Lögberg - 10.10.1929, Blaðsíða 5
LÖGBEKG, FIMTUDAGINN 10. OKTÓiBER, 1929.
Bls. 5.
í meir en þriffjung aldar hafa
Dodd's Kidney Pills verið viður-
kendar rétta meðalið við bakverk,
gigt, þvagteppu og mörgum fleiri
sjúkdómum. Fást hjá öllum lyf-
sölum, fyrir 50c. askjan, eða sex
öskjur fyrir $2.50, eða beint frá
The Dodds Medicine Co., Ltd.,
Toronto, ef borgun fylgir.
frá eldstöðvunum um miðbik
landsins. Líkt má segja um sand-
ana á suðurströnd landsins vest-
an frá Reykjanesi austur til
Hornafjarðar. Mest af þeim sönd-
um er framburður ánna frá eld-
gosasvæðunum, sem sjórinn ber
svo aftur að ströndinni og vind-
urinn feykir inn yfir graslendið.
Þeir sandar, sem eru þannig
komnir frá ám og sjó, eru oftast
þvegnir, frjóefnasnauðir og mold-
arlitlir. Sumstaðar hafa þó bland-
ast saman við þá frjóefni, t. d.
jökulleðja úr jökulám, þari eða
kalk, verða þeir því stundum
furðufljótir til gróðurs, ef þeir
eru friðaðir og sáð í þá.
önnur tegund sanda er oftast
uppi í' sveitum landsins, þar sem
uppblástur hefir herjað, sand-
hrannir myndast og moldarflög
blásið. Víða hafa verið á sand-
auðnunum skógar, tún, frjósamar
engjar eða beitilönd, og hefir
moldin þá oftast blandast saman
við sandana. Sandarnir þar eru
því ekki svo mjög fátækir af
frjóefnum og taka fljótt við
gróðri við friðun og sáningu.
Slík merki sjást glögglega í sand-
græðslugirðingum á Stóra-Klofa
og Stóru-Völlum í Landmanna-
hreppi í Rangárvallasýslu og í
Gunnarsholti á Rangárvöllum.
Vanalegast er það, að moldin
fýkur langt, þar sem er upp-
blástur (mistur)1, og berst vítt yfir
landið, en sandurinn, sem í blæstr-
inum er, safnast í hauga, berst
yfir graslendið, ónýtir grassvörð-
inn og myndar nýtt gróðurlaust
svæði, sem blæs; þannig stækka
foksvæðin og sandmegnið eykst
með hverri nýrri skák, sem blæs
á grónu landi.
Á eldgosasvæðunum eru nálega
allstaðar sambland af ösku, vikri
og mold. Moldarlögin hafa mynd-
ast milli gdsanna, en vikurinn,
eða askan komið yfir landið, þeg-
ar gosið hefir. Móbergsfjöllin og
sandklappirnar moldna af áhrif-
um lofts og vatns, og er því stöð-
ug uppspretta af foksandi á eld-
gosa svæðunum. Mikið er af slík-
um söndum um miðbik landsins
t. d. í nánd við Heklu og öskju.
Á Norðurlandi í Þingeyjarsýslum
fýkur sandurinn mest niður í
sveitirnar af suðri, en é Suður-
landið er aðal sandfoksáttin af
norðri. Árnar, sem koma af sand-
foks- og eldfjallasvæðinu bera með
sér sand niður á láglendið og
vindurinn feykir sandinum frá
ánum. Sandsvæðin hafa stækkað.
Götur og umferð mynda víða
blástursvæði með fram þeim. —
Skógarhögg og hrísrif, meljutaka
og fénaðarbeit hafa flýtt fyrir
eyðileggingunni og uppblæstrin-
um. Kalkvistir og dauðar skóg-
arrætur hafa verið rifnar til elds-
neytis og vindurinn og sauðféð
hjálpað til að reita gróðurinn
burtu. Býlin hafa lagst í auðn,
hreppar hafa lagst í auðn og
aðrir færðir saman. Bændur hafa
horft á og hinir miklu búmenn
hafa brotið heilann, hvað gera
skyldi. Málið hefir verið athug-
að og dómar upp kveðnir, sem
hljóðuðu svo: “Það megnar eng-
inn mannlegur máttur að standa
móti áhrifum vindsins og sands-
ins, hann verður að fjúka og
landið að blása, en bændur að
flýja.” Þetta var gert, verkin sýna
merkin, bæjarrústir, kirkjurústir,
gamlir þingstaðir og heil héruð í
augn, veggjabrot og grjóthrúgur
sýna hvar bólstaðir forfeðranna
voru. Stöðugur flótti frá einum
stað til annars, frá einni jörð til
annarar. Gróðurlendið minkaði,
auðnirnar stækkuðu. Landið varð
fátækara og býlunum fækkaði.
