Lögberg - 14.11.1935, Síða 1

Lögberg - 14.11.1935, Síða 1
48. ÁRGrANGUB WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 14. NÓVEMBER, 1935. NÚMER 46 DO( Matthías Jochumsson *«=>« Lofsöngur Ó, Guð vors lands! ó, Imds vors Guð, vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn! Úr sóllcerfum himnanna hnýta þér krans þínir herskarar, timanna safn! Fyrir þér er einn dagur sem þúsmid ár, og þúsu/nd ár dagur, ei meir, eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár, sem tilbiður Guð sinn og deyr. |: íslands þúsund ár :| eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár, sem tilbiður Guð sinn og deyr. i Ó, Guð! ó, Guð, vér föllum fram og fórnum þér brennandi, brennandi sál, Guð faðir, vor Drottinn frá kyni til kyns, og vér kvökum vort helgasta mál; vér kvökum og þökkum í þúsund ár, því þú ert vort ei/nasta skjól; vér kvökum og þökkum með titrandi tár, því þú tilbjóst vort forlaga-hjól. |: íslands þúsund ár :| voru morgu/nsins húmköldu, hrynjandi tár, sem hitna við skínandi sól. Ó, Guð vors lands! ó, lands virs Guð, vér lifum sem bláktandi, blaktandi strá; vér deyjum, ef þú ert ei Ijós það og líf, sem að lyftir oss duftinu frá; ó, vert þú hvern morgun vort Ijúfasta líf, vor leiðtogi’ í daganna þraut, og á kvöldin vor himneska hvild og vor hlíf, og vor hertogi’ á þjóðlífsins braut; |: Islands þúsund ár :| verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár, sem þroskast á Guðs-ríkis braut. Úr borg og bygð Mr. Magnús Magnússon frá Roseau, Minn., kom til borgarinnar á mánudaginn var, í heimsókn til ættingja og vina. Mrs. Anna Árnason frá Lang- ruth, er nýkomin til borgarinnar og hygst aÖ dvelja í vetur hjá systur sinni, Mrs. Simpson, sem heima á í Fort Garry. Veitið athygli! Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaÖar heldur sinn árlega Bazaar á miÖvikudaginn þann 20. þ. m. í samkomusal kirkjunnar frá kl. 3 til 10.30 aÖ kveldi. Framreidd- ur verður kveldverður frá kl. 6 til 8, er kostar 25 cents fyrir manninn. Skemtiskrá fer fram frá kl. 9 til 10 um kvöldið. Kaffi og ýmislegt annað til hressingar verður á boð- stólum allan þann tíma, er Bazaar þessi stendur yfir. Vænta má að fólk f jölmenni á þenna Bazaar kven- félagsins og styðji með því gott málefni. Mrs. Ó. Stephensen skip- ar forsæti í nefnd þeirri, er undir- búning þessarar Bazaar-samkomu hefir með höndum. Suður til Mountain, N. Dak., fóru í þremur bílum á laugardaginn, til þess að hlusta á erindi, er hr. Ásgeir Ásgeirsson, fyrrum forsætisráðgjafi íslands, flutti þar um kvöldið: Ás- mundur P. Jóhannsson, J. Walter Jóhannsson, J. J. Bíldfell, Árni Eggertson, J. J. Samson, Einar P. Jónsson, Lúðvík Kristjánsson og frú, Hijálmar Gíslason, Rögnvaldur Pétursson, Þorvaldur Pétursson, Stefán Johnson og Bergthor Emil Johnson. Ferðafólk þetta kom heim aftur seinnipart sunnudags. Miss Elín Sigurðsson, kenslu- kona frá Lundar, Man., var stödd i borginni síðastliðinn mánudag. Mr. Grímur Heiðmann frá Glen_ boro, kom til borgarinnar á fimtu- daginn var með unga dóttur sína til lækninga. í för með honum var tengdasystir hans, Mrs. Benedikt Heiðmánn. John J. Arklie, gleraugnafræðing- ur, verður staddur á Hótel Lundar á föstudaginn þann 22. þ. m. Útvarpsræða um Matthías Jochumsson. Næstkomandi mánudag, 18. þ. m., flytur Dr. Richard Beck erindi á ensku um séra Matthías Jochums- son frá útvarpsstöðinni KFJM í Grand Forks. Erindið verður flutt kl. 5.15 síðdegis, og á þeim tíma á mánudögum flytur Dr. Beck fram- vegis erindi um bókmentir Norður- landa. Þetta eru íslendingar í N. Dakota og annarsstaðar beðnir að athuga. í Prestsembætti í Gimli presta- kalli setti forseti Kirkjufélagsins, séra Kristinn K. Ólafsson, séra Bjarna A. Bjarnason, kosinn prest þar, þ. 3. nóv. s.l. Fór innsetningin fram við síðdegismessu í kirkju Gimlisafnaðar og var fjöldi fólks viðstatt, þar á meðal talsvert af fólki úr Árnessöfnuði og Víðinessöfnuði og úr þeim bygðum. Prédikaði for- seti sjálfur við það tækifæri. Var guðsþjónustan öll með hátíðarblæ og fór fram hið bezta.