Lögberg - 06.12.1934, Blaðsíða 8
8
LÖtíBERG, FIMTUDAGINN 6. DESEMBER, 1934.
——
..... ....—----------------.+
Ur bœnum og grendinni
—----------------—— - - - .—.——«•
Messuboð
FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA
t
GuSsþjónustur í Fyrstu lútersku
kirkju næsta sunnudag þ. g. des.,
verða með venjulegum hætti: Ensk
messa kl. n að morgni og íslenzk
messa kl. 7 að kvöldi.
Sunnudagsskóli kl. 12.15.
Sunnudaginn 9. desember verður
sunnudagsskóli á Mountain kl. 1.30,
og á eftir sunnudagsskóla, kl. 3 e.
h., verður guðsþjónusta flutt þar i
kirkjunni.
Mannalát
Sunnudaginn 16. desember verð-
ur guðsþjónusta á Garðar kl. 2 e. h.
Messur í Gimli prestakalli eru á-
ætlaðar þannig, næsta sunnudag, þ.
9. des., að morgunmessa verður á
Betel á venjulegum tíma, síðdegis-
messa kj. 2 í kirkju VíSinessafn-
aðar og kvöldmessa kl. 7 í kirkjunni
á Gimli.—Til þess er mælst að fólk
fjölmenni við kirkju.
Soffonias Guðmundsson, ein-
hleypur maður, sjötugur að aldri,
fæddur 18. ágúst 1864 í Skoruvík á
Langanesi á Jslandi, er hafði
ávalt unnið að smíðum, átti heimili
síðustu 25 árin að Garðar og var til
heimilis hjá Mr. og Mrs. J. G.
Davidson, andaðist 20. nóv. á heim-
ili systursonar sins, Mr. A. A. Guð-
mundsson í grend við Garðar. Hann
var jarðsunginn af séra H. Sigmar
frá því heimili og Garðar kirkju 24.
nóv.
Daði Johnson andaðist í Pembina
22. nóv. Hann var 67 ára að aldri,
fæddur 15. ág. 1867 á íslandi. Kom
mjög snemma með foreldrum sín-
um frá íslandi og bjó fyrst í Eyford
bygðinni. Hann var jarðaður frá
Eyford kirkju 24. október af séra
H. Sigmar. Hann eftirlætur seinni
konu sína Björgu. Hafa þau hjón
búið síðustu árin í Pembina og dvel-
ur ekkja hans þar framvegis.
G. T. spil og dans, verður hald-
ið á föstudaginn í þessari viku og
þriðjudaginn i næstu viku í I.O.G.T.
húsinu á Sargent Ave. Byrjar
stundvíslega kl. 8.30 að kvöldinu.
1. verðlaun $15.00 og átta verð-
laun veitt, þar að auki. Ágætir
hljóðfæraflokkar leika fyrir dans-
inum.—Lofthreinsunartæki af allra
nýjustu gerð eru i byggingunni. —
Allir velkomnir.
Heklufundur í kvöld (fimtudag).
Mr. Th. Thorsteinsson, hinn ný-
kjörni bæjarfulltrúi í Selkirk, var
staddur í borginni á mánudaginn.
Mr. Finnur Stefánsson er fluttur
frá 544 Toronto Street og á nú
heima í Ste. 21 Ruth Apartments á
Maryland Street.
Mr. Hjörtur Bergstcinsson frá
Alamedá) Sask., var staddur í borg-
inni um miðja fyrri viku.
Mr. Jón Benediktsson frá Lund-
ar, var í borginni seinnipart fyrri
viku.
Mr. G. J. Stephansson frá Kanda-
har, Sask., var staddur í borginni
fyrri part vikunnar.
Lögberg er beðið að geta þess, að
konur í lúterska kvenfélaginu á
Gimli eru í undirbúningi með að
hafa “Silver Tea” í húsi Mrs. J.
Bjarnason,, 5th Ave., South, næsta
laugardag, þ. 8. des., kl. 2.30 til kl.
6 e. h., og frá kl. 8 til 10 að kvöldi.
Vonast konurnar eftir, að margir
verði til að heimsækja þær og hafa
glaða stund við kaffiborðin á laug-
ardaginn kemur.
