Lögberg - 12.05.1932, Side 1
PHONE: 86 311
Seven Lines
foti JáSs"
S"* * For
ited
Cot*
For
Service
and Satisfaction
45. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 12. MAÍ 1932
NUMER 19
Merkilegur fundur
1 fyrra frétti Matthías Þórðar-
arson þjóðminjavörður, að fyrir
mörgum árum hefði fundist merki-
lefgt tré í laekjarfarvegi hjá bæn-
um Hólmi í Landbroti. Út af þessu
skrifaði hann Bjarna Runólfssyni
Rafmagnsfræðin!g í Hólmi og bað
hann um upplýsingar um fund
þenna. Hefir Matthías síðan feng-
ið skýrslu frá föður Bjarna, Run-
ólfi Bjarnasyni á Hólmi, sem nú
er gamall maður, en man vel eft-
ir því, þegar tréð fanst.
Er skýrsla Runólfs á þessa leið:
— Á árunum frá 1870—1880
fanst tré í jörðu í gömlum lækjar-
farvegi í landareign jarðarinnar
Hólms í Landbroti í Vestur-
Skaftafellssýslu, með þeim hætti,
sem hér skal sagt frá.
Eftir vatnavexti sást af tilvilj-
un á tréstúf upp úr sandi og aur
1 nefndum lækjarfarvegi. Var þá
farið að athuga þetta nánar og
reyndist þarna vera óhreyfanle'gt
tré. Fóru þá þrír bændur með
mönnum sínum að grafa með
trénu, og var grafið alt í kring un»
það um 6—6 álnir í jörð niður.
Lengra treystust menn ekki að
grafa vegna vatnsaga. Var þá
reynt með átökum að losa tréð, en
sú tilraun varð árangurslaus.
Þá reyndu menn einnig að setja
bönd um tréð að ofan og toguðu
i það 5—6 menn til þess að reyna
að losa það, en alt varð áranlgurs-
laust. Tréð var óhreyfanlegt.
Nú varð ágreiningur um hvað
gera skyldi, en að lokum var tek-
ið það óheillaráð að höggva tréð í
sundur svo neðalega sem hægt
•var. Voru þá sex menn á meðan
að ausa vatni í skjólum upp úr
gröfinni. Þegar tréð hafði verið
höggvið sundur, fyltist gryfjan
samstundis vatni, og í næsta
vatnavexti, fyltist hún af sandi og
aur.
Tréð var rúmlega eitt fet að
gildleika í þvermál að ofan, en tvö
fet, eða jafnvel meira, að neðan.
Að utan var það grásvart að lit,
en að innan falleg lindi-fura. —
Tréð var sívalt, kvistalaust og
slétt. Stóð það ekki beint upp,
heldur hallaðist líkt og sigla á
skipi, þá er skipið liggur á kjal-
síðu.
Þetta er stutt lýsing af þessum
atburði.
Vegna þess að eg undirritaður
var þarna viðstaddur, og sá alt,
sem fram fór þessum atburði við-
víkjandi, þá votta eg hér með, að
eg hefi lýst þessu svo rétt, sem eg
man eftir, og tel víst, að neðri
endi trésins sé enn í dag þarna
niðri í jörðinnn.
Er hægt að finna tréS?
í einkabréfi til fornminjavarð-
ar, sem þessari skýrslu fylgir, seg-
ir Runólfur svo:
— Hvað viðvíkur því, að eg geti
sagt til hvar á að grafa til að
finna neðri enda trésins, þá er því
til að svara, að e!g man ekki upp á
hár hvar það fanst. En ef tekið
er pláss, tíu faðma í ferhyrning,
til að leita í, þá skil eg ekki í öðru
en tréð finnist. Staðhættir eru
þarna ekki góðir, því að þarna eru
oft vatnavaxtabreytingar. Því er
þannig farið, að farvegur Skaft-
ár er svo þrðngur á einum stað,
að hann tekur ekki nema meðal-
vatn árinnar, svo að alt eða mest
af því, sem áin vex, fellur í þenn-
an farveg, sem tréð fanst í, og
verður þar mikið vatn, svo mikið
á stundum, að ekki er fært nema
á báti eða dragferju. Þar að auki
er dálítill lækur, sem er upp-
spretta, og rennur eftir nefndum
farvegi. En hann er ekki mikið
Forseti Frakklands myrtur
Paul Doumer, þrettándi forseti
franska lýðveldisins, var myrtur
í París hinn 6. þ. m., skotið á hann
þremur skotum, sem særðu hann
þeim sárum, er leiddu hann til
bana, þrettán klukkustundum síð-
ar. Dánardægur hans er því 7.
