Lögberg - 06.12.1934, Side 4
4
LÖGBERÖ. FIMTUDAGINN 6. DESEMBEÍR, 1934.
Högberg
OeflB Ot hvern fimtudag af
T U E COLUMBIA PREB8 LIMITtD
69 5 Sargent Avenue
Winnipeg, Manitoba
Dtan&akrift ritetjðrans.
BDITOR LÖOBERG, 69 5 SARGENT AVE.
WINNIPEG, MAN.
Verð $3 00 um áriS—Borpist fj/rirfram
The "Lögberg” is printed and published by The Colum-
f>ia Press, Limited, 695 Sargent Ave., Wnnipeg, Manitoba
PHOSÍE 86 327
Víðsjá
Þýzku málin komu til alvarlegrar um-
ra>ðu í þjóðþinginu brezka, hérna á dögun-
um; stóð það einkum og sérílagi í sambandi
við atkvæðagreiðslu þá, er fram fer í Saar-
dalnum í næstkomandi janúar-mánuði, og
afleiðingar hennar ef illa skyldi að einhverju
leyli takast til. Maður sá, er háværastur var
í umræðum þessum og mest barst á, var Sir
Edward Grigg; talaði hann þar eins og sá
er vald hefir og staðhæfði meðal annars það,
að sú stefna væri jafnt og þétt að ryðja sér
til rúms með sjálfstjórnarþjóðum Breta, að
þeim bæri að taka aukinn og ákveðnari þátt
heimsfriðinúm til verndar, en fram að þessu
hefði viðgengist, jafnvel þó grípa vrði til
vopna. Það væri ekki með öllu ófróðlegt að
vita við hvaða heimildir Sir Edward Grigg
styðst; að minsta kosti er það víst, að hin
canadiska þjóð hefir enga minstu átyllu gef-
ið, er réttlætt gæti slíka staðhæfingu. Það
er tiltöluiega ekki langt um liðið frá því að
Canada átti í ófriði “til þess að binda enda
á ófrið,” eins og það var kallað; það verður
ekkert áhlaupaverk að leiða þjóðina út í
styrjöld að nýju; að minsta kosti yrði að
færa fyrir því glögg og auðskilin rök.
Trúmenska hinna canadisku þjóðar við
veldis’heildina bresku, verður eigi efuð;
hitt er þó jafnframt víst, að hún lætur
ekki fara með börn sín eins og- skilningslaus
peð, eða ginna þau út í eitt og annað; hún
er sér fyllilega meðvitandi um skvldur sínar
gagnvart heiminum út á við, og hagar sér í
'því tilliti að sinna eigin beztu manna yfir-
sýn, án tillits til þess, hvað hinn og þessi
skraffinnur í brezka þinginp staðhæfir út í
hött.
# # #
“ Islendingar” heitir mikil bók og merki-
leg, er Dr. Guðmundur Finnbogason hefir
samið, en Menningarsjóður gefið út; er hér
um mikilsverða þjóðarlýsingu að ræða, sagða
á máli við allrar alþýðu hæfi. Mun þess ekki
ólíklega. til getið, að með bók þessari hafi
höfundur reist sér einna óbrotlegastan bauta-
stein í bókmentum vorum, þó margt hafi þjóð-
inni áður borist frá penna hans í glæsilegu
formi. En með því að bók þessi verður hér
ekki ritdæmd, skulu einungis dregin fram fá-
ein sýnishorn, ef vakinn yrði með því áhugi
fyrir lestri hennar. Bókasafn Þjóiðræknis-
félagsins á “Islendinga” í fórum sínum og
þar geta félagar þess átt aðgang að bókinni.
1 kafla þeim, er nefnist “Uppruni Is-
lendinga,” kemst höf. meðal annars þannig
að orði:
“Engin þjóð í heimi veit jafnmikið um
ætt sína og uppruna og vér íslendingar.
Engin þjóð á aðra eins bók og Landnámu, er
segir frá öllum helztu mönnum, er land vort
bygðu í öndverðu, hvaðan þeir komu, hverr-
ar ættar þeir voru og hvar þeir settust að.
