Lögberg - 07.11.1935, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 7. NÓVEMBER, 1935.
Ur borg og bygð
——
Heklufundur í kvöld (fimtudag).( Mr. Páll Magnússon frá Leslie,
------- ' Sask., kom til borgarinnar á föstu-
Mr. Magnús Hinriksson frá i dagin og dvaldi hér fram á mánu-
Churchbridge, Sask., kom til borg- J dag.
arinnar á fostudaginn var, í heim- j _______
sókn til dóttur sinnar og tengdason- \ „ , . ,
n/r wt t t* 1 tt Sera Lyjolfur J. Melan fra River-
ar, Mr. og Mrs. W. J. Lmdal. Hann I ... . ,
r, . • r. . , , ton, var stadur í borginm a manu-
for heim aftur a manudagskvoldið.
dagmn.
Frá íslandi kom á þrifijudags-
morguninn frú Þóra Einarsdóttir,
kona séra Jakobs Jónssonar, ásamt
þremur börnum þeirra hjóna. Hafði
séra Jakob farið til Quebec til móts
við f jölskyldu sína.
Mr. Thordur Thordarson kaup-
maður á Gimli, var staddur i borg-
inni á mánudaginn. *
Mr. Sveinn Thorvaldsson kaup-
maður í Riverton kom til borgarinn-
ar síðastliðinn mánudag.
Mr. Einar Thompson frá West-
bourne, var staddur í borginni á
mánudaginn, ásamt Thomasi syni
sínum.
Messuboð
VI'
FYRSTA LÚTERSKA KIRKJA
Guðsþjónustur í Fyrstu lútersku
kirkju næsta sunnudag io. nóv.,
verða með venjulegum hætti: Ensk
messa kl. n að morgni og íslenzk
messa kl. 7 að kvöldi.
Sunnudagsskóli kl. 12.15.
Mr. J. B. Johnson frá Gimli, kom
til borgarinnar á mánudagsmorgun-
inn.
Mr. Björn B. Johnson frá Gimli,
var staddur í borginni siðastliðinn
mánudag.
Mr. Vilhjálmur Árnason frá
Gimli, kom til borgarinnar í byrjun
vikunnar.
Mr. Steinþór Hallgrímsson frá
Glenboro kom til borgarinnar um
síðustu helgi.
Mr. John Thorsteinson hótelstjóri
á Gimli, var staddur í borginni á
mánudaginn.
Mr. S. V. Sigurðsson útgerðar-
maður frá Riverton, var staddur í
borginnj á mánudaginn.
Þær systurnar Solveig og Þóra
Sveinsson frá Saskatoon, komu til
borgarinnar á föstudaginn var í
heimsókn til ættingja og vina.
Mr. Páll Guðmundson frá Leslie,
Sask.; kom til borgarinnar á föstu-
daginn var og dvaldi hér fram á
mánudag.
Mr. ■ Jóhannes Sæmundsson frá
Hensel, North Dakota, kom til borg-
arinnar á þriðjudaginn ásamt tveim
sonum sínum.
Heimlisiðnaðarfélagið heldur
næsta fund sinn á miðvikudags-
kvöldið 13. nóvember, að heimili
Mrs. C. S. Johnston, 985 Warsaw
Ave.
Áætlaðar messur í Gimli presta-
kalli næstkomandi sunnudag, þ. Io.
nóv., eru þannig, að morgunmessa
verður í Betel á venjulegum tíma,
siðdegismessa á ensku kl. 2 í kirkju
Árnessafnaðar. Séra Bjarni A.
Bjarnason væntanlega prédikar. ís-
lenzk messa í kirkju Gimlisafnaðar
kl. 7 að kvöldi. Til þess er mælst,
að fólk fjölmenni.
Guðsþjónusta er ákvörðuð í
kirkju Konkordia safnaðar næsta
sunnudag, þ. 10. þ. m.—S. S. C.
Messur áætlaðar um næstu sunnu-
daga :—17. nóv., Árborg, kl. 2 síðd.
(Heimatrúboðsoffur). Samtal við
fermingar ungmenni eftir messu.
24. nóv., Riverton, kl. 2 síðd.
(Heimairúboðsoffur).