maí. Forsetinn var þegar fluttur
á spítala eftir að skoitð var á
hann, og þar gert alt sem mögu-
legt var til að bjarga lífi hans.
Frá því hann var særður og þang-
að til hann dó, var hann lengst
af rænulaus, en þó ekki alt af.
Einu sinni spurði hann, hvað hefði
komið fyrir. Honum var sagt, að
hann hefði orðið fyrir bíl. “Und-
arlegt,” sa!gði hann, “eg man ekk-,
ert.”
Doumer forseti var hálf áttræð-
ur að aldri og hafði mikinn hluta
æfinnar fengist við stjórnmál og
gegnt ýmsum mikilsverðum em)-
bættum. Mikill hæfileikamaður,
prúðmenni og vinsæll.
Morðinginn var þegar tekinn
fastur, en særði þó lögreglustjór-
ann nokkuð áður en hægt var að
taka af honum vopnið. Hann er
rússneskur læknir og heitir Paul
Gouguloff. Er haldið, að hann
muni naumast vera með fullu viti.
Flest af því, sem hann sagði, þeg-
ar lögregtan talaði við hann, bend-
ir í þá átt.
Kommúniátar teknir
faátir
Það lítur út fyrir, að réttvísin
í Canada sé að verða nokkuð að-
gangshörð við kommúnistana
Einir átta þeirra að minsta kosti.
voru teknir fastir í vikunni sem
leið, samkvæmt fyrirskipun sam-
bandsstjórnarinnar, og allir send-
ir til Halifax, og þar á að rann-
saka roál þeirra. Er þar vikið langt
frá vanalegum réttarfarsreglum
þessa lands, því vanalega verða
menn að standa fyrir máli sínu í
heimahögum, eða þar sem þeir
hafa framið eitthvert lagabrot,
eða eru fgrunaðir um að hafa gert
það. En Mr. Guthrie, núverandi
vörður laga og réttar þessa lands,
segir að þetta sé nákvæmlega lög-
um samkvæmt, en Mr. Woodsworth
er óánægður með þetta. Þrír af
þessum mönnum áttu heima í Win-
nipeg og voru hér teknir fastir.
Þeir heita: Daniel Holmes, Konrad
Cessinger og Orton Wade. Tölu-
vert umtal er um það, að þessir
menn verði kannske sendir burt
úr landinu, en það er alt óvíst enn.j
Nú fljúga fuglar norður - -
(Flutt á Islendingamóti í Minneapolis,
9. apríl 1932.)
Nú fl.júga fuglar norður
til fjalla-landsins prúða,
er kastar vetrar knfli
og klæðist vorsins skrúða.
Um brekkur lækir Jiðast
sem lokkar niður vang'a.
Á túni senn mun sóley
í sumarblænum anga.
Nú fljúga fuglar norður,
með fagran söng í hjarta;
þá heilla huliðs raddir
og heiðið víða og bjarta.
Þá seiðir svipfrítt hauður
þar sólskin hlær um nætur
á brjóstum blárra vatna
við blómgra hlíða fætur.
Nú fljúga fuglar norður. —
I faðmi hlýrra dala
þeir vita frið og fegurð,
þar fjóla og lindir hjala.
Og drottning fjalla fögur,
hún fagnar hverjum gesti,
. og enga á hún kærri
en unga söngva-þresti.
Eg flýg með fuglum norður;
mér firðir rétta hendur
og bjóða mér til bæjar,
en brosa hýrar strendur.
Á öllu er æsku-svipur
sem eilíft ríki vorið
Sú foldin fölnar eigi
þar fyrsta stigum sporið.
