Lögberg - 15.08.1929, Blaðsíða 1

Lögberg - 15.08.1929, Blaðsíða 1
42 ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 15. AGÚST 1929 ✓POC L Helztu heims-fréttir IC=\) >0<=Z>0C=>0' J Canada í öllum fylkjum Oailada er nú stjórnar vínsala, nema í Prince Edward Island og Nova Scotia. Árið sem leið nam áfengissalan alls $107,694,384, og kemur þá söluvert yfir $10 á hvert manns- barn í landinu. Tekjur stjórn- anna af þessari áfengissölu urðu yfir árið $72,560,501. Þar af fékk sambandsstjórnin $49,805,291, og fylkisstjórnirnar alls $22,855,261. Tekjur fylkjánna eru samt í raun og veru meiri, en hér segir, að minsta kosti í Saskatchewan og British Columbia. Mestar tekjur hefir Ontario haft af áfengissöl- unni, eða $8,130,390, og þar næst Quebec með $7,000,000. Þá Al- berta og 'British Columbia, með meir en hálfa þriðju miljón hvont. Öll hin fylkin eru innan við milj- ón; Manitoba með $9216,163. en hér er þess að gæta, að ölgerðar- húsin í Manitoba hafa leyfi til að selja bjórinn beint til almennings. Annars mundu tekjur stjórnar- innar af áfengissölunni töluvert hærri. * * * * Nú hafa utanríkisstjórnir Can- ada og Bandaríkjanna útnefnt sinn manninn hvor, til að gera um málið, sem út af því reis, að ein af strandvarnar snekkjum Bandaríkjanna sökti skipinu “I’m Alone”, sem á ólöglegan hátt var að flytja áfengi til landsins, en skipið var Canada tilheyrandi. Einn maður fórst þegar skipinu var sökt. Canadastjórn hefir út- nefnt fyrir sína hönd Eugene La- Flieur, K.C., lögmann í Montreal, og Bandaríkjastjórnin hefir út- nefnt Willis Van Deanter, dómara í hæsta rétt Bandaríkjanna. Þar að auki hefir Canadastjórn skip- að eina þrjá lögmenn til að lítaj eftir hagsmunum Canada í þessul máli. * * # Iðnaðarfélagið, Canadian In- dustries Limited, hefir keypt þúsund ekriur af landi skamt frá East Selkirk, og hér um bil átján mílur norður frá Winnipeg, þar sem það ætlar að reisa stóra verksmiðju á næsta ári, þar sem búa á til sprengiefni, sem nú er alt af meiri og meiri iþörf fyrir, eftir því sem námaiðnaðurinn hér í norðurhluta Manitobafylkis og nágranna fylkjunum, fer vaxandi. Er búist Við, að næsta sumar vinni tvö til þrjú hundruð manna við byggingu þessarar verksmiðju og eftir að hún er komin upp, er gert ráð fyrir, að hún veiti 60—70 mönnum stöðuga atvinnu. * * * Föstudagurinn í vikunni sem Jeið, var heitasti ágústdagur, sem komið hefir í Winnipeg, svo sög- ur fari af. Hitinn komst þann dag u'Pp í 98 stig. Það er að eins tveimur stigum minna, heldur en niesti hiti, sem komið hefir í Win- nipeg, síðan hér var reglulega f*orið að mæla hita og kulda. Það var 23. júní árið 1900; þá komst hitinn upp í 100.5. Einu sinni áð- ur hefir hitinn í Winnipeg verið jafnmikill, eins og á föstudaginn, tað var 31. júlí 1926. * * * Samkvæmt nýjum skýrslum frá hagstofu sambandsstjórnarinnar í Ottawa, hefir kjötneyzla þjóðar- innar, árið sem leið, numið 156 Pundum á mann. Er hér átt við allar tegundir af kjöti. * » * Nýdáinn er Senator N. K. La- fiamme, K.C., merkur lögmaður i Montreal. Hann sat þing lög- fr*ðingafélags Canada í Winni- í*eg 1928, sem fulltrúi dómsmála- ráðherrans. Eru nú fjögur auð ®®i-i í efri