—Á eftir fóru fram rausnarlegar veitingar undir umsjón kvenfélags Gimlisafnaðar. —Almennur áhugi og góð samvinna virðist nú yfirleitt ríkja þar í presta- kallinu. Þjóðræknisdeildin “Frón” heldur fund i Goodtemplarahúsinu á mánu. dagskvöldið kemur, kl. 8. Verður þar margt til skemtunar og fróð- leiks. Meðal annars flytur Dr. Ó- feigur Ófeigsson þar ræðu, en hr. Ragnar H. Ragnar leikur á pianó. og Lúðvik Kristjánsson kemur fólki til að hlæja. Þess er að vænta að fjölment verði, því allir eru boðnir og velkomnir. The Young People’s Club of the First Lutheran Chureh, will hold their next meeting on Friday, Nov. 15th, in the Jon Bjarnason Academy owing to the Silver Tea to be held in the Church Parlors in aid of the Jón Bjarnason Academy on that evening. íslenzku-skólinn á laugardögum hefir á ný hafið starf. Hann er eins og áður, undir stjórn Þjóðræknis- félagsins íslenzka. í fyrstu var kennaraskortur, en nú er bætt úr því. Skólann sóttu síðastliðinn laug- ardag um 60 börn og unglingar. Kennararnir voru fjórir, en fleiri fást ef þörf gerist. Eg vil leiða at- hygli almennings að þessu tækifæri til að nema íslenzku. Það eru enn til unglingar í Wlinnipeg, sem kunna nærri ótrúlega mikið í íslenzku. Gefið þið unglingunum kost á því að kynnast dálítið meir móðurmáli ykkar og feðra ykkar. Þetta er tal- að sérstaklega til þeirra, sem eiga að ráða börnum og unglingum. Skólinn hefst 9.30 á hverjum laugardagsmorgni. Fjölmennið næsta laugardag. Rúnólfur Marteinsson. MRS. ANDREA JOHNSON Á nýafstöðnu ársþingi samtaka hinna sameinuðu bændakvenna í Manitoba, höldnu í bænum Portage la Prairie, var Mrs. Andrea John- son í Árborg, kosin forseti þess fé- lagsskapar. Mrs. Johnson hefir all- mörg undanfarin ár látið mál þess- ara samtaka mikið til sín taka og haft forgöngu þeirra á hendi; var meðal annars vara-forseti þeirra í fimm ár auk þess sem hún hefir verið ritari Árborgar-deildarinnar í síðastliðin 14 ár; hefir hún mjög gefið sig við samvinnumálum á ýms_ um sviðum og getið sér í hvívetna hinn bezta orðstír, MR. PAUL BARDAL Mr. Bardal hefir átt sæti í bæjar. stjórn síðastliðin f jögur ár, og getið sér hinn bezta orðstir. Hann hefir átt sæti/og skipað forsæti í mörgum mikilvægum nefndum, er varða heill borgarbúa; hann hefir verið forseti Social Welfare nefndarinnar, vara- formaður Unemployment Relief nefndarinnar, meðlimur heilbrigðis, sjúkrahúss og f jármálanefndar. Hefir hann á öllum sviðum reynst hagsýnn og samvizkusamur starfs- maður, er með vaxandi æfingu má vafalaust meira vænta af. Mr. Bardal er fæddur innan vébanda 2. kjördeildar og hefir alið þar allan sinn aldur; honum er því af skiljan. legum ástæðum flestum betur um það kunnugt hvar skórinn kreppir. Það er Islendingum vegsauki að eiga í bæjarstjórn slíkan mann sem Mr. Bardal er, og þeir láta vafa- laust heldur ekki sitt eftir liggja hieð því að tryggja honum kosningu á föstudaginn þann 22. þessa mán- þðar. JUNIOR LADIES’ AID ELECT OEFICERS AT FIRST LUTHERAN Tuesday the Junior Ladies’ Aid of the First Lutheran Church, Victor St., held their annual meeting. Fol- lowing the reading of the annual re- ports, the election of officers took place, and the following were elected:— Hon. Pres.—Mrs. B. B. Jónsson President—Mrs. E. S. Feldsted Vice-Pres.—Mrs. G. F. Jónasson Sec.—Mrs. Oliver G. Bjornson Ass. Sec.