Lögberg - 31.01.1935, Blaðsíða 1
PHONE
Seven
86 311
Lines
, VA
C°r‘
V>*
Por
Better
Dry Cleaning
3nd Laundrr
48. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 3I.JANÚAR 1935
NÚMER 5
Til Sveins Thorvaldssonar kaupmanns
viÖ Islendingafljót, 24. J anúar, 1935
Það fara’ ekki margir í fötin þín Sveinn
að frækni í elju og striti.
Og þú gengur ennþá svo bjartur og beinn
og brynjaður íslenzku viti.
En þrátt fyrir margskonar annir og ys
og átök við hryðjur og rosa,
varð aflrauna bjarg hvert sem ódeilis fis
og allatíð svigrúm til brosa.
Þú kunnir þér illa í kveifmenna sveit
með kræklum, sem vermast við ofninn;
þín bardagalöngun var hamröm og heit
og hrein eins og norræni stofninn.
Þig langaði ungan að skilja þín sköp
og skygnast um nýheima álfur,
og þrátt fyrir örlæti, auðsæld og töp
þá áttu þig gránaðan sjálfur.
Með sjálfsdáð þú ruddir þinn víkingaveg
og valdir þér Bifröst að setri.—
Þó konungleg orða sé ákjósanleg,
er arfurinn norræni betri.
Á steintöflum aldanna stendur það glæst
og stimplað í kynslóðarótið,
að komist þú einn hafir krýningu næst
af kóngssonum norður við Fljótið.
Einar P. Jónsson.
FRA SAMBANDSÞINGINU
Umræðurnar um hásætisræðuna
voru margfalt styttri en venja er
til; voru það aðallega flokksforingj-
arnir þrír, er til máls tóku, þeir
Benett, Woodsworth og King; var
forsætisráðherra nokkuð hvassyrt-
ur með köflum, en hinir tveir prúð-
menskan sjálf. Báðir hétu þeir Mr.
Bennett stuðningi við framgang um-
hóta-ákvæða hans, en kröfðust þess
jafnframt, að afgreiðsla þeirra
gengi fyrir afgreiðslu á frumvörp-
um einstakra þingmanna; töldu þeir
Mr. Bennett bezt mtjndu geta sann-
að alþjóð manna um að full einlægni
lægi til grundvallar sinnaskiftum
hans, ef svo yrði gert. Þessu svar-
aði forsætisráðgjafi á þá leið, að
stjórnin færi í þessu tilliti alveg
eftir sínu eigin höfði og legði fram
umbóta-frumvarp sin í þeirri röð,
er henni bezt hentaði, en fullvissaði
þó þingheim um það, að um óþarf-
an drátt yrði undir engum kringum-
stæðum að ræða.
Framsögumenn aðalflokkanna
þriggja voru á eitt sáttir um það, að
ef til þess kæmi að stjórnarskrár-
breyting teldist óhjákvæmileg til
framkvæmda hinum ýmsu umbóta-
akvæðum, þá væri sjálfsagt að haf-
'st yrði viðstöðulaust handa í þá átt.
fylkisþingi stefnt
TIL FUND4
Forstetisráðherrann, Hon. Johh
Þracken, hefir lýst yfir því, að fylk-
'sþingift i Manitoba komi saman á
þriðjudaginn þann 12. febrúar næst-
komandi. Ekki þykir líklegt að
þingið eigi langa setu að þessu sinni,
nema því aðeins að Sambandsþing
afgreiði einhver þau mál, er frá
stjórnskipulegu sjónarmiði krefjist
einnig samþykkis fylkisþings.
RöSSAR auka viðskifti
VIÐ BRETA
^för Lundúnafregnum ;
liefir ráðstjórn Rússlands
keypt frá Bretlandi fyrir
ut í hönd, fimm miljón dal;
unaðaráhöldum og ýmsui
velum. S
VINNA IIEIMSFRÆGÐ
Samkvæmt fregnum frá Davos á
visslandi síðastliðinn mánudag, þá
hlaut hockeyflokkurinn Monarchs
fra Winnipeg, heimstitil i þeirri í-
Imott. Úrslitaleikurinn stóð á milli
Monarchs og Svisslendinga; lauk
honum með því að kapparnir frá
Mamtoba gengu sigrandi af hólmi
með fjora vinninga á móti tveimur.
