Lögberg - 06.12.1934, Page 5
LÖGBERÖ, FIMTUDAGINN 6. DESEMBEE, 1934.
5
Royal Bank News
Montreal, November 30th. After
26 years in office, Sir Herbert S.
Holt has relinquished the presidency
of The Royal Bank of Canada and
now becomes Chairman of the
Executive Committee. He is suc-
ceeded by Morris W. Wilson as
President and Managing Director,
and Sydney G. Dobson follows Mr.
Wilson as General Manager.
These changes were announced
at the end of the Bank’s íiscal year
to-day, following a regular meeting
of the Board. They are changes
which constitute not only an im-
portant milestone in the 65 years of
Royal Bank history, but also an
er-ent of national significance. Sir
Herbert Holt’s retirement from the
presidency marks the withdrawal
from active duty of an outstanding
Canadian, under whose leadership
the Royal Bank has developed from
a relatively small organization to
its present status as one of the
greatest financial institutions of the
world. Furthermore, thé appoint-
ment of Morris W. Wilson as
President marks the first occasion
this office has been attained by a
man from within the ranks of the
bank.
In assuming the newly created
positio'n of Chairman of the Board,
Sir Herbert Holt will continue a
connection with the Royal Bank
which began nearly thirty years ago
with his election as a Director in
Fébruary 1905. He was appointed
Vice-President of the bank two
years later, and became its Presi-
dent on November 16, 1908.
The Royal Bank has been in ex-
istence for sixty-five years. It was
incorporated in Halifax in 1869 as
The Merchants Bank of Halifax,
its present name being adopted in
1901 and its Head Office removed
from Halifax to Montreal in 1907,
the year in which Sir Herbert be-
came Vice-President.
When he was appointed Presi-
dent in the following year, the
Royal Bank was recognized as be-
ing soundly established upon long
adherence to the conservative prin-
ciples of its inception. It was not,
however, outstanding in. the extent
of its activities, and it was under Sir
Herbert’s direction that the bank
entered a new period of steady
growth which gradually made it
one of the leading banks of the
world, international in scope and
influence. In 1908, when Sir Her-
bert became President, the Royal
Bank had 107 branch offices; to-
day it has nearly 800 branches, serv-
ing all parts of Canada and located
in twenty foreign countries. Its.
assets during the same period have
íncreased from less than $50,000,-
000 to more than $725,000,000, and
the number of its shareholders from
800 to a present total of 12,000.
Sir Herbert’s policy has been one
of steady and constant enterprise,
consistent with sound banking
practices, and this has included an
insistence upon development of an
active and highly trained personnel.
He has always emphasized the im-
portance of providing opportunity
for new ability, and the Royal
Bank has become notable for the
development of young men such as
C. S. Tompkins, Inspector General
of Banks, a position created by the
Federal Government in 1924, and
Graham F. Towers, the recently
appointed Governor of the new
Central Bank.
It is understood that Sir PTer-
bert’s retirement from the presi-
dency now, at the age of seventy-
eight, is dtte partly to his desire to
harve more leisure for periods
abroad, but principally to his policy
of gradually transferring his direct
responsibil'ities to younger shoul-
ders.
Morris W. Wilson, the new
President and Managing Director
of the Royal Bank, was formerly
Vice-President and General Man-
ager. He is fifty-one years old, the
age at which Sir Herbert became
President. He was born in Lunen-
burg, Nova Scotia, where he enter-
ed the service of the bank. His en-
tire business career has been with
the bank, and the thirty-seven years
since he began have been marked
by a series of promotions through
which he has acquired experience
in every phase of banking activity.
In 1909, when he was twenty-six,
Mr. Wilson was moved from the
Maritimes to Vancouver, where he
became Manager of the main office
two years later. In 1916 he was
transferred to Head Office in
Montreal as Chief Inspector. The
following year he became Super-
intendent of Branches, and in 1922
was appointed Senior Assistant
General Manager. He was pro-
moted to General Manager of the
bank in July 1929, and in 1931 be-
came Vice-President as well. Each
of his predecessors as President has
been, like Sir Herbert Holt, a figure
of prominence in industry or com-
merce. He is thys the first profes-
sional banker to become President
of the bank.