málstofunni, þrjú í Uebec og eitt í Manitoba. En ekki breytir þetta afstöðu flokk- Uuna í efri málstofunni, því fylg- 'snienn stjórnarinnar skipuðu öll þessi sæti. Á föstudaginn í vikunni sem leið, brann salt verksmiðja að Bishopric, Sask., til kaldra kola. Er skaðinn talinn um $500,000. Þar unnu 35 menn, og er sagt að iðnfyrirtæki þetta hafi staðið með miklum blóma. * * * Graf Zeppelin kom með heilu og höldnu til Friedsrichshafen á laugardaginn, eftir 4,200 mílna flug frá Lakehurst, N. J. Var loft- skipið nú fljótara í ferðum held- ur en það hefir áður verið á ferð- um sínum yfir Atlantshafið, eða 55 klukkustundir og 24 mínútur. Er það 13 klukkustundum og 22 mínútum styttri tími, en það hef- ir áður verið fljótast að fljúga þessa leið. * * # Isaac Campbell, K.C., andaðist að heimili sínu, 586 Eiver Ave., Winnipeg, aðfaranótt þriðjudags- ins í þessari viku, 13. ágúst, 76 ára að aldri. Mr. Campell var einn með merkustu lögmönnum og stjórnmálamönnum í Manitoba á sinni tíð. iFylkisþingmaður var hann um tíma á þeim árum, sem Hon. Thomas Greenway var for- sætisráðherra. Um sæti á sam- andsþinginu sótti hann einu sinni í Winnipegborg, gegn Sir Hugh John Macdonald, og tapaði hann í þeim kosningum. Var sú kosn- ingahríð lengi í minnum höfð, er vafalaust kom til af því, að um- sækjendurnir voru atkvæðameiri og vinsælli heldur en vanalega greist. Þótt Mr. Campell væri ekki lengi þingmaður, þá var hann þó jafnan áhugasamur um stjórn- mál og mikill áhrifamaður í sín- um stjórnmálaflokki, frjálslynda flokknum. Mr. Campell var ó- vanalega vel máli farinn maður. Hvaðanæfa Loftskipið mikla, Graf Zeppe- lin, lagði af stað frá Lakehurst, N. J., hinn 7. þ. m., með 22 far- þega, auk skipverja, sem eru um 40. Á nú að fljúga umhverfis jörðina og koma aðeins við á þrem stöðum, Friedrichshafen, Tokio og Los Angeles. Flugleið- in er talin 22,000 mílur, og er mikið af henni yfir úthöf og eyði- merkur, svo geta m ánærri, að hér er lagt út í hættuför ekki litla. En foringi fararinnar er Dr. Eck- ener. Er hann hinn öruggasti, og gerir sér hinar beztu vonir um, að ferðin hepnist vel. * * * Enn lítur heldur ófriðlega út milli Kínverja og Rússa, og lítur ekki út fýrir að ágreiningur sá, sem risið hefir milli þeirra þjóða, hafi enn jafnast. Hafa báðar þjóðirnar fjölda hermanna og mikinn herútbúnað á landa- mærunum og hafa jafnvel borist þær fréttir að þar hafi lent í ein- hverjar skærur, en þær fréttir virðast heldur vafasamar og mið- ur ábyggilegar. Til Pálma er hann var staddur, ásamt konu sinni, í Winnipeg, 1. ágúst 1929. 1 fjarlægð, Pálmi, fann eg þig fyrst, í smáu ljóði. — í vetrar hríð þá hresti mig þin hugsjón, vinur góði. Þú tókst úr minni götu grjót, er gjorðist farar támli.' — “Víða liggja vegamót”— vinur kæri, Pálmi. Þíns viðmóts njóta veit eg nú að vinum dýrmætt þykir. —Á brúðkaupsferð hér birtist þú, er blómatíminn ríkir. Auðgist þú og fljóð þitt frítt, af fögrum andans málmi. Fyrir orð og handtak hlýtt hjartans þakkir, Pálmi. G. H. Hjaltalín. Jarðskjálftarnir á Islandi Reykjavík, 24. júlí 1929. Stundarfjórðungi fyrir klukkan sex í gær, kom hér í Reykjaví'k svo harður jarðskjálftakippur, að menn muna hér