Einn djúphygnasti sveitarhöfð-
inginn kendi sveitungum sínum
“að fá sem mest, en láta ekkert.”
Maður kendi manni þessi merki-
legu hyggindi. Landið var rænt,
en ekki ræktað; rányrkjan hefir
nú sýnt, hvert stefnir, og nýr á-
hugi og nýr skilningur hafa breytt
þeim gamla og skaðlega búmensku
anda, “að fá sem mest, en láta ekk-
ert.” Nýtt “mottó” er nú að læð-
ast inn á hvert heimili, það er að
rótfestast í hugum flestra bænda,
“'Mottóið” er: “gerðu garðinn
frægan.” Bóndinn, börnin, hjúin
þurfa að taka höndum saman um
að hlynna að býlinu. Frjóefni
jarðarinnar þurfa að fá að njóta
sín. Ljósgeislar, lífdaggir nátt-
úrunnar, megna að vinna á móti
eyðandi stormum og sandfoki hér
á landi, ef síngirnin er ekki látin
ráða. Landið getur ekki fætt ís-
lendinga um aldaraðir, ef af því
er tekið sem mest og ekkert fyrir
það gert. Þá fjölgar rústunum og
fækkar býlunum. Þá verður stöð-
ugt undanháld og auðnir stækka.
ísland ræktað og vel bygt að
húsum, og mannað af mentuðu og
dáðríku fólki, er það sem skapa á
nýja tíma, nýtt framtak, trygga
framtíð og traust viðnám. Sá
gerir ekki garðinn frægan, sem
lifir fyrir síngirnina eingöngu,
“að fá sem mest, en láta ekkert.”
Sá gerir garðinn frægan, sem
vinnur fyrir þá, sem á honum búa
á komandi tíma. Þeir vinna fyr-
ir landið, sem gera það byggilegt
og lífvænlegt fyrir þjóðina í fram-
tíðinni.
Metum verðmæti .gróðurmbld-
arinnar. Heftum sandfokið, græð-
um auðnirnar og byggjum upp
gömlu höfuðbólin, og höldum þeim
býlum við, sem í bygð eru, gott
er að fjölga þeim og reisa nýbýli
— en mikils er líka um það vert
að halda þeim við og bæta þau,
sem nú eru bygð.
28. júlí 1929.
—Tíminn. G. Kr.
Frá Islandi^
Frá Patreksfirði.
NýQátinn er Þorsteinn Árnason
á Patregsfirði, fyrrum bóndi á
Felli í Tálknafirði. Hann fanst
örendur skamt frá heimili sínu,
hafði orðið bráðkvaddur. Þor-
steinn heitinn var 62 ára. Hann
var dugnaðarmaður, sem gegndi
ýmsum trúnaðarstörfum í sinni
sveit.
Um miðjan ágúst andaðist á
Patreksfirði Anna Helgadóttir.—
Hún var gift Guðmundi Þórðar-
Byni útvegsbónda. Hún lætur eft-
ir sig 9 börn, og eru flest þeirra í
ómegð. Anna heitin var gáfuð
kona og fróðleiksfús, sem notaði
hverja tómstund til þess að lesa
blöð og bækur. Hún var stilt kona
og prúð, heimilisrækin og vann í
.kyrþey að því göfuga starfi, að
ala vel upp börn sín. Framkoma
hennar vakti traust og virðing
allra, sem nokkur kynni höfðu af
henni. (úr bréfi.).
Siglufirði, 5. sep.
Einstök herpinótaskip hafa feng-
ið smáslatta síldar þessa viku,
helzt í Eyjafjarðarmynni. Lag-
netaveiði í Dalvík og ólafsfirði
tvær nætur. Reknetaveiði engin.
— Þorskafli ágætur. Næg beita.
Talsvert af síld hefir verið lagt
inn á íshúsin siðustu daga, því
ekkert er saltað.
Reykjavík 7. sept.
