Lögberg - 05.05.1932, Blaðsíða 8
Bls. 8.
/
LÖGBBRG, FIMTUDAGINN 5. MAI 1932.
RobinfHood
FI/ÖUR
Þetta mjöl kostar minna, vegna
þess að fleiri brauð fást
úr pokanum
ÚR BÆNUM
Heklufundur í kvöld, fimtudag.
Dr. Tweed, tannlæknir, verður
í Árborg miðvikudagnn og fimtu-
daginn, 11. og 12. maí.
Mr. Soffonías Hafstein, frá Pikes
Peak, Sask., var staddur í borg-
inni í síðustu viku.
Mr. A. M. Freeman, frá Siglu-
nes, Man., var staddur í borginni
í vikunni sem ileið.
Miss Annie F. Playfair, 315
Mountain Ave., biblíukennari, hef-
nýlega heimsótt Moody Bible
ír
Institute í Chicago.
Mr. G. S. Thorvaldson, hefir
verið útnefndur til að sækja um
þingmensku í Gimli kjördæmi við
næstu fylkiskosningar,
merkjum íhaldsflokksins.
undii
Séra N. S. Thorlaksson flytur
guðsþjónustu að Lundar næsta
sunnudag, þ. 8. þ.m., kl. 2.30 e. h
Við þá guðsþjónustu fer fram af-
hending skírnarfonts, sem gefinn
er söfnuðinum af kvenfélagi hans
í minningu um séra Hjört heitinn
Leo.
Gefin voru saman í hjónaband
af Dr. B. B. Jónssyni, 27. apríl,
Mr. Lyle R. M. Cowan og Miss
Sadie Carson, bæði til heimilis í
Winnipeg.
Thomas Thorarinson og Botnia
E. Eyjólfson voru gefin saman í
hjónaband 30. apríl. Dr. Björn
B. Jónsson framkvæmdi athöfnina
að 774 Victor St.
“Systrakvöld” hjá stúk. Heklu í
kvöid, fimtudag; ýmislegt til fróð-
leiks o!g skemtunar; veitingar.
Allir G. T. velkomnir.
Miss Violet Thorne, frá Foam
Lake, Sask., kom til borgarinnar
um helgina frá Ottawa, þar sem
hún hefir verið að vinna við
manntalsskýrslur. Er hún á leið
til Foam Lake.
Almennur fundur
verður haldinn í efri sal Good
templarahússins, horni McGee og
Sarlgent str., þann 10. þ. m., og
hefst kl. 8 að kvöldinu.
Á þeim fundi leitar íslendinga
dagsnefndin álits hjá fundinum
um það, að halda Islendingadaginn
að Gimli þetta sumar.
Fjölmennið.
G. P. Magnússon,
ritari nefndarinnar,
Mrs. J. SkúJason, frá Geysir,
Man., er verið hefir hér í borginni
sér til lækninga, síðan 3. febrúar
fór heim til sín á sunnudaginn
Hefir hún fenlgið góða heilsubót
og allar líkur til, að hún nái aftur
fullri heilsu. Börn hennar tvö, Jón
as o!g Kristín, og tengdasonur,
Tímóteus Bárðarson, komu og
fluttu hana heim með sér í bíl.
Sunnudaginn 8. maí (mæðradag-
inn) byrjar sunnudagsskóli
Mountain kl. 9.45 f. h. Fer fyrst
fram athöfn í sambandi við mæðra-
daginn, verða fluttar þrjár stutt-
ar tölur o. s. frv. Mæður barn-
anna sérstaklega boðnar vel-
komnar. Allir velkomnir.
Sama sunnudag messar séra H
Sigmar á eftirfylgjandi stöðum
1 Vídalínskirkju kl. 11 f. h., ensk
messa. Messa í Eyford kl. 3 e. h
Messa í Garðar kirkju kl. 8 að
kveldi. Aljir velkomnir.
Þess þurfa allir að gæta, að nú
þarf að láta þriggja centa frímerki
á hverja bankaávísun, sem er $5.00
og alt að $100.00, en sex centa frí
merki á ávísanir þar yfir. Þessi
breyting gekk í gildi hinn 1. þ.m.