KOSNING 1 BANKARAÐ
Þann 23. þessa mánaðar voru
talin atkvæði þeirra manna, er í vali
voru sem bankaráðsmenn við hina
nýju peningastofnun, Central Bank
eða Bank of Canada. Sjö menn
skyldi kosnir í bankaráð og hlutu
þessir kosningu:
W. K. McKean, Halifax; Robert
A. Wright, Drinkwater, Sask.; W.
D. Black, Hamilton, Ont.; R. J.
Magor, Montreal; Joseph Beaubien,
Montreal; Thomas Bradshaw, To-
ronto og W. C. Woodward, Van-
couver. Mr. Wright, hinn eini full-
trúi Stléttufylkjanna, hlaut lang
hæzta atkvæðatölu þeirra allra, er
í kjöri voru.
SAMBAND SVEITARFÉ-
LAGANNA BER FRAM
KRÖFUR SINAR
Forráðamenn sveitarfélaga sam-
bandsins í Manitoba, vitjuðu nýver-
ið á fund Bracken-stjórnarinnar og
báru upp við hana ýmsar mikilvæg-
ar kröfur. Meðal þess helzta var
það, að' stjórnin eftirléti sveitunum
25 af hundraði af skatti á gasolíu,
sem og tilsvarandi hundraðshluta af
ökuleyfi fólks- og vöruflutninga-
bíla. Þá var og fram á það farið,
að komið yrði upp hér og þar um
fylkið stöðvum til aðhlynningar og
lækninga sjúklingum, er af krabba-
meiri þjást.
ENDURVAKNING FRJALS-
LYNDU STEFNUNNAR
Kjörtímabil bændastjórnarinnar í
Alberta er nú senn á enda, og má
vel ætla að til kosninga verði geng-
ið þá og þegar. Eins og kunnugt
er lét Mr. Brownlee af stjórnarfor-
mensku út úr hneykslismáli því, er
landfrægt er fyrir löngu orðið. Við
stjórnarforustu tók einn af ráðgjöf-
um hans, Mr. Reed; er hann vin-
sæll maður og vel látinn, þó hvergi
nærri komi til jafns við Mr. Brown-
lee að því er atfylgi á sviði stjórn-
málanna áhrærir.
Frjálslyndi flokkurinn í Alberta
var allur í brotum fram að árin 1932
og átti ekki nema bráðabirgða for-
ingjum á að skipa. En það ár fékk
hann nýjan foringja, Mr. W. R.
Howson í Edmonton, áhugamann
mikinn og mælskan vel; hefir hann
nú endurvakið, flokkinn til slíkra
athafna víðsvegar um fylkið, að
engan veginn er óhugsanlegt talið,
að hann nái völdum við næstu kosn-
ingar. Svo kvað Mr. Howson vera
fylginn sér, að margir líkja Iionum
við Mitchell Hepburn, hinn hugum-
stóra og harðfylgna stjórnarfor-
mann þeirra Ontario-búa.
Aftaka veður á Kyrrahafsströnd
Slík aftáka veður hafa dunið yfir British Columbia fylki
undanfarandi, að elztu menn rekur ekki minni til annars eins.
Svarf þetja mjög að Vancouver borg um hríð og ýmsum fleiri
bæjum við ströndina; fannkyngi hlóð niður, eimlestir teptust og
flest samgöngutæki færðust úr lagi. Er svo tók aftur að þiðna,
geysuðu vatnsflóð mikil um Fraser dalinn, er ollu viðtækum
skemdum. Átján manns er sagt að hafi látið lífið í þessum fá-
ránlegu náttúruhamförum vestur við ströndina.
VIRÐULEGUR MANN-
FAGNAÐUR
Á fimtudagskvöldið þann 24. þ.
m., var Sveáni kaupmanni Thor-
valdssyni og frú hans haldið veg-
legt heiðurssamsæti á Fort Garry
hótelinu hér í borginni, er eitthvað
um tólf tugir manna og kvenna tóku
þátt í. Stjórnarnefnd Þjóðrækn-
isfélagsins átti frumkvæði að þess-
um mikla mannfagnaði, og stýrði
honum forseti félagsins, hr. J. J.
Bíldfell. Að lokinni máltíð hófst
skemtiskrá, er innifólgin var í ræðu-
höldum, söng og ljóðalestri.