ekki annan eins. Hús hristust , svo að brakaði í þeim, og fjölda fólks var nóg boð- ið, svo að það þusti út á götumar, sumpart til að bjarga sér, ef hús- in skyldu hrynja, sumpart til þess að verða sjónarvottar að atburð- um þeim, er fyrir kæmi í grend- inni. Talið er, að kippurinn hafi staðið 35—40 sekúndur. Er það langur jarðskjálftakippur. Skemdir á húsum. Þegar þetta er ritað, er ekki hægt að gefa fullkomið yfirlit yf- ip skemdir þær, sem orðið hafa hér í bænum. Svo margar kvik- sögur gengu manna á milli, að erfitt var í gærkvöldi að greina satt frá ósönpu. Skal hér talið það, sem Morgunblaðið, hafði frétt í gær með vissu. Mest brögð virðast hafa orðið að skemdum á húsum þeim, sem hlaðin eru úr. grásteini, svo sem Alþingishúsinu, og Landsímastöð- inn. 1 velflestum herbergjum þinghússins mun bera á sprung- um, einkum meðfram loftum og hrundi nokkuð niður af loftlist- um — einkum í Neðri deild. Kon- ungsmerkið með kórónunni á þak- skegginu yfir ganginum, fékk þverbrest og datt lítill moli úr merkinu niður á gangstéttina. Landsímastöðvarhúsið skemdist og talsvert, veggir sprungu, reyk- háfur hrundi og þessháttar. Reyk- háfar hrundu á allmörgum húsum í bænuin, og hefir blaðið ekki tölu á þeim. Sprungur komu í veggi á nokkr- um steinsteypuhúsum, en sögu- sagnir þær, sem gengu um bæinn um þau efni í gær, voru allmarg- ar orðum auknar. Skemdir innanhúss. 'Svo mikill var hristingurinn í mörgum húsum, að munir duttu úr hyllum, vörur, sem settar voru fram til sýnis í búargluggum, hrundu víða í hrúgur. Nokkrar búðargluggarúður munu hafa sprungið. Mest tjón varð í gler- vörubúðum. Þar munu sumstaðar hafa brotnað vörur svo að all- miklu nam. Húsin vingsast til. Svo mikil var jarðhræringin, að þeir sem úti voru, nálægt há- um húsum, sáu þau vingsast til. Hvein og brakaði í öllum húsum, svo brakhljóðið og glumrugangur- inn minti á að komið væri alt í einu ofsarok. En veður var hið bezta, blæjalogn og sólskin. — Á Tjörnina kom allmikil bára, og við hristinginn gaus upp úr henni óþefur all-mikill. Sumstaðar sáust göturnar og gangstéttirnar ganga svo til, að sást í raðir gangstétta- flísanna, er þær sporðreistúst augnablik úr stellingum sínum. Alment mun það vera álit manna, að jarðskjálftar þessir hafi ekki mátt verða mikið meiri til þess að hér hefðu hús hrunið og yfirskollið stórkostlegasta og hörmulegasta slys, sem fýrir bæ þenna getur komið. Hvaðan stafaj- jarðskjálftinn Þeirri spurningu er alls ekki hægt að svara nú. Þorkell Þor- kelsson veðurstofustjóri fór strax eftir kippinn vestur í Stýrimanna- skóla, til þess að athuga jarð- skjálftamælana, sem þar eru. En því miður var lítið á þeim að græða. Jarðhræringin hefir ver- ið svo mikil, að þeir fóru báðir úr skorðum. Þó var Þorkell helzt á því, að hreyfingin hafi komið úr norðaustri. Hvað náði jarðskjálftinn yfir stórt svæði Var hann meiri ann- arsstaðar á landinu? Þessar spurningar vöknuðu.fyrst hjá mönnum hér, er þeir höfðu gengið úr skugga um, að engin alvarleg slys hefðu hér orðið. Með því að athuga hve langt jarðskjálftinn náði, bjuggust menn við að hægt væri að gera sér nokkra grein fjrrir hvaðan hann stafaði. Frá Morgunblað- inu var því