Lögberg - 22.03.1934, Side 1
47. ARGANGUR
FRÁ ÍSUNDI
HÖFUÐBÓLIÐ
SVALBARÐ sELT
Þorsteinn M. Jónsson, bóksali á
Akureyri hefir nú keypt höfuðbóliÖ
SvalharÖ á Svalbarðsströnd á 41,-
200 kr. af ekkjunni Berthu Líndal.
Byrjar hann þar búrekstur me8 vor-
inu, en heldur þó áfram bóksölu og
útgáfustarfi á Akureyri. Björn
heitinn Líndal keypti Svalbarð árið
1908. Hús jarðarinnar voru þá léleg
og tún þýft og gaf af sér aðeins 200
töðuhesta. Líndal slétti túnið og
færði það svo mikið út, að nú gefur
það af sér 1,000 hesta töðu. Hann
girti og tún, engjar og haga og
bygði upp öll hús jarðarinnar úr
steini, íbúðarhús hið vandaðasta, 2
hæðir auk kjallara, f jós yfir 24 naut-
gripi, fjárhús yfir 300 f jár, hesthús
yfir 10 hesta og hlöður yfir 600
hesta heys. Auk þess gerði Lindal
mjög mikil mannvirki á Svalbarðs-
eyri, er þá fylgdi eigninni, þar á
meðal stórt og vandað íshús, en þær
eignir keypti Kaupfélag Eyfirðinga
í fyrra.—Vísir.
IBÚATALA REYKJAVlKUR
Á bæjarráðsfundi, 23. febrúar,
tilkynti borgarstjóri, að bráðabirgða-
niðurstaða á manntalinu siðast
sýndi íbúatölu í bænum ca. 31.484.
—Vísir.
FRA SEYDISFIRÐI 22. FEBR.
Hjálmar Vilhjálmsson hefir ver-
ið endurkosinn bæjarstjóri hér með
öllum atkvæðum. — Atvinnulausir
voru í byrjuri þessa mánaðar 82
menn, með 178 menn á framfæri
sínu. Ársf jórðungstekjur þeirra
voru samtals 7,349 kr. Daglega
vinna nú um 20 menn í atvinnubóta-
vinnu, við upp.fyllingu hafnarlóðar,
en að öðru leyti er atvinnulítið.
—Nýja Dagbl.
FRA SAUÐARKRÓKI 23. FEBR.
Stefán Jóhannesson og kona hans
Hólmfríður Þorstdinsdóttir fund-
ust á föstudagsmorgun meðvitund-
arlaus af kolsýringi frá ofni. Álit-
ið er, að spjald í ofnpípunni hafi
snúist af súg í ofninum. Konan
kom til meðvitundar um hádegi, og
er talin úr hættu. Stefán var ekki
vaknaður um miðaftan, en læknir
vonast eftir að geta bjargað honum.
—Nýja Dagbl.
KAFFI OG SYKUR
Árin 1881—85 var kaffineyslan á
mann hér á landi 5,4 kg. Árið 1931
var hún 6.9 kg. Mest hefir hún ver-
ið um og eftir heimsstyrjöldina, ár-
in 1916—20. Þá var hún 7.3 kg. á
mann. Sykurneyslan var á árunum
1881—85 7-6 kg. á mann, en hún
hefir alt af farið vaxandi og var
1931 40 kg.
NÝTT ISLENZKT LEIKRIT
Hið nýja leikrit Guðmundar
Kambans, “Skálholt,” var leikið í
fyrrakvöld, 16. febr., fyrir fullu
húsi á konunglega leikhúsinu í
Kaupmannahöfn. Var leikritinu
mjög vel tekið og Kamban kallaður
fram mörgum sinnum.
KONA DRUKNAR
Gunnólfsvík 26. febr.
í gærmorgun var frú Guðrúnar
Jónsdóttur frá Lindarbrekku* við
Bakkafjörð saknað af heimilinu.
Leit var þegar hafin og fanst lik
hennar nokkuru síðar rekið á fjöru
þar stutt frá.
Eigi er kunnugt með hverjum
hætti hún hefir druknað. Guðrún
heitin lætur eftir sig eiginmann og
þrjú uppkomin börn.