í nýkomnum norskum blöðum
er skýrt frá því, að í Stafangri
hafi nýlega orðið að kasta 150
tunnum af íslenzku saltkjöti, því
við skoðun kom í ljós, að kjötið
var stórskemt og alls ekki manna-
matur. Eigandi kjötsins hafi
þarna beðið um 16 þús. kr. tjón.
Hafa blöðin eftir norskum dýra-
læknum, að þetta sé ekki í fyrsta
skifti, sem íslenzkt saltkjöt hafi
reynst illa verkað, þegar það kom
til Noregs. Undanfarin tvö ár
hafi oft komið saltkjötstegundir
frá íslandi, sem kjðtskoðunar-
menn í Noregi hafi verið í vand-
ræðum með; kjötið hafi verið illa
saltað og lögurinn fúll. —' Mgbl.
Farsóttir og mannadauði í Rvík
vikuna 25. til 31. ág. (í svigum
tölur næstu viku á undan). Hals-
bólga 62 (77), kvefsót 54 (48)k
kveflungnabólga 2 (0\ gigtsótt 2
(1) , iðrakvef 46 (74)k mislingar 1
(2) , hettusótt 2 (4)i, taksótt 9 (1),
umferðargula 1 (4), munnbólga
0 (3), impetigo 0 (l)t- Mannslát 2
(6). G-
Skýrsla um Ungmennaskólann í
Reykjavík er nýkomin út. Skólinn
tók til starfa 1. okt. í fyrrahaust
og var sagt upp 30. apríl. Skólinn
starfaði í 2 stofum Stýrimanna-
skólahússins, og var þetta starfs-
ár aðeins einn bekkur, sökum þess
að fáir óskuðu upptöku í 2. bekk.
í skólanum voru 47 nemendur í 2
deildum 1. bekkjar, en í kvöld-
deild nutu 17 nemendur kenslu. —
Mgbl.
Tímarit iðnaðarmanna, apríl—
júní heftið, er komið út. Frágang-
ur ritsins er sem fyr hinn prýði-
legasti. Þar er grein um starf-
semí iðnráðsins. Hefir það haft
með höndum góða starfsemi í þágu
innlendrar iðnverndar. Ráðið hef-
ir komið því til leiðar, að tilboð í
verk fyrir hið opinbera eru að-
eins tekin gild frá fagmönnum.
Þá er grein um innlenda leir-
brenslu eftir (Björn Björnsson.
Grein er um búð iðnaðarmanna á
Þingvöllum, er félagið hefir í
hyggju að reisa fyrir 1930 og nota
síðan til sumardvalar fyrir með-
limi. Loks er skýrsla Iðnskólans
í Reykjavík. í skólanum voru 239
nemendur í byrjun, en þegar fram
í sótti 233 sökum þeirra, er skár-
ust úr leik. Milli iðngreina skift-
ust nemendur þannig: Járnsmíða-
nemar 47, trésmíðanemar 46, mál-
unarnemar 33, múrsmíðanemar 32,
húsgagnanemar 30, raflagnanem-
ar 10, bökunarnemar 8, blikksmíða
nemar 5, prentnemar, veggfóðr-
unarnemar, skipasmíðanemar, 4
af hverjum, bókbandsnemar, úr-
smíðanemar 3 af hverjum, hús-
gagnafóðrun, klæðskurður 2 nem-
endur og við hitalagnir, móta-
smíði, steinsmíði, körfugerð og
vélavirkjun einn af hverjum nem-
enda. 14 kennarar störfuðu við
skólann, auk skólástjóra. Burt-
fararpróf var haldið í lok skóla-
árs og útskrifuðust 55 nemendur.
Hæstu einkunn hlaut Sveinbjörn
Gíslason múrsmíðanemi, ágætis-
einkunn 5,67. Stjórn skólans
skipa hinir sömu ménn og áður.
Húsnæðisvandræði eru mikil
hér í bænum, um þessar mundir.
Sagði byggingafulltrúinn Mgbl. í
gær, að venjulega hefðu þeir, sem
hús byggja, leigt hverja smugu í
þeim um það leyti, sem byrjað er
að grafa fyrir grunni þeirra.