Var áður 2c. á allar ávísanir jafnt,
Mánudaginn þ. 25. apríl Jézt við
Churchbridge, Sask., hefðarkon
an Oddný Bjarnason, ekkja Eiríks
Bjarnasonar, sem dáinn er fyrir
þrem árum. Oddý var lærð yfir-
setukona og stundaði það bæði
hér og á íslandi. Var víða þekt o!g
vel látin með afbrigðum. Hún var
lögð til hvíldar í grafreit Kon-
kordiasafnaðar, að viðstöddum
fjölda manns, fimtudaginn 28.
apríl.
Mœðradagurinn
8. Maí
Gleðjið mömmu með blómum
AAM
WW
ROSES, CARNATIONS,
TULIPS, ETC.
VARIOUS POT PLANTS
AAM
WW
SARGENT FLORISTS
678 SARGBNT. (at Victor)
Phone 35 676
Tvær af deildum kvenfélags
Fyrsta lút. safnaðar, sélja heima-
tilbúinn mat í fundarsal kirkjunn-
ar á föstudaginn í þessari viku,
bæði síðari hluta dagsins og að
kveldinu. Einnig kaffisala.
Hinn 22. apríl s. 1. andaðist að
heimili dóttur sinnar, Mrs. Wiff-
in, suite 4 Sargent Blk., Winni-
peg, Guðbjörg Einvarðsson, 68 ára
að aldri, ekkja Magnúsar heitins
Einvarðssonar. Þau voru lengi
búsett að Mary Hill, og síðast að
Lundar, Man.
Messur næsta sunnudag í Gimli
prestakalli, eru fyrirhugaðar þann-
ig, að messað verður í gamal-
mennaheimilinu Betel kl. 9.30 f.h.
í kirkju Víðinessafnaðar kl. 2 e.h
og í kirkju Gimlisafnaðar kl. 7 að
kvöldi. Séra Jóhann Bjarnason
prédikar. Mælst er til að fólk veiti
þessu athygli og fjölmenni við
messurnar.
Mrs. R. Surrey, frá Hartford.
Conn., sem verið hefir hér í borg-
inni um tíma, lagði af stað heim-
leiðis á sunnudaginn. Með henni
fór systurdóttir hennar, yngri
dóttir Dr. O. Björnson. Fylgdu
þeim á leið til íslendingabygðar-
innar við Minneota og til Minne-
apolis, Dr. Björnson og eldri dótt-
ir hans, og Dr. og Mrs. B. J. Brand-
son.
Sunnudaginn 24. apríl andaðist
Ólafur Höskuldsson, 76 ára að
aldri, á heimili Mr. og Mrs. Helga
Johnson, í Akrabygð, N.D. Skyld-
menni átti hann engin hér um
slóðir, en hafði verið á vegum
Johnson hjónanna nokkur síðustu
árin og hjá öðru fólki þar í bygð
áður um margra ára skeið. Var
hann heilsulasinn lengi og mörg
síðustu árin blindur. Hann var
jarðsunginn þar frá Johnsons
heimilinu og Vídalíns kirkju 26.
apríl af séra Haraldi Sigmar.
SAMSÖNGUR
Karlakór íslendinga í Winnipeg; undir stjórn hr. Brynjólfs
Thorlakssonar, heldur samsöng í Parish Hall á Gimli, föstu-
dagskveldið þann 6. maí, 1932. Byrjar kl. 8.30.
Aðgangur 50C fyrir fullorðna en 25C fyrir börn.
Mr. Paul Bardal, Soloist.
Sökum ófærra vega varð ekki
af því, að leikurinn “His Best In-
vestment” yrði sýndur á Gimli, eins
og aulglýst hafði verið. Fólk er
beðið að athuga, að ákveðið hefir
verið að leika hann í Parish Hall
Gimli, þriðjudaginn 10. maí n.k
Inngangur 35c. fyrir fullorðna og
25c. fyrir börn. Byrjar kl. 8.30 e
h. Ágóðinn fer til lúterska safn-
aðarins í Árborg. Föstudaginn
20. maí verður hinn sami leikur
sýndur í annað sinn í Arborg
Hall, til arðs fyrir Dorkas félag
Árdalssafnaðar. Sérstaklega er
vandað til þessa leiks að öllu
leyti. -------
Mrs. Sigurveig Thorsteinsson
Johnson, andaðist að gamalmenna-
heimilinu Betel, á Gimli, þ. 23
apríl s. 1., 81 árs gömul. Hún var
ættuð úr Þingeyjarsýslu og mun
hafa komið vestur um haf árið
1887. Hún var tvígift. Fyrri mað
ur hennar var Jón Björnsson, en
seinni maður hennar var Þorsteinn
Th. Johnson. Áttu þau hjón lengi
heima á Point Douglas hér í borg.