KOLLU-MALIÐ
Mál hefir verið höfðað gegn Her-
manni Jótiassyni, lögreglustjóra í
Reykjavík, fyrir að skjóta æðar-
kollu út í Örfirisey 1. des. 1930.
Einnig hefir hann verið kærður
fyrir brot á friðunarlögunum, fram-
ið í október s. 1., og er kæra þessi
hér birt eftir Nýja Dagblaðinu:
“í s. 1. október mánuði var eg
undirritaður, Oddgeir Bárðarson,
Njálsgötu 60, staddur úti í Örfiris-
ey. Sá eg þá hr. lögreglustjóra,
Hermann Jónasson, þar með byssu,
og skjóta af henni. Að því er eg
hygg á sjófugla.
Þar sem eg nú veit, að þessi
verknaður ljögreglustjórans er brot
á lögreglusamþykt Reykjavíkur, og
þar sem eg tel mig með vitnum geta
fært sönnur á þetta lagabrot lög-
reglustjórans, þá leyfi eg hérmeð
að kæra það fyrir hinu háa Dóms-
málaráðuneyti, í von um að það
fyrirskipi rannsókn í málinu.
Jafnframt leyfi eg mér að kæra
yfir broti því, er lögreglustjórinn
hefir gert sig sekan um, gegn frið-
unarlögunum, og sem frá er skýrt
af Sigurði Jónssyni rafvirkja í sjö-
unda tölublaði Morgunbiaðsins þ. á.
Reykjavík, 12. jan. 1934.
(sign.) Oddgeir Bárðarson.
Til hins háa dómsmálaráðuneytis
íslands."
Arnljótur Jónsson, lögfræðingur,
er að rannsaka málið. Það hefir
valdið miklu umtali.i Reykjavikur-
blöðunum.
VÉLBATUR FEfíST
Miðvikudaginn 21. þ. m. reri vél-
báturinn Sæbjörn frá Hornafirði,
en hann kom ekki aftur úr róðri.
Var bátsins svo leitað, en árang-
urslaust. Var einnig fenginn stór
vélbátur frá Eskifirði til þess að
leita, en hann hafði einskis orðið
var. Er því talið víst, að báturinn
hafi farist með allri áhöfn.
Á bátnum voru f jórir menn, þess-
ir: Þorsteinn Sigurðsson, formaður
frá Hoffelli í Nesjahreppi, ókvænt-
ur; Hermann Jónsson, Höfn í
Hornafirði, kvæntur og átti tvö
börn; Þorsteinn Einarsson, Höfn í
Hornafirði, kvæntur og átti eitt
barn; Sigurður Bjarnason, Höfn í
Hornaf., ókvæntur.—Mbl. 25. febr.
MERKILEGT FUGLALIF
Haraldur Jónsson i Gróttu hefir
tekið eftir því í vetur, að margir
fuglar, sem annars fara héðan alt af
á haustin, en koma á vorin, hafa
staðnæmst hér yfir veturinn. Munu
þeir ekki hafa áttað sig á vetrinum,
sökum þess hvað hann er mildur.
8. febrúar segist hann t. d. hafa séð
lunda úti í Gróttu, en lundinn fer
allra fugla fyrstur á haustin, og sézt
hann næstum aldrei eftir að október
er liðinn. Lóuhópur hefir einnig
haldið til þarna úti í vetur. Tvo
hegra hefir Haraldur séð hér í allan
vetur og er það mjög sjaldgæft að
þeir séu hér, og allra sízt á þessum
tíma árs. Auk þessa hafa hér verið
skógarþrestir og stelkar.
—Nýja dagbl. 26. febr.
DANARDÆGUR
Tveir merkir Norður-Þingeyingar
eru nýlátnir, þeir Siggeir Pétursson
bóndi á Oddsstöðum og Jóhann
Baldvinsson bóndi og vitavörður á
Rifi. Báðir aldraðir menn, og lét-
ust af völdum illkynjaðrar kvefsótt-
ar, sem gengið hefir í héraðinu.
—Nýja dagbl.
