Lögberg - 07.11.1935, Síða 1
48. ÁRGrANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 7. NÓVEMBKR, 1935.
NÚMER 45
O-' Kirkjuvígsla
gleypti hina eÖa komi sér þannig
VITURLEG UPPASTUNGA
í síÖasta Lögbergi birtist eftir-
tektavert samtal er fregnriti Morg-
unblaðsins í Reykjavík átti við hr.
Ásmund P. Jöhannsson, þar sem
Ásmundur bendir lönduin sínum
þar heima á þann möguleika, að hægt
muni vera að koma á verzlunarsam-
bandi við Ameriku með íslenzkar
vörur, og bendir jafnframt á í því
sambandi, og það með réttu, að slíkt
samband mundi tengja þjóðarbrotin
•austan liafs og vestan enn nánari
böndum.
Þessi bending Ásmundar er
sannarlega orð í tíma talað; og ætti
alls ekki að verða eitt af því, sem
þagað er í hel, sem svo oft vill til
bjá okkur til skaða, bæði fyrir
menn og málefni. Með þessu er eg
þó ekki að örfa menn til mælgi og
því síður til rifrildis, sem því miður,
hefir komið svo mörgu góðu mál-
efni á kné, heldur hitt, að menn ræði
þetta og styðji á skynsamlegan hátt.
En um leið og eg þakka Ásmundi
fyrir sína tillögu, langar mig að
hreyfa annari, er fer í sömu átt, og
hún er sú, að Canada sendi verzlun-
arerindreka til fslands, í nálægri
framtíð.
Á stefnuskrá Liberala er tekið
fram, að þeir ætli að auka viðskifti
innanlands og utan. Þeir fara nú
með völdin, og efast eg ekki um að
þeir efni loforð sin af fremsta
megni; en engin stjórn er alvitur
eða alsjáandi og þessvegna ber
þegmínum að hvísla óskum sínum
og vonum í eyru henaar, og í því
sambandi vildi eg benda á þetta og
skora á fslendinga í Canada að beita
sér fyrir þessu máli, enda ætti þetta
að vera framkvæmanlegt, þar við
eigum annan eins talsmann á þingi
og hr. Joseph Thorson.
Eg þarf ekki að orðlengja þetta
með neinum upptalningum um við-
skifta möguleika, því það er öllum
vel kunnugt, að Canada framleiðir
nálega alt, sem ísland þarf og kaup-
ir. Hugmynd mín er aðeins sú, að
vekja máls á þessu hérna megin,
eins og Ásmundur gerði hinum meg_
in hafsins.
Síðan eg dró saman þessar línur
hefir hr. Ásgeir Ásgeirsson komið
hér og átt samtal við blaðamenn og
stjórnendur fylkisins, ásamt því, að
flytja hér fróðlegan fyrirlestur, er
fyllilega studdi tillögur okkar Ás-
mundar. — Ennfremur mætti geta
þess, að í mánudagsblaði Free Press
er borin fram ósk um aukin viðskifti
Canada og íslands úr samtali blaðs-
ins við Ásgeir.
Styðja fleiri tillöguna?
Sveinn Od'dsson.
ALÞINGI
Fundur hófst í sameinuðu þingi
kl. i e. h. í gær.
Las forsætisráðherra fyrst upp
konungsboðskap, þar sem Alþingi
var kvatt saman til starfa að nýju.
Forseti tilkynti þar næst f jarveru
þeirra f jögurra þingmanna, sem get-
ið var í blaðinu í gær. Ásgeir Ás-
geirsson verður fjarverandi allan
þingtímann, en Thor Thors kemur
ekki heim, fyr en áliðið er þingsins.
Þar sem þeir eru kjördæmakosnir,
eru engir varamenn fyrir þá. Stefán
Jóhann er væntanlegur innan
skamms, en Eiríkur Einarsson mun
mæta sem varamaður Gunnars
Thoroddsen.
Þá mintist forseti fjögurra þing-
manna, sem látist höfðu frá því Al-
þingi kom seinast saman, þeirra
Hannesar Þorsteinssonar þjóð_
skjalavarðar Jóhannesar Ólafssonar
hreppstjóra á Þingeyri, Tryggva
Þórhalíssonar fyrv. forsætisráð-
herra og Jóns Sigurðssonar hrepp-
stjóra á Haukagili.
TWEEÐSMUIR LÁVARÐUR
Á laugardagskvöldið þann 2. þ. m.,
sór hinn nýi landstjóri í Canada em-
bættiseið í hinni sögufrægu Ouebec
borg, að viðstöddu miklu stórmenni;
gerðist þetta litlu eftir að land-
stjórahjónin stigu á land. Forsætis-
ráðherrann, Rt. Hon. W'. L. Mac-
kenzie King, bauð hina tignu gesti
velkomna fyrir hönd hinnar cana-
disku þjóðar. Tweedsmuir lávarður
þakkaði viðtökurnar með stuttri, en
fagurri ræðu.
