Lögberg - 19.12.1929, Blaðsíða 6
Bls. 14.
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. DESEMBíER 1929.
Gabriel Garibaldi Dante Rossetti.
I indverskri bók er komist
þannig að orði, að “alveran” hafi
Iagst á sæng og fætt tvíbura.
Voru það tveir sveinar. Alveran
ákvað þeim sérstakt hlutverk:
Þeir áttu að kynda þann eld, sem
heitum heldur sálum mannanna,
því annars mundu mennirnir
frjósa í hel eða verða að steinum.
Hafa sveinarnir síðan farið um
t'll lönd; þeir tala tungur allra
þjóða og rækja köllun sína þang-
að til veröldin líður undir lok.
Þessir sveinar eru skáldið og
listamálarinn.
Mér þótti þetta undur fallegt,
þegar eg las það fyrst fyrir 25
árum, og mér þykir það eftir þvi
fallegra, sem eg hugsa lengur um
það.
Mörg hafa skáldin fæðst og lif-
að og margir listamálararnir; en
að sami maðurinn sé hvorttveggja
í senn og verði heimsfrægur í
báðum listunum, það er sjald-
gæft; þó kemur það ifyrir.
Gabriel Garibaldi Dante Ros
setti, var einn þeirra fáu, sem
þjónaði þessum tveimur herrum
og var báðum trúr. Hann var
einn hinna áhrifamestu og full-
komnustu listamálara sinna tíma
og jafnframt eitt tilfinningarík
asta, formfegursta og dýrlegasta
skáld nítjándu aldarinnar. _____
Rossetti var fæddur 8. maí 1828
í Lundúnaborg á Englandi. Að
þjóðerni var hann þrír fjórðu ítali
°g einu fjórði Englendingur. Fað-
ir hans var ítalskur, en móðir
hans ítölsk í aðra ættina og ensk
í hina. Varð faðir Rossettis að
flýja frá ítalíu vegna þátttöku í
pólitiskum æsingum, og settist
hann að í Lundúnaborg; bar
var hann háskólakennari. Voru
þau hjón fremur fátæk, en settu
þó þennan son sinn til menta;
voru þau bæði bókelsk og bæði
skáld.
Rossetti var kornungur, þegar
hann fór að stunda listamáln-
ingu, og eru sum málverk hans
frábærlega fögur, hrífandi og
Iærdómsrík. Meðal þeirra má
nefna: Danté‘s Dream”, “Pan-
dora” og “Found.” trt úr mynd-
inni “Danté’s Dream” má lesa ást
og angist sálarinnar, sem leitar
unnustu sinnar í öllum krókum
og kymum helvítis og himnarík-
is; Pandora lýsir í áhrifamiklum
dráttum öllu því, sem felst í hinni
fornu goðasögn; Pandora er mál-
uð frábærlega fögur, og hefir
listamaðurinn náð einkennilega
vel hinu sorglega og Ieyndar-
dómsfulla augnaráði, þegar hún
er að reyna að loka aftur kassan-
um, sem hún opnaði, en tekst það
ekki; og upp úr kassanum og út úr
honum í allar áttir veltur eldur
og reykur, sem jafnharðan breyt-
íst í skuggalegar andamyndir, sem
svífur umhverfis höfuð hennar.
Djúpblá augu í angistarfullu and-
liti festa sig í huga áhorfandans
og hann gleeymir þeim aldrei.
Myndin, sem hann nefnir
Found , er þó ef til vill enn þá
áhrifameiri.
Hún geymir sögu, sem sagt ei
að hafi átt sér stað í raun og veru
og er á þessa leið: “Ungur bónda-
sonur kemur snemma morguns til
Lundúnaborgar., Þegar hann kem-
ur að brúarsporði, sem inn í borg-
ina liggur, þá mætir hann, annað
hvort af tilviljun eða forlögum,
ungri stúlku, sem hafði verið unn-
usta hans; hafði hún farið til
Lundúnaborgar, lent þar í slarki
og auðnuleysi og fallið “lengst
niður í djúp djúpanna”, eins og
skáldið kemst að orði. Þegar
stúlkan sér hinn forna unnusta
sinn alveg óvænt, verður henni
svo hverft við, að hún fellur nið-
ur við fætur hans í yfirliði. ______
Myndin sýnir annars vegar svo
átakanlega angistina og blygðun-
ina í andliti stúlkunnar, sem enn
laganna”, eins og Guðmundur
Guðmundsson segir, og hefir það
að sjálfsögðu átt mikinn þátt í
sköpun þeirra mörgu og míklu
ástaljóða, sem eftir hann liggja.