BJÖRG C. PORLAKSDÓTTIR
dr. phil. andaðist i Kaupmannahöfn
sunnudaginn 25. febrúar.—Mbl.
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 22. MARZ 1934
MINNISVARÐl LENINS
Rússneska stjórnin hefir ákveðið
að reisa bráðlega afarstóra bygg-
ingu i Moskva, og á hún að vera
einskonar minnismerki vfir Lenin. i
Bygging þessi verður sú stærsta
og hæsta í heimi, eða um 1,360 fet.
(Empire State byggingin í New
York er um 1200 fet). Neðri hæð-
irna á að nota sem samkomuhöll eða
leikhús, og á einn salurinn að rúma
20 þúsund manns, en annar 6 þús-
und. Grunnurinn verður úr granít
og marmara, en efri hæðirnar úr blá-
rauðri, eldrunninni steintegund, sem
fundist hefir i Kákasus-héruðunum.
Ofan á bygginguna verður reist
likneski af Lenin, og á það að standa
á sex risavöxnum súlum. Líknesk-
ið sjálft verður 260 fet á hæð.
Sá er uppdráttinn gerði, er Boris
lafan, velþektur, rússneskur bygg-
ingameistari.
IIVER ER MESTURf
Nemendur við hermannaskólann í
Valley Forge, Pennsylvania, voru
nýlega látnir greiða atkvæði um það
hver væri mestur af forsetum
líandaríkjanna. Niðurstaðan varð
sú að Abraham Lincoln fékk 43 at-
kvæði, Washington 44 atkvæði, en
Franklin D. Roosevelt 202 atkvæði.
Sýnir þetta, með mörgu öðru, að
vinsældir forsetans fara ekki þverr-
andi, enn sem komið er.
ÆFISAGA LANSBURY
Edgar Lansbury, sonur verka-
mannaleiðtogans, George Lansbury,
gaf nýlega út bók, sem hann nefndi
/Efisaga föður míns (My Father).
I bókinni er skýrt frá deilunni,
sem klauf ráðuneyti McDonalds fyr-
ir þremur árum síðan. Eins og
menn muna varð ágreiningur um
það hvaða afstöðu stjórnin ætti að
taka gagnvart hruni sterlingspunds-
ins og annara vandamála. Afleið-
ingin varð sú að stjórnin féll, og
þrír ráðherrarnir, þeir McDonald,
'Snowden og Thomas, mynduðu
nýja stjórn með eldri flokkunum.
George Lansbury var einn af þeim,
sem ekki vildi styðja samsteypu-
stjórnina, en hélt þó þingsæti sínu
er gengið var til kosninga 1931, sök-
um dæmafárra vinsælda.
Bók Edgars segir skýrt frá öllu,
sem gerst hafði á stjórnarfundum,
áður en verkamanna ráðuneytið féll,
en það kvað vera á móti viðtekinni
reglu að minnast á samtol eða um-
ræður, sem gerast á fundum brezka
ráðuneytisins.
Höfundurinn hafði hvorki ráð-
fært sig við konung né forsætisráð-
herra áður en bókin var prentuð, og
kom hún því þeim á óvart.
Konungur lét sig þetta litlu skifta,
en McDonald reiddist og lét gera
bókina upptæka. Útgefendur dróu
bana þá úr umferð og kliptu úr
henni þá kaflana, sem hneykslað
höfðu forsætisráðherrann.
George Lansbury er nú orðinn
maður gamall og heilsulítill, og er
nú ekki lengur fær um að veita flokk
sínum forustu á þingi, eins og hann
hefir gert siðustu þrjú árin.
IIEARST ÓANÆGÐUR
William Randolph Hearst, blaða-
maðurinn nafnkunni, hélt nýlega
ræðu í útvarpið í Los Angeles. í
ræðu þessari fór hann hörðum orð-
um um gerðir endurreisnarráðsins i
Bandarikjunum. Honum þykir
gengið of nærri stærri iðjuhöldum
og stjórnin of afskiftasöm um ýms-
ar verslunar aðferðir, sem hingað til
hafa verið látnar viðgangast.
Hearst-blöðin eru, svo sem kunn-
ugt er, mjög áhrifamikil og hafa alt
til þessa fylgt Roosevelt að málum.