—Mrs. F. Wienecke Treas.—Mrs. T. E. Thorsteinson : Ass. Treas.—Mrs. Ben Baldwin Attendance—Mrs. S. Sigmar and Mrs. J. Snydal. Arrangements are being made for a “St. Nicholas Tea” to be held Dec. 3rd. Matthíasar-hátíð Dýrðlegustu hátiðirnar eru ekki fólgnar í dönsum og átveizlum. Allir íslendingar í víðri veröld | söfnuðust saman í anda 11. nóvem- ber til þess að minnast Matthíasar Jochumssonar og biðja “guð vors lands” að blessa oss þann mikla auð, sem hann arfleiddi oss að. Winnipeg íslendingar söfnuðust saman í Fyrstu lútersku kirkjunni við þetta tækifæri og tóku þar allir höndum saman án tillits til þeirra skiftu skoðana, sem enn greinir þá í andstæðar fylkingar á öðrum svið- um. Þetta átti einkar vel við því Matt- hías var engra flokka maður, andi hans öllum skyldur og öllum kær. Skemtiskrá þessarar samkomu var bæði f jölbreytt og vel valin. Jón Bíldfell, forseti Þjóðræknis- félagsins,stjórnaði henni og flutti nokkur byrjunarorð. Að því loknu söng söngflokkur “Ó, guð vors <K=«« Matthías Jochumsson (Aldarminniiig) 0, guð vors lands, hve heitt skal þakka þér hvern þroskadraum, er andi skáldsins sér og birtist oss í litum ljóðs og hljóms, sem líf í auga nvútsprungins blóms; hvert vamgjað orð, er lvfti mold í mann og morgun inn í kvöldvökuna spann. Drag skó af fótum, hér er lieilög jörð! Nú hlustar ísland sjálft á messugjörð síns æðsta prests, sem orti ljóðsins ljóð, er lýsir fram í aldir heilli þjóð; þess skálds, er gegnum málsins tröllatök fékk túlkað lífsins þungskildustu rök. Af himinfjöllum daggir drjúpa enn; til dáða fæðast röskir vökumenn, er klífa bergsins bratta eins og fyr oprbraglist vorri helga nýjar dyr. En Matthías er mestur enn af þeim, sem munda spjót í andans regingeim. Sjá-dagur rennur, — liimins opnast hlið! Þó hverfi öld, er bjart um skáldsins svið : þess sigurglæsta morg'unhetju mynd, er meitluð inn í sérhvern fjallatind. A enni barns sem aldurlinigins brá má ímynd stærsta kraftaskáldsins sjá. Komst nokkur hærra í helgri andagift og hafði þjmgri Grettistökum lvft en hann, sem geymdi Island alt í sál, 'þess ást og fögnuð, sorg og Hávamál? Hans breiða anda yngir sérhver öld> þó aðra feli gleymskuslæða köld. Einar P. Jónsson. lands” undir forustu Páls Bardals, bæjarráðsmanns. Ræður fluttu þeir: Dr. B. B. Jónson, Dr. R. Pétursson og pró- fessor Richard Beck. Séra Björn talaði um sálma og andleg kvæði skáldsins, séra Rögnvaldur um sögu- fróðleik Matthíasar en prófessor Beck um manninn og skáldið. Allar voru ræðurnar snjallar og víða stór. kostleg tilþrif. Skal því ekki lýst hér, því þær verða óefað birtar í heild sinni. E. P. Jónsson, ritstjóri Lögbergs, flutti frumort kvæði gullfallegt, enda yrkir hann nú hvert kvæðið öðru betra. Að síðustu flutti séra Jakob Jóns- son nokkur orð einkar fögur og las upp tvö úrvals kvæði eftir Matt- hías. Milli ræðanna voru sungin íslenzk kvæði; hafði Mr. Bardal valið þau flest eftir Matthías og fór vel á því. Það var ánægjulegt að sjá and- stæðu öflin i íslenzku þjóðlífi sam- einast í fullri einlægni við þetta tæki- færi og datt mér í hug þessa visa meðan samkoman fór fram: Vort innra lif er orpið snjó, sem andans blindar vegi; en yzta lagið þiðnar þó á þessum helga degi. Sig. Júl. Jóhannesson. MR. EMILE IVALTERS, listmálari Mr. Walters er staddur i borginni um þessar mundir, í sam- bandi við sýningu þá á málverkum hans af íslandi, sem stendur yfir i T. Eaton Art Galleries á 6. lofti búðarinnar fram á þann 23. nóvember. Þarna er um að ræða málverk af mörgum frægustu sögustöðum á íslandi, er mörgum mun leika hugur á að sjá. íslendingar fjölmenna vafalaust á þessa sjaldgæfu sýningu.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.