Hann kvæntist 1860 stúlku, sem
hét Elizabeth Eleanor Siddal;
bjuggu þau saman í hálft annað
ár; hún ól andvana barn og dó
..kömmu síðar. Konan var frá-
bærlega fögur, skáld og listnæm
og unni Rossetti henni hugástum;
enda varð hann frá sér numinn
:if sorg, er hann misti hana. Um
það leyti, sem hún dó, hafði hann
íullbúin til prentunar fyrstu Ijóð
sín, en í stað þess að láta prenta
þau, Iét hann grafa handritið
með henni.
Árið 1869 (eða sjö árum síðar)
lét hann þó tilleiðast að láta
grafa kvæðin upp aftur og voru
þau prentuð 1870.
Næsta ár var skrifaður um þau
itdómur af mannl, sem Robert
Buchanan hét, og fordæmdi hann
>au niður fyrir allar hellur, taldiJ
þau heimskuleg og siðspillandi.
Þau Ijóðin, sem Buchanan þessi
dæmdi einna óvægast, hafa s’ðan
verið viðurkend meðal fegurstu
ástaljóða, sem heimur bókment-
arria hafi eignast. En svo mikil
áhrif hafði dómurinn á Rossetti,
að hann varð ekki mönnum sinn-
andi um langan tíma. Varð hann
smámsaman taugaveiklaður og
þjáðist af langvarandi svefnleysi
náði sér aldrei aftur að heilsu og
lézt 9. apríl 1882.
Þótt hann væri þannig heilsu-
laus um margra ára skeið, vann
hann kappsamlega að ljóðagerð og
er hann óskabarn margra bók-
mentamanna. Þykir sú bók ofull-
komin, sem sýnishorn af bezta
skáldskap Englendinga, sem ekki
flytur eitthvað eftir Rossetti.
íslendingar munu yfirleitt lítið
hafa kynst honum, en illa trúi eg
því, að yngri höfundar vorir
græddu ekki talsvert á því, að
kynnast honum rækilega. Eg læt
hér fylgja lauslega þýðingu af
einu ástakvæði hans.
Sig. Júl. .Jóhannesson.
Verð uppskerunnar.
Samkvæmt áætlun hagstofunn-
ar í Ottawa, verður uppskeran í
landinu á þessu ári $986,986,000
virfði. Jafnvel þótt verðið sé tölu-
vert hærra heldur en í fyrra, þá
verður þó uppskeran öll ekki nærri
eins mikils virði, vegna þess hvað
hún er miklu minni. Telst svo til,
að í fyrra hafi hún verið
$1,125,008,000 virði. Hveitiupp-
skeran í Sléttufylkjunum var í
fyrra virt á $424,039,000, en i ár
ekki nema $316,343,000. Fyrir
svo að segja allar tegundir af upp-
skeru fá framlieðendur minna
þetta árið, helur en í fyrra, nema
fyrir kartöflur. Fyrir þær fá þeir
miklu meira, eða $69,963,444, en í
fyrra ekki nema $40,874,000. Veld-
ur því verðhækkun aðallega.
Frá Islandi.
Þrettán.
Reykjavík, 9. nóv.
Síðastliðinn mánudagsmorgun
andaðist hér í bænum Páll Bjarna-
son lögfræðingur, eftir fárra daga
legu í lungnabólgu. — Páll var
fæddur 13. júlí 1890 að Steinnesi
í Húnavatnssýslu, sonur Bjarna
prófasts Pfálsonar. Hann lauk
stúdentsprófi 1912 og lögræði-
prófi 1916. —- Starfaði hann nokk-
ur ár sem fulltrúi bæjarfógeta,
en hefir seinni árin haft lögfræði
skrifstofu fyrir eigin reikning. —
Páll var alla daga vinsæll af þeim
er til þektu, enda var hann dreng-
ur hinn bezti. Hann var greind
ur maður, stiltur vel, en þó tölu-
verður skapmaður, góðgjarn og
trygglyndur. Er að honum mikill
mannskaði. — Vörður.