Mr. Ásmundur Johnson frá Sin-
clair, Man., er nýkominn til borg-
arinnar.
Mr. B. J. Lifman, oddviti Bif-
röst-sveitar, kom til borgarinnar á
þriðjudaginn í sveitarstjórnarerind-
um.
Við kvöldguðsþjónustu í Fyrstu
lútersku kirkju síðastliðinn sunnu-
dag, bættust söfnuðinum 33 nýir
meðlimir. Að aflokinni guðsþjón-
ustu var öllum hinum mikla fjölda
kirkjugesta boðið til kaffidrykkju í
samkomusal safnaðarins, að tilhlut-
an safnaðarfulltrúanna. Bauð for-
seti safnaðarins, Dr. B. J. Brand-
son,,hina nýju meðlimi velkomna í
Fyrsta lúterska söfnuð.
Mr. J. B. Johnson frá Gimli,
Man., var staddur í borginni seinni
part fyrri viku á Ieið til Dauphin
River, þar sem hann starfar að
fiskikaupum í vetur fyrir Arm-
strong-Gimli fiskiveiðafélagið.
Mr. Chris. Einarsson frá Gimli
var staddur í borginni um miðja
fyrri viku.
Mr. Th. Hallgrímsson fiskikaup-
maður frá Riverton dvaldi í borg-
inni í vikunni sem leið.
Spilasamkoma verður haldin í
neðrj sal Sambandskirkjunnar
næsta > laugardagskvöld. Arðurinn
af þessari samkomu gengur til þess
að styrkja bágstadda fjölskyldu,
sem hefir sætt miklum veikindum.
Sala á kökum og brjóstsyskri á
staðnum. Allir velkomnir. Komið
og styrkið gott málefni.
/ ------------
Símskeyti hefir Mr. Ragnari
Sveinssyni, lögregluþjóni borist í
hendur þess efnis, að látist hafi í
Reykjavík þann 30. nóvember síð-
astliðinn, móðir hans Guðrún Bryn-
jólfsdóttir, kona Árna Sveinssonar
fyrrum kaupmanns á ísafirði.
Dr. Tweed verður á Gimli á
föstudaginn þann 14. þessa mánað-
ar.
Munið eftir að fjölmenna á
Heklufund á fimtudagskvöldið;
þar fer fram kosning fulltrúa-
nefndar fyrir næsta ár. Og þar á
að ræða um nýjar leiðir í bindindis
málinu.
Messuáætlun í prestakalli séra
Sigurðar Ólafssonar næstu sunnu-
daga:
Sunnudaginn 9. des., í Árborg,
kl. 2 síðd.
Sunnudaginn 16. des., í Geysir,
kl. 2 síðd. Heimatrúboðsoffur.
(Samtal við fermingarbörn eftir
messu).
Sunnudaginn 16. des., í River-
ton, ensk messa, kl. 8 síðd. (Sam-
tal við fermingarbörn, kl. 7 síðd.)
Sunnudaginn 9. desember messar
séra Guðm. P. Johnson í Westside
skólanum kl. 2 e. h. (standard time).
Guðsþjónusta í Wynyard þanr
0. desember klukkan 2 eftir miðdag
og i Kandahar kl. 7.30 að kvöldinu
sama dag. Sig. S. Christopherson.
Mr. Jónas K. Jónasson frá Vog-
ar, er dvalið hefir hér í borginni
undanfarandi, lagði af stað heim-
leiðis á mánudaginn. Gerir hann
ráð fyrir að dvelja á Lundar í vet-
ur, ásamt frú sinni. Hefir frúin
ekki verið rétt vel heilsusterk upp
á síðkastið og henni talið hollara að
njóta næðis í kauptúni, en veita um-
sjá stórbúi að vetri til.
