Lögberg - 19.12.1929, Page 3
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. DESEMBER 1929.
Bls. 11.
Jól
Jesús Kristur fæddist á jólun-
um. Það er það, sem setur ljóm-
ann á jólin, í hugum mannanna,
I hreysum ifátæklinga, í höllum
konunganna. Og ástæðan fyrir
Ijómanum er sú, að hann er frels-
ari mannanna.
En það eru tvö atriði sem
liggja til grundvallar fyrir því,
að verða aðnjótandi þeirrar dýrð-
ar, sem jólunum fylgja: Menn
verða að vita um jólaviðburðinn
og menn verða að trúa honum.
Þegar hringt er “í hásalnum
víða”, þá er um að gera, að sú
hringing finni bergmál í manns-
sálunum, helzt öllum!
Jólin eru o;ft nefnd hátíð barn-
anna. Þau eru það.
Sá, sem fæddist á jólunum,
frelsarinn Jesús' Kristur, skipaði
svo fyrir: “Leyfið börnunum að
koma til mín og bannið þeim það
ekki, því að slíkra er Guðsríki”
(Lúk. 18, 16)).
Ekkert jafnast á við það fyrir
barnið, að verða snortið af frels-
aranum Jesú Kris.ti.
í sðgum er oft talaJð um menn,
er leituðu að óskasteini eða öðrum
undrahlut, er gerði þeim mögu-
Iegt að sigra alla erfiðleika. Það
er mannlegu eðli samkvæmt, að
vilja eignast slíkt. Það er afl til
sigurs.
Ailar þessar kynjasögur eru
dæmisögur um atburði heimsins,
en aflið til sigurs verður að vera
í okkur sjálfum. Það afl verður
að koma ,frá Guði sjálfum.
Ekkert og enginn opinberar
mannsálinni Guð eins og Jesús
Kristur.
Kæra barn, sem lest eða heyrir
þessar línur, það er mest áríð-
andi fyrir þig, að meðtaka jóla-
barnið Jesúm Krist, í sál þína.
Það er fullkomnasti og veruleg-
asti óskasteinninn til sigurs.
Ef þú lærir ungur, eða ung, að
elska Jesúm, lærirðu af honum
að vera Ijúfur, sem var öllum ljúf-
ari, kærleiksríkur af honum, sem
var óllum kærleiksríkari. Þegar
hér er kalt, hlýnar þér af því, átt
heitt hjarta. Það eignast þú.
eigi vorís heima í því, þá verður
það bæði hreint og heitt. Þegar
þig skortir jafnvægið, öðlast þú
það frá honum, sem átti mesta
jafnvægið. Ef að sorgirnar beygja
þig, réttir hann þig við. Enginn
nema Guð einn á það afl til styrkt-
ar, sem Jesús Kristur á. Það er
einn talandi votturinn um það,
hver hann er. Alt það bezta í
■«ðli þínu þroskast, en það Iakara
fölnar og deyr.
Ef skyldan leggur þér erfiði á
heiðar, eða lífið á einhvern hátt,
flókaspurningar fyrir þig, þá
leitaðu Guðs í bæninni, og þá
bregst ekki gæfuríkasta úrlausn-
in, hvernig sem þér þykir hún í
bili.
í stuttu máli, ef þú lærir að
trua því ungur, að Jesús sé frels-
ari þinn, fyrir tíma og eilífð, þá
er engin sú dygð til, sem sál þín
verður ekki snortin af. Það er
eina stóra þýðingin í því, að færa
bornm til Jesú og að hann snerti
bau. En án þess að bera virð-'
mgu fyrir dygðinni og temja sér
hana, eftir fremsta megni, getur
engmn maður orðið stór. Hvorki
verður það alþýþumaðurinn, sem
skólamentunar laus eða lítill hef-
Ir hafist til auðs og metorða, á
meðfæddri orku, né mentamaðúr-
inn, hve hátt sem hann hefir kom-
ist í þekkingunni.
Þeir þurfa báðir að virða dygð-
ma hámæti, eins 0g einstakling-
urinn í fjöldanum, sem aldrei hef-
ir getið sér neinnar frægðar, né
á meira pund en til þarf að vínna
fyrir óbrotnu lífi og máske ekki
svo mikið fæktunarlítill. Allir
þurfa þeir jafnt að meta dygðina,
og allir þurfa þeir jafnt á mann-
kynsfrelsaranum, Jesú Kristi, að
halda.