Dr. Rögnvaldur Pétursson mælti
fyrir mlinni Mr. Thorvaldssonar;
séra Jakob Jónsson mintist íslands;
Dr. Sveinn E. Björnsson frá Ár-
borg, ávarpaði heiðursgest fyrir
hönd samborgara hans í Nýjá ís-
landi; Mr. J. T. Thorson, K.C.,
mintist Canada en séra Rúnólfur
Marteinsson Vestur-íslendinga.
Ræðurnar voru í rauninni hver ann-
ari betri, og höfðu margyíslegan
fróðleik til brunns að bera. Á milli
þess sungu veizlugestir fullum hálsi
margt íslenzkra þjóðsöngva, en við
hljóðfærið var Mr. Ragnar H.
Ragnar.
Frumsamin kvæði fluttu þeir rit-
stjóri þessa blaðs, G. O. Einarsson
og Mr. N. Ottenson; eru tvö þeirra
birt á öðrum stað hér í blaðinu. Þá
voru og lesin samfagnaðarskeyti til
Mr. Thorvaldssonar frá nokkrum
f jarlægum vinum.
Heíðursgesturinn þakkaði fyrir
hönd sina og f jölskyldu sinnar, for.
göngunefnd Þjóöræknisfélagsins, er
stofnað hafði til þessa eftirminni-
lega samsætis, sem og þeim öllum,
er stuðlað höfðu að því að gera það
jafn virðulegt og raun varð á; var
mál hans hið fróðlegasta og kom
víða við.
Óhætt mun að fullyrða, að heim
hafi allir farið þetta litbrigðaríka
kveld, með ánægjulegar endurminn-
ingar um ljúfa samfundi.
FRAMLEIÐSLA HUNANGS
NEMUR $413,562
Árið, s<jm leið, voru 3,133 hun-
angsframleiðendur í Manitoba fylki,
og var framleiðslan metin á $413,-
562. Þann 20. desember síðastlið-
inn, voru í fylkinu, 1,255,000 pund
af óseldu hunangi, er nú mun vera
að rnestu selt. Verð hunangs á árinu
var þó nokkuð ofan við meðallag,
að því er ráða má af síðustu skýrsl-
uni.
Ofsavettur. Þak fýkur af húsi.
í dag fauk þak af íbúðarhúsi á
Skagaströnd. Húsið var bygt úr
stein steypu með skúrþaki. Tók
þakið af í heilu lagi ásamt öllum
boltum og kom niður 15—20 metra
frá húsinu. Engin meiðsl eða aðrar
skemdir urðu. Panel var slegið
neðan á loftið og sérstaka bita, og
er það hið eina er skýlir. Búist er
við að flytja verði úr húsinu. Ofsa-
veðu^ af vestri var í dag með hríð-
aréljum en snjókoma lítil.
Frá Islandi
Vélbátur talinn af.
Klukkan 6 — 7 í gærkvöldi var
loftskeytastöðinni hér á ísafirði til-
kynt, að “Njál” frá Súgandafirði
vantaði. Bátar, liggjandi í Presta-
bugt, voru beðnir að tilkynna, ef
Njáll kæmi þar. Kl. 22 náðist sam-
band við togarann Sindra, er var
staddur út af Horni á leið til ísa-
fjarðar. Leitaði hann á leið sinni,
en Hávarður, sem stöðin einnig
hafði samband við, leitaði frá ísa-
firði til Skálavíkur. í dag kl. 14.30
hafði vélskipið Freyja samband við
stöðina og tilkynti, að hún hefði
fundið rekald úr bátnum, lóðabelgi
og kolakassa úr hásetaklefa og
fleira, sem benti til þess að báturinn
mundi hafa farist.
Almennar fréttir.
Frá Selfossi símar fréttaritari út-
vai*psins:
1 fyrradag gerði austanfjalls út-
synningsrok með éljagangi, en vægu
frosti, og hefir það haldist síðan.
Snjór er þó enn lítill á láglendi og
ágætt isfæri hefir haldist óslitið í
allan vetur yfir Hellisheiði, og veg-
urin oftast verið auður þar til nú í
dag, að farið er að draga í skafla
vestan til á fjallinu, og færðin að
þyngjast. Er það mjög sjaldgæft,
að ekki hafi einhvern tíma fyrir há-
tíðir tepst bilfæri yfir fjallið. /
Heilsufar manna er gott í hérað-
inu. Bændur lítið þurft að gefa,
það sem af er vetrinum. Gripahöld
eru góð og lítið um veikindi í fén-
aði.