Sydney G. Dobson, who has been
Sen’ior Assistant General Manager
and who now succeeds Mr. Wilson
as General Manager, has had a
similar career. Like »Mr. Wilson
he was born in the Maritimes, at
Sydney, Cape Breton, and is fifty-
one years old. He started with the
bank as a junior clerk in his home
town thirty-four years ago, be-
coming Accountant at Winnipeg in
1906. After serving in various
other positions, he was appointed
Manager of Sydney Branch in 1910
at the age of 27. Five years later
he became Assistant Manager in
Montreal, and in 1916 he was trans-
ferred to Vancouver to succeed Mr.
Wilson as Manager. In 1918 he
became Acting Supervisor of Mid-
dle West Branches, with headquar-
ters at Winnipeg, and in 1919 was
promoted to General Inspector at
Head Office. He became Assistant
General Manager three years later,
and has occupied this position for
the last twelve years.
Californíu-tíðindi
Los Angeles, 18. nóv. '34.
Herra ritstjóri Lögbergs:—
Þegar þetta er skrifað er hér ný-
afstaðin stórrigning. Að sönnu vor-
um við hér búin að fá góða skvettu
fyrir rúmum mánuði síðan, svo nú
brosa við auga grænar grundir, sem
áður í hinum langvarandi þurkum
í sutnar voru gráar og dauðalegar.
Að vísu er þetta ekki annað en
vanalegar árstíðabreytingar á þess-
um slóðum, er fara fram árlega,
aðeins með mismunandi regnfalli.
Og útlit hér er með bezta móti fyr-
ir góða vetraruppskeru.
Nú er alt fallið hér í dúnalogn,
að lokinni þeirri hörðustu kosn-
ingabaráttu, er nokkru sinni hefir
háð verið í Califorftíu (og þó
viðar væri leitað). Undarlega kom
það fyrir sjónir margra að Upton
Sinclair skyldi tapa í xríkisstjóra-
framboði sínu með átta hundruð
þúsund atkvæði á móti keppinaut
sínum, F. Merriam, er hafði vitan-
lega engin nýmæli til hjálpar
þurfandi, atvinnulausu fólki, er
telst að vera, ýkjulaust, miljón og
hárlf, um þessar mundir, ef taka má
mark á því er blöðin staðhæfa, að
það séu fjögur hundruð þúsund
fjölskyldur, er fái styrk af Los
Angeles County. Samt sem áður
virðist sem fólkið í meirihluta hafi
ekki viljað stuðla að því, að fátækt
yrði lögð á hillu í tilraunaskyni um
hagfeldara ástand í framtíðinni.
Það er vitaskuld ekki vert fyrir mig
að fjölyrða mikið um þetta atriði
í þessum fáu línum, er eiga að skoð-
ast að mestu leyti eins og smáfrétta
samtíningur. Hinsvegar virðist eins
og sama sagan endurtaki sig i þess-
ari margtjáðu kosningu Sinclairs. að
gæfan Ieggist krept í kút fyrir þá
menn, er reyna til að byggja nýjar
vörður meðfram þjóðvegum fólks-
ins. En má ekki spyrja. Hvar myndi
siðmenning finnast i dag hefði eng-
inn leitast við að laga og leiðbeina
á alfaraleiðum mannlífsins, til bæt-
andi hagsmuna fyrir alla? Upton
Sinclair er nú enn að ljúka við nýja
bók. í henni verður hans eigin saga
um það, af hvaða ástæðum hann
tapaði ríkisstjóra kosningu sinni
hinn 6. nóvember s. 1., ásamt ýmsu
fleiru.