Eg hefi orðið þess vör, að ungu
fólki á þroskaárunum, hefir fund-
ist kristindómurinn ekkert hafa,
er styddi að framför þroskamikils
unglings, að hann heimtaði alt af
sjálfsafneitunina, !'en gæfi ekki
byr undir vængi. Þetta er grunn-
færni.
Að kærleiknum einum undan-
teknum, er ef til vill engin lynd-
iseinkunn auðsærri í lífi Jesú
Krists, heldur en einbeitnin að
æðstu takmörkum, ef svo má að
orði komast, sinnar miklu tilveru.
Strax í æsku bendir hann móður
sinni á, hvar hann eigi að vera.
Minnist þess öllu heldur, að
manni finst, eins og með angur-
værum huga: “Vissuð þið ekki,
að mér ber að vera í því, sem míns
föður?” (Lúk. 2, 49þ
Manni getur fundist einhver
drengurinn eða stúlkan vera að
segja þetta í dag, með tárvotum
augum, við elskað foreldri, sem
samt skilur ekki lífsköllun barns
síns, sem er að byrja að hreyfa
vængina til flugs í einhverri
mynd: “Mamma, vissirðu ekki—”
(Það er nú einmitt það, mamma
veit ekki æfinlega, þó hún vildi
vita, og ekki hann pabbi heldur,
þó hann kannske viti margt og
mikið)
Svo kemur freistingin á full-
þroskaárunum. Verður sýnd “öll
ríki veraldar og þeirra dýrð”, og
boðið til eignar og umráða, vilji
hann ganga höfðingja heimsins á
vald. Hve mikla stundaránægju
hefði hann getað aflað sj.tlfum
sér, með aðdáun fjöldans, t. d.
yfir mælsku hans, sem sagði fólk-
inu, óundirbúinn og óskólageng-
inn, sögur ,sem ekki einungis lifa
nú eftir nær því tvö þúsund ár,
heldur eru viðurkendar af meist-
ara rithöfundum heimsins, að vera
mesta snildarverkið í sögugerð,
sem fundist hefir í nokkurri
meningu?
En hann horfði á Guð og
mannssálirnar, sem liðu. Hann
Hann var kominn til að færa ljós
inn í heiminn, inn í þessar sálir,
ekki til að leika fyrir mönnum.
Hann sló óvin sálnanna þrem rot-
höggum með Gfiðs orði, og hélt
sína leið.
Hann fór að kenna, og kendi
‘‘eins og sá, sem vald hafði, en
ekki eins og hinir skriiftlærðu.”
Honum var sifeldlega brigslað
vegna þess, að hann þættist betri
og vitrari en aðrir, en hann varð
aldrei hrakinn og synd var aldr-
ei fundin hjá honum. Hann skor-
aði á óvinina að gera það, ef þeir
gætu: “Hver yðar getur sannað
upp á mig synd?” (Jóh. 8, 46).
Hann sagði þeim enn fremur:
“Sá sem er af Guði, heyrir Guðs
orð; þér heyrið ekki, vegna þess
að þér eruð ekki af Guði” (Jóh.
8, 48)v
Að hann heyrði Guð og var af
Guði, um það báru kenningar
og verk hans vott, dauði hans og
tilvera öll. Líka tilvera, vöxtur
og viðgangur kristinnar kirkju
fram á þennan dag. Kraftaverk
sín, líknarverkin, framkvæmdi
hann hvar og hvenær sem var, og
braut þannig í bága við sálarlausa
krítík samtiðarinnar, sem bygðist
á dauðri bókstafstrú, og öfund á
honum, manninum sem gat gert
betur en þeir, sem fundu að hon-
um. Hann lét það eitt sitja fyr-
ir, að líkna þeim, sem við þurftu.
í
í
'f
í
II
i
í-
D. D. Wood & Sons
óska ö'lum sínum íslenzku vinum
Gleðilegra Jóla!
og
Farsœls Nýárs!