Baráttan gegn stefnu forsetans er
nú fyrst að hef jast í alvöru og sjá
margir það sem eitt tákn timanna,
að Hearst skuli mótmæla gerðum
stjórnarinnar.
BÆJA RKOSNINGA RNAR 1
LONDON
Yerkamannaflokkurinn vann stór-
an sigur í bæjarstjórnarkosningun-
um í London á Englandi, i vikunni
sem leið.
Þetta er i fyrsta skifti, sem verka-
menn hafa farið með stjórn I,und-
únaborgar, og kom sigur þeirra
tnörgum á óvart. Bæjarráð Lund-
úna stjórnar allri borginni, að und-
anskildum miðparti hennar, sem er
um hálf fermíla að stærð. Svæði
þetta er nefnt “City of London,” og
er stjórnað af einum tnanni, sem
nefndur er Lord Mayor. Þetta er
æfagamalt embætti og talin hin
mesta virðingarstaða, þótt umdæm-
jð sé smátt.
\’erkamenn lofast nú til að breyta
ýmsit til batnaðar i London, svo sem
að lagfæra húsakynni verkafólks og
útrýma fátækrahverfunutn illræmdu.
Þetta er erfitt verk og óliklegt að
það takist fyrst um sinn.
ENGIN VAXTALÆKKUN
Forsætisráðherra, R. B. Bennett,
Iýsti því yfir í þinginu á mánudag-
inn var, að ekki gæti kontið til mála
að lækka vexti af skuldum ríkisins,
né fylkjanna, að svo stöddu.
Ástæðan fyrir því kvað vera sú,
að ríkissjóður þarf bráðlega á nýj-
um lánutn að halda til að mæta
skuldabréfum, sem falla í gjalddaga
á næstunni, og til að mæta tekju-
halla Þjóðeignakerfisins, sem nem ■
ur þetta ár 68 miljón dollurum. Ef
vextir yrðu lækkáðir, myndi reyn-
ast erfitt að fá þessi lán.
Eorsætisráðherrann taldi það ó-
gerning að Canada, sem i framtíð-
inni þyrfti á miklu fjármagni að
halda, gerði nokkuð það, sem skerti
lánstraust þjóðarinnar. Hann sagði
einnig að vextir yrðu ekki lækkaðir,
nema með leyfi þeirra, er skulda-
bréfin eiga, en þar sem þeir væru
dreifðir um alla veröld, myndi slíkt
ómögulegt.
“Það má segja, sem svo að skulda-
byrðin sé að verða oss ofvaxin.
Hvað sem því líður verðum við
samt að bera hana,” sagði ráíSherr-
ann.
STÓR VtGAHNÖTTUR
Á sunnudaginn var sá f jöldi fólks
i Alberta og Saskatchewan vígahnött
afarstóran, og gaf hann frá sér svo
mikla birtu að glögt varð séð í 100
mílna fjarlægð. Til að sjá var
hann á stærð við fult tungl og ljós-
grænn að lit. Hann féll með geisi-
hraða og sprakk nokkru áður en
hann kom til jarðar, nálægt Eerin-
tosh þorpinu í Alberta.. Sprenging-
in var svo mikil, að hús skulfu í
Ferintosh, að því er blaðafréttir
herma. Bær þessi er um 100 mílur
suðaustur af Edmonton, og sáu í-
búar þeirrar borgar til hnattarins.
Ekki hafa enn fundist nokkur
merki hnattarins, og telja menn lík-
legt að hann hafi brunnið til ösku
áður en hann náði til jarðar.
Þeir, sem sáu vigahnöttinn, segja
að það hafi verið tilkomumikil sjón,
og stórfengleg, og hefði verið sem
alt himinhvolfið stæði i loga.
INSULL FLÝR FRA
GRIKKLANDI
Fjármálabraskarinn, Samuel In-
sull, sem átt hefir griðastað hjá
Grikkjum síðastliðið ár, er nú strok-
inn þaðan úr landi.