Sjaldan er-róið í verstöðvum aust-
anfjalls í vetur, enda fiskilaust á
grunnmiðum til þessa, og vertíð
ekki byrjuð.
IAfgunartœki. Minningargjöf.
Vestmannaeyjum, 10. jan.
Félagið Akoges afhenti 8. þ. m.
sjúkrahúsinu hér í Vestmannaeyj-
um til eignar og umráða, Carbogen
lífgunartæki fyrir sjódruknaða
menn, og veitti sjúkrahússlæknir
því móttöku. Gjöf þessi er til minn-
ingar um Helga Scheving stúdent,
sem var í félaginu og' druknaði síð-
astliðið sumar við syðri hafnargarð-
inn hér í Vestmannaeyjum. Þessi
tegund tækja er mikið notuð af
Rauðkrossi Danmerkur, til þess að
lifga druknaða menn og þá, sem
kafnað hafa af reyk eða lamast af
rafmagnsstraum.
Tækið er þannig, að súrefni er
þrýst í stálflösku. Við flöskuna er
síðan tengd togleðursslangaj en á
enda hennar er málmgríma, sem sett
er fyrir nef og munn þess, sem lífga
á. Á stálflöskunni er mælir, sem
sýnir þrýstinginn á súrefninu. Ein
varaflaska fylgir.
Tækið er í trékassa, og fremur
létt, og getur einn maður borið það
auðveldlega. Það er mjög einfalt
að fara með tækið.
Vísir 11. jan.
Hinn 1. desember síðastliðinn
voru neðantaldar konur og menn
eftir tillögum Fálkaorðunefndar-
innar sæmd af konungi héíðurs-
merkjum orðunnar, sem hér segir:
A. Stórriddarakrossinum
(áu stjörnu):
Sendiherrafrú Georgia Björnsson,
K.höfn; Davíð Sch. Thorsteinsson,
fv. héraðslæknir, Rvík; Eggert
Claessen, hrm., formaður stjórnar
Eimskipafélags íslands og yfirmað-
ur Oddfellow-reglunnar á Islandi,
R.vík; Einar Stefánsson, skipstjóri,
Rvík; Guðmundur Finnbogason dr.
Phil., landsbókavörður, Rvík; Gunn-
laugur Claessen, dr. med., Rvík;
Júlíus Júliníusson skipstj., Khöfn;
Ólafur Lárusson prófessor, Rvik;
Richard Thors, framkvæmdastjóri,
Rvík; Sigurður Kristinsson, fram-
kv.stjóri, Rvík; Sigurður Kristjáns-
son, bókaútgefandi, Rvik; Sigurður
Nordal, dr. phil., próL, Rvík; Sig-
urður P. Sívertsen, vígslubiskup,
próf. Rvík.
B. Riddarakrossinum:
Frú Kristín Ólafsdóttir, Nesi á
Seltjarnarnesi. Ásmundur Ólafsson,
prófastur, Hálsi í Fnjóskadal, Guð-
mundur Friðjónsson, skáld, Sandi.
Guðmundur B. Jónsson, sjálfseign-
arbóndi, Sveinseyri; Jón Pálsson,
fv. bankagjaldkeri, Rvík; Jón Sig-
urðsson, skrifstofustjóri Alþingis,
Rvík; Magnús Gíslason, hrepp-
stjóri, Eyhildarholti; Magnús Stef-
ánsson, sjálfseignarbóndi, Flögu í
Vatnsdal; Maytin Bartels, hanka-
fulltrúi, K.höfn; Ólafur Finsen,
héraðslæknir, Akranesi. Pétur
Ingjaldsson, skipstjóri, Rvík; Stef-
án Sandholt, bakarameistari, Rvík;
Sigurður Jónson, skólastjóri, Rvík;
A'aldemar V. Snævarr, skólastjóri,
Neskaup^tað.
SJÓÐSTOPNANIR
af dánarbúi B. H. Bjarnason kaupm.