Er þessu var lokið, gaf forseti
fundarhlé í 30 mín., meðan kjör-
bréfanefnd athugaði kjörbréf Eiríks
Einarssonar. Ennfremur sagði for-
seti, að kjörbréfanefnd myndi fá til
athugunar “kæru út af kjörgengis-
skilyrði” frá Bændaflokknum.
Jafnskjótt og forseti skýrði frá
kærunnj spratt Ólafur Thors á fæt-
ur og sagðist kveðja “sjálfstæðis-
þingmenn” á fund, áður en fundur
væri haldinn í nefndinni. Þótti öll-
um það fundarhald furðulegt.'
Þegar fundur hófst að nýju, hafði
Pétur Magnússon orð fyrir nefnd-
inni. Sagði hann, að nefndin hefði
ekkert við kjörbréf Eiríks að athuga
og var það samþykt með samhljóða
atkv. Ekkert mintist Pétur á kæru
“B^endaflokksins.”
Er því var lokið, ætlaði forseti að
slíta fundi. Kvaddi Gísli Sveinsson
sér þá hljóðs og kvaðst hafa gert þá
kröfu í nefndinni að “kæra” Bænda-
flokksins yrði afgreidd strax, og
sagðist endurtaka þá kröfu hér.
Bergur Jónsson, formaður nefnd-
arinnar, skýrði frá því, að meiri-
hluti nefndarinnar hefði ekki talið
sér fært, að taka endanlega afstöðu
til kærunnar á jafnnaumum tima, en
sagðist vera fús til, að halda fund í
nefndinni í dag til þess að afgreiða
hana.
Magnús Torfason kvaðst hafa
heyrt að þessi kæra væri á sig, og
taldi ekki viðeigandi, að kæra yrði
afgreidd svo, að sakborningur fengi
ekki að sjá hana. Óskaði hann því
eftir að sjá kæruna.
Þegar hér var komið frestaði for-
seti umræðum og sleit fundi.
í kjörbréfanefnd eiga sæti:
Bergur Jóússon, Einar Árnason,
Gísli Sveinsson, Pétur Magnúson,
Jónas Guðmundsson (í stað Stefáns
Jóhanns).
Kærumál þetta verður væntan-
lega tekið fyrir í dag.
—N. dagbl. 11, okt.
EFTIRMAÐUR
GARDINERS
Eins og getið var um í síðasta
blaði, lét Mr. Gardiner af stjórnar-
forustu í Saskatchewan, til þess að
takast á hendur landbúnaðarráð-
herra embætti í hinu nýja ráðuneyti
Mackenzie King. Nú hefir Hon.
W. J. Patterson, sá er áður gegndi
embætti sem ráðgjafi náttúrufríð-
inda deildarinnar, verið svarinn inn
í forsætisráðherrastöðu. Hann er
49 ára að aldri, og vann að banka-
störfum, lengi vel; er hann talinn
hinn mætasti maður og líklegur til
góðs gengis. Við hinu fyrra em-
bætti hans í ráðuneytinu, tekur W.
F. Kerr, fylkisþingmaður fyrir
Regina, og hefir aflagt embættiseið.
Er hann blaðamaður, tæplega sex-
tugur að aldri; hann er viðurkend-
ur stórhæfileika maður^
HAFNAR SENDIHERRA
EMRÆTTI
Eins og þegar hefir verið getið
um, fór King-stjórnin fram á það
við Mr. John W. Dafoe, ritstjóra
blaðsins Winnipeg Free Press, að
hann tækist á hendur sendiherra-
embætti í Washington, fyrir hönd
hinnar canadisku þjóðar. Nú hefir
Mr. Dafoe lýst yfir því, að hann sjái
sér ekki fært að taka við slíku em-
bætti.
FRÁ AFRLKUSTRÍÐINU
ítalir halda áfram sýknt og heilagt
orrahríð sinni í Ethiópíu; hafa þar
ýmsar snarpar orustur háðr verið
undanfarna viku, og mjög hallast á
Ethiópíumenn; er mælt að í einum
slíkum bardaga hafi þeir mist hátt
á þriðja þúsund manna.
Um þessar mundir hafa ítalir um
húndrað tuttugu og fimm þúsundir
vigra manna í grend við borgina
Makale; hafa þeir einnig til þess gert
snarpa atlögu, að ná Magalo borg
á vald sitt; liggur sú borg hér um
bil miðsvegar milli Addis Ababa og
landamæra ftala í Somaliland.
ÚRSIAT 1 SOURIS
Síðastliðinn laugardag var lokið
endurtalningu atkvæða í Souris
kjördæminu í Manitoba. Urðu
fullnaðarúrslit þau, að George W.