K'.v f.itoia. i.1
JON BJ'ARNASON ACADBMY
Gjafir:
Dr. B. T. H. Marteinsson,
The Pas, Man.............$10.00
í minningu um látinn vin og
félaga, W. H. Paulson, frá
þjóðræknisdeildinni Iðunn
í Leslie, Sask........... 10.00
Mr. G. Gilbertson, Wpg. .. 1.00
Mrs. Soffia Johnson,
Wynyard, Sask.......*.... 2.00
Vinsamlegt þakklæ.ti vottast hér-
með fyrir þessar góðu gjafir,
S. W, Melsted,
gjaldkeri skólans.
Concert and Dance under the
auspices of the Young People’s Club
of the First Lutheran Church will
be held on Tuesday, NoVember I9th,
at 8.15 p.m.—Admission 25 cents.
The Young Peoples Club of the
First Lutheran Church will hold its
nert meeting on Friday, Nov. l5th,
at 8.15 p.m.
Mr. G. J. Oleson, lögregludómari
frá Glenboro, kom til borgarinnar á
laugardaginn og dvaldi hér fram á
mánudag.
Séra E. H. Fáfnis frá Glenboro
og Mr. Jónas Helgason frá Baldur
og Sigurður Helgason frá Glenboro,
komu til borgarinnar á mánudaginn.
Mr. Eldjárn Johnson, lögreglu-
þjónn í Glenboro, kom til borgar-
innar á laugardaginn var ásamt
tveim dætrum sínum. Dvöldu þau
hér fram á mánudag.
Mr. B. J. Lifman, sveitaroddviti
í Bifröst, var staddur i borginni á
laugardaginn var.
GJAFIR TIL BETEL
Ónefndur, Gimli, 50C; Vinkona
Betels, Gimli, $2.00; Mr. Guðni
Brynjólfsson, Churchbridge, Sask.,
$25.00; Vinkona Betels, Winnipeg,
$5.00; Mrs. C. O. L. Chiswell,
Gimli, 8 pund tomatoes; Dr. B. J.
Brandson, Wpg., eplakassi
Innilega þakkað fyrir hönd stjórn.
arnefndarinnar,
J. J. Swanson féhirðir.
601 Paris Bldg.
Winnipeg.
ANNOUNCING THE OPENING OF THE
REGAL VALET SERVICE
Cleaning - Pressing - Tailoring
Dyeing - Furriers
Proprietors: JAS. HEMENWAY ROY SHEFLEY
627 SARGENT AVE., WINNIPEG
PHONE 22 166
íslenzkri guðsþjónustu verður út.
varpað frá Fyrstu lútersku kirkju
á sunnudagíkvöldið þann 24. þ. m.
Hjónavígslur
Gefin saman í hjónaband af séra
Jóh. Fredriksson að Lundar, Man.,
Miss Sveinbjörg Kristjánsson og
Haraldur Benediktsson, þ. 25. okt.
Framtíðarheimili ungu hjónanna
verður að Lundar.
Undirbúningur er hafinn í þá átt,
að stofna til samtaka meðal þeirra
manna i Winnipeg, er töldust til 32.
herdeildarinnar, C.E.F. Upplýsing-
ar þessu viðvíkjandi fást hjá J.
Easton, 906 Hoskin Ave., Morse
Place, Man.
Mannalát
Guðmundur Kjartansson lézt að
heimili sínu, Reykjavík, Man., þ.
28. okt., 72 ára gamall. Hann var
jarðsunginn að Reykjavík þann 1.
nóv. — Hans mun getið í blöðun-
um nánar síðar.
$2 475
’COMMODORE
MISS
AMERICA
$2S)75
tADY MAXIM
$2475
SENATOR
For style, depend-
ability and VALUE
— a Bulova watch
is beyond compare*
Mánaðarlegar afborganir ef óskað—án vaxta.
Thorlakson & Baldwin
699 SARGENT AVENUE
WINNIPEG
Guðmundur Guðmundsson, 71 árs
gamall, andaðist að Reynistað í
Mikley, heimili þeirra hjóna, Mr. og
Mrs. Chris Tómasson, þ. 25. okt. s.l.