Elliðaárstíflan við Árbæ verð-
ur fullgerð í þessum mánuði. —
Með henni stækkar rafveitulónið
að mun, afl stöðvarinnar eykst dá-
lítið, og minni hætta verður á
renslistruflunum vegna kraps og
þessháttar, en hingað til hefir ver-
ið. Byrjað er að stífla vatnið á
Elliðaárvatnsengjunum. — Mgbl.
Tvö erlend félög hafa látið þess
getið, að þau væru til með að gera
tilboð í Sogsvirkjunina, og jafn-
vel útvega fé. Eru það Simens og
Schuckerts í Berlín og Kampmann,
Kjerulff og Saxild í Höfn. Hafa
félög þessi haft menn hér til þess
að rannsaka staðhættina.
Tilboð í útvarpsstöðina hafa
komið 5 til landssímastjóra. Gert
er ráð fyrir að stöðin kosti alls um
650 þús. kr.
Tvær bátabryggjur eru nú í smíð-
um í Keflavík; er þeirra mikil
þörf, því aðeins ein bryggja var
þar fyrir, og þröngt um vertíðina.
Von er á tveimur nýjum mótor-
þátum til Keflavíkur í haust; eru
bátarnir í smíðum í Noregi.
Stór karftafla kom upp garði
Jóns Pálssonar fyrv. bankagjald-
kera við Laufásveg. Var hún 380
gr. — Mgbl.
Nýir verkfræðingar útskrifaðir
frá fjölvirkjaskólanum (Polytekn-
isk Læreanstalt)í í Kaupmanna-
höfn s.l. vetúr, voru þeir Helgi
Sigurðsson, Jónssonar bókbindara
í Reykjavík (heilbrigðisverkfræði)
og Jakob Gíslason, 'læknis Péturs-
sonar á Eyrarbakka (rafmagns-
verkfræði). Helgi ér kominn hing-
að til bæjarins og starfar að land-
mælingum, en Jakob hefir síðan
hann lauk prófi starfað hjá raf-
vélaverksmiðjunni Titan í Kaup-
mannahöfn. — Mgbl.
Hundrað ára afmæli fjölvirkja-
skólans í Kaupmannahöfn var
haldið háíðlegt síðustu dagana í
ágúst. Var í sambandi við það
efnt til norræns verkfræðinga-
móts. Var forsæti mótsins skip-
að fimm mönnum, einum frá
hverju Norðurlanda. Hafði Geir
Zoega vegamálastjóri forsæti fyr-
ir fslands hönd. Þátttakendur
mótsins héðan voru auk hans Th.
MARTIN & CO.
Fyrir konur
FUR-TRIMMED
COATS
$19.75 til $85.00
FYRIRTAKS KJÖR Á '
FUR C0ATS
10% NIÐUR
og afgangur í vægum mánað-
arafborgunum.
Kaupið þau nú og hafið not
þeirra allan veturinn.
Seal, Muskrat, Persian Lamb,
Goat og Wombat.
$65.00 til $265.00
KJÓLAR
Ur miklu að velja
Fegurvta snið, sem á við öll
tækifæri.
$12.95 til $35.00
EASY PAYMENTS, LTD.
Hin mikla
EASY
PAYMENTS
STORE
SELUR
READYTO WEAR
og FURS
Með sérstökum
kostakjörum
Lítil niðurborgun nægir, og af-
ganginn má greiða gegn þægi-
legum mánaðarborgunum. —
Opið á laugardögum til kl. 10
á kveldin.
MARTIN St CD,
EASY PAYMENTS, LTD.
Portage and Hargrave.
2nd Floor Wpg Piano Bldg.
KARLMENN!
Þér gleymið
verðinu en þér
minnist lengi
góðs sniðs og
frágangs á föt-
um yðar
Yfirfrakkar
Barrymores, Chinchillas, og
Tweeds, Camel Hair og Pile —
$19.75 til $75.00
Alfatnaðir
Tweeds, Worsted, Serges, ein-
og tvíhnept, vestin tvíhnept ef
vill.
$24.45 til $49.50
CUNARD LINE
1840—19*9
Elzta eimskipafélagið, sem siglir frá Canada.
IH53 Juper At*.
edmonton
1M Plnder Block
SASKATOON
411 Lancaster BldJ.
CALGARY
27» Maln St.
WINNIPEG, Man.
36 WelIlnRton St. W.
TORONTO, Ont.
227 St. Sacrament St.
MONTREAL, Qut.