Stjórnin gríska hafði loks ákveð*
ið að selja hann í hendur Banda-
ríkjunum, en Insull beið ekki boð-
anna, heldur strauk í kvenmanns-
gerfi frá Aþenuborg, og komst á
skip. Þá var hafin leit, og fanst
hann þá bráðlega og var fluttur til
baka. Samt var honum slept einu
sinni enn, og nú mun hann vera á
siglingu úti á reginhafi, því ekki
þorir hann að taka land nokkurs-
staðar.
NÚMER 12
Hveitilögin lögð fyrir þingið
Bracken stjórnarformaður lagði
hveitilaga-frumvarpið fyrir þingið
á miðvikudaginn í siðustu viku.
Frumvarp þetta, ef það verður
að lögum, veitir fylkisstjórninni
leyfi til að framkvæma ráðstafanir
þær, sem Bennett forsætisráðherra
gerði á Lundúna fundinum síðast-
liðið haust, viðvíkjandi sölu hveitis
til útlanda. Frumvarpið gerir ráð
fyrir að sett verði nefnd til að hafa
umsjón með sölu hveitis ef upp-
skera verður meiri en 385 miljón
mælar i haust. Nefnd þessari verð-
ur gefið líkt vald og gamla hveiti-
nefndin (Wheat Board) hafði árið
1920.
Um tuttugu þjóðir skrifuðu und-
ir Lundúna samningana í fyrra, og
lofaði Bennett þá, fyrir hönd þessa
lands að ekki yrðu seldir meir en
200 miljón mælar út úr landinu á
komandi ári. Með takmörkun út-
flutnings er ætlast til að fram-
leiðsla minki, og verðið hækki
um leið. Hvort þetta tekst, er enn
óvíst, en reynt verður það eflaust.
Annars er ekkert ákveðið enn um
það hvaða leiðir verða teknar til
takmörkunar á sölu hveitis, ef upp-
skeran verður góð í haust.
Löggjöfin miðar þvi eingöngu að
þvi að veita fylkisstjórninni vald til
að ráðstafa allri hveitiframleiðslu
og sölu hennar, hér í fylkinu.
Svipuð löggjafar frumvörp liggja
nú fyrir í Saskatchewan og Alberta,
og þykir líklegt að þau nái fram að
ganga í öllum sléttufvlkjunum.
Þingmenn Brackens munu ekki á
eitt sáttir um gildi þessara laga, en
enginn vafi er þó talinn á því, að
þau fái staðfestingu, þar sem um
stjórnarfrumvarp er að ræða. San-
ford Evans, foringi íhaldsmanna á
þingi, hafði einnig margt við frum-
varpið að athuga, en lét þess þó
getið, að ekki væri annað hægt en
að samþykkja þau svo að Canada
gæti staðið við gerða samninga.
Messuboð
HÁTIDA-MESSUR
I Fyrstu lútersku kirkju
Páimasunnudag:
Kl. 11 f. t.—ensk guðsþjónusta
með altarisgöngu.
Kl. 7 e. h.—íslenzk guðsþjónusta.
Þriðjudag í páskaviku:
Kl. 8 e. h,—Sameiginleg guðsþjón-
usta þriggja safnaða: Fyrsta lút.
safnaðar, Enska lúterska safnafi-
arins og Norska lúterska safnað-
arins. ,
Skírdag:
Kl. ,8 e. h.—Altarisgöngu-guðs-
þjónusta (íslenzk).
Föstudaginn langa:
Kl. 7 e. h.—Guðsþjónusta og
Cantata, “Komi riki þitt” eftir
Björgvin Guðmundsson.
Páskadag:
Kl. 11 f. h.—Ensk hátíðarguðs-
þjónusta (yngri söngflokkurinn).
Kl. 7 e. h.—íslenzk hátíðarguðs-
þjónusta (eldri söngflokkurinn).
Séra Jóhann Bjarnason messar
væntanlega í kirkju Mikleyjarsafn-
aðar á páskadaginn, þ. 1. apríl, kl.
2 e. h.—Fólk í Mikley er beðið að
láta fregn þessa berast um eyna og
að fjölmenna við messuna.—
Séra Jóhann Bjarnason býst við
að messa á þessum stöðum í Gimli
prestakalli næsta sunnudag, þ. 25.
marz (pálmasunnudag), og á þeim
tíma dags, sem hér er tiltekinn: I
gamalmennaheimilinu Betel kl. 9.30
f. h., og í kirkju Gimlisafnaðar kl. 7
að kvöldi.—Fólk er beðið að veita
þessu athygli og að koma til messu.