Engin þjóð á aðrar eins lýsingar á fyrstu for-
eldrum sínum í landinu eins og eru í íslend-
ingasögum, og engin þjóð getur eins alment
rakið ættir nútíðarmanna til frumbyggja
landsins eins og vér. t öllum þessum ættar-
fróðleik eru fólgin afar mikil drög til skiln-
ings á eðli þjóðar vorrar, hvenær sem farið
verður að vinna úr þeim á þann hátt, sem
vera þyrfti. Saga Islendinga er raunar að
mestu órituð enn, og hún verður aldrei rétti-
lega rituð fyrri en hún er samin með það
fvrir augum að sýna, hvern þátt hver ættin
hefir átt í því að gera líf þjóðarinnar það,
sem það varð.
Þetta á jafnt við um líkamleg einkenni
þjóðarinnar sem andleg.”
Til eru menn, er láta sér fátt um ættvísi
finnast og líéja ættartölum eða liðarakning
ætta, við markaskrár; kvistótt hlýtur skiln-
ingstré þeirra að vera, er þannig líta á. Því
hvaðan má góðs vænta ef eigi frá góðum
stofni?
í þessum áminsta kafla vitnar höfundur
í ritgerð Halfdan Bryn's um uppruna ís-
lenzku þjóðarinnar, og fer þar um svofeldum
orðum:
“Brvn telur víst, að nokkur hluti hins
dökka kyns, sem blandast hefir íslendingum,
hafi verið Miðjarðarhafs kynið. Það er dökk-
hært og langhöfða, og þaðan gæti því hin
mikla hauskúpulengd íslendinga verið runn-
in. En Miðjarðarhafs kynið er mjög höfuð-
mjótt, svo að hefði það verið eitt um hituna,
hefðu Islendingar ekki orðið eins breiðhöfða
og þeir eru. Höfubreiddina hyggur Bryn
að þeir hafi fengið frá dinarisk-ermska kyn-
inu, sem er breiðhöfða, en jafnframt mjög
toginleitt, eins og Islendingar. Stutthöfð-
arnir í Vestur-Noregi eru aftur á móti mjög
stuttleitir og breiðleitir, svo að enn ber að
sama brunni, að þeir hafa ekki getað átt mik-
inn þátt í útliti Islendinga. Á hið sama bend-
ir munurinn á legglengd manna á Islandi og
í Vestur-Noregi.
Niðurstaða Bryns verður því sú, að hið
dökka kyn, sem blandast hefir norræna kyn-
inu á Islandi, sé aðallega komið frá Eng-
landi, Skotlandi, Irlandi og Suðureyjum, en
hinn dökki þáttur í þjóðum þessara landa sé
annars vegar Miðjarðarhafskynið, hins vegar
dinarisk-ermska kjmið.”
Nú skal bent á þann flolck bókar þessar-
ar, er nefnist “Frá ýmsum hliðum.” Er þar
að riokkru minst ýmsra. hluta, er í sam-
'bandi stóðu við Tyrkjaránið, svo sem varn-
anna:
“Þær voru eins og áður bænir og kvæði.
Séra Magnús Pétursson á Ilörgslandi orti
t. d. “ Tyrkjasvæfu, ” með hverri sagt er, að í
sjó væri sökt 18, sumir segja 30 Tyrkjaskip-
um, til að inntaka og eyðileggja alt landið,
og flotinn kominn nær en að landsbrun,”
Skáldið segir þar við drottinn:
Reiðstu mér ekki þó málið hér
og mærðin harðna kynni,
Og hefir svo upp raustina:
Svo skal stuðla stilla
og strengja föngin fylla
vondra lund að villa
sem víkur að þvílík dilla,
að orðin skorðuð efli megn,
ekki sé trúarvilla,
Þau óvini kóngs vors gangi í gegn
undir glötunar rötun illa.
Tvrkir eru eftir alt saman fyrst og
fremst “óvinir kóngs vors.” Vernd konungs
hafði ‘reyndar ekki dugað vel, en það veikir
ekkert trúnaðinn við hann. Jafnframt kem-
ur þarna átakanlega fram trúin á mátt hins
dýra ríms:
Svo skal stuðla stilla ....
að orðin skorðuð efli megn.
