnishorn.
FISHERMEN’S SUPPLIES, LTD.
401 Confederation Life Bldg. Winnipeg. Sími 28 071
“Northern” Rubber Skófatnaður
Fvrir a!la útivinnu og yfirleitt fyrir öll þægindi
hvað skófatnað snertir, þá biöjið um “Northern
fyrir skógarhöggsmenn.
Rubber skór til allra nota.
Gult elksleður að
ofan dökt að neðan.
Uppbrettir sólar, ein-
gerðir hælar.
Karlmanna, drengja, kven-
manna, ung-
meyja og
barna
stærðir.
"The Prospector"
Gætið vörumerkisins
Allir úr robber, 7 og 9 þuml. háir
The “BUSHMAN”
MMITED
Allar tegundir af “Northern” stígvélum og rubber,
sem þér þarfnist, ávalt fyrirliggjandi hjá
SIGURDS0N-TH0RVALDS0N
ARBORG, MAN. - - RIVERTON, MAN.
Continuous Telephone 87 OZ5 Saturday
Æ. Wonderland
DOUBLE ROGRAMME THIS WEEK, THUR-FRI-SAT
JACK H'OLT, in COURT MARTIAL
and HOOT GIBSON in THE TRICK OF HEARTS
Also the Mystery Rider Capter 5
MON—TUE)—WED, MARCH 11—12—13
TWO BIG FEATURES
LAUBA LA PLANTE
in “HDME JAMES” and
“THE STREET OF ILLUSION”
With VIRGINIA VALLI and IAN KEITH Also The Collegian
Okejrpis
Getið, hve þungur er hinn
afar-stóri pakki af JIF, sem
til sýnis er í búð vorri, og fáið
Challenger Model Laundry
Queen Washer ókeypis.
Einir kven silkisokkai
og tuttugu og fjórir 25-
centa pakkar af Jif, með
hverri vél sem keypt er
frá þessum tíma til 20.
apríl.
Þrjár búðir: Áhalda deildin,
Á neðsta gólfi Electric Rail-
way Chbrs., 1841 Port. Ave,
St. James, Cor. Marion og
Tache, St. Boniface.
WINNIPEG ELECTRIC CO.
“Ábyrgjast góð viðskifti”
BORGIÐ LÖGBERG!
RAMONA BEAUTY PARLOR
íslenzkar stúlkur og konur. Þeg-
ar þið þurfið að klippa, þvo, eða
laga hárið, eða skera eða fága
neglur, þá komið til okkar. Alt
verk ábyrgst. Sanngjarnt verð.
251 Notre Dame Ave.
Sími: 29 409
Inga Stevenson. Adelaide
Jörundson.
Tilkynning!
The Cake Shop
701 Sargent Ave.
Vér förum nákvæmlega eftir sett-
um reglum hvað snertir hlutföll efn-
is og gæði og allan tilbúning á öllu,
sem vér bökum og er það því alt
eins gott og fullkomið eins og bezt
má vera. Til að kynna vörur vor-
ar seljum vér á laugardaginn 9.
marz, einn dag aðeins, öll vor pies
með gjafverði:
Raisin Pies ..........15c
Apple Pies, eplin ný og géð 20c
Lemon Pies ...........25c
öll Cream Píes .......35c
Vér erum þess fullvissir að hús-
mæðurnar kunna að meta þetta.
Electrically
Hatched
BABV
CHICKS
“Fyrir afurðir, sem eg hefi selt
og það, sem eg á éselt hefi eg feng-
ið $125.00 ágóða af þeim $18.00, sem
eg I aprfl I fyrra borgaði yður fyr-
ir 100 Barred Rock unga,” skrifar
oss Mrs. C. B. Denny, Milden, Sask.
pessi vitnisburður, eins og margir
aðrir, sem oss berast án þess við
biðjum um þá, er oss sönnun þess.
að það borgar sig vel fyrir bændur
að fá eitthvað af vorum kynbættu
varphænum. Bók, sem er 32 bls. og
með litmyndum fáið þér gefins.
Hún gefur yður allskonar uppiýs-
ingar um hænsni og hvernig með
þau á að fara. 10% afsláttur á öll-
um pöntunum fyrir 1. marz.
Hambley Windsor Hatcherles, Ltd.
601 Dogan Ave., Winnipeg, Man.
GREAT-WEST CANADUN
ÞJÖÐSÖNCVAR, ÞJÓÐDANSAR
OG
HEIMILISIÐN AÐAR SÝNING
REGINA - - MARCH 20-23
Fjögra daga hrífandi skemtun, er
sýnir söng og heimilis-iðnað fólks
í Sléttufylkjunum.
Söngvar - hljóðfoeraleikarar - alþýðudanzarar frá
20 ÞJÓÐUM
klæddir í hina skrautlegu og fÖgru
þjóðbúninga sína.
Heimilis-iðnaðar Sýningin, U ndir umsjón Canadian Handi-
craft Guild — en söngur og Þjóðdajisar undir umsjón The
Department of Music, Canadian. Pacific Railway.
Þeir, sem vilja senda muni á sýninguna, setji sig í sam-
band við Mrs. Illingworth
HOTEL SASKATCHEWAN
The Canadian Pacific Hotel at Regina, Sask.
A Strong, Reliable
Business School
UPWARí) OF 2000 ICELANDIC STUDENTS HAVE.
ATTENÐEI) THIS COLLEGE SINCE 1909.
The Success College, of Winnipeg, is a strong,
reliable school—its superior service has resulted
in its annual enrollment greatly exceeding the
yearly attendance of all ótheí Business Colleges
in the whole Province of Manitoba. Open all
the year. Enroll at any time. Write for free
prospectus.
BUSINESS COLLEGE, Limited
385V^ Portage Ave. — tVinnipeg, Man.