Þrennir skuggar.
Eftir G. G. D. Rossetti.
Eg staðar nam og starði’ í augu þín
eg starði á þau í skugga lokka þinna,
sem ferðamaður mæti þeirri sýn
i myrkum skógi þyrstur lind að finna.
Við sjálfan mig eg sagði: “Hjarta mitt!
hve sælt væri það hér að tefja mega,
í helgum friði seðja hungur sitt
já, sælt að mega’ af þessum brunni teyga.
Eg horfði Iengur — sálu þína sá
eg sá hana í skugga augna þinna.
sem leitandinn, er gullið lítur gljá,
er geymdi fljót í skuggum hylja sinna.
Við sjálfan mig eg sagði: “Hvar er ráð,
að sigra hér? ég vesæll er og aumur;
án hennar líf er hel í lengd og bráð’
og himnaríki aðeins tómur draumur.”
Eg enn þá horfði — ást þín birtist mér,
eg eygði hana’ í skuggum sálar þinnar,
sem kafarinn, er djarfur sekkur sér
í sjávar húmið dýra perlu’ að vinna.
Við sjálfan mig eg sagði — ekki neitt,
en sál mín fæddi hugsun orðavana:
“Já, þér er ást á æðsta stígi veitt,
og engum nema mér þú gefur hana.”
Sig, Júl. Jóhannesson.
Hinn 13. þ. m. eignuðust hjón í
Kansas City tvíbura, pilt og stúlku,
pilturinn vigtar 7 pund og stúlk-
an 6 pund, eða bæði til samans 13
pund. Hjónin áttu níu börn fyr-
ir og með þeirn, sem nú bættust
við, eiga þau ellefu og að hjónun-
um sjálfum meðtöldum, eru með-
limir fjölskyldunnar þrettán. Ef
þessi hjón hafa eins megna ótrú á
tölunni þrettán, eins og margt
fólk hefir, þá hafa þau sjálfsagt
áhyggjur miklar, síðan þetta kom
fyrir.
Reykjavík 15. nóv.
Ólafur Rósenkranz leikfimis-
kennari, andaðist í gær að heim-
ili dóttur sinnar hér í bænum.
Hann var 77 ára að aldri.
Kjörkaup
New 1929 Nash, Special Sedan,
reg. price $2,010.00, for only
$1,550.00. jSmall deposit will
hold til Spring. Small Car tak-
en in trade.
E. Breckman,
921 Winnipeg ave. Tel. 27 561
ASK FOR
DryGinger Ale
OR SODA
áfengisbDðirnar
Lokaðar nm Jólin
Allar áfengisbúðir, undir umsjón Vínsölunefnd-
ar,nnar verða lokaðar á þriðjudaginn og miðviku-
dagmn, 24 og 25. desember.
Brewers Of
COUNTRY C LU B*
BEER
GOLDEN GLOW
ALE
BANQUET ALE
XXX STOUT
Regina, Sask.
W. W. AMOS,
Chairman, Liquor Board.
BR E W E RV
OSBORN E & M U LVEY - Wl N NIPEG
PHONES 4MII 42-304 56
PROMPT DELIVERY
TO PERMIT HOLDERS
er einkar fögur, og hins vegar
takmarkalausa hluttekningu og
sorg í andliti mannsins, þar sem
hann tekur í hendur hennar og
reynir að reisa hana á fætur.
Flestar myndir, sem Rossetti
hefir málað, eru teknar úr daglega
lífinu og eru svo lifandi, að á-
horfandanum finst, sem hann sjái
þar mannlegar sálir íklæddar
holdi og blóði.
/ \
En Ijóðin hans eru ekki síður
áhrifamikil og tilfinningadjúp.