Var ættaður af Suðurlandi. For-
eldrar hans, Guðmundur Snjólfs-
son og Sigríður Guðmundsdóttir,
bjuggu um eitt skeið að Skógtjörn á
Álftanesi. Var Guðmundur þar hjá
foreldrum síntíhi þegar hann vár á
unglingsaldri, en flutti síðan að
Bessastöðum til Gríms Thomsen, og
var þar í nokkur ár. Mun hafa flutt
vestur um haf laust fyrir síðastliðin
aldamót og hefir síðan átt heima hér
í fylki, og síðastliðin ellefu ár að
Reynistað í Mikley. Guðmundur var
stiltur maður og hægur í fasi. Hinn
prúðasti maður í umgengni og kom
sér vel. Trúleiksmaður í störfum;
hinn áreiðanlegasti í viðskiftum.
Varð veikur af innvortis meinsemd
i marz síðastliðnum og lá þá nokkr-
ar vikur á spítala. Fékk þar lítinn
^ða engan bata og var fluttur til
Mikleyjar aftur í vor er leið. La
hann að mestu rúmfastur upp fra
því. Naut hann hinnar ágætustu að-
hjúkrunar hjá þeim Reynistaðar
biónum. Reyndust þau honum frá
bærlega vel. Hafði hann og jafnan
kynt sig hið bezta á heimilinu, var
eins og einn ifjölskyldunni og lét
sér ant um hag heimilisins í öllu.—
larðarför Guðmundar fór fram þ.
30. okt., fyrst með húskveðju að
Reynistað, en síðan með útfararat-
höfn i kirkju Mikleyjarsáfnaðar.
Séra Jóhann Bjarnason jarðsöng.
Mrs. Jakobína Stefánsson las upp
kvæði eftir mann sinn, Jónas skáld
Stefánsson frá Kaldbak. Býsna
margt fólk viðstatt, þrátt fyrir
fremur óhagstætt veður þann dag.
Ákveðið hefir verið að stofna til
skemttsamkomu í Satnbandskirkj-
unni hér í borg á þriðjudagskvöldið
þann 19. þ. m., til arðs fyrir sumar.
heimili það á Gimli, er minst var á
hér í blaðinu í ritgerð eftir frú
Marju Björnsson. Skemtiskrá verð-
ur f jölbreytt. Meðal annars skemt-
ir þar með söng frú Sigríður Olson,
Pálmi Pálmason leikur á fiðlu, Pét_
ur Magnús syngur einsöng, Dr.
Rögnvaldur Pétursson flytur ræðu
og Snjólaug Sigurðsson leikur á
pianó. Er hér um gott málefni að
ræða, er verðskuldar fullan stuðn-
ing.
Mrs. Guðbjörg Benediktsson frá
Mozart, Sask., kom til borgarinnar
síðastliðinn sunnudag, til vikudvalar.
Frú Jakobína Johnson, skáldkona,
lagði af stað áleiðis til heimilis síns
í Seattle á þriðjudagsmorguninn var.
Fylgja henni héðan blessunaróskir
fjölmenns vinahóps.
Mr. Thorlákur Björnson, Mr. og
Mrs. Sigurður Björnsson og Mr.
Björn Björnsson, öll frá Hensel, N.
Dakota, komu til borgarinnar á
þriðjudaginn. I för með þeim var
Mr. J. J. Thorvarðsson frá Akra.
Skemtifundur stúkunnar Heklu í
kvöld.
í æfiminningu um Þorlák Guðna-
son, sem prentuð er á öðrum stað
hér í blaðinu, hefir misprentast fæð.
ingarár hans. Þorlákur var fæddur
13. júní 1855.
Mr. Heimir Thorgrímsson frá
Baldur, kom til borgarinnar í lok
fyrri viku.
Séra K. K. Ólafsson, forseti
Kirkjufélagsins, lagði af stað áleið-
is til heimilis síns í Seattle, Wash., á
þriðjudaginn.
Mr. og Mrs. Thorlákur Nelson
frá Clarkleigh, Man., komu til borg-
arinar í byrjun yfirstandandi viku.
Mr. Vilhjálmur Pétursson kaup-
rriaður frá Baldur, Man., var stadd.
ur í borginni á mánudaginn.
AUGNASKOÐUN
og gleraugu löguð við hæfi
J. F. HISCOX
Optometrist
Formerly of Hudson’s Bay Co.