Bókin “Guffsríki”
Um jólaleytið í fyrra seldist all-
mikið hjr vestra af þessari bók, sem
þá var ný-útgefin af Prestafélagi
Jslands. Nú er enn til boða nokk-
urt upplag af bókinni, og verður
hún nú seld á aðeins einn dollar í
ágætu bandi. Um þessa verðlækkun
er útsölumönnum hennar gert að-
vart með þessum línum. Bókin er
talin ágæt jólagjöf. Hana má panta
hjá undirrituðum og þeim útsölu-
mönnum út um bygðir, sem áður
hafa haft hana til sölu. Útsölu-
menn eru beðnir að gangast fyrir
sölu á því, sem þeir enn eiga óselt
nú um hátíðaleytið, og gera svo
undirrituðum skilagrein þegar eftir
nýár.
Björn B. Jónsson,
774 Victor St., Wpeg.
Sunnudaginn þann 2. þ. m., lézt
á Almenna sjúkrahúsinu hér í borg-
inni Mrs. A. Magnússon, frekra 45
ára að aldri. Jarðarför hennar fór
fram að Víðir, Man., í gær.
Fálkinn fimm ára rramall
Það eru liðin fimm ár síðan í-
þróttafélagið Fálkinn var stofnað í
Wjnnipeg. Saga þess er marg-
breytileg og rík af stríði og striti
þeirra fáu manna, er áhug?. sýndu
málefninu. Hefir þeim nú orðið
drjúgum ágengt þetta síðastliðna ár,
því nú hefir hockey-félagið, sem
stofnað var fyrir tveimur árum af
nokkrum félögum Fálkans, en varð
að starfa út af fyrir sig, sameinast
iþróttafélaginu og rækja þau nú
störf sin undir sameiginlegri stjórn.
Er þetta falleg afmælisgjöf, og
ættu nú allir íslendingar að leggja
árar á borð með þessum félagsskap,
svo hann geti orðið þeim til sóma í
framtíðinni. Er nú tækifærið í
hendi hvers íþrótta vinar, með þvi
móti að gjörast meðlimur Fálkans.
Ársgjaldið fyrir kvenfólk og karl-
menn er hið sama: fullorðnir $2.00;
14 til 16 ára aldurs, 75C; unlingar
til 14 ára aldurs, 50C.
Félagið þarf fjöldann, til að ná
takmarkinu og ættu því allir að
styrkja það hvort sem þeir nota
starfrækslu þess eða ekki. Sérstak-
lega eru foreldrarnir beðnir að
hvetja unglingana.
Skautasvell hefir nú verið gert
við Sargent Ave. á milli Simcoe og
Home Sts.; það er stórt og veglegt
leiksvið fyrir alla meðlimi, sem
vilja iðka skautalistina, bæði hockey
og einnig sér til skemtunar.
Jakob F. Bjarnason
TRAN8FER
Anntwt p-eiíilega um alt, eetn a*
flutningum iýtur, amá.um e8a etAr
um. Hvergi sanngjamara verS
Heimili: 762 VICTOR STRES3T
Simi: 24 500
Máo]
Diamond Wedding Rings
Watches - Cloclcs
Silverware - China
Novelty - Jewellery
Fountain Pen Sets
Order by Mail and Save Money
THE WATCH SHOP
THORLAKSON - BALDWIN
699 SARGENT AVE., WINNIPEG
“BUSINESS EDUCATION”
Has a “MARKET VALUE”
University and high school students may combine business edu-
cation with their Academic studies by taking special “Success”
instruction under four plans of attendance:
1. Full-day—Cost $15.00 a month
2. Half-day —Cost $10.00 a month.
3. Quarter-day—Cost $5.00 a month.
4. Evening School—Cost $5.00 a month.
SELECT FROM THE FOLLOWING:
Shorthand, Typewriting, Accounting, Business Correspondence,
Commercial Law, Penmanship, Arithmetic,-Spelling, Economics,
Business Organizataon, Money and Bíinking, Secretarial
Science, Library Science, Comptometer.
Call for an Interview, Write Us or
Phone 25 843
Portage Ave. at Edmonton St., Winnipeg
(Best Known for Its Thorough Instruction)
NOTICE
WANTED: STRAW, HAY or other FODDER.
Will be purchasing fodders of all descriptions until
June 1, 1935 for export.
Any fodders purcliased by me must be of fair
average quality and of feeding value. My purchases
are for the aecount of The Federal Emergency Relief
Administration of the U.S.A. Funds for these pur-
chases are guaranteed by the Canadian Bank of Com-
merce, Brandoiq Man.