Séra Jóhann Fredriksson messar
á Lundar næsta sunnudag, þ. 25.
marz kl. 2.30 e. h. í Lúters söfn-
uði á föstudaginn langa kl. 2 e. h.,
og á Lundar á páskadagiqn á venju-
legum tima.
Sunnudaginn 25. marz, messar
séra H. Sigmar í Vídalínskirkju kl.
2 e. h. Fötudaginn langa (30. marz)
messar séra H. Sigmar í Péturs-
kirkju við Svold, kl. 2 e. h.
Áætlaðar messur um páskaleytið í
prestakalli séra Sigurðar Ólafsson-
ar’: Skírdag, Hnausa, kl. 2 síðd.
(ársfundur) ; föstud. langa í Geys-
ir, kl. 2 síðd. (ársfundur); Föstud.
langa, Árborg, kl. 7 síðd.; Páskadag,
Riverton kl. 2 síðd.
Insull kvað hafa leigt snekkjuna
“Maiotis,” til apríl loka, og verður
hann ekki handtekinn á meðan.
Sumir ætla að hann reyni að kom-
ast á land i Afríku eða Litlu-Asíu,
svo litið beri á, og fela sig þar, unz
Ur bænum
Men’s Club heldur fund 3. apríl
kl. 8 að kvöldinu. Frekar getið í
næsta blaði.
Mr. íngimar Ingaldson fór til Ot-
tawa á mánudagskvöldið, þar sem
hann verður kvaddur sem vitni á
fimtudaginn fyrir Stevens-nefnd-
inni, sem nú er að rannsaka gripa-
rækt og markaðsaðferðir. Hann
mun einnig konia við í Montreal og
Toronto og kvnna sér horfur þar
fyrir sölu á gripum. Mr. Ingaldson
kemur til baka um mánaðamótin
næstu.
Gustaf A. Williams, póstmeistari
að Heckla, Man., var í borginni
fyrri part vikunnar.
Mr. J. K. Jónasson, Vogar, Man.,
hefir, eftir ósk blaðsins, tekið að sér
að gerast innheimtumaður þess á
Vogar, Siglunesi, og Hayland póst-
húsi. Kaupendur Lögbergs eru
beðnir að taka eftir þessu.
FRA LUNDAR
Það slys vildi hér til, að Jón Hör-
dal, yngri, fótbrotnaði fáum klukku-
stundum eftir lát föður síns. Lækn-
ir setti beinið, sern var illa brotið.
Næsta dag var Jón borinn í sæng
til kirkju, til að vera við útfararat-
höfn föður síns sáluga.
Kaldara veður hefir hjálpað fiski-
mönnum mikið. Fiskur er tregur, en
verð með bezta móti.
ÞAKKARAVARP
Öllum þeim, skyldum og vanda-
lausum, sveitungum okkar og öðr-
um, er sýnt hafa okkur hjálp, samúð
og hluttekningu við fráfall okkar
ástkæra föður og tengdaföður Eiríks
Eiríkssonar á Kárastöðum i Árnes-
bygð, vottum við okkar hjartanleg-
asta þakklæti. Sér í lagi þökkum
við peningagjöf til minningar um
hinn látna, frá lúterska kvenfélag-
inu í Árnesi, er gefin var í stað
blóma.—Þetta, og allan kærleika
auðsýndan, þökkum við af alhug, og
biðjum Guð að launa.
Fyrir hönd systkina og tengda-
fólks,
Mrs. Hólmfríður Jónatansson,
Nes P.O., Man.
Mrs. Louisa Benson er komin til
bæjarins aftur og vonar að kunn-
ingjarnir heimsæki sig.
Mr. J. K. Jónasson, Vogar, P.O.,
Man., kom til borgarinnar fyrir
helgina og hélt heimleiðis á þriðju-
daginn. Hann sagði líðan manna
allgóða í sinni sveit.