Cunard línan veitir ágætar sam-
göngur milli Canada og Noregs, Sví-
þjóðar og Danmerkur, bæði til og frá
Montreal og Qqebec.
Eitt, sem mælir með því að ferðast
með þessari línu, er það, hve þægilegt
er að koma viS í London, stærstu borg
heimsins.
Cunard línan hefir sérstaka inn-
flutningaskrifstofu í Winnipeg, fyrir
NorSurlönd. Skrifstofustjórinn er
Mr. Carl Jacobsen, sem útvegar bænd-
um íslenzkt vinnufólk vinnumenn og
vinnuikonur, eSa heilar fjölskyldur.—
ÞaS fer vel um frændur ySar og vini,
ef þeir koma til Canada meS Cunard
línunni.
SkrifiS á ySar eigin máli, eftir upp-
lýsingum og sendiS bréfin á þann staS,
sem gefinn er hér aS neSan.
öllum fyrirspurnum svaraS
og ySur aS kostnaSarlausu.
Krabbe vitamálastjóri, Helgi F.
Eiríksson skólastjóri og Jón Þor-
láksson.
Heyrst hefir óánægja manna út
af því ákvæði lögreglusamþyktar-
innar, sem takmarkar útivist
barna á kvöldin. Halda sumir
því fram, að ákvæði þessi séu of
væg. — En hér er við ramman reip
að draga, eftir því sem lögreglan
segir. 1 fyrravetur lét lögreglu-
stjóri athuga þetta mál, og voru
lögregluþjónar látnir hafa tal af
börnum, sem seint voru úti á
kvöldin. En þeir fengu oft þá
skýringu á útivist þeirra, að for-
eldrarnir væ'ru ekki heima, og
hefðu þau sagt börnunum að vera
úti á meðan þau sjálf væru að
heiman. — Mgbl.
I LOFTINU.
Með ári hverju fjölgar því fólki,
sem notar flugvél til þess að
komast sem fljótast milli stór-
borganna í álfunni. Nú er það al-
gengt, að menn borði morgunverð
í London, miðdegisverð í Berlín
og eru komnir aftur til Lundúna
að kveldi hins samá dags. Þeir,
sem ferðast mikið í flugvélum,
reka sig fljótt á það, að erfitt er
að hafa eins mikinn farangur
með sér, eins og menn eru vanir
að hafa, er þeir ferðast á sjó eða
landi. Hafa margir því tekið upp
þann sið, að skilja eftir alfatnaði
og aðrar nauðsynjar 1 gistihúsum
ýmsra borga, svo þeir þurfi ekki
neitt að hafa með sér, er þeir
fljúga á milli. Einkennilegur sið-
ur hefir og rutt sér til rúms í
Lundúnum, á síðari árum. Þar
er eins og kunnugt er, mjög al-
gengt, að konur bjóði vinkonum
sínUm til tedrykkju síðari hluta
dags. En síðan flugvélarnar eru
orðnar dagleg farartæki, hafa rík-
ismanna konur tekiÓ upp þá
venju, að leigja flugvélar fyrir
tedrykkjur þessar. Fara þær með
vinkonum sínum í bílum út á flug-
völl borgarinnar, stíga þar upp, í
flugvélina, setjast í þægilega hæg-
indastóla að tedrykkjunni, en flug-
vélin lyftist til flugs og svífur
yfir stórborginni, meðan konurn-
ar drekka te, borða kökur og tala
um daginn og veginn. — Lesb.
SKÓLASKIPIÐ “KÖBENHAVN”
hefi farist.
Sendiherrafrétt í gær (10. sept.)
segir, að nú séu menn úrkulavon-
ar um, að hið danska skólaskip,
'“Köbenhavni”, sé ofansjávar. 1
alt sumar hafa menn haldið sér
við þá von, að vera kynni, að skip-
ið hefði hrakist af leið, og kæmi
ekki fram vegna þess, að það hefði
laskast, strandað eða orðið fast í
ís. Þá ^ von bygðu menn, meðal
annars á því, að sézt hafði til
seglskips frá eyjunni Tristan da
Cunha í janúarmánuði, en “Köb-
enhavn” fór frá Buenos Ayres þ.