tafarlaust hringt í allar áttir út um land. > Jarðskjálftinn náði austur að Skeiðarársahdi, vestur á Snæfells- nes, norður á Borðeyri, að því er Morgunblaðið frétti í gær. Eftir þeim upplýsingum, sem Morgbl. fékk í gær, hefir jarð- skjálftinn varla verið mikið meiri annars staðar, en hér í nágrenni Reykjavíkur, þó e. t. v. nokkru meiri í sumum sveitum austan fjalls, en hvergi fréttist um slys, sem af honum hefði hlotist. Erfitt er að meta það eftir lauslegu umtali í síma, hvort jarð- skjálftinn hefir verið meiri á ein- um stað en öðrum, fólk leggur á slíkt svo misjafnan mælikvarða. En yfirlitið, er blaðið fékk i gær, er á þessa leið: 1 Vestur-Skaftafellssýslu fanst jarðhræingin aðeins, t. d. fanst hún á Kirkjubæjarklaustri aðeins af fólki því, er var inni við. Líkt var sagt frá Vík, þó mun kippur- inn hafa vevrið snarpari þar. í neðanverðri Rangárvallasýslu voru talsverð þrögð að honum. Þó duttu engir húsmunir t. d. í Efra- 'Hvoli. Aftúr fréttist um allmikla hreyfingu 1 Miðey 1 Landeyjum. í Þjórsártúni var engu meiri hrær- ing, en á; Efra-Hvoli. En aftur á móti var sagt í Fells- múla í Landsveit, að þar hafi kipp- urinn verið bæði mikill og lang- ur. Sagði heimildarmaður blaðs- ins, að hann myndi hafa staðið yf- ir í eina mínútu. Áður en hann kom, heyrðist hár þytur úr suð- austurátt. Kippurinn var þar tal- inn álíka snarpur og snörpustu kippir, sem þar komu fyrir Heklu- gosið 1918. Hjá ölfusá var kippurinn svo snarpur, að myndir duttu niður af veggjum og hlutir hröpuðu fram úr hyllum. í lágsveitum Árnessýslu mun jarðskjálftinn hafa verið álíka mikill og í Landsveit. Af Eyrar- bakka fréttist, að það hefði tals- vert hrunið og brotnað í húsum. Sagt var þaðan sem dæmi upp á hristing að bíll, sem stóð mann- laus þar á veginum, rólaði til fram og taftur. Frá Fjöldamörgum stöðvum í Borgarfirði, Mýrasýslu og alla leið út á Snæfellsnes *Ólafsvík og Hellissand) fréttist um álíka hristing og hér var, a. m. k. ekki minni, og eins á Borðeyri. Á Blönduósi og Akureyri urðu menn hans ekki varir, og heldur ekki á Húsavík. En heimildarmað- ur Morgunbl. gat þess, að á þess- um tíma, er alt skalf hér syðra, voru Húsvíkingar að fagna Súl- unni, og hvert mannsbarn úti við, svo að segja. Hefði því vel getað verið, að lítil hræring hefði farið fram hjá mönnum. Er eldgos í vændum? Eins og eðlilegt er, verður mönn- um tíðrætt um það, hvort þessi jarðskjálfti, er náði yfir svo stórt svæði, muni vera fyrirboði þess, að eldgos sé í vændum. Er eigi ólíklega til getið, að svo sé. En hvar er eldsumbrota að vænta? Dr. Helgi Péturss mun ■hafa haldið því fram í vetur, að vænta mætti eldsumbrota í Hengl- inum. Aðrir spá, að Hekla muni nú láta á sér bæra. En sé svo, að upptök jarðskjálftanna séu austur við Heklu, mun munurinn á styrkleika þeirra þar eystra og hér í gær, tiltöllega lítill. Eftir jarðskjálftasvæðinu í gær að dæma, ættu upptökin að vera vestar en í Heklu. Stefna hreyfingarinnar í gær bendir enn fremur til þess. Eftir þeim upplýsingum, sem Morgbl. fékk seint í gærkveldi, má telja fullvíst, að kreyfingin hafi skoll- ið hér yfir frá norðaustri. Frá höfninni. Sprungur komu í eystri hafnar- garðinn, “Batteríisgarðinn”, ein- ar