Undanfarandi nokkrar vikur hafa
hér staðið yfir langar og ítarlegar
rannsóknir um f járdrátt og allskon-
ar annað óleyfilegt i framkvæmdum.
borgarstjórnarinnar í Los Angeles
á síðastliðnum nokkrum árum, og
eftir því sem við heyrum í útvarp-
inu daglega virðist koma þar fram
hvert hneykslið af öðru, og þau svo
alvarleg að nú lítur helzt út fyrir
að yfir-lagavörðurinn sjálfur verði
rekinn frá völdum, og ef til vill
sendur í varðhald fyrir óákveðinn
tima.
Um atvinnumál og viðskiftalíf
í heild fer hér æfinlega tvennum
sögum. Sumir segja að kreppan sé
að þverra. Aðrir segja hana enn
standa í stað, ef ekki lakari en að
undanförnu.
Nú að endingu þessa þessa lítijs-
verða frétta samtínings langar mig
til að minnast ofurlítið á fólk, er
hér dvelur, af islenzkum uppruna.
Það er að sönnu ekki hægt að segja
mikið og margt um þetta fólk. Þó
undarlegt virðist vera þá er í raun
og veru mjög lítill samgangur milli
þess og þar af leiðandi lítil kynni.
Sumar af þessum persónum sjást
ekki svo árum skiftir, enda þótt
það kannist eitthvað lítilsháttar við
hvað annað, frá fornu fari. Margt
af þessu fólki er komiö svo langt
inn í amerískt þjóðlíf að það er hætt
að hugsa um nokkuð sem er í eðli
sínu íslenzkt. Sumt af þessu yngra
fólki er hér um ræðir er fætt og
uppalið hér í Vesturálfu, og er því
varla að búast við að það fólk sinni
íslenzkri þjóðrækni. Eigi að síður
eru hér góðar undantekningar í báð-
um þessum atriðum. Sumt af þessu
fólki hefir góð og varanleg kynni
hvað af öðru, og þekki eg hér vel
að minsta kosti fern hjón, sem eru
mjög hlynt íslenzkum félagsskapar-
máium, ef mögulegt væri að halda
hér uppi einhverju þessleiðis. Hjá
þessum hjónum i heimahúsum
þeirra eru því haldnar þær fáu sam-
komur er haldnar eru; auðvitað með
löngum millibilum. Hinn 14. þ. m'.
var hér haldin góð spilasamkoma
hjá Thorgrímssons hjónum, er búa
að 823 Hobert Blvd. Þessi hjón
hafa stórt hús, og eru þau mjög
gestrisin og góð heim að sækja, og
hafa því nokkrum sinum áður boðið
hús sitt og heimili til skemtunar ís-
lenzku fólki. Á samkomu þessari
var spilað á mörgum borðum,
trompvist, og verðlaun gefin fyrir
nokkur hæstu mörk. Svo var dans-
að og sungið, og fleiri skemtanir um
hönd hafðar. Auk þess hélt Mr.
Pétur Félsted þar ofurlitla tölu, og
mátti draga það af orðum hans að
nú framvegis myndi fara að lifna
yfir samkvænýslífi meðal íslend-
inga á þessum stöðvum í Californíu.
Að þessu var gerður hinn bezti róm-
ur. Þarna hitti eg gamla og mynd-
arlega konu, er sagðist vera 83 ára,
samt mjög ern í öllu háttarlagi. Mig
minnir að hún nefndi sig Einarsson.
Sagðist einnig vera ekkja eftir tvo
eða þrjá menn sína. Hún sagðist
vera búin að vera hér vestan hafs
yfir 40 ár; var frá höfuðstaðnum,
Reykjavík, og hafði verið kona Jóns
heitins Eastmans þá í Hlíðarhúsum
í Reykjavík. Annað var það að
hún sagðist vera búin að vera 9 ár
í Californíu, og aldrei fyr en þetta
komið til íslendinga. Og svona líkt
þessu mun vera finnanlegt í fleiri
tilfellum. Eg gat sem sagt ekki tal-
að nærri nóg við þessa konu, sjálf-
um mér til fróðleiks, vegna þess að
hún gaf sig ekki á tal við
mig fyr en eftir að dans var byrj-
aður með þeim hávaða, er honum
fylgir vanalegast, og má þvi vera að
mér hafi eitthvað misheyrst í sam-
tali okkar.