14. desember áleiðis til Ástralíu.
| Nú loks er það komið á daginn,
að skip það, sem eyjarskeggjar á
“Tristan da Cunha” sáu til í jan-
úar, var ekki “Köbenhavn”, held-
ur finskt skip. Er sú vitneskja
var fengin, ákvað stjórn Austur-
Asíu félagsins, að láta leitina
hætta. Hafði félagið nýlega gert
samning við flugmenn að taka
þátt í leitinni, en úr því verður
ekki.
Vélskipið Mexico hefir verið í
leiðangri suður í höfum síðan í
vor í leit eftir “Köbenhavn”, en
er nú kallað heim. Alls hefir nú
leitin kostað Austur-Asíu félagið
um eina miljón króna.
Mælt er, að sjófróðir menn lítí
svo á, að “Köbenhavn” muni hafa
íarist í hvirfilbyl í Atlantshafi í
janúarmánuði.
Skipið var eign Austur-Asíu-
félagsins. Á því var fjöldi ungra
pilta, er voru að læra til sjó-
mensku. — Mgbl.
Are You Warm?
The cold weather will soon be here; in fact the evenings are
chilly enough now to make a fire necessary for real comfort.
Select a stove or heater now, get one that will þe economical
and efficient in this timely
SALE OF
STOVES and
HEATERS
Any Stove or Heater to your home at once. The balance
conveniently spread over many months if you wish.
“GOOD CHEER” RANGE
Iliglily nickeled, ncatly deslgned range with enamcl
liigli closct, Iwtck and door and oven door. Tlie
four-holo top is beautifully polislied and eosily kept
cletin. The snioke pipe is at tlie back of the high
closet, giving tlie maximum eooking space on top.
Guaranteed in every respect.
Special Sale Price ......
$64.50
COOKSTOVES
Inexpenslve hut constructed along the same lines
as the larger stoves. This four-hole “Good Cheer”
stove is a perfeet baker. Tlio stecl body and dup-
lex rollcr grates are features in this
special value. Special Sale Price .
$29.75
PILOT RANGE
An excoptionally largc six-liole range fnlly nickel
trimmcd with cnamel high closot oven door. It has
a pollshcd stcci top, large oven, pouch fecd door
anrt burns any klnd of fuel. Complete with reservoir.
Only a few to clear. Regtilar
S115.00 value. Special Sale Prioe
$79.50
“GOOD CHEER” RANGE
A quality range reasonably priced with a nickel trim-
med higli closet. This most popular sized range
necds no introduction from a servioo standimlnt.
Takes a minmum spaoe hut amplc room for baking
and cooking. Not a fancy rango but bullt to give
satistaction.
Special Sale Price
$49.85
i’hoí'jr TRADK 1N YOIJIS OLD STOVE OR HEATER ON
86 667 ONE OF SPECIAL Sl'EClALS
“GOOD CHEER” CABINET CIRCULATOR
A Sturdy, well propórtioned style wlth largc circu-
lating flues, the top surfaoe being flat provides more
radiating surfaoe and has two lids and nickeled
stands. Tliis most modcrn design draws tlie cold air
from the floor into the flues and will give better ser-
viee tlian the ordinary style. Aiiotlier\feature is the
open grate miea doors wltli spark guard.
No. 65—Special Sale Price................$45.00
No. 55—Special Sale Price ...............$39.75
OPEN GRATE HEATER
Ncat in appearance the squnre IxKly gives inore
radlating surfaoe than tlte round style. Good draft
control roller grates, and foldiug opening grate doors
add economy and api)ear«nce to this
splendid heater., Special Sale Price ...
$29.75
“GOOD CHEER” SQUARE HEATERS
Kconomical and cfficient heaters that will compare
with highcr priced styles in servioo ivnd fuel savers.
Duplex rollcr grates, two oooking llds at top, square
body, good draft control are featurcs of merit. Made
in four sizes:
No. 710—Special Sale Price .................$19.75
No. 712—Special Sale Prioe .................$22.75
No. 714—Special Salc Price..................$27.95
No. 716—Spocial Sale Prioe .................$33.25
Tlic same hcater as above with cxtrn nic.kcl decora-
10 p.m.
No. 714—Special Sale Price .................$35.00
No. 716—Special Salo Prioe .................$39.75
Trade in Your
Old
Fashioned
Furniture
for New—See
Our Exchange
Department
“The Reliable Home Furnishers"
492 Main Street - Phone 86 667
Storo Hours:
5.30 a.m. to
6 p.m.
Satnrdays:
8.30 a,m. to
10 p.m.