þrjár, og garðhausinn við hafn- armynnið raskaðist eitthvað, óvíst tíve mikið. Sprunga kom einnig í hafnarbakkann, þar sem kolahegr- inn er. Þegar kippurinn kom, var Drotn- ingin á förum, og stóð fjöldi fólks niður á hafnarbakkanum. Þegar jarðskjálftinn kom, áttuðu margir sig ekki á því í bili, hvað um var að vera, og héldu að vél skipsins væri að fara af stað. En er þyt- urinn jókst, og glumrugangurinn byrjaði í húsunum, skipið tók að nagga í garðinn, og vörur að raskast 1 vöruhlöðunum er þarna eru, þaut flest afi fólkinu upp af bakkanum í áttina til geymslu- húsanna. Fólk, sem í skipinu var, hélt enn fremur að lætin stöfuðu frá skipinu; t. d. vélarúminu, þar hefði sprenging átt sér stað eða þ. h. En brátt sáu menn, hvers kyns var, enda skifti ekki löngum togum, unz alt var með kyrrum kjörum. Annar kippur miklu vægari, kom klukkan rúmlega sjö og hinn þriðji, þeirra vægastur, klukkan átta. — Mgbl. Reykjavík, 25. júlí. í gær var mönnum tíðrætt um jarðsskjúlftana, eins og nærri má geta. Ber öllum saman um , að hér í Reykjavík hafi ekki komið harðari kippur í jarðskjálftunum 1896, en kippurinn í fyrradag. Upptökin. Morgbl. átti í gærkvöldi tal við Þorkel Þorkelsson veðprstofu- stjóra. Hann gat ekki í fyrra- kvöld sagt með neinni vissu hvar upptök jarðskjálftanna væru, vegna þess að jarðskjálfamælarn- ir fóru úr lagi. En hann hélt þá. að upptökin væru í norðausturátt héðan. Seinni partinn í gær, fékk hann skeyti frá athuganastöð í Eng- landi, sem staðfesti þetta. Eftir þeim upplýsingum, sem hann fékk þaðan, eru upptökin 30—40 km. frá Reykjavík, í stefnu á Borgar- fjarðardali. Engin eldfjöll eru á þessura slóðum, sem kunnugt er, og eru því miklar líkur tii þess, að jarðskjálftar þessir stafi ekki af eldsumbrotum. Smájarðhræringar, segir Þ. Þ„ að verið hafi hér hvað eftir ann- að undanfarna viku. Eins fund- ust hræringar í fyrri nótt, en eigi miklar. tJr Grímsnesi fékk Morgunbl. þá frétt í gær, að heyrst hefðu dynkir í fjöllunum í vesturátt, og fanst þar grenilega, að hrejrfing- in kom að vestan. Jarðskjálftinn fanst greinilega á Vestfjörðum, var kippurinn t.d. allsnarpur á ísafirði, svo snarp- ur, að bollar brotnuðu e. d. eða annað brothætt í einstaka húsi. Er mjög óvanalegt, að svo snarp- ur jarðskjálfti komi þar vestra. Kippurinn, sem mestur var hér, fanst og greinilega á Siglufirði. Hann hefir því náð um meira en hálft landið. í gær urðu menn varir við nokkrar sprungur í steinhúsum hér í bænum, sem eigi var veitt eftirtekt strax í fyrradag, en komið hafa í jarðskjlftunum. Eftir því, sem meira heyrist um það, hve jarðhræringarnar voru hér miklar, furðar menn meira á því, að eigi hafi frekar tjón af hlotist. — Mgbl. Hlýir straumar Sunnan úr Mexico-flóa kemur Golf-straumurinn streymir til norðausturs á ská yfir hafið og flytur svo öllum norðvesturhluta Norðurálfunnar lífgefandi yl. Eg hefi sjálfur nokkra reynslu af hita Golf-straumsins. Þegar eg ferðaðist frá Seattle til New York gegn um Panama skurðinn, fann eg þær stundir heitastar á allri ferðinni, og þá var líka skipið hraðskreiðast, er leiðin lá eftir Golf-straumnum fram hjá Flor- ida-skaga. Bandaríkja-íslendingar. Oft