Eftir lát síðara manns síns flutt-
ist Sigurveig til Betel, árið 1923
Var hún þar jafnan síðan. Af níu
börnum hennar er einn sour á lífl;
Sigurður, í Portage la Prairie.
Sonur hennar var Stefán sál. John-
son prentari, er vann svo árurn
skifti við íslenzku blöðin hér í
bænum. Drengur góður og vin-
sæll, dáinn á bezta aldri þ. 17. jan.
1929. Ekkja hans, Mrs. Jakobína
Johnson, héðan úr bænum, var
viðstödd jarðarförina. Sömuleiðis
frænka hennar, Mrs. Anderson, frá
Winnipeg Beach. Jarðarförin fór
fram frá Betel, þ. 25. apríl, undir
umsjón útfararstofu Bardals. Séra
Jóhann Bjarnason jarðsöng.
Þakkarorð.
Við undirrituð systkini, finnum
okkur skylt og ljúft að votta okk-
ai1 innilegasta hjartans þakklæti
öllum þeim mörlgu vinum og vanda-
fólki, sem hafa með hlýleik og
hjartans tilfinningu veitt okkar
ástkæru og elskandi móður, Guð-
björgu Einvarðsson, léttara að
þola hið langvarandi stríð, sem að
endingu leiddi hana til grafar.
Slík hjartfólgin hlýja, sem
andaði að henni ge!gn um dauða-
stríðið, getur ekki verið goldið
með gulli, en það erum við viss
um, að vinunum hennar mörgu
verður gleði yfir að vita að geisl-
arnir, sem stöfuðu frá þeim til
hennar, gjörðu henni Jéttbærari
síðustu stundirnar.
Og sofnaði hún hinum síðasta
blund með þeirri ró, er trúaðri sál
einni auðnast.
Winnipeg, 25. apríl 1932.
Jón Magnússon.
Jónatan Magnússon.
Málfríður Wiffin.
Athygli íslendinga í Nýja Islandi
skal hér með dregin að samsöng
þeim, er Karlakór Islendinga í
Winnipeg efnir til á Gimli á föstu-
dagskvöldið kemur, þann 6. þ. m.:
kl. 8.30. Má fólk óhætt reiða sig
á, að þarna verði um óvenjulega
góða skemtistund að ræða. Flokk-
urinn hefir æft sig undanfarið af
kappi o!g tekið miklum framförum
Að lokinni söngskrá, gefst fólki
jafnframt kostur á að skemta sér
við dans.
Samkoma sú, sem kennarar og
stúdentar Jóns Bjarnasonar skóla
héldu í Fyrstu lútersku kirkju á
miðvikudagskveldið í síðustu
viku, var í alla staði hin ánægju-
legasta. Skólastjóri, séra Rún-
ólfur Marteinsson, stýrði samkom-
unni og talaði nokkur orð til sam-
komugestanna, en annars var
skemt með söng og hljóðfæraslætti
og gerði skólafólkið þáð aðallega
og fórst það prýðilega, og var á-
gætlega undir búið. Samkoman var
ágætlega sótt og það var síður en
svo, að fólk yrði þar fyrir nokkr-
um vonbrigðum. Fólkið átti von
á góðri skemtun ög naut hennar.
Samkoman var skólanum til sóma
á allan hátt.
Miðvikudaginn 27. apríl andað-
ist Ólafur Finnson á heimili sínu
í Fjallabygð. Hann var 50 ára að
aldri, og fæddur á íslandi, en hafði
um langt skeið átt heima í Fjalla-
bygðinni. Var hann vinsæll á!gæt-
ismaður og hvers manns hugljúfi
Um langt skeið var hann forseti
Fjallasafnaðar og stoð og styrk-
ur í öllum félagsskap íslendinga.