Næst guði, treystu Islendingar bezt —
ríminu!”
I hugleiðingum sínum um Landið, farast
höf. þannig orð:
“I sveiflunni milli ljóss og mvrkurs, von-
ar og kvíða, er dýrmæt reynsla fólgin. Eðli
hvors tveggja verður tilfinnanlegra sökum
andstæðanna. Ekki er ósennilegt að hugur-
inn verði langsýnni og bjartsýnni við að rýna
eftir “ sólskinsbakkanum hinum megin og
læri betur að lifa í voninni, þar sem hún
tendrast, svo löngu áður en hún rætist, held-
ur en þar sem hún er dægurfluga. Að vísu
verða vonbrigðin sár, þegar loks koma hret
fyrir hlýindin, sem beðið var eftir, en furð-
anlegt er hve fljótt liðnar raunir glevmast
aftur, þegar sólin skín.
Hver fagur dagur verður'því áhrifa-
meiri sem hann er langþreyðari. Þar sem
íslenzka langdegið fær styrk sinn annars veg-
ar af mótsetningunni við skammdegið, hins
vegar af náttúrufegurðinni, sem sólin þá
stundum skín á nótt sem dag, þá eK,skiljan-
legt, að sólin hefir, þrátt fyrir alt, orðið hlut-
skarpari í huga íslendinga, svo að þeim líkar
það vel, er skáldið kallar landið þeirra
“Sóley.”—
Þau fáu sýnishom, er hér 'hafa verið
dregin fram, varpa nokkru Ijósi á þau hugð-
armál, er þessi stórmerka bók Dr. Guðmund-
ar Finnbogasonar fjallar um; hún svarar til
að hollustu hinu vígða vatni þeirra brunna,
som kendir eru við Guðmund biskup hinn
góða.
* * *
Hvat manna es þat? Þannigspyrja vafa-
laust margir, er þeir heyra Luigi Pirandello
nefndan; maður þessi er ítalskur rithöfund-
ur, som aldur sinn hefir að mestu alið á Sikil-
ey; nú í ár voru honum veitt bókmentaverð-
laun Nóbels.
Val þeirra manna, er sæmdir eru á þenn-
an 'hátt, mælist oft og einatt misjafnlega fvr-
ir; kemur þar margt til greina eins og vænta
má; voru meðal annars harla skiftar skoðanir
um það, er Sinclair Levús fékk verðlaun
Nóbels, hvort hann í rauninni ítefði staðið
næst, eða einhver annar átt jafnmikið eða
meira tilkall til þeirra; verður slíkt þó ávalt
álitamál.
Þó úr mörgu sé vitanlega að velja, og
margt beri að taka til greina við úthlutan
Nóbelsverðlauna, þá deilir menn sennilega
ekki mikið á um það, að Luigi Pirandelli sé
verður þeirrar viðurkenningar, er honum nú
hefir verið veitt.
Luigi Pirandello hefir samið fjölda leik-
rita, er sýnd hafa verið vítt um heim; þó ekki
hvað sízt í Bandaríkjunum. 1 leikritum sín-
um kemur hann víða við; er bersögli hans og
kaldhæðni viðbrugðið. Auk leikritanna hefir
hann samið sögur og ljóð;
jrykja kvæði hans einkum fág-
aðri að formi, en þeirra annara
Ijóðskálda, ítalskra, er mest
hefir borið á í seinni tíð. Þessi
nýi Nóbel-þegi, er riú kominn
á efri ár, þó ern sé sem ungur
væri og starfsglaður, að því er
þeim, er mest eiga við hann
mök, segist frá. Luigi Piran-
dello er af mörgum kallaður
Shaw Rómaveldis hins nýja;
sjálfur segist hann þó vera í
töluverðum vafa um hvernig
slíkum samjöfnuði skuli tekið.