Richard Beck.
1.
2.
Kirkjao
Hvítasunnan í Fyrstu lútersku kirkju.
Kl. 11* f. h.—Fermingar-guðsþjónusta.
Kl. 7 e. h.—Altarisgöngu- guðsþjónusta.
Velkomið til hátíðahaldsins, kristið fólk!
Capone fluttur til Atlanta
Nú sýnist með öllu vonlaust, að
A1 Capone komist hjá því, að taka
út þá hegningu, sem hann hefir
verið dæmdur til, sem er ellefu ára
tugthúsvist. Ný rannsókn í glæpa-
málum hans, sem hann hefir ósk-
að eftir, verður ekki hafin, og nú
hefir hann verið fluttur frá Chi-
ca!go í Atlanta fangahúsið mikla
og er hans þar nú vandlega gætt.
Er sagt, að Capone hafi orðið af-
ar mikið um þessi málalok og bor-
ið sig hörmulega. Capone hefir
verið talinn einn af allra athafna-
mestu glæpamönnum í Chicago og
er þá mikið sagt. En þenna dóm
fékk hann fyrir að svíkjast um að
greiða tekjuskatt.
Frá íslandi
að óttast, ef til kæmi, því að veita
má honum burtu frá þeim stað,
sem leita ætti að trénu. — Fús er
eg til þess að segja til staðarins
eftir því sem eg bezt veit, en út,
af jarðraski, sem Skaftá hefir
gert á þessum slóðum, er alt verra
við að eiga.
Hólmur í Landbroti liggur langt
frá sjó, nærri Kirkjubæjarklaustri.
Er þar allhátt land alt um kring
(hraun) og er lítt skiljanlegt
hvernig, eða hvenær tré þetta hef-
ir komist þanigað. En tvent er þó
annað, sem er athugavert, að tréð
er valviður, stendur ffþp á endann
og likist mest siglu á skipi.
Matthías Þórðarson mun ætla
sér í sumar að rannsaka fund
þenna nánar. Hefir hann skrifað
Runólfi Bjarnasyni, beðið hann
að benda á staðinn þar sem tréð
fanst, og athuga hvað það mundi
kosta, að grafa niður á það og
merkja, svo að þessi einkennilegi
fundur verði rannsakaður ná-
kvæmlega. — Lesb.
Hollustu eiðurinn
Á miðvikudaiginn í vikunni sem
leið, samþykti irska þingið frum-
varp, sem stjórnin hafði lagt fyr-
ir það, og er þess efnis, að afnema
hollustueiðinn til Bretakonungs.
En Mtill varð atkvæðamunurinn,
77 með frumvarpinu, en 67 á móti.
Sýnir þetta ljóslega, að hér er
ekki um eindreginn vilja þjóðar-
innar, eða írska Fríríkisins að
ræða. Mótstöðuflokkur stjórnar-
innar barðist líka af öllu afli gegn
þessu frumvarpi, en verkamanna-
flokkurinn studdi hana til að koma
því gegn um þingið. Ef gert ráð
fyrir, að þetta frumvarp verði að
lögum í þessari viku, og hollustu-
eiðurinn þar með afnuminn. En
ekki munu Bretar tilbúnir að fall-
ast á %ietta og því ekki ólíklegt, að
hér kunni að draga til nokkurra
tíðinda. -------------
Þriggja ára fangelsi
Peter Verigin, sem er nokkurs-
konar einvaldshöfðingi yfir svo
sem fimtíu þúsund Doukhobors í
Vestur-Canada, var dæmdur til
þri'ggja ára fangavistar í vikunni
sem leið. Var dómur þessi upp-
kveðinn í Yorkton, Sask., af D.
Maclean dómara. Hann var kærð-
ur um að hafa svarið rangan eið,
og þótti sannað að hann hefði
gert það. Annars eru endalaus
vandræði með þessa svo kölluðu
Doukhobors hér í landi. Þeim
skilst illa að þeim beri að hlýða
lögum landsins, nema því aðeins,
að þau séu í samræmi við það,
sem þeir vilja sjálfir vera láta
Taka þeir stundum upp á hinum
fáránlegustu hlutum, þegar þeim
fellur eitthvað miður vel, eins og
«
t. d. að ganga berir í stórhópum
um borgarstræti. Fyrir það er nú
fjöldi þeirra í fangelsi :í British
Columbia.