hefir það verið talið til erfiðleika, að hið lúterska kirkju- félag vort er skift milli tveggja ríkja, og auðvitað er það tilfellið, að einmitt þess vegna er ekki eins auðvelt að eiga samleið í öll- um málum, en sá er kostur við þetta ástand, að kirkjufélagið eignast við þetta meira víðsýni. Á síðari árum hefir fólksfjöldi kirkjufélagsins verið meiri Can- NÚMEP 33 The Pioneer’s Field By Bicha.rd Beck. You walk a sacred ground, tread gently here; This field was dearly bought. Through sacrfice Of blood and tears a nation’s glories rise, Builded y menn who never learned to yield To any foe—mortal or not of clay. The toiler’s story whispers yonder oak, Rugged as he and bent with lieavy years, Yet broken not, though trembling oft with fears, A hero garland-crowned by Nature’s hand, — The fearless planter’s worthy monument. ada-megin, þungamiðja starfsins hér, og nú eru flestir embættis- menn kirkjufélagsins hér megin landamæranna, en hvort sem for- setinn hefir átt heima norðan eða sunnan “linunnar”, hefir drottin- hylli og drenglyndi gagnvart kirkjufélagsmálum átt sterk ítök meðal Bandaríkja-íslendinga. Því miður hefir Jóns Bjarna- sonar skóli ekki átt því láni að fagna, að heilla til sín marga námsmenn úr Bandaríkjunum. Einn í hópi fyrstu námssveina var samt sunnan úr Minnesota-ríki, ágætur námsmaður, Christian Árnason. Annar kom til vor seinna, frá Svold í N. Dakota, Tryggvi Björnson. Hann var með oss þrjúár og lauk námi með sóma. Hann hefir nú stundað nám í hljómfræði í New Yorkborg í þrjú ár og síðari hluta þess tíma haft þar sívaxandi nemenda-hóp. Hann er hér nú um þessar mund- ir og býður fólki til hljómleika. Var að heimsækja foreldra, syst- kini og æskustöðvar í Norður- Dakota og ferðast svo nokkuð um bygðir og heldur samkomur. Rækt hans til skóla vors kemur meðal annars fram í því, að hann hefir áformað halda eina sam- komu hér í borginni til arðs fyrir skólann. Hún verður haldin í Fyrstu lútersku kirkju 23. þessa mánaðar. Á þetta verður síðar minst. Enn fremur ber að geta þess, að Mr. Björnson heldur aðra samkomu síðar hér í Winnipeg. Fleiri nemendur sunnan að hefðu getað stundað nám með oss, ungir menn, sem hafa komið norður til þess að búa sig undir læknafræðisnám. Sumir hafa staðið í þeim misskilningi, að skóli vor gæti ekki leyst þetta verk af hendi. Það er samt til- fellið, að flest árin, síðan skólinn tók að fást við nám fyrsta bekkj- ar háskólans, höfum vér haft eitthvað af nemendum, sem hafa verið að búa sig undir lækna- skóla eða “engineering”, og það er líka verulegur sannleikur, að enginn þeirra nemenda hefir fall- ið í ársprófi. Þeir hafa stundum fallið í einni námsgrein eða tveimur, en ekki í ársnáminu. Ef vér hefðum eins mikla trú í verkinu á landanum, eins og vér höfum í orði á íslendingadaginn, þyrfti ekki að kvarta um skort á stuðningi í neinum málum vor- um. Þrátt fyrir það, að skólinn hef- ir lítið verið notaður af Banda- ríkja-íslendingum, hafa þeir samt styrkt hann. Þegar eg, eitt sinn, safnaði fé heilan vetur fyrir skólann, fékk eg í það heila, eins góðar viðtökur og eins góðar und- irtektir í Bandaríkjunum eins og í Canada. Hlýlegustu orð, sem