Correspondence promptly attended to, and if
samples are forwarded prices will be given by return
mail.
Hay Presses, Hammer-mills and Cutting Boxes
can be placed for full winter’s work.
* * *
Sheriff MALCOLM McGREGOR,
Court House,
Brandon, Man.
Oviðjafnanlegt eldsneyti
hvernig sem viðrar
Við höfum ávalt á takteinum kol og við, er fullnægir
þörfum hvaða heimilis, sem er.
Fljót og ábyggileg afgreiðsla.
WOOD’S COAL Co. Ltd.
49 1 92 - Símar - 45 262
Brennið kolum og sparið !
Per Ton
Dominion Cobble, (Sask. Lignite $ 6.50
Premier Cobble, (Sask. Lignite) 5.90
Wildfire Lump, (Drumheller) 11.35
Semet Solvay Coke 14.50
“AN honest ton for AN HONEST PRICE”
Öll kol geymd í vatnsheldum skýlum, og send heim á vorum
eigin flutningsbílum.
Phones: 94 309 — 94 300
McGurdy Supply Go. Ltd.
Builders’ Supplies and Coal
49 NOTRE DAME AVE. E.
Kostaboð Sameining-
arinnar
Verð Sameiningarinnar er einn
dollar um árið. En nú bjóðast eft-
irfylgjandi kostaboð:
Sameiningin eitt ár (borguð fyr-
irfram) og Minningarrit dr. Jóns
Bjarnasonar ($i.oo) hvorttveggja
$1.00.
Sameiningin tvö ár (borguð fyr-
irfram) og Minningarritið í vönd-
uðu léreftsbandi ($2.00), hvort-
tveggja. $2.00.
Sameiningin, þrjú ár, (borguð
fyrirfram) og Minningarritið í
moraco með gyltu sniði ($3.00),
hvorttveggja $3.00.
Minningarritið er ein hin vand-
aðasta bók að öllum frágangi, sem
gefin hefir verið út meðal Vestur-
íslendinga. Bæði gamlir og nýir
kaupendur geta notið þessa kosta-
boðs. Þurfi að senda ritið með
pósti, greiðir áskrifandi 15C fyrir
burðargjald.
Sendið pantanir til Mrs. B. S.
Benson, 695 Sargent Ave., Winni-
peg, eða snúið yður að umboðs-
mönnum blaðsins.
89 402 PHONE 89 502
B. A. BJORNSON
Sound SyntemM and Kadio Ser\U*e
SPECIAL
Beautiful Walnut Cabinet 7-tube bat-
tery Radio and tubes only $15.75
Complete with Speaker Aerial Kit
and Batteries only $30.50
670 BEVKRLEV ST., WINNIPEG
The Watch Shop
Diamonds - Watches - Jewelry
Agents for Fulova Watches
Marriage Licenses Issued
THORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers & Jewellers
699 SARGENT AVE., WPG.
Sendið áskriftargjald yðar
fyrir “The New World,” mán-
aðarrit til eflingar stefnu
Co-operative Commonwealth
Federation í Canada.
Aðeins EINN dollar á ári
sent póstfrítt
Útgefendur
The New World
1452 ROSS AVE.
Winipeg, Manitoba
BUSINESS TRAINING
BUILDS
C0NFIDENCE
The business world today needs Confidence. Too many work-
ers attempt to start and hald a position without Confidence in
themselves, their employers, or the educational conditions which
form the background for their practical lives.
The carefully planned business courses offered at the DOMINION
BUSINESS COLLEGE prepare you to meet business with Con-
fidence. You know that you are ready to prove your worth
and to hold responsible positions. Your training has been
thorough, and has made your services doubly valuable by deve-
loping your own talents along the right lines.
Don’t waste time trying to “find yourself” in
business. A consultation with the Dominion
Registrar will help you to decide upon the course
best suited to you.
The
D0MINI0N
BUSINESS G0LLEGE
On the MALL, and at ELMWOOD, ST. JAMES and ST. JOHN’S
Residence Classes Mail Instruction
Day or Evening With Finishing