Yinjir skáldsins Jiafa spurt
að því hvað hann ætlaði sér að
gera við alla þessa peninga,
$41,318, en slík er upphæð
Néýtelsverðlauua. Svarið var
á þessa leið: “Það gengur
margt í súginn hjá okkur
skáldunum; þau vaða heldur
ekki öll upp fyrir ökla í fjár-
munaleðju þessa fallvalta lífs;
það er ekki oft sem hnífur
minn hefir komið í föitt; eg
ætla að gera mér að öllu leyti
gott af þessum óvænta fjár-
sjóði sjálfur. ”
100 ára afmœli
Ól'nf Bjarnadótúr á Egilsstöffum,
fadd i. npvember 1834.
Þegar Viktoria Englandsdrotn-
ing haföi ráðið ríkjum í nálega 60
ár sagði enskur sagnfræðingur, að
þjóðin gæti ekki hugsað sér Eng-
land án drotningar sinnar. Með
hinu langa starfslífi hafði persóna
hennar ofist inn í líf þjóðarinnar.
Mönnum fanst Viktoría varanleg
eins og sjálf náttúrulögmálin.
Austur á Egilsstöðum á Völlum
er samtíðarkona Viktoríu, en hefir
þó náð ennþá hærra aldri. Það er
Ölöf Bjarnadóttir, ættmóðir Egils-
staðamanna. Hún á aldarafmæli nú
í dag. Hún er ótrúlega hress og
heilsugóð, les án gleraugna, hlustar
á hverja útvarpsmessu, og miklu
meira af þeim andlegu nýjungutn,
sem berast henni loftleiðis. Hún
•kemur úr herbergi sínu og blandar
sér í umræðuefni heimilisfólks og
gesta, með þeirri ró og víðsýni, sem
einkennir þann, sem lifað hefir með
í starfi og þróun heillar aldar, og
það þeirrar athafnamestu, sem
þjóðin hefir lifað.
Ólöf á Egilsstöðum getur nú lit-
ið yfir hinn langa dag eins og stór-
kostlega kvikmyndasýningu. Hún
horfir til baka á þau ár, þegar hún
byrjaði að ganga um baðstofuna
heima hjá foreldrum sínum, sömu
árin og Jónas- HaJIgrímsson orti
Gunnarshólma og Fjallið,i Skjald-
breiður. Hún man æskuár sín þegl
ar hún var í blóma lífsins og frétti
frá Alþingi, að Jón Sigurðsson
reis upp gegn erlendri kúguri og
sagði hin sögufrægu orð: “Vér
mótmælum allir.” Hún man glögt
þjóðhátíðina 1874 og frelsistöku
þjóðarinnar, þegar hún var orðin
ekkja fyrir 4 árum og ól ein upp
nokkur lítil börn. Hún lifði litlu
síðar tíu ára harðindi og hallæri.
Hún sér fjórða hluta íslendinga
verða að yfirgefa ættland sitt og
taka bólfestu í fjarlægri heimsálfu.
Hún sér Norðmenn nema land í
annað sirfri á Austfjörðum og
hjálpa íslendingum til að reisa hina
nýju kaupstaði við hinar góðu hafn-
ir austanlasds. Hún sér útflytj-
endastrauminn hætta og bæi og
kauptún rísa alt í kring um land við
auðug fiskimið. Hún sér alla þróun
útvegs og landbúnaðar: Litlu ára-
bátana, skúturnar, togarana, vélbát-
ana og línuskipin. Hún man gömlu,
ógirtu og þýfðu túnin og lágreistu
bæina. Hún hefir séð ljáina, sem
hitaðir voru í kolaeldi. Torfljáina,
undirristuspaða og plóga frá Ólafs-
dal, og síðar dráttarvélar og önnur
hraðvirk jarðyrkjutæki. Hún man
þá tíð, þegar engin brú eða vegur
var til á landinu og engin islenzk
flutningaskip, og enginn skóli nema
latínuskólinn á Bessastöðum. Hún
var orðin miðaldra kona, þegar hinn
fyrsti akfæri vegur er gerður frá
Reykjavík og inn að Elliðaám.