D. D. Wood & Sons
j
3
Jólagjafir frá Holt, Renfrew eru al
með miklum myndarbrag auk þ
i , sem verðið er s
tV lega sanngjarnt
Jólagjafir fá enn meira gildi, þegar þær koma í
Holt Renfrew umbúðum, því hin miklu vörugæði, fall-
ega gerð og ágæti frágangur á öllu, sem kemur frá
Holt Renfrew er alþektur. Kaupið í The Gift Shop
þar sem öllu er svo dæmalaust haglega fyrirkomið á
aðal gólfinu.
lólar, Yfirhafnir, Sportföt
Vetlingar, Treflar, Sokkar,
FURS
Holt, Renfrew & Co. Limited
Portage og Garlton
Tryggingin felst
1 nafninu!
Pantið um hátíðarnar beztu tegundirnar
frá gömlu og veiþektu ölgerðarhúsi
STADACONA og TALBOT
PHONE 57 241
Gleðileg Jól!
Gleðilegt ár!
Cunard-Line
árnar hér með öllum
Islendingum
Gleðilegra Jóla og Farsæls Nýárs!
Cunard félagið skoðar það
mikinn heiður, að eiga þess
kost, að flvtja Islendinga lieim
næsta ár, og getur fullvissað
þá um fullkomna afgreiðslu
og fyrsta flokks aðbúð.
Eins áreiðanlegt eins og Sólin kemur upp
Þegar þér notið Purity Flour til brauðgerðar
heima fyrir, þá munuð þér finna, eins og þegar
þér notið þetta heimsfræga hveiti til annarar bök-
unar, að það reynist ágætlega og bregzt aldrei.
—“3“
>l'w S5ÖJ
98Lbs.
•»»ANOON M,U*AT COMO*10
^ COOERICM .
FlIOUf1
ÞESSA
FUDGE KAKE
1% bolli Purlty Flour, 1% bolll sykur,
% bolli smjör, % bolli nýmjólk, 2 egg,
1 teskeiö vanilla, 2 ounces chocolate,
1% teskeiB cream of tarter, 1 teskeið
sóda (dissolved)
Rétt íiður en þér bætið I sódanum, þá
l&tið % bolla af sjóðandi vatni I deigiS.
Bakið kökuna I tvennu lagi.
Westem Canada Flour Milla Co, Limited
winnipee - Calg&ry 30
Staðfestan, sem lausnari vor
sýndi í dauðanum, hefir á öllum
öldum verið lífsafl fylgjendum
hans og óviðjafnanleg aðdáun
öllum hugsandi mönnum.
Sá kærleksmáttur, að reynast
trúr undir háði, smán og mis-
þyrmingum áleiðis til grimmileg-
ustu aftöku, og í þeirri aftöku, að
illa valdið, saman dregið í áherzlu-
afl, gat ekki knúið fram af vörum
hans eitt möglunar né hefndarorð,
- ekki með orði né atviki fengist
hann til að víkja af útmældum
vegi Guðs, það er dýrðlegasta
fyrirmyndin í staðfestu, sem
heimurinn á til.
Og í dýrðarkórónu hans eru
mannssálirnar allar, sem' koma
til hans. Það eru sigurlaunm.
Að vera á meðal þeirra, er
stærsta spursmál tilverunnar.
Bið þú Guð á hverjum degi lífs
þíns og lestu hans orð. Það eru
uppspretturnar, sem leiða til
Krists.
Gerirðu það, öðlastu alt það af
náðargáfum Guðs, sem sál þín
er móttækileg fyrir. Meðfæddar
gáfur þínar þroskast og þú nær
marki lífs þíns.
Þú eignast afl í öllum veðrum
lífsins, til þess að lifa og stríða.
Lífið alt verður þér fegurra,
sólskinið bjartara, blómin yndis-
legri, skógurinn fjölskrúðugri og
blærinn mýkri og stormurinn ekki
eins skelfilegur. Því, að öllu at-
huguðu er það langt um stærra
spursmál, hve mikið lífsþrek við
eigum til þess að bera byrðarnar,
heldur en hitt, hve þungar þær í
sjálfu sér eru. Alt eignast sína
sál, ifyrir þínum huga, og Guðs
dýrð verður þar með þér augljós-
ari. Alt eignast takmörkin á milli
þín og þess, og þú sjálfur finn-
ur yfirburði mannlegrar sálar yf-
ir það, sem hann skapaði fyrir
þig, en öðlast um leið miskunnar-
anda gagnvart öllu því, sem li.fir
og hrærist: sver þig í ættiou við
sjálfan Guð.