Næst vil eg snúa máli mínu að
annari konu, er viðstödd var við
samkomu þessa, og sem eg hefi þekt
vel síðan eg kom til Californíu fyrir
12 árum síðan. Þe^si kona er Mrs.
G. Guðmundsson, ekkja eftir Guðm.
Guðmundsson er lengi bjó í Duluth,
Minnesota. Hún er og föðursystir
próf. Sigurðar Nordal. Sigriður
var hennar ungfrúar nafn og er hún
vanalegast nefnd því nafni af kunn-
ingjum sinum, og eru þeir margir,
því þetta hefir verið mjög vel látin
kona alla æfi. Hún er fædd 1841,
og er nú því 93 ára. Hún er enn
létt í spori, hefir lesið með berum
augum alt fram að þessu. Hún er
enn greindarleg í viðræðum, er
hneigð fyrir spil, enda fara fæstir
mikið fram fyrir hana í þeirri grein.
Á samkomu þessari var ýkjulaust
milli 60 og 70 manns, og hefði orð-
ið talsvert fleira, ef ekki hefði verið
stórrigning þetta áminsta kvöld.
Rausnarlegar veitingar voru fram
reiddar á samkomunni, og mun
henni ekki hafa slitið fyr en um kl. 4
að morgni.
Virðingarfylst,
Erl. Johnson.
Þjóðskipulag og þróun
Eftir Jón Árnason.
(Framh.)
Það er fyrst og fremst of lítiif
af viðfangsefnum, of lítil líkamleg
vínna, of íburðarmikil húsakynni,
ofnautn í mat og drykk og um of
fylgt óeðlilegri tízku í klæðaburði.
Þetta verður alt að lagfæra, ef vel
á að vera, og skapa heilbrigt og
einfalt líf, þar sem áður var óheil-
brigt og margbrotið.
En þjóðfélagið stendur nálega
máttvana gagnvart þessari hlið
málsins, vegna þess að þarna er get-
an til þess að gera það sem mönn-
um sýnist og án tillits til nokkurs
annars. Einmitt þeim, sem mest
hafa ráðin, er örðugast að hjálpa í
þessu efni. Hjá þeim verður fyrir-
staða, og þeir koma í veg fyrir þær
nauðsynlegu umbætur, sem gera
þarf til þess að fullnægja kynbóta-
málinu. En með því að reynslan
er jafnan bezti og strangasti kenn-
arinn, þá mun hún smátt og smátt
opna augu þeirra fyrir þvi, sem
rétt er og bezt, hagkvæmast og ó-
dýrast í lífsframdrætti manna.
“Einfalt líf,” sem byggist á þeim
grundvelli, sem að framan getur,
á að vera kjörorð allra.
Frelsi.
Mjög margvislegan skilning
leggja menn í hugtakið frelsi. Fer
það eftir því á hvaða hugrænu og
siðrænu þroskastigi menn standa,
þvi venjulegast miða menn frelsið
við fullnægingu einhverra langana
eða girnda. í aðalatriðum má
segja, að frelsið sé þrenskonar:
Athafnafrelsi, tilfinningafrelsi eða
kenda og hugsana eða hugrænt
frelsi.
í öllum siðuðum þjóðfélögum er
frelsið að meira eða minna leyti
takmarkað annara vegna. Þó hefir
það lengi verið aðallega athafna-
frelsið, sem hefir verið takmörkum
háð. Og það er í rauryog veru sú
eina tegund fr^lsis, sem þjóðirnar
geta takmarkað og verða að gera
það. Tilfinningafrelsið og hið hug-
ræna hafa menn reynt að þvinga og
ná tökum á á ýmsan hátt, bæði fyr
og síöar, en æfinlega illa gefist. Hef-
ur slikri þyingun verið beitt bæði í
trúmálum og stjórnmálum. Má
finna þessa mörg dæmi og sum alveg
ný.