Hún sér vegakerfi spent um alt
landið og bifreið flytja dótturson
hennar á fjórum dögum nú í haust
frá Reyðarfirði til Reykjavíkur í
, DODDS
KIDNEY
i//
0 ý/
PILLS
Sl ^VVsSN'oisí^
l-L kidney
1 meir en þriðjung aldar hafa Dodd’s
Kidney Pills veriS viðurkendar rétta
meðalið við bakverk, gigt, þvagteppu
og mörgum öðrum sjúkdómum. Fást hjá
öllum lyfsölum, fyrir 50c askjan, eða
sex öskjur fyrir $2.50, eða beint frá The
Dodd’s Medicine Co., Ltd.; Toronto, ef
borgun fylgir.
fyrsta sinn er bifreið fór þá leið.
Þegar Ólöf á Egilsstöðum horfir
nú i dag yfir hina löngu lífsbraut,
sér hún óendanlega miklu meira en
það sem hér er talið, því að hún
hefir lifað einmitt hinn frjóa og
merkilega vöku-*og starfstíma ís-
lendinga, öldina þegar þjóðin hefir
risið á legg eftir aldalanga kúgun
og vanrækslu, og byrjað nýtt og
þroskaríkt líf.
Það er engin tilviljun, að Ólöf á
Egilsstöðum les enn með sérstakri
ánægju æfisögur Skúla Magnússon-
ar og Jóns Sigurðssonar. Hún hef-
ir verið andlega skyld þeim og raun-
veruleg samtíðarkona. Þess vegna
hafa hennar draumar allir gengið í
þá átt, að óska heimilinu í sveitinni
og þjóðinni meira frelsis, meira
manndóms, meiri samúðar og dreng-
skapar í öllum skiftum.
Tvent hefir einkent hina löngu
æfisögu Ólafar Bjarnadóttur, hinn
mikli kjarkur og hin mikla samúð.
Hún hefir hlotið það hlutskifti, sem
gerir konur miklar og áhrifaríkar.
Hún hefir þurft að sigra marghátt-
aða mótstöðu i lifsbaráttunni. Hún
hefir gengið hin þungu spor ekkj-
unnar, sem verður að vera forsjón
barna og barnabarná. Hóglifi og
svokölluð velsæld þurkar sál kon-
unnar, gerir hana visna eins og rót-
arslitna jurt. Ölöf Bjarnadóttir
fékk gjöf hins margháttaða mót-
gangs. Lífsreynslan varð henni
skóli, sem efldi í einu þrek hennar
og mildi. Hún bugaðist aldrei fyrir
mótblæstri, en jafnframt þrekinu til
að sigra, hafði hún mildi þess
sterka. Hún var með nokkrum
hætti vinur og verndari allra t
stærsta heimili fjórðungsins. Til
hennar leituðu allir trausts og halds,
börn, barnabörn og þeirra börn, og
fyrir hina mörgu vandalausu ungl-
inga, sem fæddust upp á Egilsstöð-
um, var hún líka móðir og velgerða-
kona. Hún þoldi ekki að farið væri
harkalega með nokkra skepnu, og
hélt því afdráttarlaust fram, að þeir
sem létu svipuna ganga á hestinum
sínum yrðu síðar að svara til saka
fyrir gerðir sínar. Þegar bifreiðar
voru nýkomnar til Austurlands, sá
Ólöf af hyggjuviti sínu, það sem
duldist mörgum karlmönnum ár-
um saman, að billinn þarf sömu um-
hyggju og aðbúðar við eins og hest-
urinn. Hin langa lífsreynsla og
hin langa sjálfsfórn hafði kent
henni, að skilja fljótt hin dýpri rök,
sem oft dyljast lengi vel vitibornum
sérhyggj umönnum.
Ólöf Bjarnadóttir horfir nú til
baka yfir hina miklu kvikmynd, er
líður fyrir augu hennar, sögu heill-
ar aldar. Ef til vill sér hún að lok-
um eldlegan vagn, sem líður mjúk-
lega yfir tjaldið. Hún finnur að
henni er þar boðið til sætis og að
vagninn ber hana svjflétt áfram,
inn í annað land—til þeirra, sem
hún óx upp með, starfaði með,
þjáðist með og gladdist með. En á
Héraði og miklu víðar geymist
minningin um hina sterku konu,
sem lifði meir en heila öld, og sem
með starfi sínu og lífi sannaði lífs-
mátt þeirrar þjóðar, sem vaknaði
eftir aldalanga hvild. J. J.