Rektor Háskólans hefir borist til-
kynning um eftirfarandi dánargjöf:
B. JI. Bjarpason kaupmaður hefir
með arfleiðsluskrá sinni og konu
sinnar frú Steinunnar H. Bjarna-
son, dags. 25 sept. f. á., ánafnað:
1. Slysavarnafélagið Islands 5000
—fimm þúsund krónur til björgun-
arráðstafana á Vestfjörðum, og
2 stofnað styrktarsjóð, er heitir
“Framfarasjóður B. H. Bjarnason-
ar kaupmanns” með 25,000—tutt-
ugu og fimm þúsund króna höfuð-
stól.
Sjóðnum skal stjórnað af þriggja
tnanna nefnd og skulu nefndarmenn
kosnir til þriggja ára í senn, og
jafnmargir til vara, einn af Háskóla-
ráði, annar af Verzlunarráði og
þriðji af Iðnráðinu og sé fulltrúi
Háskólans formaður nefndarinnar.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja
karla og konur af öllum stéttum,
lærða og leika, sem lokið hafa prófi
i gagnlegri námsgrein og taldir eru
öðrum fremur efnilegir til fram-
haldsnáms, sérstaklega erlendis.
Verja má alt að 4/5 — fjórum
fimtungum — af ársvöxtum sjóðs-
ins til styrktar efnismönnum, og
getur styrkþegi notið styrksins alt
að 2 árum í senn. En afgangur árs-
vaxtanna, 1/5, leggist árlega við
höfuðstólinn, sem aldrei má skerða.
Að öðru leyti skulu skiftafor-
stjórar búsins semja skipulagsskrá
fyrir sjóðinn og hlutast til um út-
vegun kgl. staðfestingar á skrána.
Háskólaráðið hefir þegar kosið
próf. Ágúst H. Bjarnason sem for-
mann nefndar þeirrar, er um getur.
—Mbl.
Hjarðmenn
Eftir Jón Magnússon.
flm afkima íslenzkra bygða
var aðfangadagur á ferð.
Um foldina fanribreiðan skvgða
til fagnaðar honum var gerð.
En yfir skein himininn heiður
og 'háf jöllin björt eins og sól,
í hrímperlum mjallir og meiður,
í mjúksnævi lægðir og skjól.
1 brekkunni sunnan við bæinn
þeir bræðurnir stóðu hjá fé
í frostinu, draumljúfan daginn,
uns djásn hans í vestrinu hné.
Þeir liamra og hléborgir gistu
á hlaupum um fannir og grjót.
En sauðirnir síðlagðinn hristu
og surfu hvert krafs niðr í rót.
ÍTr liaganum heim vildi lokka
mörg hugsun, sem óþreyju jók,
um kjörgripi: klút eða sokka,
um kerti eða fallega bók.
—Því gjafimar gáfust þar bestar,
til gleði og þarfa í senn.
Við finnum þær fagnaðar-mestar
hjá fátækum hjarðmönnum enn.
—Og loks gat hann liðið, sá dagur.
Þá ljómaði himinn á ný;
svo bjartur og barnæskufagur
hann bar hvorki rák eða ský.
Sem harpa á hvelfingu dregin
um heim vom norðurljós þönd.
Og glampandi gullborðum slegin
þau geislunum dreifðu um lönd.
Þá opnuðust himnanna hallir. \
Um hásæti drotíins varð bjart.
* Þar fylktu sér englar hans allir,
. en orð þeirra jörðina snart:
“Lát gleðjast, ])ú hannheimur mæddur,
svo miklist vor fagnaðargjörð.
í dag er þér frelsari fæddur
og friður guðs settur á jörð.”
Og bræðurnir hugfangnir horfðu,
* uns hvarf þeim liin dýrlega sýn.
Hvert orð fer sem ilmur um storðu,
hvert atvik í draumlielgi skín.
Af haganum heimliðis bentu
þeir hjörð sinni um ákveðna stund,
og liurðir að húsdyrum fentu
með hraustri og brennheitri mund.
\ 9
Og alt var að endingu þrotið,
sem önnin og dagskyldan bauð.
Þeir fagnandi í fannbyrgða kotið
sér flýttu með Iiimneskan auð.
Um göngin var albirta og ylur,
—en annars var mvrkt þar og kalt—
því hátíðin djásn sín ei dylur,
sú dýrð ljómar jafnt yfir alt.