Athafnir manna eiga heima i
þessum heimi og lúta lögmálum
hans. takmörkunum og kringum-
stæðum, og því má setja mönnurn
takmarkanir með lögum. En til-
finningar manna og andlegt lif er
eigi háð lögniálum þessa heims, og
það er því barnaskapur að ætla sér
að setja þeim takmörk, sem í raun
og veru ná aldrei til þeirra.
En mönnunum hættir mjög við að
hafa endaskifti á hlutunum og
heimta ótakmarkað athafnafrelsi sér
til handa, en reyna um leið að tak-
marka og kúga tilfinningar annara
og hugsanir. En ótakmarkað at-
hafnafrelsi fyrir einn er óhjá-
kvæmileg kúgun annars, og þess-
vegna eiga menn alt af í deilum
sín ,á milli út af ímynduðum rétti,
sem oft og tíðum var að eins hug-
árburður. Takmörkun athafna-
frelsis er nauðsynleg og óhjákvæmi-
leg, þegar menn flytjast af stigi
villimanns og hefja starf sitt í
1 (Framh. á bls. 7)
Beat in llluid
CLEANLINESS OF PLANT AND PRODUCT
Drewry’s
Standard lAGER
E5TABLISHED IÖ77 PHONE 57 2QI
. tí?
Hafið í huga hreinindi ölsins og ölgerðarinnar
EURÐUFLUGVÉL
og loftskeytastöðvar, sem enginn
veit deili á.
Oslo 17. nóv.
Frá Stokkhólmi er símaö, að á
mörgum stöðum í Svíþjóð hafi þess
orðið vart, að send voru loftskeyti
frá tveimur stöðvum, sem menn
vita ekki deili á og engar upplýs-
ingar er að hafa um í alþjóðaskrám
um loftskeytastöðvar Skeytasend-
ingar þessara tveggja stöðva, sem
báðar eru aflmiklar, stóðu yfir
klukkustunduin saman. Sérfræðing-
ar ætla, að þessar dularfullu stöðv-
ar séu einhversstaðar á meginlandi
álfunnar norðarlega. Sennilega inni-
halda skeytin leiðFeiningar fyrir
flugmenn. — Samkvæmt Dagbladet
koma sanrskonar fregnir frá Berle-
vaag, þar sem sést hefir til hinnar
dularfullu flugvélar, sem áður hefir
vbrið getið.—Norska hermálastjórn-
in fékk í dag tilkynningu um, að
Röst loftskeytastöðin hefði í gær
kl. 19.00—19.30 orðið þess vör, að
merkjaskeyti hefði verið send frá
þessum stöðvum, sennilega til flug-
véla. Loftskeytastöðin hefir sent
hermálastjórninni “code”-skeyti um
merkin.
Vísir 18. nóv.
MEIRI ÞRÓTTUR FYRIR
VEIKLAÐA MENN OG KONUR
NUGA-TONE hefir inni aí5 halda
mikiti af Zinc Phosphide, sem veitir
brennisteinsefninu inn í blóðstrauminn
og byggir upp sterkar taugar. L.œkn-
inga brennisteinn er af læknum talinn
nauðsynlegur ti! þess að styrkja og
lækna taugakerfið. Hann er afbragð við
taugaóstyrlc og slappleika.
petta meðal hefir einnig mikið af
járni, sem fer til þess að byggja upp
blóðið; gera það rautt og kraftmikið,
svo það styrki vöðvana og lfffærin og
færi roða í föl andlit. Auk þess eru sex
önnur meðala-efni í NUGA-TONE.
Byrjaðu að taka NUGA-TONE í dag,
og taktu eftir því hve fljótt þú hressist.