Successor to Maitland Tinlin
209 Curry Bldg. Ph. 93960
Opposite Post Office
HAROLD EGGERTSQN
Insurance Counsclor
NEW YORK LIFE INSURANCE
COMPANY
Room 218 Curry Bldg.
233 Portage Ave., Winnipeg
OffiCe Phone 9 3 101
Res. Phone 86 828
; V r "‘Oþ .£
Matthíasar-hátíð
þjóðrœknisfélagsins
Eins og getið var um í síðasta blaði, efnir Þjóðræknisfé-
lagið til fjölbreyttrar minningarhátíðar í tilefni af aldarafmæli
séra Matthíasar Jochumssonar. Verður hún haldin í Fyrstu
lútersku kirkju á sjálfan afmælisdaginn, þ. n. nóvember, næst-
komandi mánudag, og hefst kl. 8 að kveldi. Þarf vart að taka
það frarn, að skemtiskráin verður öll á íslenzku.
Ræðumenn verða Dr. Björn B. Jónsson, Dr. Rögnvaldur
Pétursson og Dr. Richard Beck. Hafa þeir skift þannig verk-
um með sér, að séra Björrt talar um sálma skáldsins og andleg
ljóð, séra Rögnvaldur um söguleg kvæði hans, og Prófessor
Beck um skáldið alment og persónu hans.
Karlakór íslendinga, undir stjórn hr. Páls Bardals, skemtir
með söngvum milli ræðanna, sem allar verða í styttra lagi; eins
og bezt hæfir á þessum minningardegi, verða sungin valin kvæði
.eftir sjálft þjóðskáldið. Frú Sigríður Hall syngur einsöng og
hr. Einar P. Jónsson, skáld, flytur frumort minningarkvæði um
séra Matthías. Hr. Jón J. Bildfell, forseti Þjóðræknisfélagsins,
stýrir samkomunni.
Allir Islendingar eru boðnir og velkomnir á hátíðina. Að-
gangur er ókeypis og engin samskot verða tekin. Væntir Þjóð-
ræknisfélagið þess, að almenningur fjölmenni á hátíð þessa og
heiðri þannig minningu hins ástsæla þjóðskálds.
Hátíðarnefndin:
Richard Beck S. W. Melsted
Guðmann Levy
KAUPIÐ ÁVALT
LUMBER
hjá
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
HENRY AVENUE AND ARGYLE STREET
WINNIPEG, MAN. PHONE 95 551
J. Walter Johannson
UmboðsmaCur
NEW YORK LIFE INSURANCE
COMPANY
219 Curry Bldg.
Winnipeg
Úr, klukkur, gimsteinar og aðrir
skrautmunir.
Giftingaleyfisbréf
447 PORTAGE AVE.
Sími 26 224
Minniát BETEL
*
i
erfðaskrám yðar !
Sendið áskriftargjald yðar
fyrir “The New World,” mán-
aðarrit til eflingar stefnu
Co-operative Commonwealth
Federation í Canada.
Aðeins EINN dollar á ári
sent póstfrltt
Útgefendur
The New World
1452 ROSS AVE.
Winipeg, Manitoba
Jakob F. Bjarnason
TRANSFBR
Anna/vt grreiðlega um alt, MKH a*
flutnlnffum lýtur, imium eSa wt6r-
um. Hvergi sanngjaj-nara verl)
Heimili: 591 SHERBURN ST.
Sími: 35 909
The Watch Shop
Diamonds - Watches - Jewelry
Agents for Bulova Watches
Marriage Licenses Issued
TIIORLAKSON & BALDWIN
Watchmakers & Jewellers
699 SAROENT AVE., WPQ.
STUDY BUSINESS
At Western Canada’s Largest and Most
Modern Commercial School
For a thorough training, enroll DAY SCHOOL
For added business qualifications, enroll NIGHT SCHOOL
The Dominion Business College offers individual
instruction in—
SECRETARYSHIP
STENOGRAPHY
CLERICAL EFFICIENCY
MERCHANDISING
ACCOUNTANCY
• BOOKKEEPING
COMPTOMETRY
—and many other profitable lines of work.
EMPLOYMENT DEPARTMENT
places graduates regularly.
DOMINION
BUSINESS COLLEGE
On The Mall and at Elmwood, St. James,
and St. John’s