nokkurn tíma hafa verið til mín töluð í sambandi við þetta starf mitt, voru töluð af Bandaríkja- manni, hr. G. B. Björnson. Á kirkjuþinginu siðasta var samþykt að fylgja upphaflegri hugmynd skólamálsins, að beina fjársöfnun til safnaðanna. Nokkru eftir kirkjuþing var svo kirkju- þingserindrekum send skrifuð til- kynning um þessa ákvörðun. Málið hefir fengið hlýlegar undirtektir, bæði í Canada og Bandaríkjunum. Kafla úr bréfi að sunnan um þetta mál, leyfi eg mér hér að birta: “Mér þótti vænt um myndirnar og ritgjörðina um skólann, sem kom í Lögbergi í gærkvöldi. Það er nauðsynlegt, að halda stöðugt uppi ummælum og útskýringum um skólann. “Það þarf lika að brýna ræki- lega fyrir prestum og erindrek- um samþyktir og gjörðir kirkju- þinganna. Það þarf að uppbyggja meðal fólks vors meiri ábyrgð og virðingu fyrir okkar sameigin- legu, kirkjulegu starfsemi á kirkjuþingum. “Við höfum hugsað okkur hér, að kalla saman fulltrúafund úr öllum söfnuðunum til að tala um skólamálið. “Svo bið eg guð að blessa starf þitt.” Bréfið er persónulegt bréf til mín, en eg vona, að það gjöri ekk- ert nema gott að birta það. Höf- undurinn er Bjarni Jones, í Min- neota, einn af fulltrúum á síðasta kirkjuþingi. Andann í bréfinu nefni eg hlýj- an straum. Það er hann með réttu frá upphafi til enda, og fátt er oss meiri nauðsyn nú en það, I að hiýir straumar streymi um alt kirkjufélag vort. Á eg auðvitað við það, að öll þau hlýindi komi frá Guði. Enginn má misskilja orð mín Svo, að eg sé að kvarta um nokk- urn skólamáls-kulda hér í Canada. Að visu er hann til, bæði í Can- ada og Bandaríkjunum, en rétt sem stendur er eg ekki að kvarta undan neinu, en þess vil eg biðja, að hlýir straumar eins og þessi sunnan frá Minneota, bræði allan skólamáls-ís, sem til er meðal vor. Með heitum hjörtum og vilja- þrungnu viti getum vér gjðrt skólamálið að suðrænum pálma- lundi. “Kærleikans andi, hér kom með þinn sólaryl blíða, kveik þú upp eld þann, er hjartn- anna frost megi þíða; breið yfir bygð bræðralag vinskap og trygð,” — Segjum, að vér biðjum um það, bæði í orðum og í starfi kirkjufé- lags vors: “Breið yfir bygð, bræðralag vinskap og trygð.” Einn þátturinn í þessum hlýleik að sunnan, er eftirtektaverður. Það er drengskapur við kirkjufé- lagið. Sá andi kemur fram í of- anskráðu bréfi, og eg fann hann sterkan, þegar eg var þar á ferð til að vinna að skólamálinu. Mönnum þar finst, að drengskap- ur við kirkjufélagið, sem þeir til- heyra, kref jist þess, að þeir styrki mál þess. Getur nokkur neitað því, að það sé réttur skilningur? Skólinn hefur starf sitt á ný 18. september. Sendið umsóknir til Miss Hall- dórsson, Lundar, Man., eða til séra Rúnólfs Marteinssonar, 493 Lipton St„ Winnipeg. Fyrir- spurnum fúslega svarað. Fyrsti maðurinn á þessu sumri til að sækja um inngöngu í skól- ann fyrir son sinn, er amerískur prófessor, sunnan úr Bandaríkj- um, sem dvelur í Winnipeg í vetur. Eg er líka þakklátur fyrir þann hlýja straum. Á hlýjum straumum berst til ; vor samúð, á þeim berst til vor fjárstyrkur og á þeim berast til vor nemendur. Sendið skólanum hvaðanæfa hlýja strauma. R. M. I

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.