McDonald, frambjóðandi frjáls-
lynda flokksins, var lýstur rétt kjör_
inn sambandsþingmaður, með
þriggja atkvæða meirihluta umfram
Errick F. Willis, er í kjöri var af
hálfu afturhaldsmanna og sæti átti
á síðasta þingi.
EMILE WALTERS
LISTMALARI
Mr. Walters mun væntanlegur
hingað til borgar í vikulokin, í sam_
bandi við þá sýningu málverka sinna,
sem getið hefir verið um áður hér i
blaðinu að opnuð yrði í T. Eaton
Art Gallery, á mánudaginn þann 11.
þ. m. Sýning þessara málverka hef-
ir þegar farið fram í hinum helztu
borgum i Austur-Canada, og ljúka
blöðin miklu lofsorði á málverkin.
Blaðið Toronto Star kemst meðal
annars þannig að orði:
Myndir þessar, sem eru af þrem-
ur stærðum aðeins, og í hyítri um-
gerð, lýsa hinu fræga landi eldsum-
brota og forns lýðræðis, eins glögt
og myndir þær, sem þeir Rockwell
Kent og A. N. Jackson hafa málað
af norðursvæðum Canada. Litir Mr.
Walters eru hrífandi og dirfskuleg-
ir.. Svo má segja að margar lands.
lagsmyndir hans sendi frá sér
hljóma; ofar blómgrundum og vötn-
um gnæfa fjöllin eins og tígulegir
pýramidar. Svipir íslands, með öll-
um hinum margvíslegu litbrigðum,
veita májverkunum ómótstæðSlegit
seiðmagn og hreinleik.”
HON. MITCHELL F. HEPBURN
LÆTUR SENN AF
EMBÆTTI
Simað er frá Toronto þann 6. þ.
m., að hinn harðsnúni forsætisráð-
gjafi Ontario-fylkis, Hon. Mitchell
F. Hepburn, verði knúður til þess
að láta af embætti í lok næsta þings,
sakir heiísubrests. Þykja mörgum
þetta mikil tíðindi og ill, með þvi að
Mr. Hepburn er alment talinn sjald-
gæfur atgervismaður. Hann er enn
maður á ungum aldri, fæddur þann
12. dag ágústmánaðar árið 1896.
Þess hefir verið getið áður að
söfnuður KirkjuféJags vors í Elfros
í Saskatchewan hefir á þessu síðasta
ári verið að koma sér upp kirkju i
samlögum við söfnuð tilheyrandi
United Church of Canada á sama
stað. Söfnuðirnir halda sér alveg
sem sérstakar heildir og er kirkjan
sameiginleg eign þeirra beggja. Var
steyptur kjallari undir kirkjuna fyr-
ir ári síðan, en kirkjan sjálf bygð á
liðnu sumri. Er hún hið vandaðasta
hús og rúmar í bekkjum um I50
manns. Er hún bygð með turni og
forkirkju og einnig útúrbygðum
kór fyrir söngflokk. Kirkjan er nú
að mestu fullgerð, þó enn sá kjall-
arasalurinn óuppgerður, hitunarmið-
stöð ekki fengin eða ljósahjálmar,
og önnur áhöld ekki keypt ný en
vönduðustu bekkir í aðal kirkjusal-
inn. Enda hefir verið varist að fara
í skuldir. Er það þrekvirki eigi lít-
ið að koma þessu fyrirtæki áleiðis
með svo góðum árangri, einmitt á
þessum erfiðu kreppuárum. Sýnir
það frábæran áhuga, samvinnu og
dugnað þeirra safnaða er að þessu
haða staðið.
En ekki sízt sögulegt í sambandi
við þessa kirkjubyggingu er það, að
tveir söfnuðir sinn úr hverri kirkju.
deild hafa tekið saman höndum um
að eignast þannig sameiginlegt
kirkjuheimili. Hefir það vakið at-
hygli mikla, sem mjög einstakt fyrir.
brigði í Vestur-Canada, víðast til
lofs, en þó einnig til ámælis hjá
þeim, sem ekki hafa trú á slíkri sam-
vinnu. Það lofar mestu um varan-
lega blessun í sambandi við þessa
samvinnu, að forðast hefir verið alt
reíptog frá hálfu málsaðilanna
beggja i þá átt að önnur heildin
TIL JAKOBINU JOHNSON
17. ágúst 1935.
Þú hefir komið, þú hefir séð
það, sem vildir finna.
Litið eigin augum með
óðul feðra þinna.
Eg get skilið þína þrá,
þína von og drauma
um átthagann, sem yztur lá
austan blárra strauma.
Eg get samglaðst sálum þeim,
sem er veitt að líta
þennan dala og heiða heim
og hájöklana hvíta.
Þó að stundum hregg og hríð
hnjúkum hvítu faldi,
svipul reynist sumar tið.