þar. Forstöðu veitti hann á heim-
ili móður sinnar, því faðir hans
dó fyrir löngu síðan. Hann var
jarðsunginn föstudaginn 29. apríl
af séra Haraldi Sigmar. Var fjöl-
menni mikið við útförina og marg-
ir, sem komu að langan veg. Mátti
af því sem mörgu öðru marka hin-
ar miklu vinsældir hins látna og
fólks hans.
Mrs. Björg Sigurðsson, kona
Sigurðar SiguVðssonar á Gimli:
andaðist að heimili þeirra hjóna
þ. 29. apríl s. 1., 92 ára gömul.
Hún var ættuð úr Húnavatnssýslu.
Voru foreldrar hennar Jóhannes
og Solveig, er bjuggu á Mörk í
Laxárdal, og þar var Björg fædd
5. 2. marz 1840. Dóttir Bjargar er
ólöf, kona Þorsteins bónda á
Bakka í öxnadal. Björg átti þrett-
án systkini, er öll munu nú látin.
Ein af systrum hennar var Ingi-
björg, móðir Andrésar sál. Free-
man, er var drengur góður og vin-
sæll hæfileikamaður og mikils
metinn, vann skrifstofustörf hér i
borg fjöldamörg ár. Björg var
gædd ýmsum góðum hæfileikum og
átti stóran hóp vina. Jarðarförin
fór fram frá lútersku kirkjunni á
Gimli, síðastliðinn mánudag, þ. 2
maí, og var fjölmenn. Séra Jó-
hann Bjarnason jarðsöng. — Blöð
á ísland eru vinsamlega beðin að
!geta um andlát konu þessarar.
Veitið athygli!
Nú um þcssar mundir, þegar
mest er rigninga von, er brýnust
þörfin á traustum húsþökum. Við
verzlum elnmitt me8 beztu efni I
þessu tilliti, svo sem hið fræga
Asphalt Shingles og Siding (þak
og veggja klæðning). Vlðskifti
okkar gilda jafnt um utanbæjar-
menn sem innan. pess er æskt,
að væntanlegir viðskiftavinir leiti
upplýsinga til undirritaðs félags.
Halliday Bros.
342 PORTAGE AVE., Winnipeg
eða umboðsmanns þess,
Jóns Ólafssonar,
250 Garfield Street,
er samstundis svarar öllum fyrir-
spurnum hvort heldur er á is-
lensku eða ensku.
Messugjörð
flytur G. P. Johnson á eftirfylgj-
andi stöðum: Sunnudaginn 8 Maí,
kl. 2 e.h., í Ellen Bay skóla; en að
kvöldinu kl. 8 ensk messa í Steep
Rock Hall. Á hvítasunnudag, þ. 15.
þ.m., í Hayland Hall kl. 2 e. h., og
á Trínitatis, 22. þ.m., í Dairwin
skóla kl. 11 f. m., og sama dag kl.
3 e. h. í Ralph Connor skóla, Silver
Bay. Fólk er vinsamlega beðið að
fjölmenna. Allir hjartanlöga vel-
komnir.
TAKIÐ EFTIR.
Á þriðjudagskvöldið, 10. maí,
verður sérstaklega skemtileg sam-
koma haldin í samkomusal Fyrstu
lút. kirkju kl. 8.15 e.h. Um 25—30
ungir menn, sem tilheyra sunnu-
dagsskólanum, hafa í síðustu þrjá
mánuði verið að undirbúa sig fyr-
ir þessa samkomu, og verður sam-
koma þessi í þremur þáttum: “A”
íslenzkir og enskir söngvar, bæði
chorus og octette, etci.; “B
“Dandies of 40 years ago”, lítill
dráttur úr lífi íslendinga fyrir 40
árum; “C” “Minstrel Show”. Verða
drenjgirnir klæddir eins og svert-
ingjar. Má fullyrða, að aldrei
hafi samslags samkoma verið
haldin vor á meðal.
Inngangur verður ekki seldur,
en samskota leitað, og alt, sem inn
kemur, gengur til safnaðarins.
Fjölmennið.
FRA ISLANDI.
Jarðarför séra Árna Björnsson-
ar frá Görðum, fór fram í gær
í Hafnarfirði með mikilli viðhöfn
og mun aldrei hafa sézt þar fjöl-
mennari né hátíðlegri jarðarför.