Selt í öllum lyfjabúðum og úbyrgst af
þeim. Aðeins einn dollar fyrir mánað-
arforða.
Við hægðaleysi notið UGA-SOU, bezta
lyfið, 50c.
Harald Schuts
þýzkur dócent er víðfrægur fyr-
ir málakunnáttu sína. Það er mælt
að hann skilji 200 tungumál og hon-
um berast daglega bréf á ótal málum
úr öllum áttum.
Svifflug
Þýzki flugmaðurinn Hirth, sem
hingað kom hérna um árið í lítilli
flugvél, og ætlaði aö fljúga vestur
um haf, en var bannað það, setti
met í svifflugi í sumar. Hann flaug
350 km. í einni lotu.
INNKÖLLUNAR-MENN LÖGBERGS
Arras, B. C.............................M. Elíason
Amaranth, Man....................B. G. Kjartanson
Akra, N. Dakota.................B. S. Thorvardson
Árborg, Man....................Tryggvi Ingjaldson
Árnes, Man.........................F. Finnbogason
Baldur, Man..........................O. Anderson
Bantry, N. Dakota..............Einar J. Breiðfjörð
Bellingham, Wash........v .... Thorgeir Símonarson
Belmont, Man....................................O. Anderson
Blaine, Wash...................Thorgeir Símonarson
Bredenbury, Sask................................S. Loptson
Brown, Man............................J. S. Gillis
Cavalier, N. Dakata.............B. S. Thorvardson
Churchbridge, Sask..............................S. Loptson
Cypress River, Man..............................O. Anderson
Dafoe, Sask ...„..................J. G. Stephanson
Darwin, P.O., Man...................J. K. Jonasson
Edinburg, N. Dakota............Jónas S. Bergmann
Elfros, Sask................Goodmundson, Mrs. J. Hi
Garðar, N. Dakota..............Jónas S. Bergmann
Gerald, Sask........................... C. Paulson
Geysir, Man.....................Tryggvi Ingjaldsson
Gimli, Man...........................F. O. Lyngdal
Glenboro, Man...................................O. Anderson
Hallson, N. Dakota..............S. J. Hallgrímsson
Hayland, P.O., Man...................J. K. Jonasson
Hecla, Man......................Gunnar Tómasson
Hensel, N. Dakota....................John Norman
Hnausa, Man.....................................F. Finnbogason
Ivanhoe, Minn............................B. Jones
Kandahar, Sask.................. J. G. Stephanson
Langruth, Man.....................John Valdimarson
Leslie, Sask...................................Jón ólafson
Lundar, Man.........................Jón Plalldórsson
Markerville, Alta...............................O. Sigurdson
Minneota, Minn............................B. fones
Mountain, N. Dak................S. J. Hallgrimson
Mozart, Sask.........................Jens F.liason
Oak Point, Man.......................A. J. Skagfeld
Oakview, Man...................... Búi Thorlacius
Otto, Man...........................Jón Halldórsson
Point Roberts, Wash...................S. J. Mýrdal
Red Deer, Alta.......................O. Sigurdson
Reykjavík, Man.......................Árni Paulson
Riverton, Man. .................Björn Hjörleifsson
Seattle, Wash.........................J. J. Middal
Selkirk, Man................................... W. Nordal
Siglunes, P.O., Man.................J. K. Jonasson
Silver Bay, Man.................... Búi Thorlacius
Svold, N. Dakota................B. S. Thorvardson
Swan River, Man........................A. J. Vopni
Tantallon, Sask.................... J. Kr. Johnson
Upham, N. Dakota...............Einar J. Rreiðfjörð
Vancouver, B.C................... Mrs. A. Harvey
Víðir, Man.. ................Tryggvi Tngjaldsson
Vogar, Man...........................J. K. Jonasson
Westbourne, Man................................Jón Valdimarsson
Winnipegosis, Man.........................Finnbogi Hjálmarsson
Wynyard, Sask.....................J. G. Stephanson