Þingslit—Kosningar
Fylkisþinginu í Manitoba var
slitið kl. 5 á laugardaginn. Höfðu
þingmennirnir setið á fundi næst-
um alla nóttina áður, og sýnist það
nú vera að verða siður við þing-
slit hér í fylkinu. Var þetta fimta
og síðasta þingið á því kjörtíma-
bili, sem nú er að enda.
Fylkisstjórnin hefir nú ákveð-
ið að þingkosnin'gar fari fram
hinn 16. júní í öllum kjördæmum
Manitobafylkis, nema tveimur,
The Pas og Rupert’s Land. í þeim
kjördæmum verða ekki kosningár
Lyr en 14. júlí, eða nærri mánuði
seinna.
Áður en kosningar fara fram,
verða einhverjar breytingar gerð
ar á ráðuneytinu, einhverjir menn
tilheyrandi frjálslynda flokknum
teknir inn í það. Hverjir þeir verða
er ekki enn ákveðið, svo kunnugt
sé. Bæði stjórnin og íhaldsflokk-
urinn gera ráð fyrir að hafa fram-
bjóðendur í öllum kjördæmum.
Verkamannaflokkurinn hefir níu
eða tíu frambjóðendur.
FRÁ ÍSLANDI.
Si'glufirði, 9. apríl.
Norðanhríð í gær og dag. Mik-
il fannkoma. Hefir kyngt niður
allmikilli fönn á láglendi og slétt-
að af öllúfn giljum til fjalla.
Es. ísland liggur hér og fær
ekki afgreitt sig, enda mun það
ekki leggja út héðan fyr en lægir.
Skeyti hafa borist frá Detti-
fossi og Novu vestan úr Húna-
flóa. Láta skipsmenn á þeim hið
versta yfir veðrinu. í Dettifoss-
skeytinu segir, að veðurhæðin sé
11—12 og verði að halda skipinu
upp í sökum veðurhæðar, enda er
það létthlaðið. Bæði skipin segja
talsverðan íshroða á flóanum.
Bandaríkin spara líka
Congress Bandaríkjanna' ætlaði
að láta til sín taka og spara um
$200,000,000 af alþjóðarfé á þann
hátt að lækka útgjöldin með ýmsu
móti. Þetta sýnist ekki hafa
hepnast nærri því eins og til var
stofnað, en samt hefir þingið á-
kveðið, að lækka útgjöldin um
$38,000,000 til $43,00,000. Fjár-
lagafrumvarpið, sem nú hefir ver-
ið samþykt, ákveður meðal annars,
að lækka laun Congressmanna um
$825 á ári, eða úr $10,000 ofan í
$9,175, og laun annara embættis-
manna eru lækkuð um 11 per cent.
af öllum þeirra launum, sem eru
yfir $2,500 á ári, það er að segja,
það er ekkert tekið af $2,500, en
11 per cent. af öllu því, sem þar er
fram yfir. Þingið feldi margar
sparnaðartillögur.
Mikill
munur
Á fjárhagsárinu, sem endaði
31. marz 1925, seldi Canada hveiti
út úr landinu, sem nam 191,764,-
537 mælum. Verðið á öllu þessu
hveiti nam $251,665,844. Á fjár-
haigsárinu, sem endaði 31. marz
1932, var næstum því jafnmikið
hveiti selt út úr landinu, eða
191,316,933 mælar, en verðið, sem
inn kom fyrir hveitið það ár, var
ekki nema $115,739,383. Verð
munurinn er því meir en 135 milj-
ónir dollara. Þetta sýnir, að Can-
ada getur enn selt eins mikið
hveiti og fyrir sjö árum, en verð-
munurinn er óskaplegur, meir en
50 per cent. Þegar þessa er gætt,
þá er ekki undarlegt, þó búskap-
urinn í Sléttufylkjunum gangi
heldur erfiðlega, þar sem hveitið
er aðallega ræktað.