—N. dagbl.
Drykkjumannahœli brennur.
Islo 16. nóv.
Drykkjumannahælið í Örje í
Noregi brann til kaldra kola í nótt.
í hælinu voru 44 sjúklingar, sem
allir björguðust.
Eftir brúðkaupiff. 1 Frúin (í bóka.
búð): Get eg ekki fengið skifti á
þessari bréfabók fyrir elskendur og
matreiðslubók.
Frá Islandi
Ný silungaklakstöð.
Meðal nýfrra silungaklakstöðva,
sem bygðar hafa verið á þessu ári,
er klakstöðin við Hoffellsá í Horna-
firði — en annars hafði verið gert
ráð fyrir, að hún yrði bygð við
Þveit. Stöð þessi er að öllu leyti
gerð úr steinsteypu, og einnig
skiftistokkar og siunarþró.
Klakstöðin hefir kostað um 2,000
krónur, og hafa Mýrarsveit, Nesja-
sveit og Lón lagt fram nokkuð af
fénu, en annars hafa Búnaðarfélag
Islands og Búnaðarsamband Aust-
urlands tekið talsverðan þátt í kostn-
aðinum.
Umsjónarmaður stöðvarinnar er
Jörgen Jónsson á Hoffelli.
Cr Borgarnesi.
Úr Borgarnesi simar fréttaritari
útvarpsins þar, að þar sé nú lokið
slátrunartíð,1 og hefir alls verið
slátrað um 35,000 fjár, en það er
heldur færra en í fyrra. Auk þess
hefir verið slátrað f jölda nautgripa.
Þá segir fréttaritarinn, að nýlega
sé tekinn til starfa nýr unglingaskóli
í Borgarnesi. Aðalkennari við
skólann er séra Björn Magnússon á
Borg. Nemendur eru um 20.
Vísir 18. nóv.
Frá tsafirði
ísafirði 16. nóv.
Hér á ísafirði fór fram skrán-
ing atvinnulausra manna í byrjun
þessa mánaðar. Skráðir voru 50
menn, en álitið að talsvért fleiri séu
atvinnulausir. t Bolungavík fór
fram skráning um líkt leyti. Þar
voru skrásettir 31.
í Seljalandsbúi ísafjarðarkaup-
staðar eru nú 34 kýr og 200 hænsni.
Heyafli var 700 hestar þurheys og
300 hestar votheys. Nýreist er þar
íbúðarhús handa bústjóranum.
Aflabrögð hafa verið treg hér á
ísafirði undanfarið og gæftalítið.
Hávarður ísfirSingur er nú að
byrja að kaupa fisk til útflutnings
á vegum Landsbankans.
Edinborgareignin, sem togarafé-
lagið átti hér á ísafirði, var seld
við opinbert uppboð 3. þ. m. Út-
vegsbankinn keypti hana fyrir 126
þús. krónur.
Konur hér á ísafirði hafa sett á
stofn mötuneyti fyrir fátæklinga.
Mötuneytið er í sambandi við Elli-
heimilið.
Frá Osló
Ríkið tekur á morgun við Aale-
stad, sem verður varðveittur til
minningar um Björnson.
JÓHANNES LOPTSON
Þann 21. nóvember síðastliðinn,
lézt að Amaranth, Man., eftir stutta
legu, Jóhannes Loptson, 38 ára að
aldri; fæddur þann ig. dag október-
mánaðar árið 1896; var hann ein-
hleypur maður, og bjó lengst með
móður sinni; er hún látin fyrir f jór-
um árum.
Jóhannes heitinn stundaði mest-
megnis fiskiveiðar; var hann hinn
vinsælasti maður. Hann lætur eftir
sig tvær systur, Mrs. Joe Ander-
son við Amaranth, Mrs. Júlíus
Kjartanson í Winnipeg, auk eins
bróður, Thor Loptson, að Ama-
ranth. — Jarðarförin fór fram í
Beckville.