Hann er eitthvert einlægasta ásta-
skáld, sem uppi hefir verið. Var
það ef til vill að upplagi og auk
þess “varð hann fyrir fótum for-
Til Jólagjafa
\ erður ekki valið betra en góðar bækur
og skemtilega sungnar sönglagaplötur.
Gleðileg Jól!
Bókaverslun Ólafs S. Thorgeirssonar
_________674 Sargent Avenue, Winnipeg
Radlola u33”
sarocnt clectric
690 VICTOR STREET.
Eigendw Sargent Electric, 690 Victor Street,
oska hinvm mörgu, islenzku viðskiftavinum
smurn gleðilegra Jóla og farsœls Nýárs.
f. t
^***********^^
hefir alla sömu kosii
eins og Radios sem
kosta meira
Oviðjafnanleg vörugæði!
1 VÍÖT.a. húsale5u og því um líkt, og með því að
sætta okkur við htinn agoða, en mikla umsetnintr. eetum vér
ábyrgst yður kjörkaup.
Alfatnaðir oé Ytirfrakiiar
$25, $30, $35 .g
SNIÐ EFTIR MALI.EDA VERKSMIDJUGERÐ.
Búmr til í Style Park hjá Frith Bros., víöfrægum klæðskerum.
SCANLAN & McCOMB
M7lA PORTAGE AVE.—Milli Kennedy og Vaughan.
Cabinet Radiola 33, fær
kraft frá vanalegum ljósa-
vír. Er sterklega gert, úr
bezta efni. Hefir mikla og
fagra tóna, og samræmi
alt hið ákjósanlegasta.
Kaupið þetta hljóðfæri með
Jóla Klúbbs borgunar skil-
málum vorum vorum. Fyrir
$1.00 getið þér orðið með-
limur.
Með pípum, há-
talara og standi
Kaupið af áreiðanlegum og staðföstum sérfræðingi.
Til þess að vera
viss um ánœgju,
:>á notið “Heimsins
nezta Kveiti” við
alla yður jólabökun
GUARANTEED
!HE PURE PRODUCTOf
WESTERN
> ÍJSStKST
/^Ve ms$
i___qjy A
iWeb tnntlegum fjáttbaóðfeum
LAKE 0F THE WOODS
f MILLING C0„ LIMITED
[ Gleðileg Jól! Farsœlt Nýtt Ár!
Er innileg ósk vor til allra vorra við-
skiftavina — og um leið þökkum vér
þeim öllum fyrir hið iiðna ár.
J. d. SWANSON CO., LTD.
600 PARItS BUILDING, WINNIPEG
<—
QJ'O A±z=flo v V/ o
Canada’s Leading Taxidcrmist.
NATIVE INDIAN CURIOS and RELICS
RAVV and DRESSED FL!RS, FUR RUGS MADE UP.
Phone 24 934
304 EDMONTON ST., WINNIPEG, MAN.
Official Taxidermist to Manitoba Government.
1
Kveðja til íslenzkra vina
Vér viljum hér með grípa tækifærið, og óska vorum
mörgu íslenzku viðskiftavinum, gleðlegra Jóla og far-
sæls Nýárs. Vér metum það mikils, live vel þér látið
af Melrose framleiðslutegundunum.
H.L.MacKinnon Co.,Ltd.
SV EINN JOHNSON, Meðeigandi.
Síðustu forvöð
að panta
Jólakökur og Búðinga
Fancy
Shortbread
Mince
Patties
Almond
Paste
Þar sem nú er ekki full vika til
Jóla, þá er tíminn orðinn stuttur
til að ljúka við allan undirbúning
fyrir þau. Ef þér hafið ekki nú
þegar pantað það, sem þér þurfið
hjá brauðmanninum eða matsal-
anum, þá gepð það í dag og kom-
ist hjá annríki síðustu stundanna.
THE BALMORAL FRUIT
SUPREME
Ágætasta tegund, ísuð og
fallega skreytt,—í málm um-
búðum. — Stærð 3 pd.
SPEIRS P4RNELL
B/IKING CO. LIMITED
666
667
Elgin Ave.
Phone
86 617
866 18