Rukkari: Þú e’gir að pabbi þinn
sé ekki heima, en þarna hangir þó
hatturirfn hans.
Drenguurinn: Já, hann kemst
ekki fyrir í skápnum með hattinn
á höfðinu.
Sparið helming
á gólfdúkum!
Kastið ekki gðlfdúkum yðar
stærri e8a smærri. Hvernig sem
þeir eru litir og útleiknir, vér á-
byrgjumst aC handvefa þá og
gera þá að ljðmandi “DUO-VEL-
VETT” dúkum I þeim lit, sem
samsvarar herbergjum y8ar. "
VOR LANGA REYNSLA HEFIR
GERT PÚSUNDIR VIÐSKIFTA-
VINA ANÆGÐA
Ábyrgjumst einnig hreinsun á
gðlfdúkum og viðgerðir
SÍMIÐ 71 583
eftir áætlun eða skrifið eftir
verðskrá með myndum. 16 ára
reynsla. Elst og best vestan stðr-
vatna.
CAPITOL CARPET CO.
545 ARLINGTON ST., Winnipeg
MOORE’S TAXI LTD.
28 333
Leigið bíla og keyrið sjálfir.
Flytjum pianos, húsgögn, farang-
ur og böggla.
Drögum bíia og geymum. Allar
aðgerðir og ðkeypis hemilprófun.
Brynjólfur Thorláksson
tekur að sér að stilla
PIANOS og ORGANS
Heimiii 594 Alverstone
Sími 38 345
St.
DR. T. GREENBERG
Dentist
Hours 10 a.m. to 9 p.m.
PHONES: Office 36 196
Res. 51 455
Ste. 4 Norman Apts.
814 Sargent Ave., Winnipeg
Jakob F. Bjarnason
TRANSFER
Annast greiðlega um alt, sem að
flutningum lýtur, smáum eða stór-
um. Hvergi sanngjamara verð.
Heimili: 762 VICTOR STREET
Simi: 24 500
JOHN GRAW
Fyrsta Ilokks klæðskeri
Afpreiðsla. fyrir öllu
Hér njðta peningar yðar sin að
fullu.
Phone 27 073
218 McDERMOT AVE.
Winnipeg, Man.
CARL THORLAKSON
úrsmiður
627 Sargent Ave., Winnipeg
Sími: 2T7 117. Heima 24 141
SfmiC pantanir yðar
ROBERTS DRUG STORE'S
Ltd.
Ábyggilegir lyfsalar
Fyrsta flokks Afgreiðsla.
Níu búðir — Sargent and
Sherbrooke búð—Sími 27 057
FINGURBYLGJUÐ HAR-
KRULLUN oe ALLSKONAR
ANDLITSFEGRUN
að 512 Victor St. Sími 31145
(Skamt frá F. lút. kirkju)
Ábyrgst afgreiðsla og sann-
gjamt verð.
Guðný og Ásta Einarsson
íslenska matsöluhúsið
par sem Islendlngar 1 Winnipeg og
utanbæjarmenr, fá sér málttðir og
kaffl. Pönnukökur, skyr, hanglkjö*
og rúllupylsa á takteinum.
WEVEL CAFE
692 SARGENT AVE.
Slml: 37 464
RANNVEIG JOHNSTON, eigandl.
VEITIÐ ATHYGLI!
Eg undirrituð hefi nú opnað
BEAUTY PARL0R
í Mundy’s Barber Shop, Portage
Avenue, næst við Harman’s
Drug Store, Cor. Sherbrooke
og Portage Ave. Sími: 37 468.
Heimasími: 38 005
Mrs. S. C. THORSTEINSON
Sendið
GLUGGATJÖLD yðar og BLÆJUR til viðurkendra sér-
fræðinga. Verð við almennings hæfi.
PEERLESS LAUNDRY LIMITED
“The Laundry Beyond Compare for fíkill and Care’•
55 PEARL STREET, WINNIPEG—PHONE 22 818
OI
U
D
D
D
D
D
D
D
0
D
CANADA
BRE&D
Hið risavaxna brauð vort
fullnœgir risa matarlyát
Reynið það nú. Símið yöntun yðar
■w
D
0
D
D
D
D
0
D
D
n