Sól á undanhaldi.
Koma ávalt indæl kvöld
inn á milli hríða.—
Gulli merluð geislatjöld
glitra í brekkum hliða.
Þá er gott við f jall og f jörð
fylsta nautn að lifa,
meðan lofgjörð lífs á jörð
ljósar nætur skrifa.
Þetta hefir hlotnast þér,
heim með þér þú tekur
fyrir að hún geti beitt yfirráðum.
Samvinnan hefir því verið frjáls og
óþvinguð. Til fleiri ára hafa söfn-
uðirnir haft sameiginlegar guðsþjón.
ustur, að undanteknum íslenzkum
guðsþj ónustum, er fluttar hafa ver-
ið. Það hefir verið látið sitja fyrir
að skapa heilbrigðan anda fremur
en að skipuleggja framtíðar fast-
bundna samvinnu. Jafnvel þó svo
færi að söfnuðirnir kysu að halda
guðsþjónustum sínum aðskildum,
sem eg tel næsta ólíklegt, mundi
sama kirkjan með tilhliðrunarsemi,
nægja fyrir báða. Svo víða fer
þannig í smábæjum að margar kirkj-
ur eru bygðar og svo eru margar
þeirra prestsþjónustulausar mest af.
í Elfros er haldið uppi guðsþjón-
ustu samkomum annan hvern sunnu-
dag, að vetrinum, þó ekki sé prest-
ur; en síðustu þrjú sumrin hefir
sá er þetta ritar þjónað báðum söfn.
uðunum og notið óskiftrar samvinnu
beggja.
Þann 6. október fór kirkjuvígsl-
an fram undir umsjón kirkjufélag-
anna beggja, sem hlut eiga að máli.
Forseti United Church í Saskatche-
wan, Dr. R. Dorey, og séra K. K.
Ólafson, forseti kirkjúfélagsins ís-
lenzka framkvæmdu athöfnina sam-
eiginlega. Fjölmenni mikið var við-
statt, og var þetta mikill gleðidagur
fyrir alla. Hinn ágætasti söngflokk-
ur tók mikilsverðan þátt í guðsþjón-
ustunni. Prestum úr nágrenninu
var boðið að vera við og flytja á-
vörp og kveðjur, og þáði séra Jakob
Jónsson boðið í eigiti persónu, en
hinir sendu kveðjur. Er dagurinn
ógleymanlegur merkisdagur.
K. K. Ó.
fegurð þá, sem; islenzk er
og æðstu gleði vekur:
Unga vornótt, iðgræn f jöll,
árnar, heiðar, firði.
Huldur, álfa, hamratröll.
—Hvað er meira virði?
Þegar komin þú ert heim
þúsund rasta veginn,
verður hugur þinn að þeim
þúsund sinnum dreginn.
Snjalla fljóð, um borg og bæ
berst þín ljóða-snilli.
Ber þú hróður íslands æ
annara þjóða á milli.
Verði þér að sögu og söng
sögulandsins kynnig.
íslenzk vorkvöld, ljós og löng
lifi í endurminning.
F. H. Berg.—Dagur.
TEKUR VIÐ EMBÆTTI
1 LONDON
Hon. Vincent Marssey, fyrrum
sendiherra hinnar canadisku stjórn-
ar í Washington, hefir verið skipað-
ur yfirumboðsmaður Canada á
Bretlandi. Er hann þegar lagður af
stað til þess að taka við hinu virðu-
lega embætti sínu.
I birkihlíð
Við árnið frá íslenzku gljúfri,
með íslenzka klöpp fyrir borð,
eg leik mér að bláberja lyngi,
og læt sem eg sitji á þingi,
en bjarkirnar beri mér orð.
Þær seg'ja mér ein eftir aðra
um æskunnar hnekkjandi stríð;—
hve bvlurinn beygði og liristi,
og braut af þeim greinar og kvisti,
og varnaði viðgangs í hlíð.
Þær segja eg sjái þess merki,
hve .seint muni réttast það bak,
sem ofreynt var þegar í æsku,
og útnyrðing lirepti og græsku,
því fátt var sem bar af því blak.
En draumurinn eigi gat dáið,
• þó djarfur og fjarstæður sé,—
í vonleysi vikurs og móa,
að viðhalda trúnni á skóga,
með gnæfandi tíguleg tré.
Þær spyrja mig ein eftir aðra
hvort ofdirfska myndi það stærst,
að þær sendu vina-ljóð vestur,
—fyrst væri eg langförull gestur—
til skóga, sem skipa sér hæst.
Mér kært er að flytja þær kveðjur,
þú kjarkmikla dvergbjörk í hlíð!
—þitt hugrekki var það í verki,
sem varðveitti skóganna merki,
og þessvegpa finst mér þú fríð!
Jakobína Johnson.