“Á jólunum Jesús fæddist,
í jötu var rúmið hans.”
Að þeirri jötunni áttu að koma.
Sértu ungur, eða ung, sértu full-
orðinn, þarftu að verða barn í
anda og koma þangað.
Drottinn veiti jólabarninu að-
gang í ótal barnahjörtu á þessum
jólum og komandi ári.
Guð gefi öllum gleðileg jól, í
Jesú naifni.
Rannveig K. G. Sigbjörnsson.
Viðurkenning og
þakklæti.
Á síðastliðnu sumri varð eg 70
ára. (Eg er nefnilega fæddur
29. ágúst 1859). Tóku sig þá til
nokkrir vinir mínir hér í Dakota
og sömdu áskorun til íslendinga í
Bandaríkjunum og veita mér of-
urlítinn árlegan viðurkenningar-
styrk og leita almennra samskota
í því skyni. Bar þetta þann á-
rangur, að eg fékk talsverða fjár-
upphæð frá forgöngumönnunum
síðastliðið ár. Var meginið ax þvi
úr Norður Dakota og Blaine,
Wash.
Þar sem eg hefi á undangegn-
um árum átt við talsverða van-
heilsu að búa og þar af leiðandi
ekki góðan efnahag, hefir þetta
drengskaparbragð orðið mér kær-
kominn styrkur.
Fyrstu hvatamenn .að þessari
nýjung, munu hafa verið þeir
nafnarnir Árni Jóhannsson og
Árni Magnússon á Hallson, og
Guðmundur dómari Grímsson i
Rugby, N. D. Nokkrir aðrir hafa
einnig tekið þátt í þessari fjár-
söfnun, svo sem Gamaliel Thor-
leifsson, Gardar og séra H. E.
Johnson, Blaine, og fleiri.
Þessum forgöngumönnuin og
öllum, er lagt hafa í þenna styrkt-
arsjóð (þó eg ekki nefni nöfn
þeirra í þetta sinn)), færi eg hér
með mitt innilegasta þakklæti
fyrir velvild sína og viðurkenn-
ingu til mín, með þeirrri ósk, að
VesturHÍslendingar minnist hinna
annara skálda sinna, sem ekki síð-
ur eiga viðurkenning skilið.
Enn fremur er mér skylt að
geta þess hér, að á síðast liðnu
hausti sendi H. C. Thordarson raf-
magnsfræðingur í Chicago, mér
sem afmælisgjöf $300, með vin-
hlýju bréfi, og þakka eg hlýtt og
einlæglega þessum nafnfræga
manni og alþekta stórhöfðingja
hina rausnarlegu gjöf.
Að lokum skal þess og getið,
að ýmsir aðrir gamlir og nýir og
nýir vinir mínir, hafa einnig sýnt
mér margvíslegan velvildar vott
og drengskaps, sem eg ekki fæ
fullþakkað. Þar á meðal er Chris.
Johnson i Duluth, sem hefir reynst
mér sem bezti bróðir, bæði í orði
og verki. Enn fremur frændi
hans, Hjálmur Þorsteinsson á
Gimli — atdavinur minn, sem
hefir reynst mér sem bezti dreng-
ur frá fyrstu kynningu. — Eru
margir þeirra frænda tryggir og
veglyndir menn, sem mörgum
Borgfirðingum er kunnugt.
Eg mun ætíð minnast allra
þeirra, sem hér eiga hlut að máli,
með þakklátssemi og hlýjum til-
tilfinningum.
Þorskabítur.
$rinceð£i Jflotoer ^>í)op
680 SARGENT AVENUE
Sími: 36 102
Cor. Victor St.
Nú fyrir jólin liöfum vér mikið af allskouar
blómum, bæði í blómapottum og lausum. Vér
höfum mestar birgðir af Rósum og Carnations
af ölíum í borginni, en eins og vant er, |>á er
eftirspurnin meiri en birgðirnar til sölu, og því
vildum vér ráða fólki til að gefa <oss pantanir
sínar sem fvrst.
DAVID SWAIL
verzla með
'IS,
K0L, KÖK oá VIÐ
1405 Portage Ave.
WINNIPEG
Phones 39 500-39 217
CUNARD LINE
Z7DMAIN ST. WINNIPEC