MacDonald líður eftir
vonum
Reykjavík 11. apríl.
íshroði mun hafa valdið eín-
hverjum skemdum á bryggjum á
Siglufirði nýlega. Annars hafa
fáar fregnir boxist um ís síðustu
daga. Frá Súgandafirði barst þó
Veðurstofunni svohlj. fregn í gær:
Strjált ísrek frá landi til hafs. —
Veður er nú batnandi nyrðra og
kyrt veður um alt Norðurland. í
Grímsey var stinnings kaldi á
norðan í morgun, en lægjandi. —
Bjart orðið í innsveitum norðan-
lands.
Grundarfirði 24. marz.
Veðrátta var hér óstöðug og ill-
viðrasöm fyrra hluta vetrarins. í
janúar gerði óhemju snjó og hefir
ekki komið svo mikill snjór síðan
árið 1920. — Þ. 23. jan. fór að þíða
og var hlákan hin hagstæðasta
sem menn muna. Að eins frost
einn dag í febrúar og dálítill snjór
og nokkurt frost í byrjun þessa
mánaðar. Annars sífeld vorhlý-
indi. — Fé var tekið alment á gjöf
um mánaðamótin nóvember og des-
ember. Alment er ekki 4farið að
sleppa fé enn þá. Skepnuhöld
hafa verið sæmileg, nema allmik-
ið hefir borið á lungnaveiki í fé,
en fátt drepist.
Gróður er orðinn óvenju mikill
og á einum bæ farið að vinna á
túni (slóðadraga).
Að jarðabótum hefir verið unn-
ið mikið ií vetur, einkum þakslétt-
um, svo að þær verða líklega með
meira móti í ár. Vegna fjárhags-
erfiðleika mun lítið verða keypt af
erlendum áburði og tefur það mjög
fyrir nýræktinni.
Fiskafli var rýr hér í haust,
enda miklar ógæftir, en síðan í
janúarlok hefir verið góður afli
og gæftir.— Heilsufar alment gott
í vetur.
Nýlega fundust í Kvernárfjalli
rústir af séli því, sem frá er sagt
í Sögum frá Skaftáreldum og víðar,
og ekki hafa fundist fyr. Eru þarna
þrjár rústir frá ýmsum tímum og
benda þær á merkilegt samræmi i
fyrirkomulagi og búrekstri feðra
vorra, uppi í faðmi fjallanna.
Væntanlega verða rústir þessar
rannsakaðar af fornfræðingum.
—Finnandinn er Kristján hrepp-
stjóri Þorleifsson á Grund.-
Reykjavk, 11. apríl 1932
Aflinn nam þ. 1. apr. samkvæmt
skýrslu Fiskifélagsins, 16,463 þurr-
um smálestum. Á sama tíma í
fyrra var aflinn 12,466 smál.,
1930: 22,593 og 1920: 18,241 þurr-
ar smál.
Fiskibirgðir námu þ. 1. apríl
samkv. reikningi Gengisnefndar,
14,047 þurrum smálestum. Á sama
tíma í fyrra voru fiskibirgðirnar
Símskeyti frá London á mánu- 16,393 smál., 1930: 18,423 og 1929:
daginn getur þess, að uppskurður 12,740 þurrar smál.
á hægra auga MacDonalds for- útflutningur nam á fyrsta árs-
sætisráðherra, hafi hepnast ágæt- fjórðungi þessa árs kr. 11,59$,400,
lega og að honum líði vel og sé o!g er það mun meira en á sama
á Igóðum batavegi. Samt er búist tímabili á undanförnum þrem ár-
við, að hann verði að vera á spít-j um. í fyrra nam útflutningurinn
alanum einar tvær vikur enn að| á þessu tímabili kr. 10,410,270,
minsta kosti. Konungurinn sendij 1930: kr. 10,527,500 og 1929: kr.
honum blóm á sunnnudaginn ogj 11,125,980. — 1 marzmánuði yfir-
Bennett sendi honum samhygð- j standandi árs nám útflutningurinn
arskeyti.
' kr. 4,074,760. — Vísir.
i